Jun 26 2006
Life during the World Cup
Ég hef ekki mikið að segja á þessari síðu. Flest, sem vekur upp reiði mína og gleði er rætt á þessari síðu, þar sem ég hef ákveðið að halda öllum HM skrifum mínum.
En það má alveg koma því fram að mér finnst það verulega illa af knattspyrnuguðunum gert að fella bæði Mexíkó OG Holland (tvö uppáhaldsliðin mín) úr keppni á einni og sömu helginni. Það þóttu mér grimm örlög.
Jú, svo má líka koma því að að núna held ég með Argentínu í keppninni (það var lið númer 3 hjá mér). Einnig held ég með Spáni og Englandi, en þá með því skilyrði að í þeim liðum séu Liverpool menn að spila. Annars mega þau lið grotna niður og falla úr keppni ekki seinna en strax.
Já, og svo hata ég Portúgal. Og Luis Figo.
Eitt ummæli við færsluna “Life during the World Cup”
# - þann 26 Jun 2006 klukkan 20:35
Allez les BLEUS!