Skráarsafn fyrir November, 2006

Nov 29 2006

Skiptinemi

skrifaði í flokkinn Netið

Einsog flestir fyrrverandi skiptinemar þekki ég stressið tengdu því að fá að vita hvernig fósturfjölskylda myndi verða. Sem betur fer var ég ólýsanlega heppinn með mína fjölskyldu í Caracas.

Þessi Pólverji var ekki alveg jafn heppinn

When Polish student Michael Gromek, 19, went to America on a student exchange, he found himself trapped in a host family of Christian fundamentalists. What followed was a six-month hell of dawn church visits and sex education talks as his new family tried to banish the devil from his soul

og þetta:

My host parents treated me like a five-year-old. They gave me lollipops. They woke me every Sunday morning at 6:15 a.m., saying ‘Michael, it’s time to go to church.’ I hated that sentence. When I didn’t want to go to church one morning, because I had hardly slept, they didn’t allow me to have any coffee.

Greinin öll er mögnuð. Ég hætti einmitt við að fara til Bandaríkjanna af því að ég var hræddur um að enda á einhverju krummaskuði. Það að velja Venezuela í stað Bandaríkjanna er sennilega meðal bestu ákvarðanna ævi minnar.

via Kottke

11 ummæli hingað til

Nov 28 2006

Ég á Mæspeis 2.0

skrifaði í flokkinn Netið

Af því að ég á ekkert líf og hef ekkert gott við tímann minn að gera, þá er ég búinn að breyta prófílnum mínum á Mæspeis. Núna lítur hann meira út einsog þessi heimasíða. Þú gætir þurft að smella á refresh til að sjá rétt útlit.

Og ég er búinn að fara úr 13 vinum í 20 á einum degi. Það er voðalega skemmtilegt. Núna þarf ég bara svona 300 vini til að ná meðaltalinu. :-)

Comments Off

Nov 27 2006

Ég á Mæspeis

skrifaði í flokkinn Netið

Af því að ég er svo hipp og kúl og móðins og allt það, þá setti ég upp Myspace síðu einhvern tímann síðasta sumar. Eyddi um hálftíma í það verkefni, fattaði ekki hvað var svona spennó við þetta og gafst upp.

Þangað til að í síðustu viku hafði ég ekkert að gera og ákvað að setja eitthvað inná þessa blessuðu síðu. Þannig að hún núna uppfærð og þú getur m.a. hlustað á uppáhaldslagið mitt í dag á prófílnum mínum.

Ógisslega spennó, ekki satt?

Allir aðrir sem ég skoða eiga svona 3-400 vini. Ég á hins vegar 13, sem er ekkert sérstaklega merkilegur árangur. Ég stefni kannski ekki alveg á 300, þar sem ég held að ég geti ekki munað fleiri nöfn en svona 50.

En allavegna, hér eftir verð ég þekktur sem Myspace.com/einaro. Mun ég því ekki svara öðrum nöfnum.

10 ummæli hingað til

Nov 23 2006

Afmæli

skrifaði í flokkinn Vinna

Við á Serrano ætlum að fagna 4 ára afmælinu okkar á laugardaginn. Ég veit að eitthvað af fyrrverandi starfsfólki Serrano les þetta blogg og við ætlum einmitt að bjóða fyrrverandi starfsfólki á afmælið. Þannig að ef þú hefur unnið á Serrano og…

  1. Varst ekki rekinn útaf því að þú sagðir okkur að amma þín væri dáin, þrátt fyrir að hún væri á lífi… eða
  2. Sagðir ekki upp með sms skeyti fimm mínútum fyrir vakt… eða …
  3. Hefur ekki kallað mig meira en fimm vondum nöfnum eftir að þú hættir…

…þá endilega hafðu samband við mig á einarorn@gmail.com og ég segi þér allt um það hvenær og hvar á að mæta.

Við viljum endilega sjá sem flesta! :-)

4 ummæli hingað til

Nov 22 2006

2 ný tæki

skrifaði í flokkinn Tækni

Ég skammast mín ekkert fyrir að vera á tíðum algjörlega tækjaóður. Ég hef núna beðið í næstum mánuð eftir nýjasta tækinu mínu, sem mun eflaust gera líf mitt betra, innihaldsríkara og yndislegra þegar hún loksins kemur.

Á meðan ég bíð get ég allavegana leikið mér með tvö snilldartæki tengd iPodinu mínum, sem ég keypti í Tælandi.

  • Fyrir það fyrsta keypti ég mér TuneBase frá Belkin á flugvellinum í Bangkok. Þetta er lítið tæki, sem maður stingur í sígarettukveikjarann í bílnum. Tækið bæði hleður iPodinn og sendir svo út útvarpsbylgjur til að hlusta á iPod-inn í bílagræjunum.

    Nú hef ég átt svona útvarpssendi áður, en þessi er margfalt betri. Bæði eru hljómgæðin æðisleg og svo er þetta sniðugara að því leyti að tækið kveikir og slekkur á iPodinum þegar maður kveikir eða slekkur á bílnum. Algjör snilld!
  • Hitt tækið er ekki síður mikil snilld, en það er Nike +. Þetta er lítill sendir sem maður setur á hlaupaskóinn sinn og svo annar sendir, sem maður tengir við iPod nano. Þessir sendar nema það svo hversu langt maður hleypur í ræktinni, reiknar út kaloríur og alles. Þegar maður hleypur með iPod-inn nægir að smella á einn takka og þá kemur rödd og segir manni hversu lengi og hversu langt maður hefur hlaupið. Ef þú bætir árangur þinn kemur svo Lance Armstrong í lokin og óskar manni til hamingju með persónuleg met.

    Svo getur maður líka valið sér ákveðið lag, sem maður kemur manni í stuð og kallað það fram með því að halda niðri miðjutakkanum. Þessa dagana er það I’m the Ocean með Neil Young, sem hjálpar mér í gegnum síðustu metrana. Ekki veitir af, þar sem að hlaupaform mitt hvarf á ferðalaginu í Asíu.

Allavegana bæði þessi tæki eru snilld. Mæli með þessu fyrir alla iPod eigendur.

4 ummæli hingað til

Nov 20 2006

I ain’t in love, I ain’t in luck

skrifaði í flokkinn Tónlist

Það er eitthvað stórkostlegt að gerast innra með mér. Ég held að ég sé að byrja að fíla Rolling Stones. Ég er búinn að vera með Exile on Main Street á repeat undanfarna daga og ég er að byrja að elska þessa plötu!

Byrjunin á Rocks off, Tumbling Dice og Let it Loose, sem er algjörlega æðislega frábært lag. Jedúddamía! Ég dýrka þetta lag!

Who’s that woman on your arm
all dressed up to do you harm
And I’m hip to what she’ll do,
give her just about a month or two.

Bit off more than I can chew
and I knew what it was leading to,
Some things, well, I can’t refuse,
One of them, one of them the bedroom blues.

She delivers right on time,
I can’t resist a corny line,
But take the shine right off your shoes,
Carryin’, carryin’ the bedroom blues.
Oo…

In the bar you’re getting drunk,

I ain’t in love, I ain’t in luck.

Hide the switch and shut the light,
let it all come down tonight.
Maybe your friends think I’m just a stranger,
Some face you’ll never see no more.

Let it all come down tonight.
Keep those tears hid out of sight,
let it loose, let it all come down.

Fokk hvað þetta er mikil snilld!

Ef þið hafið einsog ég ekki haft mikið álit á Rolling Stones þá hvet ég ykkur til að ná ykkur í Let it Loose og svo restina af Exile on Main Street. Það tekur tíma að komast inní þetta, en þetta er einfaldlega snilld.

Ein ummæli hingað til

Nov 19 2006

Friedman og dópið

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Milton Friedman dó í vikunni. Ég hef ekki skrifað um það, en hef lesið slatta af því, sem um hann hefur verið skrifað. Það eru kannski ekki allir sem vita um skoðanir Friedmans á eiturlyfjum. Hann hafði að mínu mati skynsamar skoðanir á þeim málefnum.

Rogier van Bakel skrifar stuttlega um þetta mál, en lítið hefur verið minnst á eiturlyfjaskoðanir hans eftir að hann dó:

Friedman was an adviser to Richard Nixon and Ronald Reagan, and greatly influenced Margaret Thatcher (icons of squaredom, all). To be sure, for all his sway over those leaders’ economic policies, Friedman utterly failed to convince them that drug prohibition produces nothing but colossal social and financial failure. But it’s also a reality that, to use some time-tested lefty jargon, he fearlessly spoke truth to power, never bending or obfuscating his views on personal freedom just to avoid giving offense to his political masters.

Það er magnað að Friedman hafi tekist að færa almenningsálitið svo nálægt sínum skoðunum í mörgum efnahagsmálum, en honum mistókst algerlega að breyta almenningsálitinu þegar kemur að eiturlyfjamálum. Svo ég vitni í orð Friedman, sem van Bakel vitnar í:

Informers are not needed in crimes like robbery and murder because the victims of those crimes have a strong incentive to report the crime. In the drug trade, the crime consists of a transaction between a willing buyer and willing seller. Neither has any incentive to report a violation of law. On the contrary, it is in the self-interest of both that the crime not be reported. That is why informers are needed. The use of informers and the immense sums of money at stake inevitably generate corruption — as they did during Prohibition. They also lead to violations of the civil rights of innocent people, to the shameful practices of forcible entry and forfeiture of property without due process.

Satt, Milton! Satt!

Og svo þessi snilld frá Friedman. Hann súmerar algerlega í einni málsgrein mína skoðun á eiturlyfjum:

On ethical grounds, do we have the right to use the machinery of government to prevent an individual from becoming an alcoholic or a drug addict? For children, almost everyone would answer at least a qualified yes. But for responsible adults, I, for one, Would answer no. Reason with the potential addict, yes. Tell him the consequences, yes. Pray for and with him, yes. But I believe that we have no right to use force, directly or indirectly, to prevent a fellow man from committing suicide, let alone from drinking alcohol or taking drugs.

Og svo þetta:

But, you may say, must we accept defeat? Why not simply end the drug traffic? That is where experience under Prohibition is most relevant. We cannot end the drug traffic. We may be able to cut off opium from Turkey but there are innumerable other places where the opium poppy grows. With French cooperation, we may be able to make Marseilles an unhealthy place to manufacture heroin but there are innumerable other places where the simple manufacturing operations involved can be carried out. So long as large sums of money are involved-and they are bound to be if drugs are illegal-it is literally hopeless to expect to end the traffic or even to reduce seriously its scope. In drugs, as in other areas, persuasion and example are likely to be far more effective than the use of force to shape others in our image.

Hvenær ætli Friedman hafi skrifað þetta?

Jú, fyrir 34 árum. Hefur ástandið batnað? NEI! Ég er sannfærður um að ástandið í heiminum væri umtalsvert betra í dag ef að menn hefðu ekki bara hlustað á hagfræðinginn Friedman tala um efnahagsmál, heldur líka hlustað á hann tala um eiturlyf.


Já, svo mæli ég með þessari skemmtilegu bók eftir snillinginn Ben Elton. Ég las hana í Víetnam og hún er verulega skemmtileg auk þess sem hún veltir upp mörgum áhugaverðum punktum í tengslum við lögleiðingu eiturlyfja.

Ein ummæli hingað til

Nov 18 2006

Einar Örn klikkar

skrifaði í flokkinn Vinna

Í gærkvöldi fór ég með vini mínum á Óliver. Þar töluðum við um ýmis mál. Þar á meðal kvennavandræði mín og vinnu mína.

Ég sagði honum að mér þætti ég of oft taka með mér vinnuna heim og of oft eyddi ég kvöldunum í áhyggjur útaf vinnu eða í sjálfa vinnuna. Ég sagðist ætla að taka mér tak og bæta þetta. Einnig ætlaði ég að hætta að kíkja svona oft á netið.

Kvöldinu í kvöld (laugardagskvöld nota bene) hef ég eytt á netinu skoðandi hluti útaf vinnunni minni. Ég hef einnig talað í símann í sirka klukkutíma í kvöld útaf vinnu.

Þetta byrjar semsagt ekki vel. :-)

Comments Off

Nov 16 2006

Fléttulistabull

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Ooooo, svona vitleysa fer í taugarnar á mér.

Það sem ég undrast helst er að fólkið sem hefur hæst um að kjósa skuli hæfasta fólkið vill sjaldnast heyra minnst á kynjakvóta eða fléttulista. Fólkið sem segist eingöngu kjósa eftir hæfni einstaklinga hlýtur þá að telja að verri staða kvenna á listum endurspegli það að karlar séu hæfari en konur.

Þetta er bull! Það að ég sé á móti fléttulistum þýðir ekki að ég telji að karlar séu hæfari en konur. Ég vel á lista í prófkjörum eftir hæfileikum. Það getur einfaldlega komið upp sú staða að það séu mun fleiri hæfir karlar í framboði en konur. Er það virkilega svo óhugsandi?

Ég efast ekki um það í eina sekúndu að konur á Íslandi eru jafnhæfar og karlmenn. Það er útaf því að allt Ísland er talsvert stórt mengi af fólki, um 300.000. Ef við tökum hins vegar pínulítið mengi einsog prófkjör í einu kjördæmi þar sem eru um 20 manns í framboði, þá er það næstum því pottþétt að annaðhvort séu karlarnir hæfileikaríkari eða þá að konurnar séu hæfileikaríkari. Það eru býsna takmarkaðar líkur á því að í svo litlum hópi séu þau alveg jafn hæfileikarík.


Karlar og konur hafa jafnan möguleika til að kjósa í prófkjöri og það er engin ástæða til þess að halda að kjósendur í prófkjöri hygli sérstaklega karlmönnum af einhverjum einkennilegum ástæðum. Það hlýtur einfaldlega að vera að í þeim kjördæmum þar sem karlar fái betri niðurstöðu séu karlframbjóðendur betri, og í þeim kjördæmum þar sem kvenframbjóðendur fái betri niðurstöðu (einsog t.d. Samfylking RVK), þá séu kvenframbjóðendurnir betri (að mínu mati var t.d. enginn vafi um það hjá Samf. í RVK).

Hvernig öðruvísi er hægt að skýra það út að hjá sama flokknum (Samfylkingunni) séu konur í fjórum af átta efstu sætunum í Reykjavík, en bara í ein kona í fimm efstu sætunum á Suðurlandi? Eru einhverjar líkur á að tveir 5000 manna hópar, sem báðir kjósa sama flokkinn, hagi sér svona ólíkt – að kjósendur í Suðurkjördæmi haldi almennt að karlar séu betri þingmenn, en að kjósendur í Reykjavík haldi almennt séð að konur séu betri þingmenn?

Er það ekki þá líklegra að kvenframbjóðendur í Reykjavík hafi einfaldlega verið frambærilegri en kvenframbjóðendur á Suðurlandi? Er það ekki líklegra heldur en að almenningur á Suðurlandi hafi eitthvert annað álit á kvenþjóðinni heldur en almenningur í Reykjavík?

Má ekki treysta því að kjósendur séu almennt nógu skynsamir til þess að kjósa ekki á lista eftir kynferði?

p.s. Í því prófkjöri, sem ég tók þátt – þá endaði listinn minn sem fléttaður – en það var hrein tilviljun. Ég taldi einfaldlega að þetta væri besta röðunin – alveg ótengt því hvort frambjóðendur væru karlar eða konur.

Ein ummæli hingað til

Nov 16 2006

Frakki, Stones og fleira

skrifaði í flokkinn Almennt

Í kvöld endurheimti ég frakkann minn. Alveg síðan á laugardagskvöld þegar ég staulaðist útaf Ölstofunni um miðja nótt, þá hefur hann hangið þar á snaga. Annaðhvort eru gestir Ölstofunnar svona mikið sómafólk eða þá að þeim fannst frakkinn ekki nógu fallegur til að stela.

En hann er kominn aftur. Og það er reykingarlykt af honum. Ótrúlegt en satt!


Damien Rice diskurinn nýji hefur einangrað iTunes spilunina mikið síðan að ég kom heim.

Merkilegra en það er að ég held að ég sé að byrja að fíla Rolling Stones! Það hélt ég að myndi aldrei gerast. Ég kenni The Departed um. Meira um það síðar.


Já, og Milton Friedman er dáinn. Ef ég væri jafnmikill hagfræðinörd og ég var fyrir nokkrum árum, þá myndi ég eflaust nenna að skrifa um það. En ég hef breyst.

2 ummæli hingað til

Nov 15 2006

Aðalmeðferð

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Í Kastljósi áðan heyrði ég þessa setningu:

Nú er framundan aðalmeðferð í Baugsmálinu.

Eruði ekki að fokking grínast í mér?

Gátu menn ekki klárað þetta Baugsmál meðan ég var úti? Ég gubbaði næstum því útaf væntanlegum leiðindum, sem þetta mun hafa í för með sér. Hversu lengi á að pína okkur með þessu máli?

Comments Off

Nov 14 2006

Ó internet!

skrifaði í flokkinn Netið

Ó, internet! Ó internet, hversu mikið hef ég saknað þín!

Fimm heilir dagar án heima-net-tengingar eru einfaldlega meira en ég get þolað án þess að fara á taugum. Hvernig á ég að geta lifað án þess að skoða tölvupóstinn minn 15 sinnum á dag? Hvernig á ég að hlusta á útvarp? Missti ég ekki af einhverju ótrúlega spennandi á bloggsíðum landsins?

Það tók verulega á að vera netlaus svona lengi, en þökk sé Hive þá er ég núna kominn með nýja og fína net-tengingu, sem hagar sér vonandi betur en gamla Landssímatengingin mín. Því miður er ég búinn að gleyma öllum þeim ódauðlegu bloggpistlum, sem ég var búinn að semja á þessum tíma.


Já, og Jensi segir allt sem segja þarf um þetta blessaða prófkjör á laugardaginn. Hvað var fólk að meina með því að setja Kristrúnu ekki ofar? Hvurslags eiginlega?

Þessi flokkur gæti verið svo miklu miklu meira. Hvaða rugl er þetta? Hafna framtíðarleiðtoga jafnaðarmanna og einhverjum frambærilegasta stjórnmálamanni sem hefur komið fram vinstra megin við miðju í langan tíma?

Formenn eru felldir á landsfundum, ekki í prófkjöri rétt fyrir einhverjar mikilvægustu þingkosningar í sögu þjóðarinnar.

Hættið þessari vitleysu.

Fylkið nú liði að baki formanni og varaformanni. Hættið þessum innanflokkskítingi og fellið helvítis ríkisstjórnina.


Og hvað er málið með þetta “hun hedder Anna” lag? Er þetta eitthvað djók sem ég er ekki að fatta af því að ég er búinn að vera svona lengi í Asíu?

3 ummæli hingað til

Nov 09 2006

Prófkjör hjá Samfylkingunni í RVK

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Jæja, prófkjörið hjá Samfylkingunni í Reykjavík um helgina og ég ætla auðvitað að kjósa – og hvet alla til að gera það sama.

Hérna er minn listi.

  1. Ingibjörg Sólrún
  2. Össur
  3. Jóhanna Sigurðardóttir
  4. Ágúst Ólafur
  5. Kristrún Heimisdóttir
  6. Helgi Hjörvar
  7. Steinunn Valdís
  8. Ellert B. Schram

Ég vann með þeim Ellert og Kristrúnu í framtíðarhópi Samfylkingarinnar og hef mikið álit á þeim báðum og tel að þau styrki listann umtalsvert. Auk þeirra tveggja tel ég að Steinunn Valdís sé frábær kostur í stað þeirra þingmanna, sem nú sitja fyrir Samfylkinguna og eru ekki á mínum lista.

Þetta er að mínu mati verulega sterkur listi.

13 ummæli hingað til

Nov 09 2006

Næsta ríkisstjórn

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Samkæmt könnun Fréttablaðsins í morgun, þá myndi þingmannfjöldi flokkanna á Íslandi verða svona ef gengið yrði til kosninga í dag.

Framsókn: 4
Sjálfstæðisflokkur: 25
“Frjálslyndir”: 7
Samfylking: 19
Vinstri-Grænir: 8

Nú hefur Ingibjörg Sólrún sagt að stjórnarandstaðan muni stefna að því að mynda ríkisstjórn ef að stjórnin fellur. Samkvæmt þessari skoðanakönnun er ríkisstjórnin með 29 þingmenn og því fallin. Að mínu mati þarf þó Samfylkingin að tilkynna að forsendur fyrir þessari yfirlýsingu Ingibjarar eru brostnar með þessari stefnubreytingu Frjálslyndra. Samfylkingin á ekkert erindi í ríkisstjórn með Frjálslyndum.

Það er ljóst að vinstri stjórn er ekki lengur möguleiki, ekki einu sinni með þáttöku Framsóknar. Einnig myndi ég telja að Sjálfstæðisflokkur og Vinstri Grænir myndu aldrei mynda stjórn með svona naumum meirihluta.

Það er því að mínu mati aðeins einn ríkisstjórnarmöguleiki, sem kemur til greina – ekki bara fyrir Samfylkinguna, heldur yfir höfuð. Það er ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Sjálfsstæðisflokks. Ég sé ekki nokkurn annan möguleika í stöðunni ef að svona fer.

8 ummæli hingað til

Nov 09 2006

Kosningar

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Ég er að endurheimta álit mitt á bandarískum kjósendum. Að mínu mati hafa þeir ekki gert neitt rétt í 10 ár eða síðan Clinton var endurkjörinn. Vonandi að þetta sé ekki bara tímabundið.


Stephen Colbert viðurkennir ósigur. Algjör snilld!

Comments Off

Nov 07 2006

Britní

skrifaði í flokkinn Almennt

Ja hérna, ég er búinn að missa alla trú á hjónabönd. Ef þau geta ekki látið þetta ganga, hver þá?

Comments Off

Nov 06 2006

Borat hjá Letterman

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Þetta er fyndið

Comments Off

Nov 06 2006

Here I am baby!

skrifaði í flokkinn Tónlist

Er hægt að hlusta á þetta lag án þess að fara að dansa?

Ég held ekki.

Þetta lag kemur mér allavegana alltaf í stuð og gott skap. Stevie er snillingur!


Stevie Wonder – Signed, Sealed and delivered – 2.83 mb mp3

2 ummæli hingað til

Nov 05 2006

Silfur Egils í dag

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Í Silfri Egils töldu stjórnandi og viðmælendur eftirfarandi:

  1. Að það væri veikleikamerki á Samfylkingunni að ekki væri næg endurnýjun á framboðslista (ólíkt xD í Reykjavík) og að þingmenn sætu sem fastast á sínum sætum (en vikju ekki einsog t.d. Sólveig Pétursdóttir)
  2. Að það væri veikleikamerki á Samfylkingunni að tveir þingmenn hefðu verið felldir í prófkjörum síðustu daga.

Það er erfitt fyrir Samfylkinguna að þóknast andstæðingum sínum.


Sumum viðmælendum þótti það í lagi að minnst sé sérstaklega á það þegar að innflytjendur nauðga konum. Það þykir mér ótrúlegt. Þætti sama fólki í lagi að sjá eftifarandi fyrirsagnir?:

  1. Sjálfstæðismaður nauðgaði konu í miðbæ Reykjavíkur í gær.
  2. Garðbæingur nauðgaði konu í miðbæ Reykjavíkur í gær.

Hvað gera svona fyrirsagnir annað en að sverta orðspor alls hópsins, sem hafði ekkert með glæpinn að gera?


Ég legg til að Frjálslyndi flokkurinn leggi til tillögur um það hvernig skal keyra áfram íslenskt efnahagslíf án þáttöku erlends vinnuafls. Þeir hefðu ágætt af því að starfa sem starfsmannastjóri hjá stóru fyrirtæki í nokkra daga.


Varaformaður Frjálslyndaf flokksins vill ekki fá inn Múslima til Íslands af því að þeir eru svo mikið öðruvísi. Samt segist hann ekki vera rasisti. Ég tel að hann sé ekki fær um að dæma það hvort hann sé sjálfur rasisti.

2 ummæli hingað til

Nov 04 2006

Jens í 4. sætið

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Þetta er auðvitað alltof seint sett hérna inn, en ef einhverjir eiga eftir að kjósa í prófkjöri Samfylkingarinnar í Kraganum, þá hvet ég þá til að setja Jens vin minn í 4. sætið.

Jens er snillingur, hugsjónamaður og eðaljafnaðarmaður. Hann myndi svo sannarlega koma með ferska vinda inná Alþingi.

Við Jens höfum verið vinir í næstum því 10 ár og við engann annan hef ég átt jafnmargar og jafnskemmtilegar umræður um pólitík. Kjósið Jensa í 4. sætið – hann á svo sannarlega erindi á Alþingi.

Comments Off

Eldri færslur »