Dec 06 2006
Hagfræðingur heimsækir MæSpeis
Nota bene, tölurnar sem voru hérna inni fyrst voru aðeins skakkar. Ég lagaði þær til.
Ég er búinn að vera sæmilega hooked á þessu MySpace dæmi undanfarna daga. Eftirfarandi hluti hef ég lært:
- Stelpur eignast fleiri vini en strákar
- Íslenskar stelpur kalla allar vinkonur sínar “sæta”.
- Það er reyndar ótrúlega mikið af sætum íslenskum stelpum á MySpace, en samt…
- MySpace er ótrúlega ávanabindandi.
- Fólk hefur gaman af því að taka sjálfsmyndir. Ég er ánægður að sjá að ég er ekki einn um það.
- Skemmtileg tölfræði:
Fjöldi íslenskra stelpna á lausu á aldrinum 20-30 á MySpace: 4.969.
Fjöldi íslenskra stráka á lausu á aldrinum 20-30 á MySpace: 4.369.
Semsagt fleiri íslenskar stelpur á lausu en strákar. Húrra fyrir því! - Fjöldi íslenskra stelpna á aldrinum 20-30 á lausu og á MySpace til að deita: 194.
Fjöldi íslenskra stráka á aldrinum 20-30 á lausu og á MySpace til að deita: 346. - Semsagt 7.9% karlmanna og bara 3,9% íslenskra stelpna á lausu á MySpace segist vera þar til að deita. Annaðhvort eru allir single Íslendingar svona ofboðslega ánægðir með að vera single, eða þá að þau vilja af einhverjum ástæðum ekki nota MySpace í makaleit.
- Fjödli stelpna á lausu sem eiga barn (allur aldur): 450
Fjöldi stráka á lausu sem eiga barn (allur aldur): 170 - Íslenskar konur á MySpace á aldrinum 20-30:
Giftar: 288
Fráskildar: 54
Í sambandi: 1916
Á lausu: 4.969.
Semsagt samkvæmt MySpace þá eru 68,7% kvenna á Íslandi á aldrinum 20-30 á lausu!!!
Augljóslega er ekki svo hátt hlutfall kvenna á íslandi á lausu, þannig að fólk á lausu virðist sækja í MySpace. Samt virðist enginn viðurkenna makaleitina.
Jammmm…
11 Ummæli við færsluna “Hagfræðingur heimsækir MæSpeis”
# - þann 06 Dec 2006 klukkan 19:55
….kannski hefur makalausa fólkið bara ekkert betra að gera..
# - þann 06 Dec 2006 klukkan 20:25
Ég er bara á myspace til að skoða flottar myndir af sætum hommum sem eru berir að ofan…
Samt er ég á lausu og klárlega ekki í makaleit á myspace! Ó mæ lord no
# - þann 06 Dec 2006 klukkan 20:50
Er hægt að sjá þessar upplýsingar einhversstaðar, eða hefur alls ekkert að gera?
# - þann 06 Dec 2006 klukkan 20:57
Ég veit ekki hvort maður þurfi að vera skráður inná MySpace, en það er allavegana hægt að leita eftir fólki eftir ákveðnum forsendum hér. Þannig að ég fletti upp þessum upplýsingum til að skoða.
Eða til að svara spurningunni þinni: Nei, ég hef ekkert betra að gera en að horfa á Meistaradeildina í fótbolta og dunda mér við þetta
# - þann 07 Dec 2006 klukkan 14:01
myspace er snilld til að finna kæró sérð myndir af fólki hverja hann þekkir hvernig hann kemur fram við fólk æi allskonar hægt að njósna:)
# - þann 07 Dec 2006 klukkan 16:24
Er ekki bara single defaultið, þannig að þegar einhver skráir sig þá er hann í upphafi skráður single, en getur svo breytt því ???? Spyr sá sem ekki hefur prófað myspace.
# - þann 07 Dec 2006 klukkan 17:07
Neibbs, það er ekki svo.
# - þann 07 Dec 2006 klukkan 19:54
Ert þú á myspace til að deita??
# - þann 07 Dec 2006 klukkan 20:34
Nei, það var nú ekki pælingin. Ég man ekki af hverju ég skráði mig í upphafi.
Er þarna aðallega til að kynnast nýju fólki.
# - þann 07 Dec 2006 klukkan 21:04
Samt: Er ef til vill ekki hægt að skýra þetta með því að fólk á lausu sé einfaldlega virkara félagslega. Rétt eins það bloggar meira ef það er á lausu, og fer oftar á kaffihús.
# - þann 07 Dec 2006 klukkan 23:19
Jú, klárlega. Ég held að það sé ein aðalástæðan.