Dec 11 2006

Uppboð 2006: Xbox og sjónvarp

uppfærði klukkan 19:50 í flokkinn Uppboð

Jæja, þá er það þriðji hlutinn af uppboðinu sem eru tæki.

Sjá nánar um uppboðið hér

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og upphæðina strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

ATV 21 tommu sjónvarp

Þetta er sjónvarp sem hefur verið inní svefnherbergi hjá mér og ég held að ég hafi ekki horft á það í tvö ár. Þótt ótrúlegt megi virðast þá nægir mér að hafa eitt sjónvarp og tvær tölvur á heimilinu. Þetta er 21 tommu sjónvarp með fjarstýringu og er í mjög góðu ástandi. Skoða mynd. Lágmarksboð: 5000 kall

XBOX leikjatölva

Þetta er breytt XBOX tölva. Það þýðir að hún inniheldur 120GB harðan disk sem er með fullt af leikjum. Með tölvunni fylgja tveir stýripinnar. Þessi tölva er í góðu ástandi og leikirinir eru mjög fjölbreyttir. Ég seldi slatta af XBOX leikjunum í fyrra, en auk leikjanna á harða disknum fylgja eftirfarandi leikir í boxi með: Halo 1, Splinter Cell: Chaos Theory, NBA 2k3, Burnout Takedown og SSX3

Lágmarksboð: 5000 kall.

Uppboðinu lýkur á miðnætti á laugardag.

18 ummæli hingað til

18 Ummæli við færsluna “Uppboð 2006: Xbox og sjónvarp”

  1. Daníel r.
    # - þann 11 Dec 2006 klukkan 22:46

    Býð 6.000

  2. Daníel R.
    # - þann 11 Dec 2006 klukkan 22:46

    ….frábært að vera of bráður á takkann en þetta boð mitt átti s.s við xbox’ið

  3. Sigurður Ari
    # - þann 11 Dec 2006 klukkan 22:55

    Ég bíð 7.000 kr í xboxið

  4. Aron
    # - þann 11 Dec 2006 klukkan 23:09

    7000 í sjónvarpið

  5. Scweppes
    # - þann 12 Dec 2006 klukkan 1:08

    Malt og appfelsín auglýsingin er komin aftur í spilun. Vildi bara láta þig vita, því að ég veit hvað þér þykir frænka þín krúttleg í þessari auglýsingu.

    Dúbbel congrats!

  6. Einar Örn
    # - þann 12 Dec 2006 klukkan 8:58

    Jei!

    En frænka mín? Ha?

  7. Valur
    # - þann 12 Dec 2006 klukkan 9:47

    Sælir. Sniðugt framtak. Hef sjálfur séð þessa fátækt sem þrífst þarna. Ég bíð 15.000 í tölvuna og sjónvarpið.

  8. Aron
    # - þann 12 Dec 2006 klukkan 13:39

    8.000 í sjónvarpið og 8.000 í tölvuna

  9. ivar
    # - þann 14 Dec 2006 klukkan 9:31

    ívar:9000 í tölvuna :rolleyes:

  10. Aron
    # - þann 14 Dec 2006 klukkan 14:20

    9.500 x-box

  11. AKS
    # - þann 15 Dec 2006 klukkan 8:13

    11000 fyrir x-box

    Allveg frábært framtak.

  12. Aron
    # - þann 16 Dec 2006 klukkan 14:28

    12000 x-boxið

  13. Einar Örn
    # - þann 16 Dec 2006 klukkan 22:24

    Þegar einn og hálfur tími er eftir af uppboðinu á Aron hæsta boð bæði í Xboxið (12.000) og í sjónvarpið (8.000).

  14. ÞJA
    # - þann 16 Dec 2006 klukkan 23:36

    13.000 X-box

  15. -
    # - þann 16 Dec 2006 klukkan 23:58

    -

  16. Einar Örn
    # - þann 17 Dec 2006 klukkan 11:40

    Uppboði lokið. Því miður þá virðist síðan hafa dottið út í gærkvöldi vegna bilanar í sæstreng (síðan er hýst í Bandaríkjunum).

    En það barst tilboð í gegnum email klukkan 23:59:52 með tilboð uppá 13.500. Það er nokkuð ljóst að enginn hefði náð að senda inn tilboð seinna en það, þannig að ég hef ákveðið að láta það standa sem síðasta tilboðið.

    Þannig að sigurvegararnir eru:

    Sjónvarp: Aron: 12.000 X-Box: nafnlaust: 13.500

    Það er leiðinlegt að þetta hafi verið svona, en því miður get ég ekkert gert í því. Ég get ekki setið við tölvuna allan sólahringinn, heldur skoða bara tilboðin þegar ég kemst í tölvu.

  17. Aron
    # - þann 18 Dec 2006 klukkan 14:14

    Tjah ég bauð nú bara 8.000 í sjónvarpið :/

  18. Einar Örn
    # - þann 18 Dec 2006 klukkan 14:22

    Æ, sorrí, þetta var villa hjá mér.

    Rétt þú bauðst auðvitað 8.000 kall í sjónvarpið. Það eru helvíti góð kaup :-)