Dec 13 2006

Uppboð 2006: Bókapakkar

uppfærði klukkan 16:44 í flokkinn Uppboð

…. Uppboð la la la…. Sjá upplýsingar um uppboðið hér.

Ég veit að þetta er ekki beint mest spennandi hlutir í heimi, en það verða áhugaverðari hlutir á uppboði á fimmtudag og föstudag. So hold on tight. :-)

Núna eru það bókapakkar. Það er ég býð bækurnar saman í einum pakka. Lágmarksboð í hvorn pakka er 1.000 kall. Uppboði lýkur klukkan 23:59 á laugardagskvöld.

Stephen King pakki

Þetta eru allt Stephen King bækur á íslensku, hard-cover í mjög góðu ástandi: Úr álögum (Rose Madder) Umsátur (Cujo) Visnaðu (Thinner) Eldvakinn (Firestarter) Bókasafnslöggan (The Library Policeman) Flóttamaðurinn (Running Man) – vantar kápu Háskaleikur (Gerald’s Game) Furðuflug (The Langoliers) Örlög (Dolores Claiborne) Duld (The Shining) – vantar kápu

Allt saman í einum pakka.

Íslensk knattspyrna

Ég seldi þetta á síðasta uppboði, en gaurinn sótti þær aldrei. Þannig að þetta er aftur á uppboði. Þetta eru bækurnar um Íslenska knattspyrnu frá árinu 1981-1993.

13 ummæli hingað til

13 Ummæli við færsluna “Uppboð 2006: Bókapakkar”

  1. Guðrún
    # - þann 13 Dec 2006 klukkan 18:27

    stephen king pakkinn 2.000

  2. Elías Már
    # - þann 13 Dec 2006 klukkan 23:12

    Íslensk knattspyrna pakkinn 2000 Stephen King pakkinn 3000

  3. Atli
    # - þann 13 Dec 2006 klukkan 23:28

    Ég er til í íslensk knattspyrna-pakkann fyrir 3000 kall!

  4. Gunnar
    # - þann 13 Dec 2006 klukkan 23:31

    Býð 5.000 kr. í pakkann um íslenska knattspyrnu! Dugir ekkert minna fyrir þetta málefni.

  5. Atli
    # - þann 13 Dec 2006 klukkan 23:57

    Ég er til í að fara í 6000 fyrir íslenska knattspyrnu.

    Hvenær lýkur uppboði á þessum bókapökkum?

  6. Einar Örn
    # - þann 13 Dec 2006 klukkan 23:59

    Æ sorrí sorrí, gleymdi að setja þetta inn. Þessu lýkur á laugardagskvöld kl 23:59 einsog íþróttatreyju-uppboðinu.

  7. Gunnar
    # - þann 14 Dec 2006 klukkan 0:50

    Þá fer ég í 7.000 fyrir Íslenska knattspyrnu

  8. Elías Már
    # - þann 14 Dec 2006 klukkan 13:22

    8000 fyrir Íslansk knattspyrna.

  9. mvb
    # - þann 14 Dec 2006 klukkan 15:52

    Stephen King pakki 4000 kall.

    Gangi þér vel með þetta allt saman.

  10. Gunnar
    # - þann 14 Dec 2006 klukkan 16:13

    Ég fer í 10.000 kr. fyrir Íslenska knattspyrnu

  11. Aron
    # - þann 14 Dec 2006 klukkan 16:50

    Stephen king 5000

  12. Atli
    # - þann 16 Dec 2006 klukkan 15:29

    Ég ætla að bjóða 10.500 kr. fyrir Íslenska Knattspyrnu!

  13. Einar Örn
    # - þann 18 Dec 2006 klukkan 0:01

    Uppboði lokið.

    Sigurvegarar: Atli: 10.500 fyrir Íslenska knattspyrnu
    Aron 5.000 fyrir Stephen King.