Dec 13 2006

Sorgleg lög

uppfærði klukkan 17:11 í flokkinn Tónlist

Samkvæmt vísindalegri könnun er The Drugs don’t work með The Verve sorglegasta lag í heimi.

Magnað. Þetta hefur alltaf verið eitt af mínum uppáhaldslögum og er einmitt á einni af mínum uppáhaldsplötum. Voru Eels ekki með í könnuninni?

6 ummæli hingað til

6 Ummæli við færsluna “Sorgleg lög”

  1. Scweppes
    # - þann 13 Dec 2006 klukkan 23:37

    Hurt með Nine Inch Nails…

    “What have I become? My sweetest friend Everyone I know Goes away in the end You could have it all My empire of dirt I will let you down I will make you hurt”

    -Af Downward Spiral (1994)

  2. Scweppes
    # - þann 13 Dec 2006 klukkan 23:38

    Betra svona?

    What have I become?
    My sweetest friend
    Everyone I know
    Goes away in the end
    You could have it all
    My empire of dirt
    I will let you down
    I will make you hurt

  3. Einar Örn
    # - þann 14 Dec 2006 klukkan 0:13

    Já, nákvæmlega.

    Hlustaði einmitt á Verve lagið og varð ekki hið minnsta sorgmæddur. En ef ég hlusta til dæmis á Electro-Shock Blues með Eels þá getur maður ekki annað en sýnt viðbrögð. Ég meina, er til sorglegra byrjunarlag en Elizabeth On The Bathroom Floor?

  4. Hulda Þorgilsdóttir
    # - þann 14 Dec 2006 klukkan 4:42

    váá.. er búin að vera skoða síðuna þína.. lesa og skoða myndir og aðeins fræðast um þig. og ég er dolfallin.. í alvöru talað.. viltu vera kærastinn minn ! ég vil bara fara með þér og gera það sem þú ert að gera. finnst þú alveg með hjarta að hreinu gulli ! Heimurinn væri pottþétt mikið betri ef það væri fleiri eins og þú ..

    plís viltu giftast mér ! :D

  5. JBJ
    # - þann 14 Dec 2006 klukkan 9:24

    Þið eruð spinnegal ef þið haldið að upprunalega útgáfan af Hurt komist nálægt útgáfu Johnny Cash…

  6. Einar Örn
    # - þann 14 Dec 2006 klukkan 9:32

    Þið eruð spinnegal ef þið haldið að upprunalega útgáfan af Hurt komist nálægt útgáfu Johnny Cash…

    Veistu að mér fannst það í upphafi.

    En síðan hef ég skipt um skoðun. Þær eru bæði sorglegar, en Cash útgáfan verður eiginlega ekki sorgleg fyrr en maður sér vídeóið og fattar að Cash er í rauninni að deyja.

    Og Hulda, takk. Þarf kannski aðeins meiri upplýsingar áður en ég ákveð brúðkaup. :-)