Dec 14 2006

Björn og Dagur í Kastljósinu

uppfærði klukkan 18:52 í flokkinn Stjórnmál

Það er ekki oft sem ég horfi á Kastljósþátt tvisvar sama kvöldið. Ég og Emil horfðum á Björn Inga og Dag B í Kastljósþættinum og ég var svo hissa að ég varð að horfa aftur á þáttinn seinna um kvöldið.

Ég held að frammistaða Björns Inga hljóti að vera einhver hræðilegasta framganga stjórnmálamanns, sem ég hef séð í svona þætti. Ég hef hvorki tíma né þekkingu til að skrifa um allt sem tengist málinu. En Guðmundur Steingrímsson skrifar frábæran pistil um málið, sem ég get verið 100% sammála. Mæli með þeim pistli.

Eftir síðustu tvo Kastljósþætti hef ég haft góðar ástæður til þess að vera stoltur af því að vera í Samfylkingunni.

Ein ummæli hingað til

Eitt ummæli við færsluna “Björn og Dagur í Kastljósinu”

  1. elmar
    # - þann 14 Dec 2006 klukkan 20:32

    Ég get alveg verið fullkomlega sammála þér, en hverjum þykir sinn fugl fagur, Björn Bjarna hrósaði Birni Inga í hástert fyrir framistöðuna. Ég velti því fyrir mér hvort maður með einhverja sjálfsvirðingu vilji láta kenna sig við Björn Bjarnason og þekkjast hrós frá honum.