Dec 14 2006
Uppboð 2006: Ný Francis Francis espresso vél!
Jæja, þá heldur uppboðið áfram. Sjá allt um uppboðið hér
Núna er það ekki hlutur úr mínu búi, heldur fékk ég mitt gamla fyrirtæki til að gefa hlut á uppboðið.
Þannig að núna er ég að bjóða upp hvorki meira né minn en glænýja Francis Francis Espresso vél. Vélin er semsagt gefin á þetta uppboð af Danól ehf en það frábæra fyrirtæki er umboðsaðili meðal annars fyrir þessar Francis Franics vélar og einnig fyrir illy, sem er besta kaffi í heimi!
Þannig að þessi espresso vél er enn í kassanum, alveg ný. Ótrúlega flott vél!!
Francis Francis X6 – hvít espresso vél

Lágmarksboð er 15.000 krónur, en vélin er mun verðmætari en það. Danól gefur vélina á uppboðið og því fer 100% upphæðarinnar til góðgerðarmála.
Ég þakka Danól fyrir framlagið.
Uppboði lýkur klukkan 23:59 á mánudagskvöld.
8 Ummæli við færsluna “Uppboð 2006: Ný Francis Francis espresso vél!”
# - þann 14 Dec 2006 klukkan 20:10
Ég býð 17500 í vélina
# - þann 14 Dec 2006 klukkan 20:20
20000 í vélina.
# - þann 14 Dec 2006 klukkan 21:12
Koma svo, þessi FrancisFrancis vél kostar 33.000 kr út úr búð. kv. Garðar
# - þann 15 Dec 2006 klukkan 1:08
Býð 21000
# - þann 15 Dec 2006 klukkan 2:25
Ég á ekki pjéééníng, vildi bara segja eitt official “Vá!” og hvetja fólk til að bjóða í!
Gangi þér vel með uppboðið!
# - þann 18 Dec 2006 klukkan 15:13
Býð 22.000 í vélina
# - þann 18 Dec 2006 klukkan 23:59
Ég býð 23000 ef það er ekki of seint
# - þann 19 Dec 2006 klukkan 0:39
Jamm, þetta slapp.
Uppboði lokið. Bragi vann á 23.000 kall.