Dec 14 2006

Uppboð 2006: Dót

uppfærði klukkan 9:30 í flokkinn Uppboð

Jæja, uppboð. Nánari upplýsingar um uppboðið hér.

Hérna er smá dót úr skápunum hjá mér. Á eftir mun ég hins vegar bjóða upp meira spennó hluti :-)

Þessu uppboði lýkur klukkan 23:59 á sunnudagskvöld.

At-At

Ég fékk At-At í gjöf frá mömmu og pabba þegar ég var lítill og man að sjaldan eða aldrei hef ég verið jafn glaður. At-At ið er í ágætu ástandi, en alls ekki fullkomnu. Það virka ekki lengur byssurnar sem einu sinni virkuðu og ég hef leikið mér mikið með það.

Þetta hefur persónulegt gildi fyrir mig og því er lágmarksboð 5000 kall.

Matríóskur

Þessar matríóskur með rússneskum leiðtogum keypti ég á markaði í St.Pétursborg. Frá síðasta keisaranum til Pútíns. Lágmarksboð 1000 kall.

6 ummæli hingað til

6 Ummæli við færsluna “Uppboð 2006: Dót”

  1. Vala
    # - þann 14 Dec 2006 klukkan 12:29

    Ég býð 3000 í matríóskurnar.

  2. Hansi
    # - þann 14 Dec 2006 klukkan 17:18

    1500 kr í At-At

  3. Einar Örn
    # - þann 15 Dec 2006 klukkan 19:46

    Hansi, einsog ég sagði í lýsingunni:

    Þetta hefur persónulegt gildi fyrir mig og því er lágmarksboð 5000 kall.

    Þannig að 1500 kall er ekki nóg.

  4. Hansi
    # - þann 16 Dec 2006 klukkan 0:45

    afsakaðu þetta Einar las textann ekki nógu vel. En ég þarf aðeins að velta 5000 kallinum betur fyrir mér.

  5. sóley sturludóttir
    # - þann 16 Dec 2006 klukkan 8:53

    :blush:ég býð 4000 í matríóskurnar

  6. Einar Örn
    # - þann 18 Dec 2006 klukkan 0:04

    Uppboði lokið.

    Sigurvegari Sóley Sturludóttir fyrir matríóskurnar 4.000 krónur.