Dec 20 2006

Uppboð 2006: Vín

uppfærði klukkan 21:56 í flokkinn Uppboð

Ok, þá er það síðasti hluti uppboðsins!!

Þú getur lesið um uppboðið hér.

Núna eru það tvær eðal vínflöskur, sem eru boðnar upp.

The Macallan viskí

Single Malt Highland Schotch Whiskey – 12 years old

Sjá mynd af flöskunni hérna

Lágmarksboð: 5.000 krónur

Poggio Alle Mura rauðvín

Árgerð 1998. Þetta er klassavín, sem ég fékk gefið úr einkasafni góðs manns. 1998 árgangurinn af þessu víni fékk fékk 93 stig af 100 í maí hefti Wine Spectator 2003. Topp árgangur af topp víni!!!

Sjá mynd af flöskunni hérna.

Lágmarksboð: 10.000 krónur

Uppboði lýkur klukkan 23:59 á föstudagskvöld. Ef fólk býr á höfuðborgarsvæðinu, þá get ég reynt að koma flöskunum til þess á aðfangadagsmorgunn!

9 ummæli hingað til

9 Ummæli við færsluna “Uppboð 2006: Vín”

  1. Finnbogi
    # - þann 20 Dec 2006 klukkan 23:27

    Ég býð 5000 kr. í viskýið.

  2. Skapti Örn
    # - þann 21 Dec 2006 klukkan 1:39

    Heill og sæll meistari. Ég var víst búinn að lofa að taka þátt í uppboðinu og býð því 6000 kr. í þetta eðalviskí.

  3. agust.o
    # - þann 21 Dec 2006 klukkan 11:14

    Ég býð 7.000.- kr í þessa fallegu wiskýflösku.

  4. Genni
    # - þann 22 Dec 2006 klukkan 4:27

    Blessaður vinur,

    Mér finnst aldrei leiðinlegt að drekka til að bjarga börnunum, ég býð 10,000 kr.

    Gleðileg Jól, Genni

  5. Einar Örn
    # - þann 22 Dec 2006 klukkan 8:59

    Genni, býðurðu 10.000 í rauðvínið eða viskíið?

  6. Genni
    # - þann 22 Dec 2006 klukkan 16:09

    Whiskíið. Frábært framtak hjá þér!

  7. Einar Örn
    # - þann 23 Dec 2006 klukkan 19:45

    Uppboði lokið: Genni vann viskí flöskuna á 10.000 kall. Ekkert boð barst í rauðvínið.

    Genni, hvernig ætlarðu að nálgast þetta???

  8. Genni
    # - þann 24 Dec 2006 klukkan 16:25

    Eg fae einhvern til ad na i thetta milli jola og nyars…. sendu mer reikningsnumerid til ad eg geti millifaert.

    Gledileg jol vinur, heyrumst betur sem fyrst,

    Bestu kv. Genni og Sandra

  9. Einar Örn
    # - þann 27 Dec 2006 klukkan 19:41

    Kannski taka það fram að rauðvínið seldist fyrir 10.000 krónur.