Dec 23 2006

Jólakveðjur

uppfærði klukkan 19:43 í flokkinn Almennt


Þá er ég búinn að sannfæra sjálfan mig um að allt sé í lagi í vinnunni minni og get því sagt að jólin séu að byrja. Ég næ mér aldrei í neitt sérstakt jólaskap vikurnar fyrir jól, þar sem það að eiga veitingastað í Kringlunni gerir mig alltaf frekar stressaðan fyrir jólin.

Svo erfiður var þessi jólaundirbúningur í ár að ég komst ekki einu sinni í að skrifa jólakort í tæka tíð. Er rétt að byrja á þeim núna á Þorláksmessukvöld. Þannig að nema þú sért svo heppin/n að hitta mig í dag eða á morgun, þá færðu jólakort frá mér eftir jól. :-)

En allavegana til allra, sem lesa þessa síðu: Gleðileg jól!!!

3 ummæli hingað til

3 Ummæli við færsluna “Jólakveðjur”

  1. Kristján Atli
    # - þann 23 Dec 2006 klukkan 23:29

    Gleðileg jól! :smile:

  2. Fridrik
    # - þann 23 Dec 2006 klukkan 23:45

    Gleðileg jól vinur,

    …skeggið fer þér nú ágætlega

    kv, Friðrik.

  3. Matti
    # - þann 25 Dec 2006 klukkan 3:28

    Gleðileg jól sömuleiðis.