Jan 15 2007
RÚV?
Hefur einhver, sem
a) vinnur ekki fyrir fjölmiðla eða
b) er ekki á þingi
áhuga á þessu RÚV máli? Jesús hvað mér finnst þetta óspennandi. Ef að fréttir, Kastljós og Spegillinn fá að haldast á dagskrá, þá er mér nokk sama um RÚV.
4 Ummæli við færsluna “RÚV?”
# - þann 15 Jan 2007 klukkan 22:37
Mér er alls ekki sama hvað verður um RÚV, enda eru Rás 1 og Sjónvarpið einu fjölmiðlarnir sem ég nota reglulega. Einu fréttirnar sem mig langar að heyra af þessu RÚV máli eru þess vegna að þetta ohf-ingar frumvarp verði sett á salt þar til betri ríkisstjórn tekur við.
Ég er hins vegar löngu kominn með leiða á helv… Baugsmálinu.
# - þann 15 Jan 2007 klukkan 22:49
Ok – en þú hlýtur að vera eini maðurinn á landinu, sem hefur áhuga á þessari umræðu. Ég trúi ekki að það séu fleiri. Hreinlega trúi því ekki.
# - þann 16 Jan 2007 klukkan 11:14
Mamma mín hefur mikinn áhuga á þessu máli.
En… já… hún vinnur víst á RÚV.
# - þann 16 Jan 2007 klukkan 14:17
Svona svipað áhugavert og evruumræðan http://www.eoe.is/myndir/smilies/confused.gif :confused: