Jan 31 2007

Guðmundur og Heimdallur

uppfærði klukkan 21:12 í flokkinn Stjórnmál

Ég mæli með þessu (spólið svona 1:48 inní þáttinn og njótið). Þarna takast á Guðmundur Steingrímsson frá Samfylkingunni og formaður Heimdallar.

Niðurstaðan er ansi mögnuð.

6 ummæli hingað til

6 Ummæli við færsluna “Guðmundur og Heimdallur”

  1. Gullikr
    # - þann 31 Jan 2007 klukkan 22:47

    Vá, ég man vart eftir því að hafa séð aðra eins völtun yfir forystufólk úr Sjálfstæðisflokknum. Takk kærlega fyrir þessa ábendingu.

    (1:48 er 1 klst og 48 mínútur en ekki 1 mínúta og 48 sekúndur, ég fattaði það ekki alveg strax :) )

  2. Jóhann
    # - þann 31 Jan 2007 klukkan 23:01

    Því miður fyrir samfylkinguna er þessi maður ekki formaður, þar sem hann er mjög skýr og góður í að setja fram sína stefnu.

  3. Brynjar D
    # - þann 01 Feb 2007 klukkan 2:13

    Það er gott að einhver úr samfylkingunni kann að koma fyrir sig orði því eitt er víst að formaðurinn er algjörlega ófær um það.

    Verst að þið sitjið uppi með Ingibjörgu sem er á góðri leið með að draga flokkinn fyrir neðan 20% fylgi.

    En að Guðmundur skuli hafa valtað yfir sjálfan formann heimdallar er nú alveg einstakt afrek og gleðiefni fyrir samfylkingarfólk :laugh:

  4. einare
    # - þann 01 Feb 2007 klukkan 8:32

    Samfylkingin á að nota Guðmund til þess að fara í kappræður í fjölmiðlum. Skemmtilegur pólitíkus sem er með næmt auga fyrir veikleikum andstæðinganna.

    Var kominn að því að vorkenna stelpunni þar til ég mundi að þarna var formaður heimdallar á ferð.

  5. Kristján Atli
    # - þann 01 Feb 2007 klukkan 10:14

    Þetta er pottþétt hápunkturinn:

    “Við þessu hef ég bara fjögur orð að segja: Hver hefur ekki heyrt talað um hægri-græna?”

    :laugh:

  6. Eiríkur
    # - þann 02 Feb 2007 klukkan 9:35

    Formaður Heimdallar er blaut bakvið eyrun og því fáránlegt að senda hana í þessa aftöku. Það hefði verið nær að senda einhvern sem er búin að stökkva útí djúpu laugina eins og Borgar eða Bolla.