Skráarsafn fyrir February, 2007

Feb 28 2007

RSS

skrifaði í flokkinn Netið

NetNewsWire er sniðugt forrit sem ég nota gríðarlega mikið á Makkanum mínum. Þetta forrit tekur RSS skrár á öllum þeim bloggum sem ég skoða og gefur mér lista yfir þau blogg sem búið er að uppfæra.

Þetta forrit er einnig þannig gert að ef að fólk breytir færslu á blogginu sínu eftir að upphaflega færslan er birt, þá geymir forritið allar útgáfur af færslunni. Oftast eru þetta bara smá stafsetningarbreytingar, en í tilfelli bloggsins hennar Jónínu Ben þá verður þetta stórskemmtilegt.

10 ummæli hingað til

Feb 26 2007

Snillingurinn Costello

skrifaði í flokkinn Tónlist

Þetta er Elvis Costello fyrir 29 árum

Rokktónlistin fer í hringi. Hann væri alveg jafn flottur ef hann væri að koma fram með þessa tónlist í dag.

Og hérna er meira gott: Lesa áfram »

5 ummæli hingað til

Feb 26 2007

Netlögga

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Ég trúi því varla að fólk sé að tapa sér yfir ummælum Steingríms J. um að hann vilji stofna netlöggu til að fylgjast með netumferð landsmanna. Ég meina, það er ekki fræðilegur möguleiki á að honum hafi verið alvara með þessu? Er það nokkuð? Ha? Þetta er svo vitlaus hugmynd að það er nánast ólýsanlegt.

10 ummæli hingað til

Feb 25 2007

Netvarp

skrifaði í flokkinn Netið

Það er hreint magnað hvernig hlustun mín á tónlist og annað útvarpsefni hefur breyst á undanförnum árum. Í stað þess að hlusta á útvarp allan daginn þá hlusta ég nú mestmegnis á iPod-ana mína.

Í stað þess að treysta á útvarpsstöðvar fyrir uppgötvun á nýrri tónlist þá leita ég nú aðallega á netmiðla og treysti meðmælum frá vinum og bloggurum sem ég treysti.

En ég get ekki bara hlustað á tónlist allan daginn. Ég eyði allavegana um klukkutíma á dag í líkamsrækt og auk þess talsverðum tíma í bílnum mínum. Ég er hins vegar löngu búinn að komast að því að íslenskt útvarp hentar mér ekki. Ég get hlustað á nokkra þætti, en líkurnar á að ég sé í bílnum á þeim tíma sem þeir eru í gangi, eru litlar. Einu þættirnir sem ég hlusta reglulega á eru Spegillinn á Rás 2 og svo morgunþátturinn á FM957, sem er mjög krefjandi útvarpsefni fyrir mig klukkan 7 á morgnana.

En í staðinn fyrir íslenskt útvarp nota ég gríðarlega mikið netvarps-þætti (podcast) í iTunes. iTunes forritið sér um að ná reglulega í nýjustu þættina sem ég er áskrifandi að og svo færi ég þá yfir á iPod-ana mína þegar ég uppfæri efnið á þeim. Það er gríðarlegt magn af efni þarna úti sem er þess virði að hlusta á. Þetta eru þættirnir sem ég er áskrifandi að (tenglar eru yfir á iTunes síðu fyrir viðkomandi þátt)

This American Life. Ég get hreinlega ekki ímyndað mér að það sé búinn til betri útvarpsþáttur í þessum heimi en This American Life. Ira Glass (sjá mynd) og félagar hjá Chicago Public Radio senda einu sinni í viku út þennan þátt. Í hverjum þætti er tekið fyrir ákveðið þema og sagðar sögur af fólki sem tengist þemanu. Þættirnir geta verið fyndnir, sorglegir, spennandi eða fræðandi. Mæli með þessum þáttum fyrir alla.

Real Time with Bill Maher. Áður var ég ávallt að baksa við að downloada ólöglegum útgáfum af þessum sjónvarpsþætti. En svo sá ég að þátturinn gefur út hljóðið á netvarpi ókeypis. Þátturinn virkar nánast alveg jafn vel sem útvarpsþáttur. Hinn vinstri sinnaði Bill Maher tekur á bandarískum stjórnmálum á gamansaman hátt. Frábær þáttur og nauðsynlegur fyrir þá sem hafa áhuga á bandarískum stjórnmálum.

Left, Right & Centre. Vikulegur útvarpsþáttur þar sem nokkrir spekingar spjalla um bandarísk stjórnmál. Þessi þáttur ásamt This Week með George Stephanopoulos halda manni aðeins inní bandarískum stjórnmálum.

MacBreak Weekly. Ég er Apple nörd og þetta er þáttur fyrir Apple nörda. Fínar samræður milli nokkra sérfræðinga um allt sem tengist Apple.

The Football phone-in 606. Umræður um enska boltann.

From our own correspondents er frábær þáttur á BBC þar sem að fréttaritarar stöðvarinnar útum allan heim senda inn sögur af reynslu sinni í löndum þar sem þeir eru staddir. Frábær þáttur til að fá fréttir af hlutum sem rata ekki inní hefðbundna fréttatíma.


Þetta er það sem ég hlusta á. Enn sem komið er standa íslenskir aðilar sig illa í að senda út netvörp, en það er vonandi að það batni með tímanum. Með því gætu þeir náð miklu betri útbreiðslu en bara með því að treysta á að fólk stilli inná stöðina þeirra á ákveðnum tíma á ákveðnum dögum.

6 ummæli hingað til

Feb 22 2007

Klámhystería

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Hvað þýðir það að fólki sé meinuð gisting á Hótel Sögu? Er ég einn um að finnast það viðbjóðslegt að slíkt skuli gerast á landi sem á að teljast frjálst?

Hversu langt ætlum við að ganga? Haldiði ekki að fyrrverandi eyturlyfjasalar hafi gist á Hótel Sögu? Menn sem hafa lamið konurnar sínar hafa gist á Hótel Sögu, sem og aðrir ofbeldismenn. En hingað til hefur enginn spurt væntanlega gesti um sakavottorð, enda erum við komin ansi langt þegar að hótel er farið að taka að sér að refsa fyrir hegðun sem því er á móti skapi. Ætla femínistar að mótmæla því næst þegar að dæmdur glæpamaður reynir að fá gistingu á tjaldstæði á Íslandi?

Við erum með refsikerfi, sem á að sjá um að refsa fólki fyrir ólöglega hegðun. En hótel, flugfélög eða veitingastaðir eiga ekki að standa í að refsa fólki fyrir sína iðju. Þetta er virkilega ósmekklegt og þegar að hysterían deyr niður þá munu eflaust margir átta sig á því hversu langt menn hafa gengið í vitleysunni.


Vegna þess að femínistum finnst felast kvenfyrirlitning í sumu klámi, þá hafa þær (þau) ákveðið að reyna með öllum ráðum að gera alla klámframleiðslu tortryggilega og engu nær en að þau haldi að öll framleiðsla á klámi sé unnin með 12 ára gömlum pólskum þrælum. Það er í góðu lagi að mótmæla klámi með því að í því felist kvenfyrirlitning (sem er vissulega rétt í ansi mörgum tilfellum), en það er ekki í lagi að gera öllum framleiðendum þess efnis upp þær sakir að þeir stundi mansal og barnaníðingar.

Þetta snýst ekki um að vera með eða á móti klámi, heldur það að vera með eða á móti frelsi. Það hefur ekki verið sannað á þetta fólk að það stundi mansal eða barnaníðingar, enda eru þær iðjur bannaðar í heimalandi fólksins. Þess vegna getum við ekki tekið að okkur að dæma fólkið fyrir þær sakir án allra sönnunargagna. Ef að stærsta sök þessa fólks er að framleiða efni uppfullt kvenfyrirlitningu þá má mótmæla efnistökum, en ekki meina því að koma til landsins eða um gistingu.

Svo þorir enginn að standa uppi og verja frelsi þessa fólks til að koma, nema eiga það á hættu að vera merktir sem einhverjir klámsjúkir perrar (einsog ég hef ítrekað lesið á bloggsíðum), sem er álíka ómálefnalegt og ómerkilegt og að kalla alla femínista ljóta og kynlífsskerta.

Ég sé að eini flokkurinn sem talar gegn þessari hysteríu eru ungliðar í Sjálfstæðisflokknum. Það er spurning hvort ég eigi meiri samleið með þeim flokki en þeim sem ég er skráður í núna.

Annars bendi ég á þetta og þetta.

24 ummæli hingað til

Feb 21 2007

Liverpool – Barca

skrifaði í flokkinn Íþróttir

Úffff, ég er orðinn verulega spenntur fyrir kvöldinu. Það er ekki oft sem að uppáhaldsliðin mín tvö mætast, en það gerist í kvöld. Mér þykir afskaplega vænt um Barcelona bæði sem borg og lið en það á einfaldlega ekkert lið sama sess í mínu lífi og Liverpool.

Ég spái 2-1 fyrir Barca. Crouchy skorar Liverpool markið, en Iniesta og Ronaldinho fyrir Barca. Liverpool tekur þetta svo á Anfield þar sem ég verð í stúkunni.

KOMA SVO!!!


Uppfært (EÖE) Takk fyrir að spyrja, en ég er bara þokkalega sáttur. :-)

Ég elska Liverpool!

5 ummæli hingað til

Feb 20 2007

Sýn

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Í kvöld er stórleikur á Spáni þar sem að Real Madrid og Bayern Munchen spila.

Á sjónvarpsstöðinni Sýn á hins vegar að sýna Manchester United og fokking Lille! Í alvöru talað, þessi dýrkun Sýnar á enskum liðum er fullkomlega fáránleg.

Og svo komst ég að því að það er ekki nóg að borga 5000 kall á mánuði til Sýnar – því ég fæ bara eina Sýnar stöð í kvöld. Til að fá hliðarrásir, sem að sýna spennandi efni sirka 3svar sinnum á ári – þá þarf maður að borga auka gjald, samtals um 7.300 krónur á mánuði!

Mögnuð þjónusta!

13 ummæli hingað til

Feb 19 2007

Jólakort

skrifaði í flokkinn Almennt

Jólakortið sem ég sendi til fjölskyldu minnar í Caracas, Venezuela þann 2. janúar var að berast þeim núna, 7 vikum seinna.

Ég held að Hugo Chavez sé ekki alveg að standa sig í stykkinu hvað varðar póstburðarmál.

4 ummæli hingað til

Feb 19 2007

Ingibjörg Sólrún og klámið

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Ég ætlaði að skrifa lofpistil um Ingibjörgu Sólrúnu byggðan á frábærum pistil Hallgríms Helga í Fréttablaðinu í morgun. En svo segir hún í þinginu í dag eitthvað á þessa leið um væntanlega gesti á klámráðstefnu:

Ég spyr þá forsætisráðherra hvort ekki sé þá leið til að koma þeim skilaboðum til þessara aðila að hingað séu þeir ekki velkomnir.

Hvaða kjaftæði er þetta?

Vill Ingibjörg Sólrún að ríkisstjórn landsins taki að sér fyrir hönd þjóðarinnar að láta fólk vita hverjir séu velkomnir til Íslands og hverjir ekki? Þetta upphlaup útaf þessari ráðstefnu er algjörlega fáránlegt og þetta komment hjá Ingibjörgu Sólrúnu er með því vitlausasta sem ég hef heyrt.

Eru semsagt allir sem formanni Samfylkingarinnar þóknast ekki, ekki lengur velkomnir til landsins? Vill hún tilkynna Repúblikönum að þeir séu ekki velkomnir? Hvað með klæðskiptinga? Eða karlrembur? Eða Ísraelar? En fólk sem segir klámbrandara? Eða fólk sem skrifar klámfengnar sögur? Væri Henry Miller til að mynda velkominn til landsins ef hann væri enn á lífi?

Það er greinilegt að frjálslyndið er ekki mikið hjá formanninum.


Annars þá skrifar Maggi um þessa grein hans Hallgríms. Það er ansi margt til í þeirri grein varðandi fáránlega gagnrýni sem ISG hefur þurft að þola á síðustu mánuðum.

Ein ummæli hingað til

Feb 19 2007

Meira um klám

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Á Deiglunni er góð grein um þessa fáránlegu klám hysteríu sem að siðprúðu fólki hefur tekist að peppa landsmenn og þá sérstaklega yfirvöld uppí síðustu daga.

Svo ég vitni aðeins í greinina:

Hver eru grundvallargildi íslensks samfélags? Hvers vegna vill fólk búa hér? Ég held að fáir mundu svara þeirri spurningu með orðunum “út af því að klám er bannað” eða “út af því að Íslendingar eru svona rosalega þéttir siðferðislega séð”. Sjálfum þykir mér vænst um frelsið, aðrir mundi eflaust nefna jöfnuð eða velferðarkerfið, en ég held að enginn mundi í alvörunni vilja monta sig af því helsti kosturinn við landið þeirra væri að “þar væru stjórnmálamenn voða duglegir að gera fólki sem hafði öðruvísi skoðanir en meirihlutinn lífið leitt”.

Auðvitað eiga menn rétt á því að vera á móti klámi eins og hverju öðru. En menn ættu ekki að krefjast þess ofbeldi ríkisvaldsins verði beitt í þeirri baráttu með því að fangelsa eða gera brottræka úr landi þá sem eru á öndverðum meiði. Og auðvitað ætti hið opinbera ekki að verða við slíkum beiðnum. Stjórnmálamenn í rótgrónu lýðræðisríki verða að þola það að einn og einn kunni að gista í hótelum landsins á nokkurra ára fresti.

Nákvæmlega!

12 ummæli hingað til

Feb 18 2007

Salsa update

skrifaði í flokkinn Dagbók

Jæja, ég kláraði salsa námskeiðið á föstudagskvöld. Er búinn að vera á því í sex vikur og þetta er búið að vera verulega skemmtilegt. Stelpan sem ég dansa með hafði aldrei prófað salsa, en ég hafði lært það mjööög óformlega í Venezuela. Samt var ég aldrei góður í salsa, þar sem í Venezuela dönsuðum við aðallega merengue. En þetta gekk bara nokkuð vel hjá okkur og í síðustu tveimur tímunum var þetta farið að smella verulega vel saman.

Í gærkvöld fórum við svo saman á salsa kvöld á Kaffi Kúltúra. Þar var Carlos, salsa kennarinn okkar, DJ og spilaði hann blöndu af salsa, merengue og einhverri annarri tónlist frá Suður-Ameríku. Þetta var verulega skemmtilegt, fyrir utan kannski þá staðreynd að aldurstakmarkið á staðnum er sennilega 15 ár og því var dansgólfið samblanda af fólki sem var að dansa salsa og fullum unglingum.

En það er allt öðruvísi að dansa salsa á skemmtistað en í danstíma. Maður gleymir því að hafa áhyggjur af sporunum og nýtur þess bara að dansa. Í gærkvöldi fékk ég smá nostalgíukast þar sem þarna var fullt af fólki frá Suður-Ameríku og tónlistin og dansinn minntu mig aðeins á Suður-Ameríku. Það vantaði bara að ég gæti gengið út í 30 stiga hita og fengið mér tacos al pastor eða Caracas hamborgar og þá hefði þetta verið næstum því alveg eins. :-)

3 ummæli hingað til

Feb 16 2007

(Barna)klám

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Ég nenni varla að blanda mér í umræðuna um þessa blessuðu klámráðstefnu. En þetta finnst mér fullkomlega fáránlegt af borgarstjóra okkar:

Borgarstjóri hefur óskað eftir að lögregla rannsaki hvort þátttakendur á klámráðstefnu kunni að vera framleiðendur barnakláms, eða annars ólögmæts klámefnis

Er þetta framtíðin? Á að kanna aðra ráðstefnuhópa líka? Það gætu reynst morðingjar á ráðstefnu sportveiðifélagsins. Hvað með næstu NATO ráðstefnu? Ætlar borgarstjóri að láta rannsaka hvort að ráðstefnugestir þar hafi eitthvað á samviskunni? En næsta friðar-ráðstefna? Þar gætu leynst hryðjuverkamenn. Eigum við ekki bara að skoða alla sem hingað koma?

Skemmtilegar nornaveiðar í boði hins fjölskylduvæna borgarstjóra.


While we’re on the subject, finnst engum nema mér skrýtið að hægt sé að kalla klám með 15 ára stelpu barnaklám og klám með 5 ára stelpu líka barnaklám? Eða að flokka barnaníðinga í sama flokk sama hvort þeir leiti á 5 ára krakka eða 15 ára?

14 ummæli hingað til

Feb 15 2007

Verkir

skrifaði í flokkinn Dagbók

Í vikunni byrjaði ég að lyfta aftur eftir að hafa einbeitt mér að hlaupum í ræktinni að undanförnu. Afleiðingar þess eru einhverjar fáránlegustu harðsperrur sem ég hef fengið.

Einnig hef ég farið tvisvar í fótbolta í vikunni og uppskorið tvær kúlur. Svona til að skjalfesta þetta, þá bjó ég til þessa mynd.

:-)

5 ummæli hingað til

Feb 14 2007

Ferð

skrifaði í flokkinn Dagbók,Ferðalög

Kristján Atli er búinn að skrifa á Liverpool blogginu um ferðina sem ég er að fara í núna eftir tvær vikur. Ég er semsagt að fara með hinum Liverpool bloggurunum (mínus Aggi) til Liverpool þar sem ég mun sjá uppáhaldsliðið mitt keppa við hið andstyggilega lið Manchester United og svo þrem dögum seinna við hitt uppáhaldsliðið mitt, Barcelona.

Bara svo að það sé alveg á hreinu, þá mun ég halda með Liverpool í báðum leikjunum. Ég stefni svo á að fá mér einn, jafnvel tvo, þrjá eða fleiri bjóra á pöbbum og skemmtistöðum Liverpool borgar. Ég hef ekki farið til útlanda síðan ég kom heim frá Asíu, sem er náttúrulega alveg ferlegt. :-)

2 ummæli hingað til

Feb 14 2007

Bílastæðakvabb

skrifaði í flokkinn Almennt

Ég tel mig nú ekki vera mikið fyrir það að kvarta yfir því sem miður fer hjá öðru fólki í þessu þjóðfélagi. Þó er til sá þjóðfélagshópur, sem fer í taugarnar á mér. Það er fólk sem kann ekki að leggja í stæði. Eða öllu heldur fólk sem virðist ekki gera sér grein fyrir því að hvar það leggur getur haft áhrif á annað fólk.

Það virðist vera sérstaklega algengt meðal jeppaeigenda að þeir telja sig hafa einhvern guðdómlegan rétt til að leggja einsog þeim sýnist – og þess vegna að taka tvö stæði fyrir fína bílinn sinn.

Þar sem ég er vanalega í Kringlunni svona tvisvar á dag og legg bílnum mínum líka í miðbænum nánast daglega þá verð ég ítrekað var við þetta. Í Kringlunni í dag tók ég smá rúnt um starfsmannastæðin. Ákvað að taka myndir frá staðnum þar sem ég lagði að staðnum þar sem ég labbaði inní sjálfa Kringluna.

Í dæmi eitt sýnir bílstjórinn til vinstri hvernig á EKKI að leggja í stæði. Menn eiga ekki að leggja yfir hvítu línuna, heldur halda sig innan línanna. Bílstjórinn til hægri (ÉG!) sýnir hvernig á að gera þetta:

Á næstu mynd sjáum við annað dæmi um þetta:

Þessi mynd skýrir sig sjálf

Og að lokum er það KLASSÍSKT dæmi um jeppaeiganda sem tekur sér tvö stæði. Viðkomandi leggur það langt frá súlunni til hægri að það er ómögulegt m.a.s. fyrir smábílaeiganda einsog mig að leggja í stæðið vinstra megin.

Óþolandi!

Ok, þetta var meinhorn dagsins. Næst mun ég hringja inn á Útvarp Sögu. :-)

8 ummæli hingað til

Feb 14 2007

Ökuhæfni og áfengi

skrifaði í flokkinn Netið

Nei, þetta er ekki framhald af Kastljós-umræðinnu. Fann bara þessi tvö myndbönd via MeFi.

Þessi kona er ansi hress

Og þetta er kennslubókardæmi um góða áfengisauglýsingu

4 ummæli hingað til

Feb 14 2007

Vekjaraklukka

skrifaði í flokkinn Netið

Í þessari viku byrjaði ég á því að mæta í ræktina klukkan 7.30 á morgnana. Þetta hefur tekist þrjá daga í röð með miklum pælingum. Ég hef til dæmis stillt vekjaraklukkuna mína og svo líka stillt vekjarann á símanum mínum. Svo hef ég sett símann fram á gang, þannig að ég geti ekki slökkt á honum í svefnu.

En ég held að lausnin væri einfaldlega að fá sér almennilega vekjaraklukku. Og sú besta sem ég hef séð er þessi hér. Algjör snilld!

2 ummæli hingað til

Feb 13 2007

Kastljósið

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Kastljósþátturinn í kvöld er með fyndnara sjónvarspefni, sem ég hef horft á á Rúv lengi. Þvílík snilld!

Þetta minnti dálítið á það þegar að Steve Carrell og Steven Colbert duttu í það í Daily Show þætti, sem ég horfði á þegar ég var útí háskóla. Ég held að ég hafi sjaldan hlegið jafnmikið og yfir því myndbroti. Verst að ég finn ekki það myndskeið á YouTube. Ef einhver getur fundið það myndskeið þá býð ég viðkomandi í brúðkaupið mitt

5 ummæli hingað til

Feb 13 2007

Snillingar Davíðs

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

(Þessi færsla birtist líka á Kratablogginu)

Við Íslendingar njótum þeirra “forréttinda” (kaldhæðni að hætti Davíðs) að hafa sennilega pólitískasta Seðlabankastjóra í heimi. Í flestum öðrum löndum er embætti Seðlabankastjóra virðingarstaða þar sem menn sitja sem njóta virðingar innan fjármálaheimsins, sem og meðal almennings. Oftast reyna menn að ráða í þetta starf menn sem eru yfir dægurþras hafnir og geti því gefið Seðlabanka landsins trausta ímynd.

Á Íslandi er þetta embætti hins vegar notað til að koma gömlum stjórnmálamönnum í þægilegar stöður. Gallinn við það fyrirkomulag er sá að seðlabankastjóri verður aldrei yfir dægurþras hafinn og traust almennings á bankanum verður minna. Nú er það til að mynda svo að núverandi Seðlabankastjóri getur lítið gagnrýnt hagstjórn einsog slíkir stjórar ættu að gera, án þess að gagnrýna um leið þá stefnu sem hann skapaði.

Davíð Oddson er líka enn stjórnmálamaður og sýna afskaplega barnaleg ummæli hans í kvöldfréttum í gær það greinilega. Davíð segir:

Það er nú bara þannig að sumir hafa verið að segja að við verðum að taka upp evru, annars verði hagvöxtur minni – ég hef heyrt suma snillingana segja það.

Þetta er alveg afskaplega hallærislegt. Fyrir þá sem heyrðu ekki viðtalið og geta ekki lesið kaldhæðnina útúr textanum, þá var það augljóst að með “snillingum” þá átti Davíð við að þarna væru vitleysingar að tala. Gleymum því hversu kjánalegt það er að Seðlabankastjóri skuli láta svona útúr sér og einbeitum okkur fyrst að því sem hann segir “snillingana” hafa sagt. Það er, að upptaka evru sé til að auka hagvöxt.

Nú hef ég fylgst ansi vel með umræðunni, en ég man hreinlega ekki hvar það er minnst á það að upptaka evru geti aukið hagvöxt.

Getur einhver bent mér á það hvaða “snillingur” sagði það og við hvaða tilefni?

Það er ekkert mál að vinna rökræður ef menn gera andstæðingum sínum upp skoðanir. Hagfræðingar hafa bent á ótal rök fyrir upptöku evru – og Davíð ætti frekar að eyða tíma sínum í að andmæla þeim í stað þess að gera þeim upp nýjar skoðanir.

Comments Off

Feb 12 2007

Liðleiki

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Ég sat inní eldhúsi þegar ég heyrði auglýsingu fyrir nýjar myndir á næstu leigu. Ein myndin var auglýst svo:

Fyrirtaks afþreying þar sem kattliðugar ofurgellur fara á kostum.

Þarf eitthvað meira til að sannfæra mann?

2 ummæli hingað til

Eldri færslur »