Feb 06 2007
Sjónvarpsdagskrá
Ég held að ég sé að verða veikur. Var að spila fótbolta áðan og þótt ég haldi því seint fram að ég sé mikill baráttu- og varnarjaxl þá verð ég að segja að ég var óvenju slappur í því að hlaupa tilbaka áðan. Var eiginelga alveg búinn eftir nokkra spretti.
Þannig að ég ákvað að leggjast niður í sófa og horfa á sjónvarpið. Ég er með fjórar stöðvar: RÚV (sem býður uppá kærustuna mína – búinn að sjá það), Sirkus, Sýn, Enska boltann og Skjá Einn.
Það sem vakti athygli mína er dagskrá ókeypis stöðvanna núna klukkan 20.
Sirkus: Entertainment Tonight. Þetta er nokkurn veginn það hræðilegasta rusl, sem hægt er að kaupa frá Bandaríkjunum. Ef að mig minnir rétt þá voru þessir þættir sýndir um 5 leytið í USA, sem þýðir að ekki nema þeir verstu í sjónvarpsglápi sem horfa á þættina. En hérna þykir þetta vera þess vert að sýna á besta tíma. AF HVERJU?
Skjár Einn: Skólahreysti. Sko, ég gæti kannski gert mér upp áhuga á Hreystis keppnum þar sem væri fullt af sætum stelpum yfir lögaldri. En þessi grunnskóla hreystis keppni getur ekki á nokkurn hátt talist spennandi sjónvarpsefni á besta mögulega tíma. Næst á S1: Raunveruleikaþáttur um fasteignasala. Og nei, þetta er ekki djók.
Ég finn mér eitthvað á netinu.
10 Ummæli við færsluna “Sjónvarpsdagskrá”
# - þann 06 Feb 2007 klukkan 22:45
Við spyrjum um mann. Hann öðlaðist frægð in the late 70′s, en ekki fyrir þá tegund tónlistar sem hann er best þekktur fyrir í dag
# - þann 06 Feb 2007 klukkan 23:11
Ha?
# - þann 07 Feb 2007 klukkan 1:29
Ef þetta er það sem koma skal ætla ég bara að nýta mér yndislega internetið. :biggrin:
# - þann 07 Feb 2007 klukkan 10:07
Verð að benda þér á eitt sem miklum áhugamanni um amerískan fótbólta: Tókstu eftir því á mbl.is – í þessari frétt http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1252072 er “Superbowl” þýtt sem “Ofurskálarleikurinn” ???
# - þann 07 Feb 2007 klukkan 13:07
Og hvað er athugavert við það?
# - þann 07 Feb 2007 klukkan 19:33
Mæli sterklega með http://www.dailymotion.com … Þegar ég er lasin legst ég yfir Whose line is it anyway? og er yfirleitt fljót að ná mér :blush:
# - þann 07 Feb 2007 klukkan 21:55
Takk, Fanney. Kíki á þetta.
# - þann 07 Feb 2007 klukkan 22:59
Anna Nicole Smith…
Anna Nicole Smith…
Barry Maaaaaaaniloooow!!
Anna Nicole Smith…
fullur karl (eða racist comment)…
og svo 200 kílóa krakki (eða annað live from the trailer park segment)
Er þetta ekki eins á hverjum einasta degi?? Ef ekki ennþá séð þátt(arbrot) þar sem Anna Nicole Smith kemur ekki við sögu.
Hryllingur.
# - þann 08 Feb 2007 klukkan 21:20
http://news.bbc.co.uk/1/hi/world/americas/6344725.stm
Hvað ætli þetta verði efni í marga klukkutíma af E!?
# - þann 09 Feb 2007 klukkan 5:46
Ágúst: Þeim þáttum ætti fljótlega að fara að fækka þar sem Anna greyið kemur við sögu