Feb 08 2007
Draumar
Í nótt dreymdi mig að ég væri eltur af illum her inní gömlum kastala. Svo vaknaði ég í morgun í svitabaði, enn með kvef en með aðeins minni hausverk.
Og það sem meira er, þá var ég með A Great Day for Freedom með Pink Floyd á heilanum. Þetta lag er ekki spilað í útvarpi og því get ég bara hafa hlustað á það sjálfur. En svo kíkti ég í iTunes og sá að ég hef ekki hlustað á þetta lag síðan í janúar 2003.
Af hverju vaknar maður með lag á heilanum sem maður hefur ekki heyrt í fjögur ár?
4 Ummæli við færsluna “Draumar”
# - þann 08 Feb 2007 klukkan 11:40
Þetta er stór furðulegt, ég lenti í þessu í sumar, vaknaði með “Natchez Trace” með Dusty á heilanum. Sem mér fannst mjög skrítið þar sem það var bannað að hlusta á útvarp á vinnustaðnum mínum og ég á þetta lag ekki í tölvunni minni og það er ár og aldir síðan ég setti diskinn á fóninn! Kannski eru þetta einhver dulin skilaboð!!
hehehh
# - þann 08 Feb 2007 klukkan 15:56
hey láttu þér batna Það er svo óóóóógeðslega leiðinlegt að vera veikur!
# - þann 08 Feb 2007 klukkan 16:31
Takk, Katrín.
Og Marella, já ég var að reyna að rýna í textann og sjá hvort þetta væri eins konar stjörnuspá fyrir mig. En ég fann nú ekki mikið.
# - þann 09 Feb 2007 klukkan 17:07
Djöfull er spes að vakna með lag á heilanum sem maður hefur ekki spilað í 4 ár.