Feb 14 2007
Vekjaraklukka
Í þessari viku byrjaði ég á því að mæta í ræktina klukkan 7.30 á morgnana. Þetta hefur tekist þrjá daga í röð með miklum pælingum. Ég hef til dæmis stillt vekjaraklukkuna mína og svo líka stillt vekjarann á símanum mínum. Svo hef ég sett símann fram á gang, þannig að ég geti ekki slökkt á honum í svefnu.
En ég held að lausnin væri einfaldlega að fá sér almennilega vekjaraklukku. Og sú besta sem ég hef séð er þessi hér. Algjör snilld!
2 Ummæli við færsluna “Vekjaraklukka”
# - þann 14 Feb 2007 klukkan 13:43
kærastinn minn á svona vekjaraklukku sem líkir eftir sólarupprás.. það er þægilegt!
# - þann 14 Feb 2007 klukkan 19:35
ég skil símann minn eftir frami á gangi.. virkar ekki. Fer að sækja hann og tekk hann með mér uppí rúm :confused: