Feb 14 2007

Ferð

uppfærði klukkan 22:00 í flokkinn Dagbók,Ferðalög

Kristján Atli er búinn að skrifa á Liverpool blogginu um ferðina sem ég er að fara í núna eftir tvær vikur. Ég er semsagt að fara með hinum Liverpool bloggurunum (mínus Aggi) til Liverpool þar sem ég mun sjá uppáhaldsliðið mitt keppa við hið andstyggilega lið Manchester United og svo þrem dögum seinna við hitt uppáhaldsliðið mitt, Barcelona.

Bara svo að það sé alveg á hreinu, þá mun ég halda með Liverpool í báðum leikjunum. Ég stefni svo á að fá mér einn, jafnvel tvo, þrjá eða fleiri bjóra á pöbbum og skemmtistöðum Liverpool borgar. Ég hef ekki farið til útlanda síðan ég kom heim frá Asíu, sem er náttúrulega alveg ferlegt. :-)

2 ummæli hingað til

2 Ummæli við færsluna “Ferð”

  1. snorri
    # - þann 14 Feb 2007 klukkan 23:49

    Ég skil ekki löngun áhangenda Liverpool að ferðast til útlanda í þeim tilgangi að sjá lið sitt tapa.

  2. Einar Örn
    # - þann 15 Feb 2007 klukkan 11:16

    Nei, enda ef þú heldur ekki með Liverpool þá hefur þú sennilega ekki upplifað svona mikla gleði :wink: