Mar 14 2007

Ég…

uppfærði klukkan 19:44 í flokkinn Almennt

  • … hata þennan auðkennislykil. Hann hefur einstakt lag á að vera í öðru herbergi en ég þau 2-3 skipti sem ég þarf að komast inná fyrirtækjabankann á hverjum degi. Minn lykill er líka að detta í sundur, þar sem að gúmmíið er dottið af honum
  • … erað fíla nýju Arcade Fire og Modest Mouse diskana.
  • … trúi því ekki að RÚV ætli að sýna frá þessum Alþingis umræðum
  • … þoli ekki þá staðreynd að veðurfréttatímar séu á sama tíma á Stöð 2 og RÚV. Það þykir mér vera mikil grimmd, því leiðinlegra sjónvarspefni er ekki hægt að finna.
  • … er með hausverk.

8 ummæli hingað til

8 Ummæli við færsluna “Ég…”

  1. Gunnar
    # - þann 15 Mar 2007 klukkan 1:58

    Byrja daginn á að senda þér 4 stk. auðkennisnúmer í sms. Þrælvirkar. En já, þessi lykill sýgur. Þetta er bara redding á nauðgun.

  2. Einar Örn
    # - þann 15 Mar 2007 klukkan 12:00

    Jamm, en kostar það ekki pening?

  3. Gaui
    # - þann 15 Mar 2007 klukkan 16:20

    Alveg sammála þér með aukennislykilinn og veðurfréttatímana. Fussum svei!

    Varðandi hjáleiðina hans Gunnars…

    Þú getur annað hvort notað SMS varaleiðina, en hún virkar bara í 3 sólarhringa eftir fyrstu notkun. Eftir það þarftu að nota auðkennislykilinn.

    Svo ættiru líka að geta skrifað niður 4 númer af lyklinum og þá ætti að virka að skrá þig 4x inn.

    Þetta er meingallað helvíti!

  4. snorri
    # - þann 16 Mar 2007 klukkan 4:00

    Er til manneskja á landinu fyrir utan katrin.is sem er ánægð með þennan auðkennislykil?

  5. Einar Örn
    # - þann 16 Mar 2007 klukkan 10:23

    Nei, það virðist bara vera netkærastan mín sem er með eitthvað furðulegt fetish fyrir þessum auðkennislykli. :-)

  6. katrín
    # - þann 16 Mar 2007 klukkan 16:29

    haha ég myndi alveg lifa án hans

    en hann fer ekki svona hriiiiikalega í taugarnar á mér..

    ég er barað bíða eftir að þeir sem eru með gullkort fái gulllykil með demöntum, þá rokka ég þessum lykli sem kyppu stollt!

  7. Einar Örn
    # - þann 16 Mar 2007 klukkan 18:54

    Jammm, hann væri alveg í lagi ef ég notaði bara bankann fyrir heimabankaþjónustu. En af því að ég nota hann fyrir vinnuna oft á dag, þá verður þetta verulega pirrandi.

  8. Kristján R
    # - þann 18 Mar 2007 klukkan 22:46

    ég er nú ekki kominn með þennan blessaða lykill og enn virkar bankinn… ætla mér ekkert að fá þetta fyrr en alt lokast…