Mar 19 2007
Lost?
Get ég fengið þennan klukkutíma, sem ég eyddi í að horf á Lost, tilbaka? Ég gæti þá eytt honum í eitthvað gagnlegra, einsog að horfa á parketið mitt.
Og ég mun aldrei nota aðra leitarvél en þessa. Þvílík gargandi snilld!
4 Ummæli við færsluna “Lost?”
# - þann 20 Mar 2007 klukkan 9:45
Ég horfði nú á fyrstu seríu af Lost fyrir 1-2 árum og ég get sko svarið það, ég hafði aldrei á ævi minni séð jafn spennandi þætti. En í dag, þegar ég lít til baka, finnst mér þetta bara hafa verið tímaeyðsla – sem þetta var!
Já, hverjum langar ekki að vinna boðsmiða í afmælispartýið hjá Kevin Federline? Pant ekki!
En kíktu á http://www.chacha.com – þetta er mesta snilld sem ég hef séð í leitarvélabransanum. Human Being Live Search Expert sem hjálpar þér að leita!
# - þann 20 Mar 2007 klukkan 10:49
ohh ég gafst uppá lost í fyrstu seríu alltaf verið að gefa ekkva í skyn og svo gerist ekkert
þá kann ég betur að meta one tree hill og antm;)
# - þann 20 Mar 2007 klukkan 13:54
Jamm, þetta virðist vera sama dæmið og með Twin Peaks. Byrjar snilldarlega en fjarar svo útí tómt kjaftæði. Þátturinn í gær (þar sem fjallað er um Desmond og tímaflakk hans – fyrir þá sem downloada á netinu) var nánast ólýsanlega leiðinlegur.
K-Fed er hins vegar snillingur.
# - þann 22 Mar 2007 klukkan 0:25
Einar, sama hvort maðurinn er snillingur eða ekki, þá væri ég ekki til í að vera eina óþekkta manneskjan í afmælinu hans. Geðveikt gaman eitthvað einn úti í horni. Nema maður væri bara á barnum að spjalla við bargellurnar? :laugh: