Mar 29 2007

Páskar

uppfærði klukkan 18:59 í flokkinn Dagbók

Jösssss, syngjandi páskastelpan frá Ölgerðinni er farin að birtast í sjónvarpinu. Ég er því officcially kominn í páskaskap.

* * *

Í dag endurheimti ég uppáhaldsúlpuna mína. Á laugardagskvöldið setti ég hana á gólfið inní horn á Vegamótum, þar sem ég var ekki alveg til í að dansa í þykkri úlpu. Þegar kom að því að endurheimta úlpuna, þá var hún farin. Ég leitaði á örvæntingarfullan hátt í nokkrar mínútur en gafst að lokum upp og hljóp heim í Vesturbæinn á peysunni.

Reykingalyktin af úlpunni núna er ólýsanleg. Ég er sannfærður um að ef úlpan hefði verið sett inní lítið herbergi með 15 keðjureykjandi simpönsum í tvær vikur, þá væri reykingalyktin ekki jafn sterk og lyktin er af úlpunni núna.

* * *

Annars var þetta ótrúlega skemmtilegur dagur í vinnunni í dag. Veit ekki hvort að veðrið hefur svona áhrif á mig.

* * *

Er þetta Baugsmál búið núna? Plíííííííís segið mér að svo sé!

7 ummæli hingað til

7 Ummæli við færsluna “Páskar”

  1. Erna
    # - þann 29 Mar 2007 klukkan 20:28

    Litla systir mín hefur unnið mikið á kaffihúsum og hún segir það óbrigðult ráð að frysta reykingarfýlu úr fötum. Hef aldrei prófað það sjálf reyndar :biggrin:

  2. Kristján Atli
    # - þann 29 Mar 2007 klukkan 21:25

    Frostið klikkar aldrei. Ég skal ábyrgjast það. Ég nota þetta ráð nær daglega, enda vinn ég í stærsta ísskáp Íslands.

  3. Einar Örn
    # - þann 29 Mar 2007 klukkan 22:38

    Já, úlpan er búin að vera útá svölum síðan ég kem heim.

    Heimilisfrystirinn býður varla uppá að í honum sé geymd heil úlpa. :-)

  4. Scweppes
    # - þann 30 Mar 2007 klukkan 9:26

    Jessssss! Nú ætla ég að tjalda fyrir framan sjónvarpið, frænka þín í páskaauglýsingunni er svo krúttleg.

  5. einsidan
    # - þann 30 Mar 2007 klukkan 11:32

    Bara að forvitnast, en hvernig lýsir páskaskap sér eiginlega? :shock:

  6. Einar Örn
    # - þann 30 Mar 2007 klukkan 11:35

    Miðað við 2 af 3 síðustu páskum, þá lýsir páskaskap sér hjá mér sem skap til að spila xBox. :-)

    Áður var það alltaf skap til að fara á skíði.

    En annars var þetta bara hálf slöpp tilraun til fyndni. Ég er ekki í neinu sérstöku páskaskapi, ef ég hefði ekki verið að spá í vaktamálum á Serrano þá hefði ég sennilega ekki fattað að páskar eru í næstu viku. :rolleyes:

  7. Scweppes
    # - þann 31 Mar 2007 klukkan 2:36

    Ég get ekki beðið eftir jólunum, þegar hún syngur Skín í rauðar skotthúfur / skuggalangan daginn.