Skráarsafn fyrir April, 2007

Apr 30 2007

ÁPÁ

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Af því að ég get ekki komið orðum að því sem mig langar að blogga um, þá set ég bara in smá myndband svo að fólk haldi ekki að ég sé hættur að blogga

Árni Páll gjöriðisvovel:

3 ummæli hingað til

Apr 25 2007

Bloggleysi

skrifaði í flokkinn Netið

Ég ætla opinberlega að lýsa frati á þetta blogg.

Ekkert nýtt síðan 23.mars!

7 ummæli hingað til

Apr 24 2007

Úrslitakeppnin er á Sýn!

skrifaði í flokkinn Íþróttir


Já er það??

Hvernig væri að sýna þá fokking Miami – Chicago leikinn? Frábært að vera með Miami menn í auglýsingunni, en sýna svo aldrei leiki með því liði.

ARRG! Og NBA Tv með New Jersey – Toronto. Er þetta eitthvað grín?


Uppfært: Jæja, þökk sé Sýn þá er ég búinn að missa af því tvisvar að sjá Bulls sigra NBA Meistarana.

4 ummæli hingað til

Apr 24 2007

UJ á MæSpeis

skrifaði í flokkinn Netið

Jæja, til að halda þessu MæSpeis þema áfram hér á blogginu, þá verð ég auðvitað að plögga þriðju bestu MySpace síðunni á Íslandi (á eftir minni og Serrano auðvitað):

Ungir Jafnaðarmenn á MySpace

Þvílíkt samansafn af öðlingum er vandfundið á netinu. Ef þú ert jafnaðarmaður, þá sendir þú okkur auðvitað vinaboð á MySpace. Áfram UJ! :-)

Ein ummæli hingað til

Apr 23 2007

Palace of Soviets

skrifaði í flokkinn Almennt

Þegar ég var í Moskvu fyrir nokkrum árum fór ég meðal annars á Kropotkinskaya lestarstöðina. Sú lestarstöð er fræg fyrir það að vera eini hlutinn, sem eftir lifir af Palace of Soviets byggingunni. Sú bygging átti á sínum tíma að vera hæsta bygging í heimi. Ég verð að játa það að það er eitthvað stórkostlega heillandi við hugmyndina að þeirri byggingu:

Palace of Soviets átti að hýsa þing Sovéta og átti byggingin að sýna styrk Sovétríkjanna (hún átti að vera hærri en Empire State) og efst á henni átti að tróna 100 metra há stytta af Lenín. Byggingin var hins vegar misheppnuð þar sem að Moskvuáin flæddi yfir byggingasvæðið og gerði það ómögulegt að hefjast handa.

Það er eitthvað magnað við hugmyndirnar að þessari byggingu. Svipuð hugmyndafræði er svo að baki Ryugong hótelsins í Pyongyang, en það er engin bygging í heimi, sem mig langar að sjá meira en þá byggingu. Það er eitthvað skringilega heillandi á bakvið geðveikina við þá byggingu.

(Egill Helga á víst heiðurinn að því að minna mig á þessa byggingu)

4 ummæli hingað til

Apr 22 2007

Bulls og frétt ársins

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Veit einhver hvar ég get séð leiki Chicago og Miami í úrslitum NBA? Samkvæmt Sýn þá byrjar úrslitakeppnin í dag þrátt fyrir að ég geti svarið fyrir það að Chicago Bulls unnu Miami í úrslitakeppninni í gær. Af hverju í ósköpunum var sá leikur ekki sýndur á Sýn? Efast einhver um að Chicago Bulls eru vinsælasta NBA liðið á Íslandi?

* * *

Tilbúin frétt ársins var í fréttatíma Stöðvar 2 í kvöld: Íbúar vilja ekki flugvöll í sitt hverfi!!!

Þar var tekið viðtal við íbúa í Grafahrolti og þeir spurðir hvort þeir vildu fá flugvöll í nágrennið. Ótrúlegt en satt, þá voru margir á móti því! Ja hérna!

* * *

Svo fær fréttastofa Stöðvar 2 hrós dagsins fyrir að tefla fram fréttamanni, sem kann að bera fram frönsk mannanöfn.

10 ummæli hingað til

Apr 21 2007

Unknown Legend

skrifaði í flokkinn Tónlist

Ó, þetta er svo gott lag! Lesa áfram »

2 ummæli hingað til

Apr 21 2007

Serrano á MæSpeis

skrifaði í flokkinn Netið

Hvað gerir piparsveinn í Reykjavík á föstudagskvöldi?

Jú, hann býr til MySpace síðu fyrir veitingastaðinn sinn. Sumir búa til MySpace síðu fyrir gæludýrin sín, en þar sem ég á engin gæludýr þá var Serrano besti kosturinn. Ég var til klukkan 2 í gærnótt að vinna í þessari merku síðu.

En annars þá er ekki neitt svakalegt markaðsplan á bakvið þessa MySpace síðu. Stefni ekki á að spam-a MySpace síður kúnna Serrano, heldur mun ég aðeins senda út tilkynningar ef eitthvað mjög spennandi er að breytast á Serrano. Og svo mun ég sennilega prófa að bjóða MySpace notendum uppá einhver voðalega flott tilboð einstaka sinnum.

En allavegana, núna getið þið allavegana orðið vinir uppáhaldsveitingastaðar míns!

5 ummæli hingað til

Apr 20 2007

SUS vill vera vinur minn!

skrifaði í flokkinn Netið

Æ fíl só special!

(Smellið á mynd til að sjá stærri útgáfu)

Ætli SUS sé að spam-a íslenska MySpace notendur, eða er þetta bara einhver að gera djók í mér? Eða lít ég kannski út einsog hægri maður á Prófíl myndinni minni?

14 ummæli hingað til

Apr 19 2007

Reykstofan

skrifaði í flokkinn Dagbók

Einhvern tímann þarf einhver fróður einstaklingur að útskýra fyrir mér hvernig fólk, sem reykir ekki, getur lifað af inná Ölstofunni í meira en klukkutíma. Eflaust er ég frekar viðkvæmur fyrir sígarettureyk. Aldrei hefði mér dottið það í hug að það að koma inná Vegamót væri frískandi, en ég upplifði það í gær.

Ég var í útgáfupartíi hjá UJ í gær. Vegna brunans var partíið fært af Hressó yfir í Landsímahúsið, þar sem Samfylkingin er með kosningaskrifstofu. Þar var ég í bjór með góðu fólki til klukkan 2, þegar við fórum 3 saman uppá Ölstofuna. Þar þraukaði ég í næstum því 2 tíma áður en við fórum yfir á Vegamót. Hitti fulltaf skemmtilegu fólki og þar á meðal vinkonu mína sem ég hef ekki hitt svo hressa á djamminu í mörg ár.

Var samt ekki fullur, enda hefur bjór frekar sljóvgandi áhrif á mig en örvandi. Jú, og ég hafði ekki kjark í mér til að tala við dökkhærðu stelpuna sem ég hef séð þarna í nokkur skipti og mér finnst svo ótrúlega sæt. Furðulegt hvernig sumt fólk hefur áhrif á mann.

Labbaði svo heim, enda var ég nógu skynsamur að vera í þykku úlpunni minni með ipod í vasanum. Það var æðislegt að labba meðfram tjörninni í morgunbirtunni með Postal Service í eyrunum á fyrsta degi sumars. Stundum er Reykjavík einfaldlega yndisleg.

* * *

Í morgun var ég svo vakinn af Emil vini mínum og Serrano meðeiganda (sem finnur það á sér þegar ég er þunnur og hringir umsvifalaust í mig) og svo hálftíma seinna af heilli lúðrasveit, sem var að marsera hérna í Vesturbænum. Ég vildi að ég gæti sagt að það hafi verið hressandi.

Ég er svo heppinn að búa við hliðiná einni vinsælustu ísbúð landsins. Það hljómar ótrúlega spennandi, en er það varla. Það er svo fáránlega mikið að gera í búðinni að ég gefst oftast uppá biðinni. Mér finnst eitthvað stjarnfræðilega vitlaust við það að bíða í biðröð úti í frosti eftir því að komast inn og fá ís. En ég fékk mér samt ís í dag, enda er betra þynnkumeðal vandfundið.

Þetta er lítil, skrýtin eyja.

6 ummæli hingað til

Apr 18 2007

Afmælisdagur

skrifaði í flokkinn Netið

Af því að það er hálfleikur í Liverpool leik og ég hef ekkert til að blogga um:

Your Birthdate: August 17
You love being in love… so much so that it’s very hard for you to be single.
Unfortunately, it’s difficult for you to stay in love over time. Too many people intrigue you!
Only your true love will be able to keep you interested over time.

Number of True Loves You’ll Have: 1

Number of Times You’ll Have Your Heart Broken: 4

You are most compatible with people born on the 8th, 17th, and 26th of the month.
What Does Your Birth Date Mean For Your Love Life?



Það vill svo skemmtilega til að ég myndi akkúrat segja að ég hefði verið heart-broken 4 sinnum. Frábært að vera búinn að uppfylla þann kvóta.

Og ég á semsagt í vandræðum með að vera lengi í sambandi. SHOCK! HORROR!!

Ó, bravó fyrir þér, óskeikula internet (via).

4 ummæli hingað til

Apr 17 2007

Mæspeis ást

skrifaði í flokkinn Netið

Ef þú ert ekki nú þegar búinn að sjá MæSpeis ástarsöguna, þá verðurðu auðvitað að tékka á þessu.

Magnað!

Já, og hérna er prófíllinn hans

4 ummæli hingað til

Apr 16 2007

KR-Karfan

skrifaði í flokkinn Íþróttir

Ég tek tilbaka allt slæmt, sem ég hef sagt um íslenskan körfubolta. Það er kannski ekki mjög skemmtilegt að horfa á lið af Suðurnersjunum spila – en þegar lið, sem ég hef taugar til, er að spila – þá verður þetta frábær skemmtun.

Ég er ekki frá því að ég hafi haft meiri áhuga á þessu úrslitaeinvígi í körfuboltanum heldur en ég hef haft á handboltaleikjum á Íslandi í mörg ár. Það að úrslitakeppnin í handboltanum hafi verið lögð niður er náttúrulega eitt magnaðasta klúður seinni ára.

En allavegana, þetta var frábært hjá Vesturbæjarstórveldinu. :-)

2 ummæli hingað til

Apr 15 2007

Helgin

skrifaði í flokkinn Dagbók

Helgin er búin að vera fín…

Fór á Peter, Björn og John tónleikana á föstudagskvöld með Jensa. Þeir voru verulega góðir. Sprengjuhöllin hitaði upp og þar sá ég þá spila Samfylkingarlagið í fyrra skipti af tveimur þessa helgi. Svo kom Pétur Ben, sem minnti mann ansi mikið á Damien Rice á tónleikum.

PB & J voru verulega skemmtilegir. Björn, bassaleikari leit út einsog hann hefði reykt hálft kíló af hassi, í einhvers konar fáránlegri sæluvímu – á meðan að gítarleikarinn virtist vera á spítti allan tímann. Mjög fróðleg blanda.

Þeir tóku að mestu lög af Writer’s Block, sem er fínt, enda er sú plata afbragð. Ég var í afskaplega góðu skapi – og bjórarnir urðu einhvern veginn til þess að mér fannst allt svo yndislegt – stelpurnar svo fallegar, fólkið svo skemmtilegt og tónlistin svo mikið æði. En allavegana var ég voðalega sáttur.


Landsfundurinn var svo góður. Það er víst nóg af fólki á Moggablogginu, sem lýsir yfir ánægju með fundinn, eða talar um það að Samfylkingin sé flokkur djöfulsins, þannig að ég nenni varla að bæta í þann pott.

En tilfinningin við að vera þarna var góð. Ef ég hefði ekki verið viss, þá hefði ég sannfærst á þessum fundi að ég væri á réttum stað í pólitíkinni. Ræðurnar voru margar hverjar mjög skemmtilegar, sérstaklega hjá gestunum um jafnréttismál – og svo hjá framtíðarþingmönnum um hin ýmsu mál – sérstaklega hjá Árna Páli, sem ég held að sé mögulegur framtíðarleiðtogi Samfylkingarinnar.


Deginum í dag hef ég eytt í vinnu að mestu leyti. Sit núna og horfi á Cubs í tölvunni, sem er tengd við sjónvarpið mitt…. og þeir tapa. Þvílík hörmungar íþróttahelgi. Guði sé lof fyrir ljósið í myrkrinu.

12 ummæli hingað til

Apr 15 2007

Orð

skrifaði í flokkinn Hagfræði,Stjórnmál

Orð gærdagsins: Verðbólguskot.

Orð dagsins í dag: Verðbólgukúfur.

Hvaða orð ætli Sjálfstæðismenn myndu nota yfir það, þegar að verðbólga er yfir verðbólgumarkmiðum Seðlabanka í 55 af 72 mánuði? Þegar að þeir hafa ákveðið hvaða orð þeir myndu kalla það, þá væri ekki úr vegi að þeir byrjuðu að nota það orð yfir þá staðreynd að síðan 2001 hefur verðbólgan á Íslandi verið yfir verðbólgumarkmiðum Seðlabankans í 55 af 72 mánuði.

Allir góðir menn lesi þetta plagg. Ágætis sönnun á því að Íhaldsmönnum er ekki treystandi fyrir ríkisfjármálum. Bush hefur sannað það í Bandaríkjunum og Sjálfstæðisflokkurinn er að gera það hér.

Ein ummæli hingað til

Apr 14 2007

Knut

skrifaði í flokkinn Netið

Sko, ég er ekki beint þessi típa sem missir sig yfir litlum, sætum dýrum.

Eeeeen Knut er alveg búinn að heilla mig uppúr skónum.

Enda erum við líka MæSpeis vinir

8 ummæli hingað til

Apr 13 2007

Landsfundur

skrifaði í flokkinn Dagbók

Ég gerði heiðarlega tilraun til að mæta á landsfund okkar jafnaðarmanna í dag. Ætlaði að stoppa örstutt á Serrano í leiðinni til að sækja gleraugun mín. Það stopp reyndist vera nærri því tveir tímar og því missti ég af öllu prógramminu. Stefni því á að fara á morgun.

Annars hlýtur það að vera innihaldslausasta sjónvarpsefni að taka viðtöl við flokksbundið fólk um niðurstöður skoðanakannana. Hefur einhven tímann einhver komið með eitthvað sérstaklega gáfulegt eða frumlegt svar við slíkum spurningum? Nú má vel vera að einhverjir telji þetta bara vera röfl í mér af því að ég tilheyri núna 3. stærsta flokki landsins. Og mér er eiginlega nokk sama. Tölum um eitthvað sem skiptir mig máli. Til dæmis það að Samfylkingin vilji fara inní ESB! Það er nú fjör.


Annars í kvöld eru það hinir sænsku snillingar Peter, Björn og John – sem ég og Jens ætlum að fara á á Nasa. Svíþjóð er einmitt í ESB og þess vegna verða þetta góðir tónleikar.

Og já, ég er með hausverk þriðja daginn í röð. Þetta fer að verða pirrandi. Stefni á að fá mér bjór á eftir til að reyna að losna við þennan óþverra. Tveir bollar af grænu te-i með ginseng hafa ekki virkað, þannig að bjórinn er mitt síðasta úrræði.

3 ummæli hingað til

Apr 12 2007

Hausverkur

skrifaði í flokkinn Dagbók

Ég vil leggja fram opinbera kvörtun yfir því að ég skuli vera með fáránlegan, dúndrandi hausverk annan daginn í röð. Ranglæti heimsins er óendanlegt.

Engin ummæli enn

Apr 12 2007

So it Goes

skrifaði í flokkinn Netið

Ef þig hefur vantað tækifæri til að lesa Slaughterhouse Five, þá er þetta ágætis tilefni.

Þetta frá Vonnegut er gott (via DaringFireball):

Nietzsche had a little one-liner on how to choose a wife. He said, “Are you willing to have a conversation with this woman for the next forty years?” That’s how to pick a wife.

* * *

Mæli með þessari færslu hjá varaformanninum.

* * *

Ég verð að játa það að ég sakna Mengellu.

* * *

Anna.is er ein af mínum uppáhaldsbloggurum. Hún fjallar oft á alveg frábæran hátt um samskipti kynjanna. Til dæmis hér.

* * *

Hjá Dlisted

Keith Richards has confessed that he threw a canary out the window, because it was bothering his hangover. The bird belonged to his bandmate, Ronnie Wood’s son. He said he was trying to lay down and the bird was making so much noise that he threw it out the window. Keith apparently thought the bird was an alarm clock.

Snillingur!

Engin ummæli enn

Apr 11 2007

99 vinir

skrifaði í flokkinn Netið

Jæja, allt að gerast í þessum MySpace heimi. Ég er núna kominn með 99 vini á MySpace. Spennan er því nánast óbærileg fyrir því hver verður 100. vinur minn!

Hingað til hafa þrír þýskir DJ-ar beðið um að vera vinur númer 100, en ég hef hafnað þeim án þess að blikka augunum. Er enn að gæla við þá hugmynd að einhver dökkhærð þokkadís spretti inní líf mitt með vinaboði og breyti lífi mínu algjörlega.

Ef ekki, þá verð ég sennilega bara að sætta mig við DJ Bobo.

13 ummæli hingað til

Eldri færslur »