Apr 14 2007

Knut

uppfærði klukkan 1:33 í flokkinn Netið

Sko, ég er ekki beint þessi típa sem missir sig yfir litlum, sætum dýrum.

Eeeeen Knut er alveg búinn að heilla mig uppúr skónum.

Enda erum við líka MæSpeis vinir

8 ummæli hingað til

8 Ummæli við færsluna “Knut”

  1. Ásgeir H
    # - þann 14 Apr 2007 klukkan 1:58

    Er Knútur dökkhærða þokkadísin sem þú varst að auglýsa eftir? Merkilegt hvað þessir norrænu birnir þurfa alltaf að lita á sér feldinn …

  2. Kristján Atli
    # - þann 14 Apr 2007 klukkan 3:07

    Ég sá fyrirsögnina á Blogggáttinni og hélt að þú værir að fara að blogga um Knut Hamsun. Oh well … sennilega merki um að ég sé búinn að lesa yfir mig.

    Hvað ætli það sé langt þangað til Knut verður hugraðri í eitthvað meira en mjólkípela og ákveði að éta fósturföður sinn? Þið vitið, þennan sem er að sóa tímanum í að greiða villidýri. :rolleyes:

  3. Elín
    # - þann 14 Apr 2007 klukkan 3:16

    ég held að ég eigni mér heiðurinn að hafa smitað þig að Knut :wink: og já það þarf auðvitað að greiða feldinn á stjörnunni! villidýr hvað :wink:

  4. Guðrún Helga
    # - þann 14 Apr 2007 klukkan 13:02

    haha frábært myndband :laugh:

  5. katrín
    # - þann 14 Apr 2007 klukkan 17:54

    ég ætlað heimsækjann yfir hvítasunnuna ohh ég hlakka svo til!

  6. Einar Örn
    # - þann 14 Apr 2007 klukkan 21:28

    Nei, Knut kemur ekki í stað þokkadísarinnar. Kristján, þú færð bjartsýnisverðlaun dagsins. Og hvernig geturðu kallað svona lítinn sætan bangsa “villidýr”? :-)

    Og öfunda þig, Katrín. Mig langar til Berlínar!

  7. Kristján Atli
    # - þann 15 Apr 2007 klukkan 15:40

    Af því að þegar hann hefur aldur til þess mun hann éta okkur öll? :confused:

  8. Einar Örn
    # - þann 15 Apr 2007 klukkan 15:42

    Já, en akkúrat núna er hann svo sæææætur! :-)

RSS fyrir ummæli

Skrifa ummæli