Apr 20 2007

SUS vill vera vinur minn!

uppfærði klukkan 17:49 í flokkinn Netið

Æ fíl só special!

(Smellið á mynd til að sjá stærri útgáfu)

Ætli SUS sé að spam-a íslenska MySpace notendur, eða er þetta bara einhver að gera djók í mér? Eða lít ég kannski út einsog hægri maður á Prófíl myndinni minni?

14 ummæli hingað til

14 Ummæli við færsluna “SUS vill vera vinur minn!”

  1. Ásgeir H
    # - þann 20 Apr 2007 klukkan 22:18

    DJ Bobo var að biðja um að vera vinur minn – var hann ekki að syngja eitthvað lag um SUS í Júró?

  2. Hjördís Yo
    # - þann 21 Apr 2007 klukkan 1:32

    Þú reyndar lítur út fyrir að vera hægri maður, verð að játa það! Vona að SUS geri sér ekki ferð á mitt myspace… ákvörðunin verður svo sem ekki erfið ef það myndi gerast!

  3. Íris Björk
    # - þann 21 Apr 2007 klukkan 11:53

    Hvernig líta hægri menn út?

    En hægri konur?

    Vissi ekki að það væri sérstakt útlit sem fylgdi því;)

    Takk fyrir skemmtil skrif eoe!

  4. Einar Örn
    # - þann 21 Apr 2007 klukkan 13:34

    Já, nákvæmlega. Ég væri til í að heyra skýringar Hjördísar á því hvers vegna ég lít út einsog hægri maður.

    Og takk, Íris. :-)

  5. Hjördís Yo
    # - þann 21 Apr 2007 klukkan 19:12

    Ég er búin að breyta, þú líkist frekar jafnaðarmanni á myndinni en þeim hægri sinnuðu… ef við miðum við klæðnaðinn allavega ;) Biðst forláts… hoho

    http://www.sus.is/media/folk/medium/Borgar1.jpg

    http://web.hexia.net/roller/resources/kristrunh/20061106142450642.jpg

  6. Einar Örn
    # - þann 21 Apr 2007 klukkan 19:33

    He he, þetta líkar mér. Miklu betra að líkjast Magga heldur en einhverjum SUS-urum. :-)

  7. Íris Björk
    # - þann 21 Apr 2007 klukkan 21:22

    Hmmmm, verð nú að segja að…þetta er pínu ruglandi skýring?!?!?!?

    Sbr. þetta:

    http://www.sus.is/media/folk/xsmall/bolli01.jpg

    http://www.magnusmar.blog.is/tn/300/users/ca/magnusmar/img/c_documents_and_settings_tobba_my_documents_magnus_myndir_a_blogg_jens_sig.jpg

    Væri sátt við haldbærari rök (ef þau eru til). Þetta er ekki í fyrsta sinn sem maður heyrir: “Þessi hlýtur að vera [jafnaðarmaður eða sjálfstæðismaður] af útlitinu að dæma”. Hef aldrei náð almennilega hvernig er hægt að alhæfa um það;)

    (úps, Einar ekki vera leiður, held að útlitið segi ekki allt um hvar maður stendur í pólítík;) Hvað þá klæðaburðurinn).

    Íris Björk.

  8. Íris Björk
    # - þann 21 Apr 2007 klukkan 21:24

    Hérna er seinni linkurinn:) Sá að hann virkaði ekki

    http://kjordaemi.samfylkingin.is/media/files/Jens%20Sigurdsson%20SV10x15.jpg

  9. Einar Örn
    # - þann 21 Apr 2007 klukkan 21:58

    Jámmm, þetta eru athyglisverðar pælingar. Það er hins vegar hálf skrýtið að geta flakkað á milli stjórnmálaflokka bara með því að skipta um peysu.

    Annars er hérna gömul umræða um muninn á hægri og vinstri sinnuðum stelpum.

    En ég er ekki leiður, Íris – finnst þetta fín umræða. :-)

  10. Íris Björk
    # - þann 21 Apr 2007 klukkan 22:20

    Takk fyrir þetta, athyglisvert!

    Heyrðu, sé það núna þegar þú ert í hettupeysu þá ertu klárlega vinstri maður (hóst).

    Núna þegar ég er heima, þá hlýt ég að vera mjög vinstri sinnuð, hettupeysu og gleraugu, en þegar ég er í vinnunni í svörtum buxum, skyrtu og með linsur hlýt ég að vera hægri sinnuð! Úfffff, síðan varð þetta flókið í morgun þegar ég fór í íþróttagalla og hlaupaskó þá vissi ég ekkert hvar ég stóð (eða hljóp) í pólitík!

    Er sammála, held það sé eitthvað dýpra þarna að baki. Finnst þetta athyglisverðar pælingar svona rétt fyrir kosningar! Hafa smá léttmeti með öllum hinu sem maður er að skoða;)

  11. Hjördís Yo
    # - þann 22 Apr 2007 klukkan 0:49

    Eeeeh já pælingarnar mínar voru náttúrulega voðalega vísindalegar og lá mikið að baki. Eða ekki… mér fannst þetta fyndið, og sýnist nú Einar sjá húmorinn í þessu :) Hann er því pottþétt jafnaðarmaður ;)

    p.s. tók formann sus vs. formann ungra jafnaðarmanna ef tengingin náðist ekki ;)

  12. Íris Björk
    # - þann 22 Apr 2007 klukkan 9:06

    jú, jú tengingin náðist;)

    Finnst þetta bara skemmtilegar pælingar, eins og þér, enda ekki í fyrsta sinn sem maður heyrir þær :biggrin:

  13. Einar Örn
    # - þann 22 Apr 2007 klukkan 15:17

    Jamm, þetta eru ljómandi skemmtilegar pælingar. Lýsi enn eftir þeim útlitseiginleikum, sem aðgreina hægri menn frá öðrum.

    Annars er ég kominn af miklum íhaldsmönnum og var íhaldsmaður alveg fram til 18 ára aldurs. Núna í dag er ég hins vegar hægrisinnaður jafnaðarmaður, svo að ég er sennilega skrýtin blanda útlitslega séð. Kannski að það hafi ruglað SUS-ara. :-)

  14. Elín
    # - þann 23 Apr 2007 klukkan 16:23

    sko þú lítur út eins og jafnaðarmaður dagsdaglega en þegar þú ferð í matarboð til familíunnar þá lítur þú út eins og gallharður SUS-ari :laugh:

RSS fyrir ummæli

Skrifa ummæli