Apr 21 2007

Serrano á MæSpeis

uppfærði klukkan 18:04 í flokkinn Netið

Hvað gerir piparsveinn í Reykjavík á föstudagskvöldi?

Jú, hann býr til MySpace síðu fyrir veitingastaðinn sinn. Sumir búa til MySpace síðu fyrir gæludýrin sín, en þar sem ég á engin gæludýr þá var Serrano besti kosturinn. Ég var til klukkan 2 í gærnótt að vinna í þessari merku síðu.

En annars þá er ekki neitt svakalegt markaðsplan á bakvið þessa MySpace síðu. Stefni ekki á að spam-a MySpace síður kúnna Serrano, heldur mun ég aðeins senda út tilkynningar ef eitthvað mjög spennandi er að breytast á Serrano. Og svo mun ég sennilega prófa að bjóða MySpace notendum uppá einhver voðalega flott tilboð einstaka sinnum.

En allavegana, núna getið þið allavegana orðið vinir uppáhaldsveitingastaðar míns!

5 ummæli hingað til

5 Ummæli við færsluna “Serrano á MæSpeis”

  1. Gaui
    # - þann 21 Apr 2007 klukkan 20:36

    Þetta MySpace rugl er orðið einum of. :confused:

  2. Einar Örn
    # - þann 21 Apr 2007 klukkan 21:59

    Hvaða hvaða. Þú hljómar einsog gamall kall.

  3. Gaui
    # - þann 23 Apr 2007 klukkan 5:05

    Ég ákvað að prófa þetta tískufyrirbæri og álpaðist til að skrá mig, og svei mér þá ef líf mitt hefur ekki gjörbreyst! :shock:

  4. Elín
    # - þann 23 Apr 2007 klukkan 16:21

    thanksssss :biggrin2: núna veit ég af hverju Pönnukakan hefur fengið þennan gríðarlega fjölda af heimsóknum á síðuna sína!! :tongue:

  5. Einar Örn
    # - þann 23 Apr 2007 klukkan 17:58

    Hehe, vonandi að það dugi til þess að hún hitti draumaprinsinn/prinsessuna. :-)

RSS fyrir ummæli

Skrifa ummæli