Skráarsafn fyrir September, 2007

Sep 30 2007

iPhone

skrifaði í flokkinn Tækni

Jæja, 9 mánaða bið er á enda, ég er kominn með iPhone.

Bróðir minn er útí USA og hann keypti símann handa mér og sendi hann heim með vini sínum fyrir helgi. Í stað þess að vera á einhverju djammrugli í gær þá eyddi ég kvöldinu í að aflæsa símann og fá hann til að virka.

Það tók mig kannski svona 2- 3 tíma að fá þetta til að virka, en núna virkar hann nánast alveg einsog hann myndir gera í USA, bara með kort frá Símanum.

Ég er búinn að lesa og skoða svo mikið um þennan síma að það er fátt sem kemur mér á óvart. En hann er algjörlega æðislegur, án efa lang, langskemmtilegasti sími sem ég hef átt. Kannski er helsta geðveikin sú að hann kostaði mig minna (25 þúsund) en flestir símar sem ég gæti fengið útí næstu búð hérna heima. Hann er til að mynda um 10 þúsundum ódýrari en u600 síminn frá Samsung, sem ég átti fyrir.

Fyrir Apple aðdáanda og Makka notanda einsog mig þá er þetta auðvitað bylting. Síminn sync-ar addressu bókina mína fullkomlega með myndum og öllu og það sama á við um dagatal og uppáhalds síður í Safari. Einnig er iPod-inn í símanum æði. Maður getur hlustað á tónlist á fullu, en svo þegar það kemur símtal þá lækkar tónlistin og maður getur svarað.

Það er eiginlega of margt gott við þennan síma til að lýsa því í stuttu máli. Ég hef allavegana ekki verið svona spenntur fyrir nýju tæki mjög lengi. :-)

15 ummæli hingað til

Sep 26 2007

Nammi

skrifaði í flokkinn Netið

Þetta er mikil snilld.

2 ummæli hingað til

Sep 25 2007

Okay, band meeting!

skrifaði í flokkinn Dagbók

Helgin mín var ljómandi skemmtileg. Ég fór á reunion með gamla Verzló árganginum mínum á laugardaginn, sem var mjög hressandi. Þetta var reyndar ekki árgangurinn, sem ég útskrifaðist með, heldur sá sem ég byrjaði með (ég útskrifaðist ári á eftir þar sem ég var útí Venezuela). Hitti fullt af fólki, sem ég hef varla hitt síðan ég hætti í Verzló. Svaraði svona 20 sinnum að ég væri single og í veitingarekstri.

Fór svo með tveimur vinum mínum í bæinn. Fyrst á Vegamót, sem var slappt, og svo á Ólíver. Sá staður hefur batnað umtalsvert síðan ég var þar síðast. Skemmtilegra fólk og umtalsvert betri tónlist heldur en áður. Kvöldið þar var mjög skemmtilegt.

Eitt fannst mér fyndið við dvölina á Ólíver. Ég eyddi mestöllum tímanum þar með 4 mjög myndarlegum stelpum. Það sem kom mér á óvart var hversu karlar yfir fertugt eru ótrúlega bjartsýnir. Það voru allnokkrir á þeim aldri, sem voru að reyna við þessar stelpur, sem eru jú um 20 árum yngri. Þeir virtust engar áhyggjur hafa af því hversu takmarkaða möguleika þeir áttu, heldur reyndu við þær af krafti. Ég er að velta því fyrir mér hvort að með aldrinum hætti maður að stressa sig á líkum á árangri og láti bara vaða og reyni við allar sætu stelpurnar, hvort sem maður eigi þá möguleika eður ei? Vonandi þarf ég ekki að komast til botns í því máli sjálfur.

* * *

Ég algjörlega elska Flight of the Conchords. Þessir þættir eru stórkostlegir. Umboðsmaður strákanna, Murray, er ásamt Ari Gold í Entourage, fyndnasti karakter í sjónvarpi í dag. Lögin sem þeir félagar syngja eru líka frábær, ekki síst þetta hér.

* * *

Annars hef ég eytt umtalsverðum tíma að undanförnu í að spila Bioshock á Xbox 360. Það gerist svona 2-3svar á ári að ég festist í einhverjum tölvuleik og það er að gerast núna. Gallinn við þennan leik er að ég get bara spilað hann í svona klukkutíma því þá fæ ég í magann. Þessi leikur fer alveg með mig. Ég sit sveittur með stanslausa gæsahúð og hef svo bara úthald í klukkutíma áður en ég gefst upp. Bölvaður aumingjaskapur.

* * *

Og að lokum smá Murray. Og þetta. Ó, ég elska Murray!

3 ummæli hingað til

Sep 21 2007

Klám

skrifaði í flokkinn Netið

Þetta er besta grein, sem ég hef lesið gegn klámi. Hún er skrifuð af Naomi Wolf fyrir fjórum árum, en ég hafði ekki séð hana fyrr en í þessari viku: The Porn Myth

Ég mæli með því að allir lesi greinina, en megininntakið er að í stað þess að klám geri karlmenn að kynóðum nauðgurum (einsog furðu margir halda fram), þá telur Wolf það vera líklegra að klám geri menn að daufyflum, sem falli ekki lengur fyrir “venjulegum” konum, sem að þeir telji ekki jafnast á við klámstjörnur í Los Angeles.

Í tengslum við klámráðstefnuna, sem var ekki haldin hér á landi, þá féllu ansi margir í þá fúlu gryfjur að gera ráðstefnugestum upp miklu verri sakir en þeir höfðu unnið sér fyrir. Þeir voru sakaðir um mansal og barnaklám, þrátt fyrir að engar sannanir væru fyrir slíku. Þetta fór í taugarnar á mér og ansi mörgum öðrum.

Það er nefnilega vel hægt að mæla gegn klámi án þess að reyna að sverta ímynd fólksins sem tengist bransanum enn frekar með dylgjum. Það hefði verið miklu fróðlegri umræða að ræða kosti og galla klámsins og klámvæðingarinnar, sem við sjáum á hverjum degi. Þessi grein hjá Wolf væri allavegana gott veganesti í þeirri umræðu.

3 ummæli hingað til

Sep 19 2007

Það besta sem…

skrifaði í flokkinn Dagbók

Mikið afskaplega er Viðrar vel til Loftárása æðislegt lag.

Ég var að koma úr matarboði hjá mömmu og pabba og þegar ég kom heim þá kveikti ég ekki á tölvunni (sem er vanalega mitt fyrsta verk við heimkomu), heldur setti bara Ágætis Byrjun með Sigur Rós á og byrjaði á einhverri svakalegustu tiltekt seinni tíma.

Fékk skyndilega þörf til að hreinsa í kringum mig. Losa mig við óþægilega hluti, slæmar minningar og annað sem hefur angrað mig. Stundum þarf ég bara að gera þetta, byrja uppá nýtt. Henti öllum rúmfötum, slatta af bókum, öllum tímaritunum mínum, gömlum bréfum og hellingi af öðru drasli.

Núna líður mér betur.

* * *

Ég held að ég hafi aldrei farið yfir niðurstöður uppboðsins, sem ég hélt síðasta desember hérna á síðunni.

Allavegana, um jólin söfnuðust 200.000 krónur í uppboðinu (eða nálægt því, ég námundaði upp). Auk þess þá bað ég fólk um að gefa til Oxfam í stað afmælisgjafa í síðasta afmæli og þannig söfnuðust 100.000 krónur. Þannig að samtals gaf ég fyrir hönd lesenda þessarar síðu og þeirra sem mættu í afmælið mitt (þessir hópar skarast væntanlega all mikið) 300.000 krónur til Oxfam. Þetta er kannski ekki milljarður, en þetta er allavegana mitt framlag.

* * *

Annars var fundurinn með umhverfisráðherra mjög góður og skemmtilegur. Það er einmitt fullt sem mig langar til að skrifa um pólitík og umhverfismál á þessari síðu, en einsog svo margt annað þá verður það að bíða.

* * *

Fór með vinkonu minni á Veðramót á mánudaginn.  Sú mynd er nokkuð góð.  Kannski ekki alveg 4 stjörnu mynd, en samt mjög góð.  Mér leið afskaplega skringilega allt kvöldið eftir myndina.

4 ummæli hingað til

Sep 18 2007

Fundur

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Mæli með þessum fundi, sem ég hef verið að skipuleggja:

Á miðvikudaginn kemur (19.september) verður opinn fundur á vegum Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík um umhverfismál. Umhverfisráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir, mun mæta og ræða við gesti um umhverfismál. Sérstaklega verður tekið á umhverfismálum, sem hafa ekki verið mikið í umræðunni á Íslandi, einsog bílaeign Íslendinga, útþensla höfuðborgarsvæðisins, endurvinnsla og það hvernig ríkið getur hvatt fyrirtæki og einstaklinga til að sinna umhverfisvernd betur.

Allt áhugafólk um umhverfisvernd er hvatt til að mæta.

Fundurinn verður í húsnæði Samfylkingarinnar á Hallveigarstíg og hefst stundvíslega kl. 18.00.

Semsagt, þetta verður fundur um umhverfismál, þar sem verður talað um önnur umhverfismál en stíflur.

Engin ummæli enn

Sep 16 2007

Franz Ferdinand, hvítvín, Cubs og Síam

skrifaði í flokkinn Dagbók

Þetta blogg er orðið með ólíkindum dapurt. Ég hef svo sem fáar hugmyndir til að bæta það.

Ég get nefnt fullt af hlutum sem mig langar til að skrifa um, einsog t.d. þá staðreynd að ég er oftar beðinn um pening í miðbæ Reykajvíkur þessa dagana heldur en ég var nokkurn tímann beðinn um í Chicago. Einnig að mér finnst að þessi flugvöllur eigi að fara strax og hversu mikið það fer í taugarnar á mér að sjá fólk, sem hefur ekki farið á djammið í mörg ár, tjá sig um næturlífið í Reykjavík einsog það stundi það um hverja helgi.

En ég er bara of latur til að skrifa eitthvað.


Þetta hefur þó verið góð helgi. Var í matarboði með vinum mínum á föstudagskvöldið. Þar var botnlaus uppspretta hvítvíns, enda gestgjafarnir snillingar, og því drakk ég kannski aðeins meira en meðal-skynsamur einstaklingur hefði gert, því ég var búinn að ákveða að vakna snemma daginn eftir. Sem ég og gerði.

Fór svo á Franz Ferdinand tónleikana á Organ með vini mínum í gær. Þetta var í fyrsta skipti sem ég fer á Organ, en síðast þegar ég vissi þá var á sama stað rekinn rónabar. En þetta er fínn staður fyrir svona tónleika. Franz Ferdinand voru verulega skemmtilegir og þetta voru mjög góðir tónleikar. Það var hressandi að sjá svona frábæra hljómsveit á svona rosalega litlum stað. Þáttaka manns verður auðvitað mun meiri þegar maður getur hoppað á fullu fimm metrum frá hljómsveitinni í stað þess að sitja uppí stúku.

Kíktum svo á Boston á eftir og enduðum kvöldið á dapri pizzu.


Annars hef ég verið svona rétt mátulega busy í vinnunni. Það er ótrúlega gaman að koma Síam í það ástand, sem ég vil sjá staðinn í. Skemmtileg tilbreyting frá Serrano þó það sé margt spennandi að gerast þar líka.

Cubs eru í efsta sæti í sinni deild í hafnaboltanum þegar það eru bara nokkrir leikir eftir.  Það er vissulega snilld.  Ætla einmitt að horfa á leik með þeim í dag.  Liverpool eru svo í öðru sæti í ensku deildinni.  Ástandið hefur svo sannarlega verið verra.  Nú þarf bara KR að halda sér uppi.

Annars er ég bara þokkalega hress, mér finnst ég vera að gera eitthvað af viti og er ánægður með það hvernig hlutirnir hafa þróast að undanförnu. Það verður kannski ósjálfrátt til þess að ég bloggi minna þar sem að þörfin fyrir að blogga virðist minnka eftir því sem skapið batnar. :-)

5 ummæli hingað til

Sep 11 2007

Like a Stone

skrifaði í flokkinn Tónlist

Það er alltaf gaman þegar að tónleikar opna fyrir manni nýja sýn á lög. Það gerðist á Chris Cornell tónleikunum með lagið Like a Stone, sem ég hef aldrei verið sérstaklega hrifinn af. En á tónleikunum var það frábært í órafmagnaðri útgáfu, svipaðri og sést hér.

3 ummæli hingað til

Sep 09 2007

Cornell

skrifaði í flokkinn Tónleikar

Tónleikarnir með Chris Cornell í gær voru góðir. Fyrir tónleikana hitti ég nokkra vini mína í kvöldmat, sem átti upphaflega að vera á Aski (sem var fullur), svo á Trocadero (sem var lokaður), svo á Ruby Tuesday, Red Chilli og Pizza Hut (sem voru allir fullir) og endaði svo á McDonald’s. Mjög hressandi.

Það var engin upphitun, sem mér fannst fínt því Cornell var full fær um að halda kvöldinu uppi. Hann tók mörg af sínum bestu lögum og það er með ólíkindum að hlusta á manninn á tónleikum, því það er vandfundinn sá söngvari, sem hefur jafn kraftmikla rödd og hann.

Hápunktur kvöldsins var hans besta lag, sem mér fannst fólkið taka furðu lítið undir. Mér finnst þó alltaf hálf skrýtið að sitja í stúku á svona rokktónleikum.

p.s. Veit einhver af hverju þetta blogg er vinsælasta bloggið á blogg gáttinni? Er ég að missa af einhverjum skemmtilegheitum, sem að allir aðrir sjá?

6 ummæli hingað til

Sep 07 2007

Cornell og D.A.N.C.E

skrifaði í flokkinn Tónlist

Á morgun er ég að fara á tónleika með Chris Cornell, sem var söngvari í einni af mínum uppáhaldssveitum, Soundgarden.  Mér þykir það hálf sorglegt að sólahring fyrir þá merku tónleika er ég með lag á heilanum, sem er sungið af barnakór.

Do the D.A.N.C.E! 

Ég held að þetta sé officially mest catchy lag ársins.  Og ekki er platan verri.

4 ummæli hingað til

Sep 06 2007

Serrano kaupir Síam

skrifaði í flokkinn Vinna

Jæja, þar sem að Blaðið fjallar um þessi viðskipti í dag, þá er sennilega kominn tími til að ég bloggi aðeins um það sem hefur (ásamt öðrum spennandi verkefnum) haldið mér uppteknum síðustu vikurnar.

Við á Serrano erum semsagt búnir að kaupa veitingastaðinn Síam í Hafnarfirði. Þetta er lítill veitingastaður, sem á sér langa sögu. Hann hefur frá upphafi verið rekin af hjónunum, Stefaníu Björnsdóttur og Manit Saifa (sjá mynd af okkur ásamt þeim hjónum við eigendaskiptin). Stefanía hefur séð um afgreiðsluna, en Tim, sem er frá Taílandi hefur frá upphafi séð um eldamennskuna. Staðurinn var fyrst rekinn af þeim hjónum í Síðumúla undir nafninu Bangkok, sem var fyrsti taílenski veitingastaðurinn á Norðurlöndum (stofnaður árið 1985). Síðan hefur staðurinn verið rekinn niðrí miðbæ og núna síðustu 5 árin undir nafninu Síam í Hafnarfirði.

Við Emil (meðeigandi minn á Serrano) höfum lengi verið hrifnir af Síam. Ég hef verið mikill aðdáandi taílensks matar síðustu árin og aðeins fjarlægðin í Hafnarfjörð hefur gert það að verkum að ég hef ekki borðað oftar á Síam. Ég trúi því þó að þrátt fyrir aðra virkilega góða taílenska staði (einsog t.d. Krua Thai, sem er afbragð) þá sé maturinn á Síam besti taílenski maturinn á Íslandi.

Við eigendaskiptin hætta Tim og Stefanía að vinna á staðnum og því höfum við lagt gríðarlega þunga áherslu á að viðhalda öllum vinnubrögðum Tims í eldhúsinu, enda viljum við halda áfram sama gæðastaðli á matnum og hefur verið. Því höfum við verið með nokkra kokka í læri hjá Tim undanfarnar vikur til þess að allar uppskriftir og ferlar haldi sér. Síam hefur í gegnum árin eignast gríðarlega tryggan aðdáendahóp, enda maturinn frábær, og ætlum við að tryggja að þessir tryggu kúnnar muni áfram fá sömu góðu þjónustu og sama frábæra matinn og áður.


Unfanfarnar vikur höfum við líka unnið að talsverðum breytingum á staðnum, sem munu koma í ljós smám saman. Við höfum breytt um logo (gamla logoið má sjá hér og það nýja hér (logo-ið er hannað af Vatíkaninu). Við munum líka á næstu vikum fjölga borðum í sal, lengja opnunartíma, bæta merkingar á húsi og gera fleiri hluti, sem munu bæta þjónustuna við kúnna staðarins. Einnig munum við bæta við réttum úr smiðju Tim, sem að hafa ekki verið á matseðli, auk þess að kynna staðinn betur.

Seinna í mánuðinum munum við svo lengja opnunartímann. Í dag er staðurinn aðeins opinn frá 18-21 á kvöldin, en afgreiðslutíminn verður lengdur til 11.30-21.30, enda teljum við að það sé mikil eftirspurn eftir góðum mat í hádeginu á þessum slóðum.

Allavegana, ég hvet alla sem að lesa þessa síðu til að prófa Síam. Staðurinn er í Dalshrauni 11 í Hafnarfirði, á móti Gaflinum – í sama húsi og líkamsræktarstöðin Hress.

15 ummæli hingað til

Sep 05 2007

Apple dót

skrifaði í flokkinn Tækni

Apple voru í dag að kynna nýja línu af iPod-um. Það hlýtur að vera merki um það hversu ánægður ég er með Apple vörurnar mínar í dag að ég hef getað horft á síðustu Apple kynningar án þess að fá í magann af spenningi fyrir því að panta mér strax nýtt dót. Þrátt fyrir að nýju vörurnar séu flottar, þá sé ég bara litla ástæðu til að uppfæra.

Í dag á ég tvo iPod-a.  Einn lítinn Nano, sem ég nota í ræktinni og svo 80gb iPod, sem ég nota í bílnum og á ferðalögum. Svo á ég ársgamla MacBook Pro og 3 ára gamla iMac. Ég veit að þetta hljómar fáránlega mikið, en fyrir barnlausan Apple aðdáanda þá er þetta ekki svo svakalegt og auk þess eru vörurnar flestar komnar til ára sinna. iPod-arnir eru 2 ára gamlir og iMacinn 3 ára. Þrátt fyrir að nýju vörurnar séu alveg lygilega flottar, þá er það merki um hversu mikið tækninni hefur farið fram að undanförnu að ég er sáttur við tækin mín í lengri tíma en áður tíðkaðist.

Það hefur til að mynda ekkert komið fram í fartölvum síðasta árið, sem gæti sannfært mig um að skipta um tölvu.

Allavegana, nýju iPod-arnir eru rosalega flottir, sérstaklega iPod Touch, sem er einsog iPhone án síma. Ég hugsa þó að ég bíði enn um sinn eftir því að iPhone komi til Evrópu. Ég sé einfaldlega ekki nein sérstök not fyrir iPod Touch. Ég nota iPod-a í ræktinni og í bílnum og Touch gagnast mér á hvorugum staðnum. Ég hugsa þó að ég uppfæri Nano-inn minn í nýjan 8gb Nano á næstunni. Ætli ég láti það ekki duga þangað til að ég geti keypt 3G 16gb iPhone einhvers staðar í Evrópu fyrir jólin. Þá verður sko tækjafíkn minni svalað, allavegana í nokkra mánuði.

5 ummæli hingað til

Sep 02 2007

Haust?

skrifaði í flokkinn Dagbók

Mér líður hálf skringilega núna.  Sumarið er einhvern veginn búið hérna á Íslandi.  Hérna er búin að vera rigning og haustveður.  Sem er fáránlegt, því alls staðar í Evrópu er enn sumar.  Þetta sumar á þessu landi er hálfgert djók.  Það byrjar eiginlega ekki fyrr en í júlí og svo byrja allir að tala um að það sé búið fyrstu vikuna í ágúst.

Ég hef ekki upplifað haust á Íslandi í sennilega ein 8-9 ár.  Þegar ég var í háskóla þá var ég alltaf farinn af Íslandi í kringum 10-15.september og þá upplifði ég sumarveður í Chicago nánast fram í október.  Síðustu ár hef ég svo alltaf farið til útlanda á haustin.  Fyrst Rússlands, svo Bandaríkjanna, svo Mið-Ameríku og núna síðast til Suð-Austur Asíu þar sem ég eyddi öllum september og október mánuði.

Þess vegna hefur mér alltaf tekist að framlengja sumarið mitt umtalsvert.  Þetta haustið mun það hins vegar ekki gerast, aðallega vegna þess að ég hef ekki treyst mér til að fara frá fyrirtækinu mínu akkúrat þessa stundina.  Þess vegna er ég að reyna að sætta mig við að sumarið sé búið.  Það er dálítið erfitt þar sem mér finnst einsog ég hafi ekki gert neina sumarhluti.  Ég var ekki ástfanginn, ég fór ekki í útilegu, ég lá ekki í grasinu á Austurvelli og ég borðaði nær aldrei úti.

Einhvern veginn er einsog þetta sumar hafi bara farið í vinnu.  Vissulega hefur hún skilað ýmsu, en samt þá skilur þetta eftir  einhverja tómatilfinningu hjá mér.

Í gær kláraðist ákveðið verkefni í vinnunni og því líður mér hálf skringilega í dag.  Ég var með vinum í bænum í gærkvöldi, en samt er engin þynnka í gangi.  En það var ákveðið spennufall í morgun og því er ég hálf skrýtinn í hausnum.  Mig langar út.  Ég er búinn að vera að hugsa um gömul ferðalög og velta í hausnum fyrir mér nýjum áfangastöðum.  Ég held að ég komist því miður ekki í neitt langt frí á þessu ári, en vonandi opnast þá möguleiki fyrir enn frekari ferðalögum á því næsta.

6 ummæli hingað til

Sep 01 2007

Síðan komin í lag!

skrifaði í flokkinn Netið

Jei jei jei, server mál virðast vera komin í lag og síðan mín er komin upp.

Fullt að gerast, en ég er á leiðinni á djammið.  Skál!

Ein ummæli hingað til