Apr 29 2009
Human landscapes from above – The Big Picture – Boston.com
Ótrúlegar myndir.
Apr 29 2009
Mörður, sem hefur haldið út frábæru bloggi að undanförnu, bloggar um VG og ESB.
Apr 28 2009
Krugman gagnrýnir laun bankastarfsmanna, sem hafa – ótrúlegt en satt – farið hækkandi á þessu ári í Bandaríkjunum.
Apr 27 2009
Ótrúlega gott lag í frábærri tónleikaútgáfu.
Apr 27 2009
Listi á Ask Metafilter yfir þau lögbrot, sem að Ferris Bueller og vinir hans frömdu daginn sem þau skrópuðu í skólanum. Sú bíómynd, sem ég hef oftast horft á. (via Kottke)
Apr 26 2009
Ég er gríðarlega ánægður með úrslit þessara kosninga.
Fyrir utan allt annað þá tapaði Sjálfstæðisflokkurinn klárlega á ESB afstöðu sinni. Ég þekki persónulega nokkra Sjálfstæðismenn, sem kusu Samfylkinguna núna nánast eingöngu vegna ESB.

Samfylkingin getur núna ekki annað en myndað ríkisstjórn, sem mun sækja um aðild. Annað er hreinlega ekki hægt. Annars munu kjósendur hennar aldrei fyrirgefa flokknum fyrir að hafa misst af þessu ótrúlega tækifæri. Þjóðin vill umsókn um aðild og hún sýndi það í kosningunum í gær.
Við ESB sinnar getum því ekki annað en verið glaðir í dag.
Apr 24 2009
Það er smá skrýtið að fylgjast með kosningabaráttunni heima á Íslandi úr fjarlægð. Þrátt fyrir að ég búi í öðru landi, þá finnst mér ég hafa verið virkur þáttakandi í þessari baráttu. Fjarlægðin við Ísland breytir því þó ekki að mér er mjög annt um úrslit þessara kosninga.
Margrét og ég kusum í sendiráðinu í Stokkhólmi í síðustu viku. Valið var á endanum ekki erfitt, þótt ég viðurkenni það fúslega að á þessu stutta kjörtímabili hef ég haft mínar efasemdir um minn flokk (sjá hérna færsluna sem ég skrifaði fyrir kosningarnar 2007).
Ég er jafnaðarmaður og því kýs ég Samfylkinguna. Ég tel að flokkurinn hafi gert mörg mistök og prófkjörin, sem voru haldin í síðasta mánuði voru ekki öll eftir mínu höfði. En ég tel hins vegar að á því liggi ekki nokkur vafi að Samfylkingin er besti kosturinn fyrir þessar kosningar.
Ég vona að eftir þessar kosningar verði áfram vinstri stjórn. Ég tel að Íslendingar hafi fengið nóg af hægri stjórnum undanfarinna 18 ára og að nú sé tími til þess kominn að við reynum að nálgast það stjórnkerfi, sem tíðkast á Norðurlöndunum og fjarlægjumst þá tilraun til Ameríku-væðingar sem að Sjálfstæðismenn hafa staðið fyrir síðan ég fermdist.
Ég tel margt gott vera við Vinstri-Græna og margt í þeirra flokkstarfi og áherslum, sem að Samfylkingin mætti taka sér til fyrirmyndar. En fyrir mér snúast þessar kosningar fyrst og fremst um eitt mál, Evrópusambandsaðild.
Vissulega eru fjölmörg önnur vandamál í íslensku samfélagi sem að Evrópusambandsaðild mun ekki laga. Til að leysa þau vandamál tel ég vinstri stjórn vera besta kostinn.
Þeir, sem vilja láta reyna á aðildarviðræður við ESB hafa í raun einungis einn kost í þessum kosningum og það er að kjósa Samfylkinguna. Við ESB sinnar þurfum á því að halda að Samfylkingin verði stærsti flokkurinn í þessum kosningum til þess að hann geti leitt ríkisstjórnarsamstarf, sem muni gera aðildarsamning að forgangsmáli. Semjum um aðild og leggjum svo samninginn í dóm kjósenda.
Við stöndum einfaldlega frammi fyrir því að okkar gjaldmiðill er nánast ónýtur. Þrátt fyrir gjaldeyrishöft og verðbætur þá veit samt enginn hvert raunverulegt verðmæti krónunnar er. Við greiðum gríðarlega háa vexti af öllum okkar lánum vegna þess að við erum með krónuna og gjaldeyrishöftin halda sennilega uppi óeðlilega háu gengi krónunnar akkúrat núna. Höftin halda uppi þeirri blekkingu að krónan geti áfram verið okkar gjaldmiðill.
Enginn annar flokkur hefur lagt fram trúverðuga stefnu um það hvernig við eigum að skipta um gjaldmiðil, nema Samfylkingin. Sjálfstæðisflokkurinn hefur fyrir löngu tapað trúverðugleika sínum í gjalmiðilsmálum, enda hafa þeir skipt um stefnu oft á þessu ári. Stefnan sem þeir tóku upp tveim vikum fyrir kosningar er með eindæmum vitlaus.
Það er alveg ljóst að eina leiðin til að koma okkur útúr fjötrum krónunnar, verðbætna, okurvaxta og ótrúlegra gengissveiflna er að sækja um aðild að ESB. Um leið og við sækjum um mun það senda skilaboð útí heim að okkur sé alvara og að við höfum raunhæfa leið til að ná okkur útúr þessum vandamálum. Einsog gamall Krataleiðtogi skrifaði:
Einmitt af því að það tekur tíma að semja um Evrópusambandið og að ávinna okkur rétt til að taka upp evru – einmitt þess vegna þurfum við að sækja um strax. Löng ferð byrjar á fyrsta skrefinu. Sá sem aldrei stígur fyrsta skrefið, fer aldrei í ferðalagið.
Fyrsta skrefið í átt að aðild í ESB er að veita Samfylkingunni stuðning í þessum kosningum. Ég hvet alla til að gera það.
Apr 24 2009
Hérna er seinni hlutinn af Daily Show í Stokkhólmi.
Apr 23 2009
Ég er búinn að hlusta á Borgarafundina, sem RÚV hefur haldið fyrir þessar kosningar. Tveir gallar eru á þessum þáttum.
En kannski er ég bara svona litaður af því að ég vil vinstri stjórn á næsta kjörtímabili og fátt mun breyta þeirri skoðun minni á þessum punkti.
Apr 23 2009
Árni Páll afgreiðir bjánalega evru-stefnu Íhaldsins, sem var kynnt viku fyrir kosningar. Skyldulesning.
Apr 22 2009
The Daily Show senda mann til Svíþjóðar til að sjá hverslags ömurleiki blasir við fólki í sósíalistaríkinu:
Stór hluti af þessu er tekið rétt fyrir utan þar sem við búum í Stokkhólmi. Skemmtilegt.
Apr 21 2009
100 bestu veitingastaðir heims samkvæmt Times. Ég hef komið á nákvæmlega NÚLL staði á þessum lista. Ég á nóg eftir. Tveir þeirra eru í Stokkhólmi, þannig að ég get vonandi byrjað á þeim einhvern tímann.
Apr 21 2009
Baldur er búinn að skrifa marga góða pistla um Sjálfstæðisflokkinn og bull hans um evruna.
Apr 19 2009
Þetta lítur út fyrir að vera nokkuð skemmtilegt
Apr 19 2009
Mjög fínn pistill um aðildarviðræður við ESB
Apr 18 2009
Aðalsteinn Leifsson talar hér á fundi um mögulega ESB aðild Íslendinga. Hann tekur sérstaklega fyrir þau umkvörtunarefni, sem að andstæðingar aðildar hafa haft.
Ég mæli með því að allir horfi á þetta 13 mínútna myndband. Það hefur að mínu mati enginn komið með sannfærandi rök fyrir því að fara ekki í aðildarviðræður við ESB í kjölfar þessara kosninga. Efnahagskerfi landsins er í vondum málum og gjaldmiðillinn er algjörlega ónýtur með verðtryggingu, sveiflur og gjaldeyrishöft. Eina leið okkar útúr þessum vandamálum er að semja við ESB um aðild.
Ég hvet alla til að horfa á þetta myndband með Aðalsteini, sem er lektor við Háskólann í Reykjavík. Þar tekur hann fyrir á rólegan og yfirvegaðan hátt flest álitamál, sem gætu komið upp við aðildarviðræður:
Það væri algjörlega fáránlegt að við þessar astæður myndum við ekki einu sinni láta á það reyna hvers lags samning við gætum fengið við Evrópusambandið. Slíkur samningur yrði svo auðvitað ávallt borinn undir þjóðina.
Þeir sem vilja að Ísland sæki um ESB hafa bara einn kost í næstu kosningum og það er að kjósa Samfylkinguna. Hún er eini flokkurinn, sem hefur það skýrt á sinni stefnuskrá að sótt skuli verða um aðild strax að loknum kosningum. Eina leiðin til þess að ESB aðild verði ekki tekin af dagskrá er sú að Samfylkingin fái góðan stuðning í þessum kosningum.
Íslendingar eiga það skilið að fá að kjósa um aðildarsamning við ESB einsog allar hinar Norðurlandaþjóðirnar hafa fengið að gera.
(já, og hérna er líka ágætis samantekt um ESB)
Apr 18 2009
Myndasyrpa um miðbæ Reykjavíkur í fínu veðri á hádegi á miðvikudegi. Sorglegt.
Apr 17 2009
Mjög löng en mögnuð grein um skuggahliðarnar á Dubai og þá sérstaklega hvernig vinnuafl frá fátækari löndum er misnotað.