Skráarsafn fyrir March, 2010

Mar 30 2010

Egyptalandsferð 2: Píramídarnir

skrifaði í flokkinn Dagbók,Ferðalög

Þá erum við Margrét komin að strönd Miðjarðarhafsins í Alexandríu. Þessari ótrúlega sögufrægu borg, sem hefur þó því miður ekkert að sýna fyrir frægustu staðina. Vitinn er löngu hruninn og bókasafnið löngu brunnið. En í stað þess er Alexandríu nokkuð falleg stórborg, sem er talsvert ólík Kaíró.

Hér í úthverfunum blöstu strax við falleg hús, sem eru ólík hinum endalausu rauðu múrsteins húsum, sem við sáum í Kaíró. Um leið og við vorum komin út fyrir miðbæ Kaíró blöstu við okkur alls staðar byggingar, þar sem að hæðir og burðarbitar voru steyptir en veggir hlaðnir úr rauðum múrsteinum. Þannig var þetta útum allt, þúsundir bygginga, sem voru nákvæmlega eins. Flestallar ókláraðar, annaðhvort alveg ókláraðar eða þá að efsta hæðin var ókláruð með vírum sem stóðu uppúr. Ég las einhvers staðar að það væri vegna skattamála, það er víst eitthvað ódýrara að klára ekki byggingarnar alveg. Slíkt veldur því að fyrir utan elsta hlutann í Kaíró er allt ókláraðar rauðar byggingar.

Þetta var nokkuð áberandi þegar við keyrðum á milli píramída í gær. Alveg einsog í Kambódíu var ekki laust við að manni finndist hálf sorglegt að sjá, í bland við stórkostlegar ævafornar byggingar, ömurlegar byggingar nútímans. En Kaíró hefur auðvitað þanist út svo stórkostlega síðustu ár og þangað flytur aðallega fátækt fólk, sem hefur ekki efni á öðru. Þannig að þróunin er kannski skiljanleg þó hún sé sorgleg.

* * *

Píramídarnir eru auðvitað aðalástæða fyrir því að flestir túristar koma til Egyptalands. Sól og píramídar. Gærdagurinn hjá okkur var ágætis blanda af því tvennu.

Píramídarnir í Giza eru á meðal um 100 píramída, sem að enn standa í Egyptalandi. Við leigðum okkur í gær leigubíl, sem keyrði okkur um þá helstu í nágrenni Kaíró. Fyrstur var “Step Pyramid“, sem var byggður fyrir faróann Djóser árið 2.630 fyrir Krist og er talinn vera elsta stóra steinbygging í heiminum. Píramídarnir í Gíza spruttu ekki upp fullskapaðir, heldur voru í Egyptalandi byggðir þónokkrir píramídar fyrir þann tíma. Smám saman tókst arkitektunum að fullkomna listina. Eftir það skoðuðum við leifar borgarinnar Memphis og þaðan fórum við að Rauða og skakka píramídunum. Sá skakki er skakkur vegna þess að arkitektarnir áttuðu sig þegar að verkið var hálfnað að þeir höfðu verið full bjartsýnir og þurftu því að minnka hallann á efsta hlutanum. Sá Rauði er svo þriðji stærsti píramídinn í Egyptalandi. Við fórum inní þann píramída, sem var nokkuð spennandi. Við klifruðum niður löng göng þangað til að við stóðum inní miðjum píramídanum í litlu plássi.

Allir þessir píramídar voru góð upphitun fyrir Píramídana í Gíza. Þeir eru auðvitað aðalmálið. Ég hafði heyrt alls konar hryllingssögur af því hvernig svæðið þar væri, en það var alls ekki jafn slæmt og ég hélt. Svæðið er þó smá einkennilegt því að ólíkt því sem ætla mætti af myndum, þá eru píramídarnir í raun inní miðri borg. Gíza borgin er komin alveg uppað píramídunum og það gerir upplifunina skrýtna. Svo er þar auðvitað fullt af sölumönnum og úlfaldaköppum, en þeir voru ekkert jafn ægilegir og okkur hafði verið sagt.

Píramídarnir eru auðvitað (það þarf varla að taka það fram) stórkostlegir.

Ég var ekki alveg viss hverju ég ætti að búast við. Ég hef jú séð flesta af hinum merkilegustu píramídum heims (Teotihuacan og Chichen Itza í Mexíkó og Tikal í Gvatemala). En þeir í Egyptalandi eiga þó klárlega vinninginn. Sérstaklega þegar að maður tekur það með í reikninginn að þeir voru gerðir sirka 2.300 fyrir Krist, sem er um 2.700 árum áður en að píramídar Maya-nna voru gerðir. 2.700 árum áður.

Á þessum 4.300 árum, sem að píramídarnir hafa staðið þarna í Giza hefur auðvitað barið á þeim. Þeir eru um 10 metrum lægri en þeir voru í upphafi (í kringum 150 metrar í dag) og efsta laginu af þeim hefur nánast öllu verið stolið (fyrir utan toppnum á minni píramídanum). Í fjarlægð virka þeir fullkomnir, en það er í raun enn magnaðara að sjá þá nálægt þegar að maður sér hversu mikið sést á þeim. Þetta eru stórkostlegar byggingar og sennilega fátt í heiminum, sem jafnast við þá upplifun að sjá þá í fyrsta skiptið. Fyrir framan þá situr svo Sfinxinn, sem er minni en allir halda að hann sé, en samt magnaður. Skeggið er jú á British Museum og nefið var dottið af fyrir 1.000 árum, en hann stendur samt fyrir sínu.

* * *

Eftir þennan píramída-túr þá eyddum við síðasta kvöldinu í Kaíró á Abu Simbel, frábærum egypskum veitingastað. Í morgun vaknaði Margrét þó með magapest og kölluðum við á lækni fyrir hana. Hún er auðvitað ekki alveg jafn vön ferðalögum og ég og maginn hennar virðist ekki samþykkja matinn alveg eins auðveldlega og minn magi. Við keyrðum þó samt hingað til Alexandríu þar sem við erum búin að koma okkur fyrir á hóteli við Corniche strandgötuna. Margrét er uppá herbergi og hún verður vonandi orðin nógu hress á morgun til þess að halda áfram fjörinu.

Skrifað í Alexandríu, Egyptalandi klukkan 20.18

4 ummæli hingað til

Mar 28 2010

Egyptalandsferð 1: Kaíró

skrifaði í flokkinn Dagbók,Ferðalög

Það eru ansi margir búnir að vara okkur við Kaíró. Við menguninni, umferðinni, öllu fólkinu, skítnum, hávaðanum og öllum köllunum, sem myndu klípa Margréti.

Eflaust er ég ansi mörgu vanur af ferðalögum, en eftir þessa tvo fyrstu daga þá finnst mér Kaíró alls ekki slæm. Í raun er ég mjög skotinn í þessari borg. Vissulega er skíturinn og mengunin mikil, en öll geðveikin er líka ótrúlega heillandi. Kaíró er 11.stærsta borg í heimi með um 18 milljón íbúa, þó að margir segji að hér búi mun fleiri. Hún er langstærsta borgin í Afríku (Lagos í Nígeríu er næst stærst með um helmingi færri íbúa) og hún er sögð vera ein sú versta í heimi þegar að kemur að mengun.

Ég hef lengi verið spenntur fyrir Kaíró. Að ég held alveg frá því þegar að ég sá Raiders of the Lost Ark þar sem að Sallah, vinur Indiana Jones, sýnir honum Kaíró. Þá var Kaíró sennilega meira heillandi en í dag. Í dag er hún á margan hátt lík þeim risaborgum sem ég hef farið til utan Evrópu og Ameríku – yfirfull af fólki og bílum. Bílarnir keyra um á bensíni með blýi í og því er mengunin slæm, auk þess sem umferðin er líka hálf geðveik og ekki ólíkt asískum stórborgum þá byrjar maður á því að labba yfir götu og vonast til að bílarnir stoppi í stað þess að bíða eftir því að gat myndist í umferðinni. Slíkt gerist aldrei.

En borgin er líka gríðarlega heillandi, full af ótrúlegu lífi. Við höfum verið boðin velkomin til Egyptalands sirka 150 sinnum síðan að við komum hingað, í lang, langflestum tilfellum af fólki sem hafði engan áhuga á að selja okkur neitt. Það er erfitt að verða ekki hrifinn af borg þegar að íbúarnir eru jafn gestrisnir.

* * *

Við komum hérna til Kaíró seint á föstudagsnótt eftir flug frá Stokkhólmi (via Amsterdam). Við höfðum skipulagt pick-up frá hótelinu því mér leiðist fátt meira en að díla við leiguílstjóra á flugvöllum í nýjum löndum.

Fyrstu tveim dögunum hérna höfum við eytt á labbi um borgina og í að skoða Egypska safnið.

Í gær eyddum við deginum á labbi um miðbæinn og yfir í íslamska hluta borgarinnar (borgin er jú öll íslömsk fyrir utan smá kristinn hluta en hverfið er samt ennþá kallað þetta). Þetta er ansi langt labb og við erum ekkert voðalega góð í að lesa götuskilti á arabísku, þannig að við villtumst nokkrum sinnum. Inná milli eru götuskilti á ensku líka en það er frekar tilviljanakennt og stundum er götuskiltum bara alveg sleppt. Á þessu labbi frá miðbænum yfir í íslamska hlutann sjást tveir ólíkir hlutar af Kaíró. Allt frá nútímalegum miðbænum yfir í eldgamlar byggingar í íslamska hlutanum. Þar er auðvitað frægust bygginga Al-Azhar moskan, sem í minni upplifun líður fyrir það að jafnast alls ekki á við Umayyad í Damaskus, en hún var byggð í kringum árið 1.000.

Íslamski hluti Kaíró er þó þekktastur fyrir Khan al-Khalili markaðinn, sem hefur verið aðalmarkaður Karíó búa í yfir 600 ár. Þarna er hægt að finna ótrúlegt magn af drasli, en þar er líka sjarmerandi að vera, sérstaklega þegar maður labbar í gegnum kryddhlutana með sterkum lyktum og sér að þetta er ekki bara túristamarkaður, heldur líka markaður þar sem að fólk gerir enn í dag sín innkaup. Við þurftum ekki að labba langt frá Hussein torgi til þess að vera bara meðal innfæddra.

Gærkvöldinu eyddum við svo á egypskum veitingastað þar sem við hlustuðum á fullkomlega óbærilega klassíska egypska tónlist þar sem að fjórir karlmenn með Fez húfur börðu á einhverjar trommur á meðan að gömul kona söng eitthvað lag, sem varla heyrðist útaf trommunum.

* * *

Hápunktur dagsins í dag var svo heimsókn á Egypska safnið. Á því safni er stórkostlegt samansafn af egypskum fornleifum. Það er jú sennilega fáar þjóðir, sem geta státað af jafn ótrúlegu safni af fornleifum og Egyptar. Vissulega er eitthvað af þessum fornleifum í dag á Metropolitan, British Museum eða öðrum evrópskum söfnum, en stærsti hlutinn er þó hér í Kaíró. Safnið er fyrir löngu búið að sprengja utanaf sér húsnæðið og það er í raun með ólíkindum að koma þarna inn og sjá sumum fornmununum nánast staflað uppá hvorn annan. Fornleifar sem í öllum öðrum löndum myndust teljast stórkostlegir eru lítið annað en uppfyllingarefni á Egypska safninu.

Safnið er þekktast fyrir Dauðagrímu Tutankhamun, stórkostlega 11 kílóa gullgrímu, sem fannst í Dali Kónganna. Sá fornleifafundur er einn sá merkasti í veraldarsögunni og góður hluti safnsins inniheldur muni úr þeim uppgreftri og þar frægasta grímu Tutankhamun.

Auk þessa er stórkostlegt safn af munum, sem hafa fundist um Egyptaland á safninu og þar er líka hægt að sjá múmíur kónga sem voru uppi fyrir 3-4.000 árum. Að standa fyrir framan hauskúpur fólks sem var uppi 2.000 árum fyrir Krist er ótrúlegt.

* * *

Auk Egypska safnsins höfum við í dag skoðað Kristna hluta Kaíró, þar sem við skoðuðum kirkjur Kopta. Þetta er svo skrifað á netkaffihúsi (undir bænakallslhljóðum frá moskunni hér við hliðiná) á eyjunni Gezira í Níl á þar sem við höfum labbað um Zamalek hverfið.

Á morgun ætlum við svo að skoða hið eina sem eftir stendur af hinum uppaflegu sjö undrum veraldar, Píramídann Mikla í Giza.

Skrifað í Kaíró, Egyptalandi klukkan 18.14

2 ummæli hingað til

Mar 26 2010

The war on baby girls: Gendercide | The Economist

skrifaði í flokkinn Tenglar

The war on baby girls: Gendercide | The Economist. – Economist fjalla um það hvernig fóstureyðingar á stúlkubörnum hafa valdið því að í sumum hlutum Indlands og Kína sé allt að 30% fleiri strákar en stelpur í sumum árgöngum – og þau vandamál sem því mun fylgja.

Engin ummæli enn

Mar 25 2010

Síðustu dagar + Egyptalandsferð

skrifaði í flokkinn Dagbók

Þessir síðustu dagar í Stokkhólmi hafa verið frábærir. Ásgeir og Hulda vinir okkar voru hérna í heimsókn um síðustu helgi, sem var frábært. Við borðuðum fáránlega góðan mat, bæði heimalagaðan og á Kungsholmen og Pet Sounds Bar; við fórum á djammið, skoðuðum Stokkhólm í vorveðri, horfðum á Liverpool og ég og Ásgeir spiluðum Fifa. Algjörlega frábær helgi.

Núna er ég á skrifstofunni að klára vinnumál áður en ég fer í páskafrí á morgun. Seinni partinn eigum við Margrét flug frá Stokkhólmi til Amsterdam og svo þaðan til Kaíró. Þar munum við lenda um miðja nótt.

Planið er að vera í Kaíró í fjóra daga, skoða píramídana og borgina. Fara svo í tvo daga til Alexandríu og þaðan til Sharm El-Sheikh þar sem við ætlum að fara uppá Sinai fjall, kafa og njóta lífsins í sólinni. Stokkhólmur er reyndar talsvert meira heillandi núna í sól og vorveðri en borgin var í kuldanum í janúar þegar við pöntuðum ferðina – en ég er samt sem áður að farast úr spennu. Ég hef ekki verið svona spenntur fyrir ferðalagi lengi, þessi vetur hefur verið svo kaldur hérna.

Allavegana, ég mun reyna að blogga eitthvað úr ferðinni einsog vanalega.

Engin ummæli enn

Mar 19 2010

On the Spot with Kim Jong-il – The Big Picture – Boston.com

skrifaði í flokkinn Tenglar

On the Spot with Kim Jong-il – The Big Picture – Boston.com.  – Kim Jong-il heimsækir verksmiðjur í Norður-Kóreu.  Frábær myndasería.

Ein ummæli hingað til

Mar 17 2010

Andrey Arshavin – New – official website

skrifaði í flokkinn Tenglar

Andrey Arshavin – Questions from readers. – Fótboltamaðurinn Arshavin, sem að allir Liverpool aðdáendur hata svarar hérna spurningum frá lesendum síðunnar sinnar um sársauka, ástina og fleira.  Stórkostlegt lesefni.

Ein ummæli hingað til

Mar 16 2010

Fótbolti

skrifaði í flokkinn Dagbók

Þessi vetur hefur verið afleitur fyrir mig sem Liverpool aðdáenda. Algjörlega og fullkomlega afleitur. Í gærkvöldi ákvað ég að sleppa Liverpool leik án þess að þurfa þess í annað skipti á leiktíðinni. Í fyrra skiptið sem að það gerðist þá unnu Liverpool Tottenham 2-0 og í gær skoruðu þeir fjögur mörk í 4-1 sigri á Portsmouth. Nú veit ég að gjörðir mínar hafa ekki bein áhrif á gengi liðsins, en maður verður samt pínu hræddur við að horfa á liðið næst.

Ég fór annars í fóbtolta í gær í fyrsta skiptið síðan sennilega í desember 2008. Það er næstum því eitt og hálft ár síðan (fyrir utan örstuttan fótbolta í steggjapartí um áramótin). Ég hef ekki verið í fótbolta síðan að ég flutti hingað út en heima var ég að spila alltaf tvisvar í viku. Það er magnað að taka sér svona langt frí frá þessari íþrótt, sem ég elska. Niðurstaðan frá því í gær var að þessi hvíld hefur ekki gert mér gott. Þrátt fyrir að ég sé í ágætis formi eftir Cross Fit æfingar, þá er hlaupa-spretts formið sem maður þarf fyrir fótbolta ekki svo gott. Og ég virðist líka vera svona sekúndu á eftir öllu, sem skýrist kannski að hluta af því að þetta var á gúmmígólfi, en ekki gervigrasi einsog ég var vanur heima.

Ég held allavegana að það sé ágætt að taka ekki aftur svona langa hvíld aftur frá fótbolta.

Engin ummæli enn

Mar 15 2010

Um uppþvottavélar

skrifaði í flokkinn Dagbók

Í dag sá ég á New York Times grein sem vakti athygli mína, enda hef ég yfirumsjón með uppþvottavélum og þvottavélum á okkar heimili. Einhvern veginn varð verkaskiptingin á heimilinu þannig að ég hef frá byrjun séð um að þvo föt. Þvottahúsið er niðri í kjallara og mér þykir ágætt að dunda mér við þvottinn þar, hlustandi á bækur eða útvarpsþætti.

Ég hef sennilega líka verið virkari í að nota uppþvottavélina. Ég man alltaf að það var fyrsta verk pabba á morgnana að taka úr uppþvottavélinni og ég er kominn inní það hlutverk á mínu heimili líka. Ég furðulega oft átt í umræðum við fólk um það hvernig maður á að undirbúa diska í uppþvottavél. Sumir vilja skola þá gríðarlega vel, þannig að þeir fari nánast hreinir í uppþvottavélina.

Ég hef hins vegar alltaf haldið því fram að diskar eigi að fara skítugir í vélina. Ég man að í Bandaríkjunum sá ég auglýsingu þar sem að kökudiskur með heilli köku á var settur í uppþvottavélina og eftir smá tíma kom kökudiskurinn hreinn út og kakan horfin. Ég held að aldrei hafi auglýsing haft jafn djúpstæð áhrif á mig.

Allavegana, í þessari grein í New York Times er nefnilega nokkuð sem staðfestir að ég hef rétt fyrir mér:

“Also, remove baked on food and large chunks, but for the most part, everyone I spoke to said prerinsing dishes before putting them in the dishwasher was not only unnecessary, it wasted thousands of gallons of water and could actually result in dirtier dishes.”

Semsagt, þeir sem að hreinsa diskana áður en þeir fara í uppþvottavélina eru að skemma umhverfið og fá skítugri diska. Ég lýsi hér með yfir fullnaðarsigri.

8 ummæli hingað til

Mar 10 2010

Ég á FerðaPressunni + topp 5 áfangastaðir

skrifaði í flokkinn Ferðalög

Þar sem ég er svo latur við að blogga þá er ekki úr vegi að vísa á þetta viðtal við mig á Ferðapressunni.

Þar var ég meðal annars beðinn um að velja topp 5 merkilegustu staðina sem ég hef heimsótt. Ég var í smá vandræðum með það val, en á endanum valdi ég þetta (ekki í neinni sérstakri röð)

Jerúsalem, Ísrael „Jerúsalem er stórkostleg borg og einn helgasti staður kristinna manna, gyðinga og múslíma. Hvort sem þú ert trúaður eða ekki, þá er ótrúleg upplifun að sjá allt þetta fólk og þá trúaratburði sem þarna fara fram. Borgin er afar lifandi og skemmtileg. Ekki síst vegna þess að hún er alvöru borg sem fólk býr í en ekki safn.“

Iguazu fossarnir, Argentína „Þetta eru ótrúlegustu fossar í heimi. Þeir eru gríðarlega stórir og hægt að fara að þeim bæði frá Brasilíu og Argentínu. Ég eyddi tveimur dögum í það að skoða þessa fossa en hefði hæglega getað verið þarna mun lengur.“

Machu Picchu, Perú „Ég og þrír vinir mínir úr Verzló fórum í sex mánaða ferðalag um S-Ameríku eftir stúdentinn. Meðal annars gengum við í þrjá daga eftir gamalli inkaslóð til þess að komast upp að Machu Picchu í Perú, hinni týndu borg Inkanna. Þetta var áður en maður þurfti að leigja sér leiðsögumann í ferðina og því löbbuðum við þetta einir, sem var ógleymanlegt. Það er ástæða fyrir því að Machu Picchu er vinsæll ferðamannastaður. Þetta er einfaldlega stórkostlegur staður og alls ekki ofmetinn.“

Angkor Wat, Kambódía „Angkor er samansafn af musterisleifum frá 12.öld. Á gríðarlega stóru svæði eru alls um 1.000 hof. Ég tók þrjá daga í það að fara um svæðið. Þarna er allt frá hinu stórfenglega Angkor Wat hofi, þar sem þúsundir túrista mæta daglega til þess að sjá sólarupprás, til lítið heimsóttra mustera þar sem maður getur labbað einn um og liðið eins og Indiana Jones.“

Grand Canyon, Bandaríkin „Það er dálítið erfitt að lýsa Grand Canyon. Allir hafa séð bíómyndir sem sýna eða lýsa þessu ótrúlega gljúfri. Það að standa í fyrsta skipti fyrir framan það er dálítið einsog að koma til New York í fyrsta skipti – maður kannast við allt eftir að hafa séð hlutina í ótal kvikmyndum en samt er upplifunin ógleymanleg.“

En allavegana, í viðtalinu tala ég líka almennt um ferðalög.

11 ummæli hingað til

Mar 06 2010

Græjur og hátalarar til sölu

skrifaði í flokkinn Tækni

Ég er að selja gömlu græjurnar mínar heima á Íslandi.

Þetta er eftirfarandi: Pioneer VSX-LX50 magnari – og Jamo A 402 HCS 12 hátalarakerfið með bassaboxi. Ætli það sé ekki bara best að fólk bjóði í þetta hérna í kommentakerfinu, ég leyfi þessu að vera til kl 10 á mánudagskvöld (íslenskum tíma) og sá sem hefur boðið hæst þá fær græjurnar (þær eru staðsettar í túnunum í Reykjavík). Ég hef ekkert lágmarksboð.

Þetta eru frábærar græjur, en þær hafa þó verið í geymslu síðustu árið – en ég veit ekki til annars en að þær virki alveg einsog þær eiga að gera.

12 ummæli hingað til

Mar 04 2010

Wall Street’s Bailout Hustle : Rolling Stone

skrifaði í flokkinn Tenglar

Wall Street’s Bailout Hustle : Rolling Stone. – Frábær grein frá Matt Taibi sem fjallar um það hvernig bankar í Bandaríkjunum hafa nýtt sér peninga frá ríkinu til að græða sjálfir enn meiri pening í stað þess að peningarnir hafi hjálpað hagkerfinu öllu.

Engin ummæli enn

Mar 03 2010

Viðtal við Roger Ebert

skrifaði í flokkinn Fjölmiðlar

Ég er lengi búinn að ætla að vísa á þetta viðtal við Roger Ebert, sem að birtist í Esquire.  Ebert er Chicago búi og sennilega þekktasti kvikmyndagagnrýnandi í heimi.  Fyrir nokkrum árum þurfti að fjarlægja kjálkann úr Ebert vegna krabbameins og síðan þá hefur hann hvorki getað borðað né talað.

Síðan þá hefur hann notað netið í sífellt meira mæli og er orðinn einn af vinsælustu Twitter notendunum – og sá sem ég hef einna mest gaman af að lesa.

Í vikunni var hann svo gestur hjá Opruh.  Gawker birtir nokkra búta úr því viðtali. Allavegana, ég mæli með Ebert á Twitter og greininni í Esquire.

Engin ummæli enn

Mar 02 2010

» Þróttmikill landbúnaður? – Stefán Benediktsson

skrifaði í flokkinn Tenglar

» Þróttmikill landbúnaður? – Stefán Benediktsson.  Stefán Ben fjallar um stöðuna í íslenskum landbúnaði.  Stuttur og mjög góður pistill.

Engin ummæli enn

Mar 01 2010

Fractions of a Second: An Olympic Musical – Interactive Graphic – NYTimes.com

skrifaði í flokkinn Tenglar

Fractions of a Second: An Olympic Musical – Interactive Graphic – NYTimes.com. – Á þessari mögnuðu New York Times síðu geturðu séð (eða heyrt) hversu lítið skilur á milli efstu manna í hinum ýmsu greinum á Ólympíuleikunum.  Mjög magnað.

Engin ummæli enn