Jan 25 2011
Feature: Allen Iverson: Fallen Star
Feature: Allen Iverson: Fallen Star – Philadelphia Magazine – phillymag.com. - Grein um Allen Iverson, sem spilar núna körfubolta í Istanbúl.
Jan 25 2011
Feature: Allen Iverson: Fallen Star – Philadelphia Magazine – phillymag.com. - Grein um Allen Iverson, sem spilar núna körfubolta í Istanbúl.
Jan 20 2011
The Tragedy of Nepal 2011 | Andrew Hyde. Andrew Hyde skrifar um ferðalag sitt til Nepal í janúar. Hann var alls ekki hrifinn. (Via)
Jan 19 2011
Ég hef lengi ætlað að skrifa smá um þau forrit, sem ég nota á iPhone símanum mínum.
iPhone er auðvitað stórkostlegasta tæki veraldarsögunnar. Ég gæti ekki lifað án þessa síma. Allavegana, ég ætlaði að taka saman þau forrit, sem ég er með á tveimur fremstu skjáunum mínum (eiginlega allt sem ég nota). Ég nenni ekki að finna til linka, en það ætti að vera auðvelt að google-a öll þessi forrit, eða að finna þau með leit í App Store.
Á fyrstu síðunni er slatti af Apple forritum sem allir, sem eiga iPhone, eiga. Þarna er auvitað sms forritið, klukka, myndavél, Google maps, reiknivél, dagatal og Apple remote, sem ég nota til að stjórna Apple TV og tölvunni minni heima.
(smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu).

Einnig eru þarna Skype, Facebook og Twitter, sem að allir ættu að þekkja. Skype forritið er snilld og ég nota það mikið. Facebook forritið er í lagi og Twitter forritið er mjög gott og ég nota það mikið. Ég hef prófað að nota önnur Twitter forrit, en enda alltaf í þessu.
OmniFocus er mikilvægasta forritið í mínu lífi. Allt, sem ég geri í vinnunni, byrjar sem færsla í OmniFocus. Forritið á iPhone er verulega gott. Það syncar við Mac forritið mitt og í þessu forriti skrifa ég (eða tala inn) allar hugmyndir, sem ég fæ.
Evernote nota ég til að halda utanum öll skjölin mín. Þar safna ég saman úrklippum, skönnuðum skjölum og minnispunktum. Syncar líka við Evernote á tölvunni minni.
Translator forritið tengist Google Translate og ég nota það til að þýða sænsk orð.
Podcaster er nokkuð nýtt þarna. Ég hlusta mikið á podcast þætti. Allt frá kvöldfréttum á RÚV til morgunfrétta hjá Svenska Radio og bandarískra þátta. Ég notaði áður Podcast fídusinn í iTunes, en var orðinn þreyttur á að þurfa alltaf að tengja símann við tölvuna til að fá nýja þætti. Podcaster tékkar á nýjum þáttum á ákveðnum tímum og hleður þeim niður á símann. Forritið er ekki fullkomið, en það er margfalt þægilegra en iTunes lausnin.
Reeder er svo langsamlega besta RSS forritið á iPhone. Ég hef prófað þau mörg, en Reeder ber af. Ég nota það til að fylgjast með öllum bloggum, sem ég les.
Á næstu síðu eru forrit, sem ég nota aðeins minna.

Instapaper er snilld – bæði á iPhone og iPad. Með því forriti getur maður vistað texta á vefsíðum og lesið þær eftir hentugleika á símanum eða iPad. Ég les nánast allar lengri greinar á netinu í Instapaper.
Tada notum við Margrét til að halda utanum innkaupalista fyrir matarinnkaup.
Svo eru þarna möppur með Serrano tenglum og tölvuleikjum. Af leikjunum get ég mælt með Astronut (sic), The Incident, Doodle Jump, Plants vs Zombies og Angry Birds. Það eru allt leikir, sem ég hef elskað.
1Password nota ég til að halda utanum öll mín lykilorð og viðkvæmar upplýsingar bæði á tölvunni minni og símanum.
ScoreCenter frá ESPN nota ég til að fylgjast með stöðunni í fótbolta og NBA.
Convert nota ég til að reikna út gengi, þyngdir og slíkt. Dropbox og Notes þarf svo sem ekki að kynna.
Gowalla nota ég af einhverjum furðulegum ástæðum. Ekki spyrja mig af hverju.
Yr.no er betra veðurforrit en Apple veður forritið. WOD nota ég til að skrá CrossFit árangurinn minn.
Screens er frábært VNC forrit, sem ég get notað til að stýra tölvunni minni úr símanum. Og að síðustu er það Momento, sem tekur twitter statusana mína, Facebook statusana mína, Gowalla tékk-inn og aðra punkta, sem ég set inn og býr til nokkurs konar dagbók. Mjög sniðugt.
Þetta er það sem ég nota langmest á símanum. Af forritum, sem ég nota minna þá get ég mælt með Runkeeper (ég er ekki að hlaupa úti núna, þannig að það er ekki á fremstu síðunum) sem er algjörlega frábært forrit til að halda utanum hlaup eða hjólaferðir).
Ef þið eruð með einhverjar sniðugar tillögur að öðrum forritum, sem ég á að kíkja á, þá endilega setjið inn komment
Jan 15 2011
Darryl Cunningham Investigates: Climate Change. – Teiknimyndasería um loftslagsbreytingar.
Jan 11 2011
Ég er aðeins að grúska í vefmálum fyrir Serrano og fór að spá í hvort við ættum að halda áfram að styðja við sérstaka farsíma útgáfu af heimasíðunni okkar. Þetta er nokkuð mikilvægt, sérstaklega hérna í Svíþjóð þar sem að stór hluti okkar kúnna kemur inná heimasíðuna okkar í gegnum síma.
Jan 10 2011
Daring Fireball: Bull’s-Eyes and Crosshairs. – John Gruber fjallar um skotárásina í Arizona.
Jan 09 2011
Þá er komið að því að við Margrét ætlum á langt ferðalag á ný. Ég tók mér nánast ekkert frí á síðasta ári. Tók að ég held 5 frídaga, en restin af ferðalögunum voru öll til Íslands þar sem ég vann allan tímann. Þannig að núna eigum við inni slatta af fríi og ætlum að byrja að nýta okkur það. Margrét er í utanskóla námi á þessari önn og getur því tekið sér frí.
Hugmyndin er sú að fara til Suður-Asíu. Grunn hugmyndin er að heimsækja flest/öll þessi lönd: Indland, Nepal, Bútan og Bangladess. Við höfum annaðhvort 6 vikur eða 8 vikur – það fer aðeins eftir því hvort okkur finnst við ná öllu á þeim tíma.
Við erum búin að skoða þetta talsvert, en ég hef mikinn áhuga á að lesa reynslusögur frá fólki, sem hefur farið til þessara landa og fá þeirra hugmyndir.
Okkar grunnhugmynd var svona: Byrja í Mumbai, færa okkur svo upp til Udaipur, Jaipur, Agra (Taj Mahal), svo uppí Norð-Vestur hlutann – Amritsar, Dharamsala og svo einhvern veginn koma okkur austur til Varanasi. Koma okkur svo upp til Nepal, þar sem við myndum skoða svæðið í kringum Kathmandu. Við höfum sennilega ekki tíma fyrir lengri gönguferðir í Nepal, þannig að við látum Annanpurna bíða til betri tíma (ég er vongóður um að við munum aftur fara þangað). Svo aftur inn til Indlands og þaðan í stutta ferð til Bútan (kannski 4-5 dagar – við þyrftum þó að fljúga þangað samkvæmt því sem ég hef lesið). Þaðan í gegnum Indland inní Bangladess, þar sem við myndum skoða Dhaka og Sundabans. Síðan var hugmyndin að fljúga annaðhvort frá Kalkútta eða Dhaka yfir til vesturstrandar Indlands og eyða einhverjum tíma í Goa og Kerala.
Eftir megni viljum við forðast stórborgir, nema þær sem hafa eitthvað spennandi uppá að bjóða.
Það eru nokkrar spurningar í þessu, sem við erum að velta fyrir okkur.
Jan 08 2011
Helgarlesning: Gott partý | Herðubreið. “Úti í Vatnsmýri hefur fólk verið að syngja karókí síðustu sólarhringa. Það virðist hafa verið hin bezta skemmtun og líklega er höfuðsynd að trufla hana. En það er alltaf einn leiðinlegur kall í hverju partýi.” - Góður pistill hjá Karli Th.