Skráarsafn fyrir June, 2011

Jun 28 2011

Darryl Cunningham Investigates: Evolution

skrifaði í flokkinn Tenglar

Darryl Cunningham Investigates: Evolution. – Teiknimyndasería um þróunarkenninguna.  Gottt fyrir keppendur í Miss USA, sem og alla aðra.

Engin ummæli enn

Jun 28 2011

Tristan da Cunha – afskekktasti staður í heimi (uppfært)

skrifaði í flokkinn Ferðalög

Þegar ég var með vini mína í heimsókn fyrir einhverjum dögum þá fórum við (eða aðallega ég) að ræða hver væri afskekktasti staður á jörðinni. Við erum jú frá Íslandi, sem flestum finnst afskaplega afskekkt – en það eru klárlega til umtalsvert einangraðari staðir. Ég fletti þessu upp á Wikipedia og þá fann ég eyjaklasann Tristan da Cunha. Þessar eyjur eru samt ekki afskekktustu eyjur í heiminum – sá heiður á Bouvet eyja (sjá á Google Maps), sem er norsk eyja suður af Suður-Afríku, sem er lítið annað en jökull.

Tristan de Cunha er þó afskekktasti byggði staður í heimi. Eyjaklasinn liggur á milli Suður-Afríku (2.816 frá Suður-Afríku) og Suður-Ameríku (3.360 frá Suður-Ameríku). Stærsta eyjan er um 100 ferkílómetrar og þarna búa 270 manns. Eyjurnar tilheyra Bretlandi. Allir á eyjunni eru bændur og einn helsti tekjustofninn er sala á frímerkjum. Flestallir íbúanna eru afkomendur breskra sjóliða, sem settust þarna að 1800 og eitthvað.

Allar myndir frá þessum eyjum minna ótrúlega mikið á Ísland. Höfuðstaðurinn, Edinburg of the Seven Seas líkist íslensku sveitaþorpi ansi mikið og flestar myndir af eyjunum á Flickr gætu þess vegna verið teknar á Íslandi eða á Færeyjum þótt þessar eyjur séu tugþúsundum kílómetra frá Íslandi.

Allavegana, fyrir landafræðinörd einsog mig, þá fannst mér magnað að lesa um þessar eyjur.

* * *

Uppfært 3. julí Ég fékk póst frá fólkinu sem setti inn myndirnar á Flickr, þar sem viðkomandi tók eftir mikilli traffík frá þessari vefsíðu. Viðkomandi sagði að þau hefðu ferðast á báti í heila viku frá Suður Georgíu og vegna erfiðs sjós gátu þau ekki komist á gúmmíbát í tvo heila daga að Tristan de Cunha eyjunni. Loks hafi einhverjir eyjaskeggjar komið og sótt þau útí bátinn og farið með þau á land. Hérna má sjá restina af myndunum úr ferð þeirra. Og fyrir áhugasama þá er hægt að kaupa ferðir til þessara eyja hérna.

2 ummæli hingað til

Jun 21 2011

Rajneeshees in Oregon: The Untold Story – OregonLive.com

skrifaði í flokkinn Tenglar

Rajneeshees in Oregon: The Untold Story – OregonLive.com. – Þetta er magnaður greinaflokkur um sértrúarsöfnuð, sem var starfandi í Oregon fyrir 25 árum.  Þetta er langur greinaflokkur en ég mæli með honum.  Sem smá kynningu er hægt að horfa á stutt myndband á síðunni sem ég vísa á til að vita um hvað málið snýst.  Ég hafði aldrei heyrt um þetta mál, en greinarnar eru mjög áhugaverðar.

2 ummæli hingað til

Jun 21 2011

Á að kenna þróunarkenninguna í skólum?!

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Í þessu magnaða myndbandi eru þáttakendur í Miss USA keppninni spurðar hvort það eigi að kenna þróunarkenninguna í skólum?

Það segir ansi mikið um Bandaríkin að yfir höfuð sé verið að spyrja þessarar spurningar.  En svörin eru engu skárri.  Flestir þáttakendur virðast telja að það eigi ekki að kenna þróunarkenninguna, sem er grunnurinn að því að fólk skilji hver við erum og hvernig lífríki á jörðinni virkar.  Þeir sem vilja yfir höfuð að hún sé kennd virðast aðallega vilja þess vegna þess að fólk eigi skilið að læra um allar hliðar málsins.

Semsagt, að þróunarkenningunni sé stillt upp jafnfætis þeirri kenningu að Guð hafi skapað jörðina á 7 dögum.

Við það að horfa á þetta þá er ekki laust við að maður missi trúna á mannkynið þegar að öflugasta land veraldar elur fólk upp á svona vitleysu.

(Via @olisindri)

5 ummæli hingað til

Jun 16 2011

Awesome people hanging out together

skrifaði í flokkinn Tenglar

Awesome people hanging out together – Myndir af frægu fólki saman við ýmis tilefni. Mun meira spennandi en það hljómar.

Engin ummæli enn

Jun 08 2011

What’s Alan Watching?: The Wire, Season 2

skrifaði í flokkinn Tenglar

What’s Alan Watching?: The Wire, Season 2 – Við Margrét kláruðum í gær að horfa á seríu númer 2 af The Wire.  Sería 1 var alls ekki létt.  Ég hef ábyggilega horft á fyrstu 3 þættina í þeirri seríu 3-4 sinnum, en ég gafst alltaf upp. En við ákváðum að horfa á alla seríuna og þættirnir urðu bara betri og betri.  Sería 2 er að mínu mati algjörlega frábær.  Við gátum ekki beðið eftir því að horfa á næsta þátt.  Þetta eru stórkostlegir þættir, sem allir ættu að horfa á.

9 ummæli hingað til

Jun 07 2011

CrossFit er frábært!

skrifaði í flokkinn Íþróttir

IMG 2157Þegar ég var um helgina í hundraðasta sinn að mæra CrossFit þá fattaði ég að ég hef ekkert skrifað um CrossFit á þetta blogg. Það er með hreinum ólíkindum, því fátt hefur breytt lífi mínu jafnmikið og CrossFit og það er fátt sem ég tala meira um eða lofa jafn mikið.

CrossFit er einfaldlega besta og skemmtilegasta líkamsrækt sem ég hef nokkurn tímann prófað.

Síðan ég hætti að æfa fótbolta og handbolta þegar ég var 19 ára þá hef ég verið nokkuð duglegur við að hreyfa mig. Ég get nánast fullyrt að á þessum árum hafi ég alltaf æft að minnsta kosti 3-5 sinnum í viku. Ég hef verið smá í fótbolta og svo hefur líkamsræktin mín oftast falist í því að fara í World Class eða svipaða staði, hlaupa smá og lyfta lóðum. Ég hef prófað mestallt slíkri líkamsrækt. Ég hef verið með frábæra einkaþjálfara, ég hef verið einn og ég hef prófað fjarþjálfun.

En allan tímann þá hef ég aldrei haft neina sérstaka ánægju af þessari líkamsrækt. Ég mætti jú, því ég hef viljað vera í góðu formi og lifa heilbrigðu lífi. En mér hefur aldrei fundist neitt sérstaklega skemmtilegt að mæta í World Class og sitja þar í einhverjum Hammer Strength tækjum og gera tvíhöfða- eða magaæfingar. Ég þurfti nánast alltaf að pína mig af stað í ræktina.

CrossFit hefur breytt því.

Ég prófaði CrossFit fyrst fyrir um einu og hálfu ári. Þá var bara einn staður í Stokkhólmi þar sem ég gat mætt í CrossFit tíma – í bardagaíþróttasal rétt hjá þar sem ég bý. En í maí á síðasta ári skipti ég yfir í CrossFit Nordic, sem er stöð þar sem bara er æft CrossFit. Stöðin er í eigu þriggja stráka, sem hafa kennt tímana. Stöðin er full, aðeins 190 manns komast þar að og þar er núna biðlisti. Þetta er frábær stöð og þarna æfir ótrúlega mikið af hressu fólki og þar á meðal nokkrir Íslendingar.

* * *

Fyrir þá sem aldrei hafa heyrt um CrossFit þá eru þetta hóptímar (hjá okkur eru um 12 manns í einu að æfa) þar sem teknar eru æfingar úr fimleikum, kraftlyftingum og annarri líkamsrækt og lögð áhersla á að æfa í stuttan tíma á gríðarlega háu tempói. Í okkar gym-i eru tímarnir byggðir þannig upp að fyrst er 15 mínútna upphitun, svo eru 20 mínútur þar sem farið er í gegnum tækni í ákveðnum æfingum og oft reynum við að slá okkar met í ýmsum lyftum. Og svo lýkur tímanum á WOD-i dagsins (workout of the day). Það er æfing, sem er oftast stutt (allt niður í 3-5 mínútur) en fer fram á gríðalega háu tempói. Fyrirfram veit fólk oftast ekki hvaða æfing er hvern dag og æfingarnar eru gríðarlega fjölbreyttar. Sem dæmi var æfing gærdagsins 21-15-9 af réttstöðulyftu og armbeygjum á haus og í síðasta tíma var blandað saman dýfum í hringjum og spretthlaupum. Mjög mikil áhersla er lögð á grunnæfingar í ólympískum lyftingum einsog réttstöðulyftu, hnébeygju, axlapressu og svo æfingar með líkamsþyngd, svo sem upphýfingar, armbeygjur og slíkt.

Þegar um er að ræða ólympískar lyftingar þá er alltaf gefin upp þyngd í æfingum dagsins, sem að fólk getur svo lækkað ef að það ræður ekki við hana. Þetta þýðir að nánast allir geta farið í gegnum CrossFit æfingar á góðum tíma – ef þú getur ekki tekið upphýfingu þá byrjarðu á að taka þær í gúmmíbandi þangað til að þú getur þær – armbeygjur á hnjánum, ketilbjöllur með léttum bjöllum og svo framvegis.

Það að allir gera æfingarnar á sama tíma og að fólk í ólíku formi getur verið að klára æfingarnar á sama tíma (með mismunandi þyngdum) veldur því að það er alltaf mikil keppni í CrossFit tímum. Þegar ég er að æfa þá ber ég mig oftast saman við svona 5 manna hóp af strákum, sem ég veit að eru í svipuð formi og ég (fólk skrifar tímana uppá töflu, þannig að maður getur borið sig saman við fólk sem er að æfa á öðrum tímum dags). Það heldur mér alltaf við efnið því mér er hroðalega illa við að vera með lélegri tíma en þeir. Þegar maður er einn í líkamsræktarsal þá er mjög auðvelt að láta sig liltu varða hvort maður sé að bæta sig – en í CrossFit er maður alltaf í keppni – annaðhvort við sjálfan sig eða aðra. Auk þess er til íslensk síða – WOD.is þar sem maður getur skráð tímana sína í svokölluðum benchmark æfingum. Það eru æfingar, sem allir gera eins með sömu þyngdir og því getur maður borið tímana sína saman við vini sína og líka þá allra bestu í heiminum.  Það eru líka ekki alltaf þeir sömu sem eru bestir í tímunum.  Það virkar kannski ekki sanngjarnt að ég sem er 75 kíló eigi að taka sama og maður sem er 95 kíló, en mjög oft þá geta þeir léttari bætt upp þyngdarmuninn með því að vera betri í æfingum með líkamsþyngd eða hlaupum.  Þeir sem eru bestir í CrossFit eru ekki bara sterkir, heldur í gríðarlega góðu alhliða formi.

Þrátt fyrir að sjálfar WOD-æfingarnar séu oft undir 10 mínútum, þá er maður samt sem áður fullkomlega uppgefinn eftir flestar æfingarnar. Ég er miklu uppgefnari eftir 10 mínútna CrossFit æfingu en ég var eftir 60-90 mínútna venjulega æfingu í ræktinni. Þetta sparar manni tíma og gerir hlutina skemmtilegri því þegar maður er í CrossFit þá er maður á fullu allan tímann, en eyðir ekki tímanum sitjandi í einhverjum tækjum á milli setta.

CrossFit byggir líka á því að þú eigir að vera góður í nánast öllu. Þú ert ekki bara að æfa tvíhöfðann eða ná brjálæðislegum brjóstkassa með endalausri bekkpressu, heldur áttu að vera sterkur í löppum og höndum og baki. Þú átt að geta tekið spretti og hoppað hátt og unnið lengi.

* * *

Allt þetta hefur líka gert það að verkum að ég hef náð árangri sem ég ég taldi ómögulegan. Ég hef bætt mig í öllum ólympísku lyftunum um tugi prósenta, en einnig eru ótrúlegustu hlutir orðnir léttir núna. Í Fran æfingunni, sem er 21-15-9 af thrusters og upphýfingum þá verða 21 upphýfing í einu nánast einsog þægileg hvíld því thrusters æfingin er svo miklu erfiðari. Í kringum mig í CrossFit salnum sé ég fólk sem mætir í hræðilegu formi og nokkrum vikum seinna er byrjað að taka upphýfingar án aðstoðar. Það eru allir að bæta sig, alltaf.

Í stuttu máli sagt er CrossFit skemmtilegasta og besta líkamsækrin sem ég hef kynnst. Ég get ekki sagt nógu margt gott um CrossFit. Ég æfi CrossFit 5-6 sinnum í viku og mig hlakkar til hverrar æfingar. Klukkan 7.30 er ég mættur útá lestarstöð til að taka lest í annan borgarhluta og mæta á CrossFit æfingu. Og aldrei dettur mér í hug að sleppa úr æfingu. Þetta er einfaldlega of skemmtilegt til þess.

Eflaust passar CrossFit ekki fyrir alla, en í okkar gym-i er elsti CrossFitarinn sennilega á milli 50-60 ára gamall og stelpur eru ábyggilega 40% af meðlimum. Sérstaklega myndi ég þó mæla með CrossFit fyrir stráka, sem hafa æft íþróttir og leiðist líkamsrækt þar sem hún býður ekki uppá sömu keppnina einsog keppnisíþróttirnar. Slíkir aðilar ættu að elska keppnis-hlutann í CrossFit. En ég held að CrossFit passi klárlega alveg jafn vel fyrir stelpur. Margrét unnusta mín æfir CrossFit 4-5 sinnum í viku og elskar það.

Á Íslandi eru nokkrar stöðvar, sem bjóða uppá CrossFit og fólk byrjar oftast á byrjendanámskeiðum þar sem betur er farið í tæknina. Ég hef æft af og til í CrossFit Reykjavík og það er mjög góð og skemmtileg stöð. Tímarnir eru byggðir upp öðruvísi þar en í minni stöð, svo að fólk getur borið saman stöðvar og fundið hvað hentar þeim best. CrossFit stöðvarnar eru flestar mjög minimalískar einsog sést kannski á myndinni af mér við þessa færslu. Í stöðinni okkar er bara gúmmígólf, stangir fyrir upphýfingar, 6 róðrarvélar, ketilbjöllur, sippubönd og lóð. Það er það eina sem þarf.

Íslendingar eru líka að ná gríðarlega góðum árangri í CrossFit. Um helgina fór fram Evrópu-undankeppnin í CrossFit games, sem er aðalkeppnin í CrossFit heiminum. Þar var íslensk stelpa, Annie Þórisdóttir, í fyrsta sæti (hún er hálfger goðsögn í þessum CrossFit heimi, enda er hún með ólíkindum góður íþróttamaður) og önnur íslensk stelpa komst líka áfram.  Einn Íslendingur komst svo inn í karlaflokki (af þremur, sem komust inn í allri Evrópu). Númi vinur minn lenti í sjötta sæti í Evrópu, en hann æfir einmitt í sama sal og við Margrét og hann er núverandi Svíþjóðarmeistari í CrossFit.   Íslenskt lið vann svo liðakeppnina.  Það er ekki slæmur árangur hjá Íslendingum í þessari nýju íþrótt.

4 ummæli hingað til

Jun 06 2011

WWDC eftir hálftíma

skrifaði í flokkinn Tækni

Keynote hjá Steve Jobs byrjar eftir hálftíma.  Raunhæfi óskalistinn minn lítur svona út:

  • Númer 1,2,3,4,5:  Flögg / Stjörnur í tölvupóstinum: Ég er að flippa yfir því að geta ekki flaggað skilaboð í póstinum á símanum mínum.  Ekkert fer meira í taugarnar á mér við símann minn.
  • Númer 6 Sameiginlegt svæði fyrir skjöl á milli iPhone iPad og Makka.  Ég vinn á tveimur Apple tölvum, iPhone og iPad.  Ég vildi að ég þyrfti ekki að hugsa hvar skrárnar mínur eru.
  • Númer 7: Að tilkynningar séu ekki svona viðbjóðslega pirrandi – hvort sem um er að ræða nýtt sms, nýja wi-fi stöð og svo framvegis.

Ég er vongóður um að allt þetta verði í iOS 5.

 

6 ummæli hingað til

Jun 01 2011

The People vs. Goldman Sachs | Rolling Stone Politics

skrifaði í flokkinn Tenglar

The People vs. Goldman Sachs | Rolling Stone Politics. – Matt Taibi skrifar um Goldman Sachs og hversu magnað það er að fyrirtækið hafi ekki verið ákært fyrir viðskipti sín í aðdraganda bankakreppunnar 2008.

Engin ummæli enn