« janúar 2002 | Main | mars 2002 »
Quarashi í Bandaríkjunum
Snillingarnir í Quarashi, sem er að mínu mati besta íslenska hljómsveitin virðast eitthvað vera að meika það hérna í Bandaríkjunum. Þeir eru að gefa út disk 15.apríl og svo eru þeir að fara á tónleikaferð með einhverjum fleiri hljómsveitum.
Ég sá svo að þeir eru inná vinsældalistanum hjá einni af mínum uppáhaldsútvarpsstöðvum, Q101 (sjá hér, endilega kjósið þá). Q101 er stærsta útvarpsstöðin í Chicago að ég held.
Þeir eru líka með myndband við Stick 'Em Up, sem er víst í spilun á MTV2 (ég er því miður bara með MTV). Myndbandið er flott.
Ég rakst líka á snilldar myndband, sem fjallar um þá fjóra. Þeir gera snilldarlegt grín af þeim ranghugmyndum, sem flestir hafa um Íslendinga. Alger snilld!
Ummæli (1) |
Flokkur:
Tónlist
Fyrirlitning á frjálshyggju
Af einhverjum ástæðum er síðan Nöldur á RSS listanmum mínum, þannig að ég rekst þangað inn öðru hverju.
Ég held að ég hafi sjaldan lesið annan eins pistil og þann, sem Ragnar Torfi setur inn í dag.
Fyrirlitning þessa manns á öllu, sem tengist frjálshyggju er mögnuð. Hann legst niður á ótrúlega lágt plan með því að kalla þá, sem eru honum ósammála í stjórnmálum, öllum illum nöfnum, einsog: "Frjálshyggjuasnarnir, fæðingarhálfviti, Frjálshyggjufíflin, frjálshyggjuskrúðhænsni, frjálshyggjupáfuglar, frjálshyggjurugludallar, Frjálshyggjuaularnir, einfaldir, fáfróðir og vanhugsandi, heimska, frjálshyggjulúða og frjálshyggjufávita." Svona pistlar eru náttúrulega ómarktækir.
Einnig segir Ragnar, sem býr víst í Banradíkjunum að menning í þessu landi sé: "að öllu leyti sú allra ömurlegasta lágmenning sem hægt er að ímynda sér". Ég flokka þetta undir marklaust Evrópublaður um Bandaríkin. Það að halda því fram að engin menning sé í Bandaríkjunum er fásinna.
Ummæli (0) |
Flokkur:
Stjórnmál
Hagfræði óskalisti
Þessi óskalisti á Amazon.com er alveg magnaður. Hann tilheyrir þessum manni.
Hvernig einhver getur haft svona svakalega mikinn áhuga á hagfræðikennslubókum er ofar mínum skilningi. Bara það að honum langi til að lesa ÞRJÁR mismunandi kennslubækur um hagtölfræði (enska: econometrics) er alveg hreint stórkostlegt.
Í alvöru talað, þá dáist ég að slíkum áhuga.
Ummæli (0) |
Flokkur:
Hagfræði
Kólumbía og gamlir kommúnistar
Ástandið í Kólumbíu þessa dagana er afar athyglisvert. Loksins, eftir þriggja ára samningaviðræður við FARC ákvað Andres Pastrana forseti að ráðast á bækistöðvar skæruliðana.
Fyrir rétt rúmri viku höfðu leiðtogar FARC samið við ríkisstjórnina um vopnahlé en aðeins nokkrum tímum seinna höfðu þeir sprengt sprengjur í borgum og rænt flugvél með þingmanni.
FARC eru gömul og afskaplega ómerkileg samtök. Einu sinni fyrir langa löngu börðust þeir einsog Ché og fleiri fyrir marxískri byltingu í Kólumbíu en sá draumur er löngu dauður og eyða þeir því tímanum aðallega við að smygla eiturlyfjum og ræna fólki. Pastrana gerði allt, sem hann gat til að semja um frið og gaf FARC meira að segja land á stærð við Sviss, þar sem þeir gátu verið í friði. Þrátt fyrir allt þetta hafa þeir svikið öll loforð um vopnahlé.
Í dag flaug Pastrana inná yfirráðasvæði FARC, tók niður FARC fána á aðaltorginu og henti honum í ruslatunnuna. Mjög táknrænt.
Vonandi að þessir 20.000 gömlu kommúnistar geti ekki haldið þessari ágætu þjóð í gíslingu lengur.
Ummæli (1) |
Flokkur:
Stjórnmál
Líf síðustu daga
Það eru bara tvær vikur eftir af þessari önn, þannig að síðastu viku er búið að vera frekar mikið að gera. Ég er að vinna að BA ritgerðinni minni á fullu, og svo halda hagfræðikennararnir mínir mér við efnið með stanslausum verkefnum.
Allavegana, þá var síðasta helgi frekar viðburðalítil. Við Hildur fórum í partí á föstudeginum, sem var til styrktar Dance Marathon, sem er góðgerðarstarfsemi, sem Northwestern nemendur standa í einu sinni á ári. Þetta er reyndar þau góðgerðarsamtök, sem safna mestum pening af öllum samtökum tengdum háskólum í Bandaríkjunum. Allavegana, partíið var fínt, nóg af bjór, sem virtist aldrei ætla að klárast (og reyndar kláraðist ekki).
Ég var furðu daufur á laugardeginum, þannig að nánast gerðum við ekki neitt. Við fórum þó með vini mínum í bíó um kvöldið. Sáum In the Bedroom, sem mér fannst mjög góð. Nú vantar mér bara að sjá Gosford Park til að ég hafi séð allar myndirnar, sem eru tilnefndar til Óskarsverðlauna í ár.
Í vikunni gerðist nú ekki mikið. Jú, ég fór með Dan og Marie á körfuboltaleik, sáum Northwestern vinna Purdue. Þannig að draumurinn um "march madness" er ennþá lifandi í skólanum mínum. Þeir verða þó að vinna Illinois á morgun, þar sem ég verð á fremsta bekk, öskrandi einsog geðsjúklingur.
Ummæli (0) |
Flokkur:
Dagbók
Rose og Chicago
Sjáið bara hvað Jalen Rose er ánægður með að vera fluttur til alvöru borgar.
Hann bjó í Indiana, sem mér finnst vera asnalegt ríki.
Ég hef reyndar ekki komið til Indianapolis, en vinkona mín sagði mér að það væri asnaleg borg.
Svo er ég líka þreyttur á að lesa um Notre Dame, sem lifir á fornri frægð.
Svo fengum við líka vondan mat á Denny's í Indiana.
Þannig að Jalen Rose er bara heppinn að vera kominn til Chicago.
Svo týndi ég líka skónum mínum á einhverri brú í Indiana.
Ummæli (0) |
Flokkur:
Íþróttir
The Onion
Frábær fyrirsögn
Allavegana, í tíma í dag, þá benti einn vinur minn mér á þessa frétt úr nýjasta eintaki snilldarblaðsins The Onion.
Dog Keeps Iceland Awake All Night
REYKJAVIK, ICELAND— The nation of Iceland was tired and cranky Monday after being kept up all night by a howling dog. "People were complaining as far away as Seyhisfjórdhur," said President Ólafur Grimsson, brewing an extra pot of coffee. "The sound carries a long way up here." Grimsson said none of Iceland's 280,000 citizens were close enough to the dog—believed to have been stranded on an ice floe near Vestmannaeyjar—to throw a shoe at it.
Þú getur séð fréttina hér
Ummæli (0) |
Flokkur:
Netið
NBA og Chicago
Af einhverjum ástæðum byrjaði ég að halda með Chicago Bulls stuttu eftir að ég flutti hingað til Chicago.
Einu sinni héldu allir, sem ég þekki heima á Íslandi með Bulls, en ég efa að margir séu eftir í þeim aðdáendahópi. Ætli þeir styðji ekki flestir Lakers, eða segist vera hættir að fylgjast með körfubolta.
Allavegana, þá voru Bulls að standa í athyglsiverðum leikmannaskiptum við Indiana. Bulls fengu Jalen Rose og Travis Best en létu Indiana fá Brad Miller, Kevin Ollie, Ron Mercer (Yesss!) og þeirra besta leikmann, Ron Artest.
Aðal körfuboltasérfræðingar dagblaðanna hérna í Chicago eru mjög ósammála um skiptin.
Lacy Banks hjá Suntimes er óánægður.
Sam Smith hjá Tribune finnst þetta frábær skipti
Ég held að ég hallist frekar á þá skoðun að þetta verði góð skipti. Ég hef talsverða trú á Tyson Chandler og Eddie Curry og að þeir verði góðir leikmenn á næstu árum. Ég hef horft á einhverja 10-15 leiki með Bulls og ég held að eini leikmaðurinn, sem þeir kunni að sakna verði Artest.
Vonandi að þessi skipti verði upphafið að einhverju góðu.
Ummæli (0) |
Flokkur:
Íþróttir
Engin hagfræði!! Ég sé að
Ég sé að síðustu sjö færslur fjölluðu allar á einn eða annan hátt um hagfræði. Kristján Ágúst snillingur kvartaði einmitt yfir því að á þessari síðu væri of mikið tal um hagfræði, þannig að ég ætla að hvíla mig aðeins á þeirri umræðu.
Allavegana, þá er ég lítið búinn að segja hvað við Hildur höfum verið að gera hérna undanfarna daga. Ætli ég fari ekki bara tvær vikur aftur í tímann. Þá um helgina fórum við á laugardagskvöldið í partí heim til Kate vinkonu okkar en hún átti afmæli. Ég var reyndar frekar rólegur, þar sem ég ætlaði að vakna snemma morguninn eftir og horfa á enska boltann (sem reyndar tókst ekki alveg). Ég var þó það rólegur að ég fór áður en að löggan kom. Þetta var nokkuð skrautlegt partí og tókst Hildi m.a. að fá fullt af fólki á dansgólfið. Ég lenti svo í samræðum við gaur frá Mexíkó, sem sagðist vera besti vinur trommuleikarans í Molotov.
Á sunnudeginum var svo náttúrulega Super Bowl og fór ég heim til Dan vinar míns. Þar var fullt af fólki, sem flest voru frá Boston svæðinu. Það var því geðveikt gaman að horfa á leikinn. Við náttúrulega borðuðum fullt af pizzu, snakki og drukkum nóg af bjór. Fagnaðarlætin í enda leiksins voru auðvitað gríðarleg og er Dan vinur minn ekki ennþá búinn að ná sér eftir leikinn.
Ok, um síðustu helgi var líka fjör. Við fórum í partí til Desi og Katherine, en þau bjuggu á dorminu, sem ég bjó í fyrsta árið mitt hér. Þetta var dálítið skrítið partí, þar sem ég var að hitta fullt af fólki, sem ég hafði ekki hitt eftir að ég flutti útaf dorminu. En allavegana var þetta mjög gaman, bjórtunna og læti. Endaði svo með því að löggan kom og bað fólk um að lækka tónlistina. Það vill reyndar svo skemmtilega að þessi tvö skipti, sem löggan hefur komið eru þau fyrstu, sem ég hef upplifað eftir að ég flutti hingað. Ég veit ekki hvort það sé eitthvað sérstakt átak í gangi þessa dagana...
Ummæli (0) |
Flokkur:
Dagbók
Alþjóðavæðing, þriðji hluti
Ja hérna, Múrinn bara svaraði greininni minni. Þessu bjóst ég nú ekki við. Þeir hefðu þó mátt tengja á síðuna mína, því þá hefði ég ábyggilega fengið fullt af heimsóknum. Sjá greinar
- Alþjóðavæðing fyrir byrjendur eftir Stefán Pálsson
- Alþjóðavæðing fyrir lengra komna svar mitt við greininni á Múrnum
- Alþjóðavæðing fyrir spekinga svar Múrsins við grein minni, eftir Steinþór Heiðarsson
Steinþór svarar aðallega greininni minni með að halda því fram að alþjóðleg fyrirtæki hafi oft notið góðs af ISI stefnunni. Þetta er hárrétt hjá honum. Málið var að þessi fyrirtæki höfðu mörg sett upp starfsemi áður en ISI stefnan var stett á laggirnar. Þegar þessi verndarstefna var svo sett upp reyndu fyrirtæki náttúrulega að njóta góðs af þessari stefnu. Það er eðlilegt að fyrirtæki reyni að hámarka hagnað sinn.
Ég sé í raun ekki hverju það breytir að alþjóðleg fyrirtæki hafi notið góðs af þessari stefnu. Það, sem eftir stendur er að stefnan var röng og afleiðingar hennar voru slæmar. Þrátt fyrir að sum erlend fyrirtæki hafi hagnast á verndarstefnunni og hagfræðingar á vegum Sameinuðu Þjóðanna mælt með henni, þá er ekki hægt að horfa framhjá því að ríkisstjórnir viðkomandi landa komu á verndarstefnunni. Hagfræðingar, jafnvel þótt þeir séu bandarískir, hafa ekki alltaf rétt fyrir sér.
Það fríar hins vegar engan veginn ríkisstjórnir viðkomandi landa frá ábyrgð við stefnumörkun í efnahagsmálum. Því stend ég við það að þjóðirnar í Suður-Ameríku hafi af flestu leyti komið sér sjálf í vandræði. Jafnvel þótt þessi lönd hafi verið gríðarlega rík af náttúruauðlindum (t.d. olíu) þá tókst stjórnmálamönnum að klúðra flestu varðandi efnahagsmál. Þeir klúðruðu þessum efnahagsmálum án aðstoðar frá alþjóða gjaldeyrissjóðnum.
Steinþór nefnir fræga dæmið um brasilísku bleijurnar, sem Johnson&Johnson framleiddu. Hann segir réttilega frá því hvernig gæði brasilískra bleija voru mun lægri heldur en bleija í öðrum löndum. Þetta var fyrst og fremst vegna þess að brasilísku bleiju iðnaðurinn var verndaður af brasilísku ríkisstjórninni.
Þarna rekst Steinþór (kannski af tilviljun) á ein helstu rökin fyrir frjálsri samkeppni og sjálfri alþjóðavæðingunni. Málið var að undir ISI var markaðurinn fyrir Johnson&Johnson bleijur í Brasilíu verndaður. Johnson & Johnson hefði getað reynt að flytja út vörurnar og þar með notað framleiðsluaukninguna til að hagræða. Hins vegar hafði verndastefnan gert vörur Johnson & Johnson, sem og annarra fyrirtækja í Brasilíu, ósamkeppnisfærar. Árið 1990 var gerð könnun á 220 fyrirtækjum í Sao Paulo og sýndi hún að flest fyrirtækin voru allt að hundrað sinnum óhagkvæmari í framleiðsluferlinu en nauðsynlegt hefði verið til að geta keppt á heimsmarkaði (sjá The Silent Revolution eftir Duncan Greeen bls.14).
Þannig að ríkisverndin og ríkisstyrkirnir höfðu dregið algerlega úr samkeppnishæfni fyrirtækjanna. Þegar markaðir voru svo opnaðir voru fyrirtæki ófær um að keppa.
Hins vegar má deila um það hvort að alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hafi brugðist rétt við eftir skuldakreppuna 1982. Ólafur Bjarki vitnar einmitt í grein í The Economist, sem ég ætlaði að vitna í (hún heitir því viðeigandi nafni Blame Game)
The IMF is always in a dilemma in such crises. If it provides help to a country whose policies are insufficient, in the Fund's view, to stabilise the economy, it is failing its duty to member governments and, ultimately, the taxpayers around the world who underwrite its resources. But if it withholds support, it risks driving the economy into an even deeper slump, for which it will surely get the blame. The Fund is in a no-win situation.
Málið er að tæki IMF hafa ekki alltaf virkað. Ef þau hafa virkað þá hefur sjóðurinn verið gagnrýndur fyrir tímabundin slæm áhrif, sem umbæturnar hafa valdið. Staðreyndin er einfaldlega sú að ekki er hægt að ætlast til að sjóðurinn komi inn og umbreyti þjóðfélaginu til hins betra án allra fórna. Það hefur hins vegar sýnt sig að alþjóðavæðing er það kerfi, sem hefur reynst flestum þjóðum best. Þrátt fyrir það hafa vissar þjóðir í þróunarlöndunum átt erfitt með að aðlaga sig að nýrri heimsmynd og alþjóðavæðingunni.
Kannski er það réttmæt gagnrýni hjá ýmsum andstæðingar alþjóðavæðingar að IMF leggi alltaf til sömu lausnirnar. Hins vegar hafa þessar lausnir virkað vel fyrir vesturlönd og menn hafa ekki ennþá fundið aðrar lausnir, sem virka betur fyrir þróunarlöndin.
Öruggt er þó að lausin fyrir þessi lönd er alls ekki að loka sig af og hafna alþjóðavæðingunni.
Ummæli (0) |
Flokkur:
Hagfræði
& Stjórnmál
Alþjóðavæðing fyrir lengra komna
Stefán Pálsson skrifar í dag grein á Múrinn um alþjóðavæðingu.
Greinin er í raun ekki galin, þar sem hún í raun bara nefnir nokkrar tölur um það hvernig hagvöxtur hefur farið minnkandi í ýmsum fátækari löndum heimsins, svo sem Suður-Ameríku og gefur í leið í skyn að vandamálin séu alþjóðavæðingu að kenna.
Stefán talar um efnahagskerfi Suður-Ameríku frá 1960-1980. Á þeim tíma (og reyndar mun fyrr, alveg frá lokum Kreppunnar) var kerfið byggt uppá því, sem kallast "Import Substituted Industrialization" (ISI). Hugmyndin var sú að þessar þjóðir myndu byrja að framleiða flestar neysluvörur sjálfar. Með því yrðu þær ekki eins háðar öðrum þjóðum. Varð þessi hugmynd vinsæl vegna þess að margar þessar þjóðir höfðu horft fram á hrun í hagkerfunum þegar verð á einstökum vörum duttu niður. Þannig kom t.d. Brasilía mjög illa út úr því þegar verð á gúmmíi og kaffi duttu niður. Lausnin var að mati stuðningsmanna ISI að leggja tolla á innfluttar vörur og nota tollapeningana til að styrkja innlendan iðnað.
Hugmyndin við ISI kann að hafa virkað nokkuð góð í upphafi en hún virkaði einfaldlega ekki. Vandamálið var fyrst og fremst að þessar þjóðir urðu með ISI enn háðari erlendum þjóðum vegna þess að þær þurftu að kaupa vélar og tækni frá þróaðri þjóðum.
ISI lofaði í fyrstu góðu og nutu menn einsog Perón í Argentínu og Vargas í Brasilíu góðs af hagvextinum. Vandamálið var hins vegar að skuldir þjóðanna jukust jafnt og þétt. Gripu margir leiðtogar því til þessa ráðs að prenta peninga til að borga skuldir. Leiddi þetta til óðaverðbólgu í mörgum löndunum (verðbólga í Bólivíu varð eitt árið 22.000 prósent!).
Það, sem Stefán minnist ekkert á er af hverju þjóðir hættu að notast við þetta kerfi, sem hann gefur í skyn að sé svo gott. Ég ætla að rifja það upp fyrir honum. Árið 1982 gerðist það nefnilega að stjórnvöld í Mexíkó sögðu einfaldlega að þau hefðu ekki lengur efni á að borga skuldirnar sínar. Landið hafði viðhaldið hagvexti með stöðugum lántökum (mikið af olípeningunum frá OPEC ríkjunum voru lánaðir til ríkja í Suður-Ameríku). Kreppan, sem fylgdi í kjölfarið er oftast nefnd "debt crisis". Bankastofnanir fóru allt í einu að óttast um innistæður þróunarlanda og sáu menn nú að þessar skuldasafnanir gengju ekki endalaust.
Til að bjarga efnahagnum í Mexíkó kom alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og lagði fram stærsta lán í sögunni. Það var náttúrulega öllum augljóst að bankinn ætlaði ekki bara að lána Mexíkó peningana til að þeir gætu haldið aftur á sömu braut, heldur fylgdu láninu ýmis skilyrði, sem áttu að tryggja að skuldir landsins myndu minnka. Var þetta upphafið að mikilli frjálshyggjubylgju í Suður-Ameríku.
Ég skal vel viðurkenna að alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er alls ekki fullkominn, langt því frá. Til dæmis hefur sjóðnum misstekist að bjarga efnahag ríkja í Suður-Ameríku. Hins vegar má benda á það að sjóðurinn neyðir engar þjóðir til að þiggja peninga. Þjóðir koma til sjóðsins vegna þess að þær eru búnar að koma sér í vanda. Vandinn er langoftast heimatilbúinn.
Það er rangt að gefa það í skyn að lækkun hagvaxtar í Suður-Ameríku sé einhvern veginn afleiðing alþjóðavæðingar. Málið er miklu flóknara en svo. Það er hins vegar auðvelt fyrir marga andstæðinga alþjóðavæðingar að benda á dæmi Suður-Ameríku, einsog margra annara landa og halda því fram að vandamál þeirra landa séu alþjóðastofnunum að kenna. Í langflestum tilfellum skapa alþjóðastofnanir ekki vandann heldur þjóðirnar sjálfar. Þegar svo alþjóðastofnunum mistekst að bjarga þjóðum úr slæmum stöðum er stofnunum kennt um og allir verða vitlausir.
Ummæli (1) |
Flokkur:
Hagfræði
& Stjórnmál
Grænmeti á Múrnum
Bravóóóó!!! Góð grein á Múrnum. Lækkað vöruverð - á kostnað hverra?
Ummæli (0) |
Flokkur:
Hagfræði
& Stjórnmál
Próf arrgggghhhhhh!!!!
Ég var að klára hagfræðiprófin tvö og er þunglyndi mitt að ná sögulegu hámarki, þar sem mér gekki illa.
Allavegana, þá er bara næsta mál á dagskrá að laga sér bolla af vondu Folgers kaffi (allt Starbucks búið) og byrja að lesa stjórnmálafræði, Suður-Amerísk stjórnmál, takk fyrir.
Ummæli (0) |
Flokkur:
Skóli
Þreyta
Þegar ég er að læra á kvöldin tekst mér oft að sannfæra sjálfan mig að allt muni lagast ef ég fari bara að sofa. Ég er sannfærður um að ég verði helmingi duglegri þegar ég vakna daginn eftir.
Þetta er rugl.
Ummæli (0) |
Flokkur:
Skóli
Update!!!
Já, mér leiðist ennþá.
Ok, ég ætla að prófa að setja Ben Folds á og sjá hvort hann hjálpi mér ekki að peppa uppá hagfræðina.
Let me tell y'all what it's like
Being male, middle-class and white
It's a bitch, if you don't believe
Listen up to my new CD
(Sha-mon)
I got shit runnin' throught my brain
It's so intense that I can't explain
All alone in my white-boy pain
Shake your booty while the band complains
Rockin' the Suburbs
Ef þetta er ekki snilld, þá veit ég ekki hvað
Ummæli (0) |
Flokkur:
Skóli
Prófleiðindi
Það leiðinlegasta við að vera í skóla er að læra undir próf.
Bein afleiðing af því er að leiðinlegasti tími ársins er þegar próf standa yfir. Þessa vikuna er ég einmitt í þrem miðsvetrarprófum. Á morgun fer ég í tvö hagfræðipróf og á fimmtudag er það stjórnmálafræði.
Það er magnað hvað það getur verið leiðinlegt að læra undir próf. Ég fer alltaf að vorkenna sjálfum mér og bölva því að ég skuli ekki vera í léttari fögum.
Þessi færsla er leiðinleg af því að mér leiðist.
Ummæli (0) |
Flokkur:
Skóli
Kyn- og kjörþokki
Þetta er tekið af Pressunni, þar sem þeir lýsa mögulegum borgarfulltrúa:
Málefnin í fyrirrúmi!
Annars vaknaði ég klukkan 5 í morgun til að læra hagfræði. Hefði ég sleppt þessari tölvupásu hefði ég alveg eins getað vaknað klukkan korter yfir fimm.
Ummæli (0) |
Flokkur:
Stjórnmál
Bandaríkin og illska
Eftir að hafa lesið Múrinn undanfarna daga hef ég komist að þeirri niðurstöðu að Bandaríkin eru uppspretta alls ills í heiminum. Reagan hafði rangt fyrir sér. Bandaríkin eru í raun "The Evil Empire".
Ummæli (0) |
Flokkur:
Stjórnmál
Beautiful Mind, Super Bowl og Afghanistan
Gærkvöldið var fínt.
Ég og Hildur fórum ásamt Dan og Elizabeth vinum okkar út að borða á stað sem heitir Kabul House. Einsog nafnið gefur til kynna var þetta afganskur matur, en ekki hef ég séð marga veitingastaði með mat frá því merka landi. Þrátt fyrir að þjónustan hafi verið seinleg var maturinn athyglisverður. Reyndar mjög líkur þeim mat, sem við höfum borðað á veitingastöðum frá Mið-Austurlöndum.
Eftir mat fórum við svo í bíó og sáum Beautiful Mind. Ég ætla að skrifa aðeins meira um hana seinna, því mig langar að besservissa svolítið um hagfræðihlutann í þeirri mynd. Já, vel á minnst, við sáum Black Hawk Down um síðustu helgi, en sú mynd fjallar um misheppnaða árás bandaríkjahers þegar þeir blönduðu sér í borgarastríðið í Sómalíu. Allavegana sú mynd er frábær. Mjög blóðug en frábær.
Í kvöld erum við svo að fara í afmælispartí hér nálægt. Á morgun er það svo Super Bowl. Það skemmtilega við þennan Super Bowl er að mínir tveir bestu vinir eru frá Boston og verða þeir því ansi heitir á morgun, því New England eru að spila. Allavegana verður nóg af Budweiser og snakki og pizzum og öllu slíku tilheyrandi. Gaman gaman!!!
Ummæli (0) |
Flokkur:
Dagbók
Warning: readfile() [function.readfile]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2002/02/index.php on line 1108
Warning: readfile(http://www.eoe.is/hlid.dat) [function.readfile]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2002/02/index.php on line 1108
