« janúar 2003 | Main | mars 2003 »

Hagfræði og Írak

febrúar 27, 2003

Á Múrnum í dag er grein um Írak. Þar segir meðal annars:

Stríðið í Írak snýst nefnilega ekki um að Saddam Hussein sé vondur maður sem George Bush og Halldór Ásgrímsson segja að hafa drepið barnabörn sín (ætli Bush sé heimild Halldórs fyrir því?). Það snýst um að Bandaríkjastjórn vill fara í stríð við einhvern. Hún vill vígvæðingu til að mala gull fyrir hergagnaframleiðendur og önnur stórfyrirtæki sem komu henni til valda. Hún vill líka auka vinsældirnar heima fyrir og taka eins lítið tillit og unnt er til málfrelsis og mannréttinda.

Trúir greinarhöfundur því virkilega að Bandaríkin séu að fara útí stríð bara til að geta gefið hergagnaframleiðendum meira að gera?

Allavegana, samkvæmt þessum tilgátum Ármanns þá er það eina, sem Bandaríkjastjórn þarf, góður hagfræðingur.

Þessi hagfræðingur gæti í fyrsta lagi sagt Bush að það væri mun sniðugara að styrkja hergagnaframleiðendur beint. Það væri miklu hagkvæmara en að fara í stríð, því þá myndu sparast ótal vinnustundir, mannslíf, eldsneytiskostnaður og slíkt. Hergagnaframleiðendur væru alveg jafn vel settir en Bandaríkjastjórn myndi spara á öðrum sviðum.

Þessi sami hagfræðingur gæti svo frætt Bush að vinsældir hans væru alveg feykinógar til að halda honum í sessi eftir næstu kosningar. Hann gæti minnt hann á það að pabbi hans tapaði sínum kosningum ekki útaf stríði heldur útaf efnahagsmálum.

Þessi sami hagfræðingur gæti sagt Bush að það að fara útí stríð væri að öllum líkindum mjög þjóðhagslega óhagkvæmt (hann gæti svo líka fengið hann til að hætta við skattalækkanir handa þeim ríkustu). Ef að Bush myndi hlusta á hagfræðinginn myndi efnahagurinn vænkast og Bandaríkjamenn yrðu mun ánægðari með forsetann, því að langflestir kjósa eftir því hvernig efnahagsástandið er.

Já, heimurinn yrði betri ef að allir hlustuðu á hagfræðinga.

284 Orð | Ummæli (8) | Flokkur: Hagfræði & Stjórnmál

Morgunmatur

febrúar 25, 2003

Alls ekki missa af mikilvægustu máltíð dagsins!! (via Mefi)

64 grömm af fitu og 690 mg af kólestróli. Allt í einum handhægum pakka.

26 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Netið

Where did it all go wrong?

febrúar 24, 2003

Það er vissulega alveg hrikaleg hlutskipti að vera Liverpool aðdáandi þessa dagana. Þetta eru alveg ólýsanleg vandræði hjá þessu liði. Ég bara skil ekki hvernig þetta hefur allt gerst. Fyrir tæpum tveimur árum skrifaði ég þessa færslu.

Hvað hefur gerst? Hvað veldur því að ég hef ekki lengur trú á manninum, sem ég hélt að væri fremsti knattspyrnuþjálfari í heimi? Hvernig gerðist það að mér verður nánast óglatt þegar ég sé suma Liverpool leikmenn mæta til leiks?

Ég á ekki gott með að svara þessum spurningum. Ég veit bara að í gær byrjaði ég að horfa á Liverpool spila gegn Birmingham, liði í fallsæti. Og ég bjóst ekki við neinu. Ég hef misst alla trú á liðið mitt. Ég hélt að það myndi aldrei gerast.

Að mínu mati eiga bæði leikmenn og þjálfari að skipta á milli sín ábyrgðinni. Þrátt fyrir að Houllier hafi verið kveikjan að mestu gagnrýninni hjá mér þá verður því ekki mótmælt að sumir leikmenn hafa verið Liverpool liðinu algerlega til skammar. Sumir leikmenn, sem Houllier hefur keypt eða verndað ættu einfaldlega ekki að leika með Liverpool.

Þegar maður horfir á þá 11 leikmenn, sem Liverpool spilar með þá er svo sem ekkert stórkostlegt að. Þó eru veikleikar liðsins svo augljósir öllum, sem horfa á fótbolta.

Liðið hefur tvo frábæra markmenn. Miðverðirnir tveir eru frábærir saman og Hamann og Gerrard ættu að vera með bestu miðvallarpörum í enska boltanum. Riise hefur alla burði til að verða besti vinstri bakvörður í heimi. Frammi eru svo Owen og Baros afbragðsgóðir framherjar.

Hinir, sem spila fyrir liðið eru hins vegar liðinu til skammar. Jamie Carragher og Djimi Traore eru sennilega ágætis miðverðir en þeir geta hins vegar ekki nokkurn skapaðan hlut í bakvarðarstöðunum. Danny Murphy á oft ágæta daga en svo á milli koma dagar einsog gærdagurinn þar sem hann hreinlega gat ekki sent á samherja. Diouf og Cheyrou eru einfaldlega ekki nógu góðir fyrir Liverpool. Það má vel vera að ef þeir fái hálftíma til að dútla með boltann geti þeir gert eitthvað, en það mun bara ekki gerast.

Salif Diao, Igor Biscan og Vladimir Smicer eru alveg ómögulegir leikmenn. Smicer á góðan leik á þriggja mánaða fresti en hverfur þess á milli. Ef hann á tvö góða leiki í röð, þá meiðist hann og kennir svo meiðslunum um hversu erfitt hann á með að fóta sig í boltanum.

Emile Heskey

Og þá komum við að framherjunum. Og að Emile Heskey.

Ó vei mér, hvað ég hata Emile Heskey.

Ég get bara ekki mögulega séð hvað fær Gerard Houllier til að hafa Emile Heskey í þessu Liverpool liði. Maðurinn er gersamlega og fullkomlega gagnslaus framherji. Menn segja að hann sé svo sterkur, en samt vann hann engan skallabolta í gær. Og svo á hann að draga til sín svo marga varnarmenn. Bla bla bla. Henry dregur líka til sín varnarmenn en ólíkt Heskey þá getur hann líka skorað mörk, sem er gríðarlegur kostur fyrir framherja.

Það er gersamlega óþolandi hversu mikilli tryggð Houllier heldur við Emile Heskey. Í gær ákvað hann til dæmis að hvíla Michael Owen, einn af 10 bestu framherjum í heimi og hafa þess í stað Heskey í liðinu. AF HVERJU?? Ef einhver í þessum heimi getur nefnt mér eina góða ástæðu fyrir að hafa Emile Heskey í liðinu í staðinn fyrir Owen, þá má hann láta mig vita.

Ég held einfaldlega að Houllier hafi ekki það, sem til þarf til að koma þessu liði alla leið. Til þess þarf þjálfara, sem

  • er óhræddur við að selja gagnslausa menn einsog Smicer, Heskey, Biscan og fleiri
  • kaupir ekki bara varnarsinnaða miðjumenn
  • er heill heilsu
  • gerir sig ekki að fífli í hverju einasta blaðaviðtali
  • kennir ekki dómurum um þegar liðið leikur ömurlega einsog gerðist í gær
  • launar mönnum fyrir góða leiki en setur þá ekki á bekkinn (samanber Milan baros).
  • og mikilvægast af öllu, þorir að spila skemmtilegan sóknarbolta

Í dag talar Houllier um að hann hafi vitað að liðið myndi eiga slæman kafla. Hann lætur einsog þetta sé bara eitthvað smá vesen. Í guðanna bænum, liðið hefur unnið TVO af síðustu SEXTÁN leiki. Það er svo ömurlegur árangur að það er ekki fyndið. En Houllier segir

In your professional and personal life you can't always have happy moments

og

Maybe we are victims of our own success in that respect. It increased the great expectations of our fans, but I know the true fans understand what we are trying to do.

Ok, ég er sennilega ekki "true fan". Þetta er óþolandi að maðurinn skuli segja svona hluti. Einhvern tímann fyrr á þessu tímabili sagði hann að sönnu stuðningsmennirnir væru þeir, sem mættu á útileiki, en það eru um 1500 manns. FRÁBÆRT! Hvað heldur Houllier að hann gæti keypt marga varnarsinnaða miðjumenn ef að Liverpool hefði bara þessa 1500 stuðningsmenn, sem hann kallar "sanna stuðningsmenn". Það er nokkuð ljóst að hann hefði ekki geta hent 10 milljónum punda i kjötflykkið Emile Heskey ef að í þessum heimi væru ekki til milljónir af vitlausum Liverpool aðdáendum, einsog mér, sem horfa á hvern einasta leik í sjónvarpi, fylgjast með fréttum af liðinu daglega og eyða morðfé í að kaupa búninga liðsins.

Houllier er að reyna að gera lítið úr gagnrýnendum sínum. Ég hvet fólk til að reyna að segja þeim, sem þekkja mig, eða hafa búið með mér að ég sé ekki sannur stuðningsmaður. Það að ég skuli nenna að setjast niður og gagnrýna liðið sýnir það einfaldlega hversu annt mér er um þetta lið.

Það liggur við að mér sé sama hvort liðið vinni Manchester United á sunnudaginn. Auðvitað vil ég að Liverpool vinni en það breytir því samt ekki að þetta tímabil er það ömurlegasta, sem ég hef upplifað á minni ævi. Fyrir það á Houllier skilið að missa starf sitt.

955 Orð | Ummæli (3) | Flokkur: Íþróttir

Úfff, sunnudagur

febrúar 23, 2003

Mikið óskaplega geta sunnudagar verið erfiðir dagar. Á dögum sem þessum sakna ég alveg ofboðslega þess tíma þegar ég varð aldrei þunnur.

Fyrst þegar ég byrjaði að drekka áfengi drakk ég ávallt vodka. Ég mætti alltaf í partí með flösku af Stolla og Brazza. Drakk minn skammt, varð voða hress og vaknaði svo daginn eftir alveg eldhress. Varð aldrei þunnur, enginn hausverkur, engin magapína, ekki neitt.

Núna drekk ég hins vegar bjór. Helst bandarískan bjór, meira að segja helst Light bjór (btw, ekki með minna áfengi, heldur færri kalóríur). Núna verð ég hins vegar alltaf þunnur. Ég fæ alltaf hrikalegan hausverk, sem mér tekst aldrei að losa mig við. Í dag hef ég til að mynda tekið 6 Excedrin töflur, en ekkert virkar.

Reyndar minnkaði hausverkurinn eitthvað við það að ég fór í fótbolta. Þar var ég laminn (reyndar óvart) af fyrrverandi sjónvarpsstjóra Skjás Eins og því er ég nú með þetta flotta glóðarauga. Ég þó losnaði við hausverkinn í dágóða stund en núna er hann eiginlega kominn aftur. Vá, ég held að ég hafi ekki verið með glóðarauga síðan ég var 10 ára.

184 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Dagbók

Play some Skynyrd!

febrúar 21, 2003

Ó já, ég er kominn í helgarstuð og nenni ekki að skrifa um pólitík. Gæti skrifað um fótbolta en þeir pistlar breytast alltaf útí eitthvað skítkast útí Emile Heskey (sem er by the way, lélegasti framherji, sem hefur spilað fyrir Liverpool).

Þannig að ég ætla bara að gefa lesendum kost á að ná sér í frábært lag fyrir helgina. Þetta lag er með eðalrokksveitinni Lynyrd Skynyrd. Reyndar er þetta ekki mitt uppáhaldslag með hljómsveitinni, en þetta lag er svakalega gott: Tuesday's Gone (MP3 - 8.63MB). Frábært lag. Samt á maður auðvitað ekki að hlusta á Skynyrd nema að maður sé inná bar einhvers staðar í Suðurríkjum Bandaríkjanna.

108 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Tónlist

"Franskar" kartöflur

febrúar 19, 2003

Þetta er náttúrulega alger snilld.

Hamborgarastaður í Norður-Karólínu er hættur að selja "franskar kartöflur" vegna þess að Frakkar eru mótfallnir stríði við Írak. Í staðinn selur hann "Freedom Fries".

30 Orð | Ummæli (3) | Flokkur: Stjórnmál

Slys á næturklúbbi

febrúar 17, 2003

Mér brá mjög þegar ég heyrði þessa frétt í útvarpinu áðan. Þegar ég kom heim var náttúrulega það fyrsta sem ég gerði að skoða hvort þetta væri klúbbur, sem að vinir mínir sækja.

Svo reyndist ekki vera. Það dóu 21 í troðningi á næturklúbbi í Suðurhluta Chicago. Einhver dyravörður notaði mace til að brjóta upp slagsmál en þá greip um sig ótti á staðnum og fólk reyndi að komast út um dyr, sem voru læstar. Í troðningum létust svo 21. Þetta er náttúrulega alveg ótrúlegt að svona skuli geta gerst. Um 1500 til 2000 manns voru í klúbbnum.

98 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Dagbók

Hvar varst þú meðan Saddan drap þúsundir

febrúar 16, 2003

Mjög athyglisverð grein í uppáhaldsblaði margra vinstrimanna.

Þar skrifar Íraki, sem býr núna í London í tilefni mótmælanna í gær. Hann segir meðal annars:

I am so frustrated by the appalling views of most of the British people, media and politicians. I want to say to all these people who are against the possible war, that if you think by doing so you are serving the interests of Iraqi people or saving them, you are not. You are effectively saving Saddam. You are depriving the Iraqi people of probably their last real chance get rid of him and to get out of this dark era in their history.

My family and almost all Iraqi families will feel hurt and anger when Saddam's media shows on the TV, with great happiness, parts of Saturday's demonstration in London. But where were you when thousands of Iraqi people were killed by Saddam's forces at the end of the Gulf war to crush the uprising? Only now when the war is to reach Saddam has everybody become so concerned about the human life in Iraq.

Where were you while Saddam has been killing thousands of Iraqis since the early 70s? And where are you are now, given that every week he executes people through the "court of revolution", a summary secret court run by the secret security office. Most of its sentences are executions which Saddam himself signs.

234 Orð | Ummæli (15) | Flokkur: Stjórnmál

Kokkur á Serrano

febrúar 14, 2003

Úff hvað þetta er búinn að vera langur dagur. Kokkurinn á Serrano var veikur í dag og því þurfti ég að fylla í skarðið. Þar sem ég er svona 10 sinnum lengur að gera alla hluti en kokkurinn, þá varð þetta langur dagur. Svo var brjálað að gera á tímabili, þannig að ég er alveg uppgefinn í lok dags. Ég held að ég hafi eytt einhverjum tveimur tímum bara í að búa til Guacamole (en mikið djöfulli varð það gott hjá mér :-) . Einnig tókst mér að rústa matvinnsluvélinni okkar. Ég var að búa til sterku sósuna þegar allt í einu byrjaði að rjúka úr vélinni og svo drap hún á sér. Emil þurfti því að keyra niðríbæ til að kaupa nýja (og betri) vél.

Annars hef ég lítið skrifað um Serrano undanfarið. Þetta er farin að vera miklu meiri rútína. Staðurinn gengur mjög vel og erum við ótrúlega sátt við móttökurnar. Ég er nánast hættur í afgreiðslunni, enda var það alltaf ætlun okkar Emils að draga okkur útúr þeim störfum. Núna er ég að ég held búinn að kynnast öllum hliðum afgreiðslunnar og því læt ég starfsfólkinu eftir að sinna því í framtíðinni.

Ég held líka að bæði maturinn og afgreiðslan sé mun betri núna en hún var þegar við byrjuðum. Við erum búnir að gera ótrúlega margar smávægilegar breytingar á matnum og afgreiðslunni. Þegar við byrjuðum vissum við Emil náttúrulega ekkert um það hvernig á að reka veitingastað. Í dag erum við engir sérfræðingar en við erum allavegana mun klárari en við vorum í byrjun. Maturinn hefur breyst dálítið og er það aðallega að þakka vinum (og fyrrverandi kærustu :-) ), sem hafa verið dugleg við að koma með uppbyggilega gagnrýni á matinn. Ég held að í dag getum við verið stoltir af því, sem við bjóðum uppá.

By the way, þá setti ég upp á Serrano.is form til að fólk geti komið með kvartanir/uppástungur fyrir staðinn. Þannig að ef fólki finnst eitthvað að matnum, þjónustunni eða það vill stinga uppá nýjum réttum eða einhverju slíku, þá er það hægt að gera það á síðunni.

348 Orð | Ummæli (1) | Flokkur: Vinna

Blindskák

febrúar 13, 2003

Helgi Áss, fyrrum bekkjarfélagi minn úr Verzló, sló í gær Íslandsmetið í blindskák þegar hann tefldi við 11 manns.

Þetta er alveg hreint ótrúlega magnað. Ég man að í Verzló þá tefldi ég, ásamt tveimur öðrum strákum úr bekknum, blindskák við Helga inná Marmara. Ég er nú enginn skák sérfræðingur en tel mig vera skítsæmilegan. Ég hélt nú að ég myndi allavegana eiga séns, þar sem þetta var nú einu sinni blindskák og hann var að tefla við tvo í viðbót. En andskotinn sjálfur, Helgi mátaði okkur alla á einhverjum 10-15 mínútum.

Ég bara hreinlega get ekki skilið hvernig þetta er hægt.

102 Orð | Ummæli (5) | Flokkur: Íþróttir

Að hata tónlist

febrúar 12, 2003

Þessi stelpa er ekki mjög hrifin af Sigurrós.

Reyndar er hún ekkert voðalega hrifin af tónlist, því síðan hennar heitir: I hate music. Nokkuð skemmtileg síða. (via Metafilter)

31 Orð | Ummæli (1) | Flokkur: Tónlist

Flash spákúla

febrúar 11, 2003

Þetta er nokkuð magnað.

Ég var ekki alveg að fatta þetta, en trikkið er auðvitað auðvelt.

17 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Netið

Norður Kórea

febrúar 09, 2003

kimjongil.jpg60 Minutes þátturinn í kvöld var mjög áhugaverður. Í þættinum var umfjöllun um kommúnistaríkið Norður-Kóreu. Þar var meðal annars talað við þýskan lækni, Norbert Vollertsen, sem vann við mannúðarstörf í Norður-Kóreu í tvö ár.

Vollertsen vann við að hlúa að börnum, sem þjást vegna hungursneyðarinnar, sem hefur ríkt í landinu á meðan að Kim Jong Il er önnum kafinn við að búa til kjarnorkuvopn og ógna nágrönnum sínum og Bandaríkjamönnum.

Vollertsen líkir ástandinu í Norður-Kóreu við það, sem var í Þýskalandi í seinni heimsstyrjöldinni. Hvort sem það er rétt, þá er ljóst að KimJong Il er gríðarlegt illmenni.

Ég fann grein á vefnum um þennan Vollertsen. Þar segir meðal annars:

Bouncing across the countryside in a Jeep, Dr. Vollertsen encountered starving children who were nevertheless forced to engage in daily, two-hour songfests idolizing the "Dear Leader." He saw gangs of undernourished children working on a 10-lane highway project. He watched doctors perform an emergency appendectomy on a girl without anesthesia. He met adults who were desperately afraid, always under surveillance, dousing their depression with cheap alcohol. He found a staggering infant mortality rate and, among children who did survive, significant declines in height, weight, and IQ.

Einnig

"There is no medicine, no running water, no heating system, no food, no bandages-and this is the situation all over North Korea."

Everywhere, that is, except in the glittering capital city of Pyongyang, where Dr. Vollertsen found casinos, nightclubs, luxury hotels, gourmet foods, and diplomatic shops. "Very fashionable, and all for the ruling class-the military and party members," he recalls. Hospitals there are-no surprise-state of the art.

Í 60 Minutes þættinum voru einmitt sýndar myndir frá Pyongyang. Sú borg lítur bara ágætlega út, fyrir utan að þar virtist vanta alla alla umferð fólks og bíla. Þar er meðal annars Ryugyong hótelið, sem er víst hæsta hótel í heimi. Hótelið kostaði 750 milljónir dollara, en var samt aldrei klárað. Ég leyfi mér líka að efast um að "occupancy ratio" væri mjög hátt á þessu blessaða hóteli, þar sem nær engum útlendingum er hleypt inní landið. Ástæðan fyrir því að hótelið var aldrei klárað var fyrst og fremst peningaskortur en svo var vitlaus gerð af sementi notuð, þannig að undirstöður hótelsins eru óstyrkar.

Hótelið er kannski gott dæmi um forgangsröðun hjá illmenninu Kim Jong Il. Hann dýrkar bandarískar bíómyndir, Daffy Duck, flotta bíla og notar netið mikið. Landar hans hafa þó einungis aðgang að ríkissjónvarpsstöðum og um allt landið eru hátalarar, sem útvarpa reglulega áróðri um það hversu góður leiðtogi Kim Jong Il sé.

Til þess að sjá svo til þess að múgurinn mótmæli ekki þá hefur Kim Jong Il, í anda nasista og Stalín, komið upp fangabúðum um land allt, þar sem talið er að allt að 5% Norður-Kóreubúa búi. Í viðtalinu við Vollertsen segir meðal annars:

After leaving North Korea, he spent time along its borders learning from defectors-torture victims who live like hunted animals on the border between North Korea and China. They described a nightmare world where guards electrocute prisoners for fun and throw women into sewage pools for stealing food. He heard stories of children who vomit when they accidentally dig up fresh mass graves and babies who are strangled moments after birth on concrete floors.

He was told repeatedly of an island in the northeastern part of North Korea, in an area near Chongjin so highly restricted it does not appear on official maps, where prisoners are used as laboratory test material for anthrax and other bacteria, food poisoning, or medical experiments-how long they can stand freezing, or how long they can live underwater-"the cruelest experiments you can imagine," Dr. Vollertsen says.

Einnig:

The former bodyguard, Lee Young Kuk, said he watched the punishment of a political prison camp inmate accused of stealing salt. He was tied to a vehicle and dragged for 2 miles at high speeds and "became de-skinned." His body was tied to a stake "as an example," said Mr. Lee. He told reporters, "I have watched so many deaths in North Korea I almost lost the concept of human dignity."

"When I see the combination of brainwashing, starvation, concentration camps, of rape, of medical experiments and mass executions, all those horrible stories and the testimony of all those defectors, then I must say that Kim is an upgraded version of Hitler's Nazi Germany," Dr. Vollertsen declares. "He's committing genocide."

Það er nokkuð ljóst að það er erfitt að finna verri illmenni en Kim Jong Il.

743 Orð | Ummæli (10) | Flokkur: Stjórnmál

Sunnudagskvöld

febrúar 09, 2003

Vá hvað 24 er góður þáttur. Ég held að það hafi aldrei verið sjónvarpsþáttur, sem heldur mér svona ótrúlega spenntum nær allan tímann. Í endan á þættinum, sem var sýndur í kvöld var ég staðinn upp, því ég gat ekki setið af spenningi. Ég var alveg heillaður af fyrstu seríunni af 24 en hélt að seinni serían hlyti að valda mér vonbrigðum. Það hefur hins vegar ekki gerst.

Sunnudagskvöld eru einu kvöldin, þar sem ég sit límdur við skjáinn í langan tíma. Boomtown er mjög góður þáttur og svo líka 60 Minutes. Síðan hef ég haft mjög gaman af "20. öldinni". Mjög gaman að sjá öll þessi myndskeið. Svo fyllist ég alltaf gríðarlegu þjóðernistolti þegar afrek Íslendinga eru þulin upp, hvort sem það var verið að tala um sigrana í landhelgismálinu eða sýna þegar Ríkharður Daðason skoraði gegn Frökkum.

139 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Sjónvarp

Svar við spurningu dagsins

febrúar 07, 2003

Sverrir Jakobsson skrifar:

Stefna Norður-Kóreustjórnar í kjarnorkumálum þessa daga einkennist af taugveiklun og öfgafullum viðbrögðum. Það er ljóst að hún mun ekki leiða til neins góðs.

En af hverju stafar taugatrekkingurinn?

Og svar mitt... Af því að Norður-Kóreu er stjórnað af snarbiluðum kommúnískum einræðisherra, sem kýs að svelta þjóð sína meðan hann byggir sér hallir og eyðir peningunum í að vígbúast.

Takk fyrir og góða helgi.

67 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Stjórnmál

Houllier burt!

febrúar 05, 2003

Varúð, þessi grein er skrifuð af reiðum Liverpool aðdáenda og hún verður ábyggilega löng!

Aldrei hefði mig grunað að ég myndi skrifa þetta á þessa heimasíðu. En það er komið að því: Gerard Houllier þarf að hætta hjá Liverpool.

Þetta leiktímabil verður alltaf hræðilegra og hræðilegra. Eina, sem gæti mögulega toppað þetta væri ef Liverpool myndi tapa 5-0 fyrir Manchester United í Cardiff. Það að tapa 2-0 fyrir liði, sem er í 10. sæti í fyrstu deild eru úrslit, sem Liverpool aðdáendur mun aldrei sætta sig við. Aldrei nokkurn tímann.

Mér hefur í raun aldrei liðið svona gagnvart Liverpool. Í kvöld þegar ég byrjaði að horfa á leikinn þá var ég ekkert spenntur. Ég var vart búinn að hugsa um leikinn í allan dag. Svo byrjaði leikurinn og þá tók við þessi sama ömurlega spilamennska og hefur einkennt liðið í nær allan vetur. Einsog svo oft áður hafði maður ekki nokkra ástæðu til að gleðjast. Ekki yfir fallegu spili, ekki fallegum mörkum eða sendingum. Bara hreinræktuð leiðindi. Jafnvel þó Liverpool væru manni fleiri á heimavelli gegn fyrstu deildar liði tókst liðinu ekki að spila skemmtilega og spennandi knattspyrnu.

Hér eru ástæður fyrir því að Gerard Houllier ætti að sjá sóma sinn í að segja starfinu upp:

  • Hann er ófær um að láta liðið spila sóknarbolta. Eða þá að þetta lið, sem hann hefur sett saman, er ófært um að spila sóknarbolta í meira en 30 mínútur annan hvern leik. Það er leiðinlegt að horfa á Liverpool. Þegar að ég, sem dýrka og dái þetta lið, segi þetta, þá rétt get ég ímyndað mér hvað hlutlausum knattspyrnuáhorfendum finnst um spilamennsku liðsins.
  • Hann dýrkar Emile Heskey og Vladimir Smicer. Ég hef aldrei á ævinni haft aðrar eins tilfinningar til neins Liverpool leikmanns líkt og Emile Heskey. Á ævinni hef ég varið leikmenn einsog Björn Tore Kvarme, Neil Ruddock og Ronnie Rosenthal.

    Ég hins vegar hata Emile Heskey. Já, gersamlega hata hann. Hann er búinn að spila í nánast öllum leikjum Liverpool leikjum og er ekki búinn að geta rassgat. Svo skorar hann í tveim leikjum og þá segir Houllier að hann sé hættulegasti framherji á Englandi þegar hann er í toppformi!!!! Á HVAÐA PLÁNETU BÝR HOULLIER? Er hann að reyna að segja mér að Emile Heskey sé betri en Thierry Henry? Er maðurinn algerlega blindur? Heskey fær endalaus tækifæri í liðinu, sama hvað hann er lélegur. Ég man að þegar hann skoraði á móti Southampton þá fagnaði ég nærri ekkert, því ég vissi að þetta þýddi að Emile Heskey myndi verða í byrjunarliðinu næstu 10 leiki.

    Ég fyllist allur vonleysi þegar ég sé að Heskey byrjar leiki. Það er ósköp einföld staðreynd að leikur Liverpool breytist þegar hann er inná. Leikurinn snýst uppí að senda háar sendingar fram í þeirr von að Emile Heskey nái að vinna skallabolta. Þetta kallast leiðinlegur fótbolti en leikmenn Liverpool eru víst sérfræðingar í þeirri gerð knattspyrnu þessa dagana.

  • Houllier er gersamlega óþolandi í öllum viðtölum. Ég hef löngum haldið því fram að Alex Ferguson væri geðveikur en Houllier virðist að undanförnu hafa tekist að toppa hann.

    Núna í gær brjálaðist hann yfir því að Steven Gerrard hafi verið dæmdur í þriggja leikja bann. Hann hélt því fram að þetta væri eitthvað samsæri gegn Liverpool. Tæklingin, sem Gerrard fékk bannið fyrir, er einhver sú ljótasta, sem ég hef séð. Það að hann hafi bara fengið þriggja leikja bann er, að mínu mati, nokkuð vel sloppið

    Auk þess er Houllier alveg óþolandi montinn. Svo montinn að það er farið að fara verulega í taugarnar á mér. Þegar Emile Heskey skoraði loksins eftir þrjá mánuði sagði Houllier montinn í viðtali: "Ég sagði alltaf að Heskey myndi leika betur eftir jól". Þegar að Baros skoraði sín fyrstu mörk sagði Houllier: "Ég sagði hinum þjálfurunum hjá liðinu að hann væri góður, en þeir trúðu mér ekki þá".

    Hins vegar þegar Houllier gerir mistök (sem gerist æ oftar) þá er hann alveg ófær um að viðurkenna þau. Hann kennir alltaf einhverjum öðrum um. "Völlurinn var lélegur", "Dómarinn var lélegur", "Leikmennirnir eru svo þreyttir eftir HM". Og þetta rugl með að leikmenn séu þreyttir eftir HM er náttúrulega fáránlegt, því Liverpool átti færri menn á HM en til dæmis Man United og Arsenal.

  • Houllier hefur gert alltof mörg mistök í leikmannakaupum. Houllier byrjaði ótrúlega vel í leikmannakaupum. Fyrsta sumarið keypti hann Hyppia, Henchoz og Hamann, sem eru einhver bestu kaup í sögu enska boltans. Síðan þá hefur leiðin legið niður á við. Á eftir þessum leikmönnum hefur hann nánast ekki gert nein góð kaup nema Riise, Dudek og Baros.

    Hann hefur hins vegar keypt heila hrúgu af alveg gjörsamlega vonlausum leikmönnum: Smicer, Traore, Biscan, Heskey, Diomede, Xavier, Camara, Meijer, Song, Diomede (og einhvern frakka, sem spilaði aldrei leik) og fullt af mönnum, sem eru um það bil við að falla í flokk með vonlausum leikmönnum: Cheyrou (hefur ekki átt einn góðan leik með Liverpool), Diouf (sem ég bind reyndar enn vonir við) og fleiri.

  • Houllier GAF Jari Litmanen til Ajax. Langnefjaði öskurapinn Phil Thompson sagði þegar Liverpool tapaði 50 leikjum í röð frá nóvember-janúar að liðinu hefði vantað reyndan leikmann til að rífa það upp.

    Skemmtileg tilviljun, þar sem að síðasta sumar reyndi Houllier hvað hann gat til að losa Liverpool við akkúrat þann leikmann, Jari Litmanen. Hann er einhver allra flinkasti leikmaðurinn í evrópska boltanum og var auk þess harður Liverpool stuðningsmaður, sem hefði glaður setið á bekknum. En nei, Houllier varð hreinlega að losa sig við hann. Sennilega til að hafa efni á því að borga Igor Biscan hærri laun.

  • Houllier SELDI Nicolas Anelka OG Robbie Fowler en KEYPTI Emile Heskey og El-Hadji Diouf. Nicolas Anelka þorði að tjá skoðanir sínar og því var hann seldur. Houllier þarf nefnilega að sýna að hann ráði. Því geta bara leikmenn með nánast ekkert sjálfstraust og sem þora aldrei að tala gegn honum (einsog aumingja Heskey), að vera hjá liðinu. Nicolas Anelka er auðvitað búinn að blómstra hjá Manchester City á meðan að Emile Heskey getur ekki neitt hjá Liverpool.

  • Houllier er búinn að ákveða að Michael Owen og Emile Heskey séu besta framherjapar Liverpool og því ætlar hann bara að nota þá í hverjum einasta leik. Milan Baros skoraði eftir að hafa verið inná í 5 mínútur í síðasta leik. Hvað fær hann í staðinn? Jú, að sitja á bekknum í næsta leik. Hann fær svo að koma inná þegar 15 mínútur eru eftir og Emile Heskey og Michael Owen búnir að klúðra 18 dauðafærum.

    Það er svo augljóst að Milan Baros er heitasti framherjinn hjá Liverpool þessa dagana en þrátt fyrir það fær hann aldrei að spila tvo leiki í röð. Houllier heldur hins vegar tryggð við leikmenn einsog El-Hadji Diouf, Vladimir Smicer og Bruno Cheyrou, sem hafa ekki getað neitt, því hann er svo sannfærður um að kaup sín á þeim leikmönnum hafi verið rétt. Mér dettur ekki í hug að fara að gagnrýna Michael Owen, en hann hefur samt átt mjög slæma leiki undanfarið. Því hefði verið rétt að hvíla hann og leyfa honum að koma sterkum til leiks eftir nokkra daga.

  • Houllier taldi meirihluta tímabilsins að Djimi Traore væri betri vinstri bakvörður en John-Arne Riise. Engum í heiminum fyrir utan mömmu Traore og Gerard Houllier dettur í hug að halda þessu fram. John-Arne er einn af fáum leikmönnum Liverpool, sem stendur sig nánast alltaf vel. Í síðustu leikjum er búin að vera meiri ógn frá honum en Bruno Cheyrou, þrátt fyrir að Riise leiki fyrir aftan hann.

  • Houllier neitar að kaupa reynda leikmenn, sem hafa sannað sig í boltanum. Hann vill bara kaupa unga, ódýra og óreynda leikmenn, sem hann getur sjálfur mótað. Þetta leiðir til þess að hann er alltaf að byggja upp lið fyrir framtíðina. Houllier getur þá alltaf afsakað sig og sagt að liðið sé ennþá ungt. Fyrir þrem árum keypti Houllier reyndan leikmann, Gary McAllister, og hann reyndist besti leikmaður liðsins þegar það vann bikarana þrjá. Reynsla og leiðtogahæfileikar eru ómetanleg. Samt heldur Houllier áfram að kaupa einhverja óreynda Frakka til liðsins.

Og þá koma þrír mikilvægustu punktarnir:

  1. Liverpool liðið hefur ekki sýnt neinar framfarir síðustu tvö ár. Þegar liðið vann bikarana þrjá, þá var sterkasta liðið: Westerveld, Babbel, Carragher, Henchoz, Hyppia, Hamann, Gerrard, Murphy, McAllister, Heskey og Owen. Í dag þá er sterkasta liðið (að minnsta kosti að mati Houllier): Dudek, Carragher, Henchoz, Hyppia, Riise, Murphy, Smicer, Hamann, Gerrard, Heskey og Owen.

    Breytingarnar eru aðallega þær að Dudek er kominn í staðinn fyrir Westerveld (mikil framför), Carragher fyrir Babbel í hægri bakvörðinn (ólýsanlega mikil afturför), Riise fyrir Carragher í vinstri bakvörðinn (framför) og Smicer inn fyrir McAllister (svo mikil afturför að það er ekki einu sinni fyndið). Owen er ekki að leika eins vel og Heskey ekki heldur. Þrátt fyrir þetta hefur Houllier eytt einhverjum 30 milljónum punda í nýja leikmenn. Þessir leikmenn eru þó flestir varamenn í liðinu.

  2. Arsenal er langtum sterkara lið en Liverpool. Houllier er núna búinn að stjórna Liverpool liðinu í meira en fjögur ár og það er ljóst að getumunurinn á milli Arsenal og Liverpool hefur aldrei verið meiri. Og þetta á ekkert eftir að batna. Sama þótt Vladimir Smicer fari allíeinu að leika alltaf vel, þá verður hann aldrei jafn góður og Robert Pires.

    Þrátt fyrir að Danny Murphy leiki toppleik í hverri viku, þá verður hann aldrei jafn góður og Freddie Ljunberg. Þrátt fyrir að skipt væri um heila í Emile Heskey, þá yrði hann aldrei jafn klár knattspyrnumaður og Dennis Bergkamp. Houllier eyddi 10 milljónum í Emile Heskey, Arsene Wenger eyddi 12 milljónum í Thierry Henry. Houllier eyddi 7 milljónum í Igor Biscan, því sama og Wenger eyddi fyrir Robert Pires.

    Wenger keypti Gilberto Silva síðasta sumar fyrir jafnmikinn pening og Houllier eyddi í Bruno Cheyrou. Eina staðan, sem Houllier hefur betur er markmaðurinn, en Houllier keypti Dudek. Reyndar hafði Arsene Wenger viljað kaupa hann, en fékk ekki samþykki hjá stjórninni, þannig að Houllier á nú varla skilið mikið hrós. Á þessu og árangri liðanna undanfarin ár er augljóst að Arsene Wenger er mun betri þjálfari. Á meðan Wenger kaupir leikmenn, sem smám saman styrkja liðið, heldur Houllier áfram að kaupa nýja og ferska varamenn.

  3. Liverpool leikur leiðinlega knattspyrnu. Það er ekki gaman að horfa á Liverpool leiki lengur. Liðið leikur á útivelli gegn Crystal Palace í bikarnum og spilar varnarbolta allan leikinn. Leikmenn berjast á fullu og uppskera jafntefli. Eftir leikinn er Houllier fullkomlega sáttur. Honum tókst jú að gera jafntefli við fyrstu deildar lið (sem eftir kvöldið í kvöld virðist bara vera ágætis árangur). Liðið leikur sóknarbolta á þriggja vikna fresti. Þegar það gerist verð ég allt í einu fullur af spennu og bjartsýni en Houllier tekst vanalega að drepa þá bjartsýni hjá mér með einhverjum fáránlegum innáskiptingum.

Jæja, þettu eru helstu atriðin, sem ég hef á móti Houllier. Í meginefnum það að Liverpool leikur leiðnlegan varnarbolta og ég fæ litla, sem enga ánægju af að horfa á uppáhaldsliðið mitt spila. Liðið, sem ég haldið með í 20 ár, liðið sem hefur fært mér ómælda ánægju, er núna orðin uppspretta eintóms þunglyndis í mínu lífi. Á það ekki að vera þannig að þegar maður er í vondu skapi eigi maður að geta kveikt á sjónvarpinu til að geta slakað á yfir fótbolta?

Gerard Houllier hefur á síðustu tveimur árum tekið alla ánægju burt úr því að horfa á Liverpool. Fyrir það á hann skilið að missa starfið.

1883 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Liverpool

Hannes Hólmsteinn og 20. öldin

febrúar 03, 2003

Ágúst Flygenring skrifar um 20. öldina hans Hanneser Hólmsteins (og hann vísar líka í aðra pistla um sama þátt). Þetta eru nokkuð skemmtilegir þættir, sérstaklega þar sem Hannes er lunkinn við að finna atriði, þar sem vinstri menn tjá skoðanir sínar, sem virðast nú mörgum árum síðar, vera hálf bjánalegar. Ekki hef ég enn séð neyðarlega upptöku af sjálfstæðismönnum í þessum þáttum. Ég efast stórlega um að það sé tilviljun.

Annars er það skemmtilegasta í þessum þáttum smáatriði, sem Hannes Hólmsteinn hefur greinilega pælt í. Til dæmis þegar fjallað var um það þegar Jón Ólafsson eignaðist hlut í Stöð 2, þá var þemalagið úr Guðföðurnum spilað undir.

Þegar fjallað var um sigur Davíðs Oddsonar á landsfundi Sjálfstæðisflokksins var hins vegar spilað sigurþemað úr Charoits of Fire. Engu líkara en að Davíð hefði verið að sigra á Ólympíuleikunum.

137 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Stjórnmál

Small Earthquake in Chile. Not Many Dead

febrúar 03, 2003

Jamm, ég vissi að það myndi koma grein á Múrnum, þar sem þeir myndu fara að kvarta yfir athyglinni, sem sjö látnir geimfarar frá Bandaríkjunum og Ísrael fengu í fréttum nú um helgina. Steinþór Heiðarsson tók að sér að skrifa grein, þar sem hann gagnrýnir athyglina og samúðina, sem geimfararnir og aðstandendur þeirra fengu.

Steinþór kemur svo með einhverja hallærislega upptalningu á því að fólk hafi dáið í öðrum löndum um helgina, án þess þó að það hafi talist fréttmætt. Þannig eigum við hin, sem vorum sjokkeruð þegar við sáum geimferjuna springa, að fá samviskubit yfir því að það sé fólk að deyja annars staðar í heiminum. Auðvitað eru slys misjafnlega fréttnæm. Það tekur líka meira á okkur að 10 Danir hafi dáið heldur en ef 10 Indverjar hefðu dáið. Það er bara fullkomlega eðlilegt. Það fengi líka meiri fréttaumfjöllun í Bangladesh ef 10 Indverjar hefðu dáið heldur en 10 Danir.

Ég leyfi mér líka að fullyrða að Steinþóri er nokkurn veginn sama um þá sem dóu í rútuslysinu í Zimbabwe. Hann hefði sennilega ekki hugsað meira um slysið nema vegna þess að honum vantaði eitthvað til að fylla þessa slysaupptalningu sína. Hann á því ekki að vera að setja sig á háan hest og skamma okkur hin fyrir að samhryggjast aðstandendum geimfaranna.

Uppfært: Sjá umræður hjá Bjarna um sama mál

222 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Stjórnmál

Blogg, Verzló og stjórnmál

febrúar 02, 2003

Vúhú, ég held að ég sé búinn að finna mér nýjan uppáhaldsbloggara, víst að Leti á neti virðist vera hættur. Nýja uppáhaldið er Svansson.net.

Guðmundur, sem heldur úti þeirri síðu er hagfræðinemi (fimm plúsar fyrir það) og svo er hann alveg lygilega góður í að finna hin ýmsustu deilumál milli bloggara, sem hann hefur svo lúmskt gaman af að blanda sér í. Hann skrifar reyndar ekkert um hagfræði, sem er mínus en það er þó fullt af gaurum, sem sjá fyrir því: 1 2.

Allavegana, þá er Svansson að benda á einhverjar deilur í mínum gamla skóla, Verzló. Þar sagði víst féhirðirinn af sér fyrir jól og hann virðist vera snillingur að dragast inní önnur deilumál innan skólans. Reyndar minnir þetta mjög mikið á svipuð mál, sem komu upp fyrir einhverjum 7-8 árum og Jens PR og Geir Gests skrifuðu um í 10 blaðsíðna grein, "Brestir og blóðug barátta", sem birtist í 64. árgangi Verzlunarskólablaðsins, en ég sat í ritstjórn þess blaðs. Þá sögðu bæði féhirðirinn og forsetinn af sér vegna ásakana um spillingu (að mig minnir).

Allavegana þá á Stefán Einar í stöðugum deilumálum við aðra í skólanum og þá sérstaklega þá, sem vinna í nemendafélaginu. Sjá til dæmis umfjöllun hjá Svansson hér. Það er alveg lygilegt hvað Verzlingar taka þessa nemendafélagspólitík alvarlega. Ég var talsvert mikið í félagslífinu og hafði alveg ótrúlega gaman af. Ég hefði hins vegar aldrei nennt þessu ef að það hefðu verið stanslaus deilumál einsog virðast vera núna innan félagsins. Ég held að menn séu að taka sig full hátíðlega í þessum embættum. (n.b. Ég þekki ekki neinn aðila í þessum málum persónulega, ég hef bara lesið um þetta á netinu.)

Þessi færsla hjá Stefáni er til dæmis nokkuð mögnuð. Þar vitnar Stefán í einkasamtöl, sem ég held að menn ættu ekki að gera á bloggsíðum.

Blogg og stjórnmál

Það er annars eitt, sem ég var að pæla í. Það er nefnilega þannig að margir, sem hafa mjög vissar skoðanir á hlutunum og eru kannski sterkir í ungliðahreyfingum stjórnmálaflokkanna, eru með bloggsíður. Þar eru menn oft mjög óvægir í gagnrýni á stjórnmálamenn og aðra. Hvernig verður það ef þessir menn fara seinna á ævinni í framboð. Ætli þeir muni vilja eyða blogginu, þar sem þar leynast ábyggilega óþægileg ummæli

Stefán Einar virðist líta út einsog framtíðar stjórnmálamaður. Hann fer hins vegar mikinn í gagnrýni á alla vinstri menn, kallar þingflokksformann Samfylkingarinnar "ein allra óhentugasta konan sem komið hefur inn í pólitík á síðustu árum" og segir svo að Ingibjörg Sólrún sé "sjálfhverfasta manneskja stjórnmálanna". Gæti ekki verið svo að þetta yrði notað gegn honum seinna meir?

Nú eru líka menn einsog Ármannn Jakobsson, sem eru nokkuð áberandi í stjórnmálaumræðunni. Hann var nokkuð hispurslaus á síðunni sinni og kallaði Samfylkinguna "búllsjitt" flokkinn, sem er sennilega ekki jákvætt ef að hann vill í alvöru koma á vinstri stjórn. Ármann áttaði sig hins vegar á því að vegna þess að hann er svona áberandi, þá byrjuðu alltíeinu blaðamenn að lesa síðuna og vitna í hana. Þeir, sem skrifa blogg í dag gætu hins vegar áttað sig á því seinna meir (þegar þeir eru kannski orðnir þekktari í þjóðlífinu) að bloggsíðan eigi eftir að innihalda pistla, sem gætu komið þeim illa.

Ég er viss um að þessi síða mín inniheldur fullt af ummælum, sem gætu komið sér illa seinna meir. Ég er hins vegar ekki á leiðinni í framboð.

Tengt þessu, þá er Bjarni með skemmtilegar pælingar um vægi stjórnmálaumræðu á bloggsíðum.

581 Orð | Ummæli (1) | Flokkur: Netið & Stjórnmál

Warning: readfile() [function.readfile]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2003/02/index.php on line 1245

Warning: readfile(http://www.eoe.is/hlid.dat) [function.readfile]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2003/02/index.php on line 1245