Warning: include() [function.include]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2003/11/index.php on line 149
Warning: include(http://www.eoe.is/tilkynning.dat) [function.include]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2003/11/index.php on line 149
Warning: include() [function.include]: Failed opening 'http://www.eoe.is/tilkynning.dat' for inclusion (include_path='.:/usr/share/php5:/usr/share/php') in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2003/11/index.php on line 149
« október 2003 | Main | desember 2003 »
Lok, lok og læs
Frábær grein á Múrnum: Fortress Iceland. Hún segir allt, sem mig hefur langað til að segja um meðhöndlun flóttamanna undanfarna daga.
Ég er orðinn hundleiður á að þurfa að skammast mín fyrir stefnu framsóknaríhaldsins í flóttamannamálum. Ekki nóg með það að framlög okkar til þróunaraðstoðar séu skammarleg, heldur þá eru þessi mál líka í lamasessi. Af hverju í ósköpunum þarf að vísa þessu fólki, sem kemur hingað og biður um hæli, úr landi? Getur einhver gefið mér eina góða ástæðu?
Ummæli (9) |
Flokkur:
Stjórnmál
Spray, delay, and walk away
Einhvern veginn hef ég verið voðalega latur við að skrifa eitthvað hérna undanfarið. Ætli maður sé ekki miku duglegri að skrifa þegar það er eitthvað drama í gangi. Þegar hlutirnir bara ganga nokkuð smooth, þá er minna til að skrifa um.
Allavegana, ég verð að koma því að að Queer eye for the straight guy er mesti snilldarþáttur í heimi! Þátturinn er svo skemmtilegur að ég er nær hættur að horfa á Amazing Race, sem er á sama tíma. Svo er þetta náttúrulega mikil og góð fræðsla í þessum þáttum. Ég passa mig til dæmis alltaf á því núna að setja vaxið í hárið aftan frá.
Annars djammaði ég ekki um helgina, sem þýðir að ég hef ekki djammað 3 helgar af síðustu 4, sem hefur ekki gerst í gríðarlega langan tíma. Það er svo sem ágætt að sleppa þessu svona af og til. Ég held að það sé líka ástæðan fyrir því að ég sé ekki svo melódramatískur. Maður hugsar ósjálfrátt minna um stelpur þegar maður er ekki að djamma um helgar.
Ég held líka að ég sé búinn að komast að því að ég muni ekki hitta réttu stelpuna á djamminu. Held að sá vettvangur sé ekki að virka. Var ekki Eddie Murphy í Coming to America ráðlagt að fara í kirkjur til að finna góðar stelpur? En nei, það er kannski ekki alveg málið. Það er svo sem nóg af sætum stelpum á djamminu og allt það. Held bara að ég sé ekki að fíla of fullar stelpur, og ég fíla líka ekki að vera að reyna við stelpur þegar ég er of fullur. Það er ekki sniðugt... Svo eru líka prófin í skólum að byrja og þá fækkar sætum stelpum á skemmtistöðunum til muna. Kannski að maður ætti bara að hætta að djamma fram að jólum? Eða kannski ekki
Helgin fór í íbúðarstúss. Var málandi bæði föstudags- og laugardagskvöld. Það að mála er einmitt eitt það leiðinlegasta sem ég geri, þannig að ég er virkilega stoltur yfir því að hafa afrekað að standa í slíkum leiðindum á laugardagskvöldi. Horfði meira að segja á Laugardagskvöld með Gísla Marteini (eða hlustaði á það meðan ég málaði). Ég gat ekki annað en horft á þáttinn þegar Leoncie kom fram. Sú kona er snillingur, á því leikur enginn vafi!
Ummæli (5) |
Flokkur:
Dagbók
Breytingar á Serrano
Það er voðalega lítið að gerast í mínu einkalífi þessa dagana, þannig að ég ætla aðeins að skrifa um það, sem við erum að gera á Serrano.
Við erum reyndar dálítið á eftir áætlun, en í þessari viku (vonandi fyrir helgi allavegana) ætlum við að kynna örlítið breyttan matseðil. Í fyrsta lagi bætast við tveir nýjir réttir, sem eru aðeins öðruvísi útfærsla á núverandi réttum.
Í öðru lagi, þá breytist útlitið á matseðlinum okkar og öllum skiltunum. Við ákváðum að fara með matinn aftur í myndatöku til að bæta aðeins útlitið.
Fyrsta vörumyndatakan var nefnilega dálítið skrautleg. Hún var gerð um tveim vikum áður en við opnuðum staðinn fyrir rúmi ári. Ég man að þennan dag þá vaknaði ég klukkan 6 um morguninn, tók saman allan matinn frammí eldhúsi hjá mér og keyrði niðrí miðbæ, þar sem myndatakan átti að fara fram. Ég hafði ekki hugmynd hverju ég vildi ná fram á myndunum og þess vegna urðu myndirnar full skrítnar.
Til að mynda, þá er burrito myndin í dag frekar asnaleg (sjá vinstri hluta myndarinnar hér að ofan). Ég kunni nefnilega ekki að vefja upp burrito og því fóru allir vöfðu burritoarnir í hass. Ég og ljósmyndarinn prófuðum allar mögulegar leiðir til að ná burrito-inum saman en ekkert gekk. Þegar við loks vorum búnir að eyðileggja allt hráefnið, þá ákváðum við að skella þessu bara á einsog á pönnuköku og vefja ekki neitt. Úr því varð þessi skrítna mynd, sem hefur prítt matseðilinn á staðnum okkar æ síðan.
En núna er sem sagt kominn tími á breytingar. Myndin hægra megin hér að ofan er semsagt nýja burrito myndin okkar. Að mínu mati er hún mun betri og líkist einnig mun meira þeirri vöru, sem við erum að selja. Vonandi minnkar þetta eitthvað misskilning á staðnum í framtíðinni.
Annars, fyrir þá sem nenntu að lesa þessa færslu, þá er 2 fyrir 1 tilboð í gangi, aðeins á Serrano í Hafnarstræti 18 (við Lækjartorg - þú kaupir burrito og drykk og færð annan burrito frían). Endilega kíkið og prófið. Og ef þið hafið prófað, takið þá með ykkur einhvern, sem hefur aldrei prófað burrito-ana okkar áður!
Tilboðið gildir í dag, á morgun og á fimmtudag. Fyrir þá, sem hafa ekki komið áður mæli ég með kjúklingaburrito númer 1.
Ummæli (0) |
Flokkur:
Vinna
Ekki hér!
Eftir að ég sá endurhönnunina á Kottke, þá tók ég til að safna saman þeim færslum, sem ég hef kommentað á á öðrum síðum.
Ætla ég að taka upp þann sið að safna mínum kommentum saman og birta vísanir í þau á þessari síðu. Ég hef því komið upp síðunni "Kommentað annars staðar" (frumlegt nafn, ekki satt?). Á endanum stefni ég að því að setja þetta efni allt saman með raunverulegum dagbókarfærslum, en ég er bara ekki með það á hreinu hvernig það skal gert ennþá.
Ef að ummælin geta staðið án samhengis, þá vitna ég í þau á síðunni, en annars vísa ég bara í viðkomandi færslu.
Ummæli (0) |
Flokkur:
Netið
50 staðir til að fara á áður en þú deyrð (uppfært)
Nokkuð skemmtilegar pælingar á BBC: 50 Places to see before you die
Þetta var könnun, sem BBC gerðu meðal lesenda. Listinn er áhugaverður og þarna er fullt af stöðum, sem mig langar gríðarlega til að heimsækja, en listinn er líka býsna skrítinn á köflum. Til dæmis skil ég ekki hvernig í andsk** Florida komst í þriðja sæti. Ef það er eitthvað merkilegt að sjá á Florida, þá missti ég af því.
Ég verð að segja að ég hefði nú til dæmis skipt Florida út fyrir Saltvötnin í Bólivíu. Einnig mundi ég taka út Rio og setja inn til dæmis Havana eða Buenos Aires (útaf besta næturlífi í heimi).
Ég hef komið á 9 staði á þessum lista :
Florida: Fór til Florida með fjölskyldunni þegar ég var 14 ára gamall. Fór í Disney World og allt það dót. Fór síðan aftur þegar ég var 24 ára í Spring Break með Hildi og Dan vini mínum.
New York: Hef komið tvisvar til New York. Fyrst þegar ég var 19 ára, þegar til að heimsækja vinkonu mína, sem var í skóla þar nálægt. Einnig fórum við Hildur þarna þegar ég var 21 árs. Í bæði skiptin vorum við þar um vor og í bæði skiptin var ég afskaplega hrifinn. Frábær borg, en samt var ég ofboðslega feginn að koma aftur til Chicago eftir seinni ferðina.
Macchu Picchu: Á þennan magnaða stað hef ég komið tvisvar. Þegar ég var skiptinmei í Venezuela fór ég með fósturfjölskyldunni minni til Perú í einn mánuð. Þá var ég á Macchu Picchu í æðislegu veðri. Í seinna skiptið fór ég með þrem vinum mínum og löbbuðum við Inka slóðina í 3 daga upp til Macchu Picchu, þar sem var þoka stóran hluta dagsins, en samt gátum við vel notið þessarar mögnðu borgar.
Niagara Falls. Þegar ég var 24 ára fór ég með Hildi til Niagara Falls í Kanadaferðinni okkar. Fossarnir eru magnaðir, en bærinn í kringum þá er hreinasta túristahelvíti.
Iguassu Fossa: Stórkostlegir fossar á landamærum Paragvæ, Brasilíu og Argentínu. Ég og Emil eyddum tveim heilum dögum við að skoða fossana og það var alls ekki of mikill tími.
Rio de Janeiro: Þarna var ég þegar ég var 21 árs gamall. Mjög skemmtileg borg, en samt ekki eins heillandi og Salvador. Samt frábær borg.
Barcelona: Fallegasta borg, sem ég hef komið til. Næstbesta fótboltalið í heimi, æðislega fallegar byggingar en allt allt allt of mikið af fólki.
Ísland: Held að ég hafi séð nokkurn veginn allt landið. Mamma og pabbi sáu til þess.
Angel Falls: Sá þennan foss í Suður-Ameríkuferð okkar vinanna. Tókum litla flugvél frá Ciudad Bolivar og flugum framhjá þessum ótrúlega fossi. Veðrið var ekki alveg eins gott og við hefðum óskað, en samt mögnuð sjón. Mig langar alltaf að fara aftur á rigningartímabilinu, því þá er hægt að sigla nálægt fossunum (þeir eru það afskekktir að það liggur enginn vegur í mörg hundruð kílómetra radíus frá þeim)
Á BBC síðunni eru tenglar yfir á myndir og umfjöllun um alla staðina. Allavegana, þá lítur listinn svona út:
1 The Grand Canyon
2 The Great Barrier Reef
3 Florida
4 South Island
5 Cape Town
6 Golden Temple
7 Las Vegas
8 Sydney
9 New York
10 Taj Mahal
11 Canadian Rockies
12 Uluru
13 Chichen Itza - Mexico
14 Machu Picchu - Peru
15 Niagara Falls
16 Petra - Jordan
17 The Pyramids - Egypt
18 Venice
19 Maldives
20 Great Wall of China
21 Victoria Falls - Zimbabwe
22 Hong Kong
23 Yosemite National Park
24 Hawaii
25 Auckland - New Zealand
26 Iguassu Falls
27 Paris
28 Alaska
29 Angkor Wat - Cambodia
30 Himalayas - Nepal
31 Rio de Janeiro - Brazil
32 Masai Mara - Kenya
33 Galapagos Islands - Ecuador
34 Luxor - Egypt
35 Rome
36 San Francisco
37 Barcelona
38 Dubai
39 Singapore
40 La Digue - Seychelles
41 Sri Lanka
42 Bangkok
43 Barbados
44 Iceland
45 Terracotta Army - China
46 Zermatt - Switzerland
47 Angel Falls - Venezuela
48 Abu Simbel - Egypt
49 Bali
50 French Polynesia
Ummæli (9) |
Flokkur:
Dagbók
Bloggnördatal
Æ, þessi Bachelor þáttur er alltof langur. Er orðinn þreyttur á þessu. Og Guð minn góður, ég nenni ekki að horfa á Herra Ísland. By the way, þeir sem hafa ekki lesið grein Toggapop um keppnina ættu að gera það núna (variði ykkur bara á brjóstamyndinni
).
Annars, þá var Jason Kottke að endurhanna vefsíðuna sína á svo ótrúlega einfaldan og skemmtilegan hátt að maður trúir því hálfpartinnn ekki að engin hafi gert þetta áður.
Hann setur allar færslur, sama hvers lags þær eru, á sama stað á síðunni. Í stað þess að hafa sumar tegundir af færslum til hliðar við aðalefnið, þá setur hann allt í aðaldálkinn. Þetta er svo einfalt og sniðugt að mig langar til að gera það sama.
Ég hef alltaf verið að spá í að bæta við tenglum á athyglisverðar færslur, sem ég nenni ekki að skrifa um og svo einnig tengla á þær færslur, sem ég hef kommentað við hjá öðrum. Ég þarf bara að finna einhverja leið til að gera þetta á einfaldan hátt.
Er búinn að búa til sér blogg, sem ég pósta á þegar ég kommenta á öðrum vefsvæðum. Er hins vegar ekki búinn að klára neitt template, þannig að það kemst ekki í gagnið strax.
Ég þarf svo að finna einfalda leið til að sameina þær færslur hinum færslunum á aðalsíðunni.
Ummæli (0) |
Flokkur:
Netið
Hoooooooolland!!
Það er víst ekki oft þessa dagana, sem ég fæ sérstakt tækifæri til að gleðjast yfir fótbolta. En í kvöld var sko gaman, því ég var að horfa á Holland vinna Skotland 6-0. Ég held að Skotar hafi komist svona 5 sinnum yfir miðju í leiknum, enda fóru Hollendingar á kostum.
Ég var á Ölveri ásamt þrem vinum og var það mjög fínt. Heineken bjór seldist upp á staðnum því þarna var hópur af einhverjum kolgeggjuðum Hollendingum, sem hrópuðu ógurlega við hvert markskot. Ég held að það hafi verið einhverjir Skota aðdáendur þarna, en það heyrðist ekkert í þeim, enda lítil ástæða til þess að fagna.
Van Nilsteroy skoraði þrennu og þess vegna er hann í náðinni hjá mér enda einstaklega heiðarlegur og skemmtilegur leikmaður
En ég verð að viðurkenna að það er miklu skemmtilegra að horfa á leik þar sem maður heldur með Van Nilsteroy heldur en leiki, þar sem maður vill helst að hann fótbrjóti sig í hvert skipti, sem hann fær boltann.
Þannig að nú er mig farið að hlakka til EM á næsta ári og sem betur fer þarf ég ekki að standa við loforð mitt um að hætta að horfa á fótbolta:
Ummæli (1) |
Flokkur:
Íþróttir
Vááááá
Ja hérna, alltaf kem ég sjálfum mér á óvart. Ég varð að horfa á Ísland í Dag og ég var í fyrsta skipti sammála því, sem Sólveig Pétursdóttir var að segja!! Hún var að rökræða við Jónínu Bjartmarz um vændisfrumvarpsvitleysuna.
Reyndar, þá er Jónína framsóknarmaður, sem gerir það að verkum að þetta er ekki eins merkilegur viðburður. Ég held að ef að framsóknarmaður væri settur í rökræður við rimlagardínu, þá yrði ég sammála gardínunni.
Annars var það geðveikt fyndið að það var viðtal við Ólaf forseta á CNN um helgina. Við það viðtal voru sýndar myndir frá Reykjavík, sem voru það gamlar að Samvinnuferðir-Landsýn voru með skilti á Austurvelli. Þannig að allir, sem sjá þetta, halda að allir Íslendingar séu ýkt lummó enda allir í fötum frá 1990 eða eitthvað.
Og já, mynd af mér á Hverfisbarnum (í BBQ bolnum). Ja hérna! Ég var sko ekki að panta þessi staup. Held að það hafi verið stelpan, sem er að drepast þarna við hliðiná mér (þekki hana sko ekki).
Jamm og netkærastan fór bara á Serrano, þrátt fyrir yfirlýsingar um að hún fílaði ekki mexíkóskan mat. Hún segir að kjúklingaburrito númer 1 sé snilld! Ég er sammála, enda borða ég það alltaf
By the way, hvenær var þetta orð "mansal" fundið upp? Ég held að ég hafi aldrei heyrt það fyrstu 25 ár ævi minnar en svo 15 sinnum á dag síðasta árið.
uppfært: Þessi færsla hjá Jens er fyndin. Gaman að hann hefur meira álit á rökfærslum Jónínu en ég. Og svo er brandarinn um Davíð sniiiiilld.
Ummæli (10) |
Flokkur:
Dagbók
Ó, ég er svo latur
Ég er ekki þunnur, en samt er ég of latur til að gera eitthvað af viti. Er að reyna að sannfæra mig um að ef ég geri eitthvað af viti, þá taki þynnka sig upp, þannig að best sé að liggja í leti. Það gengur ekkert alltof vel.
Fór á skemmtilegt djamm með skemmtilegu fólki í gær. Hitti netkærustuna mína, Katrínu.is þegar ég var að kaupa biðraðarbjór á GrandRokk (vorum í biðröð á Hverfis, sem leit ekki vel út, svo ég stökk og keypti bjór to go). Allavegana, gat ég lítið talað við hana, þar sem að vinir hennar virtust ekkert hafa sérstaklega mikinn áhuga á því að hanga þarna lengi. Hún hélt því líka fram að hún myndi ekki komast inná Hverfis, sem mér fannst nú hæpin afsökun
Anyhooo, þetta var gaman, þrátt fyrir að ég sé farinn að hafa efasemdir um Hverfisbarinn. Er ekki alveg að höndla þetta tónlistarval inná staðnum. Fyrir menn einsog mig, sem fara þarna mjög oft, þá er það orðið frekar þreytandi að heyra sum lög, sérstaklega öll íslensku klisjulögin. Er einhver með tillögu að nýjum uppáhaldsstað?
Ummæli (10) |
Flokkur:
Dagbók
Árás
Mikið rosalega verður maður reiður að sjá svona fréttir.
Það hlýtur að vera erfitt fyrir Arafat aðdáendur að halda því fram að áróður gegn Ísrael sé ekki oft á tíðum and-semitískur. Það er allavegana mjög stutt í gyðingahatrið hjá mörgum.
Af hverju getur Ruud van Nilsteroy ALDREI skorað í mikilvægum leikjum með Hollandi? Ef Holland kemst ekki á EM, þá hætti ég að horfa á fótbolta.
Ok, þá er ég búinn að losa um tvo hluti, sem hafa pirrað mig í dag. Annars er ég í mjöög góðu skapi.
Ummæli (10) |
Flokkur:
Stjórnmál
Ó, þetta er of fyndið
Af einhverjum ástæðum slökkti ég ekki á sjónvarpinu eftir að ég hafði þolað lygar Skjás Eins, sem sviku loforð sitt um að sýna lokaþáttinn af Bachelor.
Allavegana, ég horfði á Jay Leno af því að Triumph, the insult comic dog var gestur hans. Og þvílík snilld! Ég hef ekki hlegið svona mikið lengi. Ég fór á netið eftir þáttinn og fann nokkur vídeó með Triumph. Vá, hvað þau eru fyndin.
Bestu eru án efa Judging Simon, MTV, Star Wars og Westminster 99 og 2000. Æ, þetta er allt snilld. Þið verðið að skoða þetta.
Ummæli (5) |
Flokkur:
Sjónvarp
Fyrirlestur, Rollur, IKEA, Rivaldo og A-Rod
Fyrirlesturinn í hádeginu gekk sæmilega. Ég talaði blaðlaust, sem gekk fínt, þangað til að ég gleymdi gjörsamlega hvað ég ætlaði að segja og var einhverjar 10 sekúndur að muna hvað ég ætti að segja.
Allavegana, þá mættu einhverjir 15 manns á fyrirlesturinn, sem er ásættanlegt miðað við áhugann á fyrirlestri Namibíu forseta.
Ég fékk vægt sjokk þegar ég fór í IKEA eftir vinnu og sá að þeir eru hættir að selja fallega stellið mitt. Ég keypti 12 bolla, diska og slíkt á einhvern 2000 kall fyrir tæpu ári. Svo bara án þess að láta mann vita, þá hætta þeir að framleiða þetta. Ætli ég verði að byrja að safna nýju IKEA stelli? Emil var að kvarta yfir því hversu mikil læti væri í diskunum þegar hann drægi gaffal eftir þeim, svo núna er ég farinn að hlusta eftir skrítnum hljóðum á morgnana þegar ég borða Weetabix-ið mitt. Kannski ætti ég að prófa að hlusta á útvarp á morgnana?
Vissir þú að samkvæmt ríkisstjórninni þá er almenn sátt um íslenska landbúnaðarkerfið meðal íslensku þjóðarinnar? Ætli þeir trúi sjálfir þessari vitleysu? Hvar er Alþýðuflokkurinn þegar þjóðin þarf á honum að halda?
The Onion: Mom finds out about Blog (via Kottke). Sniðugt.
Já, og svo vil ég fá Rivaldo til Liverpool og A-Rod til Cubs. Þá verður Einar Örn glaður! Mjög glaður! Reyndar alveg í skýjunum!
Ummæli (5) |
Flokkur:
Dagbók
Leiðrétting
Af gefnu tilefni vil ég taka það fram að línan um að ég ætti að vera að djamma vegna þess að ein sætasta stelpan í bænum væri aftur komin á laust VAR DJÓK!
Ég var bara að skjóta á vinkonu mína, en ég er ekki viss um að hún hafi einu sinni fattað djókið og ég held að ansi margir lesendur hafi misskilið þetta sem einhverja voðalega höstl statement hjá mér. Svo var ekki, enda myndi ég aldrei skrifa neitt svona í alvöru
Ummæli (2) |
Flokkur:
Dagbók
Fyrirlestur í Háskólanum
Á morgun mun ég halda fyrirlestur í Háskólanum (HÍ). Mun hann fjalla um stofnun eigin fyrirtækja. Þar ætla ég að miðla smá af minni reynslu varðandi stofnun og rekstur Serrano.
Ég svo sem ekki von á mörgum áhorfendum, þar sem 30 hræður mættu á fyrirlestur forsætisráðherra Namibíu.
Ég vona þó að einhverjir mæti. Ég ætla allavegana að reyna að hafa þetta áhugavert
Ég ætla aðeins að fjalla um stofnun Serrano og svo þau vandamál, sem við höfum rekist á. Hvet alla til að mæta. Fyrirlesturinn verður í Lögbergi í stofu L-103 á morgun, fimmtudag frá 12:15-12:45.
Ummæli (2) |
Flokkur:
Dagbók
Mánudagsþreyta
Líf mitt í dag:
- Ég er kominn með uppí kok af þessu drasli í íbúðinni minni. Það er ekkert á sínum stað!
- Ég hef ekki talað um stelpur á þessari síðu í níu færslum í röð. Hér með breytist það.
- Ég hef ekki farið á djammið tvær helgar í röð, jafnvel þótt ég hafi heyrt að ein sætasta stelpan í bænum sé aftur á lausu.
- Mig langar í hreina íbúð, þar sem allt er í röð og reglu
- Ég sé ekki hvernig mér á að takast að uppfylla þann draum fyrir jól
- Mig langar fáránlega mikið að djamma um næstu helgi.
- Það eru gellur í World Class í hádeginu!! Ég sá m.a.s. þrjár í dag! Það er nýtt met.
- Á Hverfisbarssíðunni stendur núna: "Vorum að setja inn nýjar myndir. Sérstaklega mikið af stórglæsilegum meyjum þessa vikuna". Með þessum texta fylgja þessar myndir. Kannski er það bara ég, en mér finnst ekkert vera neitt voðalega mikið af "stórglæsilegum meyjum" á þessum myndum! En reyndar eru þessar djammmyndir alltaf hræðilegar. En samt. Það eru sætari stelpur á Vegamótamyndunum. Hvert fara þessar stelpur þegar ég kem á Vegamót?
- Muse eru kúl
- Ég hata manninn, sem fann upp hraunaða málningu! Hann má brenna í helvíti fyrir þær þjáningar, sem hann hefur ollið mér við málningarvinnu í þessari íbúð!
Ummæli (4) |
Flokkur:
Dagbók
Spurningar um fótbolta?
Ég er of reiður, sár og bitur til að vera brjálaður akkúrat núna. Þetta er ein af þessum stundum, þegar maður þarf að setjast niður, hugsa um tilgang lífsins og reyna að rifja það upp að fótbolti er bara íþrótt. En vá maður, ég held að ég hafi upplifað sambandsslit, sem hafa verið skemmtilegri en að upplifa leikinn áðan.
Ég get í raun ekkert sagt. Það eina, sem kemst að í höfðinu á mér eru spurningar:
- Af hverju byrjaði Sinama-Pongolle ekki inná?
- Hver er ástæðan fyrir því að þegar Hyppia brýtur á United leikmanni innan vítateigs, þá er dæmd vítaspyrna og Hyppia fær rautt spjald, en þegar Rio Ferdinand brýtur greinilega á Liverpool manni, þá er ekkert dæmt?
- Af hverju datt Emile Heskey í stað þess að skora úr dauðafæri?
- Af hverju er Michael Owen meiddur akkúrat núna?
- Af hverju fékk Nilsteroy ekki rautt spjald fyrir að hafa reynt að skora með hendi?
- Hvor er lélegri framherji: Emile Heskey eða Diego Forlan?
- Af hverju er knattspyrnan svona hrikalega ósanngjörn íþrótt?
- Hvernig stendur á því að Liverpool hafa verið miklu betri aðilinn í leikjum á móti Chelsea, Arsenal og Man United, en samt tapað 2-1 í öllum leikjunum?
- Af hverju er 2 mínútum bætt við leiktímann þegar Man United er yfir, en 6 mínútum þegar þeir eru undir?
- Er Nilsteroy óheiðarlegasti leikmaður í heimi?
Það eina, sem ég veit núna er að allavegana verður Sinama-Pongolle alveg skuggalega góður framherji. Fyrstu 10 mínúturnar eftir að hann kom inná voru með skemmtilegustu mínútum af fótbolta, sem ég hef séð með þessu Liverpool liði.
Þetta lið er á réttri braut. Liverpool eru að spila frábæran fótbolta, það er virkilega skemmtilegt að horfa á liðið þessa dagana. Það sem vantar er stöðugur framherji með Owen og smá sjálfstraust hjá liðinu um að þeir geti pakkað saman hvaða liði sem er. Það mun koma.
Ummæli (12) |
Flokkur:
Liverpool
Spurningar um fótbolta?
Ég er of reiður, sár og bitur til að vera brjálaður akkúrat núna. Þetta er ein af þessum stundum, þegar maður þarf að setjast niður, hugsa um tilgang lífsins og reyna að rifja það upp að fótbolti er bara íþrótt. En vá maður, ég held að ég hafi upplifað sambandsslit, sem hafa verið skemmtilegri en að upplifa leikinn áðan.
Ég get í raun ekkert sagt. Það eina, sem kemst að í höfðinu á mér eru spurningar:
- Af hverju byrjaði Sinama-Pongolle ekki inná?
- Hver er ástæðan fyrir því að þegar Hyppia brýtur á United leikmanni innan vítateigs, þá er dæmd vítaspyrna og Hyppia fær rautt spjald, en þegar Rio Ferdinand brýtur greinilega á Liverpool manni, þá er ekkert dæmt?
- Af hverju datt Emile Heskey í stað þess að skora úr dauðafæri?
- Af hverju er Michael Owen meiddur akkúrat núna?
- Af hverju fékk Nilsteroy ekki rautt spjald fyrir að hafa reynt að skora með hendi?
- Hvor er lélegri framherji: Emile Heskey eða Diego Forlan?
- Af hverju er knattspyrnan svona hrikalega ósanngjörn íþrótt?
- Hvernig stendur á því að Liverpool hafa verið miklu betri aðilinn í leikjum á móti Chelsea, Arsenal og Man United, en samt tapað 2-1 í öllum leikjunum?
- Af hverju er 2 mínútum bætt við leiktímann þegar Man United er yfir, en 6 mínútum þegar þeir eru undir?
- Er Nilsteroy óheiðarlegasti leikmaður í heimi?
Það eina, sem ég veit núna er að allavegana verður Sinama-Pongolle alveg skuggalega góður framherji. Fyrstu 10 mínúturnar eftir að hann kom inná voru með skemmtilegustu mínútum af fótbolta, sem ég hef séð með þessu Liverpool liði.
Þetta lið er á réttri braut. Liverpool eru að spila frábæran fótbolta, það er virkilega skemmtilegt að horfa á liðið þessa dagana. Það sem vantar er stöðugur framherji með Owen og smá sjálfstraust hjá liðinu um að þeir geti pakkað saman hvaða liði sem er. Það mun koma.
Ummæli (12) |
Flokkur:
Liverpool
Parketdjamm
Hvað gera aðaltöffararnir á laugardagskvöldum? Jú, þeir parketleggja heima hjá sér og blogga svo um það.
Í dag gerðist sá stórmerki atburður að ég og Emil KLÁRUÐUM að parketleggja íbúðina. Þetta er búið að vera magnað ferli, sem byrjaði í lok september. Íbúðin mín er reyndar ennþá í rusli og ég á eftir að mála eitthvað, en mikið ofboðslega er gaman að vera búinn. Emil er náttúrulega mesta hetja í heimi fyrir að hafa nennt að gera þetta með mér.
En semsagt núna getur mér hætt að dreyma um gliðnandi parket. Ég veit að ég á ennþá eftir að fá sting um leið og ég sé einhverjar rifur á parketinu og Guð hjálpi væntanlegum gestum í íbúðinni, því ég verð hryllilega paranoid yfir því að fólk rispi nýja fallega eikarparketið mitt.
Semsagt, föstudags- og laugardagskvöld fóru í þetta parketstúss, þannig að önnur djammlausa helgin í röð er staðreynd (djammið á Vegamótum um síðustu helgi var varla djamm).
Þetta djammleysi á laugardagskvöldi þýðir líka að ég verð í fantaformi fyrir Liverpool Man United á morgun. Djöfull hlakka ég til! Bara að lesa þennan frábæra pistil: Let's Wreck United's Season kom mér í stuði. Ég verð brjálaður ef Liverpool tapa!
Ummæli (4) |
Flokkur:
Dagbók
Bestu tónleikarnir
Einhvern veginn hef ég ekki haft þrek í mér að skrifa á þessa síðu undanfarna daga. það hefur nákvæmlega ekkert spennandi gerst. Líf mitt hefur snúist um mikla vinnu og það að leggja parket á íbúðina. Núna er ég hins vegar nokkurn veginn að klára þetta parket dæmi, svo að mig getur byrjað að dreyma um annað en gliðnandi parket.
Annars, þá fann ég nokkra vikna gamla færslu og ákvað að klára hana. Hérna eru sem sagt 10 bestu tónleikarnir, sem ég hef farið á. það var furðu erfitt að velja og hafna á þennan lista. Ég veit að lýsingarnar á tónleikunum eru ekki merkilegar. En ég meina hey.
| 10. | Blur - Laugardalshöll, Reykjavík - Fyrri Blur tónleikarnir voru frábærir. þetta var uppáhaldshljómsveitin mín á þeim tíma og ég og Friðrik vinur minn vorum í brjáluðu stuði. Parklife var hápunktur kvöldsins. |
| 9. | Metallica - All State Arena, Chicago. - Ég meina hey. Metallica varð að komast á listann. Ég og Dan vinur minn vorum á lélegum stað, en það skipti bara engu máli. Mig var búið að dreyma síðan ég var lítill krakki að heyra Master of Puppets á tónleikum. |
| 8. | U2 - United Center, Chicago - Meiriháttar tónleikar á Elevation túrnum. Ég fíla aldrei tónleika á íþróttavöllum en U2 er ein af fáum hljómsveitum, sem á auðvelt með að láta mann gleyma því að það séu 30.000 aðrir hræður í salnum. |
| 7. | Weezer - Aragon Theatre, Chicago - Ég fór á tvo skemmtilegustu tónleika ævi minnar í Aragon í Chicago, ásamt Hildi. þeir fyrri voru með Weezer. Þessir tónleikar voru partur af fyrstu tónleikaferðinni þeirra eftir Pinkerton. Salurinn var skreyttur einsog á Prom balli og áhorfendur voru komnir í brjálað stuðu löngu áður en að Weezer stigu á svið. Ég hef aldrei upplifað að áhorfendur hafi sungið með teipinu, sem var spilað fyrir tónleikana. Weezer voru frábærir. |
| 6. | Smashing Pumpkins - United Center, Chicago - Lokatónleikar Smashing Pumpkins í heimaborginni Chicago voru frábærir. Þau tóku öll bestu lögin, þökkuðu innilega fyrir sig og stóðu svo öll saman og sungu 1979. Svo kom Billy og dásamaði Cubs. Hvað er hægt að biðja um meira? |
| 5. | Molotov - Aragon Theatre, Chicago - Seinni stuðtónleikarnir í Aragon voru algjörlega ógleymanlegir. Þegar ég varð 24 ára fórum við Hildur að sjá mexíkósku snillingana í Molotov. þrem árum áður sáum við þá spila í Madrid, en á þeim tónleikum var ég fárveikur. Í Chicago var ég hins vegar í banastuði ásamt 8000 mexíkóum. Ógleymanlegt kvöld. |
| 4. | Sigurrós - Park West, Chicago - Ég hef séð Sigurrós spila tvisvar í Chicago en fyrra skiptið stóð upp úr. þar voru þeir með strengjasveit og voru hreint magnaðir. Þeir enduðu tónleikana á lokalagi (), sem ég hafði þá aldrei heyrt áður. Ótrúlega magnað lokalag. |
| 3. | Coldplay - Laugardalshöllin, Reykjavík - Frábærir tónleikar í Laugardalshöll í desember, 2002. Bestu tónleikar, sem ég hef farið á á Íslandi. Ekki skemmdi það að A Rush of Blood to the Head var án efa uppáhaldsplatan mín á þeim tíma, sem þeir héldu tónleikana. Everything's not lost er eitt besta popplag síðustu ára, á því er enginn vafi. |
| 2. | Radiohead - Grant Park, Chicago - Þessir tónleikar voru haldnir í almenningsgarði í Chicago og þeim mun ég seint gleyma. Radiohead voru næstum því fullkomnir, þeir stóðu undir öllu, sem ég hafði vonast eftir og svo miklu meira. Thom Yorke var ógleymanlegur |
| 1. | Roger Waters - Woodlands Pavillion, Houston - Algjörlega ógleymanlegir tónleikar. Þeir toppa Radiohead tónleikana einungis vegna þess að þetta er nú einu sinni fyrrverandi söngvarinn í minni uppáhaldshljómsveit, Pink Floyd. Tónleikarnir voru haldnir utandyra í gríðarlegum hita í Houston. Ég mun aldrei gleyma því hvernig hann flutti Comfortably Numb. |
Annað, sem kom vel til greina: Ben Folds - Rosemont Theatre, Chicago. Oasis - Chicago Theatre, Chicago. Fugees - Laugardalshöll. Cypress Hill - Santiago, Chile. Eminem, All State Arena, Chicago. Soda Stereo - Caracas, Venezuela. Rage Against the Machine - Kaplakriki, Hafnarfirði.
Ummæli (14) |
Flokkur:
Topp10
& Tónleikar
Hvar er rúmið mitt, hvar er þynnkan mín?
Í morgun vaknaði ég á miðju stofugólfi, með engan hausverk. Það er sennilega í fyrsta skipti í langan tíma sem ég vakna hausverkslaus á sunnudegi. Ætli það sé þeirri staðreynd að þakka að ég svaf á stofugólfinu eða því að ég drakk ekki nema 3 bjóra í gær?
Ástæðan fyrir því að ég svaf í stofunni er sú að íbúðin mín er í algjöru rusli akkúrat núna. Ég og Emil erum búnir að parketleggja hálfa íbúðina og erum komnir alveg inní svefnherbergi. Því þurfti ég að rýma það í gær og rúmið endaði á miðju stofugólfinu.
Þannig að þessi helgi reyndist tiltölulega róleg. Parketlagði mikið en djammaði lítið. Kíkti á Vegamót í gærkvöldi og reyndi að átta mig á því af hverju ég ætti að fíla þann stað. Einhvern veginn er alltaf svo mikið af sætum stelpum á myndasíðunni þeirra, þannig að ég er alltaf sannfærður um að ég muni hitta draumadísina þar. En troðningurinn er alveg fáránlegur þarna, svo ég gafst upp eftir mjög stutta dvöl.
Annars var ég ýkt góður á föstudagskvöld og fór í kaffiboð til mömmu, sem átti afmæli. Vá, ég er búinn að vera ýkt góður þessa helgi, nánast ekkert djamm! Ef ég væri svona allar helgar myndi mamma sennilega fyrirgefa mér fyrir það að ég sé ekki í Sjálfstæðisflokknum.
Annars horfði ég með vini mínum á Liverpool-Fulham í dag. Ég get svo svarið það að horfa á þetta Liverpool lið er slæmt fyrir geðheilsu mína. Hefðu þeir ekki unnið leikinn hefði ég sennilega brotið helminginn af húsgögnunum mínum og vinur minn hinn helminginn.
Sigurinn gaf okkur þó orku til að rusla dótinu mínu útúr barnaherberginu (eða tölvuherberginu, víst ég á enga krakka svo ég viti). Þannig að ég sit núna á stofugólfinu fyrir framan Makkann minn. Það er ekki eins þægilegt og það hljómar.
Ummæli (5) |
Flokkur:
Dagbók
Uppskriftahorn Einars
Þessa dagana getur maður varla verið maður með mönnum meðal veitingastaðaeiganda ef maður gefur ekki út matreiðslubók. Ég hef ekki alveg ímyndunarafl í það en hérna er samt snilldar uppskrift.
1 Findus Oxpytt frystiréttur (kartöflur og kjöt)
1 dós af maískorni
4 eggjahvítur
Oxpyttið og maískornið er sett á pönnu. Eftir smá stund er svo búið til smá pláss á pönnunni og eggjahvítunum hellt þar. Þegar þær eru orðnar hvítar þá er þeim blandað saman við hitt.
Þetta er fullkomið fyrir þær stundir þegar maður nennir varla að elda. Tekur bara 5 mín og maður þarf ekki einu sinni að standa yfir þessu. Hollt og gott!! Og skammturinn dugði mér meira að segja í máltíð í gærkvöldi og aftur í kvöld. Þvílík snilld!!
Ó mér langar að djamma. Lítur þó ekki vel út með kvöldið. Djö!
Ummæli (2) |
Flokkur:
Dagbók
Warning: readfile() [function.readfile]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2003/11/index.php on line 1290
Warning: readfile(http://www.eoe.is/hlid.dat) [function.readfile]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2003/11/index.php on line 1290
