Warning: include() [function.include]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2004/07/index.php on line 149

Warning: include(http://www.eoe.is/tilkynning.dat) [function.include]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2004/07/index.php on line 149

Warning: include() [function.include]: Failed opening 'http://www.eoe.is/tilkynning.dat' for inclusion (include_path='.:/usr/share/php5:/usr/share/php') in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2004/07/index.php on line 149

« júní 2004 | Main | ágúst 2004 »

Haldið norður

júlí 30, 2004

Verslunarmannahelgi og ég er á leiðinni norður á land með vinum. Vonandi verður það jafn skemmtilegt og margar fyrri ferðir mínar til höfuðstaðar Norðurlands og nágrennis.

Því verður þessi síða ekki uppfærð næstu daga en Kristján mun halda Liverpool blogginu líflegu næstu daga.

43 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Dagbók

Íslenskir karlmenn og strípur

júlí 28, 2004

Í morgun setti ég fram kenningu á síðunni hennar katrínar, sem ég hef lengi verið að velta fyrir mér. Það er sú kenning mín að allir íslenskir karlmenn séu með strípur.

Ég henti þessu fram, en ákvað svo eftir smá umhugsun að slípa kenninguna aðeins til. Úr varð eftirfarandi kenning: “3/4 ljóshærðra karlmanna á Íslandi eru með strípur”.

Þetta virðist kannski ekki vera byltingarkennd kenning, en samt er þetta mögnuð kenning. Ég hangi eyði mínum tíma kannski bara á svona fáránlegum stöðum, en það er ekki lengur fyndið hversu margir ljóshærðir karlmenn á Íslandi eru með ljósar strípur. Eru allir að reyna að líkjast Eið Smára, eða er þetta eitthvað annað?

Nú hef ég ekki verið með strípur síðan ég var í Verzló (í þeim skóla var hárið mitt, nánast án undantekninga, hræðilegt. Annaðhvort sökum síddar eða hræðilegs háralits) en hætti því þegar ég fór til Bandaríkjanna, enda var maður nánast litinn hornauga ef maður setti gel í hárið í háskólanum mínum. Allir voru svo ofboðslega líbó á því að maður skar sig úr ef maður greiddi sér á morgnana. Hefði ég verið með strípur þar, hefði ég sennilega verið rekinn úr skólanum.


Æi, voðalega er þetta eitthvað losaraleg færsla. Ætli þetta sé ekki bara prelude að nýrri færslu um hárið á mér, þar sem ég hef ekki skrifað um það í langan tíma (fyrir nýja lesendur, þá má fræðast um hárið mitt með að lesa þessar færslur: 1, 2 og 3).

Það hefur nefnilega margt breyst síðan ég skrifaði síðast. Ég hef nefnilega ekki verið með síðara hár í mörg ár (með sítt að aftan og allt). Ég veit að lesendur iða í skinninu eftir því að lesa um hvernig það hefur breyst síðustu vikurnar. Það verður hins vegar að bíða. Í stað ætla ég bara að benda á hvað Biblían segir um þetta allt:

No man should dye his hair

Þar segir líka:

Fleece is for exercising and snow-shoveling and-let us not forget-is manufatured from recycled soda bottles.

Já, og þetta:

Hats will make a comeback someday.
It is not that day

Mikil speki.

Og þetta er að öllum líkindum sundurleitasta færslan á þessari síðu í marga mánuði. Er þetta þreyta, Popplagið með Sigur Rós eða eitthvað verra? Ég veit nefnilega varla hvað ég á að skrifa á þessa síðu lengur. Mig er farið að hlakka Ég hlakka til helgarinnar.

392 Orð | Ummæli (8) | Flokkur: Dagbók

Leiðinlegasti fréttamaður í heimi

júlí 27, 2004

Gallinn við það að vera á viðskiptaferðalögum er að maður þarf oft að gista á hótelum, sem eru með einstaklega lélegt úrval af sjónvarspefni. Þetta á sérstaklega við um lönd einsog Þýskaland, þar sem valið stendur vanalega á milli CNN, BBC World og þýsks skemmtiefnis

Bæði CNN og BBC eru álíka leiðinlegar til lengdar, þar sem þar er endurtekinn sami klukkutíminn af efni allan sólahringinn.

CNN sker sig þó úr af einni ástæðu. Jú, á þeirri stöð er leiðinlegasti sjónvarpsfréttarmaður í heimi (og þó víðar væri leitað): Richard Quest

Ég þooooli ekki Richard Quest!

Ég veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa hversu mikið ég hata Richard Quest. Hann er gjörsamlega óþolandi. Á þessari síðu er nokkuð góð lýsing á því að hlusta á Quest:

The experinece of listening to Richard Quest, a CNN Europe anchor, is something akin to what it might be like to scrub my face with a cheese grater. I’m sure he’s a very intelligent guy, but he seems to have only one volume—yell. It seems he has been yelling for so long that he has blown his voice completely out, so he sounds like Harvey Fierstein doing an impression of a British soccer hooligan.

Nákvæmlega!

Ég er núna sífellt minntur á andúð mína á Quest, því ég er að fylgjast með þingi demókrata á CNN. Quest á greinilega að finna einhverjar fyndnar fréttir, en það eina fyndna við þessi skot er hversu hræðilegur hann er. Og í raun er það ekki fyndið, nema manni finnist fyndið að þjást hræðilega.

255 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Sjónvarp

Steggjapartí

júlí 25, 2004

Var í steggjapartíi í gær. Það var æði.

Við vinirnir vorum búnir að skipuleggja þetta steggjapartí fyrir Borgþór vin okkar nokkuð lengi. Ég asnaðist til að trúa veðurspánni, en það var búið að spá skýjuðu veðri fyrir laugardaginn alla vikuna. Veðrið í gær var hins vegar með ólíkindum gott.

Við fórum með stegginn í listflug, sjóstangveiði, fótbolta og sund. Veðrið var æði allan daginn og við vorum allir brunnir í andlitunum, enda úti allan daginn. Við kíktum svo í bæinn og enduðum á Hverfis. Eftir að hafa andað að mér reykmettuðu loftinu á barnum fattaði ég að ég var talsvert drukknari en ég hafði haldið og ákvað því að rölta heim í Vesturbæinn. Það er eitthvað mikið að þegar ég nenni ekki að vera lengur í bænum.


Ég hef oft verið hressari en ég var í morgun. Ef það er eitthvað verra en að vakna þunnur, þá er það að vakna þunnur í íbúð fullri af drasli og tómum bjórdósum. Fékk hjálp við að þrífa og nú lítur þetta allt betur út.

Nú stefnir allt í það að innan mánaðar verði fjórir af mínum bestu vinum giftir. Það er helvíti magnað.

191 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Dagbók

Fótbolti á Ægissíðunni

júlí 25, 2004

aegis.jpg

0 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Myndablogg

Enski boltinn á ensku

júlí 22, 2004

Liverpool blogg: Metnaðarleysi Skjás Eins.

Mér fannst þetta eiga við á þessari síðu, en ég nenni ekki að kópera greinina hingað.

21 Orð | Ummæli (3) | Flokkur: Sjónvarp

Frestun kosninga í Daily Show

júlí 21, 2004

Fyrir alla, sem hafa gaman af bandarískum stjórnmálum, þá eru þessi myndbrot úr Daily Show algjör snilld!!

Bæði fjalla um hugsanlega frestun kosninganna í USA vegna árása hryðjuverkamanna (via On Lisa Rein’s Radar) Þetta eru um 20mb í erlendu niðurhali, en vel þess virði. :-)

45 Orð | Ummæli (8) | Flokkur: Sjónvarp

Fjölmiðlafrumvarps- kjaftæðisendalok

júlí 20, 2004

Við unnum!

Davíð tapaði.

Ég veit að ég ætti að vera glaðari nú þegar Davíð hefur þurft að viðurkenna fullkominn ósigur. Algjörlega fullkominn ósigur!

En þessa þrjá mánuði í lífi mínu fæ ég ekki tilbaka. Davíð er búinn að valda stríðsástandi í þjóðfélaginu bara af því að hann þolir ekki Baug. Og núna er Davíð búinn að viðurkenna ósigur, en samt viðurkennir hann auðvitað ekki neitt. Einhvern veginn er það ekki ósigur í hans augum að við stöndum núna í nákvæmlega sömu sporum og fyrir þrem mánuðum.


Davíð kvartar um að völd færist á færri hendur, en gleymir að minnast á það að hann og Halldór eru búnir að taka öll völd í sínar hendur. Mikið er það nú samt illa komið fyrir Sjálfstæðisflokknum þegar að Framsóknarmenn eru orðnir rödd skynseminnar.

Finnst ykkur, sem eruð sæmilega frjálslynd og enn í Sjálfstæðisflokknum, það ekki vera sorglegt?

Ég bara skil ekki þetta unga fólk í flokknum. Hvernig getur það stutt Davíð og þessa vitleysu alla? Finnst því þetta allt vera í fínasta lagi?

Ég var að spá í þessu þegar ég var að lesa þennan pistil Járnskvísunnar og áttaði mig á að þetta er allt saman kjaftæði. Ég er ábyggilega miklu nær ungum Sjálfstæðismönnum í skoðunum en þeir eru Davíð. Samt verja þau hann og alla hans menn. En þegar Össur kemur í sjónvarpið og bendir á hina augljósu vitleysu í ríkisstjórninni, þá fer hann alveg hræðilega í taugarnar á Sjálfstæðisfólki.

Er það kannski eini munurinn á okkur? Hverjir fara í taugarnar á okkur. Ég er nánast með ofnæmi fyrir Einari Guðfinns, en líkar ágætlega við Össur. Ungu Sjálfstæðismennirnir fyrirlíta hins vegar Össur og eru með mynd af Einari Guðfinns uppá vegg. Er munurinn á okkur bara einhverjar tilfinningar gagnvart einstaklingum?

Ég hef heyrt fulltaf fólki segjast ekki geta stutt Samfylkinguna útaf því að Össur sé þetta eða hitt. Það skil ég ekki, því stjórnmálaflokkar eiga umfram allt að snúast um málefni en ekki skemmtilega leiðtoga. Er það kannski bara rugl hjá mér?

Ég hef nánast aldrei heyrt hægri-sinnað-ungt-fólk segjast ekki geta stutt Samfylkinguna útaf stefnu flokksins, heldur kvartar það bara yfir Össuri og Ingibjörgu.

Látum við virkilega skoðanir okkar stjórnast af því hvort okkur líkar vel eða illa við einhverja fimmtuga kalla?

Er það ekki dálítið skrítið?


En það er svosem ágætt að þetta er búið, þrátt fyrir að mér finnist rosalega gaman að fylgjast með pólitík og það verður dauft núna þegar ekki er hægt að rífast um þetta.

410 Orð | Ummæli (7) | Flokkur: Stjórnmál

Múrinn og Heimdallarskólinn

júlí 19, 2004

Þau á Múrnum skrifa í dag gott andsvar við grein Hafsteins Þórs, formanns SUS, sem birtist fyrir nokkru á frelsi.is.

Hafsteinn Þór er hugsjónarmaður, en umfram allt foryngjahollur og því hefur hann nánast ekkert gagnrýnt flokkinn sinn fyrir atferli hans í fjölmiðlamálinu og öllu því tengdu. Í stað þess að svara gagnrýni stjórnarandstæðinga og Múrsins tekur Hafsteinn 46 ára gömul ummæli sósíalista og gerir þau að aðal-umfjöllunarefni sínu. Með því var hann víst að skjóta á umfjöllun Múrsins um þjóðaratkvæðagreiðslur, þrátt fyrir að þau á Múrnum hafi ekki verið fædd þegar þessi ummæli voru höfð.

Vandamálið er bara að einsog andsvar Múrsins sýnir, þá er þetta kvót hans Hafsteins einungis útúrsnúningur.

Það er yndislegt að Hafsteinn skuli enn vera jafn dásamlega upptekinn af því að berjast við kommúnisma og hann hefur ávallt verið. Þar sem hann hefur lítil rök inní deilur nútímans, þá kýs hann frekar að beita hárbeittum rökum gegn stefnu, sem dó fyrir mörgum árum. Það er nefnilega auðveldara að grafa upp áragömul, misgáfuleg ummæli andstæðinga sinna, heldur en að eiga rökræður við þá í nútímanum (þó er verra þegar ummælin standast ekki einsog Múrinn sýnir fram á).

Hafsteinn hefur skrifað nákvæmlega tvær greinar á frelsi.is eftir að Davíð tók af okkur þjóðaratkvæðið. Sú fyrri fjallaði um það hversu kjaftfor Steingrímur J. er og sú seinni var um meint 46 ára gömul ummæli fyrrum þingmanns Vinstri-Grænna.

Það er greinilegt að formaður SUS er með puttana á púlsi þjóðlífsins. Ef ungliðar flokksins eru svona úr takti við restina af þjóðinni, er það þá furða að þingmenn sama flokks séu heillum horfnir?

262 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Stjórnmál

Nýr æPod

júlí 18, 2004

Það er búið að opinbera nýja iPod-inn. Steve Jobs er í viðtali við Newsweek og þeir láku forsíðunni í gær.

Sjá hér á engadget
Einnig hér er Newseek greinin: The new iPod

Svo sem engar byltingar, en hann er með 12 tíma batteríi (í stað 8), takkarnir 4 eru farnir og þess í stað er bara hjólið. Svo virðist stýrikerfið í spilaranum sjálfum aðeins vera breytt. Já, og svo eru þeir allir 100 dollurum ódýrari, sem þýðir væntanlega að þeir eru um 10.000 krónum ódýrari í Apple búðinni. Verða bara til í 20gb og 40gb.

Uppfært: Hérna er öll Newsweek greinin um iPod og gríðarleg áhrif og vinsældir þessa litla tækis.

111 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Tækni

Nýja Quarashi lagið

júlí 17, 2004

Fyrir þá, sem vissu ekki af því þá er hægt að nálgast nýja Quarashi lagið (að ég held á löglegan hátt) á netinu. Það var sett uppá simblogg.is:

Stun Gun (MP3 - 3,9mb)

Grúví lag, ekkert rokkvesen. Þannig eru Quarashi bestir. Tiny rappar aðallega og svo á Ómar “chorus-inn”. Þetta eru snillingar.

52 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Tónlist

Mblog pælingar

júlí 16, 2004

Ég er búinn að setja upp svona móðins mblog á heimasíðu Símans. Þetta er reyndar vita gagslaust því þetta er hýst á einhverri síðu útí bæ. Mun skemmtilegra væri að hafa þetta á minni eigin síðu í hliðarstikunni.

Þannig að ég spyr hvort einhver hafi reynslu af þessu mblog-i og viti hvernig er hægt að gera þetta gagnlegra. Það sem mér dettur í hug:

  1. Er hægt að fá RSS skrá útúr mblog.is?
  2. Gæti ég einhvern veginn sent myndir bara beint inná mína heimasíðu í gegnum Movable Type?
  3. Er hægt að blogga í gegnum SMS með Símanum (hef séð það gert hjá OgManUnited) inná mína heimasíðu?
  4. Get ég eytt myndum útaf mblog.is?

Þetta gæti verið sniðugt dæmi ef að ég gæti einhvern veginn tvinnað þetta inní þessa heimasíðu. Hefur einhver reynslu af þessu? Veit einhver um einhverja skemmtilega fídusa, sem ég er ekki að gera mér grein fyrir?


Já, og svo legg ég til að Síminn í Kringlunni ráði fleira starfsfólk. Takk fyrir.

Ok, farinn útað hlaupa. Það er sko eins gott að það verði fáklæddar stelpur á línuskautum meðfram Ægissíðunni. Annars verð ég verulega vonsvikinn.

189 Orð | Ummæli (7) | Flokkur: Netið

Ég og iPod-inn minn

júlí 15, 2004

ipod45.jpgNúna er talið að Apple, yndislegasta tölvufyrirtæki muni kynna nýja gerð af iPod í næsta mánuði. Núverandi iPod-ar rúma 40GB af tónlist, en talið er að þeir nýju muni rúma allt að 60GB. Einnig er talið að þeir verði minni og fáanlegir í mörgum litum.

Núna er spennandi að sjá hvort að nýji iPod-inn verði nógu spennandi til þess að ég verði fársjúkur, reyni að selja iPod-inn minn og verði svo ekki í rónni fyrr en ég hef keypt mér einn af þessum nýju. Ég er nefnilega tækjasúkur.

Ég elska líka iPod-inn minn.

Ég elska hann, sennilega jafn heitt og hægt er að elska rafmagnstæki. Hann er ómissandi hluti af mínu lífi. Hann heldur mér á lífi í ræktinni og ég get varla hugsað mér ferðalög án þess að hann sé með í för. Ég hef átt hann í ár og það er hreint með ólíkindum að hugsa sér hversu miklu hann hefur breytt. Þetta litla tæki er æði.

159 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Tækni

Ungir framsóknarmenn

júlí 14, 2004

Í Íslandi í dag var viðtal við engan annan en: Formann Ungra Framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmi Suður! HA ha hahaha!

Það þarf enginn að segja mér að í því félagi séu meira en 5 félagar :-)

Uppfært: HA HA ha ha! Formaðurinn er tengdasonur Halldórs Ásgrímssonar. Það er sennilega eina leiðin til að fá ungt fólk í flokkinn. Dóttir Guðna Ágústss er líka ýkt sæt, þannig að þar mun ábyggilega bætast við annar nýr framsóknarmaður. Snilld! Framsóknarmenn eru æði.

78 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Stjórnmál

Teljarablogg

júlí 14, 2004

Sko, ég veit að allir hata bloggfærslur um tölfræði eða “vinsældir” viðkomandi bloggs. Þess vegna hef ég aldrei skrifað um slíka hluti á þessari síðu.

En samt, þá ákvað ég fyrir 3 vikum (23. júní) að setja upp teljara á síðuna. Ég hef aldrei haft teljara á síðunni áður, þannig að ég vissi ekkert hverju á átti von á. Ég veit ekki almennilega af hverju ég hef ekki haft teljara hingað til. Eflaust vegna þess að til að byrja með var ég handviss um að enginn læsi síðuna og vissi að ef ég fengi staðfestingu á því, þá myndi ég fara í fýlu og gefast upp.

Svo komu kommentin á síðuna og mat ég þá oft færslurnar á því hversu margir kommentuðu á færslur. Kommentunum hefur fjölgað með mánuðunum og núna er svo komið að á þessum tveimur árum, sem hægt hefur verið að kommenta á færslur, hafa komið um 2.050 komment á þessari síðu.

En ég varð forvitinn að vita hversu margir skoðuðu síðuna, því ég geri mér grein fyrir að það eru ansi margir sem heimsækja þessa síðu án þess að kommenta. Ég kommenta t.d. mjög sjaldan á flestum af uppáhaldssíðunum mínum. Ég hef verið að lenda í því að ólíklegasta fólk segist lesa síðuna mína.

Þess vegna setti ég upp teljara og eru niðurstöðurnar athyglisverðar. Á hverjum degi heimsækja um 320 manns þessa síðu. Flettingar hjá þessum 320 aðilum eru um 420 á dag.

Af þessum 320 koma um 25% af Nagportal og um 5% koma af leitarvélunum, Google og Leit.is. Þetta þýðir að um 220 manns að meðaltali stimpla á degi hverjum eoe.is inní vafrann sinn. Það þykir mér magnað. Eflaust eru einhverjir, sem koma oftar en einu sinni á dag, en á móti eru sennilega margir sem koma hingað 2-3svar í viku.

Þessar tölur eru umtalsvert hærri en ég átti von á, sérstaklega þar sem þessar tölur eru fyrir júlí mánuð. Ég hafði ímyndað mér að um 60-70 manns læsu þessa síðu. Þar tók ég mið af þeim, sem kommenta hérna reglulega, en sá hópur er kannski um 30 manns. Það virðist hins vegar mjög mikið af fólki, sem kommentar aldrei og er það sennilega bara fullkomlega eðlilegt.

Ok, núna er ég semsagt búinn með teljarablogg og lofa því að það verði langt í aðra slíka færslu.

382 Orð | Ummæli (3) | Flokkur: Netið

Staðhæfingar í Fahrenheit 911

júlí 14, 2004

Michael Moore listar heimildir fyrir staðhæfingar sínar í mynd sinni Fahrenheit 9/11.

Genni, þér er velkomið að kommenta :-)

19 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Kvikmyndir

Mest spiluðu lögin

júlí 13, 2004

Frá því að iTunes byrjaði að telja hversu oft maður hefur hlustað á hvert lag, þá hef ég mikið spáð í þeirri tölfræði. iTunes telur í hvert skipti sem ég hlusta á lag bæði í Makkanum mínum, sem og iPodinum mínum.

Það væri vissulega gaman að getað haft þessa statistík fyrir allt mitt líf, en því miður byrjar þessi tölfræði ekki fyrr en fyrir rúmu ári, í byrjun árs 2003. Það er hins vegar athyglisvert að skoða hvaða lög eru vinsælust hjá mér á þessu ári. Ég ætla að setja hérna inn mest spiluðu lögin frá upphafi í iTunes og fyljgast svo með því hvernig þessi listi mun breytast eftir því, sem tíminn líður. Svona lítur þetta út í júlí 2004:

  1. True Love Waits - Radiohead - 60 skipti
  2. Last Goodbye - Jeff Buckley - 50 skipti
  3. Senorita - Justin Timberlake - 50 skipti
  4. Take Me Out - Franz Ferdinand - 46 skipti
  5. Hurt - Johnny Cash - 46 skipti
  6. Cry Me A River - Justin Timberlake - 43 skipti
  7. Galapogos - The Smashing Pumpkins - 38 skipti
  8. Everything’s not lost - Coldplay - 37 skipti
  9. Reptilia - The Strokes - 36 skipti
  10. Lose Yourself - Eminem - 32 skipti

Ég veit ekki hvort ég hef áður talað um True Love Waits, en ég uppgötvaði það lag fyrir sirka ári og það er æði. Eitt af uppáhaldslögunum mínum. Sem og Last Goodbye. Bæði frábær. Það kom mér ekkert á óvart að þau skyldu vera efst. Einnig er það ekki skrítið að Reptilia og Take me Out skuli vera ofarlega. Já og náttúrulega Justin.

Uppfært: Hólí krapp, Gummijóh með snilldar skúbbb. Hann segir að Franz Ferdinand muni spila á Íslandi í desember. Það væri svoooooooo mikil schniiiiiilld. Það gæti alveg verið að ég myndi hoppa þegar þeir tækju Take Me Out! Ó hvað ég vona að þetta sé satt og rétt.

320 Orð | Ummæli (10) | Flokkur: Tónlist

Skrifaðu ræðu fyrir Bush

júlí 12, 2004

Skrifaðu ræðu fyrir George Bush. Snilld!

(via MeFi)

8 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Netið

Put your hands on the wheel...

júlí 11, 2004

Ef ég væri i ástarsorg (sem ég er sem betur fer ekki), þá myndi ég bara hlusta á Sea Change með Beck á rípít allan daginn, alla daga, allt árið. Ég elska þessa plötu.

Ég er þunnur, þreyttur og nenni ekki að gera neitt, nema að láta mig dreyma um ferðalög og hlusta á Beck og nýju plötuna með Wilco (sem er æði).

Fór útað skemmta mér í gær og komst að því að stelpan, sem var Ungfrú Ísland í fyrra, er miklu sætari í raunveruleikanum en á myndum. Finnst ykkur það ekki magnað? Ha?

Já, og fór á Pravda bar. Það hafði mér verið tjáð að væri flottasti barinn í Reykjavík og að þar inni væru “eintómar drottningar”. Ég veit að ég ætti ekki að þiggja ráð frá manni, sem kallar sætar stelpur “drottningar”, en allavegana þá voru þarna aðallega feitir kallar, sem heilla mig ekkert sérstaklega.

Æji!

Mig langar til útlanda í frí, núna. Nenni ekki að hanga hér. Er voðalega melódramatískur í dag. Vesen tengt öllum mínum málum. Fékk bréf, sem ruglaði mig í ríminu, komst að því að ég heillast af stelpum sem eru annaðhvort á föstu eða þá nýkomnar úr erfiðum samböndum, lenti í að þræta vini mína, og áttaði mig á því að ég er búinn að draga það núna í þrjá mánuði að kaupa helvítis innréttingu í eldhúsið mitt.

En mig langar semsagt til útlanda. Er að hallast að því að heimsækja vini um öll Bandaríkin, en samt er einhver partur af mér, sem langar bara að segja fokk it, pakka oní bakpoka og fara eitthvert austur á bóginn. Kannski til Úkraínu, Hvíta Rússlands eða eitthvað álíka. En mig langar bara rosalega að hitta alla háskólavinina og kónginn í Washington. Það er verst að þessir Lou Reed tónleikar eru ekki fyrr en 20. ágúst, þannig að ég get ekki farið út fyrr en í fyrsta lagi 21. ágúst. Það er alltof langt þangað til.

Put your hands on the wheel/Let the golden age begin

331 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Dagbók

Dvortsovaya torg

júlí 11, 2004

dvo.jpg

Dvortsovaya torg í St. Pétursborg

5 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Myndablogg

Camp Nou

júlí 11, 2004

campnou.jpg

0 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Myndablogg

Box og Kópavogur

júlí 9, 2004

Ég fór í Kópavoginn áðan. Þar var ekki gaman.

Í hádeginu fór ég í fyrsta skipti í box tíma. Það var æði, en ég er gjörsamlega uppgefinn. Gat varla vélritað í vinnunni, þar sem puttarnir og hnúar eru ónýtir. Mér leið einsog ég væri að vinna á skrifstofunni hans Woody Allen í Bananas. Mér leið einsog allir takkarnir á lyklaborðinu væru pikkfastir.

Og mér líður ennþá þannig og því ætla ég að hætta og fara í sólbað.

77 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Dagbók

Fahreinheit 9/11 Download

júlí 8, 2004

Núna er hægt að nálgast Fahrenheit 9/11 á netinu. Michael Moore hefur gefið það út að hann sé fylgjandi því að menn nálgist myndina á netinu ókeypis.

Fylgið bara þessum leiðbeiningum á BoingBoing. Þetta er þó utanlandsniðurhal. Myndin er þó gríðarlega vinsæl á netinu og því ætti niðurhalið að vera mjög fljótlegt með BitTorrent.

54 Orð | Ummæli (7) | Flokkur: Netið

GMAIL boðskort

júlí 8, 2004

Ég á enn eitt GMAIL invite eftir, ef einhver hefur áhuga.

11 Orð | Ummæli (1) | Flokkur: Netið

Kim-Jong Tiger

júlí 8, 2004

Þetta brjálæðislega komment minnti mig á atriði, sem ég ætlaði að fjalla um fyrir löngu. Það er gríðarlegir golfhæfileikar Kim Jong Il, leiðtoga Norður-Kóreu.

Málið er að einsog NY Times fjalla um í þessari grein, þá er Kim-Jong Il, leiðtogi Norður-Kóreu, ekki einungis mikill friðarsinni og mannvinur, heldur einnig BESTI golfspilari í heimi.

Kim-Jong Il hóf að spila golf árið 1994. Hann byrjaði vel (samkvæmt Norður-Kóreskum fréttastofum), því á fyrstu holunni sinni, þá fór hann holu í höggi. Ekki nóg með það, heldur á fyrsta hringnum fór hann holu í höggi alls fimm sinnum af 18 holum. Í lok dags hafði hann spilað þessar 18 holur á 39 höggum, sem er einmitt 38 undir pari vallarins.

Besta skorið á PGA túrnum er 59 högg, eða 20 fleiri högg en Kim-Jong Il fór á í sitt fyrsta skipti. Þannig að það er ljóst að leiðtogi Norður-Kóreu er mikið undrabarn á golfvellinum.

150 Orð | Ummæli (3) | Flokkur: Íþróttir

Stelpur og Britní

júlí 6, 2004

Ja hérna. Loksins þegar maður er kominn með framtiðarskipulagið á hreint þá fær maður þessar fréttir:

Britney er að fara að gifta sig

Hvað get ég eiginlega sagt? Ég sem var búinn að bóka það að við Britní myndum enda saman. Ég vissi varla að hún væri á föstu. Og svo er hún bara alltíeinu að fara að giftast einhverjum 26 ára gömlum dansara. Þetta er hneyksli. HNEYKSLI! Britney segir í viðtali:

“Here’s something new,” she said. “I love cleaning, I really do. I’m like Suzy Homemaker. I’m starting to learn how to cook. … I’m learning how to make all my mom’s salads. I definitely want to have some kids; I see myself with four or five,”

Já, það er kominn tími á barneignir enda er Britney alveg orðin 22 ára gömul. Barneignir mega ekki bíða mikið lengur. En þetta er allavegana sorgardagur. Núna verð ég að finna einhverja stelpu til að koma í stað Britney! Það verður ekki auðvelt að fylla hennar skarð.


Annars fannst mér þessi færsla hjá Soffíu vera virkilega sniðug. Ég leyfi mér að kvóta:

Ég skil ekki veröldina. Hversu oft hef ég ekki eytt klukkustundum saman í að hafa mig til fyrir djamm. Velja nógu þröng og efnislítil föt, spegla mig rækilega, slétta hárið, mála mig, allt í þeim tilgangi að vera sæt og sexý fyrir karlpeninginn. En allt kemur fyrir ekki og maður veltir því fyrir sér hvort maður sé kannski ósýnlegur? Í gærkvöldi var ég hins vegar í hversdagsfötum og lítið tilhöfð - enda ekki ætlunin að djamma neitt. Við Valla fórum í bíó á Mean Girls og kíktum svo á Hverfisbarinn. Jeminn eini, við áttum ekki til orð. Við fengum svo þvílíka athygli að það hefði mátt halda að við værum einu stelpurnar á svæðinu (svo var auðvitað ekki, fullt af gellum í efnislitlum fötum sveimandi um staðinn). Í þokkabót var athyglin ekki frá ljótum lúðum (eins og manni finnst allt of oft) heldur frá þvílíkt myndarlegum gæjum sem blikkuðu okkur hægri vinstri. Þetta var að sjálfsögðu gott fyrir egóið en ég var bara svo hissa, sérstaklega er ég leit í spegil og sá súkkulaðiklessu á bolnum mínum. Kannski eru stelpur bara að misskilja allt saman? Það er ekki brjóstaskoran og tíu lög af maskara sem blíva? Eða hvað?

Ég veit ekki hvort heillar mig meira að stelpur séu stífmálaðar, eða þá bara eðlilegar á djamminu. Ef stelpan er sæt, þá skiptir málningin svosem litlu. Það sem mér fannst fyndið var setningin um blikkið. Er þetta í alvöru að gerast að strákar séu að blikka stelpur á djamminu? Mér fannst þetta hljóma einsog úr einhverri gamalli bandarískri bíómynd. Ætli strákarnir hafi líka flautað?

Allavegana, ég held að ég hafi aldrei blikkað ókunnuga stelpu. Hélt að það myndi ekki virka. Kannski maður ætti að prófa þetta. Ég stóð í þeirri trú að slíkt myndi ekki vekja mikla hrifningu hjá stelpum. En kannski hefur það breyst. Já, og svo verð ég líka að læra að flauta almennilega. :-)

By the way, fæ ég ekki einhver verðlaun fyrir að hafa fundið þessa fáránlega sætu mynd af Britní? Ég meina vá! Váááááááá!

518 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Netið

Enskukunnátta Davíðs

júlí 6, 2004

Jens bendir á fréttamannafund Davíðs og Bush. Þar kom í ljós að hann Davíð okkar er bara svona ljómandi sleipur í ensku.

Það er náttúrulega ljótt að gera grín, en þar sem forsætisráðherrann brosti að öllum Íslendingum og sagði það snilld að hafa leikið á okkur, þá á hann alveg skilið smá skot tilbaka :-)

Mæli allavegana með færslunni.

Uppfært: Jæja, þetta hljómaði nú aðeins betur í sjónvarpinu. Hann var ekki alveg jafn slæmur og það virkaði í handritinu. Já, og minni fólk á að kommenta undir nafni.

88 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Stjórnmál

Einar Örn tekur til í ríkisfjármálum

júlí 5, 2004

Ég líð gríðarlegar þjáningar í hverjum mánuði þegar ég sé hversu mikill hluti af tekjum mínum fer í skatta.

Þess vegna er mér annt um að spara í ríkisfjármálum. Ólíkt Sjálfstæðisflokknum, sem bara vilja minnka tekjurnar, þá vil ég líka minnka gjöldin. Nú hef ég fengið byltingarkennda hugmynd til sparnaðar í ríkisfjármálum:

Segjum upp öllum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, nema Davíð.

Þetta er svo snjallt að það er ekki fyndið. Davíð myndi einfaldlega fá 22 atkvæði á Alþingi og gæti því klárað öll mál einn. Hugsið aðeins útí þetta.

Hverju myndi þetta breyta?

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru alltaf allir sammála Davíð! Alltaf! Sama hversu málstaður Davíðs er slæmur. Til hvers að borga 22 mönnum laun fyrir það eitt að segja “já og amen” þegar Davíð leggur eitthvað fram? Eini munurinn er að þá þyrftum við ekki að hlusta á Einar K. Guðfinnson og Guðlaug Þór hylla allt sem Davíð gerir. Davíð myndi bara sjá um þetta allt.

Sjáiði bara þetta kvót hjá Einari K. um umræður í þingflokkinum um breytingarnar á fjölmiðlalögunum:

“Það tjáðu sig mjög margir og allir voru mjög ánægðir og sáttir við niðurstöðuna.”

Þannig að í þessu umdeildasta máli síðari ára eru allir jafn ánægðir og sáttir þegar ríkisstjórnin hrifsar frá þjóðinni vald hennar til að greiða atkvæði. Ekki einn stóð upp og sagði eitthvað neikvætt. Neibbs, Davíð var búinn að gefa fyrirskipunina.

Þessi tillaga mín myndi líka spara tíma. Næst þegar Davíð fengi snilldar hugmynd þá myndi það ekki taka heila þrjá daga þangað til að lagafrumvarpið er tilbúið, heldur gæti Davíð bara klárað þetta heima hjá sér á einu kvöldi. Ég hreinlega get ekki séð neina ókosti við þessa tillögu mína. Þetta myndi spara milljónir.

Uppfært (eftir fréttagláp, Ísland í Dag og Kastljós):

  • Steingrímur J. er snillingur! Bæði fyrir að láta Halldór Blöndal ekki vaða yfir sig og svo þegar hann tók Geir í nefið á Stöð 2. Málið er að Steingrímur trúir á málstað sinn, en Geir er að verja málstað Davíðs. Maður sér að Geir er ekki rólegur þegar hann er að verja málstað, sem hann veit að er slæmur.

  • Einnig: Ætti ekki að gefa Guðna Ágútssyni einhver verðlaun fyrir að hafa bullað nær stanslaust í gegnum heilan Kastljósþátt? Hann ætlaði alveg að snappa þegar Kristján í Kastljósinu saumaði að honum. Kristján er hetja. Hann er búinn að vaxa í áliti hjá mér aftur eftir Davíðsviðtalið.

  • Heldur einhver virkilega að þetta hafi snúist um 5% og 10%? Eru menn alveg veruleikafirrtir?

  • Getur ríkisstjórnin hugsanlega minnkað enn frekar í áliti hjá mér? Ég bara trúi því ekki! Davíð kallaði lausnina snjalla. Hann var glaður útaf því að honum fannst hann hafa snúið á þjóðina.

  • Hvernig nenni ég að láta þessa menn fara í taugarnar á mér. Ég á að vita betur en svo að gera einhverjar væntingar til míns gamla flokks.

  • Guði sé lof fyrir að Davíð er að hætta. Verst að Halldór er alveg jafn slæmur.

486 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Stjórnmál

Kæri Davíð

júlí 5, 2004

Kæri Davíð,

Við erum ekki öll hálfvitar.

Með kveðju,

fyrir hönd íslenskra kjósenda
Einar Örn Einarsson

16 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Stjórnmál

100 Undur Veraldar (uppfært)

júlí 4, 2004

Ég er ofboðslega veikur fyrir heimasíðum um ferðalög og spennandi staði. Ég á sumarfrí í enda ágúst og er ég því farinn að spá í því hvað ég ætli að gera í því fríi. Allavegana fer ég ekki til Mallorca eða Benidorm :-)

Ég rakst á þessa frábæru síðu (via Batman). Þarna eru listuð 100 helstu undur veraldar. Auðvitað er hægt að þræta um hvaða staðir eiga heima á þessum lista en þetta er nokkuð skemmtilegur listi.

Mér finnst ég alltaf hafa ferðast mikið um ævina, en ég á greinilega mikið eftir, því ég hef bara komið á 11 af þessum 100 stöðum. Þeir staðir, sem ég hef komið á eru eftirfarandi:

6 Machu Picchu - Perú
7 Iguazu Falls - Argentína og Brasilía
9 Amazon Rain Forest - Suður Ameríka
17 Acropolis - Grikkland
21 Teotihuacan - Mexíkó
47 Metropolitan Museum of Art - New York
48 Útsýni yfir Rio De Janeiro
68 St. Basil’s Cathedral - Moskva
71 Kremlin - Moskva
73 Skýjakljúfar New York
88 Frelsisstyttan - New York

Mig vantar greinilega nauðsynlega að komast til Parísar (þar sem fjórir staðir eru), Ítalíu (þar sem heil 12 undur eru staðsett: 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12) og svo til Asíu, þar sem ég hef ekkert ferðast.

Á listanum er fullt af stöðum, sem mig langar gríðarlega mikið að heimsækja. Ég tók saman þá helstu, sem ég er mest spenntur yfir að heimsækja.

  1. Píramídarnir í Egyptalandi
  2. Taj Mahal
  3. Grand Canyon - það er meira að segja sjens á að ég sjái það í sumar.
  4. Angkor Wat í Kambódíu
  5. Mecca - Sennilega síðasti staðurinn sem ég mun heimsækja, þar sem maður á það á hættu að vera tekinn af lífi ef maður er ekki múslimi. Það gæti reynst vandamál.
  6. Bagan hofin í Búrma/Myanmar
  7. Yangtshe áin í Kína
  8. Potala Höllin - Tíbet
  9. Ladakh - Indland
  10. Kathmandu dalurinn - Nepal
  11. Páskaeyja - hefðum við bara átt aðeins meiri pening þegar við ferðuðumst um Suður-Ameríku, þá hefðum við lagt í ferðir á Galapagos og Páskaeyju. Því miður varð ekkert úr því.
  12. Great Barrier Reef - Ástralía
  13. Viktoríufossar í Zimbabwe
  14. Dubrovnik - Króatía
  15. Mont-St-Michel

Í sumarfríinu er ég að spá í að fara til Bandaríkjanna. Það eru vissulega staðir sem mig langar að fara meira á í augnablikinu, en þar sem ég er enn single þá er sniðugast að fara til USA, þar sem ég á fullt af vinum þar sem ég get heimsótt. Þrátt fyrir að það sé fínt að ferðast einn, þá er það oft skemmtilegra að hitta gott fólk á leiðinni. Einnig get ég fengið fría gistingu í fulltaf borgum, sem hjálpar náttúrulega :-)

Ef ég fer til Bandaríkjanna ætti ég að getað séð þrjá nýja hluti á þessum lista: Las Vegas, Grand Canyon og San Fransisco


Uppfært (13.janúar 2005): Jæja, eftir Bandaríkjaferð síðasta haust þá er ég kominn uppí 14 af 100. Listinn er því orðinn svona (við hann hafa bæst Las Vegas, Grand Canyon og San Fransisco).

4 Grand Canyon
6 Machu Picchu - Perú
7 Iguazu Falls - Argentína og Brasilía
9 Amazon Rain Forest - Suður Ameríka
17 Acropolis - Grikkland
21 Teotihuacan - Mexíkó
47 Metropolitan Museum of Art - New York
48 Útsýni yfir Rio De Janeiro
68 St. Basil’s Cathedral - Moskva
71 Kremlin - Moskva
73 Skýjakljúfar New York
85 San Fransisco & Flóasvæðið
88 Frelsisstyttan - New York
96 Las Vegas að næturlagi

Allir þessir þrír staðir eiga svo sannarlega skilið að vera á listanum. Flóasvæðið í San Fransisco er með fallegustu stöðum, sem ég hef séð. Las Vegas er einstök upplifun og Grand Canyon nær ólýsanlegt.


Uppfært (8.febrúar 2005): Jæja, þá er ég kominn uppí 15. Við bættist:

15 Prague old town

Sjá ferðasögu hér.


Uppfært (30.maí 2005): Kominn uppí 17. Við bættist:

48 Hagia Sofia
75 Topkapi Palace

Sko, Topkapi höllin er alveg á mörkunum. Ég fór inní höllina og skoðaði mig aðeins um, en var þarna samt mjööög stutt. Set hana samt inn.

Sjá ferðasögu hér.

679 Orð | Ummæli (11) | Flokkur: Ferðalög

GMail boðskort

júlí 4, 2004

Þar sem ég er snillingur, þá á ég 4 stykki GMail invite. Er nú þegar búinn að gefa yfirnördunum í mínum vinahóp 2 stykki og á nú 4 eftir.

Þannig að ef þig langar í GMail reikning, smelltu þá þínu kommenti í ummælin við þessa færslu.

Annars er ég enn að velta því fyrir mér hvort ég eigi að losa mig við simnet.is reikningana og skipta alveg yfir í GMail. Nýja póstfangið mitt er allavegana: einarorn ( hjá ) gmail.com

80 Orð | Ummæli (5) | Flokkur: Netið

Fahrenheit 9/11

júlí 3, 2004

Einsog ég hef minnst á, þá fór ég og sá Fahrenheit 9/11 á þriðjudaginn. Sá myndina klukkan hálf ellefu í kvikmyndahúsi í Houston, Texas. Og biðröðin inná myndina náði nánast í kringum kvikmyndahúsið. Þannig að jafnvel í ríki George Bush er áhuginn á myndinni gríðarlegur.

Gagnrýnin sem ég hafði lesið og séð um myndina er fáránleg, sérstaklega þar sem flestir íhaldssamir gagnrýnendur höfðu alls ekki séð myndina áður en þeir hófu gagnrýnina. Margir halda því fram að Moore hati Bandaríkin og sé á móti hermönnum, en sennilega er fátt jafn fjarri sannleikanum. Moore elskar Bandaríkin meira en allir þessir “ditto-hausar”, sem samþykkja skilyrðislaust allt sem Bush segir og gerir. Honum er einfaldlega mikið í mun um að landið breytist til batnaðar. Alveg einsog mörgum Evrópubúum, þá blöskrar Moore hvernig Bush og hans félagar hafa farið með stjórn landsins. Fahrenheit 9/11 er beitt gagnrýni á Bush og bandarísk stjórnvöld, en jafnframt óður til bandarísku þjóðarinnar og ákall til hennar um að koma Bush frá völdum

Myndin er snilld.


Einsog Paul Krugman bendir á í pistli sínum, þá hefði myndin verið mun betri ef Moore hefði einfaldlega sleppt samsæriskenningum sem koma fram í myndinni. Í aðdraganda frumsýningu myndarinnar var mikið gert úr fullyrðingum Moore um samskipti Bush og Bin Laden, auk samstarfs fyrirtækja tengdum Bush við Sádi Arabíu. Ég veit ekki hvort þær eru allar sannar, en sennilega er hægt að finna einhverjar staðreyndavillur í þeim kenningum. Á þeim forsendum hafa margir gert lítið úr myndinni. Þeir, sem einblýna hins vegar á þær villur eru algjörlega að missa af boðskapi myndarinnar.

Myndin er nefnilega hárbeitt gagnrýni á Bush og það ástand, sem hann hefur skapað undanfarin ár. Hún sýnir okkur afleiðingar gjörða Bush. Allt frá hnignun ameríska hagkerfisins til þeirra þjáninga, sem aðgerðir hans hafa ollið öðrum þjóðum og hans eigin þegnum.


Moore fjallar stuttlega um kosningarnar árið 2000 og eftirmála þeirra, sem voru hneyksli enda vann Al Gore kosningarnar einsog allir vita. Hann fjallar svo um þann fáránlega mikla tíma sem Bush eyddi í fríi fram að 11. september. Á þeim áhrifaríka degi sýnir Moore mjög áhrifaríkt 8 mínútna myndband, þar sem Bush situr með krökkum og les uppúr bók í 7 mínútur eftir að það er hvíslað að honum að seinni flugvélin hafi flogið á WTC turnana. Í sjö mínútur starir Bush útí loftið í stað þess að gera eitthvað. Á meðan að farþegar voru að berjast við hryðjuverkamenn í flugvél yfir Pennsylvaníu, starði Bush útí loftið. Þannig að allt blaður um hversu hugaður Bush hafi verið þann 11. september er afsannað með þessu ágæta myndbandi.

Eftir 11.september dregur Moore svo saman margar af þeim fáránlegu fréttum, sem komu út um alls konar hættur sem áttu að steðja að Bandaríkjunum, svo sem um springandi penna, anthrax og allt það bull. Ég bjó í Bandaríkjunum á þessum tíma og veit vel hvernig ástandið var. Á hverjum degi var búin til ný frétt um að það væri varla hægt að fara útúr húsi án þess að rekast á meðlim Al-Quaeda, sem vildi drepa mann. Auðvitað þjónar þessi hræðsla tilgangi yfirvalda. Því ef fólkið er hrætt er hægt að fá það til að fórna ýmsum borgaralegum réttindum. Þessi hræðsluáróður tengist svo innrásinni í Írak og minnkandki borgaralegum réttindum Bandaríkjanna.


Moore er einnig ennþá trúverðugur verjandi lítilmagnans í Bandaríkjunum. Einsog í öðrum myndum sínum dregur hann upp mynd af ástandinu í Bandaríkjunum og vísar oft til heimabæjar síns í Michigan fylki. Þar sýnir Moore hvernig það eru þeir allra fátækustu eru ávallt þeir fyrstu, sem bjóða sig fram í herinn. Þar sem ekki er herskylda í Bandaríkjunum, þá auglýsir herinn sig í sjónvarpi með loforðum um að borga fyrir háskólamenntun. Þannig að þeir ríkustu í Bandaríkjunum hafa lítið með herinn að gera því þeir borga einfaldlega fyrir sig sjálfir.

Fyrir þá fátækustu er hins vegar herinn oft eina leiðin til að fólk geti menntað sig. Í áhrifaríkum atriðum í myndinni slæst Moore í för með tveimur hermönnum þegar þeir reyna að fá fólk til að ganga í herinn. Þeir ákveða að fara ekki í flotta “mall-ið”, heldur aðeins “mall-ið” í fátækari hluta borgarinnar.

Það er áberandi í Fahrenheit 9/11 hversu lítið áberandi Moore er. Ólíkt fyrri myndum er hann nánast aldrei sýnilegur. Þó fer hann á kostum í tveimur atriðum fyrir utan þinghúsið, sérstaklega þegar hann reynir að fá þingmenn til að senda syni sína í herinn til að berjast í Írak.


Áhrifaríkust eru þó atriðin, sem sýna betur en nokkur tölfræði, þær þjáningar sem stríðið í Írak hefur valdið. Moore tekur fyrir nokkur mannleg dæmi í stað þess að telja upp tölfræði, sem við erum öll ónæm fyrir.

Í fyrsta lagi sýnir Moore nokkrar af svakalegustu fréttamyndunum frá Írak. Það er auðvelt að láta þessar fréttamyndir líða framhjá sér þegar maður er heima í stofu, en þegar þeim er varpað uppá bíótjald, þá getur maður ekki forðast það að horfa í augu við hörmungarnar. Ég varð að líta undan nokkrum sinnum í myndinni og ég sá aðra gesti gera það líka. Mjög áhrifaríkt er líka þegar Moore fer beint frá stríðsmyndunum yfir á skot á Britney Spears, sem á ábyggilega heimskulegasta komment allra tíma, en sem lýsir afstöðu alltof margra. Einnig talar Moore við hermenn, sem skilja ekki tilganginn í stríðinu og eru svekktir yfir því að vörubílstjórar frá Halliburton séu með margölf laun á við hermenn.


Hin hliðin á stríðshörmunginni er svo fátæk móðir í Michigan, sem missir son sinn í Írak. Moore fylgist með henni allt frá því að hún reynir að réttlæta stríðið yfir í það að hún missir son sinn og smám saman allan skilning á tilgangi stríðsins. Það eru gríðarlega áhrifaríkar stundir í myndinni þegar Moore fylgir móðurinni eftir, þar sem hún reynir að sjá einhvern tilgang í því að sonur hennar hafi dáið í tilgangslausu stríði.


Semsagt, myndin er frábær. Mæli með henni fyrir alla. Já já, hún er áróður, en Moore viðurkennir það líka. Það dregur samt ekkert úr áhrifamætti myndarinnar, sem sýnir hverjir það eru sem þjást útaf stríðsrekstri og stefnum Bush. Á meðan hans vinir græða eru það þeir, sem verst standa í Bandaríkjunum, sem þjást.

Eflaust er hægt að finna einhverjar staðreyndavillur í myndinni, en þær draga ekki úr áhrifamætti boðskaparins.

Ég grét, hló og hneykslaðist. Salurinn stóð upp og klappaði. Frábær mynd!

1040 Orð | Ummæli (5) | Flokkur: Kvikmyndir

Hótel Útsýni

júlí 2, 2004

houstonnott.jpg

Houston að kvöldi til. Séð frá svölunum á hótelinu, sem ég gisti á.

13 Orð | Ummæli (3) | Flokkur: Myndablogg

Í lyftu

júlí 2, 2004

lyftumynd.jpg

0 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Dagbók

Þinghúsið í Búda Pest

júlí 2, 2004

thinghusbudapest.jpg

0 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Myndablogg

Hafnarstræti lokar

júlí 2, 2004

Við erum búnir að loka Serrano Hafnarstræti, einfaldlega vegna þess að staðurinn var ekki að skila hagnaði. Fyrir tveim vikum var ég frekar dapur útaf þessu og skrifaði eftirafarandi færslu, sem ég ætla að birta núna.


Við erum búin að loka Serrano Hafnarstræti.

Staðurinn gekk einfaldlega ekki nógu vel. Kringlan gengur mjög vel en þrátt fyrir margar tilraunir, þá var salan í Hafnarstræti aldrei nóg. Við ákváðum því að loka Hafnarstræti og einbeita okkur að því að styrkja staðinn í Kringlunni enn frekar.

Þetta er náttúrulega ein af ástæðunum fyrir því að þessi síða hefur ekki verið uppfærð lengi. Maður hefur verið eilítið þunglyndur og stressaður yfir þessu, en þetta er samt ekkert stórmál. Ég nenni varla að tala um þetta og ætlast ekki til að nokkur manneskja vorkenni mér.

Það er alveg ljóst að það hefur nánast allt, sem getur farið úrskeiðis, farið úrskeiðis í Hafnarstræti. Í fyrsta lagi voru gæðin á matnum aldrei þau sömu í Hafnarstræti og í Kringlunni. Þannig að ef þú hefur bara borðað á Serrano í Hafnarstræti, mæli ég með því að þú kíkir á Kringluna. Við áttum í erfiðleikum með eldunartæki þarna ásamt fleiru. Þetta var komið í ágætis lag uppá síðkastið, en þetta var samt aldrei eins. Gæðin á matnum voru aldrei þau sömu og í Kringlunni.

Ég veit samt ekki hverju maður á að kenna að staðurinn gekk ekki, nema náttúrulega því að við höfum gert fullt af mistökum í þessu öllu. En ef eitthvað er ljóst, þá er það að ég hef lært alveg gríðarlega mikið á þessu ævintýri í miðbænum.

Þó er það viss léttir núna þegar við erum búnir að loka. Við Emil hreinsuðum mestallt dótið útaf staðnum í dag og ég verð að segja að mér líður vel. Ég er í gríðarlega krefjandi starfi frá “9 til 5” en samt, þá hafa 95% af öllum áhyggjum í mínu lífi snúist um þennan ágæta stað í Hafnarstræti. Núna líður mér dálítið einsog þungu fargi hafi verið af mér létt. Kannski ég geti farið að gefa aðeins meira af mér til vina og ættingja núna þegar þessi staður fyllir ekki hugsanir mínar allar stundir.

Ég vil bara þakka viðskiptavinunum okkar. Starfsfólkið talaði ávallt um að það væri sama fólkið, sem kæmi aftur og aftur að borða í Hafnarstrætinu, hvort sem það var á djamminu eða í vinnunni. Við erum þakklátir fyrir viðskiptin og vonum að þetta fólk sjái sér fært að sækja staðinn okkar í Kringlunni. Þar verður tekið vel á móti ykkur.


Ég er ekki bitur útí neitt, en samt veltir maður ýmsu fyrir sér. Í fyrsta lagi þá mætti R-listafólk horfa duglega í spegil og reyna að sannfæra sjálft sig um að miðbærinn sé á réttri leið. Það koma dagar, sem það er ekkert af fólki í miðbænum. Einu stundirnar, sem það var virkilega mikið af fólki er á djammtímunum eftir miðnætti föstudaga og laugardaga. Á öðrum tímum, sérstaklega á veturna, er bærinn alveg svakalega dauður. Það þarf að gera eitthvað.

Eitt af fyrstu skrefunum er að gera eitthvað við Lækjartorg. Þetta torg er gersamlega dautt á virkum dögum. Fyrsta skrefið væri að fjarlægja þessa forljótu pulsu- og pizzuvagna, sem eru bara opnir um miðjar nætur. Þeir eru lýti á þessu torgi. Þegar það er búið ætti að endurskipuleggja torgið til að reyna að skapa þar eitthvað líf. Segafredo kaffistaðurinn er pottþétt skref í rétta átt. Það er vissulega gaman að sjá einhverja aðra en róna sitja við torgið.

Rónar eru líka gríðarlega mikið vandamál við miðbæinn. Ég labba þarna um torgið á nánast á hverjum degi en nánast eina fólkið, sem ég mæti á bekkjunum við Lækjartorg. eru rónar. Bekkirnir eru nær alltaf skítugir og ekki mjög sjarmerandi fyrir fólk að setjast niður.

Það er í raun svo margt sem þarf að laga við miðbæinn til að hann deyji ekki endanlega. Við vitum það mjög vel eftir að hafa rekið veitingastað í Kringlunni og miðbænum hversu svakalega mikill munur er á traffík á þessum stöðum. Og það er ekkert sem bendir til þess að það hlutfall muni batna, miðbænum í hag.

En alls, alls ekki taka þetta sem ég vilji kenna öðrum um slæmt gengi staðarins. Fyrir það tökum við alla sök á okkur. Sumir skyndibitastaðir virka þarna, aðrir ekki. Nonnabiti og Hlöllabátar ganga vel, þar sem fólk sækir þá á næturna. Einnig Bæjarins Bestu og staðir sem selja hamborgara og pizzur. Þannig er kannski skyndibita-matarmenningin hjá fólki í miðbænum. Algengasta spurningin, sem við fengum á Serrano á 17. júní var: “Seljiði franskar kartöflur?” Það fólk saknar greinilega McDonald’s, sem þó gekk ekki í miðbænum, þar sem það er einfaldlega ekkert af fjölskyldufólki í bænum. Fjölskyldufólkið er í Kringlunni eða Smáralind.


Auðvitað er partur af ástæðunni fyrir slæmu gengi einfaldlega sá að það er ekki nóg af fólki í miðbænum, en það vissum við svosem fyrir, en áttum samt von á meiri umferð. Okkur tókst bara ekki að höfða nógu vel til fólks.

En maður hefur lært af þessu og það þýðir ekki að hugsa um hvað maður hefði átt að gera. Það besta, sem maður getur gert í viðskiptum, er að reyna að læra af mistökunum. Ég hef allavegana lært ansi margt um viðskipti, mannleg samskipti og sjálfan mig, við rekstur staðarins í Hafnarstræti. Núna einbeitum við okkur að því að styrkja staðinn í Kringlunni og erum með fullt af hugmyndum um hvernig við getum styrkt okkur enn frekar í samkeppni við þrjár stærstu skyndibitakeðjur í heimi, sem eru við hliðiná okkur á Stjörnutorgi.

Hafnarstrætið bara gekk ekki upp, en einsog einhver sagði, það gengur bara betur næst. :-)

924 Orð | Ummæli (3) | Flokkur: Vinna

Skúlptúr

júlí 1, 2004

guggenheimspider.jpg

Skúlptúr fyrir utan Guggenheim safnið í Bilbao

7 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Myndablogg

Kerti í dómkirkju í Barcelona

júlí 1, 2004

kertibarcelona.jpg

0 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Myndablogg

Houston

júlí 1, 2004

Ég veit ekki hvurslags djöfulsins væl þetta var í mér fyrir ferðina til Houston. Mér fannst þetta vera svo mikið ferðalag fyrir stutt stopp en þegar allt kom til alls var þetta bara dásamlega fín ferð.

Fyrir það fyrsta borðaði ég æðislegan mat. Á sunnudaginn borðaði ég á uppáhalds veitingastaðnum mínum í öllum heiminum, California Pizza Kitchen. Þar fékk ég unaðslega BBQ Chicken Pizzu, sem ég var búinn að sakna alveg hrikalega mikið frá því ég bjó í USA. Svo fór ég líka á ekta mexíkóskan veitingastað (ekki texmex rusl) og fékk tacos al pastor, sem ég hef varla fengið síðan ég bjó í Mexíkó. Jesús, hvað það var gott. Æði að fara á alvöru mexíkóskan mat, þar sem maður fær alvöru margarítu með klaka (ekki frosið margarítu mix einsog á flestum stöðum).


Allavegana, við vorum að heimsækja birgja í Houston og voru móttökurnar alveg frábærar. Það var skipulögð dagskrá allan tímann, alveg frá morgni til kvölds. Fundirnir voru skemmtilegir, sem hjálpar alltaf og svo heimsóttum við verksmiðjur og verslanir.

Houston er skrítin borg. “Ten shopping malls in search of a city” sagði einhver og það er eiginlega rétt. Það eru í raun engin lög um skipulagningu borgarinnar, þannig að verksmiðjur eru settar inní mið íbúðarhverfi og því er miðbærinn frekar daufur. Einnig er borgin í raun bara eitt úthverfi.

Hitinn var fáránlegur og rakinn bætti ekki beint á ástandið. En í Houston er allt loftkælt í botn og því lifði maður þetta af. Ég sá í raun ekki mikið af borginni, enda er svosem ekki mikið að sjá. Þetta er típísk amerísk borg, með lítinn kjarna með mjög háum byggingum og svo endalausum úthverfum. Við gistum á æðislegu hóteli, sem var við hliðiná einni stærstu verslunarmiðstöð í Bandaríkjunum.

Það hefur svosem ekki mikið breyst í Bandaríkjunum. Kanar eru ennþá jafn fáránlega feitir, SportCenter er enn snilld, Fox News er enn jafn fáránlega íhaldssöm og Bill O’Reilly er enn sami lofthaus og hann var fyrir tveim árum.

Stelpur í Texas eru sætar, svei mér þá talsvert sætari en stelpur í Chicago. Fólkið í Texas er líka fáránlega nice. Allir elska George Bush og allir elska Texas. Það er eiginlega hálf erfitt að verða ekki dálítið mikinn skotinn í Texas. Það eru bara allir svo indælir, allir brosa til manns og spyrja hvernig maður hafi það. Og allir virðast vera blessurnarlega lausir við það að vera falskir. Einhvern veginn finnst mér einsog hægt væri að finna 10 milljón Texas búa, sem yrðu miklu betri forsetar en GWB.

Og talandi um W, þá fór ég og sá Fahrenheit 9/11. Hún er góð, en ég ætla að fjalla um hana í sér færslu.


Allavegana, þá var þetta góð ferð. Frábærar móttökur hjá birgjanum, góður matur, gott veður og skemmtilegt fólk.

Já, og svo var ég tekinn í tékk í tollinum. Og viti menn, eftir 165 tilraunir, þá loksins fann tollurinn eitthvað hjá mér. Ég gleymdi nefnilega að ég var með pela af gini í töskunni, sem ég hafði keypt á leiðinni út. 18 ára gamall tollari virtist í skýjunum yfir því að hafa upplýst þetta stórkostlega smygl og því var ég sektaður um 1.750 krónur og flaskan tekin af mér.


Svo kemur maður heim og Holland er dottið úr leik á EM og Gerrard hefur lýst því yfir að hann verði áfram hjá Liverpool! Mikið var það gott. Núna held ég með Milan Baros og Tékklandi. Vonandi vinna þeir þetta. Tékkarnir eiga það skilið.

571 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Ferðalög


Warning: readfile() [function.readfile]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2004/07/index.php on line 2305

Warning: readfile(http://www.eoe.is/hlid.dat) [function.readfile]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2004/07/index.php on line 2305