Warning: include() [function.include]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2004/11/index.php on line 149

Warning: include(http://www.eoe.is/tilkynning.dat) [function.include]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2004/11/index.php on line 149

Warning: include() [function.include]: Failed opening 'http://www.eoe.is/tilkynning.dat' for inclusion (include_path='.:/usr/share/php5:/usr/share/php') in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2004/11/index.php on line 149

« október 2004 | Main | desember 2004 »

500 bestu lög allra tíma

nóvember 30, 2004

Rolling Stone eru búin að gefa út lista yfir 500 bestu lög allra tíma að þeirra mati. Þetta er svosem sæmilega “predictable” listi. Þarna er fullt af skemmtilegum lögum og alver heill hellingur af leiðinlegum lögum.

Svona er t.d. topp 10

  1. Like a Rolling Stone - Dylan
  2. Satisfaction - Stones
  3. Imagine - John Lennon
  4. What’s going On - Marvin Gaye
  5. Respect - Aretha Franklin
  6. Good Vibrations - Beach Boys
  7. Johnny B. Goode - Chuck Berry
  8. Hey Jude - The Beatles
  9. Smells Like Teen Spirit - Nirvana
  10. What’d I Say - Ray Charles

Þarna er náttúrulega æðislegt Dylan lag, (að mínu mati) leiðinlegt Stones lag, æðislegt Beach Boys lag, hundleiðinlegt Chuck Berry lag og svo mjög góð lög með Lennon, Bítlunum, Nirvana og Ray Charles.

Fyrir langa löngu gaf ég út lista með mínum 10 uppáhaldslögum. Af mínum lista komast eftirfarandi lög inná Rolling Stone listann: Ziggy Stardust 277, Free Bird 191 (eru þeir klikkaðir???) og Wish you were here 316. Það er hins vegar ekkert pláss fyrir Oasis, Smashing Pumpkins, Dr. Dre, Molotov og Jeff Buckley, sem voru á mínum lista.

Sem er náttúrulega hneyksli. :-)

Listinn er uppfullur af mjög gömlum lögum, en lítið af nýjum lögum. Þar á meðal eru nokkur stórkostlega leiðinleg lög á topp 100, einsog “I want to hold your hand” með Bítlunum, “Hound Dog” með Presley, “Be My baby” með Ronettes (öll lög í Dirty Dancing ættu að vera dæmt umsvifalaust úr leik), “Tutti Frutti” með Little Richard og “She Loves You” með Bítlunum. Kannski er bara tónlist áður en Dylan og Bítlarnir komu fram almennt séð leiðinleg.

Já, og hvernig endar Tangled up in Blue númer 68? Hvernig fá þeir út að Be My Baby sé betra lag? HVERNIG? Æ, maður á svosem ekki að vera að pirra sig yfir þessu.

308 Orð | Ummæli (17) | Flokkur: Tónlist

Davíð og Geir byrjaðir að hækka skatta

nóvember 30, 2004

Jammm, Davíð og Geir eru strax byrjaðir að hækka skatta eftir að hafa boðað skattalækkanir. En auðvitað er þetta bara áfengisgjald á sterk vín og það vita allir að við, sem drekkum gin, vodka, koníak eða aðra slíka drykki erum hvort eð er bara fyllibyttur, sem höfum ekki gott af því að vera að drekka. Þess vegna eru þessar skattahækkanir gríðarlega góðar fyrir okkur öll. Ekki satt?

Athyglisvert að þetta er klárað á einu kvöldi inní þingi. Íhaldið vill fá meira lof fyrir skattalækkanir, en reynir svo að þagga niður skattahækkanir.

91 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Stjórnmál

Afturhaldskommatittsflokkur

nóvember 29, 2004

Ja hérna, Davíð er aftur kominn í ham eftir veikindin. Hver fer í taugarnar á honum í dag?

Jú, Samfylkingin. Samkvæmt Davíð þá er Samfylkingin “afturhaldskommatittsflokkur” Spurning um að fá álit Davíðs á því hvað Vinstri Grænir eru þá?

En ástæðan fyrir því að Samfylkingin er “afturhaldskommatittsflokkur”? Jú, Samfylkingin vill ekki að Ísland styðji árásastríð, sem eru háð á fölskum forsendum. Eflaust gæti maður skrifað pistil um hversu dónalegur og úr takti við samfélagið Davíð er. En ég nenni því ekki. Tekur einhver mark á Davíð þegar hann talar um Írak hvort eð er?

94 Orð | Ummæli (8) | Flokkur: Stjórnmál

Matarboð

nóvember 28, 2004

Nýja U2 platan er gargandi snilld. Einu sinni þótti mér flott að kalla U2 leiðinlega hljómsveit, en í dag eru þeir æði. Síðustu tvær plötur eru frábærar.


Er búinn að vera í tveim massívum matarboðum síðustu tvo daga. Fór í jólahlaðborð með vinnunni í Skíðaskálanum á föstudagskvöld. Ég er ekki mikið fyrir þessi jólahlaðborð, en steikarborðið reddaði mér fyrir horn.

Fór svo í bæinn með fulltaf fólki úr vinnunni. Val á skemmtistöðum var vægast sagt einkennilegt fyrir djamm hjá mér. Byrjaði á einhverjum stað, sem heitir víst Vínbarinn og er rétt hjá Skólabrú. Fór síðan á Thorvaldsen. Á báðum stöðum leið mér einsog ég væri yngsti einstaklingurinn þar inni. Jú, það var geðveikt sæt stelpa að bera fram drykki á Thorvaldsen, en þetta er ekki alveg mitt krád. Ekki enn allavegana.

Fór á tóman Hverfisbar, þar sem tvær viðbjóðslega fullar stelpur tóku upp hálft dansgólfið og urðu til þess að ég hellti bjór á nýju jakkafötin mín. Þetta var í raun önnur helgin í röð, þar sem ég var á djamminu í jakkafötum. Það er frekar skrítið. Mér leið svona eiginlega einsog ég væri kominn aftur í framhaldsskóla þegar maður hélt að maður væri rosa svalur í jakkafötum, reykjandi vindla inná Skuggabarnum. Mikið var samt gaman þá.

Lét svo draga mig á Sólon en þegar þangað var komið nennti ég þessu ekki lengur. Vikan er búin að vera bilun í vinnunni og ég var orðinn frekar þreyttur.

Þreytan kom svo bersýnilega í ljós í gær þegar ég svaf (með tveggja tíma vökuhléi) til klukkan 6. Dreif mig þá í annað matarboð, sem var “Thanksgiving” matarboð, sem matarklúbburinn minn hélt. Ljómandi skemmtilegt alveg hreint. Einhvern veginn lendum við alltaf í sömu umræðinnu í þessum klúbb og svo fékk ég einhver svakalegustu skot, sem ég hef fengið, frá vinkonu minni, en þetta var samt frábært.

Ég var reyndar svo slappur þegar ég mætti í veisluna að ég gat varla borðað neitt, sem er þvílík synd, þar sem maturinn var æði. Kalkúnn með meðlæti er uppáhaldsmaturinn minn og ég fæ þann mat bara tvisvar á ári, þannig að það var synd að ég var svona slappur. En allavegana, þessar umræður, sem við dettum alltaf í í klúbbnum snúast rosalega oft um byggðamál á höfuðborgarsvæðinu, nokkurs konar togstreita milli miðbæjarins og Kópavogs. Ég ætla að skrifa aðeins um þetta hér á síðunni þegar ég nenni.

Núna eftir 45 mínútur er það Liverpool Arsenal. Tveir vinir ætla að kíkja í heimsókn og ég vona geðheilsu minnar vegna að Liverpool vinni!

415 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Dagbók

Þróun?

nóvember 25, 2004

Þetta er magnað. Magnað!:

Overall, about two-thirds of Americans want creationism taught along with evolution. Only 37 percent want evolutionism replaced outright. (feitletrun mín)

Hólí krapp! 37% Bandaríkjamanna vilja að hætt verði að kenna þróunarkenninguna í skóla. Og ekki nóg með það, heldur finnst fréttamanni CBS það vera svo lítið að hann segir “Only 37%”.

37% Bandaríkjamanna vilja að börnum sé eingöngu kennt í skóla að Guð hafi skapað heiminn á einni viku! Það þýðir að maður getur lært meira um vísindi með því að horfa á Friends þátt heldur en að fara í barnaskóla í Bandaríkjunum.

97 Orð | Ummæli (5) | Flokkur: Netið

Spurning?

nóvember 25, 2004

Ferðin til Danmerkur var fín. Við eyddum mestum tímanum í smábæ um klukkutíma frá Kaupmannahöfn. Við höfðum líka smá lausan tíma í Kaupmannahöfn. Ég heimsótti systur mína og fjölskyldu hennar, en þau búa í útjaðri Kaupmannahafnar. Tapaði m.a. 15 sinnum fyrir litla frænda mínum í Mario Kart.

Svo labbaði ég um Strikið, verslaði eitthvað og fór svo í þunglyndi þegar ég sá að Liverpool hafði tapað og Luis Garcia væri meiddur.

En tilefni þessarar færslu var ekki ferðasaga, enda er ferðasagan frekar ónýt. Nei, spurning mín er þessi:

”Er hægt að taka mark á fólki, sem finnst Britney Spears ekki sæt?”

Un, dos, tres, CATORCE!

105 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Dagbók

Helgin...

nóvember 21, 2004

Þetta er búin að vera frábær helgi. Á föstudaginn héldum við tveggja ára afmæli Serrano á Pravda. Við héldum aldrei opnunarpartý og ekki heldur uppá eins árs afmælið og því bættum við úr því á föstudaginn.

Allavegana, við buðum fulltaf fólki, starfsmönnum, vinum og fjölskyldum og þetta var meiriháttar. Í gær fór ég svo með vini mínum á jólakynningu Skífunnar, þar sem m.a. Quarashi spiluðu. Þar var gríðarlegt magn af áfengi og nýttum við okkur það til hins ítrasta. Þegar partíið var búið fórum við tveir niðrí bæ. Fórum fyrst á Bar Bianco. Sá staður er snilld! Síðan kíktum við yfir á Hverfisbarinn. Frábært kvöld.

Ótrúlegt en satt, tvö æðisleg djömm á einni helgi. Hef sjaldan skemmt mér jafnvel á djamminu og um þessa helgi.


Þessi slagsmál eru svakaleg. Fyrrverandi Chicago leikmaðurinn (og sækóinn) Ron Artest stekkur uppí stúku og lemur áhorfendur. Ótrúlega magnað!


Ég er á leiðinni til Köben á eftir. Við erum tveir að fara í heimsókn til Haribo, sem er nálægt Kaupmannahöfn. Verðum þar fram á miðvikudag og höfum m.a. smá lausan tíma, sem ég ætla að nýta til að hitta systur mína og fjölskyldu hennar, sem býr í Köben.

193 Orð | Ummæli (12) | Flokkur: Dagbók

The O.C.

nóvember 18, 2004

  • Hæ, ég heiti Anna og er sæt
Einsog lesendur þessarar síðu hef ég afskaplega skrítinn sjónvarpssmekk.

Fyrr á þessu ári skrifaði ég um The O.C. Uppáhalds sport pistlahöfundurinn minn, Bill Simmons skrifaði nefnilega skemmtilegan pistil þar sem hann dissaði Friends á meðan hann hrósaði The O.C. í hástert og sagði þáttinn verðugan arftaka Beverly Hills 90210, sem var í miklu uppáhaldi hjá mér á árum áður.

Allavegana, ég ákvað að kaupa mér season 1 á DVD þegar ég var á leiðinni heim frá París í síðasta mánuði. Ég sé ekki eftir því. The O.C. er nefnilega fokking snilld! Þetta er sápuópera af allra bestu gerð.

Fyrir þá, sem ekki þekkja þættina þá fjalla þeir um Ryan, 17 ára strák sem býr í fátækrahverfi Los Angeles en er ættleiddur af ríkri fjölskyldu í Orange County. Þar hittir hann fyrir einkasoninn Seth og verða þeir bestu vinir. (ef þú hefur ekki séð Season 1, en ætlar þér að sjá það, myndi ég hætta að lesa…Núna!)

Fyrir stórkostlega tilviljun þá býr geðveik gella, sem heitir Marissa, í húsinu við hliðiná (af hverju gerist ekki svona í alvörunni? AF HVERJU?). Þau verða ástfangin. Vandinn er að Marissa er á föstu (hún gæti verið íslensk) með aðal íþróttagaurnum í skólanum, Luke. Hann er ýkt vinsæll en vinsældir hans hrapa þegar fólk kemst að því að pabbi hans er hommi.

Allavegana, Marissa og Ryan verða ástfanginn, Luke heldur framhjá Marissu í Mexíkó, hún reynir að fremja sjálfsmorð, lifir það af og byrjar svo með Ryan, sem er alltaf ýkt þögull og gáfulegur og umhyggjusamur.

Á meðan þetta gerist er Seth, stjarna þáttanna, alltaf að reyna við Summer, stelpuna, sem hann hefur verið ástfanginn af síðan hann var lítill. Til að reyna við hana fær hann aðstoð frá Önnu, vinkonu sinni. Fyrir algjöra tilviljun er Anna geðveikt sæt og því verður Seth ástfanginn af báðum. Hann byrjar fyrst með Önnu, en hættir svo með henni og byrjar með Summer.

Nú, Marissa kynnist þá geðsjúklingi, sem heitir Oliver og verður vinkona hans. Oliver er geðsjúkur og verður sturlaður af ást á Marissu. Hún fattar þetta ekki, Ryan verður afbrýðisamur, þau hætta saman, Oliver reynir að fremja sjálfsmorð og smám saman byrja Ryan og Marissa saman aftur.

Eeeeen í millitíðinni kemur gamla kærastan hans Ryan inní þættina. Hún er að fara að giftast gaur, sem ber hana. Áður en þau giftast sofa Ryan og hún saman og hún verður ófrísk.

Á meðan allt þetta gerist eru foreldrar Marissu að skilja. Mamma hennar byrjar með afa Seth, hættir svo með honum og byrjar með Luke, fyrrverandi kærasta dóttur sinnar, en hættir svo með honum og giftist afa Seth. Pabbi Marissu, sem var einu sinni kærasti mömmu Seth, reynir aftur við mömmuna, gefst upp og endar þá með systur hennar.

Pabbi og mamma Seth eru hins vegar ýkt góð og spök. Pabbinn er góður lögfræðingur og er fyndinn líkt og sonurinn. Mamman á ríkan pabba og heldur öllu saman. Þau lenda reyndar í Swingers partíi, en þora ekki að taka af skarið.


Þannig er nú það. Einn sólarhringur af O.C. í nokkrum málsgreinum. Þið hljótið að sjá hvað þetta er mikil snilld!

Ég er þó sammála Simmons að framleiðendur þáttanna hafi ekki gert sér grein fyrir styrkleika þáttanna fyrirfram. Þeir áttu augljóslega að fjalla um Ryan og Marissu, en þau eru bara frekar leiðinleg og án efa veikasti hluti þáttanna. Miklu skemmtilegri eru Seth og Summer, ásamt foreldrunum. Ætli næsta sería muni ekki endurspegla vinsældir þeirra.

Ég bíð allavegana spenntur.

580 Orð | Ummæli (15) | Flokkur: Sjónvarp

Nýr server

nóvember 17, 2004

Þessi síða, ásamt Liverpool blogginu og fleiri síðum er núna komnar yfir á splunkunýjan server.

Hvað þýðir þetta fyrir þig?

Jú, meiri hraði!!!

Komment ættu núna að koma inná síðuna á 6-7 sekúndum. Það er mikill munur frá því, sem áður var. Jei!

43 Orð | Ummæli (5) | Flokkur: Netið

Elsa

nóvember 16, 2004

Kannski er þetta bara ég, en mér finnst Elsa Benitez sæt. Reyndar verulega sæt.

Ég vildi bara koma þessu að, af því að ég hef ekkert til að tala um. Jú, þetta eru ljómandi skemmtilegar umræður.

36 Orð | Ummæli (7) | Flokkur: Netið

Nýtt útlit! Húrra!!!

nóvember 16, 2004

Ehm, ok, ég var semsagt að breyta útlitinu á síðunni.

Ég verð seint kallaður mikill hönnuður, þannig að þetta er svona stolið úr ýmsum áttum. Hélt eftir litaþemanu (eða hluta af því) frá síðustu hönnun.

Ég skelli þessu upp núna, en mun skrifa meira um þetta og bæta við útlitið á næstu dögum. Það eru eflaust fullt af síðum, sem eru í hassi. Laga það síðar. En núna.. svefn.

69 Orð | Ummæli (14) | Flokkur: Netið

Íslendingar og virkjanir.

nóvember 15, 2004

Ragnar T. sendi mér póst með eftirfarndi viðtali, sem var sent út í franska ríkisútvarpinu. Viðtalið er við Philippe Bovet, franskan blaðamann, sem hefur dvalið á Íslandi.

Ég ákvað að birta þetta hérna, þar sem mér fannst þetta gríðarlega athyglisvert viðtal. Hann fjallar þarna um þessar biluðu virkjanaframkvæmdir á hálendi Íslands. Ég hvet alla til að lesa þetta og sérstaklega þá, sem telja að stóriðja leysi öll varndamál Austurlands og alls Íslands.

Viðtal við Philippe Bovet, blaðamann. Flutt í franska ríkisútvarpinu, France Culture, í þættinum Terre à terre, 5. nóvember 2004.

Spyrill: Philippe Bovet, þú ert blaðamaður, þú hefur haft möguleika á því í starfi þínu fyrir Le Monde Diplomatique að fara til Íslands. Ég vil ítreka það sem ég sagði áðan við Hönnu Þorleifsdóttur, þ .e.a.s. hvað Frakkar eru hissa á því að heyra að á einu Norðurlandanna gangi hlutirnir fyrir sigá þann máta sem búið er að lýsa fyrir okkur [Hanna hefur áður sagt frá því hvernig ákvarðanataka um Kárahnjúkavirkjun gekk fyrir sig, höfnun Skipulagsstofnunnar, úrskurði Umhverfisráðherra, mótmælum og gagnrýnt Íslendinga fyrir slöpp mótmæli].

Philippe Bovet: Það kemur í raun ekki svo mjög á óvart. Það er rétt að við Frakkar og aðrir í Vestur-Evrópu ímynda sér oft að Ísland sé nokkurs konar paradís, land þar sem mikil áhersla er lögð á náttúruna. Þetta er ímynd sem Íslendingar vilja gjarnan gefa af sér og landi sínu, en í raun er þetta alls ekki svona. Það er rétt að Íslendingar búa í mjög sérstöku landslagi, þetta er vindbarin eyja og veðurfarið fremur óblítt. Landið býr yfir miklum auðæfum í jarðhita. Nærvera náttúrunnar á Íslandi er mjög mikil og það kemur fram í bókmenntunum, allt frá fornritunum til verka Laxness.

En það er mín skoðun að Íslendingar njóti almennt ekki náttúru sinnar. Íslendingar eru fyrst og fremst Vesturlandabúar. Meirihluti þeirra er ekki í sterkum tengslum við náttúruna. Tengsl þeirra við náttúruna komu mér aldrei neitt sérstaklega á óvart. Íslendingar eru Vesturlandabúar og þar ríkir mikil neysluhyggja. Þeir hrífast af veraldlegum gæðum, eins og tækjum og tólum af ýmsu tagi. Þeir sinna tveimur eða þremur störfum til að ná endum saman á mánaðarmótum. Og þeir njóta ekkert sérstaklega náttúrunnar sem þeir búa í.

Þarna ríkir mikil neysluhyggja. Fólk keyrir um landið á stórum bílum og af öllum þeim sem ég hitti er aðeins lítill hluti sem þekkir landið sitt vel og hefur ferðast um það. Á sumrin má sjá fólk ganga um hálendið. Þetta eru oft útlendingar, Englendingar og Þjóðverjar. Við þekkjum skopmyndina af fólki að hjóla um Ísland. Þetta er auðvitað ýkt skopmynd, en samt er eitthvað til í henni. En þeir sem hjóla um landið eru Þjóðverjar, það eru afar sjaldan Íslendingar.

Til að öðlast betri skilning á því af hverju Íslendingar eru svona sólgnir í nútímann verður að minnast þess að landið hlaut ekki sjálfstæði fyrr en 1944. Á milli 1380 og 1944 var landið dönsk nýlenda og laut danskri stjórn. Sjálfstæðið færði Íslendingum nútímann og landið opnaðist fyrir heiminum á 6. og 7. áratugnum. Þetta voru tímar nútímavæðingar. Í flestum bæjum á Íslandi og jafnvel í miðborg Reykjavíkur má aðeins finna örfá gömul timburhús. Flest þeirra hafa verið rifin. Nú sjá menn svolítið eftir því en það er aðeins of seint.

Og öll gömul merki úr fortíðinni sem tengd eru náttúrunni hafa smám saman verið endurskoðuð og leiðrétt af íslenskri menningu. Þar til á 8. eða 9. áratugnum, ég er ekki alveg viss um ártalið, voru u.þ.b. ein milljón sauðfjár í landinu, sem er mjög mikið. Smám saman hefur sauðfjárstofninn svo verið skorinn niður í 500 þúsund dýr og svo 300 þúsund. Þetta var gríðarleg breyting á íslenskum landbúnaði.

Svo er það sjávarútvegurinn. Sjávarútvegurinn er mjög mikilvægur en þetta er ekki alls ekki matarframleiðsla fyrir þjóðina, þetta er risaframleiðsla. Íslenskir útgerðamenn eru í öllum heimshornum. Þeir reka nú útgerðir í Afríku, t.d. í Namibíu og í Suður-Ameríku. Þeir þróa hátækni í fiskiðnaði þannig að nýting sjávarauðlindarinnar er gríðarlega mikilvæg. Hafið verður að framleiða. Ég rek allt þetta til að útskýra að tengsl Íslendinga við náttúruna eru mjög tengd nútímavæðingunni.

Og ef við snúum okkur að umfjöllunarefni okkar, stíflum, þá eru í raun fáir Íslendingar efast um stífluframkvæmdir fyrir þróun áliðnaðar í landi þeirra.

Spyrill: Þú lýsir landi sem er mjög vestrænt, ég hafði notað orðið skandinavískt. Þetta er mjög ólíkt þeirri Skandinavíu sem maður ímyndar sér, Skandinavíu sem er mjög lýðræðisleg og þar sem umræður eru hluti af daglegu pólitísku lífi. Ég velti fyrir mér hvort það séu yfir höfuð einhverjar umræður (débat) um þessar spurningar [þe. um virkjarnir/stíflur].

Philippe Bovet: Ég geri ráð fyrir að umræðurnar séu ekki ýkja mikilvægar. Ísland er lítið og gegnsætt land eins og önnur Norðurlönd. Það verður að minna á að Íslendingar eru aðeins 270 þúsund og þeir eiga menningu útaf fyrir sig. Það má aldrei gleyma því að það eru aðeins 270 þúsund manneskjur í heiminum sem tala íslensku.

Það er ólíkt hinum Norðurlöndunum. Og eins og í öllum litlum löndum fyrirfinnst fólk sem á auðvelt með að kippa í spotta, pólitíska spotta, spotta í hagkerfinu, spotta í fjármálaheiminum, alls konar spotta. Þegar Ísland var að byggjast upp sem sjálfstætt ríki á 6. og 7. áratugnum var fólk sem stóð í innflutningi, t.d. bílainnflutningi, í stöðu hálfgerðrar einokunnar. Sá sem, til að mynda, flutti inn japanska bíla á Íslandsmarkað einokaði markaðinn og varð á því gríðarlega ríkur. Ef þú máttir flytja inn amerískt morgunkorn varðstu gríðarlega ríkur. Þú hafðir mikið fjárhagslegt vald.

Svo þarna má finna nokkra einstaklinga, nokkrar fjölskyldur sem stjórna ýmsum „geirum” og það er mjög erfitt að gagnrýna þá í þessu litla landi þar sem allir þekkja alla. Á Íslandi er sagt að maður sé skyldur helmingi þjóðarinnar og að maður eigi hinn helminginn að vini. Allir þekkjast og ef þú gagnrýnir aðeins kerfið er mjög auðvelt að sýna þér hvar Davíð keypti ölið. Svo að ef einhver er opinberlega á móti stíflum þá er mjög auðvelt að ýta viðkomandi til hliðar og gera honum skiljanlegt að hann syngi ekki í takt við alla hina.

Spyrill: Og hvernig fer það fram í svona litlu landi þar sem allir þekkja alla þegar alþjóðlegur risi eins og Alcoa kemur inn í landið? Það er áhugavert að vita hvernig þetta tvennt passar saman?

Philippe Bovet: Með því að notfæra sér tengsl sín við einhverja ákveðna fjölskyldu eða einstakling getur stórfyrirtæki auðveldlega komið sér fyrir í landinu og eftir það er það ekki gagnrýnt. Áliðnaðurinn hefur nú þegar komið sér fyrir á Austurlandi og hefur verið þar um nokkun tíma. Það hefur lengi verið til staðar sú hugmynd að áliðnaðurinn gæti stöðvað brottflutning íbúa Austurlands, en um 2/3 íbúa landsins búa á stór-Reykjavíkur-svæðinu. Þannig að litið var á áliðnað sem leið til að stöðva brottflutning utan af landi, því landbúnaður er að hverfa og smábátaútgerð einnig. Og þarna getur álrisinn stjórnast með atvinnumarkaðinn og sagt að byggðin í landinu séundir honum komin.

Spyrill: Ég hef einnig lesið að þeir búi við einkar góðar aðstæður vegna þess að þeir geta farið vel yfir losunarkvóta á gróðurhúsalofttegundum sem samið hafi verið um í Evrópu.

Philippe Bovet: Og allt þetta sýnir að Íslendingar, sem ávallt leggja áherslu á að kynna og sýna náttúruna, eru svo bara tilbúnir til að selja hana á gjafverði. Þetta er sláandi. Fyrir nokkru voru íslenskir dagar í París og þá var gefið út tímarit þar sem líta mátti fallegar myndir af landinu á nánast hverri síðu. Í þessu tímariti var „Ísland – lifandi land” lofað í tíma og ótíma. Þar var meira að segja að finna grein um afskekkt stöðuvatn sem fer undir lónið. Þar var ekki að finna neina iðrun. Og aftast í tímaritinu var opna þar borið var lof á áliðnaðinn á Íslandi. Þetta var mjög sláandi.

Spyrill: Hvaða skemmdum getur stíflan valdið? Þá erum við að tala um áliðnaðinn.

Philippe Bovet: Áliðnaðurinn er sá iðnaður sem veldur hvað mestri mengun, bæði sjálfframleiðslan og endurnýting áls. Iðnaðurinn sem heild veldur mikilli mengun og eyðir mikilli orku. Það er sláandi að heyra álglugga auglýsta og svo er bent á það í lok auglýsingarinnar að svo megi endurnýta álið. En endurnýtingin mengar gríðarlega. Það virðist mun einfaldara að gera góða viðarglugga þar sem við finnum gnótt viðar í frönskum skógum. Í sumum löndum, á Norðurlöndum eða í Þýskalandi eru viðargluggar mun meira notaðir en álgluggar því þar vita menn að framleiðsla áls hefur víðtækar afleiðingar. Það eru meira að segja til stórmarkaðir í Sviss sem selja ekki áldósir af þessum ástæðum.

Spyrill: Verður álið sem framleitt verður á Íslandi notað á þar?

Philippe Bovet: Álið verður flutt út og selt á lægra verði, vegna þess að það er auðvelt að verða sér úti um orku á Íslandi. Áliðnaðurinn þarfnast gríðarlega mikillar orku. Ef hægt er að framleiða ódýra orku er sömuleiðis hægt að framleiða ódýrt ál. Það er svona einfalt. Og svo flytur Ísland bara álið út til allra heimshorna.

Spyrill: Philippe Bovet, þú talaðir áðan um hvernig stórfyrirtækin stjórnast með atvinnumarkaðinn, til dæmis þetta fyrirtæki sem er að koma sér fyrir á Íslandi getur lokað álverum í Bandaríkjunum og aukið þannig atvinnuleysi þar.

Philippe Bovet: Það gerir þeim kleift að loka án nokkurrar iðrunar annars staðar og opna mikilvæga framleiðslu á Íslandi. Það er alltaf betra að framleiða í litlum einingum. Ef við höldum okkur t.d. við álið, þá er betra að opna litlar einingar sem framleiða fyrir innanlandsmarkað, svolítið í Bandaríkjunum, svolítið í Frakklandi, svolítið á Íslandi sem nægir þörfum Íslands. Það gildir það sama fyrir allar þarfir, hvort sem það er landbúnaður eða iðnaður hvar sem er í heiminum.

Spyrill: Ef við drögum saman það sem við höfum rætt, í hverju eru hagsmunir Íslands, eða einhverra einstaklinga á Íslandi, fólgnir þegar verið er að laða svona iðnað að landinu?

Philippe Bovet: Hagsmunir þeirra er eins og í öðrum löndum, að ná tímabundnum markmiðum, að skapa eitthvað nýtt. Næstu tíu eða tuttugu árin geta stjórnmálamenn hreykt sér af því að hafa komið á nýjum iðnaði, að yfirgefið fábreytileika landbúnaðar og sjávarútvegs. En þeir, eða aðrir, munu líka geta minnt á að þeir hafa fórnað hluta af landi sínu handan steyptra stíflna.

1673 Orð | Ummæli (5) | Flokkur: Stjórnmál

Svar!

nóvember 13, 2004

Nei!

1 Orð | Ummæli (1) | Flokkur: Netið

Hausverkur

nóvember 12, 2004

Ég er á því að byrjunin á “This is my truth, tell me yours” sé flottasta byrjun á rokkplötu í sögunni. Tvö fyrstu lögin (The Everlasting og If you tolerate this) myndu bæði komast á topp 20 yfir mín uppáhaldslög. Þvílík snilld. Reyndar er ég tengdur svo sterkum tengslum þessum lögum að þau minna mig alltaf á sömu staðina og sömu hlutina.

Allavegana, ég er veikur og búinn að vera það í allan dag. Það skýrir kannski þennan pirring, sem ég hef verið með alla vikuna. En er búinn að vera með hausverk í allan dag. Er að reyna að telja mér trú um að þetta verði allt farið á morgun. Þoli ekki hausverk. Hann hefur í för með sér allsherjarþunglyndi og mér finnst allt ómögulegt. Úff úfff.

128 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Dagbók

San Fran, Vegas og Brooklyn

nóvember 12, 2004

Dálítið seint, en hérna koma myndirnar frá Las Vegas, Los Angeles, San Fransisco og New York.

16 Orð | Ummæli (1) | Flokkur: Myndir

Ég HATA SNJÓ!

nóvember 11, 2004

Eruð þið ekki að grínast með þetta veður?

Ég get ekki annað en tárast þegar ég hugsa til þess að þessi mynd var tekin fyrir minna en tveim mánuðum.

Ef ég þarf að skafa bílinn minn í fyrramálið þá tapa ég mér. Ég er búinn að vera ferlega pirraður í vinnunni alla vikuna og þetta er ekki til að bæta ástandið. Mikið er ég samt glaður að það er allavegana að koma föstudagur…

73 Orð | Ummæli (5) | Flokkur: Dagbók

It's a SIGN!

nóvember 10, 2004

Serverinn fór enn einu sinni í fokk og fullt af dóti týndist, þar á meðal gamla útlitið á þessari síðu.

Ég gæti nú alveg reynt að finna þetta á Makkanum mínum. En í staðinn ætla ég að taka þetta sem merki um að það sé kominn tími á að breyta þessu útliti. Á meðan að ég vinn í útlitinu þá verður þetta tímabundna útlitið á síðunni. Gamla útlitið er búið að vera á síðunni í tvo ár. Fokk, ég var enn í sambúð þegar ég setti upp það útlit. Djöfull er langt síðan!

93 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Netið

Take me home...

nóvember 10, 2004

Manchester ferðin var bara helvíti fín. Ég var þarna með hópi af fólki frá Íslandi, sem Skjár Einn hafði boðið. Við djömmuðum tvisvar, á laugardaginn á þessum stað og svo aftur á sunnudagskvöldið.

Já, og fórum auðvitað á Old Trafford og rek ég á Liverpool blogginu söguna af leiknum. Þar er líka nokkrar myndir, þar á meðal tvær hræðilegar myndir af mér. Allavegana, þrátt fyrir að þetta hafi nú verið Old Trafford þá var þetta rosalega skemmtilegt. Núna er auðvitað stefnan að fara næst á Anfield.


Það er ekkert eðlilega erfitt að skilja Manchester búa. Á seinna djamminu lenti ég á spjalli við stelpu frá borginni og þurfti hún að endurtaka allar setningar að minnsta kosti þrisvar til að ég gæti skilið hana.

Eigandi World Class var með í ferðinni og kom ég á framfæri umkvörtunarefni mínu varðandi þá stöð. Það er að það væri ekki nógu mikið af sætum stelpum á aldrinum 17-27 ára í hádeginu.


Mikið svakalega er mikill munur á kvenfólki á Íslandi og Englandi. Strax þegar ég kom aftur uppí flugvél eftir að hafa djammað tvo daga á Bretlandi gat ég ekki annað en glaðst yfir því að vera Íslendingur.


Samkvæmt auglýsingu frá Íslandsbanka er ég 100% manneskja. Það er náttúrulega frábært!

206 Orð | Ummæli (3) | Flokkur: Dagbók

Útgáfutónleikar

nóvember 5, 2004

Fór áðan með vini mínum á útgáfutónleika Maus. Einhvern veginn hafði ég ekki séð neitt um tónleikana fyrr en Björgvin Ingi benti mér á þetta á MSN í dag.

Jæja, tónleikarnir voru haldnir í Austurbæ og voru snilld. Bestu tónleikar, sem ég hef verið á með Maus. Þeir renndu í gegnum öll sín bestu lög, alveg frá Músíktilraunum til “Life in a Fishbowl”. Tóku m.a. 3 lög “acoustic”, þar á meðal frábæra rólega útgáfu af Kerfisbundinni Þrá.

Fyrir utan þann rólega kafla var þetta bara eðalrokk. Eftir svona tónleika finnst manni í raun grátlegt að þeir skuli ekki vera heimsfrægir. Þetta er ekki tónlist, sem að allir fíla, en það ætti að vera nægur markaður fyrir svona frábært popp-rokk. Allavegana, þið sem eruð enn með fordóma gagnvart Maus, gefið þeim sjens. Íslenskt rokk gerist ekki betra.

Svo eru líður manni líka alltaf svo vel á tónleikum með Maus. Í raun einsog allir þarna inni séu nánir vinir hljómsveitarinnar. Veit ekki hvað það er, en ég fæ alltaf þá tilfinningu. Já, og svo tóku þeir líka 3 ný lög, sem hljómuðu öll nokkuð vel. Ég bíð allavegana spenntur eftir næstu alvöru plötu.

191 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Tónleikar

Kosningarnar í Daily Show

nóvember 5, 2004

Ég held að þetta sé ágætis lausn á hinni miklu skiptingu í Bandaríkjunum.

Einnig er hérna frábær fréttaskýring á kosningunum hjá John Stewart í Daily Show (Quick Time skrá - 9,8mb) (via BoingBoing og MeFi).

35 Orð | Ummæli (1) | Flokkur: Stjórnmál

Viðbjóður!

nóvember 4, 2004

Sé að siðustu 8 færslur hafa fjallað um bandarísk stjórnmál. Ég er enn fúll yfir þessum úrslitum, en nenni ekki að skrifa um þau í bili.

Annars á kosninganóttina þá fór ég á kosningavöku í boði bandaríska sendiráðsins í Listasafni Reykjavíkur. Jens hafði reddað okkur Emil á boðslistann þar. Það partí var svosem fínt. Budweiser bjór og pizzur í boði, svo ég var alsæll.

Þar sem ég var með útlending í heimsókn í vinnunni og hafði ekki komist heim á milli, þá mætti ég á staðinn einsog besti SUS-ari í jakkafötum. Við entumst þó ekkert voðalega lengi þarna. Magnaða við þetta allt var þó að það var fullt af sætum stelpum þarna. Hvern hefði grunað?


Annars er ég að fara til útlanda á laugardaginn. Fer til Manchester í boði S1, þar sem ég mun horfa á viðbjóðinn frá Manchester spila við Manchester City á Old Trafford. Verð þarna í þrjá daga. Ljómandi skemmtilegt alveg hreint. Sjá nánar um þessa ferð hér


Annars fékk ég email frá góðum bandarískum vini mínum í dag. Það var stutt og laggott: “there goes any possibility of convincing anyone that Americans aren’t selfish, ignorant fucks. what’s the reaction there like?”

Jammm…

196 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Dagbók

Næstu fjögur ár

nóvember 3, 2004

Canada 2.0.

Einnig: Dan Gillmour útskýrir hvernig næstu fjögur ár verða í Bandaríkjunum:

The Republicans have an even stronger congressional majority. They have shown how gladly ruthless they can be in using their power. Bush and his allies have never believed in compromise. They have even less incentive to govern from the middle now, even though the nation remains bitterly divided.

There’s no secret about what’s coming. We don’t have that excuse this time.

Here comes more fiscal recklessness — as we widen the chasm between the ultra-wealthy and everyone else, cementing a plutocracy into our national fiber, we’ll pay our national bills on the Treasury Bill credit card for the next few years. Many economists expect a Brazil-like financial crisis to hit the U.S. before the end of the decade. If we muddle our way though the near term, we’ll still have left our kids with the bill.

Here comes an expansion of the American empire abroad, a fueling of fear and loathing elsewhere on the globe. This is also unsustainable in the end. Empire breeds disrespect.

Our civil liberties will shrink drastically. This president and his top allies in Congress fully support just one amendment in the Bill of Rights, the Second Amendment’s right to bear arms. Say goodbye to abortion rights in most states. Roe v. Wade will fall after this president pushes three or four Scalia and Thomas legal clones onto the Supreme Court. Say hello, meanwhile, to a much more intrusive blending of church and state.

The environment? We’ll be nostalgic for Ronald Reagan’s time in office.

Ég get hreinlega ekki séð neitt jákvætt við það að hafa Bush áfram í Hvíta Húsinu.

278 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Stjórnmál

Kerry viðurkennir ósigur

nóvember 3, 2004

top.bush.tuesday.ap.jpg


Til hamingju, Bandaríkin!!

Fjögur ár af Bush í viðbót! Ég trúi þessu ekki enn.

14 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Stjórnmál

Þunglyndi

nóvember 3, 2004

Já, ég er ekki enn kominn í stuð að skrifa um þessar helvítis kosningar. Hins vegar eru tveir aðrir pennar, sem skrifa um kosningarnar og er ég 100% sammála öllu, sem kemur fram þar. Nánst einsog ég hafi skrifað þessa pistla sjálfur:

Kristján: Kosningar í USA #7
Jens: Þunglyndi og þreyta!

Jammmm…

52 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Stjórnmál

Whatever

nóvember 3, 2004

Góður punktur af MeFi:

Úrslit kosninganna

KERRY: 56 million
BUSH: 60 million
WHATEVER: 100 million

Hvernig geta 100 milljón Bandaríkjamanna setið heima í svona kosningum. Hvað í andskotanum er að í hausnum á þessu fólki?

35 Orð | Ummæli (3) | Flokkur: Stjórnmál

?

nóvember 3, 2004

Hvað getur maður sagt, nema að ég trúi þessu ekki. Ég trúi þessu ekki!

Ég er orðlaus. Allavegana núna. Meira síðar.

21 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Stjórnmál

Kosningavaka

nóvember 3, 2004

Ég held að Ólafur á RÚV geti sótt um á Fox News. Kræst hvað hann er mikill Repúblikani. Hann er búinn að vera að ljúga upp fullt af Kerry kommentum einsog að Kerry hafi líkt efnahagsástandinu við Kreppuna Miklu og krafðist þess að einhver viðmælandi verði þau komment. Þvílíkt bull. Það hefði verið skemmtilegra ef RÚV hefði bara sýnt auglýsingarnar af CBS í stað þess að vera með þessi bullinnskot hans Ólafs.

Staðan núna 162-112 fyrir Bush. Enn hefur ekkert komið á óvart og þessi spá getur ennþá ræst. Núna er Kerry að vinna í Pennsylvaníu og Ohio, en að tapa á Florida.

Djöfull er þetta spennandi :-)

Nei fokk, Bush kominn yfir í Ohio.

Ef einhver er að lesa þetta yfir kosningavökunni, þá mæli ég með C-Span kortinu. Það er langbest til að fylgjast með í öllum ríkjunum.

139 Orð | Ummæli (5) | Flokkur: Stjórnmál

Kerry vinnur!

nóvember 2, 2004

Ég sagði það fyrir þremur vikum (reyndar ekki í ræðunni, heldur í fyrirspurnartíma) og ég segi það aftur núna:

John Kerry vinnur þessar kosningar!

Ég veit að allir halda að Bush taki þetta, en ég er sannfærður um að Kerry vinni. Ég hef bara of mikið álit á Bandaríkjamönnum til að ætla þeim að þeir kjósi yfir sig 4 ár til viðbótar af George W. Bush.

Þegar ég var á ferðalagi mínu í september, þá rann það upp fyrir mér hversu mikla óbeit fólk hefur á Bush. Þeir, sem eru á móti honum, eru ekki á móti honum einsog við erum á móti Davíð Oddssyni. Nei, þeir hata hann, fyrirlíta hann og vilja gera allt til að koma honum frá honum.

Þetta er sérstaklega augljóst meðal ungs fólks. Fólks, sem hefur vegna aldurs eða áhugaleysis ekki kosið áður. Þetta fólk er reitt. Það sér hvernig Bush hugsar meira um hag stórfyrirtækja og þeirra ríku, heldur en almennings. Það sér hvernig stríðið í Írak hefur farið með þjóðina og orðspor landsins. Og trúið mér, þessu fólki er annt um það hvað öðrum finnst um Bandaríkin.

Ég held að þetta fólk muni ásamt svertingjum (sem var farið illa með í síðustu kosningum) og öðrum minnihlutahópum fjölmenna á kjörstað sem aldrei fyrr. Og það mun ekki kjósa Bush.

Í síðustu kosningum, þá var Bush með nokkurra stiga forskot síðustu dagana, en demókrötum gekk mun betur að smala fólkinu á kjörstað. Ég held að svipað verði uppá teningnum núna. Munurinn er bara sá að Kerry og Bush eru alveg jafnir, og því er ég handviss um að Kerry muni vinna.

Ég allavegana vona svo innilega að Kerry muni vinna þetta. Það væri synd að sjá George Bush og hans hyski draga orðspor þessa frábæra lands endanlega niður í ræsið.


Hvað finnst ykkur? Hverju spáið þið?

300 Orð | Ummæli (9) | Flokkur: Stjórnmál

Hárið mitt, Dylan og Justin

nóvember 1, 2004

Hólí fokking kreisí krapp hvað Blonde on Blonde er fáránlega góð plata. Þetta er ekki fokking hægt. Ok, ég er búinn að þylja þetta upp áður, en hvernig gat ég ekki uppgötvað Bob Dylan öll þessi ár. Undanfarið hef ég tekið algjört kast á Sad Eyed Lady of the Lowlands og hlustað á það áður en ég fer að sofa í nokkrar vikur. Núna er það Sooner or Later (rokk og ról, sko)… og I Want You er svoooooo mikið æði. Þetta er ekki hægt. Ég er farinn að halda meira uppá það en I Want You með Elvis Costello. Í alvöru talað.

Ég er að reyna að rifja það upp hvernig það var þegar ég uppgötvaði Bítlana fyrst. Jú, það var æði, en samt ekki jafn rosalegt og þessir síðustu “Bob Dylan uppgötvunarmánuðir” hafa verið.

Það magnaða við þetta er að ég hef hlustað nánast non-stop á Bob Dylan undanfarnar vikur (með einstaka undantekningum einsog Quarashi og Streets), en samt er ég ekki kominn með ógeð á einu einasta lagi og ekki einni einustu plötu. Í raun er ég bara almennilega búinn að hlusta á Blonde on Blonde og Blood on the Tracks. Hinum er ég búinn að renna svona 2-10 sinnum í gegn, en hef ekki hlustað þær í tætlur einsog þessar tvær. Hann er búinn að gefa út svo ótrúlegt magn af góðu efni.

Þvílíkur snillingur!


Ég fór í klippingu um síðustu helgi. Það eru auðvitað stórtíðindi á þessari síðu, enda þykir fólki fátt skemmtilegra en að lesa skrif um hárið mitt.

Sko, ég er með frekar krullað hár, sem virðist í einhverju alheimssamsæri verða krullaðara með hverju árinu. Allavegana, þegar ég teygði úr toppnum í síðustu viku, þá náði hann niðrá miðjan kinn og ákvað ég að það væri nógu sítt. Ég hélt því einu sinni fram að ég gæti alltaf lýst hárgreiðslunni minni með að vitna til einhvers Liverpool leikmanns. Það má í raun segja að ég hafi verið orðinn hálfger McMannaman og ákvað því að fara í klippingu.

Ég settist því í stólinn og sagði, “ég er búinn að fá nóg, taktu slatta af”. Ég var nefnilega búinn að fá mig fullsaddan af þessu. Ef það er eitthvað, sem fer í taugarnar á mér, þá er það að hafa áhyggjur af hárinu. “Bíddu, er í lagi með hárið á mér núna? Er það ekki allt í einhverju rugli?” Ég vil bara greiða mér og hafa svo ekki frekari áhyggjur það kvöldið.

Ég fattaði líka að þessar krullur í hárinu gerðu útum vonir mínar um ákveðna greiðslu. Ég var nefnilega að safna hárinu með ákveðið í huga. Þegar ég var kominn með rétta sídd, þá liðaðist allt hárið til andskotans og allt fór í fokk. Þannig að ég ákvað að færa síddina aftur í tímann. Er eiginlega núna kominn með frekar stutt hár, svona hálfum sentimeter styttra en það er á þessari mynd, sem var tekin fyrir mánuði.

En allavegana, fíla hárið á mér núna. Það versta við þetta er að gellan á stofunni klippti heilmikið af hári að aftan. Málið er nefnilega að ég og tveir vinir mínir stofnuðum “með sítt að aftan” klúbb fyrir nokkrum mánuðum. Var það takmarkið að vera með sem síðast að aftan. Einn vinur okkar (sem ég ætla ekki að nefna á nafn, en við getum kallað hann PR) klikkaði eftir einhverjar vikur, en við hinir tveir héldum út ansi lengi. Eigilega alveg þangað til um síðustu helgi. Ég er ennþá með svona 3-4 sentimetra að aftan, en ég er ekki viss hvort það sé nóg til að tolla í klúbbnum.


Bara ein spurning að lokum: Ef ég brýt saman þvottinn minn á meðan að ég hlusta á Justin Timberlake, er ég þá gay? Ætti ég kannski ekki að spyrja svona spurninga? :-)

624 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Dagbók


Warning: readfile() [function.readfile]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2004/11/index.php on line 2343

Warning: readfile(http://www.eoe.is/hlid.dat) [function.readfile]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2004/11/index.php on line 2343