Warning: include() [function.include]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2005/02/index.php on line 149
Warning: include(http://www.eoe.is/tilkynning.dat) [function.include]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2005/02/index.php on line 149
Warning: include() [function.include]: Failed opening 'http://www.eoe.is/tilkynning.dat' for inclusion (include_path='.:/usr/share/php5:/usr/share/php') in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2005/02/index.php on line 149
« janúar 2005 | Main | mars 2005 »
Kenny vs. Spenny
Ég hef minnst á það áður, en það er vel þess virði að endurtaka að Kenny vs. Spenny á Popp TV er SNILLD! Án efa fyndnasti þátturinn í íslensku sjónvarpi!
Ég ætla að leyfa mér að halda því fram að greinarvísitala fólks lækki um að minnsta kosti helming þegar það nálgast bílastæðið fyrir utan World Class. Hvernig er annars hægt að útskýra hegðun allra þessara spekinga, sem leggja jeppunum sínum uppá gangstétt og á miðri götu?
Annars fór ég í dag í fyrsta skipti í World Class eftir vinnu. Get staðfest að það eru fleiri sætar stelpur í WC eftir vinnu en í hádeginu. Fjöldi stráka með aflitað hár eykst einnig tífalt.
Lenti í því að öll hlaupabrettin voru frátekin. Hvernig er það hægt? Eru allar aðrar líkamsræktarstöðvar á landinu tómar?
Vá hvað monologue-ið hjá Chris Rock á Óskarnum var fyndið. Og Váááááá hvað Natalie Portman er sæt. Trúi ekki að hún skuli ekki hafa unnið. Ef það væri einhver sanngirni í þessum heimi þá værum við par og byggjum saman í Sydney.
Ummæli (3) |
Flokkur:
Sjónvarp
I want to fly and run till it hurts
Í janúar í einhverju mellonkollí ástandi byrjaði ég að skrifa færslu á þessa síðu um hvar ég stæði og hvað mig langaði að gera í þessu lífi. Á sunnudagskvöldum langar mig alltaf til að bæta við þá færslu, en geri samt alltaf lítið í því.
Hef aðeins sagt einum vini mínum frá efni þessarar færslu. Hann virtist skilja mig vel og þetta kom honum m.a.s. ekki svo á óvart. Kannski er það greinilegt að ég er ekki jafn sáttur við lífið og tilveruna og maður reynir að láta líta út fyrir.
Ég hef samt hikað við að setja skrifin inn á þessa síðu. Ég er nefnileag farinn að hugsa alvarlega um það hvað ég get skrifað á þessa síðu. Ég hef komist að því að fólki, sem mér líkar ekkert sérstaklega vel við, les þessa síðu nokkuð reglulega. Og eflaust líka fólk, sem líkar ekkert sérstaklega vel við mig vegna einhvers, sem hefur gerst í raunheimum.
Það finnst mér óþægilegt.
Fyrir nokkrum mánuðum skrifaði ég pottþétt miklu opinskárra um mitt einkalíf og sérstaklega hugsanir mínar um stelpur og þau áhrif, sem þær hafa á mitt líf. Mér fannst það þægilegt og ég fékk nokkra útrás með þeim skrifum. Mér var nákvæmlega sama þótt að vinir mínir, kunningjar, fjölskylda og ókunnugir læsu þetta. En þegar fólk, sem mér líkar ekki vel við, les þetta líka, þá horfir öðruvísi við. Það kom mér reyndar á óvart að viðkomandi einstaklingar skyldu lesa síðuna. En oft finnst manni einsog bara þeir sem kommenti séu að lesa, en auðvitað eru svo margir auk þeirra, sem lesa síðuna. Viðkomandi hafa aldrei kommentað á síðuna, svo það kom mér á óvart að þeir skyldu lesa hana.
Skrif mín gera mig nefnilega meira “vulnerable” því þau opinbera ansi margt um mig og innihalda sennilega fullt af hlutum, sem þeir sem mér líkar ekki vel við, geta nýtt sér gegn mér. Það þykir mér óþægilegt og þess vegna hef ég hætt við skrif á mörgum pistlum hérna.
Hingað til hefur mér einfaldlega fundist þessi síða gefa mér það mikið að það sé áhættunnar virði. Ég fæ ótrúlega mikið út úr því að skrifa hérna og enn meira út úr því, sem fólk kommentar á síðunni. Það vill maður ekki gefa eftir. Samt finnst mér einsog að undanförnu hafi ég þurft að endurskoða hvar ég dreg línurnar í skrifum mínum.
Þess vegna finnst mér einsog skrif mín séu ekki jafn góð né spennandi og þau voru fyrir einhverjum mánuðum þegar ég hugsaði minna um hverjir væru að lesa.
Og já, ef menn geta ekki lesið það af skrifunum þá töpuðu Liverpool. Hagnaðurinn segir allt sem segja þarf um Mourinho.
Ummæli (16) |
Flokkur:
Dagbók
Gleraugu
Ok, prófaði að taka mynd af mér með gleraugun. Það er eitthvað yndislega sorglegt að vera að velta fyrir sér gleraugnakaupum á laugardagskvöldi, en hverjum er svo sem ekki sama
Allavegana, þetta eru önnur af tveim gleraugum, sem koma til greina. Fékk þau lánuð og miðarnir eru enn á glerjunum, þannig að það skemmir aðeins fyrir.
![]()
Hmmmm… Er þetta ég? Veit ekki alveg. Finnst ég virka eldri og gáfaðari en vanalega. Veit ekki hvort það sé gott.
Ummæli (11) |
Flokkur:
Dagbók
Einar Örn fer næstum því á Idol
Í gærkvöldi fór ég næstum því á Idol. Málið er að ég er í stjórn starfsmannafélagsins í vinnunni og við skipulögðum ferð á Idol fyrir allt fólkið. Ég ætlaði ekki að fara, en það var skotið mikið á mig þar sem að ég væri ekki að mæta á atburði, sem ég hjálpaði við að skipuleggja.
Allavegana, ég mætti í mat á Pizza Hut og síðan var planið að fara á Idol. Svona 5 mínútum áður en þetta byrjaði leit ég á miðann og röðina og hugsaði svo með mér: Nei andskotinn, ég get ekki setið í gegnum þetta.
Ég hef aldrei getað horft á meira en 10 mínútur af þessum Idol þætti og mér leist hreinlega ekkert á að sitja undir þessu í einhverja klukkutíma. Ég fór því heim. Rölti seinna um kvöldið á skemmtun hjá Ungum Jafnaðarmönnum, sem var fín. Kíkti svo með PR, Litlu PR og fleira fólki á Ara í Ögri. Að ég held í fyrsta skipti, sem ég fer á þann stað síðan ég útskrifaðist úr Verzló.
Mig minnir að við höfum aðallega farið á þann stað vegna þess að við komumst alltaf inn og það var aldrei neinn þarna inni og því gátum við alltaf fengið borð. Allavegana, þá virðist staðurinn hafa breyst mikið og hann kom mér á óvart. Allt stappað og fullt af sætum stelpum. Þegar ég var að labba heim missti ég iPodinn minn í götuna og því er hann bilaður í annað skiptið á fjórum vikum. Ég er hálfviti!
Fór svo í gleraugnakaup í dag og fékk ein gleraugu lánuð heim. Ætla að prófa þau yfir helgina, þar sem ég erfitt að venjast þeirri tilhugsun að vera með gleraugu.
Á morgun er það úrslitaleikur í deildarbikarnum. Get ekki beðið!
Ummæli (1) |
Flokkur:
Dagbók
Illugi og Sunnudagsþátturinn
Ég hef áður gagnrýnt Sunnudagsþáttinn á þessari síðu. Hugmyndin að þættinum er ágæt, það er að fá menn með mjög ákveðnar skoðanir til að stjórna spjallþætti. Þetta form hefur verið vinsælt í Bandaríkjunum, en þar hafa menn farið alltof langt í þessu og er skemmst að minnast þess að Crossfire var tekinn af dagskrá CNN, þar sem sá þáttur fór að snúast meira um kynnana og þeirra skoðanir heldur en það að reyna að ná fram vitrænni umræðu um málefnin.
Sunnudagsþátturinn er langt frá því að vera á sama lága planinu og Crossfire, en á stundum kemst hann ansi nálægt því. Þar finnst mér Illugi Gunnarsson vera hvað verstur.
Fyrir það fyrsta, er það við hæfi að aðstoðarmaður valdamesta manns á Íslandi stjórni pólitískum spjallþætti?
Í öðru lagi þá er hrokinn í Illuga og vanvirðing við viðmælendur, sem og aðra stjórnmálaflokka (aðallega þá Samfylkinguna) með hreinustu ólíkindum. Fyrir stuttu horfði ég á þátt, þar sem Illugi tók viðtal við Björgvin Sigurðsson í Samfylkingunni (viðtalið er í enda þáttarins). Illugi á afskaplega erfitt með að hemja sig og fela fyrirlitningu sína á Samfylkinguna. Því var hann einstaklega dónalegur og hrokafullur í misvitrum kommentum sínum við Björgvin.
Til dæmis (ég reyni að umorða samtalið, svo að megin innihald náist:
Illugi: Fyrsta spurning: Nú eruð þið að fara í gegnum gríðarlega harkalegar formannskorsningar. Haldiði að flokkurinn standi þetta af sér.
Björgvin: já já…
Illugi: Já, ég átti von á því að þú myndir segja þetta. he he heheheh
Í fyrsta lagi, þá er Illugi ekki fyndinn og það væri til góðs fyrir þáttinn ef hann áttaði sig á því. Í öðru lagi, ef menn vita svarið fyrirfram, þá geta þeir sleppt því að spyrja. Ef viðkomandi vill hinsvegar spyrja, þá er við hæfi að leyfa viðmælendanum að svara án þess að gera strax grín að svari hans.
Áfram:
Illugi: Já já, flokkurinn [Samfylkingin] á nú ekki að vera svo hár, ætti að vera í svona 20- 25% fylgi .
Já, akkúrat. Hvað veit Illugi um það? Er fólkið, sem kaus Samfylkinguna í síðustu kosningum á einhverjum villgötum? Merkti það við vitlausan flokk í kjörklefanum? Hvernig er hægt að segja að flokkur, sem fékk yfir 30% fylgi í kosningum og er stöðugt yfir þeim mörkum í skoðanakönnunum eigi í raun að vera með 20-25% fylgi?
Einnig:
Illugi: Ég ætla nú að sleppa því að segja að mér finnst þetta vera algjör klysja.
Nei, Illugi, þú slepptir því ekki að segja að þetta væri klisja. Þú sagðir akkúrat að þetta væri klisja. Ef ég myndi segja: “Ég ætla að sleppa því að segja að mér finnst Natalie Portman vera sæt”, sleppti ég í raun að segja það? Hverslags bull tal er þetta?
Og enn heldur Illugi áfram
Illugi: [Glottandi] Ég ætla nú að sitja á mér og segja ekki hvað mér finnst um málefnin ykkar sko.
Illugi má alveg sitja á sér fyrir mér, en hins vegar væri gaman að sjá hvað honum finnst svona hræðilegt við stefnu Samfylkingarinnar. Sjálfstæðismenn eiga nefnilega afskaplega bágt með að gagnrýna stefnu flokksins, heldur kjósa þeir heldur að gaspra um “stefnuleysi” eða einhverja ámóta lélega frasa til að gera lítið úr þessum stjórnmálaflokki, sökum eigin rökþrota.
Já, en Illugi átti spil uppí erminni. Ingibjörg Sólrún sagði nefnilega eitthvað slæmt um samkeppni fyrir 20 árum. Það breytir engu fyrir Sjálfstæðismenn að hún hafi skipt um skoðun, nei, aðalmálið er að einu sinni var ISG meira vinstra sinnuð en hún er í dag.
Ég er svo sem vanur því að Sjálfstæðismenn séu fastir í fortíðinni og kjósi að líta á alla, sem skilgreina sig vinstra megin við þá, sem komma. Ég hélt að þetta væri fast við einhverja framhaldsskóla lógík, en þetta virðist vera alveg jafn áberandi hjá eldri mönnum.
Sennilega er þetta vegna þess að það er auðveldara fyrir Sjálfstæðismenn að gagnrýna kommúnisma heldur en skoðanir okkar í dag. Það er svo yndislegt að geta bara sagt: “Já, en vinstri stefnan virkar ekki. Þegar vinstri menn réðu árið 82 þá var sko brjáluð verðbólga.” Og “vinstri menn kunna ekki að fara með peninga”.
Þetta er náttúrulega tóm þvæla og á ekkert við stjórnmálamenn í dag. Hvað með það þótt Ingibjörg hafi einu sinni verið herstöðvarandstæðingur og hafi fyrir 20 árum sagt einhver misgáfuleg komment um samkeppni? Ég fílaði einu sinni New Kids on The Block og studdi Sjálfstæðisflokkinn. Það segir hins vegar ansi lítið um mig í dag.
Af hverju megum við ekki bara dæma fólk af þeim skoðunum, sem það hefur í dag. Sjálfstæðismenn hafa allir skipt um skoðanir síðustu 20 ár. Allir! Hver einn og einasti. Hjá þeim er það nokkurs konar eðlileg þróun að þeir breytast úr frjálshyggjumönnum yfir í íhaldsmenn eftir því sem þeir eldast og fitna. Ég dæmi þá þó af þeim skoðunum, sem þeir halda uppi í dag, en ekki af því, sem þeir sögðu fyrir 20 árum. Er það til of mikils ætlast að þeir haldi uppi svipuðum standard fyrir vinstri menn?
Ummæli (8) |
Flokkur:
Stjórnmál
Guðlaugur og R-Listinn... og tölvupósturinn minn
Í huga Guðlaugs Þórs, fyrrverandi SUS-ara og núverandi Alþingismanns, ætli eitthvað vandamál þessa heims sé ekki R-listanum að kenna?
Já, og útaf allsherjarklúðri, þá er gamli tölvupósturinn minn, einar77 (@) simnet.is ekki lengur virkur. Nýji tölvupósturinn minn er einarorn (@) gmail.com. Bið alla, sem vilja senda mér póst um að nota þá addressu.
Ummæli (1) |
Flokkur:
Stjórnmál
Merkilegir hlutir
Í dag gerði ég nokkra merkilega hluti:
Ég keyrði uppí Grafarvog! Jei! Það gerist varla nema við hátíðleg tilefni að ég fari þangað.
Ég fór í klippingu. Það telst vissulega til stórtíðinda á þessari síðu, enda leiðist mér ekki að tala um hárið á mér. Núna er ég með sítt að aftan og talsvert styttra að framan. Loksins hitti ég á klippikonu, sem ég fílaði. Hún sagði að ég ætti að sættast við krullurnar mínar. Ég mun hér eftir reyna það. Mikið líður mér vel núna. Við klippikonan gátum meira að segja talað heillengi saman um afar skemmtilegan hlut, það er hárið á mér. Gaman gaman!
Sá Liverpool vinna 3-1 á Players ásamt vini mínum. Mikið afskaplega var það gaman. Þetta er í fyrsta skipti síðan ég man eftir mér að ég horfi á leik með Liverpool í útsláttarhluta Evrópukeppni Meistaraliða/Meistaradeildarinnar. Þeir sem segja að Liverpool sé eins-manns-lið mega núna officially hoppa uppí rassgatið á sér.
Fór svo í fótbolta eftir leikinn og núna er ég alveg búinn. Ég hélt að ég sæi fram á ögn rólegri tíma í vinnu, en svo breyttist allt í dag, þannig að sumum verkefnum verður enn frekar slegið á frest. Það er ekki gott.
Þessi hugrakki einstaklingur hlustaði á Dancing Queen með Abba í fimm klukkutíma á meðan hann keyrði til kærustunnar sinnar.
Fyrir þá, sem ekki vissu, þá tilkynnist það hér með að Jay-Z er SCHNILLINGUR! Einsog vanalega þá er ég nokkrum árum á eftir í hip-hopinu og því fattaði ég ekki Jay-Z fyrr en fyrir svona 2 árum. Hef smám saman verið að vinna mig í gegnum efnið hans. Undanfarið hef ég verið að hlusta á Unplugged plötuna með honum. Hún er æði. ÆÐI!
Ummæli (2) |
Flokkur:
Dagbók
Vídjó!
Eternal Sunshine of the Spotless mind er…
… ofmetin. Lagið með Beck er það besta við myndina.
Takk fyrir. Farinn á Vegamót.
Ummæli (8) |
Flokkur:
Kvikmyndir
Gengið á svelli
Var á djammi í gær. Það er ekki gott þegar að vekjaraklukkan hringir áður en maður sofnar. Ein af Serrano stelpunum var með partí og svo fórum við saman í bæinn.
- Fórum á Road House, sem er þar sem Thomsen var einu sinni. Staðurinn var nær tómur á laugardagskvöldi.
- Mæli með Pizza King, sem er þar sem Serrano var áður í Hafnarstræti. Pizzurnar þar eru bestu fyllerísmaturinn í bænum. Svo er Tony, gaurinn sem á staðinn, þrælfínn gaur, sem gefur mér alltaf ókeypis pizzu
- Ég efast um að það sé neitt fallegra í Reykjavíkurborg en að labba á ísilagðri tjörninni í fallegu veðri um miðja nótt, einsog ég gerði eftir djammið um 5 leytið í gær. Án efa fallegasti staðurinn í borginni.
En mikið skemmti ég mér nú vel. Vodka er málið, er hættur þessu bjórsulli.
Ummæli (2) |
Flokkur:
Dagbók
Íslenskur Bachelor
Ja hérna, þetta verð ég að sjá: Íslenskur piparsveinaþáttur næsta haust.
Skjár Einn ætlar semsagt að búa til íslenska útgáfu af The Bachelor og verður sá þáttur sýndur næsta haust. Þetta verður fróðlegt!!
Ummæli (8) |
Flokkur:
Sjónvarp
...
Ég er uppgefinn. Mæli ekki með því að fara í líkamsrækt í hádeginu og körfubolta klukkan 6. Eftir 10 mínútur í körfunni þurfti ég að fara upp og kaupa mér að borða því mér leið einsog það væri að líða yfir mig. Eftir körfuna keyrði ég uppí Kringlu og nánast valt inná Serrano, örmagna af þreytu og hungri. Ég man ekki eftir að hafa verið svona líkamlega þreyttur lengi. Einn svona dagur og ég verð búinn að brenna öllum bjórnum, sem ég bætti á mig í Evrópuferðinni.
Langar að vaka eftir Kenny & Spenny, sem er klukkan hálf ellefu, en held svei mér að ég sofni fyrir þann tíma. Á líka eftir að klára kynningu fyrir morgundaginn í vinnunni.
Útí Prag sá ég Closer í bíó. Ég ber við tímabundinni geðveiki en ég átta mig ekki alveg á því af hverju ég hafði Natalie Portman ekki á listanum mínum yfir fallegasta kvenfólk í heimi. Hún er með ólíkindum sæt.
Hey, og þú! Já, þú! Þú getur tekið þátt í spennandi könnun á Liverpool blogginu.
Já, og American Idiot er ekki bara góð plata. Hún er mjög góð.
Ummæli (3) |
Flokkur:
Dagbók
Módel grenja saman
Stundum kemur að því að ég spyr sjálfan mig að því hvað í andskotanum ég sé að gera og hvert ég stefni í þessu lífi.
Svona móment kom þegar ég var búinn að horfa á sirka hálftíma af “America’s Next Top Model” í kvöld. Ég meina, í alvöru! Þetta raunveruleikasjónvarpsæði mitt hefur í raun gert það að verkum að ég horfi á nær alla raunveruleikasjónvarpssþætti, sama hversu slappir þeir eru. Þegar þættirnir fjalla svo um hitt uppáhaldið mitt, fallegt kvenfólk, þá verð ég einfaldlega að horfa.
En þessir þættir eru drasl. Fyrirgefið, en þetta er drasl. Ég hef varið þetta oft áður, en ég get það varla lengur.
Fólk má mótmæla og kalla mig leiðinlegan, ljótan og hvað sem er, en að mínu mati þá var ekki helmingur af stelpunum í þættinum sætar. Sumar voru svona la la og ein eða tvær voru virkilega sætar (án farða, þá). Kannski er ég of pikkí, en maður verður nú að hafa háan standard þegar það á að vera að velja súpermódel.
Þrátt fyrir að vera fáránlega sæt, þá er Tyra Banks hundleiðinlegur þáttastjórnandi og gaurarnir, sem voru með henni í þættinum í dag, voru alveg hreint óskiljanlega leiðinlegir. Gamla súpermódelið, sem kom alltaf með mest nastí kommentin (gott) er hætt, sem er hræðilegt.
Eina vonin um að eitthvað rætist úr þessum þáttum er að nógu margar af þessum gellum reynist vera húrrandi geðveikar þegar þær flytja inní íbúðina. Gellan, sem var í kjól með bandaríska fánanum á, er góður kandídat. Fyrsta serían lifði algjörlega á trúarnötturunum tveim og Jonathan í Amazing Grace gleður mitt litla hjarta í hvert sinn sem hann tekur æðisköst. Það eina, sem bjargar þessum þáttum er oft að velja fólk, sem er eins fjarri því að geta talist venjulegt og hægt verður að komast.
Æi, meira að segja skrif um þennan þátt verða leiðinleg.
En, samt ætla ég sko að horfa í næstu viku. Ég bara get ekki að því gert.
Annars, ætla ég að beina einni spurningu til kvenkyns lesenda þessarar síðu: Grenja venjulegar stelpur í alvöru svona mikið?
Í alvöru! Ég meina for kræing át lád, það líða ekki fimm mínútur í þessum þætti án þess að allavegana fimm stelpur taki sig saman og væli í kór. Ég tel mig nú vera tilfinningaveru og sæmilega móttækilegan fyrir þeirri staðreynd að stelpur eru upp til hópa viðkvæmari en við strákar. En come on, þetta er ekki fokking eðlilegt. Eru þáttakendur í íslenskum fegurðarsamkeppnum til dæmis sí-vælandi, eða er þetta sér-amerískt?
Ummæli (7) |
Flokkur:
Sjónvarp
Aldur
Þar hafiði það…
| You Are 22 Years Old |
| Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe. 13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world. 20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what’s to come… love, work, and new experiences. 30-39: You are a thirtysomething at heart. You’ve had a taste of success and true love, but you want more! 40+: You are a mature adult. You’ve been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax. |
Ekki það að mig langi að vera 22 ára aftur.
Fokk, hvað mér leiðist. Ég er hálfpartinn að vona að Steven Gerrard taki tveggja fóta tæklingu á einhvern Suður-Ameríkubúann til að reyna að hrista upp í þessum sýningarfótbotlaleik, sem ég er að horfa á á Sýn. Þetta er alltof hægt allt saman.
Er að fara í fótbolta á eftir, en er með magaverk, hausverk og er auk þess örmagna af andlegri og líkamlegri þreytu. Úfff. Annaðhvort verður fótboltinn vítamínsprauta eða þá að ég verð alveg ónýtur á eftir.
Og fyrirgefið, en hversu fokking geðveikur er þessi Jonathan í Amazing Race? Hvernig getur konan þolað þetta?
Ummæli (6) |
Flokkur:
Netið
Snooze, Gwen og lokuð augu á Hverfisbarnum
Gwen Stefani er ekki bara fáránlega sæt, heldur á hún líka annað af tveim uppáhaldslögunum mínum í dag, What you waiting for. Hitt uppáhaldslagið er Drop it like it’s hot. Þessi lög bera það með sér að ég er nýkominn úr langri ferð, þar sem MTV hefur verið eina stöðin, sem horfandi hefur verið á á hótelherbergjum.
Samkvæmt óformlegri könnun minni þá voru þrjú lög í rotation á MTV. Þessi tvö og nýja lagið með Britney, sem ég fíla ekki.
Ég hef komist að því undanfarnar vikur að líf mitt er barátta á milli tveggja persóna. Þess Einars, sem fer að sofa á kvöldin og þess Einars, sem vaknar á morgnana.
Sá Einar, sem fer að sofa á kvöldin, stillir vekjaraklukkuna alltaf þannig að hinn Einar hafi nægan tíma til að borða morgunmat og lesa blöðin áður en hann mætir í vinnunna. Sá sem vaknar er hins vegar sannfærður um að hann þurfi aðeins fimm mínútur til að sinna þessu hlutum.
Í gær datt þeim Einari, sem fer að sofa, það snjallræði í hug að auk hefðbundinnar vekjaraklukku, þá stillti hann einnig vekjarann í gemsanum og setti gemsann á mitt gólf, þannig að ekki væri hægt að ná í símann án þess að fara frammúr. Einar, sem vaknaði, fattaði hins vegar að vekjarinn í símanum endist bara í 2 mínútur og því brosti hann og svaf af sér þær tvær mínútur. Ég veit ekki hvort ég á að taka að mér drastískari aðgerðir til að reyna að vakna á sama tíma, þar sem að þessi aðferð klikkaði.
Ég held í raun að snooze takkinn sé einhver alversta uppfinning allra tíma. Ég hef verið að spá í hvað ég gæti gert til að vakna alltaf á sama tíma. Kannski að vekjaraklukka án snooze takka sé málið? Svo gæti ég líka drifið í að finna mér kærustu og eignast börn, einsog virðist vera í tísku í vinahópnum mínum. En það finnst mér full drastísk lausn og auk þess tekur hún nokkra mánuði að virka.
Er einhver með góð ráð? Er hægt að fara í meðferð við þessari snooze sýki?
Annað mál: Væri ekki ráð fyrir Hverfisbarinn að taka út myndir af viðskiptavinum, þar sem fólk er annaðhvort að gretta sig eða með lokuð augun?
Ummæli (12) |
Flokkur:
Dagbók
Laun þingmanna
Veit einhver hvað alþingismenn eru með í laun? Ég get ekki fundið eitt einasta skjal um þetta á Google, sem mér finnst afar slæmt.
Ég lenti í þrætum um þetta nýlega og þarf að vita hvort ég hafði rétt eða rangt fyrir mér. Veit einhver hvað þeir eru með í grunnlaun og hvað meðalþingmaðurinn fær í heildarlaun? Ég fann milljón greinar þar sem fólk kvartar yfir háum launum þingmanna, en enga grein þar sem minnst er á krónutölu. Það finnst mér magnað.
Ummæli (13) |
Flokkur:
Stjórnmál
Tékkneskar bækur
Þegar ég ferðast nú til dags er fyrsta reglan mín sú að kaupa mér Lonely Planet bók um áfangastaðinn og lesa mér til um sögu og helstu hápunkta við viðkomandi stað. Þetta hjálpar manni að meta betur staðinn og gerir ferðina skemmtilegri.
Einnig getur verið gaman að lesa bókmenntir viðkomandi lands. Það er til dæmis dálítið gaman að lesa Dostojevsky í St. Pétursborg og Garcia Marques í Cartagena.
Þegar ég var í Prag kláraði ég tvær af þeim þrem tékknesku bókum, sem ég átti. Af einhverjum ástæðum hafði ég gefist uppá þeim öllum á mismunandi stöðum. Ég tók mig hins vegar á og kláraði The Metamorphosis eftir Kafka, sem er góð.
Einnig kláraði ég Óbærilegan léttleika tilverunnar eftir Milan Kundera. Sú bók er frábær. Ég hafði byrjað á henni þegar ég var í Bandaríkjunum en eitthvað við ástandið þar gerði það að verkum að ég hætti að lesa hana. Prag ferðin var svo ágætis ástæða fyrir að klára bókina. Bókin er frábær ástarsaga, sem fær mann til að hugsa um ýmis málefni varðandi lífið. Mæli með henni fyrir alla. Ég tók mig til og pantaði mér bíómyndina á Amazon. Það verður fróðlegt að sjá hvernig bíómynd tekur á þessum málefnum.
Þriðja tékkneska bókin, og sú sem ég hef ekki enn klárað er Góði Dátinn Sveijk. Ég ætla að taka ráð hans Ágústs Flyg. og finna mér hana á hljóðbók í lestri Gísla Halldórssonar. Veit einhver hvar ég nálgast þá upptöku?
Ummæli (4) |
Flokkur:
Bækur
Sunnudagsþátturinn
Mikið hlýtur Illugi Gunnarsson, hjálparsveinn Davíðs, að elska röddina sína. Í morgun tók hann viðtal við Guðmund Árna um utanríkisstefnu Samfylkingarinnar og ég leyfi mér að fullyrða að Illugi hafi talað 70% af tímanum. Guðmundur Árni fékk aldrei að setja saman tvær setningar til að skýra stefnuna, sem átti þó að vera takmark viðtalsins.
Takmark spyrilsins á ekki að vera það að sýna hvað hann sé sniðugur og viðmælandinn vitlaus, einsog takmark Illuga virðist hafa verið í dag. Menn sem afskrifa Krata í Samfylkingunni eru einnig á villigötum.
Ummæli (0) |
Flokkur:
Sjónvarp
Ný debetkoramynd
Ég var að fá nýtt greiðslukort og fattaði þá að myndin af mér á kortinu er orðin frekar gömul. Ég var að reyna að átta mig á því hversu gömul hún er. Ég er enn með eyrnalokk á henni, en fyrrverandi kærastan mín kýldi úr mér síðasta eyrnarlokkinn (óvart þó) á þeim degi er ég útskrifaðist úr Verzló fyrir x árum síðan. Þannig að ég tippa á að ég sé 19 ára á myndinni.
Allavegana, ég ákvað í dag að þetta gengi ekki lengur og tók nýja mynd, sem ég ætla að setja í debet- og kredit kortin mín. Ég komst að því að ég hef breyst talsvert á þessum árum.
Fyrir þá, sem ekki fatta, þá er myndin til hægri þessi nýja
Semsagt, ég í kringum 1997 og ég árið 2005.
Annars fór ég í Apple umboðið í dag og keypti mér nýja iLife pakkann og setti hann inná Makkann minn. Nýja iPhoto er algjört æði. Fékk líka þær fréttir að iPod-inn minn, sem hefur verið í viðgerð í heilar þrjár vikur, væri tilbúinn og ég gæti sótt hann á mánudaginn. Ég faðmaði næstum því afgreiðslumanninn þegar hann sagði mér þetta, enda hef ég saknað iPod-sins gríðarlega.
Mikið er gaman að tveir bloggarar, sem ég les daglega skuli blogga um það að hafa borðað Serrano í dag
Fór annars í Kringluna í dag og skoðaði gleraugu. Mikið er ég svakalega gáfulegur þegar ég set upp gleraugu! Ætla að kíkja í aðra búð á morgun og ganga svo frá kaupum Það gengur ekki lengur að ég skuli sitja 1 metra frá sjónvarpinu þegar ég horfi á fótbolta.
Kristján Atli skrifar góðan pistil um það hversu mikil áhrif einn helvítis fótboltaleikur getur haft á mann. Að ímynda sér að Liverpool tap geti stuðað menn til að skrifa pistil sem heitir Litlausir dagar einmanaleikans. Ég fokking hata það þegar Liverpool tapar!
Sat á neðri hæðinni á Vegamótum í gær. Á Vegamótum er eitthvað almagnaðasta borð á íslenskum skemmtistað. Nefnilega borðið, sem er fyrir framan stóra spegilinn, sem fær staðinn til að líta út fyrir að vera helmingi stærri en hann er. Það borð tekur þrjá einstaklinga og þar á meðal situr einstaklingurinn í miðjunni beint fyrir framan spegilinn. Finnst fólki ekkert óþægilegt að sitja í því sæti? Ég var að velta þessu fyrir mér þegar ég leit sirka 30 sinnum um öxl á sæta stelpu, sem sat við það borð.
Mig langar að djamma, en grunar einhvern veginn að ég eigi eftir að eyða kvöldinu fyrir framan tölvuna við að reyna að klára verkefni, sem ég tók að mér fyrir einhverjum vikum. Það er ekki gott.
Ummæli (9) |
Flokkur:
Dagbók
24, gleraugu og bjór
Á einhver fyrstu þrjá þættina af nýju seríunni af 24 á tölvutæku formi, eða getur sagt mér hvernig á að nálgast þá. Ég missti af þeim þegar ég var úti. Ég stökk næstum því útá svalir þegar ég heyrði alltíeinu “previously on 24” í sjónvarpinu áðan.
En allavegana, ég er kominn heim eftir erfiða en skemmtilega ferð. Ég er búinn að átta mig á því að ég þarf að skoða það alvarlega að fá mér gleraugu. Í flugvélinni á leið heim til Íslands frá Köben þá sá ég stelpu, sem ég held að hafi verið stelpa, sem var með mér í skóla og ég hitti á djamminu fyrir einhverjum vikum. Eeen, ég var ekki viss, þar sem ég á oft erfitt að greina fullkomlega andlit í örlítilli fjarlægð frá mér.
Skítt með það að ég geti ekki lesið Excel skjöl á skjávarpa á fundum, eða horft á fótbolta á pöbbum, en þegar þetta hefur áhrif á það að ég geti greint stelpur í sundur, þá er fokið í flest skjól.
Ok, ætla á Vegamót, fá mér bjór. Ég verð að tóna mig aðeins niður í drykkjunni, enda fann ég verulega á mér í ræktinni í dag. Ég hef aldrei á ævinni drukkið jafnmikið af bjór og undanfarnar tvær vikur. Úffffff…
Já, og fyrir fótboltaaðdáendur, sem lesa þessa síðu en ekki L’Pool blogið þá er þetta góð grein: Besti miðjumaður Liverpool
Ummæli (3) |
Flokkur:
Dagbók
Waiting on the Pizzle, the Dizzle and the Shizzle
Á stundum spyr ég mig af hverju ég horfi á fótbolta. Ég var í góðum fíling í mat og bjór hérna í miðbæ Breda þegar ég skyndilega stökk upp og áttaði mig á því að Holland (mínir menn) væru að spila við Englendinga í fótbolta. Ég ákvað því að finna mér stað til að horfa á leikinn… sem var einmitt hörmung. Þvílík leiðindi hef ég ekki þurft að þola lengi.
Allavegana,
Ég veit ekki hvort ég hafi lent í einhverju twiligth zone um kvöldmatarleytið í gær hérna í Hollandi. Ég fór nefnilega á Subway, hvar ég fékk mer það allra óhollasta á matseðlinum. Það skiptir ekki máli, en það sem skiptir máli er að stelpan sem afgreiddi mig var alveg ótrúlega falleg. Þegar ég var ekki að horfa á hana búa til samlokuna mína gat ég svo virt fyrir mér stelpuna, sem var ein með mér í röðinni, sem var einmitt líka gull, gullfalleg.
Ok, ég fæ samlokuna og fer með hana heim á hótel. Þegar ég er að labba framhjá einhverju húsi er stelpa að opna hurðina, sem brosir fallega til mín. Ég sver að hún var fallegri en Metro stelpan, sem ég sá í Caracas um árið.
Er það eðlilegt að fara útúr húsi að kvöldi til og að allar, já allar stelpurnar sem maður sér séu svona fallegar? Ég sannreyndi það í dag að þessi statistík á ekki við allar konur í Hollandi þannig að ég er búinn að útiloka þann möguleika.
Ok, ætti ég kannski að fara að sofa?
Allavegana, ég á flug heim á morgun. Fæ að bíða á Schiphol í einhverja fimm tíma, sem hlýtur að vera skemmtilegt enda vita allir að flugvellir eru skemmtilegustu staðirnir á þessu jarðríki.
Eftir fundinn í dag var farið með allt fólkið á skauta á svell hér í borg. Ég hef ekki farið á skauta síðan ég fór með fyrrverandi kærustu á skauta í Chicago, sem var að ég held annað skiptið á ævinni, sem ég hef farið á skauta. Í minningunni var ég snillingur á skautum, en það reyndist þó ekki vera alveg svo. Það var þó einhver kall, sem að sagði mér til og eftir smá tíma var ég farinn að geta skautað sæmilega. Skautaði í klukkutíma án þess að detta, sem mér finnst vera meiriháttar afrek! Svei mér þá, það er bara gaman að vera á skautum. Reyndar set ég þann fyrirvara að ég fíla ekki þær íþróttir þar sem mér er rústað af 8 ára gömlum stelpum.
Að lokum langar mig til að vitna aðeins í textann á uppáhaldslaginu mínu:
So don’t change the dizzle, turn it up a little
I got a living room full of fine dime brizzles
Waiting on the Pizzle, the Dizzle and the Shizzle
G’s to the bizzack, now ladies here we gizzo
Jammmm, ég veit, þetta er SNILLD!
Skrifað í Breda, Hollandi klukkan 0:04
Ummæli (0) |
Flokkur:
Ferðalög
Gullni túlípaninn og helgi í Prag
Núna er ég kominn til Hollands eftir helgi í Prag. Er á hóteli, sem heitir því yndislega hollenska nafni “Gullni Túlípaninn” í bænum Breda við landamæri Belgíu. Hérna kom ég um 5 leytið og verð hér næstu tvo daga á námskeiði tengdu vinnunni.
Það er eitthvað karneval í gangi hérna í bænum og eru því allir bæjarbúar klæddir í búninga og drekkandi Heineken á pöbbum bæjarins. Ég var þó frekar þreyttur og ákvað að það væri indlælt að eyða kvöldinu inná hótelherbergi, glápandi á Dismissed og aðra eðalþætti í boði MTV.
En allavegana, ég eyddi helginni í Prag. Leifur, fyrrverandi bekkjarfélagi minn býr þar ásamt tékkneskri kærustu og Ragga vini þeirra í gullfallegri íbúð í miðhluta borgarinnar, þar sem ég fékk að gista á sófanum. Ég ákvað með nokkuð stuttum fyrirvara að fara til Prag. Hluti af ástæðunni var vinnutengd og hluti vegna þess að ég átti fund á föstudegi í Þýskalandi og næsta miðvikudag í Hollandi og hafði lítið að gera heima á Íslandi yfir helgina.
En allavegana, Prag er skemmtileg borg. Kuldinn spillti aðeins fyrir enda nær 10 stiga frost í borginni, þrátt fyrir að sólin hafi skinið allan tímann. Ég eyddi þarna fjórum dögum í rólegheitunum, í að skoða túristastaði, drekka bjór og slappa af. Frábært helgarfrí.
Einsog flestir túristar eyddi ég öllum tímanum í gamla hluta Prag, sem er umtalsvert meira heillandi en kommúnistablokkirnar sem rísa í hæðunum utan við miðborgina. Gestgjafarnir fóru með mér í heljarinnar túristarúnt um alla helstu staðina í borginni: kastalann, Karlsbrúna, Petrin turninn, gamla torgið og gyðingahverfið. Allt æði. Allt voða gaman.
Miðborg Prag er í raun alveg einstök. Það er sennilega erfitt að finna að finna fallegri miðborg, sama hversu víða maður leitar. Yndislega fallegar byggingar og allt iðandi af mannlífi. Víst að mannþröngvin var einsog hún var í 10 stiga frosti í febrúar, þá get ég rétt ímyndað mér hvernig hún er í júlí. Og það er svosem ekki erfitt að skilja hvað fólk sér við borgina.
Gamla torgið og Karlsbrúin eru yndisleg og Gyðingahverfið er magnaður staður, sem ég held að margir túristar láti framhjá sér fara. Samanstendur af mögnuðum kikjugarði og nokkrum bænahúsum, sem eru annaðhvort virk sem slík eða söfn. Vel þess virði að skoða.
Við kíktum út öll kvöldin og skiptumst á að drekka Pilsner Urquell og Budweiser í miklu magni. Budweiser fær mitt atkvæði og svei mér þá, ég held að ég hafi sjaldan fengið betri bjór en Budweiser beint af krana í Prag. Lengsta djammið var á laugardeginum þegar við fórum á Karlovy Lazné klúbbinn við Karlsbrúna, sem kallar sig stærsta klúbb í Mið-Evrópu. Klúbbarnir eru byggðir fyrir túrista og því fleiri stelpur frá Manchester heldur en Prag á dansgólfinu. Þegar að DJ-inn spilaði tékkneskt lag, þá var kærastan hans Leifs sú eina, sem tók við sér. Allir hinir inná staðnum voru útlendinegar, sem er vissulega eilítið sorglegt. Og þar er í raun stærsti galli Prag. Það sést alltof lítið af Tékkum á helstu stöðunum, allt er fullt af útlendingum og það hefur leitt af sér hátt verðlag í miðborginni, sem fælir innfædda frá.
En það spillir þó ekki fyrir því að það er stórkostleg reynsla að sjá Prag í fyrsta skipti. Að keyra yfir Vltava ána að kvöldi til og sjá kastalann upplýstann, sem og að labba í fyrsta skipti um nýja hliðargötu eða inná torgið í gamla bænum (eða einsog ég kýs að kalla það: Staromestske Namestí), er algjörlega ógleymanlegt. Á torgið í gamla bænum vantar bara styttu af Milan Baros til að fullkomna verkið.
Þrátt fyrir að ég hafi skemmt mér vel í Prag, þá voru greinilega ekki allir vinir mínir jafn ánægðir með að ég væri að djamma í Prag. Til að mynda sendi ég einum vini mínum eftirfarandi SMS skeyti á laugardagskvöld: “HEY, ég er að djamma í Praaaag! Hvernig var Gísli Marteinn?” Ég fékk hins vegar ekkert svar.
Með þessari ferð til Prag, þá er ég er kominn uppí 15! Ég set myndir frá ferðinni inn seinna.
Skrifað í Breda í Hollandi klukkan 22.10
Ummæli (4) |
Flokkur:
Ferðalög
Ich bin ein kugelschreiber
Það er tvennt, sem ég skil ekki við Þjóðverja. Í fyrsta lagi að þessi 80 milljón manna þjóð skuli hafa getað sætt sig á aðeins eina tegund af rúnstykki, sem er framreidd á öllum hótelum í landinu.
Önnur staðreyndin, sem ég skil ekki, er sú að stór bjór í Köln skuli vera 200 ml, en stór bjór í Frankfurt (sem er um 150 km frá Köln) skuli vera 500 ml. Þetta eru tvær magnaðar staðreyndir, sem hafa haldið fyrir mér vöku undanfarið.
En semsagt, ég er í Þýskalandi, Frankfurt nánar tiltekið. Nánar tiltekið á Sheraton í einhverju business hverfi í suður-Frankfurt. Ljómandi skemmtilegt alveg. Kom frá Köln í gær og er búinn að vera á fundi í dag. Fer svo til Prag á morgun, en hef vonandi tíma til að kíkja eitthvað í bæinn fyrri partinn.
Köln var fín einsog ávallt. Ég var á sýningu og fundum allan daginn, en um kvöldin voru partý í boði ýmissa birgja. Á mánudag var ég t.a.m. á siglingu um Rín og á þriðjudaginn var ég í partýi í boði Pez, þar sem var dansað uppá borðum. Gríðarlega hressandi. Það tekur þó furðu mikið á að vera á sýningu allan daginn og svo í boðum fram á morgun. En ég er ungur og hress, þannig að þetta er minnsta mál. Já, eða eitthvað. Mikið svaf ég samt fáránlega vel í nótt.
Hafði smá tíma til að versla. Mér finnst nefnilega gaman að versla föt undir eftirfarandi skilyrðum: Ég verð að vera einn, og ég verð að vera í útlöndum. Ég get ekki gefið neinar nánari skýringar en svona er þetta. Keypti mér m.a. flottustu skó í heimi. Þið verðið einfaldlega að sætta ykkur við að sama hversu mörg pör af skóm þið kaupið um ævina, þá verða þeir aldrei jafn flottir og mínir. Nema þá að þið kaupið nákvæmlega eins skó og ég keypti, en ég mæli alls ekki með því.
Það flæða ekki beinlínis útúr manni skemmtilegar ferðasögur í svona vinnuferðum, en svona er þetta. Vonandi verður Prag meira spennandi. En þetta er búið að vera skemmtilegt hingað til. Erfitt en gaman.
Skrifað í Frankfurt kl. 22:01
Ummæli (8) |
Flokkur:
Ferðalög
Warning: readfile() [function.readfile]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2005/02/index.php on line 1459
Warning: readfile(http://www.eoe.is/hlid.dat) [function.readfile]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2005/02/index.php on line 1459
