Warning: include() [function.include]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2005/06/index.php on line 149
Warning: include(http://www.eoe.is/tilkynning.dat) [function.include]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2005/06/index.php on line 149
Warning: include() [function.include]: Failed opening 'http://www.eoe.is/tilkynning.dat' for inclusion (include_path='.:/usr/share/php5:/usr/share/php') in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2005/06/index.php on line 149
« maí 2005 | Main | júlí 2005 »
Iceland Express og DV
Hvaða bjánaskapur er þetta eiginlega?: Iceland Express hættir sölu á DV og Hér & nú
Ég nenni ekki að blaðra um þetta Hér og Nú mál. Stefán Pálsson og Badabing fjalla skemmtilega um það mál. En mikið afskaplega finnst mér þetta nú hallærislegt hjá Iceland Express.
Hvaða tilgangi þjónar þessi ritskoðun Iceland Express? Þeir eru að takmarka úrval í flugvélunum sínum en ákveða samt að auglýsa það upp í Morgunblaðinu. Hver er tilgangurinn með því? Eru þeir að reyna að skora stig hjá almenningi með því að vera flugfélag, sem er á hærra siðferðislegu plani en flestar matvöru- og bókabúðir í landinu?
Talsmaður IE segir:
Birgir segir að Iceland Express selji vel yfir tvö þúsund eintök af DV á mánuði. “Farþegar okkar hafa enga valkosti um hvort þeir sjá forsíðuna eða ekki þar sem gengið er með blaðið um gangana. Við viljum þá frekar selja vöru sem fólki líkar betur og er þar af leiðandi betri fyrir okkur,
“viljum þá frekar selja vörur sem fólki líkar betur”!!! Tvö þúsund manns keyptu DV af Iceland Express af fúsum og frjálsum vilja, en nei nei, núna vilja IE bara selja fólki blöð, sem fólkinu sjálfu “líkar betur” við. Hvað voru þessir 2000 einstaklingar, sem keyptu DV, eiginlega að spá? Var þetta fólk að kaupa blað, sem því líkar illa við? Þetta er einhver allra mesta vitleysa, sem ég hef lesið.
Með þessu fordæmi er Iceland Express að fara inná afar vafasama braut ritskoðunnar, með því að selja einungis efni, sem að eigendunum líkar við, ekki efni sem fólkið vill kaupa. Þekkt dæmi um svipað athæfi frá útlöndum er til dæmis sú ritskoðun, sem Wal-Mart stendur fyrir á geisladiskum og annarri vöru í sínum búðum. Sú ritskoðun fer fram með nákvæmlega sömu formerkjum, það er að Wal-Mart þykist vera að gera það, sem að viðskiptavinirnir vilja. Sem er náttúrulega tómt bull. Eflaust er einhver hópur viðskiptavina, sem fer í fýlu yfir því að sumir hlutir séu til sölu, en það er ekki hægt að réttlæta ritskoðun með því. Ég vil til að mynda helst ekki að Man U bolir séu til sölu í búðum, en það myndi engum verslunum detta í hug að hætta að selja þær treyjur bara vegna þess að ég fæ sviða í augun þegar ég sé þær treyjur inni í versluninni.
Iceland Express er ekki að gera þetta til hagsbóta fyrir sína viðskiptavini. Svo einfalt er það. Ég vona að fólk sjái þetta bara fyrir það, sem það er í raun. Flugfélag ritskoðar það, sem það selur, og reynir svo að nýta sér ritskoðunina sér til hagsbóta með því að þykjast vera einhverjir sérstakir siðferðispostular.
Ummæli (14) |
Flokkur:
Almennt
Fo' Shizzle!
Ok, ég er að fara á Snoop í Egilshöll ásamt tveim vinum mínum. Þetta var auðvitað of gott tækifæri til að láta framhjá sér fara.
Allavegana, ég hef verið að leita að set-lista fyrir þennan túr, sem Snopp er á, en hef ekkert fundið. Veit einhver hvaða lög Snoop er að taka á þessum túr, eða veit einhver um set-lista frá einhverjum tónleikum af þessum síðasta túr?
Ummæli (5) |
Flokkur:
Tónlist
Merkasti Bandaríkjamaðurinn!
Eru menn ekki að fokking grínast í mér?
Reagan voted ‘greatest American’
Mikið geta þessir Repúblikanar í Bandaríkjunum verið miklir bjánar. Að velja Reagan framyfir FDR, Lincoln, MLK. Já, og Oprah lendir líka ofar en FDR.
Annars bendi ég áhugafólki um bandaríska pólitík á þessa grein: If Watergate happened now. Sorglegt, en ekki svo fjarri sannleikanum.
Ummæli (5) |
Flokkur:
Stjórnmál
iTunes og Podcast
iTunes 4,9 kom út í gær. Það merkilegasta við þessa útgáfu er að iTunes styður núna Podcast, sem er einmitt algjör snilld!
Beisiklí, þá eru Podcasts bara Mp3 skrár með ýmsu efni. Oftast gengur þetta þannig fyrir sig að maður finnur ákveðið efni í iTunes, einsog til dæmis bandaríska útvarpsþætti og gerist áskrifandi að þáttunum. Til dæmis gerðist ég í morgun áskrifandi að “The Al Franken Show”, sem er snilldarþáttur. Um leið og ég hef gerst áskrifandi, þá nær iTunes sjálfkrafa í nýjustu þættina á hverjum degi og setur þá líka á iPod-inn minn.
Þannig að á hverjum degi fæ ég fullt af skemmtilegu nýju efni inná iPod-inn minn, án nokkurrar fyrirhafnar (nema að þetta er erlent niðurhal). Í dag er hægt að velja á milli um 3000 Podcasts með alls konar efni, frá íþróttum til pólitískra spjallþátta og fræðsluþátta.
Þetta er snilld. Snilld, segi ég og skrifa!
Ummæli (1) |
Flokkur:
Tækni
Án titils
Veit einhver hvar ég fæ svona tæki á Íslandi?
Ég gerði fullt gagnlegt og skemmtilegt um helgina, þrátt fyrir vandræði mín. Tók til heima (núna er aftur allt í drasli), kláraði smá vefsíðudót (by the way, veit einhver hvernig ég get fengið scrollbar á sprettigluggana á svona síðum?), horfði á Alfie (sem mér fannst bara fín, mun betri en ég átti von á, fór í mat til mömmu og pabba, fór á Batman Begins í bíó (sem er góð!), grillaði nautasteik, þvoði föt, horfði á Seinfeld, horfði á Mexíkó tapa í Álfukeppninni (fokk!), horfði á Chicago Cubs vinna (Yes!), borðaði ís, las bækur og pantaði mér svo fullt af dóti á Amazon.
Fín helgi!
Annars, þá elska ég Ask Metafilter. Það er snilldarsíða. Þarna getur maður lagt fram spurningar um allt milli himins og jarðar og fengið fullt af svörum frá kláru og skemmtilegu fólki. Ég setti til dæmis inn eina spurningu í gær og fékk strax fullt af sniðugum svörum. Ákvað að panta mér strax nokkrar bækurnar, sem mælt var með.
Ummæli (9) |
Flokkur:
Dagbók
Jæja, hvað á ég *svo* að gera?
Þetta er skrítin helgi.
Í fyrsta skipti í margar, margar vikur er nákvæmlega ekkert skipulagt hjá mér yfir heila helgi. Ég þarf svo sem ekkert að vinna, vinir eru flestir að gera eitthvað annað og því varð það úr að ég hafði nákvæmlega ekkert planað þessa helgi.
Því eyddi ég gærkvöldinu hérna heima, horfandi á sjónvarpið. Horfði meðal annars á nýja kvöldþáttinn á Sirkus, sem er sæmilegur. Ég vil ekki vera neikvæðari nema eftir nokkra þætti. Það væri fáránlegt að dæma þáttinn algjörlega út frá fyrstu tilraun. Þetta getur alveg orðið gott.
Í morgun saf ég svo út en dreif mig síðan inní World Class. Kannski er það vonda veðrið, en World Class var fullt af sætum stelpum á réttum aldri. Ég, sem er þarna alltaf í hádeginu, er ekki vanur slíku. Allavegana, lyfti og hljóp svo 7 kílómetra. Eldri systir mín hljóp maraþon hlaup um daginn og við þær fréttir fannst mér að ég þyrfti að fara að hlaupa meira, svo þetta er skref í áttina.
Fór svo uppá Serrano og hélt áfram að prófa mig áfram með nýja rétti á staðnum. Það er allt að koma.
Og þá er ég búinn. Búinn að fara í líkamsrækt og uppá Serrano, þannig að samviskubitið getur ekki mögulega nagað mig þessa helgi. Því hef ég næstu 36 tímana gjörsamlega óplanaða. Það er eiginlega alveg skuggalegt að hugsa til þess. Veðrið er ömurlegt, þannig að ég fer ekki út. Horfi auðvitað á baráttuna um Chi-town klukkan átta en veit ekki um annað. Ætli ég kveiki ekki bara á Xbox tölvunni minni í fyrsta skipti í tvo mánuði.
Eða kannski ætti ég að gera eitthvað aðeins menningarlegra. Ég veit ekki. Það er alltof erfitt að eiga svona mikinn lausan tíma.
Ummæli (2) |
Flokkur:
Dagbók
Hinn íslenski bachelor
Ok, semsagt þá er það orðið opinbert að þessi íslenski Bachelor þáttur er að hefja göngu sína. Almenningur spyr sig því sennilega: “Hvað segir Einar Örn um þetta mál?” Jæja, ég verð að svara því.
Ég átti smá umræður um þetta mál við frænku mína í dag og við vorum sammála um að þátturinn hljóti að lenda í ákveðnum erfiðleikum.
Í sjálfu sér lýst mér alveg ljómandi vel á hugmyndina og ég held að þetta verði stórkostlegt sjónvarpsefni, sem mun valda því að kjánahrollurinn hjá manni mun ná nýjum hæðum, sem ekki einu sinni verulega slæmur þáttur af Djúpu Lauginni getur valdið.
Ég sé þó fyrir talsvert af vandamálum varðandi þáttinn. Ég finn ekki Mogga umfjöllunina á netinu, þannig að ég verð bara að vitna í prentútgáfuna (ekki spyrja mig af hverju ég er áskrifandi af Mogganum, ég ber við varanlegu stundarbrjálæði).
Planið hjá Skjá Einum er semsagt að fara í Idol túr um landið, þar sem þeir ætla að taka viðtöl við stráka og stelpur, sem hafa áhuga á að vera í þættinum. Eflaust munu svo S1 menn leita til einhverra aðila, sem sækja ekki um. Ég efast nefnilega um að fólkið, sem S1 vilja sjá í þættinum sé sama fólkið, sem myndi bíða í biðröð fyrir utan eitthvað hótel til að komast í viðtal.
Viðtölin verða haldin á Akureyri, Selfossi, Egilsstöðum, Ísafirði, Akranesi, Sauðárkróki og í Reykjavík. S1 munu svo nýta sér þessi viðtöl sem efni í fyrstu þættina. Þannig að ef þú sækir um og kemst ekki í þáttinn, þá gætirðu samt lent í sjónvarpinu, sem einn af lúserunum í fyrstu þáttunum. Þetta er öðruvísi en bandaríska útgáfan.
Allavegana, ætlunin er að velja einn piparsvein og 25 einhleypar íslenskar stelpur í þáttinn. Samkvæmt S1 þarf piparsveinninn þarf að vera:
fallegur jafnt að utan sem innan og þarf að vera virkilegt eiginmannsefni sem allar konur vilja. Hann þarf að vera á aldrinum 21 til 35 og einhleypur. Hann má gjarnan vera í góðri stöðu og hafa góð og heilbrigð markmið og líffskoðanir.
Glöggir menn sjá eflaust að þessi lýsing passar alveg ískyggilega vel við mig (mætti kannski bæta við hógvær). Svo er það tekið fram að stelpurnar eigi að uppfylla svipuð skilyrði.
Ok, fyrsta spurning: Hvar ætla þeir að finna 25 myndarlegar og klárar konur á þessum aldri, sem eru í góðri stöðu og á lausu? Gleymum því ekki að þetta er Ísland. Í öðru lagi, hvernig ætla þeir að finna 25 slíkar konur, sem vilja koma fram í sjónvarpinu í svona þætti? Þetta verður skrautlegt.
Sko, meira að segja í bandaríska þættinum þá er slatti af stelpum, sem eru ekkert alltof myndarlegar (án professional förðunar) og eru hálf skrítnar. Í þeim þætti er hins vegar verið að velja fólk úr 280 milljón manna þjóð og framkoma í þættinum getur þýtt gríðarleg tækifæri. Hérna er hins vegar verið að velja fólk úr 280.000 manna þjóð og framkoma í þættinum mun sennilega þýða opnuviðtal í Séð & Heyrt og fullt af fullum vitleysingum að bögga þig á djamminu. Ég sé bara ekki hvernig þetta gengur upp.
Ég þekki nokkrar álitlegar stelpur, sem eru á lausu. Ég þori hins vegar að veðja að þær vilja ALLS, ALLS ekki láta líta út fyrir sem svo að þær séu nógu desperate til að fara í þáttinn. Þær vilja allar láta líta út sem svo að þær þurfi ekki karlmenn og að ef þær lendi með karlmönnum, þá sé það bara tilviljun en ekki vegna þess að þær séu að reyna eitthvað.
Ef þær færu hins vegar í hinn íslenska Bachelor, þá væru þær að viðurkenna að þær séu tilbúnar til að gera ansi margt til að ná sér í karlmann. Þar sem þær munu taka þessa ákvörðun ódrukknar, þá efast ég um að margar myndarlegar og klárar stelpur muni taka þátt í þættinum. Langar stelpum að vera “stelpan, sem var rekin í burt af íslenska bachelornum” og þola það að allir horfi á sig á Hverfisbarnum og komi svo með mis-sniðug komment? Ég held ekki.
Ætli þetta verði ekki aðallega sterkt útá landi? Og þetta segi ég án nokkurar óvirðingar við landsbyggðina. Það virðist bara vera svo sem að til dæmis Djúpa Laugin sé miklu vinsælli meðal landsbyggðarfólks heldur en fólks af höfuðborgarsvæðinu. En kannski er ég bara svona neikvæður og öllum finnnst þetta vera voðalega sniðugt.
En hvernig sem gengur, þá mun ég horfa á hvern einasta þátt. Ef að það kemur í ljós að það er fullt af einhleypum, myndarlegum og klárum stelpum, sem keppast um að komast í sjónvarpið, þá mun það gleðja mig mjög.
Þetta verður allavegana fróðlegt.
Ummæli (13) |
Flokkur:
Sjónvarp
Tom Cruise hjá Opruh
Ég veit ekki hvort það sé bara ég, en mér finnst þetta ferlega fyndið:
Tom Cruise drepur Opruh (myndband - 4mb útlönd)
Einnig mæli ég með þessu broti úr the Daily Show, sem Palli H hýsir
Ummæli (1) |
Flokkur:
Sjónvarp
Fashion dos and don'ts
Jæja, þá er komið að nýjum lið hérna á síðunni: Tískuhorn Einars.
Hérna er ein ráðlegging til íslenskra karlmanna.
Það virðist vera svo að Capri buxur séu að verða vinsælli meðal íslenskra karlmanna. Þetta hefur verið að gerast smám saman síðustu ár, en núna í sumar virðist þetta vera voðalega vinsælt.
Allavegana, gott og vel að karlmenn skuli ganga í Capri buxum. En ef þeir ætla að gera slíkt, þá má EKKI, ég endurtek EKKI, ég endurtek aftur EKKI ganga líka í strigaskóm og háum sokkum! Til dæmis svona
Neibbs, ef menn ætla að ganga í svona buxum þá eiga þeir annaðhvort að sleppa sokkunum eða vera í sandölum. Like so.
Takk fyrir.
Annars getiði hérna lært að rífa í sundur símaskrá. Þetta gæti komið að gagni seinna. Ég er að spá í að æfa mig í þessu og svo næst þegar ég fer á stefnumót ætla ég að vera með símaskrá í bílnum. Ef allt er að fara til fjandans tek ég upp símaskrána, öskra, ber mér á brjóst, ríf svo símaskrána í sundur og heilla þar með stelpuna uppúr skónum.
Ég get svo svarið það, ég ætti að stofna ráðgjafaþjónustu.
Ummæli (10) |
Flokkur:
Almennt
Vinnupartý og útilegur
Mér finnst vanalega alveg óstjórnlega leiðinlegt að keyra. Ég keyri fram og aftur úr vinnu nánast í einhverju móki, alveg hugsanalaust. Gleymi mér oft þegar ég ætla að fara uppá Serrano á leiðinni heim og er kominn hálfa leið í Vesturbæinn þegar ég átta mig á hlutunum. Er svo vanur að fara sömu leið alveg án þess að hugsa, að öll tilbreyting veldur nánast uppnámi.
En einstaka sinnum er gaman að keyra. Einsog t.d. í kvöld. Var að keyra frá Hellu og í bæinn. Einn í bíl, með iPod-inn minn í eyrunum í æðislegu veðri með sólina í andlitið. Fannst einhvern veginn allt svo fallegt í kringum mig. Sami vegur og ég hef keyrt svo oft áður, en stundum er einfaldlega gaman að vera í bíl á 100 90 kílómetra hraða.
Þetta er búin að vera góð helgi. Ég var með starfsmannapartý hérna á fimmtudagskvöld og það var frábært, einsog vanalega. Ég veit að auðvitað er maður að halda starfsmannapartý fyrir starfsfólkið, en ég hef bara svo ótrúlega gaman af þeim líka. Maður lærir líka svo margt. Flestar stelpurnar eru of feimnar til að segja manni merkilega hluti í vinnunni, en í partýjunum þá losna þær við feimnina.
Ég fór svo í bæinn. Labbaði með tveim stelpum á meðan að flestar fóru á bílum. Fór með þeim á Gauk á Stöng. Þar sem ég er orðinn tvítugur var ég ekki alveg að fíla mig þarna inni. Spilaði púl við eina stelpuna, en svo ákváðum við að fara á aðra staði. Fórum og borðuðum á Purple Onion, löbbuðum svo uppá Café Oliver þar sem við vorum til lokunnar. Enduðum svo á Hverfisbarnum.
Á leiðinni heim um klukkan hálf sjö var komin glampandi sól og yndislegt veður í bænum. Þegar ég labbaði framhjá tjörninni hitti ég nokkra Ástrala, sem voru þar samankomnir og voru að reyna að sannfæra hvort annan um að fá sér sundsprett í tjörninni. Eftir smá umræður ákváðu þeir allir að stökkva í ískalda tjörnina. Eftir smá umhugsun ákvað ég að fylgja ekki á eftir.
Í dag fór ég svo í útilegu með hinni vinnunni minni. Þetta var fjölskyldu útilega, svo ég ákvað að gista ekki, en fór þess í stað í morgun og er búinn að vera þarna í allan dag. Var að koma heim áðan og er einsog karfi í framan. Veðrið var æði og ég borðaði yfir mig af grillmat. Maður getur ekki beðið um meira.
Í kvöld ætla ég svo að taka því rólega, klára að lesa Angels & Demons og njóta þess að sofa út á morgun. Vonandi verður morgundagurinn góður.
Ummæli (8) |
Flokkur:
Dagbók
Hmm...
Klukkuna vantar tuttugu mínútur í sjö.
Ég hef núna séð Ástrala syndandi í tjörninni.
Takk fyrir og góða nótt.
Ummæli (0) |
Flokkur:
Góður dagur
Sko, í fyrsta lagi þá trúi ég því ekki enn að enginn hafi kommentað á Los Pericos færsluna mína. Ég hélt að það myndi allt flæða yfir af tölvupóstum og kommentum, þar sem mér væri þakkað fyrir að benda fólki á þessa snilld. Er fólk kannski ekki að fíla þetta? Nei, það getur ekki verið.
Allavegana, ég var búinn í vinnunni í dag klukkan hálf þrjú. Ég ákveð reyndar minn eigin vinnutíma, sem þýðir vanaleg að ég vinn lengi, en í dag var ég sáttur við að hafa klárað ákveðið verkefni og ákvað að gefa mér frí. Fór í Kringluna, keypti mér föt, borðaði Serrano og kom svo heim. Er að fara í körfubolta með vinum mínum á eftir og svo er ég með starfsmannapartý fyrir Serrano fólk í kvöld og fer svo væntanlega í bæinn á eftir. Ég verð bara einn með partýið, þar sem Emil, hinn eigandinn, er úti. Það verður fróðlegt.
Svo ætla ég í útilegu um helgina. Það er sko eins gott að það verði sól um helgina. Annars afsala ég mér ríkisborgaréttinum og sæki um pólitískt hæli í Ástralíu.
Hver verður númer 200.000 á þessari síðu? Spennan er nánast óbærileg.
Ummæli (7) |
Flokkur:
Dagbók
Ó, reggí
Það virðist vera svo að allir, og mömmur þeirra séu að tapa sér yfir þessari íslensku reggíhljómsveit. Furðulegasta fólk virðist hafa keypt diskinn frá þeirri grúppu. Ég tilheyri þeim hópi ekki enn, en hlýt þó að fara að nálgast það, þar sem fólk virðist vera voðalega hrifið.
Allavegana, í tilfeni þessarar múgsefjunar, þá ætla ég að bjóða æstum lýðnum uppá mitt uppáhalds reggí lag. Það er einmitt með minni uppáhalds reggíhljómsveit, sem er hin argentíska Los Pericos. Algjört snilldarband, sem ég hlustaði mjög mikið á þegar ég bjó í Suður-Ameríku.
Þetta er mitt uppáhaldslag með þeim:
Njótið.
Það er ekki hægt að forðast sumarskapið þegar maður hlustar á þetta lag, sama hvað þið rembist.
Allavegana, ég er farinn að fá mér te. Ætla ekki að eyða þessu kvöldi geispandi einsog fábjáni.
Talandi um te, þá er alveg fáránlegt að lesa lista yfir það, sem grænt te á að gera manni gott. Það vekur mann ekki bara, heldur forðar manni frá allskonar krabbameinum, hjartasjúkdómum og bætir húðina. Enda finn ég það að ég verð fallegri með hverjum deginum, sem ég drekk græna teið mitt.
Ummæli (2) |
Flokkur:
Tónlist
Ég verð að eignast nýjan síma!
Fokk, mig er farið að langa í nýjan síma!
Ég hef með ágætu móti getað bælt þessa stanslausu löngun mína í ný tæki í smá tíma. Keypti mér svona síma fyrir 16 mánuðum af því mér fannst hann svo ógeðslega flottur á þeim tíma. Með einhverjum ráðum hefur mér tekist að eiga þennan síma í 16 mánuði, sem er sko stórkostlegt nýtt met því ég er vanur að týna eða eyðileggja síma á svona 6 mánuða fresti.
Allavegana, ég hef verið nokkurn veginn í rónni þangað til að ég sá auglýsingu fyrir MotoRazr. Hólí fokk, hvað það er flottur sími. Finn hjá mér alveg óstjórnandi þörf fyrir því að eignast svona síma núna strax. Er fullviss um að líf mitt verði innihaldsríkara bara ef ég kaupi mér svona síma.
Ég var reyndar búinn að sjá þetta fyrir. Fyrir svona tveim vikum (áður en ég sá auglýsinguna, nota bene), þá missti ég símann minn í gólfið inní vinnu. Hann smallaðist í nokkra bita, en mér tókst að setja hann saman aftur. Það virkaði ágætlega fyrstu vikuna, en núna er einsog síminn minn sé með fokking holdsveiki. Hinir ýmsu hlutir detta af honum í tíma og ótíma. Í dag datt tildæmis volume takkinn af og núna get ég ekki stjórnað því hversu hátt fólk talar í símann við mig, heldur verð ég actually að biðja fólk um að tala hærra eða lægra. Sem er ekki gott.
En það myndi allt lagast með þessum nýja síma. Hann er svo flottur að ég verð beinlínis að fá fólk til að hringja í mig með reglulegu millibili á laugardagskvöldum, svo ég get tekið hann upp og talað í hann á Oliver, Hverfis eða hvaða stað sem ég verð á. Ég er viss um að stelpurnar eiga eftir að fríka út þegar þær sjá mig tala í þennan síma. Þar sem ég keyri um á þriggja ára gamalli Almeru, þá get ég ekki sjarmerað stelpur með flottum bíl. En ég á þá allavegana flottan síma.
Jamm, líf mitt verður skemmtilegra, fjölbreyttara og meira spennandi ef ég kaupi þennan síma.
Eða hvað? Er þetta kannski drasl sími? Talar einhver af reynslu?
Ummæli (11) |
Flokkur:
Tækni
Mynd frá Istanbúl
Hérna er ljómandi skemmtileg mynd frá Istanbúl af mér, Nonna herbergisfélaga mínum í ferðinni (til hægri) og Pete Sampara, sem er með þekktari Liverpool stuðningsmönnunum.
Fokk hvað það var gaman í Istanbúl!
Var ég búinn að minnast á það að Liverpool eru EVRÓPUMEISTARAR!!!
Ummæli (2) |
Flokkur:
Myndablogg
Vinna
Ég er kominn heim úr vinnunni klukkan korter í fimm!!
Kraftaverkin gerast enn.
Ég ætla að leggjast útá svalir. Er orðinn vel undirbúinn fyrir heimsókn frá Chupa Chups á morgun, svo ég er ekki með vott samviskubit yfir því að vera ekki að gera neitt merkilegra en að liggja í sólinni og hlusta á De La Soul.
Ummæli (1) |
Flokkur:
Vinna
Stórfrétt(ir)!!!
Fyrsta frétt á Stöð 2 í kvöld:
Veggjatítlur finnast í húsi í Þingholtunum.
Önnur frétt á Stöð 2 í kvöld:
Flugi frestað í Keflavík!!!
Eru menn ekki að grínast?
Ef ég væri fréttamaður, þá hefðu þessi yndislegu tíðindi verið fyrsta frétt.
Ummæli (0) |
Flokkur:
Sjónvarp
Þynnkumeðal
Ég ætla að forðast það að vera með miklar yfirlýsingar um að mér hafi tekist að finna lausn við þynnkavandamálum mínum. Einu sinni hélt ég m.a.s. að ég væri ónæmur fyrir þynnku. Fyrstu árin, sem ég drakk áfengi, þá varð ég aldrei þunnur.
En síðustu ár fæ ég alltaf verulega slæman hausverk daginn eftir drykkju. Hausverkurinn er vanalega svo slæmur að verkjalyf duga ekki á hann og því eyði ég öllum deginum í eymd og volæði.
Allavegana, ég er komin með ágætis lausn á þessu vandamáli, sem hefur virkað nokkuð vel síðustu skipti. Trixið er að still vekjaraklukkuna mjög snemma. Nógu snemma til þess að ég sé alver öruggur um að ég muni sofna aftur. Ég miða því vanalega við svona 5 tímum eftir að ég sofna. Ég vakna þá, fer fram og fæ mér tvær verkjatöflur og fer svo aftur að sofa. Þegar ég vakna svo aftur nokkrum tímum seinna er verkurinn mjög nálægt því að vera farinn. Þetta hefur allavegana virkað nokkrum sinnum.
Þetta virkaði í morgun. Ég var í útskriftarveislu í gær og drakk kannski pínku ponsu of mikið, enda var mikið af áfengi í veislunni og ég blandaði saman bjór, hvítvíni og gini. Það er ekki sniðugt.
En veislan var skemmtileg og ég fór svo með vinum mínum niðrí miðbæ. Fórum á Café Oliver, sem mér líst ágætlega á. Reyndar hafði loftið á staðnum þau áhrif á mig að ég varð verulega slappur. Ég leit sennilega hræðilega út og ég var í einhverjum erfiðleikum með að tjá mig almennilega.
Þannig að ég ákvað að fara heim. Ég var í jakkafötum og óþægilegum spariskóm, þannig að það var ekkert voðalega þægilegt að labba heim. Kíkti á Purple Onion og fékk mér shawarma, sem ég borðaði á leiðinni heim.
Já, og Lifehacker er snilldarsíða!
Ummæli (1) |
Flokkur:
Dagbók
Ég þarf nörda-aðstoð
Ok, ég er með Firefox á Makkanum. Einsog einn lesandi Liverpool bloggsins benti mér á, þá birtast engir íslenskir stafir í Firefox á Makka. Þetta þrátt fyrir að síður einsog mbl.is og katrin.is birti íslenska stafi eðlilega.
Ég veit að þetta er eitthvað stillingaratriði í Firefox og hefur eitthvað með íslensku stuðning á Mac að gera. En víst að mbl.is og fleiri vefir virka, þá hlýt ég að geta gert eitthvað líka. Veit einhver hvað málið gæti verið? Vantar eitthvað í meta upplýsingar, eða er þetta eitthvað annað?
Öll hjálp mjög vel þegin
Ummæli (6) |
Flokkur:
Netið
Uppáhalds plöturnar mínar
Ég tók mig til og gerði lista yfir uppáhaldsplöturnar mínar. Hef stundum spáð í þessu, þar sem þetta hefur breyst umtalsvert að unfandörnu, sérstaklega eftir að ég uppgötvaði Dylan. Hann setti eiginlega allt kerfið í köku.
Allavegana, ég ákvað að setja saman 10 uppáhaldsplöturnar mínar. Ég fylgdi tveim reglum í valinu:
- Aðeins ein plata með hverjum flytjanda.
- Horfði aðallega á plötur, sem höfðu breytt einhverju í lífi mínu, eða hafa verið “uppáhaldsplatan mín” á einhverjum tíma.
Jæja, ég vona að þessi listi eigi eftir að breytast oft og mörgum sinnum á minni ævi, því ég er vonandi rétt að byrja að uppgötva góða tónlist.
Blonde on Blonde - Bob Dylan. Ég einfaldlega veit ekki um betri plötu. Ég hef reynt að fara í gegnum stóran hluta af Dylan safninu, en alltaf leita ég aftur í Blonde on Blonde. Blood on the Tracks kæmist reyndar líka inná topp 10 hjá mér, en það er eitthvað extra á Blonde on Blonde. Reyndar eru lögin ekki öll fullkmin. Mér finnst Rainy Day Women til dæmis ekkert sérstakt. En það er bara svo einfalt að á þessari plötu eru nokkur af bestu lögum allra tíma. Visions of Johanna, One of us must know, I want you, Stuck inside of Mobile, Just like a woman og Sad Eyed Lady of the Lowlands.
Þetta kemst ansi nálægt því að vera hin fullkomna plata og þrátt fyrir gríðarlega hlustun, þá fæ ég ekki ógeð. Eftir viku hlé er mig farið að langa til að setja hana aftur á. Dylan er snillingur og að uppgötva hann hefur breytt lífi mínu. Ég veit ekki hvað ég var að spá öll þessi ár, sem ég hlustaði ekki á hann. Besta lag: One of Us Must Know (Sooner or Later)- Pink Floyd - Dark Side of the Moon. Ég hef verið Pink Floyd aðdáandi í um 10 ár, allt frá því að einhver strákur talaði ekki um annað en Pink Floyd í einhverri AFS útilegu. Ég varð svo forvitinn að ég keypti mér Dark Side of the Moon. Og ég varð strax heltekinn. Ég á allar plöturnar og The Wall, Wish you were here, Meddle og fleiri eru allar á meðal minna uppáhaldsplatna. Dark Side of the Moon er samt sú besta að mínu mati, aðeins betri en Wish you were here. Lokalögin tvö, Brain Damage og Eclipse gera það að verkum. Besti endir á plötu í sögunni. Besta lag: Time
- Radiohead - OK Computer. Ótrúleg plata, sem ég keypti mér útí Mexíkó. Hafði aldrei fílað The Bends sérstaklega (þangað til að ég byrjaði að hlusta á hana aftur fyrir nokkrum árum - og þá uppgötvaði ég snilldina). En OK Computer er einfaldlega besta hljómplata síðustu 10 ára. Besta lag: Paranoid Android
- The Smashing Pumpkins - Mellon Colllie and the Infinite Sadness - Þegar ég var í Verzló spilaði ég Bullet with Butterfly wings í hverju einasta partíi og hlaut sennilega gríðarlega vinsældir fyrir. Ég held að ég hafi keypt mér þessa plötu þrisvar vegna þess að ég ferðaðist svo mikið með fyrri eintökin og rispaði þau svo illa. Algjört meistarastykki. Besta lag: Tonight Tonight
- Jeff Buckley - Grace. Ein fyrrverandi kærastan mín gaf mér þessa plötu þegar við skildum. Þess vegna hefur þessi plata alltaf haft sérstaka merkingu í mínum huga. Buckley er ótrúlegur á þessari plötu. Ef einhverjir hafa ekki hlustað á hana, þá mæli ég með því að þeir sömu stökkvi útí búð núna. Besta lag: Last Goodbye
- U2 - The Joshua Tree - Einu sinni þótti mér töff að tala illa um U2. En ég hef vaxið uppúr því. The Joshua Tree er einfaldlega æði. Besta lag: Red Hill Mining Town
- Oasis - (What’s the story) Morning Glory? Jólin 95 fékk ég tvær plötur í jólagjöf. Önnur var The Great Escape með Blur og hin var What’s the Story með Oasis. Ég dýrkaði þær báðar á þeim tíma, en með árunum hefur Oasis platan elst betur. Besta lag: Champagne Supernova og Wonderwall
- Beck - Sea Change. Besta plata Beck og sú, sem kallar fram mestar tilfinningar hjá mér. Besta lag: Golden Age
- The Chronic - Dr. Dre. Einu sinni var ég bjáni, sem hélt að allt Hip-Hop væri drasl. Þökk sé Kristjáni vini mínum þá hef ég vaxið uppúr því. Chronic er einfaldlega besta hip-hop plata allra tíma. Punktur. Besta lag: Wit Dre Day (And Everybody’s Celebratin)
- Weezer - Weezer - Mig minnir að það hafi verið Gunni vinur minn, sem sannfærði mig áður en ég fór til Venezuela að gefa Weezer sjens. Ég keypti mér hana því og tók með út. Platan er með ólíkindum góð. Öll lögin nánast jafnsterk. Besta lag: Only in Dreams.
Þessar plötur voru næst því að komast inn:
Neil Young - Harvest, Blood on the Tracks - Bob Dylan, Pet Sounds - Beach Boys, The Beatles - Abbey Road, Rage against the machine - Rage against the machine, Guns ‘N Roses - Appetite for Destruction, Pink Floyd - Wish you were here, The Streets - A Grand don’t come for free, The Beatles - Sgt. Pepper’s Lynyrd Skynyrd - Pronounced Leh-Nerd Skin-Nerd, Maus - Lof mér að falla að þínu eyra, Sigur Rós - Ágætis Byrjun, Nirvana - Nevermind, De La Soul - 3 feet high and rising, Beastie Boys - Ill Communication
Svona lítur þetta semsagt út. Held að þetta sé ágætt fyrir daginn í dag. Ykkur er velkomið að hneykslast eða dást að tónlistarsmekk mínum
Ummæli (13) |
Flokkur:
Topp10
& Tónlist
Viltu senda mynd af honum?
Stundum lendi ég þó í mjög súrealískum samtölum á MSN. Einhvern tímann í mars þá bætti ein manneskja mér inná MSN listann sinn og úr því varð þetta samtal. Ég tók út viðkvæmustu upplýsingarnar
18:38:32 ***@hotmail.com: hæjj?
18:38:54 einarorn77@hotmail.com: hæ?
18:39:01 ***@hotmail.com: :S
18:39:14 ***@hotmail.com: eg held að u þekkir mig ekkert
18:39:51 ***@hotmail.com: eg var á google. com
18:39:56 einarorn77@hotmail.com: ok
18:40:17 ***@hotmail.com: og rakst á eikkað liverpool blogg og sá mynd af þér og fannst u sætur
18:40:29 ***@hotmail.com: ertu á föstu
18:40:47 einarorn77@hotmail.com: eh, nei
18:41:07 ***@hotmail.com: okijj
18:41:12 ***@hotmail.com: :s
18:41:26 ***@hotmail.com: en ertu að græja það með einkerri?
18:41:44 einarorn77@hotmail.com: "græja það með einkerri"? hvað þýðir það á íslensku?
18:41:59 ***@hotmail.com: hvað spá i einhverja stelpu
18:42:16 einarorn77@hotmail.com: er maður ekki alltaf að spá í einhverjum?
18:42:29 ***@hotmail.com: það er bara misjafnt held eg
18:42:39 ***@hotmail.com: en erti hreinn sveinn:p
18:43:07 einarorn77@hotmail.com: ha?
18:43:11 einarorn77@hotmail.com: ég er 27 ára gamall
18:43:25 ***@hotmail.com: hehe já:p
18:43:32 ***@hotmail.com: hefuru þá ekki gert það:p
18:44:04 einarorn77@hotmail.com: jú
18:44:35 ***@hotmail.com: má eg spurja þig aðð einu?
18:44:41 einarorn77@hotmail.com: ok
18:44:48 ***@hotmail.com: ertu með stórann?
18:45:05 einarorn77@hotmail.com: æji, kræst, ég nenni þessu ekki
18:45:13 ***@hotmail.com: afhverju
18:45:33 einarorn77@hotmail.com: hver ert þú?
18:45:46 ***@hotmail.com: ****
18:45:52 einarorn77@hotmail.com: ****?
18:46:05 ***@hotmail.com: jamm eg þekki þig ekkert og u mig ekkert
18:46:15 ***@hotmail.com: ég rakst á þessa síðu
18:46:18 einarorn77@hotmail.com: ok
18:46:25 ***@hotmail.com: jamm
18:46:36 ***@hotmail.com: en ertu með six-pack
18:46:54 einarorn77@hotmail.com: vá, þetta eru fyndnustu spurningar allra tíma
18:47:03 ***@hotmail.com: hehe:P
18:47:10 ***@hotmail.com: ég er bara forvitin:$
18:47:16 einarorn77@hotmail.com: ok
18:47:20 einarorn77@hotmail.com: nei, ég er ekki með six-pack. er að vinna íþví.
18:47:41 ***@hotmail.com: en ertu með stórt?
18:47:44 ***@hotmail.com: :$
18:47:52 einarorn77@hotmail.com: no comment
18:48:18 ***@hotmail.com: hehe oki
18:48:47 ***@hotmail.com: ertu gagnkynhneigður eða bi eða samkynhneigður?
18:49:04 einarorn77@hotmail.com: gagn
18:49:14 ***@hotmail.com: ok
18:49:42 ***@hotmail.com: en afhverju viltu ekki segja hvort u ert með stórann eður ei?
18:49:52 einarorn77@hotmail.com: af því bara
18:49:57 einarorn77@hotmail.com: ég veit ekkert um þig
18:50:19 ***@hotmail.com: ég er að reyna kynnast þer sko
18:50:25 ***@hotmail.com: u getur spurt lika!
18:50:40 einarorn77@hotmail.com: 88, er það fæðingarár?
18:50:44 ***@hotmail.com: jamm
18:50:52 ***@hotmail.com: ertu með stórann
18:50:57 einarorn77@hotmail.com:
18:51:16 ***@hotmail.com: ertu þa eða ekki:p
18:51:39 einarorn77@hotmail.com: stærð er relatív
18:51:47 ***@hotmail.com: relatív?
18:51:55 einarorn77@hotmail.com: já
18:51:59 ***@hotmail.com: hvað er þa
18:52:22 einarorn77@hotmail.com: það er ekki hægt að skilgreina "stór". það sem einum finnst stórt finnst öðrum kannski ekki stórt
18:52:40 einarorn77@hotmail.com: þannig að ég get sagt já, en það þýðir ekki neitt
18:52:43 einarorn77@hotmail.com:
18:52:48 ***@hotmail.com: þú att digital myndavæel er það ekki?
18:52:56 einarorn77@hotmail.com: jú
18:53:06 ***@hotmail.com: viltu senda mynd af því?
18:53:12 einarorn77@hotmail.com: eh, nei
18:53:20 ***@hotmail.com: akkuru?
18:53:45 einarorn77@hotmail.com: af því að ég er ekki geðveikur
18:53:55 ***@hotmail.com: geðveikur
18:54:02 ***@hotmail.com: hvað kemur geðveiki málinu við?
18:54:28 einarorn77@hotmail.com: maður þyrfti að vera þokkalega geðveikur til að taka mynd og senda útí bæ
18:54:56 ***@hotmail.com: neijj!
18:55:35 ***@hotmail.com: mig langar að kynnast þér!
18:55:38 ***@hotmail.com: u ert svo sætur
18:55:50 ***@hotmail.com: :$
18:55:50 einarorn77@hotmail.com: eh, takk
18:56:04 ***@hotmail.com: hefuru mælt hann??
18:56:14 einarorn77@hotmail.com: er þetta það eina, sem þú hefur áhuga á?
18:56:22 ***@hotmail.com: neimm
18:56:40 ***@hotmail.com: hefuru mælt hann
18:56:43 einarorn77@hotmail.com: nei
18:56:55 ***@hotmail.com: viltu kanski gera það?
18:57:01 einarorn77@hotmail.com: nei
18:57:08 ***@hotmail.com: en senda mynd?
18:57:15 ***@hotmail.com: svona kynþokkafulla?
18:57:18 einarorn77@hotmail.com: aftur nei
18:57:27 ***@hotmail.com: oki^o)
18:57:35 einarorn77@hotmail.com: hvernig veit ég að þú ert ekki bara vinur minn að gera grín í mér?
18:58:22 ***@hotmail.com: helduru að vinur þinn myndi segja að u værir flottur og honum langi að sofa hjá þér?
18:58:32 einarorn77@hotmail.com: maður veit aldrei
19:00:43 ***@hotmail.com: en attu webcam?
19:00:47 einarorn77@hotmail.com: neibbs
19:00:51 ***@hotmail.com: ok
19:01:07 ***@hotmail.com: en hefuru ekki verið tottaður?
19:01:13 ***@hotmail.com: :$
19:01:16 einarorn77@hotmail.com: jú
19:01:28 ***@hotmail.com: ok
19:01:41 ***@hotmail.com: langar þér að upplifa það oftar?
19:01:57 einarorn77@hotmail.com: ehm, já einhvern tímann vonandi
19:02:04 ***@hotmail.com: ok
19:02:35 ***@hotmail.com: þú ert chocko gaur!
19:02:41 einarorn77@hotmail.com: ha?
19:02:45 einarorn77@hotmail.com: nei
19:02:48 einarorn77@hotmail.com: af hverju?
19:02:58 ***@hotmail.com: kynþokkafullur allavega
19:03:30 ***@hotmail.com: en hvað ertu hár?
19:03:33 einarorn77@hotmail.com: 180
19:03:40 ***@hotmail.com: ok
19:03:56 einarorn77@hotmail.com: hvaðan ertu?
19:04:01 ***@hotmail.com: rvk
19:04:09 einarorn77@hotmail.com: hvaða hluta?
19:04:21 ***@hotmail.com: kemur i ljós seinna
19:04:30 einarorn77@hotmail.com:
19:05:46 ***@hotmail.com: áttu einhverja sexy mynd af þer?
19:06:00 ***@hotmail.com: :$
19:06:29 einarorn77@hotmail.com: nei, en þú?
19:06:34 ***@hotmail.com: nei
19:07:01 ***@hotmail.com: en geeerðu það viltu taka mynd af áhugamálinum mínu:P
19:07:03 ***@hotmail.com: :$:S
19:08:34 einarorn77@hotmail.com: nei
19:08:39 ***@hotmail.com: ok
19:09:48 ***@hotmail.com: hefuru farið i Grand Canyon
19:09:53 einarorn77@hotmail.com: jamm
19:10:00 ***@hotmail.com: ohh hepinn
19:10:08 einarorn77@hotmail.com: jammm
19:10:31 ***@hotmail.com: en hvað er yngsta stelpan sem u hefur gert þa með?
19:11:13 einarorn77@hotmail.com: hún var ** á þeim tíma
19:11:16 einarorn77@hotmail.com: en er eldri í dag
19:11:36 ***@hotmail.com: hvað er hun i dag?:p
19:12:21 einarorn77@hotmail.com: **
19:13:10 ***@hotmail.com: en er hætta á að ég gæti rifnað ef við myndum hittast?
19:14:32 einarorn77@hotmail.com: ha?
19:14:38 ***@hotmail.com: :$
19:16:21 ***@hotmail.com: langar þig að hitta mig'
19:16:23 ***@hotmail.com: ?
19:16:39 einarorn77@hotmail.com: ég veit ekki einu sinni hver þú ert
19:16:52 ***@hotmail.com: hehe eg veit lika litið um þig!
19:17:01 ***@hotmail.com: viltu ríða mer eða ekki?:S
19:17:08 einarorn77@hotmail.com: þú getur lesið flest um mig og séð 100 myndir af mér á netinu
19:17:13 einarorn77@hotmail.com: ég hef séð eina mynd
19:17:37 ***@hotmail.com: já eða nei?
19:17:47 einarorn77@hotmail.com: veit ekki
19:17:56 ***@hotmail.com: ok
19:18:12 einarorn77@hotmail.com: ég veit ekki einu sinnni hvort þú ert sú, sem þú segist vera
19:18:13 einarorn77@hotmail.com:
19:19:07 ***@hotmail.com: hehe, þú verður að trúa því
19:19:19 einarorn77@hotmail.com: neibbs, það þarf meira til að sannfæra mig
19:19:28 ***@hotmail.com: hvað er siminn þinn
19:20:15 ***@hotmail.com: ?
19:20:53 einarorn77@hotmail.com: leyndó
19:21:12 ***@hotmail.com: okijj
19:21:22 ***@hotmail.com: en attu heima i rvk
19:21:25 einarorn77@hotmail.com: já
19:21:41 ***@hotmail.com: hvar
19:21:46 einarorn77@hotmail.com: vesturbænum
19:21:54 ***@hotmail.com: oki
19:22:05 ***@hotmail.com: hvaða götu
19:22:10 einarorn77@hotmail.com: he he
19:22:17 ***@hotmail.com: ?
19:22:23 einarorn77@hotmail.com: ég er ekki að fara að segja það
19:22:26 einarorn77@hotmail.com: þú segir mér ekki neitt
19:22:30 ***@hotmail.com: hvað er póstfangið?
19:22:57 einarorn77@hotmail.com: segi ekki meira þangað til að þú sannar að þú ert ekki að gera grín í mér
19:23:13 ***@hotmail.com: ég skal tala við þig i simann!
19:23:23 ***@hotmail.com: hvað er siminn þinn
19:24:49 einarorn77@hotmail.com: nei, msn er fínt
19:25:03 einarorn77@hotmail.com: sendu mér frekar mynd, eða finndu út aðra leið til að sanna hveer þú ert
19:25:05 einarorn77@hotmail.com:
19:25:29 ***@hotmail.com: hehe ekki vilt þú senda myndinna sem eg vil
19:26:32 einarorn77@hotmail.com: það er dálítið öðruvísi
19:26:37 ***@hotmail.com: neijj
19:26:45 einarorn77@hotmail.com: víst
19:26:48 ***@hotmail.com: neimm
19:26:53 einarorn77@hotmail.com: ég er bara að biðja um venjulega mynd
19:26:55 einarorn77@hotmail.com:
19:26:55 ***@hotmail.com: það er bara eins og hver annars útlimur
19:27:04 ***@hotmail.com: eg lika
19:27:40 einarorn77@hotmail.com: neibbs
19:27:50 ***@hotmail.com: jumms
19:28:01 einarorn77@hotmail.com: ef þú værir ekki að rugla í mér væri ekkert mál fyrir þig að senda mynd
19:28:02 einarorn77@hotmail.com:
19:28:16 ***@hotmail.com: eg á flut af myndum
19:28:24 einarorn77@hotmail.com: ok, gott
19:28:31 ***@hotmail.com: jamm
19:28:45 einarorn77@hotmail.com: þá er ekkert mál að senda
19:28:46 einarorn77@hotmail.com:
19:29:07 ***@hotmail.com: ekki fyrir þig heldur
19:29:07 ***@hotmail.com:
Og þannig endaði það samtal. Magnað, ekki satt?
Ummæli (13) |
Flokkur:
Netið
Ó, Natalie
Natalie Portman er fáránlega sæt, meira að segja þegar hún er snoðuð!
Finnst ykkur þetta ekki magnað?
Ummæli (6) |
Flokkur:
Almennt
Sjónvarp
The Contender er snilld!
Besta nýja raunveruleikakonseptið, sem ég hef séð síðan að Amazing Race byrjaði. Ég hélt að þetta yrði ekki nógu sniðugt, en Bill Simmons á ESPN hefur varla skrifað um annað að undanförnu, þannig að ég gaf þættinum sjens og varð svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum.
Ummæli (6) |
Flokkur:
Sjónvarp
Sooner or Later (uppfært)
Sko, Bob Dylan samdi og söng lag sem heitir “One Of Us Must Know (Sooner Or Later)”. Það lag er á Blonde on Blonde, sem er ein af uppáhaldsplötunum mínum.
Allavegana, síðasta mínútan í því lagi er að mínu mati flottasta mínútan í tónlistarsögunni. Ekki nokkur spurning. Allt er fullkomið: Hvernig Dylan segir “never meant to do you any haaaaaarm“… Trommurnar í síðasta “chorus-num” og svo munnhörpusólóið í endann. Algjörlega stórkostleg fullkomnun!!!
Ég ætla að deila þessu með ykkur:
One Of Us Must Know (Sooner Or Later) - síðasta mínútan
Eruð þið sammála? Er ég skrítinn fyrir að finnast munnhörpusólóið vera algjörlega fullkomið? Ég veit ekki. En mikið hljóta nágrannarnir mínir samt að vera orðnir þreyttir á þessum endi.
EÐA,
ef þeir eru með góðan tónlistarsmekk, þá fagna þeir sennilega þessari stanslausu endurtekningu. Ekki rétt?
Uppfært: Búinn að laga linkinn.
Ummæli (2) |
Flokkur:
Tónlist
Audioscrobbler og tilfinningar
Audioscrobbler er skrítið tæki. Fyrir þá, sem ekki þekkja þá síðu, þá setur maður inn lítið forrit á tölvuna sína, sem síðan fylgist með því hvaða lög maður hlustar á. Um leið og ég spila eitthvað í iTunes á tölvunni, þá birtist það á Scrobbler síðunni minni.
Scrobblerinn safnar síðan saman því, sem maður hlustar á og býr til alls kyns lista og bendir manni á hljómsveitir, sem fólk með svipaðan tónlistarsmekk, hlustar á. Með þessu hef ég uppgötvað fulltaf skemmtilegri tónlist og það er aðal ástæðan fyrir því að ég nota Audioscrobbler. Svo er þetta líka ágætis bókhald. Til dæmis get ég séð að ég hlustaði 42 sinnum á lög með Crosby, Stills, Nash & Young í síðustu viku og hef hlustað 815 sinnum á Dylan síðan ég setti forritið inn. Reyndar get ég ekki fengið forritið til að mæla iPod hlustun, þannig að þetta er býsna takmarkað hjá mér, enda hlusta ég á stóran hluta af tónlistinni minni í iPodinum mínum.
Allavegana…
Það sem er einna áhugaverðast í þessu er að geta fylgst nákvæmlega hvað fólk er að hlusta á þessa stundina. Fólk getur séð að þegar þetta er skrifað er ég að hlusta á Common, Björgvin Ingi er að hlusta á Foo Fighters og Gummijóh er að hlusta á Coldplay.
Það athyglisverða við þetta er að ef maður þekkir fólk vel, þá getur maður á vissum stundum fundið út í hvernig skapi fólk er. Ég veit ekki hvernig þetta er með annað fólk, en mín tónlistarhlustun fer að gríðarlega miklu leyti eftir því í hvernig skapi ég er. Á kvöldin þegar ég er þreyttur og kannski pínu dapur hlusta ég á “In the Wee small hours” með Sinatra. Síðast þegar ég var í ástarsorg hlustaði ég gríðarlega mikið á “Grace” með Buckley. Þegar ég er hress og á leiðinni á djamm hlusta ég á Scissor Sisters. Þegar ég vil gleyma mér hlusta ég á Dylan, þegar ég vil koma mér í stuð hlusta ég á Dre, Tribe Called Quest og Jay-Z.
Þannig að það er hægt að lesa ansi mikið um mínar tilfinningar bara með því að fylgjast með Scrobblernum og ég er viss um að svo er líka fyrir aðra. Að vissu leyti er þetta gallað því ég hlusta oft á Buckley án þess að vera í ástarsorg og hlusta ekki bara á Jay-Z á laugardagskvöldum. En samt þá er hægt að draga ákveðnar ályktanir út frá þessu.
Einnig gæti fólk sennilega séð í lok vinnudags hvernig dagurinn gekk. Hlustaði ég á Dylan eða Jay-Z? Er maður að gefa fólki of mikið af upplýsingum í gegnum Audioscrobbler? Kannski.
Ef þú þekkir einhvern og vilt fá viðbrögð hans við ákveðnum fréttum eða atburðum þá held ég að Audioscrobbler geti að mörgu leyti verið ákveðinn gluggi inní sálarlíf fólks. Fullt af fólki notar tónlist til að koma sér í gott skap, til að gleyma vandamálum og til að hjálpa sér þegar það er sorgmætt. Því er spurning hvort fólk sé ekki að opinbera sig um of þegar hægt er að sjá öllum stundum á hvaða tónlist það er að hlusta? Eða kannski ekki.
Ummæli (2) |
Flokkur:
Tónlist
S1
Þetta . Er . Ekki . Góður . Sjónvarpsþáttur.
Ummæli (8) |
Flokkur:
Sjónvarp
...
Mér leiðist.
Takk fyrir.
Ummæli (0) |
Flokkur:
Dagbók
Ferðadót uppfært
Eftir ferðalag undanfarinna mánuða ákvað ég að uppfæra aðeins heimskortið, sem ég skrifaði um í janúar 2004. Síðan þá hef ég heimsótt fjögur lönd: Svíþjóð, Tyrkland, Tékkland og Pólland. Hef ég því komið til 35 landa.
Kortið lítur því svona út:
Norður-Ameríka: Kanada, Mexíkó, Bandaríkin
Suður-Ameríka: Argentína, Bólivía, Brasilía, Chile, Kólumbía, Ekvador, Paragvæ, Perú, Urugvæ, Venezuela
Evrópa: Austurríki, Belgía, Tékkland, Danmörk, Frakkland, Þýskaland, Grikkland, Ungverjaland, Ísland, Lúxembúrg, Holland, Noregur, Pólland, Portúgal, Rússland, Spánn, Svíþjóð, Sviss, Bretland
Afríka: Ekkert
Mið-Austurlönd: Tyrkland
Asía: Ekkert
35 lönd
Einnig uppfærði ég Bandaríkjakortið mitt, þar sem ég ferðaðist talsvert um Bandaríkin í fyrra. Núna hef ég heimsótt 30 ríki af 50.
Alabama, Arizona, Arkansas, California, colorado, Cinnecticut, DC, Florida, Georgia, Illinois, Indiana, Kansas, Kentucky, Louisiana, Maryland, Massachusetts, Michigan, Minnesota, Mississippi, Missouri, Nevada, New Hampshire, New Jersey, New Mexico, New York, Tennessee, Texas, Utah, Virginia, Wiscounsin.
Einnig uppfærði ég færsluna um undir heimsins. Þar er ég núna kominn uppí 17, en þar hafa bæst við gamli bærinn í Prag, Hagia Sofia og Topkapi höllin í Istanbúl.
Ummæli (7) |
Flokkur:
Ferðalög
Ferðasaga - Istanbúl
Ferðasagan frá Istanbúl er komin inn á Liverpool bloggið
Ummæli (0) |
Flokkur:
Ferðalög
Bleeeeh!
Þessi síða er að drabbast niður í algjöra meðalmennsku og skortur á nýju efni fer að verða vandræðalegur. Af einhverjum ástæðum get ég ekki fengið mig til að skrifa eitthvað. Ég er of önnum kafinn í vinnunni til að blogga um eitthvað af viti og svo utan vinnu hef ég ekki nennt að setjast niður.
Kannski er þetta bara sumarið?
Ég fór í útskrift hjá frænku minni um helgina. Fór svo með vinum hennar í annað partý, þar sem ég hitti gamlan félaga úr handboltanum. Hann var búinn að tala við mig í um 10 mínútur þegar hann fattaði að hann var að tala við mig en ekki 19 ára gamlan frænda minn. Mér finnst það pínkuponsu skrítið að fólk skuli ruglast á mér og frænda mínum.
Beið í biðröð á Hverfis seinna það kvöld. Ég er með VIP kort þar, sem virðist hafa tapað áhrifamætti sínum. Eftir að allir dyraverðirnir voru reknir virðast vera komnar þrjár biðraðir. Það er venjulega röðin, VIP röðin og svo einhver miðjuröð, þar sem allt freka fólkið fer. Auðvitað er svo freka-fólks röðin sú eina, sem gengur. Ég nenni ekki svona lengur. Hverfis er kominn í bann fo’sure.
Annars er ég í fínu skapi í dag. Það er gott.
En það er hins vegar ekki gott að þessi síða skuli bara vera einhver upptalning á djammi. Þarf að gera betur.
Annars, þá er nýja Oasis platan góð. Sú besta í mörg ár. Mér er alveg slétt sama þótt allir og mömmur þeirra segi að Oasis séu léleg hljómsveit, mér hefur alltaf fundist hún góð. Slide Away, Live Forever, Whatever, Wonderwall, Champagne Supernova, Masterplan og fleiri lög eru öll á meðal minna uppáhaldslaga. Síðustu plötur hafa verið drasl, en þessi nýja er góð.
Nýja Gorillaz platan er líka góð. Reyndar mjög góð. Já
Ummæli (3) |
Flokkur:
Dagbók
Warning: readfile() [function.readfile]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2005/06/index.php on line 2621
Warning: readfile(http://www.eoe.is/hlid.dat) [function.readfile]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2005/06/index.php on line 2621
