Warning: include() [function.include]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2005/08/index.php on line 149

Warning: include(http://www.eoe.is/tilkynning.dat) [function.include]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2005/08/index.php on line 149

Warning: include() [function.include]: Failed opening 'http://www.eoe.is/tilkynning.dat' for inclusion (include_path='.:/usr/share/php5:/usr/share/php') in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2005/08/index.php on line 149

« júlí 2005 | Main | september 2005 »

Ferðalag á morgun

ágúst 30, 2005

belize-12.jpg

Ok, ferðalag á morgun. Er kominn með í magann. Er ekki búinn að pakka ennþá, var í vinnunni til klukkan 7 í kvöld og hef hreinlega ekki haft tíma. Ætla að gera það á eftir.

Planið er flug til Baltimore seinnipartinn á morgun og svo flug til Mexíkóborgar gegnum Miami á fimmtudagsmorgun. Ef allt gengur eftir ætti ég að vera kominn til Mexíkóborgar um 2 leytið á fimmtudaginn.

Annað er ekki planað nema að ég á flug til Baltemore frá Gvatemala borg 1.október. Þannig að ég hef einn mánuð til að koma mér frá Mexíkóborg til Gvatemala borgar. Ég veit ekki alveg hvernig ég geri það og í hversu stórum skrefum. Ég hef bara búið til í hausnum lauslegan lista yfir þá staði, sem mig langar til að sjá. Þeir eru t.d.

Ég veit ekki hvort ég kemst á alla staðina né hvað mun bætast við eða hversu lengi ég ætla að vera á hverjum stað. Það kemur bara í ljós.

En ég stefni allavegana á að uppfæra þessa síðu reglulega á meðan á ferðalaginu stendur.

221 Orð | Ummæli (8) | Flokkur: Ferðalög

Síðustu dagar (uppfært)

ágúst 28, 2005

Það er ótrúlega magnað að lesa og skoða myndir af því að það sé verið að tæma New Orleans af mannfólki fyrir morgundaginn. Hræðilegt að þetta skuli þurfa að koma fyrir mest sjarmerandi borg Bandaríkjanna.

Ef að fellibylurinn verður jafn slæmur og talið er mögulegt, þá gæti vatnið á Bourbon Street orðið allt að 6 metra hátt (sjá hér - mæli með vídeóinu). Jafnvel er talið að ekki verði hægt að búa í stórum hluta borgarinnar í margar vikur. Stórir hlutar New Orleans verða eyðilagðir ef allt fer á versta veg.

Það er búið að skylda alla íbúa borgarinnar til að fara burt, en einhverjir verða eftir - sennilega þeir fátækustu, sem eiga erfiðara með að koma sér í burtu. Það hefur verið talið að ef að svona stór fellibylur myndi lenda beint á borginni, þá gætu allt að 50.000 manns dáið og 1 milljón misst heimilin sín.

Það er hægt að fylgjast með þessu í beinni útsendingu á netinu hér


Þessi helgi er búin að vera miklu, miklu rólegri en ég átti von á. Fyrir það fyrsta ætlaði ég að fara í Sirkus partýið á fimmtudaginn uppá Árbæjarsafni, en var of latur til þess og fór þess í stað bara í sund með vinum mínum. Á föstudaginn ætlaði frænka mín að halda partý í íbúðinni minni, en við ákváðum á síðustu stundu að hætta við það, þar sem við töldum að það yrði of margt fólk fyrir íbúðina mína. Þannig að ég horfði bara á Liverpool leikinn.

Svo í gær var starfsmannapartý uppá vinnustað og ég var nánast edrú. Drakk nokkur glös af einhverju áfengi, en fann ekkert á mér og nennti eiginlega ekki að drekka meira. Kíkti í bæinn, en aðeins til að fá mér að borða. Í dag var svo fjölskyldumatarboð hjá mömmu, þar sem að frænka mín er að flytja til Danmerkur. Á morgun er svo annað matarboð, þannig að ég slepp alveg við eldamennsku fram að Mexíkóferðinni.

Er ekki ennþá byrjaður að pakka, sem er ekkert sérstaklega gáfulegt. Finnst einsog ég sé að gleyma einhverju rosalegu, en veit bara ekki hvað það er.


Síðustu dagar eru búnir að vera hálf geðveikir í vinnunni. Fyrir einhverjum tveim til þrem vikum, þá nennti ég varla að fara í frí, þar sem allt gekk svo rólega í vinnunni. Fannst ég ekkert þurfa á fríi að halda. En núna er ég alveg að springa. Einhvern veginn virtist það vera samhent átak að allt myndi gerast á sama tímanum, bæði í aðalvinnunni og á Serrano. En vona að mér takist að leysa úr öllu áður en ég fer út.

Þarf að komast burt í góðan tíma. Er að springa úr tilhlökkun.

441 Orð | Ummæli (7) | Flokkur: Dagbók

Deuce BMG

ágúst 25, 2005

Ég á bágt með að trúa því að ég búi í landi þar sem Rob fokking Schneider - sem var að klára við að gefa út mynd, sem margir gagnrýnendur eru sammála um að sé versta mynd allra tíma, komist á baksíðu stærsta dagblaðsins, á forsíðu þriðja stærsta dagblaðsins og í einkaviðtal í vinsælasta sjónvarpsþáttinn, allt sama daginn.

Mér finnst gott mál að taka vel á móti frægu fólki, en þetta er eiginlega dálítið sorglegt.

75 Orð | Ummæli (8) | Flokkur: Kvikmyndir

Tónar

ágúst 24, 2005

Nýji síminn minn er algjört æði. Eini gallinn er að hringitónarnir eru allir óþolandi. Þar sem að ég gleymi oft símanum á skrifborðinu inní vinnu, þá vil ég hafa tón, sem gerir starfsfólkið þar ekki geðveikt.

Veit einhver hvar ég get fundið .MP3 hringitóna, sem eru bara einfaldir. Einföld hringing, ekki einhver brjáluð lög með flautum og látum. Ég hef prófað að hafa gott lag sem hringitón, en ég kann best við að hafa bara einfaldan tón. Hins vegar þá finn ég ekkert svo einfalt á netinu.


Einnig, ef þú ert vinur minn og átt heima í símaskránni í símanum mínum. Málið er að gaurarnir hjá Samsung umboðinu eyddu allri símaskránni minni og ég er því í djúpum skít varðandi símanúmer vina og kunningja. Ég man svona 2 númer hjá vinum mínum, en öll önnur númer man ég ekki. Er búinn að finna flest vinnu símanúmerin, en er of latur til að leita upp öll vinanúmer.

Þannig að ef þú ert vinur minn eða kunningi og veist að þú átt að vera í símaskránni minni, sendu mér email á einarorn ( @ ) gmail.com. Mig vantar sem flest gsm og heimanúmer. Vantar til að mynda öll númer hjá stelpunum í mínum vinahóp.

202 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Tækni

Ferðaplan

ágúst 23, 2005

Ég fæ engin verðlaun fyrir það að vera skipulagður í ferða undirbúningnum mínum. Er eiginlega búinn að vera of busy í vinnu til þess að klára hlutina og skipuleggja.

Var að raða ofaní minningarkistuna mína þegar ég sá allt í einu bólusteningarskírteinið mitt og fattaði að ég steingleymdu að láta bólusetja mig. Gulu sprautan er orðin 10 ára gömul og eitthvað annað var útrunnið. Hringdi því og grátbað konuna á símanum um að redda mér tíma. Sem hún og gerði. Þvílíkt yndi. Þannig að á morgun ætla ég að láta sprauta mig fullan af einhverjum viðbjóði. Vona bara að ég sé ekki inná malaríu-svæðum, svo ég þurfi ekki að taka hryllings-malaríutöflurnar, sem allir tala svo illa um.

Svo hérna heima eftir Liverpool leikinn, þá fór ég að pæla í flugum frá Washington til Mið-Ameríku. Ég ákvað með Genna að það væri betra að við myndum hittast á heimleiðinni og því ætla ég að reyna að fljúga beint til Mexíkóborgar án stopps í Washington og fljúga svo á bakaleiðinni frá Guatemala borgar til Washington og heimsækja Genna og Söndru í tvo daga.

Ég fór svo að hugsa með mér áðan…. heimsækja Genna og Söndru… hhmmmmm… Washington… hmmmm……. Hólí sjitt, þau búa í Bandaríkjunum og ég er með gamalt vegabréf. Þannig að núna þarf ég að redda mér nýju (DAMN you, Osama!) vegabréfi og þarf að fá sérstaka flýtimeðferð, sem þýðir að ég þarf að borga 10.000 kall. Ég er ekki sáttur, því ég elska vegabréfið mitt. Ég fékk það einmitt útí Mexíkó vegna þess að því gamla var rænt af mér á lestarstöð í Mexíkóborg fyrir 8 árum.

En vegabréfið mitt er svo uppfullt af gömlum stimplum (í vegabréfinu eru stimplar frá Guayana, Argentínu (2 stk), Chile, Uruguay, Kúbu, Kólumbíu, Ekvador, Perú, Venezuela, Paragvæ, Tékklandi, Póllandi (2stk), Bandaríkjunum (10 stk), Bólivíu, Tyrklandi og Kanada), sem ég verð aldrei þreyttur á að fletta í gegnum þegar ég er að bíða eftir flugi á leiðinlegum viðskiptaferðalögum. Stimplarnir vekja alltaf upp skemmtilegar minningar. En svona er þetta nú, ég verð víst að fá mér nýtt vegabréf og byrja að safna stimplum uppá nýtt.

349 Orð | Ummæli (11) | Flokkur: Ferðalög

Borgin

ágúst 23, 2005

Hallgrímur Helga er snillingur. Ég mæli með þessu: 101 Reykjavík

10 Orð | Ummæli (3) | Flokkur: Almennt

Össur í World Class

ágúst 23, 2005

Mig minnir að ég hafi einhvern tímann skrifað um það að ég óskaði þess að ungir þingmenn myndu tala (og hugsanlega blogga) einsog þeir væru í alvöru ungir, en ekki sextugir karlar í dulargervi. Mig langaði í blogg þar sem einhver þingmaður myndi viðurkenna að hann horfði á O.C. eða fyndist stelpan á hlaupabrettinu í World Class vera sæt.

Þetta er ekki alveg að gerast. Unga fólkið í pólitík heldur áfram að rembast við að vera fullorðið. Hins vegar er Össur Skarphéðinsson orðinn alvöru bloggari. Ekki svona leiðinlegur þingmannabloggari, sem bloggar bara um frumvörp og R-listann, heldur skemmtilegur bloggari sem segir frá þessu litla og skemmtilega í sínu lífi.

Hvaða þingmaður annar en Össur myndi til dæmis þora að skrifa svona snilld?

Í gær kom svo ég í World Class og sá að menn hópuðust á brettin fyrir aftan vörpulegan mann. Hann hafði valið sér ysta hjólið til að láta bera sem minnst á sér. Loksins- hugsaði ég spenntur. Ég var algjörlega viss um að Clint væri mættur á staðinn.

Ég kannaðist við vangasvipinn á manninum. Mér fannst ég örugglega þekkja limaburðinn. Hjartað í mér sló hraðar. En það var einhver tilvistarangist sem speglaðist í augum hans - sem maður sá aldrei hjá Clint í gamla daga.

Þá sá ég að þetta var enginn annar en Geir Haarde. Hann var búinn að missa svona 15 kíló og orðinn að kyntrölli! Angistarsvipurinn á honum var bara einsog svipurinn á sjálfum mér þegar ég er rekinn í strangt aðhald! Geir var ekki með gleraugun svo hann gat látið sem hann sæi mig ekki þegar ég vinkaði kumpánlega - til að liðið í kring sæi að ég þekki líka frægt fólk.

(via)

Það er einsog Össur hafi frelsast þegar hann tapaði kosningunum í sumar. Bloggið er fullkominn miðill fyrir menn einsog hann. Menn, sem nenna ekki að vera alvarlegir á öllum stundum og þora að segja það sem þeim finnst. Húrra fyrir honum!

Annars, þá sé ég aldrei Clint Eastwood í World Class. En það er sennilega enginn betri staður til að hitta fræga fólkið en í salnum í Laugum.

347 Orð | Ummæli (1) | Flokkur: Stjórnmál

Prentari

ágúst 23, 2005

Já, ég veit að ég á ekki að nota þessa síðu fyrir smá-auglýsingar.

En allavegana, mig vantar ódýran prentara. Sjá auglýsinguna mína hér. Væri ágætt ef þetta væri svart/hvítur laser, en er svo sem opinn fyrir öllu.

37 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Tækni

10 Bestu lagabútarnir

ágúst 22, 2005

Á þessari síðu er athyglisverður listi. Höfundur tók sig til og gerði lista yfir 50 flottustu lagabútana. Það er: ekki 50 flottustu lögin, heldur 50 flottustu hlutar úr lögum. Flott trommusóló, flott laglína og svo framvegis.

Mér fannst þetta sniðugt og fór aðeins að pæla í þessu og endaði með þennan lista. Semsagt þetta eru mínir uppáhalds lagapartar. Frá flottum gítarsólóum til parta þar sem ég hef fengið gæsahúð, eða tengi einhverju merkilegu í mínu lífi. Kannski finnst öðrum þetta ekkert merkilegir hlutar, ég veit það ekki. En allavegana, talan fyrir aftan lagaheitið merkir það hvenær í laginu viðkomandi bútur byrjar.

  1. Jeff Buckley - Last Goodbye - 3:50 - Allt lagið er sungið á algjörlega ólýsanlegan hátt af Buckley. En síðasta versið þegar hann nánast grætur línurnar gefa mér gæsahúð í hvert skipti. Hvernig hann grætur orðið “over” í síðustu línunni sýnir hversu stórkostlegur söngvari Buckley var: “and the memories offer signs that it’s over” - Ótrúlegt.
  2. Bob Dylan - One of Us Must Know - 3:50 - Dylan syngur með ótrúlegri tilfinningu “never meant to do you any harm”, fer svo inní viðlagið og svo í yndislegasta munnhörpusóló allra tíma. Munnharpan er skerandi, en samt svo ótrúlega fullkomin.
  3. Sigur Rós - Popplagið - 6:05 - Þegar að andinn í laginu gjörbreytist og lokakaflinn byrjar. Trommurnar og söngurinn. Ómægod!
  4. I Want You - Elvis Costello - 5:45 - Í lok lagsins þegar að Elvis er orðinn rólegur aftur og syngur: Every night when I go off to bed and when I wake up…I want you… I’m going to say it once again ‘til I instill it…I know I’m going to feel this way until you kill it…I want you.

    Kannski er það vegna þess að ég hlustaði einu sinni á þetta lag svona 50 sinnum á rípít á meðan að ég hugsaði um stelpu, sem ég var að tapa mér yfir. En allavegana, ég elska þennan kafla. Já, og ég elska þetta lag. Ég man ennþá að ég var útá svölum á hóteli við ströndina á Margarítu þegar að Eunice vinkona mín spilaði þetta lag í fyrsta skipti fyrir mig. Gleymi því aldrei.

  5. Gerry & the Pacemakers - You’ll Never Walk Alone 1:15 - Ég þarf víst ekki að segja mikið meira en: “Walk on…walk on…with hope in your heart…and you’ll never walk alone”. Við Liverpool menn eigum flottasta stuðningslag í heimi.
  6. Pink Floyd - Comfortably Numb - 3:30 - Byrjunin á besta gítarsóló allra tíma. David Gilmour uppá sitt allra, allra besta.
  7. Beck - Golden Age - 0:00 - Byrjunin á Sea Change. Beck er greinilega ekkert í alltof góðu skapi og það heyrist í röddinni þegar hann byrjar: “Put your hands on the wheels… let the golden age begin”. Hann hefur aldrei sungið jafnvel og þarna.
  8. Molotov - Gimme tha Power - 2:05 - Áróðurslag þeirra Molotov manna gegn mexíkóskum stjórnvöldum nær hámarkinu í baráttuslagorðunum í endanum, sem passa svo vel. En af þeim tónleikum, sem ég hef farið á, hefur ekkert jafnast við það að standa í miðri mexíkóa hrúgunni og öskra: “Si nos pintan como unso huevones….No lo somos…Viva Mexico Cabrones!”
  9. The Steet - Empty Cans - 5:00 - Mike finnur peninginn sinn og allt smellur saman. Og svo byrjar hversdagsleikinn aftur. Stórkostlegur endir.
  10. Rage against the Machine -Killing in the Name - 4:10 - Hoppandi og öskrandi “Fuck you I won’t do what you tell me” í Kaplakrika, 15 ára gamall. Mikið var það gaman.

Eflaust er ég að gleyma einhverju. En mér finnst þetta samt vera nokkuð góður listi.

584 Orð | Ummæli (3) | Flokkur: Topp10 & Tónlist

28

ágúst 21, 2005

Eitt ár liðið og merkilega lítið hefur breyst eða gerst.

Baby this town rips the bones from your back
It’s a death trap, it’s a suicide rap
We gotta get out while we’re young
‘cause tramps like us, baby we were born to run

46 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Dagbók

Punktar

ágúst 21, 2005

Búinn að kaupa eftirfarandi:

1 farseðill til Baltimore. Brottför 31.ágúst klukkan 16.40. Heimkoma 4. október.

Kostnaður: 0 krónur + flugvallarskattur = 7.550 krónur. Ég eeeeeelska Vildarpunktana mína. Elska þá!

Þá er bara að vona að Genni verði á staðnum. Ætla að bíða með að panta mér flug áfram til Mexíkó þar til ég kemst að því.


Ég er svo búinn að eyða síðustu klukkutímunum sitjandi á gólfinu með Sigur Rós í græjunum, farandi í gegnum kistuna mína. Kistan geymir öll gömlu bréfin mín, gamla minjagripi frá ferðalögum og slíkt. Takmarkið var að finna heimilisföng í Mexíkó hjá fólki, sem ég þekkti þar. Fann flest þau, sem ég ætlaði að finna.

Auðvitað þurfti ég svo að lesa mig í gegnum helminginn af bréfunum og hinu dótinu, sem var þarna líka. Minningarnar flæddu yfir mig. Mikið er þetta gaman.

137 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Dagbók

You know that feeling you get

ágúst 21, 2005

  • Ég þegar ég kom heim af djamminu
    á föstdudaginn
Orð fá því varla lýst hversu hræðilega þunnur ég var í gær.

Ég var vakinn klukkan 9, og svo aftur klukkan 9.15 og 9.30 vegna vesens uppá Serrano. Ein stelpan var veik og gekk illa að finna einhvern í hennar stað. Ég sé vanalega um slík mál, en þar sem ég hélt að ég væri að deyja, þá reyndi ég að koma mér útúr því.

Loks klukkan 11 kom ég mér uppúr rúminu, borðaði morgunmat og eyddi svo tímanum í eitthvað tilganslaust drasl áður en ég kom mér niður á Ölver til að horfa á Liverpool. Hamborgararnir á Ölveri eru ekki þeir bestu í heimi, en ég hélt þó að mér myndi líða betur við að borða hann. Hins vegar varð mér eiginlega bara óglatt og ég var nálægt því að fara heim í hálfleik. Það að ég sleppi því að horfa á Liverpool leik væri merkilegur hlutur. En ég harkaði þetta af mér.

Til að bæta gráu ofan á svart kom það svo upp að ég þurfti að vinna síðasta klukkutímann uppá Serrano. Starfsfólk staðarins lét mig vita að ég liti hræðilega út, svo sennilega hef ég ekki verið neitt sérstaklega hress í afgreiðslunni. Þegar ég var búinn að vinna fór ég heim og nánast beint að sofa. Var enn illt í maganum og með fáránlegan hausverk, þrátt fyrir að hafa borðað 6 Excedrin töflur yfir daginn. Vaknaði við flugeldasýninguna og svo aftur klukkan 8 í morgun. Var þá ennþá með hausverk. Ég hef aldrei upplifað annað eins. Oh the humanity!


Ástæðan fyrir þessu öllu var að ég var í óvissuferð með vinnunni á föstudaginn. Við fórum á einhvern bóndabæ þar sem við kepptum í fulltaf þrautum og borðuðum svo í hlöðunni. Allt mjög gaman og ég skemmti mér ljómandi vel.

Fórum svo nokkur niður í miðbæ eftir þetta. Nánar tiltekið á Cafe Ólíver. Það er erfitt að gleyma fortíðinni í Reykjavík, smæð borgarinnar er oft nærri því óbærileg. Ég tel mig ekkert hafa verið með neitt rooosalega mörgum stelpum, en samt voru tvær stelpur, sem ég hef verið með, á sama tíma staddar á sama dansgólfinu. Fyrirgefið, en mér finnst það magnað.

Ég veit aldrei almennilega hvað mér finnst um það að hitta fyrrverandi á djamminu. Hvort er betra að þær líti æðislega út eða hræðilega. Ég hitti fyrir einhverju síðan stelpu, sem ég reyndi við en án árangurs fyrir talsverðum tíma. Þegar ég sá hana hafði hún breyst fáránlega mikið og ég gat ekki ímyndað mér hvað ég sá við hana einu sinni. Einhvern veginn þá leið mér betur við það. Veit ekki af hverju. Varla var það hreinræktuð illkvittni, en mér leið þó einsog við værum loksins jöfn.

Svo eru það fyrrverandi kærustur, sem eru enn fáránlega sætar. Veit ekki hvort er betra, að manns fyrrverandi líti vel eða illa út. Ef þær líta vel út þá getur maður sagt við sig: Vá, djöfull var ég góður að ná í þessa stelpu. En þá kemur líka svekkelsi yfir því að hlutirnir hafi ekki gengið upp. Ef þær líta illa út, þá getur maður verið feginn því að þetta hafi endað, en líka hissa á því hvað maður var að gera. Hef líka oft velt því fyrir mér hvernig þær líta á mig. Þegar ég kom heim, þá leit ég alveg ólýsanlega hræðilega út. Ég var við það að taka mynd af mér til að geta rifjað það upp hvenær á ævinni ég leit verst út. Ég held semsagt að það hafi verið klukkan 5.30 á laugardagsmorgun.

Og jájá, auðvitað snýst ekki allt um útlit.

But I digress.

Allavegana, ég skemmti mér nokkuð vel. Endaði svo einsog oft áður á Purple Onion. Labbaði svo heim. Þegar ég kom heim um klukkan 5 var skrítni kallinn í blokkinn inní ruslageymslu að skoða eitthvað. Hvað hann var að gera inní ruslageymslu klukkan 5 á laugardagsmorgni, veit ég ekki. Var að spá í að stoppa og spyrja hann, en hætti við.


Í dag vaknaði ég svo klukkan 8, enn með hausverk en er búinn að fá mér tvær Excedrin í viðbót og núna held ég að hausverkurinn sé loksins að fara. Það er gott, því ég er hroðalega leiðinlegur þegar ég er með hausverk.

10 dagar í frí… and counting.

709 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Dagbók

Akstur undir áhrifum

ágúst 18, 2005

Ég elska Ask MeFi. Ég kíki þarna reglulega og les spurningar og svör, því þar eru oft milljón gagnlegir hlutir. Hérna er spurt hvernig sé hægt að mæla það hvort maður sé of drukkinn til að keyra. Eitt svarið:

Look around the bar and look for attractive women. If you think every woman you see is at least kinda hot… you are too drunk to drive.

Alger snilld!

68 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Netið

Bensínverð

ágúst 18, 2005

Ekki hef ég trú á að undirskriftarsöfnun muni lækka bensínverð á Íslandi. En öllu athyglisverðari er þessi tafla yfir bensínverð í ýmsum löndum heims.

Dýrasti lítrinn á þessum lista er í Hollandi, en þar kostar gallon af bensínu 6,48 dollara. Hvað kostar gallonið á Íslandi? Jú 6,82 dollara. Auðvitað erum við númer 1! Við erum langbest!

Gallonið í Venezuela kostar 0,12 dollara. Það þýðir að lítrinn af bensíni á bensínstöð í Caracas kostar rúmar 2 krónur (já, tvær krónur). Þegar að ríkisstjórnin í Venezuela ætlaði að hækka bensínverð þegar ég bjó þar, þá kveiktu rútubílstjórar í bílum og lokuðu götum, þannig að ég komst ekki í skólann. Mikið var það nú gaman.

112 Orð | Ummæli (1) | Flokkur: Almennt

Nýr sími. Jei!!!

ágúst 18, 2005

Einsog glöggir lesendur hafa tekið eftir, þá hefur mig langað í nýjan síma í talsverðan tíma. Jæja, í dags varð loksins af því að ég fékk nýjan síma

Ég hafði verið spenntastur fyrir Morotola Razr, en eftir að ég spjallaði við netkærustuna mína, þá ákvað ég að kíkja á nýja Samsung símann. Og eftir smá pælingar, þá skellti ég mér á Samsung E730. Ég hef átt E700 típuna í nærri tvö og var orðinn virkilega ánægður með Samsung. Ég varð að fá mér clam-shell síma og það virðist vera sem að Samsung séu með bestu línuna í þeim símum.

Allavegana, nýji síminn minn er yndislegur. Hann hefur allt, sem mig hefur vantað. Hann lagar gallana í gamla símanum og bætir við alls konar dóti, sem ég vissi ekki að ég hefði nokkra þörf fyrir - og þrátt fyrir það er hann minni og léttari síminn minn. Ég á eftir að redda mér Bluetooth tengi fyrir Makkann minn til að sjá almennilega hverng myndirnar úr símanum koma, en mér sýnist þær vera virkilega skýrar og góðar. Svo tekur hann líka upp vídeó, sem mér finnst stórkostlega magnað og núna fæ ég öll mörkin með Liverpool send í símann.

Er ekki tæknin yndisleg? Ég elska ný tæki!


Já, og ég fæ gæsahúð þegar ég heyri byrjunina á Hoppípolla. Sigur Rós er æði!

220 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Tækni

Nýja Sigur Rósar platan

ágúst 17, 2005

Ok, til að byrja með ætla ég að heita einu: Ég skal lofa því að ég ætla að kaupa nýju Sigur Rósar plötuna útí næstu Skífubúð þegar hún kemur út. Ok? Ég lofa.


Ég gjörsamlega get ekki skilið plötufyrirtæki. Nýja Sigur Rósar platan, Takk, kemur út 12. september. Ef ég ætlaði að vera heiðarlegur og versla bara við plötufyrirtæki, þá þyrfti ég semsagt að bíða í mánuð í viðbót eftir því að fá að hlusta á plötuna.

En hvernig á ég að geta gert það þegar ég veit að það tekur mig svona 5 mínútur að nálgast fullkomið eintak af plötunni ókeypis á netinu? Ég elska Sigur Rós. Þeir tónleikar, sem ég hef farið á með hljómsveitinni hafa verið með bestu tónleikum ævi minnar. Ég man enn skýrt eftir því þegar ég heyrði Popplagið í fyrsta skiptið á ævinni á tónleikum í Chicago. Ég hef sjaldan verið jafnhrifinn.

Síðasta platan endaði einmitt á Popplaginu og því hef ég verið fáránlega spenntur yfir því að hlusta á nýjustu plötuna. Ég væri til í að borga sanngjarnt verð fyrir að eignast hana strax í dag. Fokk, ég væri ábyggilega til í að borga ósanngjarnt verð fyrir hana í dag. Svo spenntur er ég að hlusta á hana. En hvers vegna gera plötufyrirtækin mér svona erfitt fyrir? Af hverju er ekki hægt að kaupa plötuna útí búð eða á netinu núna?

Ég vissi að á endanum myndi ég ekki geta staðist freistinguna. Ég varð hreinlega að ná mér í plötuna strax. Ég get ekki beðið í einn mánuð vitandi af því að hún er þarna á netinu. Það geta allir með internet tengingu náð sér í plötuna á ólöglegan og ókeypis hátt. En þeir, sem vilja vera heiðarlegir þufa að bíða í mánuð í viðbót. Það er hreinlega ekkert vit í þessu.

Allavegana, ég gat ekki staðist freistinguna og náði mér í plötuna með BitTorrent. Kaupi svo diskinn þegar hann kemur út, þar sem að útgáfan á netinu er bara 192kb MP3 skrá, sem er ekki alveg nógu gott. Og við fyrstu tvær hlustanir, þá er hún allt, sem ég vonaðist til. Hljómar alveg yndislega. Ég get ekki sagt almennilega hvernig hún verður eftir nokkra daga, en allavegana þá mun hún fá að njóta sín næstu kvöld. Ef eitthvað er, þá hljómar hún betur en ( ) til að byrja með.

388 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Tónlist

Góð lög

ágúst 16, 2005

Þetta eru æðisleg lög, sem ég er búinn að hlusta á alltof oft síðustu daga.

What’s so funny about peace, love and understanding - Elvis Costello. Alveg frá því að ég horfði á Lost in Translation, þá hefur þetta lag verið í uppáhaldi hjá mér. Bill Murray tók þetta lag á karókí bar í Tókíó. Einhvern daginn ætla ég að taka þetta lag á karókí bar í Tókíó. Sanniði til!

Middle of Nowhere - Hot Hot Heat. - Á föstudaginn vaknaði ég við þetta lag á XFM. Þegar ég kom inní vinnu goggle-aði ég textabrotinu, sem var fast í hausnum á mér. Nokkrum tíma hafði ég náð mér í lagið og núna er ég búinn að hlusta á það 25 sinnum. Skemmtilegt!

The Asphalt World og The Two of Us - Þegar ég var unglingur þá eyddi ég í einhverjar vikur mörgum kvöldum í að hlusta á Dog Man Star með Suede. Þessi lög ásamt Wild Ones voru í uppáhaldi. Af einhverjum ástæðum datt ég aftur í þessum pakka. Ekki tengt neinu sérstöku. Var bara að leita að rólegri tónlist og lenti á þessu.

Forever Young - Bob Dylan. Af því bara.

Alabama - Neil Young - Af því að á eftir Dylan er Neil Young mesti snillingur í heimi.

Natural Beauty - Neil Young - Sjá hér að ofan.

220 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Tónlist

Ritstífla

ágúst 15, 2005

Ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að skrifa um.


Var búinn að skrifa heillanga færslu um djamm. Og svo bara píng, ég fór frá (IBM far)tölvunni í smá tíma og hún bara slökkti á sér (útaf einhverri sjálfvirkri uppfærslu) og færslan datt út. Kannski voru þetta skilaboð…

49 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Almennt

Össur í borgina

ágúst 11, 2005

Úr Silfri Egils

Annar sem gæti komið til greina er Össur Skarphéðinsson. Hann er náttúrlega fyrsti þingmaður norðurkjördæmisins í Reykjavík – gamall borgarfulltrúi sem tókst á við Davíð í borgarstjórninni í eina tíð. Það er altént víst að borgarstjórakeðjan myndi sitja vel á Össuri – og svo hefur hann glaðbeitt og vinalegt fas sem minnir nokkuð á þann ágæta bæjarstjóra Bastían í fyrirmyndarsamfélaginu Kardimommubænum.

Væri þetta ekki snilld? Í alvörunni? Ef það yrði farið í prófkjör og Össur væri í framboði, þá myndi hann pottþétt vinna. Ég held að R-listinn muni tapa kosningunum með Steinunni eða Stefán Jón sem borgarstjóraefni. En með Össur í þessu sæti, þá er ég sannfærður um að R-listinn myndi vinna. Yrði ekki gaman að hafa Össur sem borgarstjóra? Ég held það. Hann myndi án efa lífga uppá pólitíkina í borginni.

Össur í borgarstjórann. Hefjum herferðina núna!

141 Orð | Ummæli (7) | Flokkur: Stjórnmál

Bush og olían

ágúst 10, 2005

Mér finnst þetta fyndið:

Bush vows to eliminate U.S. dependence on oil by 4920.

14 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Netið

Maður

ágúst 09, 2005

Mikið hljómar það virðulega þegar ég er kallaður ungur maður :-)


Ég hef ekki nennt að skrifa neitt um stjórnmál eða íslensk þrætumál á þessa síðu. Það er kannski merki um hversu lítið hefur gerst undanfarna mánuði. Eeeen, í alvöru talað, er það eitthvað sérstakt markmið að breyta Íslandi í Búrma? Úr frétt á Vísi.is:

Ólafur (hluti af mótmælendum á Káranhjúkum - innsk. EÖE) segir ómerktan sendiferðabíl á vegum lögreglunnar hafa verið einungis nokkra metra frá þeim í nótt. Honum mislíkar að svo grannt sé fylgst með þeim og vill meina að brotið sé á rétti þeirra. Hann vill ekki gefa upp hvert ferðinni er heitið og segir að mótmælum verði haldið áfram.

Af hverju álítur Lögreglan mótmælendur vera hættulegasta fólkið á landinu? Þetta er enn eitt bjánadæmið í tengslum við meðhöndlum lögreglunnar á fólki, sem mótmælir aðgerðum þessarar ríkisstjórnar eða ríkisstjórna annarra landa. Allt frá kínverska fimleikafólkinu til þessara umhverfissinna.

Í stað þess að fara með þetta fólk einsog glæpamenn, þá ætti að veita þeim orður fyrir að nenna að húmast í skítakulda uppá hálendi Íslands til að mótmæla heimsku þessarar ríkisstjórnar.

183 Orð | Ummæli (11) | Flokkur: Almennt

Viva México, cabrones!

ágúst 08, 2005

Ó fokking jeh!

Ég er að fara til Mexíkó í fríið mitt. Ég er búinn að skipta um skoðun sirka 30 sinnum á síðustu dögum, en valið stóð á milli Suð-Austur Asíu og Mið-Ameríku. Vinur minn í Tælandi var aðeins uppteknari en hann hélt og það nægði til að ég ákvað að velja Mexíkó í þetta skiptið. Hef vonandi tækifæri til að fara til Tælands seinna.

Og jedúddamía, ég fékk brjálæðislegan fiðring þegar ég loksins ákvað þetta. Mexíkó er svo yndislega æðislegt land! Ég hef reyndar aðeins skoðað þrjár borgir, en fólkið er æði og nánast allt tengt Mexíkó er allavegana í minningunni frábært.


Ég vann eitt sumar í Mexíkó fyrir 8 (úff!) árum. Það var algjörlega æðislegt sumar. Í fyrsta skipti bjó ég einn og þar varð ég líka í fyrsta skipti ástfanginn. Vinnan var ekkert sérstaklega skemmtileg, en kvöldin og helgarnar voru æðisleg.

Ég kynntist stelpunni, Gabrielu, í gegnum vinnuna. Eftir að hafa hitt hana nokkrum sinnum fann ég loksins kjark til að bjóða henni út á stefnumót. Við byrjuðum saman og eftir nokkurra vikna samband bauð hún mér að flytja heim til sín.

Sem var ekkert smá furðulegt. Ég hafði verið að leigja hjá fólki í úthverfi Mexíkóborgar, stutt frá vinnunni minni. En mér samdi ekkert sérstaklega vel við fólkið, sem ég leigði hjá (enda voru þau geðsjúk, öll!). Þannig að ég ákvað að þiggja boðið, enda bjuggum við Gaby þá í sitthvorum enda borgarinnar. Gaby bjó í pínkulítilli íbúð í frekar fátæku hverfi uppí hlíðum Mexíkóborgar, ásamt mömmu sinni, bróður og systur. Þetta er ein yndislegasta fjölskylda, sem ég hef kynnst. Þau vildu allt fyrir mig gera og tíminn þar var ógleymanlegur. Stóri bróðir Gaby var nokkurs konar pabbi á heimilinu og sá til þess að lesa mér lífsreglurnar áður en við Gaby fórum út saman. Mamman var ótrúlegur kokkur og á hverjum degi var veisla á heimilinu.

Eflaust gerir minningin hlutina enn frábærari en þeir voru, en ég hef alltaf horft aftur til þessa sumars með hlýhug. Án efa eitt af bestu sumrum, sem ég hef upplifað.


Ég elskaði líka Mexíkóborg. Hún er kannski svipuð Caracas í Venezula (þar sem ég bjó í eitt ár þegar ég var 18 ára) að því leyti að fólk sem staldrar stutt við sér bara traffíkina, mengunina og fátæktina. En þeir, sem búa þar lengur, átta sig smám saman á því hversu heillandi borgin er. Utan Mexíkóborgar heimsótti ég einnig Acapulco og Veracruz. Ég get ekki beðið eftir því að skoða meira af Mexíkó, því í minningunni er allt við Mexíkó frábært:

Stelpurnar (óó!), klúbbar með barra libre (eitt gjald og svo eins mikið áfengi og þú vilt), tónlistin, tekíla, bjórinn, stelpurnar, veðrið, traffíkin og allt brjálæðið í Mexíkóborg - og maaturinn. Besti matur í heiiiimi. Get ekki beðið eftir því að droppa inná einhverja taqueria um miðja nótt eftir djamm og fá mér tacos al pastor. Jesús Kristur hvað mig hlakkar til!


Ég er ekki kominn með dagsetninguna 100% á hreint. Á enn eftir að afgreiða smá í vinnunni, en þetta verður vonandi í lok mánaðarins. Upphaflega planið er að fljúga til Mexíkóborgar, eyða tímanum þar og fara svo suður. Sennilega í gegnum Chiapas (Ya Basta!, PR!), svo til Gvatemala, Belís og El Salvador. Ég er ekki búinn að skipuleggja ferðina nógu mikið, þannig að ég veit ekki hversu mörg lönd ég heimsæki. Þannig að tíminn verður að leiða í ljós hvort ég fari til Hondúras, Níkaragva, Kosta Ríka og Panama.


Ég fékk svo mikið nostalgíukast við að skrifa þessa færslu að ég setti Luis Miguel á fóninn. Por debajo de la Mesa, maður! Er hægt að hafa það væmnara? Ég held ekki. En þetta var uppáhaldslag Gaby og því minnir það mig alltaf á Mexíkó. Hún neyddi mig til að hlusta á þetta aftur og aftur og aftur.

Ó vá, ég fæ gæsahúð. Mig langar út á morgun.

641 Orð | Ummæli (8) | Flokkur: Ferðalög

Stelpur í London og Jackson 5

ágúst 07, 2005

Eitt athyglisvert við London, sem ég veit ekki hvort aðrir strákar hafa tekið eftir: Allar sætustu stelpurnar í London eru af indverskum uppruna! Semsagt afkomendur innflytjenda frá Indlandi, Sri Lanka, Pakistan og þeim löndum. Ég held að ég sé alveg ágætlega dómbær um þetta. Hefur einhver annar tekið eftir þessu? Nánast undantekningalaust voru sætustu stelpurnar, sem ég sá í London, af þessum uppruna. Magnað, ekki satt?


Síðan hvenær varð “I want you back” með Jackson Five að skylduspilun á íslenskum skemmtistöðum? Ég held að ég geti fullyrt að þau síðustu fjögur skipti, sem ég hef verið á íslenskum skemmtistöðum á laugardögum (þrisvar Ólíver, einu sinni Vegamót), þá hefur það lag alltaf verið spilað, jafnvel oftar en einu sinni á hverju kvöldi.

Borgþór og Björk vinir mínir eignuðust litla stelpu í gær. Í tilefni af því fórum við barnlausa fólkið úr Verzló vinahópnum út í gærkvöldi. Núna erum við bara sjö eftir barnlaus. Fórum á Ólíver, sem var fínt. Ég held að borðin við hurðina á Ólíver séu bestu borðin í bænum, þar sem að opna hurðin gerir það að verkum að nánast engin sígarettulykt finnst. Ég þefaði af peysunni minni í morgun og fyrir utan Benetton ilmvatnslykt, þá gaf engin lykt það í skyn að ég hefði verið á skemmtistað í gærkvöldi. Yndislegt alveg hreint. Meira svona!


Jæja, seinni hálfleikur af Góðgerðarskildinum að byrja. Ég elska það að vakna á sunnudögum og getað séð fótbolta um leið og ég kveiki á sjónvarpinu. Það er yndislegt!

245 Orð | Ummæli (5) | Flokkur: Dagbók

High Fidelity

ágúst 06, 2005

Ég skrifaði ferðasöguna til London í gær. Hún var alltof þunglynd. Eitthvað við það hversu yndislega vel mér leið útí London hafði áhrif á mig. Veit ekki hvort ég set hana hingað inn. Ætla að bíða með hana og melta í einhvern tíma.


Útí London las ég þrjár bækur. Merkust af þeim öllum er High Fidelity eftir Nick Hornby. Flestir hafa sennilega séð myndina, sem er algjör snilld, en ef eitthvað er þá er bókin enn betri. Ég held að ég geti óhræddur sagt að þetta sé ein af uppáhaldsbókunum mínum. Allavegana á topp 5. Ég byrjaði að lesa hana á mánudagsmorgun og hætti ekki fyrr en seint á mánudagskvöld þegar ég var búinn. Las hana úti á Leicester torgi, inná Starbucks í Covent Garden, Starbucks á Oxford street, sem og heima á gistiheimilinu. Ég hef sjaldan farið svona hratt í gegnum bók.

Ég elskaði bókina. Hún talaði til mín á svo margan hátt og mér fannst svo margt í söguhetjunni höfða til mín. Svo margt í hans lífi passaði við mitt.

Í grunninn fjallar hún um Rob, sem er nýhættur með kærustunni sinni. Hann reynir að gera lítið úr þeim sambandsslitum með því að rifja upp eldri sambönd, sem honum finnst hafa endað á verri hátt. Bókin fjallar svo um tilraunir hans til að komast yfir kærustuna og tilraunir hans til að reyna að ná henni aftur. Þetta hljómar kannski allt frekar sorglegt, en þetta er með fyndnustu bókum, sem ég hef lesið. Sambandsslitin verða til þess að Rob fer að hugsa um sína stöðu í lífinu. Hvort hann sé sáttur við vinnuna, vinina, sínar fyrrverandi kærustur og annað.

Þrátt fyrir að John Cusack túlki Rob frábærlega í myndinni, þá fann ég enga samsvörun með honum þegar ég sá myndina fyrst. Kannski var ég bara of ungur og vitlaus. Það var fyrir fimm árum síðan og ég hafði ekki uppgötvað ástarsorg nema einu sinni á ævinni og ég hafði sjálfur endað öll þau sambönd, sem ég hafði verið í. Núna er ég auðvitað eldri og reyndari og hef upplifað fleiri hliðar á samböndum. Sem er gott. (að ég held)

Þrátt fyrir að ég og Rob séum að mjög mörgu leyti ólíkir, þá fannst mér oft einsog þessi bók væri skrifuð fyrir mig. Endalaust oft stóð ég mig að því að brosa og tengja atburði bókarinnar við atburði í mínu lífi. Þetta hefur aldrei gerst jafnoft við lestur á einni bók. Á tímabili langaði mig m.a. að hringja í sumar manneskjur og spyrja viðkomandi af hverju hlutirnir enduðu á þann hátt, sem þeir enduðu. Það hefði allavegana verið fróðlegt. Ég er viss um að ef ég hefði drukkið bjór í stað kaffis með bókinni, þá hefði ég látið verða af því. :-)

Allavegana, ég mæli með þessari bók, sérstaklega fyrir stráka. Allir strákar, sem eru komnir yfir tvítugt og hafa upplifað fleiri en eina hlið á samböndum ættu að geta fundið einhvern hluta af sjálfum sér í bókinni. High Fidelity er æði. Æði!


Hinar bækurnar, sem ég las voru Lands of charm & cruelty og Fever Pitch, sem er líkt og High Fidelity skrifuð af Nick Hornby. Ég ætla að fjalla um hana í sér færslu. Ég byrjaði svo að lesa How to be Good, einnig eftir Hornby.

538 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Bækur

Hundur

ágúst 04, 2005

Þetta er ljótasti hundur í heimi (via MeFi).

8 Orð | Ummæli (5) | Flokkur: Netið

Brúðkaup

ágúst 02, 2005

Wedding Crashers er æðislega fyndin mynd. Farðu og sjáðu hana í dag! Ok?

Er það skilið?


Er kominn til Kettering og var að koma úr kvöldverði þar sem ég var sá eini, sem var ekki á bíl, og þurfti því að drekka rúmlega hálfa rauðvínsflösku. Ætla að reyna að skrifa hádramatíska ferðasögu um London þegar ég kem heim.

Vildi bara benda fólki á að Wedding Crashers er mjög fyndin mynd. Mjög!

71 Orð | Ummæli (1) | Flokkur: Kvikmyndir


Warning: readfile() [function.readfile]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2005/08/index.php on line 1578

Warning: readfile(http://www.eoe.is/hlid.dat) [function.readfile]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2005/08/index.php on line 1578