Warning: include() [function.include]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2005/12/index.php on line 149

Warning: include(http://www.eoe.is/tilkynning.dat) [function.include]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2005/12/index.php on line 149

Warning: include() [function.include]: Failed opening 'http://www.eoe.is/tilkynning.dat' for inclusion (include_path='.:/usr/share/php5:/usr/share/php') in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2005/12/index.php on line 149

« nóvember 2005 | Main | janúar 2006 »

Áramóta-ávarp

desember 30, 2005

perquin.jpgAf einhverjum ástæðum hef ég undanfarna daga hlustað nær stanslaust á síðasta lagið á nýju(stu) Eels plötunni, “Things the grandchildren should know”. Þetta er án efa besta lag plötunnar og einhvern veginn finnst mér það passa svo vel við þessi áramót. Allavegana 1 eða 2 punktar í laginu eiga vel við það hvernig mér líður núna um áramótin.

I tried to make the most of my situations
And enjoy what i had
I knew true love and i knew passion
And the difference between the two
And I had some regrets
But if i had to do it all again
Well, it’s something i’d like to do

Þetta ár hefur verið skrýtið á svo ótal marga vegu. Svo innilega viðburðalaust, en samt skringilega fullt af spennandi hlutum. Ég hef upplifað æðislegar stundir, en einhvern veginn eru þær nær allar tengdar útlöndum. Hérna heima finnst mér lítið skemmtilegt hafa gerst. Einhvern veginn virkar allt betra í útlöndum. Stelpurnar eru skemmtilegri, hlutirnir meira spennandi og mér líður betur.


Ég hugsa sennilega alltof mikið á áramótum. Reyni að gera upp árið hjá sjálfum mér og hvort ég sé sáttur við lífið og tilveruna. Allt frá því hversu duglegur ég var í ræktinni til þess hvernig ég hef verið við fólkið í kringum mig.

Ég hef ferðast umtalsvert á þessu ári og fyrir það getur árið ekki annað en talist gott. Hef sennilega ferðast umtalsvert meira en flestir í kringum mig og fyrir það get ég ekki annað en verið þakklátur. Ég er heppinn með vinnu í þeim skilningi, en ég sleppi líka umtalsverðu úr hefðbundnu lífsgæðakapphlaupi hér á Íslandi til að geta “eytt” meiri pening í ferðalögin mín, því þau eru það sem gefa mér langmesta lífsfyllingu.

Hef ekki enn getað skilið eina fyrrverandi kærustu mína, sem kvartaði yfir því að sjónvarpið í stofunni minni væri svo hrikalega lítið miðað við sjónvarpið sem hún og hennar fyrrverandi höfðu átt. Þau áttu 300.000 króna sjónvarp í stofunni, sem þau höfðu fjárfest saman í. Hins vegar höfðu þau bara einu sinni á einhverjum 5-6 árum, sem þau voru saman, farið til útlanda. Auðvitað er það þeirra val og allt gott um það að segja. En það þýðir samt ekki að ég geti skilið svona lagað.


Ég sá Liverpool verða Evrópumeistara í Istanbúl í besta úrslitaleik allra tíma. Fyrir það er ég ævinlega þakklátur og geri mér góða grein fyrir því hversu stórkostlega heppinn ég var að upplifa þetta. Ég get allavegana strokað “sjá Liverpool verða Evrópumeistara” útaf listanum yfir hluti, sem ég ætla að gera áður en ég dey. Ég væri þó alveg tilbúinn að endurtaka þetta einhvern tímann aftur. Þess vegna strax á næsta ári.

Ferðalögin hafa líka oft bjargað mér frá leiðindum hérna heima. Oft hefur mér fundist ég vera að gera lítið spennandi hluti, en utanlandsferðir, hvort sem þær voru tengdar vinnu eða öðru, komu mér í gang aftur. Kannski á þetta sérstaklega við London ferðina í ágúst þar sem ég eyddi fjórum dögum með sjálfum mér, hugsandi minn gang. Eftir þá ferð skrifaði ég ferðasögu, sem ég hef þó aldrei haft geð í mér að birta hér því ég var ekki alveg viss hvernig mér leið.

Og svo var Mið-Ameríkufríið mitt líka stór upplifun. Átti þar frábærar 5 vikur í æðislegum löndum. Kynntist frábæru fólki, skemmti mér stórkostlega og naut þess að upplifa nýja hluti í nýjum löndum.

Og svo kynntist ég þar stelpu. Sambandið endaði reyndar tveim mánuðum seinna vegna fjarlægðar og annarra hluta. En enn og aftur fann ég ástina hjá útlenskri stelpu. Það er einsog ég laði að mér skrýtnar íslenskar stelpur, sem eru fullar af vandamálum, bjánalegum afsökunum og öðru veseni. Kannski er þetta tilviljun en utan eins sambands, þá hafa öll mín sterkustu og skemmtilegustu sambönd verið með útlenskum stelpum. Í þeim samböndum hefur verið minnsta vesenið og ég hef ekki þurft að glíma við nein af þeim vandamálum, sem ég hef þurft að glíma við í mínum samböndum og sambandstilraunum með íslenskum stelpum.

Kannski er þetta bara ein stór og skrýtin tilviljun. Ég veit ekki. En ég er eiginlega búinn að fá nóg af vissu leyti.


Næsta ár verður ár breytinga í mínu lífi, á því er ekki nokkur einasti vafi. Ég er sæmilega ánægður við þessi áramót. Ég lít ágætlega út, er í besta formi ævi minnar og mér gengur ágætlega í vinnutengdum málum. En það er samt svo mikið sem mér finnst ekki í lagi.

Því ætla ég að breyta og er í raun strax byrjaður að huga að breytingunum og hef stigið fyrstu skrefin í átt að nokkrum. Það hefur gefið mér aukinn kraft að undanförnu.

En ég mun þó halda áfram að skrifa hér á þessari síðu. Þrátt fyrir að margir skilji ekki þörf mína fyrir að opinbera smá hluta af mínum tilfinningum á vefnum, þá fæ ég furðu mikið útúr því. Ég fæ vissa útrás með því að halda dagbók, en ég þarf líka mína útrás á þessari síðu. Og ég held þessu úti að langstærstu leyti af því að þetta veitir mér ánægju.

Ég vona að þið eigið eftir að eiga gott ár á næsta ári.

E, take it away:

I do some stupid things
but my heart’s in the right place
and this I know

Gleðilegt ár!

869 Orð | Ummæli (11) | Flokkur: Dagbók

Treat her right

desember 30, 2005

Þetta er fyndnasta myndband sögunnar - (smellið á “watch” og þá kemur myndbandið í sér glugga). Algjörlega stórkostlegt.

18 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Tónlist

Genni!

desember 28, 2005

Það fattar þetta sennilega enginn nema vinir og kunningjar.

Eeeeen, þetta er það fyndnasta sem ég hef séð á netinu á þessu ári!!

Látum það vera að Björn Ingi þurfi að leita alla leið til Washington D.C. til að finna stuðningsmenn. En Genni að styðja Framsókn?! Genni er einmitt heitasti íslenski stuðningsmaður George W Bush! Núna hef ég séð allt á internetunum. Hvað getur maður sagt?

66 Orð | Ummæli (1) | Flokkur: Stjórnmál

Bestu plöturnar 2005

desember 27, 2005

Jæja, í kjölfar listans yfir bestu lög ársins, þá eru þetta að mínu mati bestu plöturnar á árinu:

  1. sufjan.jpg Sufjan Stevens - Illinois: Já já, ég veit að það er voðalega hipp og kúl og indí að segjast fíla þessa plötu. En það var hreinlega ekki gefin út betri plata á þessu ári. Sufjan syngur um fylkið mitt Illinois. Allt er frábært við þessa plötu frá lagasmíðum til texta og útsetninga.

    Það þarf að gefa henni smá sjens í byrjun, en hún verður bara betri og betri við hverja hlustun. Vissulega hafði hún ekki jafn mikil áhrif á mig og plata ársins í fyrra, en Illinoise hefur verið nánast stöðugt í spilaranum bæði hérna heima og í iPod-inum síðustu mánuði. - Besta lag: Chicago
  2. Green Day - American Idiot: Smá svindl hér í gangi því American Idiot var gefin út árið 2004. En ég fattaði hana ekki fyrr en í byrjun þessa árs. Ég var löngu búinn að gefa frat í Green Day, en þessi plata er einfaldlega frábær endurkoma. Rokkplata “ársins”. - Besta lag: Holiday
  3. Edan - Beauty & the Beat: Þriðja árið í röð er uppáhalds hip-hop platan mín gerð af hvítum gaur. Edan er fokking snillingur og það ætti enginn, sem hefur nokkurn tímann fílað hip-hop að sleppa því að hlusta á þessa plötu. Já, Kanye platan er snilld, en þessi er bara einfaldlega svo miklu skemmtilegri. - Besta lag: I see colors
  4. Eels - Blinking Lights & Other Revelations: E þunglyndur, alveg einsog hann gerist bestur. - Besta lag: Things the grandchildren should know.
  5. Kanye West - Late Registration: Var besta hip-hop plata ársins alveg þangað til að ég uppgötvaði Edan seinni part ársins. Kanye gerir sitt besta til að reyna að bjarga rappinu.
  6. Bloc Party - Silent Alarm: Snilld!
  7. Sigur Rós - Takk: Ég einfaldlega elska Sigur Rós og finnst allt frá þeim vera frábært. Þessi plata er betri en (), sem mér fannst þó vera frábær plata, þrátt fyrir að það sé ekki í tísku að halda því fram.
  8. Antony and the Johnsons - I am a bird now: Virkilega góð plata, sem að verður betri með tímanum.
  9. Queens of the Stone Age - Lullabies to Paralyze: Ég hafði aldrei verið hrifinn af QOTSA fyrr en ég gaf sveitinni sjens fyrir tónleikana í sumar. Og eftir umtalsverða hlustun fattaði ég allt hype-ið.
  10. Madonna - Confessions on a dance floor: Ég bara varð að setja þetta hérna inn. Bara af því að mér finnst það svo ótrúlega fáránlegt að ég hafi elskað plötu með Madonnu. En þetta er einfaldlega frábær dansplata.

Næst því að komast inn: Common - Be, Franz Ferdinand, The Game, Ben Folds, Bruce Springsteen.

Vonbrigði ársins: Coldplay - X&Y, Beck - Guero

461 Orð | Ummæli (11) | Flokkur: Topp10 & Tónlist

Jólakort

desember 27, 2005

Fyrir ykkur, sem fenguð ekki kort frá mér, þá er þetta jólakort mitt til ykkar. “Njótið”

16 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Almennt

Heimsótt lönd á árinu

desember 26, 2005

world2005-des.gif

Þetta ár hefur verið ágætt að sumu leyti en slæmt að öðru leyti fyrir mig persónulega. Eitt það ánægjulegasta er að ég hef getað ferðast talsvert á árinu. Til að halda utanum þetta í anda Flygenrings eru hérna þau lönd, sem ég heimsótti á árinu:

Pólland x2 (Varsjá), Þýskaland x2 (Köln), Tékkland (Prag), Holland x2 (Amsterdam, Breda), Svíðþjóð (Stokkhólmur og Gautaborg), Tyrkland (Istanbúl), England x2 (London, Liverpool, York Kettering), Mexíkó, El Salvador, Hondúras, Gvatemala, Belize, Bandaríkin.

Highlight: Istanbúlferðin og Hondúras.

Af þessum löndum var ég að heimsækja Pólland, Tékkland, Svíþjóð, Tyrkland, El Salvador, Hondúras, Gvatemala og Belize í fyrsta skiptið á ævinni. Því lítur landalistinn minn svona út í dag:

Norður-Ameríka: Kanada, Mexíkó, Bandaríkin
Mið-Ameríka & Karabíska Hafið: Belize, Kúba, El Salvador, Gvatemala, Hondúras, Bahamas
Suður-Ameríka: Argentína, Bólivía, Brasilía, Chile, Kólumbía, Ekvador, Paragvæ, Perú, Urugvæ, Venezuela
Evrópa: Austurríki, Belgía, Tékkland, Danmörk, Frakkland, Þýskaland, Grikkland, Ungverjaland, Ísland, Lúxembúrg, Holland, Noregur, Pólland, Portúgal, Rússland, Spánn, Svíþjóð, Sviss, Bretland
Afríka: Ekkert
Mið-Austurlönd: Tyrkland
Asía: Ekkert

Samtals 39 lönd.

165 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Dagbók & Ferðalög

Jól

desember 24, 2005

Jæja, þá er ég búinn að eyða öllum morgninum með Emil við að keyra út gjafir til starfsmanna Serrano. Næst er það svo að leita að leiðum niðrí Fossvogskirkjugarði. Það þýðir víst að það eru komin jól.

Ég segi því bara Gleðileg Jól, öll. Verið góð.

46 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Dagbók

Skata

desember 23, 2005

Ég fór í hádeginu á mitt fyrsta skötuhlaðborð. Pabbi var búinn að reyna að draga mig í hlaðborð í nokkur ár og ég ákvað loksins að skella mér með honum þetta árið. Hef alltaf haft lúmskan grun um að skötuát snúist meira um að sýna karlmennsku, heldur en að bragðið sé svo gott. Það er að það væri voðalega macho að segjast borða vel kæsta skötu. Ég vildi því sannreyna þá kenningu.

Ég fór á Tvo Fiska, þar sem hlaðborð var. Ég fékk mér milli-kæsta skötu og hellti einhverri fitu yfir. Settist svo og smakkaði smá bita.

Í raun er þetta ólýsanlega vondur matur. Ég hef borðað ýmsan óþverra í gegnum árin á ferðalögum mínum um heiminn og hef gengið svo langt að borða maura og tarantúlur. En það kemst hreinlega ekkert nálægt skötunni í vondu bragði. Ég kúgaðist við það eitt að setja matinn uppí mig, því skatan hefur ekki bara bein áhrif á bragðlaukana, heldur er einsog bragðið sprautist um allan munninn og maður fyllist af einhverju skrýtnu og viðbjóðslegu lofti í munninum.

Ímyndið ykkur versta fisk, sem þið hafið smakkað. Ímyndið ykkur svo að einhver helli terpentínu yfir fiskinn og kveiki í honum. Sá hinn sami mígur svo ofaná fiskinn til að slökkva eldinn. Og til að toppa það, þá er hellt myglaðri mjólk yfir. Þá held ég að við getum farið að nálgast bragðið á skötunni.

Mér finnst frábært að einhverjir einstaklingar hafi hugrekkið til þess að borða þennan mat. En ég hef hins vegar komist að því að þetta er ekki fyrir mig.

258 Orð | Ummæli (10) | Flokkur: Dagbók

Flottur jakki

desember 23, 2005

Af hverju eru ekki svona jakkar seldir á Íslandi?

9 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Almennt

Myndir frá Gvatemala

desember 23, 2005

Ég setti inn í gærkvöldi myndir úr Gvatemala ferðinni. Satt best að segja fannst mér pínku skrýtið að setja þessar myndir inn, þar sem fullt af þeim er með Önju, sem er fyrrverandi kærasta mín. En ég ákvað að setja inn þessar myndir, svo ég geti svalað forvitni vina minna, sem vildu sjá framan í hana.

Ég hef aldrei sett inn mikið af myndum af öðrum en sjálfum mér á þessa síðu og þykir það eiginlega betra þannig. Þetta er vinsæl síða og því finnst mér það ekki við hæfi að birta mikið af myndum af öðru fólki án þess að láta það vita.

En allavegana, myndirnar frá Gvatemala eru frá Livingston, Rio Dulce og Tikal. Hægt er að skoða allar myndirnar mínar hér og ferðasögurnar frá Gvatemala eru hér:

Mið-Ameríkuferð 6: Garifuna
Mið-Ameríkuferð 7: Ég og Brad Pitt
Mið-Ameríkuferð 8: Tikal

142 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Myndablogg

Snjókoma í Japan

desember 22, 2005

Pilsa-aðdáandinn ég hef komist að því að ég fíla japanskt kvenfólk

11 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Almennt

Við lok uppboðsins

desember 20, 2005

Jæja, uppboðinu er lokið. Fyrir það fyrsta, ef þú bauðst í eitthvað en hefur ekki enn fengið póst frá mér, sendu mér þá línu og þá geturðu nálgast hlutinn. Í kvöld hef ég verið að afhenda slatta af dóti úr uppboðinu, en á eftir að senda útá land og enn er fullt af dóti, sem hefur ekki enn verið sótt.

En þetta er búin að vera miklu meiri vinna en ég gerði mér grein fyrir í upphafi, þannig að ég hef ekki enn getað svarað öllum póstum, sem ég hef fengið um þetta allt saman.


Ég vil fyrst og fremst þakka fyrir mig. Þetta er búið að vera mjög gefandi og ég gerði mér enga grein fyrir því hversu mikla og góða athygli þetta myndi vekja. Ég hef hitt fulltaf fólki og fengið ótrúlega indælar tölvupósts-sendingar.

Umfjöllunin um þetta hefur líka verið ansi viðamikil. Auðvitað hefur þetta vakið athygli í bloggheimum, en líka í hefðbundnum fjölmiðlum. Ég komst í DV og lenti þar á forsíðu, auk þess sem að það var nær heilsíðugrein um uppboðið. Svo var viðtal við mömmu daginn eftir. :-)

Sama dag og greinin birtist í DV, þá kom viðtal við mig á NFS. Fyrir þá, sem hafa áhuga þá er hægt að horfa á viðtalið hér. Þú þarft bara að spóla svona 48 mínútur inní myndbandið til að sjá viðtalið við mig, sem ég held að hafi heppnast nokkuð vel.

Síðan kom viðtal við mig í Mogganum síðasta laugardag.


Umfjöllunin í bloggheimum hefur náttúrululega verið mikil. Flestar heimsóknir komu af stóru linkasíðunum, Geimur og B2. Svo linkuðu nokkrar vinsælustu bloggsíður landsins á þetta, svo sem hjá Manúelu, Katrínu, Dr. Gunna og Stefáni Páls og fullt af fleirum. Það væri of langt mál að telja alla upp eða kommenta hjá öllum, en ég vil bara þakka öllum sem linkuðu á uppboðið. :-)

Það er líka greinilegt að þetta hefur snert marga og fjölmargir hafa fengið hugmyndir út frá þessu framtaki mínu. Og það er frábært að mínu mati. Þetta er svipað og með ferðalög. Það þarf bara að drífa sig af stað og gera eitthvað. Ekki bara að láta það naga sig að hafa ekki gert neitt. Það þarf engin sérstök frumlegheit, bara að finna sér gott málefni og styðja það reglulega.

En ég þarf að reyna að klára að koma út öllum varningnum og eflaust verða einhverjar tafir fram yfir jól, þar sem ég þarf víst líka að kaupa jólagjafir handa fjölskyldunni. En ég mun skrifa meira um þetta þegar ég hef séð lokaupphæðina, sem kemur inn (væntanlega nálægt 300.000 krónum) og þegar ég hef ákveðið hvernig peningnum verður varið.

En þangað til: Takk!

438 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Uppboð

Þáttur á RÚV

desember 20, 2005

Veit einhver hvar er hægt að nálgast danska þáttinn “Milljarðakaup Íslendinga”, sem var sýndur á RÚV í gær? Verður þetta endursýnt, eða er hægt að nálgast þetta á netinu einhvers staðar (n.b. ég tala ekki dönsku).

Ég ætlaði að horfa á þetta, en var svo fastur uppá veitingastað langt fram eftir kvöldi og missti af þættinum.

56 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Sjónvarp

Bestu lögin 2005

desember 19, 2005

Þá er komið að árlegum viðburði hér á síðunni - bestu lögin og bestu plöturnar á árinu að mínu mati.

Í þetta skiptið ætla ég að skipta þessu í tvennt. Fyrst lögin og síðan plöturnar. En allavegana, hérna koma 15 bestu lögin á árinu að mínu mati.

  1. b514.jpg Kelly Clarkson - Since You’ve been Gone - Já, hverjum hefði dottið þetta í hug. Kelly fokking Clarkson. American Idol og allur sá viðbjóður.

    En þetta lag er einfaldlega fáránlega grípandi og skemmtilegt. Ég gaf því ekki sjens fyrr en ég sá að nokkrir “virðulegir” pennar voru farnir að hrósa því. Og það er ekki að ástæðulausu að þetta lag er svona vinsælt hjá fólki, sem myndi aldrei detta í hug að horfa á Ædol. Ég gaf því sjens og eftir 2-3 hlustanir var það komið inní hausinn á mér og þar sat það fast í margar vikur.

    Einfaldlega besta lag ársins. Það kom þá allavegana eitthvað gott úr þessari Idol vitleysu allri.
  2. Sigur Rós - Hoppípolla - Samkvæmt iTunes þá er þetta það lag, sem ég hef oftast hlustað á á árinu. Enda er þetta besta lagið á frábærri plötu Sigurrósar.
  3. Bloc Party - Like Eating Glass
  4. The Cardigans - I need some fine wine and you, you need to be nicer to me - Frábært Cardigans rokk einsog það gerist best. Nina er algjörlega á toppnum í þessu lagi.
  5. Coldplay - Fix You - Persónulega þá olli X&Y mér talsverðum vonbrigðum því ég átti von á meiru frá Coldplay. En Fix You er samt sem áður frábært lag.
  6. The Game - Hate it or Love it - The Game er snillingur og platan hans er frábær. Ég hélt að ég myndi velja eitthvað Kanye West lag á topp 15, en þrátt fyrir að mér finnist Late Registration vera besta hip-hop plata ársins, þá er ekkert lag á henni jafngrípandi og Hate it or Love it með The Game.
  7. Queens of the Stone Age - Little Sister - Besta lagið á frábærri plötu frá QOTSA.
  8. Weezer - Perfect Situation - Langbesta lagið á lélegri Weezer plötu.
  9. Antony and the Johnsons - Hope there’s Someone - Ég er ekki alveg kominn í aðdáendaklúbb AATJ einsog allir indí skríbentar á landinu. Platan er *góð* en ekki það stórkostlega meistarastykki sem margir vilja meina. En þetta er besta lag plötunnar.
  10. Madonna - Hung Up - Án efa danslag ársins. Fáránlega grípandi hjá Madonnu.
  11. Snoop Dogg & Justin - Signs
  12. Eels - Railroad Man
  13. Nine Inch Nails - Only
  14. System of a Down - B.y.o.b.
  15. Ampop - My delusions - Aldrei hefði mér dottið í hug að einhver í minni fjölskyldu gæti búið til góða tónlist, en Birgir frændi afsannar þá kenningu mína. Frábært lag.

Nálægt því að komast á listann: Soul meets body - Death Cab, Gold Digger - Kanye West, Best of You - Foo Fighters, Faithful - Common, Landed - Ben Folds, Tribulations - LCD Soundsystem, Forever Lost - The Magic Numbers

Plöturnar koma svo seinna í þessari viku.

496 Orð | Ummæli (7) | Flokkur: Topp10 & Tónlist

Laugardagksvöld fyrir jól

desember 17, 2005

michigan-lights.jpg Hvað gerir ungur piparsveinn á laugardagskvöldi?

Jú, í mínu tilfelli þá hef ég eytt síðustu 5 klukkutímunum inní eldhúsi á Serrano, skerandi kjúkling og búandi til sósur. Það var hressandi

Einhvern veginn varð þetta síðasta laugardagksvöld fyrir jól ekki alveg einsog ég hafði gert mér vonir um. Það var svo sem blanda af nokkrum atburðum. Dagurinn í dag var sá stærsti í sögu Serrano. Við höfum aldrei selt jafnmikið og bættum fyrra met, sem sett var 22.desember í fyrra, um rúmlega 10%.

Um klukkan 6 fékk ég skilaboð um að stelpan í eldshúsinu hefði skorið sig illa og þá vissi ég að ég myndi ekki gera merkilega hluti í kvöld og dreif mig því uppá veitingastað og kláraði vaktina hennar. Ég veit ekki hvað það er, en ég hef alltaf lúmskt gaman af því að vera uppá stað þegar svona brjálað er að gera. Ég fyllist einhverri orku við það allt saman.


Annars hef ég fengið fullt af fólki í heimsókn í dag til að sækja dót, sem það hafði boðið í á uppboðinu. Held að ég hafi fengið um 15 manns í heimsókn, sem er nokkuð góður árangur.

Í dag birtist svo viðtal við mig í Mogganum. Þá eru búin að birtast við mig viðtöl bæði í DV og í Mogganum útaf þessu uppboði, auk viðtalsins sem ég fór í á NFS síðasta miðvikudag. Það er nokkuð magnað.


Ég þarf að fara að koma mér inní eitthvað jólastressskap til að ég klári hlutina. Núna þarf ég að senda hluta af gjöfunum mínum til útlanda, þar sem að báðar systur mínar dvelja erlendis og því get ég ekki haldið uppi gamla siðnum mínum að versla allt á Þorláksmessu. Nei, núna þarf ég að hugsa viku fram í tímann, sem ég er nánast ófær um að gera þegar kemur að jóla undirbúning.

Þarf að fara að koma mér í hátíðarskap. Samt veit ég að það gerist í raun aldrei nema fyrr en á Aðfangadag uppí kirkjugarði. Þá fyrst finnst mér jólin vera komin. Ég held að ég hafi ekki almennilega fundið fyrir sérstakri jólastemningu fyrir jól síðustu ár. Síðasta skipti, sem ég man eftir mér í jólaskapi löngu fyrir jól, var þegar ég bjó í Chicago og fór á Michigan Avenue í jólagjafaleiðangur.

Kannski er þetta vegna þess að það hefur einhvern veginn æxlast þannig að ég hef alltaf verið á lausu yfir jólin þessu þrjú ár, sem ég hef núna búið á Íslandi. Einhvern veginn tengi ég jólasteminguna því að labba einhvers staðar úti með stelpu í leit að jólagjöfum.

Því get ég varla komist í jólaskap einsog jólagjafaleiðangrar mínir eru í dag. Því þeir felast í að hlaupa einn á milli búða, nánast búinn að ákveða allar gjafir fyrirfram. Innkaupin eru einsog skylda, í stað þess að vera skemmtun.

Þó hef ég komist að einu undanfarin ár, sem ég man ekki alveg hvenær breyttist hjá mér. Í dag finnst mér nefnilega miklu skemmtilegra að sjá viðbrögð annarra við mínum gjöfum, heldur en að opna mínar eigin gjafir. Þess vegna finnst mér það dálítið fúlt að ég skuli þurfa að senda gjafir til útlanda í stað þess að sjá viðbrögð frændsistkyna minna á aðfangadagskvöld.

526 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Dagbók

Uppboð: Nokkrar bækur

desember 16, 2005

Og þá er komið að nokkrum bókum. Flest nokkuð gamlar bækur, sem taka upp pláss í íbúðinni minni. Þetta eru íslensk knattspyrna og svo Stephen King bækur í íslenskri þýðingu.

Hér getur þú lesið um uppboðið, skoðað hin uppboðin og hér getur þú lesið af hverju ég stend í því.

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

Lágmark: 400 krónur

Uppboðinu mun ljúka á miðnætti á mánudag.

Íslensk Knattspyrna - öll ár frá 1981-1993 - allt safnið í einum pakka
Stephen King - Úr álögum (Rose Madder)
Stephen King - Umsátur (Cujo)
Stephen King - Visnaðu (Thinner)
Stephen King - Eldvakinn (Firestarter)
Stephen King - Bókasafnslöggan (The Library Policeman)
Stephen King - Flóttamaðurinn (Running Man) - vantar kápu
Stephen King - Háskaleikur (Gerald’s Game)
Stephen King - Furðuflug (The Langoliers)
Stephen King - Örlög (Dolores Claiborne)
Stephen King - Duld (The Shining) - vantar kápu

180 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Uppboð

Uppboð: Geisladiskar - Flytjendur R-Z

desember 16, 2005

Hérna er þriðji hlutinn í geisladiskauppboðinu. Núna flytjendur, sem byrja á R-Z. Hérna er hægt að já diskana með flytjendum A-G og hérna með H-Q.

Athugið að diskarnir eru í mjööööög misjöfnu standi. Þeir hafa margir hverjir verið notaðir gríðarlega mikið - hulstrin eru mikið rispuð og diskarnir geta verið verulega rispaðir margir hverjir. Ég get ekki verið að fara yfir þá alla, þar sem það yrði alltof mikil vinna. Ef þú kaupir disk og ert ósátt/ur við gæðin hefurðu kost á að skila honum eða þá bara látið boðið standa, þar sem þetta fer allt til góðgerðarmála.

Hér getur þú lesið um uppboðið, skoðað hin uppboðin og hér getur þú lesið af hverju ég stend í því.

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

Mér finnst fínt lágmark um 400 kall fyrir geisladiskinn. Þetta fer nú einu sinni allt til góðgerðarmála. Ég er til í að skoða lægra lágmark ef að keyptir eru 5 eða fleiri diskar.

Uppboðinu mun ljúka á miðnætti á sunnudag.

Radiohead - Kid A
Radiohead - Bends
Radiohead - Pablo honey
Radiohead - Hail to the thies (pappi)
Rage Against the machine - Battle of los angeles
Rage Against the machine - Evil Emprire
Red Hot Chilli Peppers - One hot minute
Red Hot Chilli Peppers - Blood Sugar Sex Magik
REM - Up
Rem - Green
REM - New adventures in hi-fi
REM - Automatic for the people
Rickshaw - Angels / Devils
Ricky Martin - A medio vivir
Roger Waters - In the flesh
Roger Waters - Radio KAOS
Roger Waters - Radio KAOS
Roger Waters - Pros and cons of hitchhiking
Roger Waters - Amused to death
Rolling Sones - Jump Back
Rolling Sones - Voodoo Lounge
Rolling Stones - Steel Wheels
Rollins Band - Weight
Roy Orbinson - Mystery Girl
Sandy & Papo - MC
Shakira - Pies Descalsos
Sigur Rós - ()
Sigur Rós - Recycle Bin
Sigur Rós - Ágætis Byrjun (pappi)
Sigur Rós - Strætó
Silver Chaid - Freak Show
Silver Chair - frog Stomp
Ske - Life, death, happiness & stuff
Smashing Pumpkins - Adore
Smashing Pumpkins - Mellon Collie
Smashing Pumpkins - end is the beginning (smáskífa)
Smashing Pumpkins - Machina
Soda Stereo - Greatest Hits
Soda Stereo - Unplugged
Soda Stereo - Cancion Animal
Soundgarden - down on the upside
Soundgarden - Superunknown
Sponge - Rotting Pinata
Stone Temple Pilots - Purple
Stone Temple Pilots - Tiny music
Stone Temple Pilots - Core
Suede - Coming Up
Suede - Dog man star
Suede - Suede
Suede - Headmusic
Super Furry Anmials - Radiator
Supergrass - I should Coco
Sverrir Stormsker - Best af því besta
Syd Barrett - The Madcap Laughs
Sykurmolarnir - Illur arfur
Sykurmolarnir - Stick around for joy
Talking Heads - 77
Talking Heads - More songs about buildings and food
Talking Heads - Once in a lifetime
Talking Heads - Stop making sense
Texas - Say what you want (smáskífa)
The Chemical Brothers - Dig your own hole
The Smiths - Singles
The stone roses - The stone roses
The velvet underground - Velvet Underground
The velvet underground - Loaded
The Verve - Urban Hymns
Therapy - Semi-detached
Therapy? - Infernal Love
Tito Rojas - Por derecho propio
Todmobile - Spillt
Todmobile - Ópera
Travelling Wilburys - Volume 1
Travis - The man who
Trúbrot - Lifun
Tvíhöfði - Til hamingju
Tvíhöfði - Sleikir hamstur
Tvíhöfðu - Konungleg skemmtun
U2 - Best of 1980-1990 (2CD)
U2 - All that you can’t leave behind
U2 - Pop
U2 - Zooropa
Velve Underground - White Light / White Heat
Weezer - Græna platan
Weezer - Pinkerton
Weezer - Weezer
Wilco - AM
Willie Nelson - across the borderline
Willie Nelson - Essential
Wu-Tang - Wu-tang forever
Wu-Tang - Enter the 36 chambers
Wyclef Jean - The Ecleftic
XXX Rotweiler Hundar - XXX Rotweiler hundar (vantar bækling)
Yello - Stella
Yo la tengo - I can hear hearts beating as one
ýmsir - Footloose
ýmsir - Pulp Fiction
Ýmsir - Ghostbusters 2
ýmsir - Desperado
Ýmsir - Pretty Woman
Ýmsir - Bull Durham
Ýmsir - Batman 1
Ýmsir - Lost Highway
ýmsir - Roadhouse
Ýmsir - Help
Ýmsir - The commitments
Ýmsir - Wayne’s World
Ýmsir - Todos por chiapas
Ýmsir - Venezuelan Folklore
Ýmsir - Days of thunder
Ýmsir - Wild at heart
Zapato 3 - Separacion
Zapato 3 - Capsula para volar

765 Orð | Ummæli (24) | Flokkur: Uppboð

Piparsveina-uppgjör

desember 15, 2005

Ég horfði á lokaþáttinn á Bachelor í kvöld og svo sem lítið hægt að segja um þáttinn, enda lítið spennó sem gerðist. Hann valdi Jenný og þau eru voða ánægð. Gott mál.

Þátturinn á eftir þar sem tekin voru viðtöl við þáttakendur var öllu skárri.


Jenný var spurð útí forsíðu DV í gær en þar sést hún kyssa stelpu á djamminu (hún er þarna til hægri við mig og nágranna minn, Guðna Ágústs). Jenný sagði að þetta væri ósköp eðlilegt að kyssa stelpu á djamminu og henni þótti ekkert óeðlilegt að gera það á meðan hún væri í sambandi með strák.

Halló, halló, halló! - er ég orðinn svona gamall? Hvenær varð það normal að stelpur kysstust á djamminu? Varð þetta til þegar að menn fóru að taka reglulega myndir á skemmtistöðunum? Eru stelpur að gera þetta af því að þeim finnst þetta vera svona mikið æði, eða halda þær að þetta sé svona mikið “turn-on” fyrir okkur karlmenn?

Já já, ég veit að þetta hefur verið í tísku í einhver ár, en finnst öllum þetta eðlilegt? Hver er tilgangurinn? Varla eru það tilfinningar, víst Jenný finnst ekkert óeðlilegt við að gera þetta meðan hún er í sambandi.

Æji, ég vil ekki hljóma einsog einhver tepra og því verð ég sennilega að fagna því að allar stelpur séu að kyssast hægri og vinstri. Húrra! Áfram stelpur!


Uppáhaldslínan mín í þættinum hennar Sirrýjar.

Það eru hérna inni hommar og lesbíur - það er alveg klárt mál.

Jammmmm!

246 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Sjónvarp

Uppboð: Geisladiskar - Flytjendur H-Q

desember 15, 2005

Hérna er annar hlutinn í geisladiskauppboðinu. Núna flytjendur, sem byrja á H-Q. Hérna er hægt að já diskana með flytjendum A-G.

Ok, þá er komið að umfangsmesta hlustanum í þessu uppboðu. Nefnilega geisladiskunum mínum. Ansi stór hluti þeirra er hérna, alls um 350 tallsins - flokkaðir eftir nafni flytjanda. Athugið að diskarnir eru í mjööööög misjöfnu standi. Þeir hafa margir hverjir verið notaðir gríðarlega mikið - hulstrin eru mikið rispuð og diskarnir geta verið verulega rispaðir margir hverjir. Ég get ekki verið að fara yfir þá alla, þar sem það yrði alltof mikil vinna. Ef þú kaupir disk og ert ósátt/ur við gæðin hefurðu kost á að skila honum eða þá bara látið boðið standa, þar sem þetta fer allt til góðgerðarmála.

Hér getur þú lesið um uppboðið, skoðað hin uppboðin og hér getur þú lesið af hverju ég stend í því.

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

Mér finnst fínt lágmark um 400 kall fyrir geisladiskinn. Þetta fer nú einu sinni allt til góðgerðarmála. Ég er til í að skoða lægra lágmark ef að keyptir eru 5 eða fleiri diskar.

Uppboðinu mun ljúka á miðnætti á sunnudag.

Ham - Lengi Lifi
Ham - Saga Rokksins
hinn íslenski þursaflokkur - hinn íslenski þursaflokkur
Hole - Celebrity Skin
Holly Johnson - Blast
Hæsta hendin - Hæsta hendin
Illegales - Illegales
Jeff Buckley - Grace (stóra útgáfan)
Jerry Rivera - Magia
Jet Black Joe - you ain’t here
Johnny Cash - The essential
Johnny Cash - At folsom prison
Jon bon jovi - Blaze of glory
Kolrassa Krókríðandi - Köld eru kvennaráð
La concepcion de la luna - del dolor al placer
La Ley - Invisible
Lenny Kravitz - Mama Said
Lenny Kravitz - Let Love Rule
Lenny Kravitz - Are you gonna go my way
Leonard Cohen - Songs of
Live - Throwing Copper
Live - Throwing Copper
Live - Secret Samadhi
Live - Mental Jewelry
Los Fabulosos Cadillac - Vasos Vacios
Los Pericos - Big Yuyu
Los Pericos - Pampas reggae
Los Prisioneros - Grandes Exitos
Lou Reed - Berlin
Luis Miguel - Amarte es un placer
Magnetic Fields - 69 Love Songs
Mana - Suenos Liquidos
Mana - Cuando los angeles lloran
Manic Street Preachers - This is my truth…tell me yours.
Manic Street Preachers - Everything must go
Mano Negra - Casa Babylon
Marvin Gaye - What’s going on
Marylin Manson - Antichrist Superstar
Marylin Manson - Mechanical Animal
Massive Attack - Mezzanine
Maus - Ghostsongs
Maus - Lof mér að falla
Maus - Í þessi sekúndubrot sem ég flýt
Maus - musick
MC Hammer - Please Hammer, don’t hurt em
Meatloaf - Bat out of hell 2: Back into hell
Meatloaf - Bat out of hell
Metallica - ReLoad
Metallica - Load
Metallica - Master of puppets
Metallica - Svarta platan
Metallica - Garage Inc
Michael Jackson - History (2 CD)
Mike Oldfield - Tubular Bells (25th anniversary edition)
Milli Vanilli (ómægod!) - Girl you know it’s true
Mínus - Halldór Laxness
Modest Mouse - Building nothing out of something
Molotov - Acpocalypshit
Morrissey - World of
Morrissey - Bona Drag
Morrissey - Vauxhall and I
Morrissey - Kill Uncle
Morrissey - Southpaw grammar
Móri - Móri
Mugison - Mugimama, is this monkey music?
Muse - Absolution
Mötley Crue - Dr. Feelgood
Naranja Mecanica - Supertrip
Neil Young - Freedom
Neil Young - Mirror Ball
Neil Young - Neil Young
Neil Young - Landing on water
Neil Young - Unplugged
Neil Young - Harvest
Neil Young - Sleeps with angels
Nine Inch Nails - The Fragile
NWA Niggaz for life -
Ný Dönsk - Regnbogaland
Ný dönsk - ekki er á allt kosið
Ný dönsk - Hunang
Ný dönsk - Himnasending
Ný dönsk - Deluxe
Oasis - Standing on the shoulders
Oasis - The masterplan
Oasis - Heathen Chemistry
Oasis - The masterplan
Oasis - Definetely Maybe
Oasis - What’s the story
Oasis - Be Here Now
Olympia - Olympia (veit til þess að diskurinn er e-ð skemmdur)
Olympia - Universal
Papa Roach - Infest
Paul Weller - Stanley Road
Pavement - Slanted & enchanted
Pavement - Brighten the corners
Peal Jam - No Code
Pearl Jam - vitalogy
Pearl Jam - VS
Pearl Jam - Yield
Peyote Asesino - Terraja
Pink Floyd - More
Pink Floyd - Wish you were here
Pink Floyd - Wish you were here
Pink Floyd - Meddle
Pink Floyd - Dark side of the moon
Pink Floyd - The Wall
Pink Floyd - Pulse
Pink Floyd - A saucerful of secrets
Pink Floyd - Echoes
Pink Floyd - Piper at the gates of dawn
Pink Floyd - Division Bell
Pink Floyd - Ummagumma
Pink Floyd - Atom heart mother
Pink Floyd - Piper at the gates of dawn (Mono edition - pakki)
Pixies - Doolittle
PJ Harvey - To bring you my love
Placebo - Sleeping with ghosts
Poison - Flesh & Blood
Postal Service - Give Up
Presidents of the USA - Presidents of the USA
Primal Scream - Screamadelica
Prodigy - Fat of the land
Prodigy - Music for the jilted generation
Proyecto Uno - New era
Proyecto Uno - Proyecto Uno
Proyecto Uno - Todo exitos
Pulp - This is hardcore
Queen - Greatest Hits 2 (2CD)
Queen - Greatest Hits
Queen - The Workd
Queen - Innuendo
Queen - A kind of magic
Queen - The Miracle
Quireboys - A bit of what you fancy

934 Orð | Ummæli (43) | Flokkur: Uppboð

Uppboð: Geisladiskar A-G

desember 15, 2005

Ok, þá er komið að umfangsmesta hlustanum í þessu uppboðu. Nefnilega geisladiskunum mínum. Ansi stór hluti þeirra er hérna, alls um 350 tallsins - flokkaðir eftir nafni flytjanda. Athugið að diskarnir eru í mjööööög misjöfnu standi. Þeir hafa margir hverjir verið notaðir gríðarlega mikið - hulstrin eru mikið rispuð og diskarnir geta verið verulega rispaðir margir hverjir. Ég get ekki verið að fara yfir þá alla, þar sem það yrði alltof mikil vinna. Ef þú kaupir disk og ert ósátt/ur við gæðin hefurðu kost á að skila honum eða þá bara látið boðið standa, þar sem þetta fer allt til góðgerðarmála.

Hér getur þú lesið um uppboðið, skoðað hin uppboðin og hér getur þú lesið af hverju ég stend í því.

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

Mér finnst fínt lágmark um 400 kall fyrir geisladiskinn. Þetta fer nú einu sinni allt til góðgerðarmála. Ég er til í að skoða lægra lágmark ef að keyptir eru 5 eða fleiri diskar.

Uppboðinu mun ljúka á miðnætti á laugardag.

A tribe called quest - People’s Instinctive travels
AC/DC - Razor’s Edge
Aerosmith - Rock in a hard place
Aerosmith - Get a grip
Aerosmith - Big Ones
Aerosmith - Gems
Aerosmith - Rocks
Aerosmith - Get your wings
Aerosmith - Greatest Hits
Aerosmith - Pump
Aerosmith - Permanent Vacation
Aerosmith - Nine Lives
Aerosmith - Tracks from the attic (bootleg)
Alejandro Sanz - no es lo mismo
Alice Cooper - Trash
Alice Cooper - Hey Stoopid
Alice in Chains - Jar of Flies
Alice in Chains - 3-leg dog
Ampop - Nature is a virgin
Aqua Mosh - Plastilina mosh
Aterciopelados - Gozo poderoso
Bang! - Best of
Beach Boys - Pet Sounds
Beastie Bohys - Paul’s Boutique
Beastie Bohys - Licensed to Ill
Beastie Bohys - Check your head
Beastie Boys - Hello Nasty
Beastie Boys - Sounds of science (pakki)
Beatles - Hvíta albúmið
Beatles - Anthology 1
Beatles - Best of (blái)
Beatles - Best of (rauði)
Beatles - Sgt. Pepper
Beck - Odelay
Ben Fods Five - Unauthorized biography of reinhold messner
Ben Folds Five - Naked baby photos
Ben Folds Five - Ben Folds Five
Ben Folds Five - Whatever and ever amen
Ben Folds Five - Rockin the suburbs
Bent & 7berg - Góða ferð
Bernard hermann - Citizen Kane
Better than Ezra - Friction, Baby
Björk - Debut
Björk - Post (pappi)
Björk - Homogenic (pappi)
Björk - Vespertine
Black Grape - It’s great when you’re straight
Blur - Great Escape
Blur - Modern life is rubbish
Blur - Leisure
Blur - Blur
Blur - Parklife
Blur - 13
Botnleðja - Fólk er fífl
Botnleðja - Magnyl
Brian May - Back to the Light
Bruce Springsteen - Human Touch
Buena Vista Social Club - Buena Vista Social Club
Bæjarins BestTónlist til að slást við -
Cafe Tacuba - Reves
Cafe Tacuba - Re
Cafe Tacuba - Reves / Yo Soy
Coldplay - rush of blood to the head
Control Machete - Artillería pesada
Control Machete - Uno dos bandera
control machete - mucho barato
Cranberries - everbody else is doing it, so why can’t we
Cranberries - No need to argue
Cypress Hill - Unreleased & revamped
Daft Punk - Discovery
Damien Rice - B-sides
David Bowie - Black tie, white noise
David Bowie - Best of
David Byrne - Feelings
David Byrne - Uh-Oh
David Byrne - David Byrne
David Gilmour - About Face
Def Leppard - Hysteria
Desorden Publico - canto popular de la vida y muerte
Dizzee Rascal - Boy in da corner
Doors - Best of
Eagles - Very best of
Elastica - Elastica
Elvis Costello - My aim is true (2cd)
Elvis Costello - Blood & Chocolate
EMF - Schubert Dip
Ensími - BMX
Ensími - Ensími
Fatboy Slim - You’ve come a long way, baby
Flaming Lips - Satellite heart
Foo Fighters - Foo Fighters
Fool’s Garden - Dish of the day
Forgotten Lores - Týndi hlekkurinn
Frank Sinatra - In the wee small hours
Frank Sinatra - My Way, best of
Fugees - The Score
Fun Lovin’ Criminals - Come find yourself
Gilberto Santa Rosa - En vivo
Green Day - Nimrod
Green Day - Insomniac
Green Day - Dookie
Guns N Roses - Use your Illusion 1
Guns N Roses - Use your Illusion 2
Guns N Roses - Appetite for destruction (vantar bækling)
Gustavo Cerati - Bocanada

767 Orð | Ummæli (45) | Flokkur: Uppboð

Uppboð: Hljómplötur og CD Box set

desember 14, 2005

Þá er komið að gömlum plötum. Er með slatta af misgóðum plötum. :-)

Einnig bæti ég inn box set með geisladiskum í.

Hér getur þú lesið um uppboðið, skoðað hin uppboðin og hér getur þú lesið af hverju ég stend í því.

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

Eigum við ekki að segja að lágmarkið í plöturnar sé 300 og í box sets sé það 800

Uppboðinu mun ljúka á miðnætti á föstudag.

Hljómplötu - Vínyll

Bon Jovi - Slippery when wet
Dire Straits - Money for nothing
Dire Straits - Brothers in arms
Peter Gabriel - So
The Beatles - Rauða safnplatan
The Beatles - Bláa safnplatan
Paul Simon - Graceland
Talking Heads - True Stories
Jimi Hendrix / Little Richard - Together
Genesis - kubbaplatan
Ýmsir - Beverly Hills Cop 1
Ýmsir - Beverly Hills Cop 2
Frankie goes to Hollywood - Liverpool
AC/DC - Back in Black
Ýmsir - Rocky 4
Ýmsir - Top Gun
Ýmsir - Rambo 3
Ýmsir - Coctail
Ýmsir - Good Morning Vietnam
Maxi Priest - Maxi
Asia - Alpha
Asia - Asia
Bruce Springsteen - Born in the USA
Bruce Springsteen - Tunnel of Love
David Bowie - Never Let Me Down
David Bowie - Let’s Dance
David Bowie - Tonight
Rolling Stones - Black & Blue
Queen - A night at the opera
Queen - A day at the races
Queen - News of the world
Queen - A kind og magic
Queen - Live Magic
Johnny Hates Jazz - Turn back the clock (hvað í andskotanum var ég að hugsa?)
Huey Lewis & the news - Fore!
Europe - The Final Countdown
Ýmsir - La Bamba
Valgeir Guðjónsson - Góðir Íslendingar
Handboltalandsliðið - Allt að verða vitlaust
Bjartmar Guðlaugsson - Með vottorð í leikfimi
Ýmsir - Frostrósir
Michael Jackson - Off the Wall
Michael Jackson - P.Y.T (smáskífa)
Michael Jacskon - Leave me alone (smáskífa)
U2 - The Joshua Tree
U2 - The Unforgettable Fire
Deep Purple - Made in Japan
Rolling Stones - Rolling Gold
Michael Jackson - Bad
The Smiths - Strangeways here we come
Simple Minds - Live

Box sett (geisladiskar)

Pink Floyd - Is there anybody out there? The Wall Live (2 diskar)
Oasis - Singles (what’s the story) - (5 diskar)
The Smashing Pumpkins - The aeroplane flies high (5 diskar)
Bruce Springsteen & the E street band - Live 1975-1985 (3 diskar)
Led Zeppelin Remasters (3 diskar)
Jeff Buckley - Grace EPs (5 diskar)

447 Orð | Ummæli (35) | Flokkur: Uppboð

Uppboð: Smá samantekt

desember 14, 2005

Jæja, fyrsta uppboðinu er að ljúka á miðnætti í kvöld og nokkrum lýkur á miðnætti á morgun. Ég tók mig til og tók saman hæstu uppboð í hverjum flokki, þannig að ef einhverjir vilja bæta við boðin, þá geta þeir séð hæstu boð á einum stað.

Lýkur í kvöld
Tæki og nýjir hlutir - Sjá samantekt á hæstu boðum

Lýkur annað kvöld
DVD Diskar 1 - Sjá samantekt á hæstu boðum
DVD Diskar 2 - Sjá samantekt á hæstu boðum
XBOX leikir - Sjá samantekt á hæstu boðum
Gömul Tölvuspil - sjá samantekt á hæstu boðum. Nota bene, það hafa líka bæst við fleiri tölvuspil - sjá sama komment.
Ýmislegt gamalt dót - sjá samantekt á hæstu boðum.
Gamlar myndavélar - þar hefur bara komið boð í einn hlut.

Þriðji hluti DVD uppboðsins er svo á föstudag og svo í kvöld mun ég byrja að setja inn geisladiska.

148 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Uppboð

Uppboð: DVD Diskar - 3

desember 14, 2005

Ok, ég ákvað að bæta inn slatta af DVD diskum á uppboðið.

Hér getur þú lesið um uppboðið, skoðað hin uppboðin og hér getur þú lesið af hverju ég stend í því.

Sjá líka DVD uppboð 1 og uppboð 2.

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

Mér finnst sanngjarnt að lágmarkið sé 300 krónur á hefðbundnu diskunum, en 800 krónur á stærri pökkunum, svo sem á sjónvarpsþáttunum.

Uppboðinu mun ljúka á miðnætti á föstudag.

187 Orð | Ummæli (27) | Flokkur: Uppboð

Uppboð: Gamalt dót - Ýmislegt

desember 13, 2005

Ok, næsta mál á dagskrá í uppboðinu til styrktar börnum í Mið-Ameríku áfram.

Núna ætla ég að byrja að bjóða upp gamla hluti, sem sennilega hafa ekki mikið gildi fyrir flesta, en einhverjir safnarar gætu haft gaman af. Þetta er samansafn af hlutum, sem hafa safnast upp hérna í íbúðinni minni. Vonandi að einhverjir geti haft gagn af þeim.

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

Uppboðið mun ljúka á miðnætti á fimmtudag

Viskí Kristal glös

Lágmark: 1.000
Sjá mynd 1 - 2
Þetta eru reyndar alveg ný glös, sem hafa ekki verið notuð. Fékk þau að gjöf á einhverjum viðskiptafundi á Englandi. Þetta eru semsagt Kristal “Tot” viskíglös. Ég drekk ekki viskí og er ekki að fara að byrja á því og því fannst mér tilvalið að setja þetta á uppboðið.

Lenín Peli

Lágmark: 500
Sjá mynd 1
Ódýr peli, sem ég keypti í Rússlandi. Hann er úr einhverjum léttum málmi, sem ég veit ekki hver er.

Liverpool treyja frá 1992

Lágmark: 2000
Sjá mynd
Liverpool treyja frá árinu 1992 þegar að Liverpool léku enn í Adidas treyjum. Þetta er auðvitað notuð treyja, en hún lítur mjög vel út. Stærðin er 38-40.

Liverpool treyja

Lágmark: 2000
Sjá mynd
Liverpool treyja. Þetta er auðvitað notuð treyja, en hún lítur ágætlega út. Stærðin er 42-44.

Sjónauki

Lágmark: 500
Sjá mynd
Lítið notaður sjónauki, sem ég fékk að gjöf fyrir einhvejrum árum. Í nánast fullkomnu ástandi.

270 Orð | Ummæli (22) | Flokkur: Uppboð

Jólakort

desember 12, 2005

Ein stutt spurning: Finnst ykkur við hæfi að einstaklingur, sem er ógiftur og á engin börn, sendi myndir af sjálfum sér með jólakortum (hugsanlega frá ferðalögum til Ameríku, sem þessi einstaklingur gæti hafa farið í)? Gerir það kortin persónulegri, eða er það bara asnalegt? Hvort vilduð þið frekar fá? Má kannski bara senda barnamyndir með jólakortum?

Þessi einstaklingur er að fara að hefja jólakortaskrif í fyrsta skipti og honum leiðist ógurlega að fá jólakort, þar sem bara stendur á “takk fyrir árið - kveðja X&X”.

85 Orð | Ummæli (16) | Flokkur: Almennt

Unnur Birna stefnir æsku landsins í voða!

desember 12, 2005

Uppboðið heldur áfram, en ég hef samt sem áður þörf á því að tjá mig um önnur mál á meðan á því stendur. :-)

unnurbirna.jpg Gott og vel að menn skuli mótmæla því þegar að fegurðarsamkeppnir eru haldnar. Ég skil svo sem alveg sum viðhorf, sem þar koma fram. En er ekki hægt að láta Unni Birnu njóta titilsins Ungfrú Heimur í allavegana tvo daga áður en það fara að birtast viðtöl við fólk, sem hefur allt á móti fegurðarsamkeppnum? Væri það ekki smekklegt? Ekki var tekið viðtal við mig þegar að Örn Arnarson vann síðast titil í sundi og ég beðinn um að útskýra fyrir landanum hvað mér finndist sund vera leiðinleg og asnaleg íþrótt.

Á leiðinni heim úr vinnu hlustaði ég á viðtal á NFS. Þáttastjórnendum þar fannst það við hæfi í kjölfar sigurs Unnar Birnu í Miss World að fá til sín sérfræðing í átröskun til að tala um áhrif sigurs hennar í keppninni.

Þar snérist umræðan öll um hvaða stórkostlegu áhrif þessi sigur Unnar myndu hafa á litlar stelpur á Íslandi. Annar gestanna í þættinum sagði m.a. eftirfarandi:

mér hrýs hugur við að vita af litlum stelpum, sem vilja vera einsog Unnur Birna.

Og með því var hún væntanlega að segja að hún byggist við því að Unnur Birna og hennar velgengni yrði undanfari anorexíu-faraldar á Íslandi! Látum það vera hversu hræðilega ósmekklegt þetta komment er, því það er líka algjörlega fáránlegt. Viðmælandinn hélt svo áfram og gagnrýndi það að stelpurnar í þessum keppnum gætu farið í brjóstastækkun.

Hérna er mynd af Unni Birnu í bikiníi (og hér er önnur). Ég spyr, er eitthvað óeðlilegt við hana? Er það eitthvað óhollt að stelpur vilji líkjast henni? Hún er alveg fáránlega sæt, en mér sýnist hún vera ósköp eðlilega vaxin. Allavegana þekki ég fullt af stelpum, sem eru svipaðar að vaxtarlagi. Hún hefur væntanlega ekki farið í brjóstastækkun og hún er grönn, en alls ekki of grönn. Hvað í ósköpunum er svona hræðilegt við það að vilja líkjast henni? Ég hreinlega get ekki séð það.


Seinna í þættinum var það svo gagnrýnt að Háskólinn í Reykjavík óski Unni Birnu til hamingju og þótti það merki um að sú akademíska stofnun væri að leggjast lágt. Alveg slepptu þær að minnast á að Unnur er nemandi við skólann og því afskaplega eðlilegt að starfsfólk skólans óski henni til hamingju með árangurinn.


Ég skil ekki almennilega af hverju fólk má ekki hafa sér fallegar fyrirmyndir, sem það vill líkjast. Af hverju er það slæmt að stelpur vilji líkjast Unni Birnu í vexti? Á meðan þær eru augljóslega heilbrigðar fyrirmyndir (einsog mér sýnist Unnur vera), þá sé ég ekki vandamálið.

Það er fullt af strákum og mönnum í þessum heimi, sem ég vildi líkjast á ákveðnum sviðum. Sem eru betur vaxnir en ég, með flottara hár, eru fyndnari en ég, klárari og í flottari fötum. Er það eitthvað óheilbrigt við mig að ég vilji líkjast þeim að hluta? Ég vill ekki verða þeir, en ég sé ákveðna hluti í fari annarra, sem ég vil líkjast. Ég er með mikið sjálfstraust (of mikið segja víst sumir), en það er ekki þar með sagt að ég sjái ekki hluti, sem ég vilji bæta varðandi útlit mitt, hegðun og lífsmynstur á hverjum degi. Það er ekki óheilbrigt og það er ekki ógnun við eitt né neitt. Ég held að við höfum öll beint eða óbeint slíkar fyrirmyndir. Ég sé ekkert athugavert við það.

Og það þarf ekki að láta einsog að löngun allra stelpna til að verða grennri hljóti að leiða til átröskunnar. Getur ekki alveg eins verið að útlit Unnar Birnu hvetji ungar stelpur til að borða hollari mat og stunda líkamsrækt? Einhvern veginn finnst mér líklegt að Unnur hafi náð sínu útliti með þeim ráðum í stað þess að standa yfir klósettinu á hverju kvöldi. Af hverju þarf alltaf að vera að gefa annað í skyn?

Það er ekkert að því að íslenskar stelpur vilji vera grannar!!! Nákvæmlega ekkert!

656 Orð | Ummæli (40) | Flokkur: Almennt

Uppboð: Gamlar Myndavélar

desember 12, 2005

Ok, næsta mál á dagskrá í uppboðinu til styrktar börnum í Mið-Ameríku áfram.

Í þessum hluta ætla bjóða upp gamlar myndavélar. Misgamlar og misvelfarnar, sem að einhverjir gætu haft gagn af. Ég vil einnig minna að hæsta boð í digital vélina mína er 10.000

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

Uppboðinu mun ljúka á miðnætti á fimmtudag

Solida III

Lágmark: 3.000
Myndir: Solida III
Þessi myndavél er frá árinu 1954. Hún lítur mjög vel út í dag, en satt best að segja veit ég ekki hvort hún virkar, enda á ég ekki filmu í hana. Sjá nánari upplýsingar um vélina hér.

Kodak Instamatic 133-X

Lágmark: 500
Fyrsta myndavélin, sem ég átti. Notaði hana í eitt ár og hún kveikti hjá mér áhuga um myndavélar. Myndavélin er sennilega frá um 1970, enda var hún orðinn forngripur þegar ég fékk hana að gjöf. Sjá mynd hér.

Canon Canonet

Lágmark: 3.000
Myndir: Canonet 1 - Canonet 2 Þessi myndavél er frá árinu 1961. Hún er ekki alveg jafnvel farin og Solida myndavélin, en samt í ágætis standi. Er með tösku. Einsog með Solida veit ég ekki hvort hún virkar.

Sjá nánaru upplýsingar um Canonet hér

Canon Ixus L-1

Lágmark: 500
Mynd: Canon Ixus L-1
Nota bene, þetta er filmumyndavél og það sem meira er, þetta er APS filmumyndavél. Get ekki séð marga notkunamöguleika, nema einhver vilji gefa litlum krakka myndavél. Ég fékk eldgamla myndavél þegar ég var 5-6 ára og það kveikti myndavélaáhugann hjá mér. Lítil taska fylgir. Annað ekki.

284 Orð | Ummæli (8) | Flokkur: Uppboð

Uppboð: Gömul tölvuspil

desember 12, 2005

Jæja, þá heldur uppboðið til styrktar börnum í Mið-Ameríku áfram.

Núna ætla ég að byrja að bjóða upp gamla hluti, sem sennilega hafa ekki mikið gildi fyrir flesta, en einhverjir safnarar gætu haft gaman af. Í þessum hluta ætla bjóða upp gömul tölvuspil. Þetta eru allt Nintendo tölvuspil, sem ég spilaði þegar ég var lítill. Hef ekki prófað þau, en býst ekki við öðru en að þau virki. Tækin eru skiljanlega rispuð (sjá myndir)

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

Uppboðið mun ljúka á miðnætti á fimmtudag.

Donkey Kong II - Myndir 1 - 2
GoldCliff- Myndir 1 - 2
Mario Bros - Myndir 1 - 2
Octopus- Myndir 1
Squish - Myndir 1
Donkey Kong Hockey - Myndir 1

156 Orð | Ummæli (20) | Flokkur: Uppboð

Árangurinn hingað til af uppboðinu

desember 11, 2005

Jæja, núna er ég búinn að vera með uppboðið í gangi í tæpa tvo daga og viðbrögðin hafa verið frábær. Í raun mun betri en ég hafði þorað að vona. Ef að ég skoða stöðuna einsog hún er akkúrat núna og legg saman hæstu boð í alla hlutina, þá hafa safnast næstum því 80.000 krónur! Það finnst mér magnað og ég get ekki annað en verið innilega þakklátur þeim, sem hafa tekið þátt og skrifað um þetta á sínum síðum. Takk takk! :-)

En allavegana, þetta mun halda áfram næstu daga. Fyrir þá, sem eru að koma á síðuna í fyrsta sinn síðan að uppboðið hófst, þá eru hérna skýringar á því, sem ég er að standa í.

Á næstu dögum ætla ég að setja inn restina af flokkunum. Var rétt áðan að setja inn Xbox leikina. Þeir eru nokkuð sérhæfður flokkur, þar sem að ég efast um að margir lesendur eigi Xbox. En eflaust vantar einhverjum jólagjafir, eða vita um einhverja, sem að myndu vilja nálgast ódýra Xbox leiki.


**Nota bene, ef þú ert að koma hingað innaf B2.is - þá vil ég benda á sjálfa uppboðssíðuna þar sem þú getur lesið um tilgang uppboðsins og séð alla flokkana, sem hægt er að bjóða í.

206 Orð | Ummæli (5) | Flokkur: Uppboð

Uppboð: XBox leikir

desember 11, 2005

Og þá er það þriðji hluti þessa uppboðs til styrktar börnum í Mið-Ameríku. Núna eru það XBox leikir

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

Mér finnst sanngjarnt að lágmarkið sé 500 krónur. Leikirnir eru í nánast fullkomnu ástandi.

Uppboðinu mun ljúka á miðnætti á miðvikudag fimmtudag.

190 Orð | Ummæli (15) | Flokkur: Uppboð

Uppboð: DVD Diskar 2/2

desember 11, 2005

Hérna er seinni hluti DVD uppboðsins. Hér getur þú lesið um uppboðið, skoðað hin uppboðin og hér getur þú lesið af hverju ég stend í því.

Fyrri hluti DVD uppboðsins er hér

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

Mér finnst sanngjarnt að lágmarkið sé 300 krónur á hefðbundnu diskunum, en 800 krónur á stærri pökkunum, svo sem á sjónvarpsþáttunum.

Uppboðinu mun ljúka á miðnætti á fimmtudag.

169 Orð | Ummæli (41) | Flokkur: Uppboð

Uppboð: DVD Diskar 1/2

desember 11, 2005

Og þá er það annar hluti þessa uppboðs til styrktar börnum í Mið-Ameríku. Í þessum hluta ætla bjóða upp DVD diska úr safninu mínu. Nánast undantekningalaust eru diskarnir í fullkomnu ástandi, bæði pakkningin, sem og diskurinn sjálfur. Nota bene, ég ætla að skipta þessu DVD uppboði í tvennt og er seinni hlutinn hér

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

Mér finnst sanngjarnt að lágmarkið sé 300 krónur á hefðbundnu diskunum, en 800 krónur á stærri pökkunum, svo sem á sjónvarpsþáttunum.

Uppboðinu mun ljúka á miðnætti á fimmtudag.

199 Orð | Ummæli (29) | Flokkur: Uppboð

Hvað get ég gert?

desember 10, 2005

stelpur-midam.jpgÉg er 28 ára gamall. Ég hef ferðast víða og upplifað margt. Ég vinn mjög mikið og hef komið mér ágætlega fyrir. Ég á engin börn og þarf ekki að sjá um neinn nema sjálfan mig.

Að undanförnu hef ég hugsað æ meira um það hvað ég get gert til að bæta mig og mitt umhverfi. Í raun er það fáránlegt að eyða þúsundum krónum í alls konar vitleysu, en láta svo ekkert af hendi rakna til betri málefna. Í gegnum árin hef ég kynnst flestum löndum Ameríku og séð fátæktina, sem þar er. Á þeim ferðalögum hafa stjórnmálaskoðanir mínar ávallt sveigst til vinstri og mig hefur langað til að gera eitthvað í málunum. En einhvern veginn hef ég aldrei látið neitt verða úr því. Ég veit að ég breyti ekki miklu sjálfur, en þótt að það hljómi klisjulega, þá getur tiltölulega lítið fjárframlag frá mér orðið til þess breyta lífi fólks í fjarlægum löndum.

Það er í raun súrealískt að hugsa til þess að peningar, sem mig munar ekki um, geti actually breytt lífi fólks á öðrum stöðum. Og það er fáránlegt að hugsa til þess að ég hafi ekkert gert í þessum málum. En núna skal því breytt.


Ég hef skrifað á þessa síðu í 5 ár og á Liverpool bloggið í 18 mánuði. Í dag er það svo að um 1500 manns skoða þessar tvær síður í hverri viku. Það er nokkuð stór hópur. Ég ætla nú að reyna að nýta mér það í hag einhvers annars en eigin egós. Mér finnst það líka talsvert athyglisvert að sjá hvort að hægt sé að nýta bloggsíður til góðgerðarmála.

Heima hjá mér er haugur af dóti, sem ég nota aldrei og líka haugur af dóti, sem ég nota en aðrir hefðu sennilega meiri not fyrir. Það, sem ég ætla að gera er að bjóða ykkur lesendum að bjóða í þessa hluti. ALLUR peningurinn, sem ég fæ fyrir þessa hluti mun fara til góðgerðarmála í Mið-Ameríku.

Þetta er fullt af gagnlegum hlutum og ég bið ykkur endilega að bjóða rausnarlega í hlutina. Ég ætla að setja lægsta boð á suma hlutina, en annars mun ég láta alla hlutina fara á hæsta boði. Þið getið ábyggilega gert þarna mjög góð kaup og þið getið verið viss um að 100% upphæðarinnar renna til góðgerðarmála. Ég er búinn að ákveða að peningarnir fari til að hjálpa krökkum í Mið-Ameríku, en mun ekki velja samtökin fyrr en ég veit hversu há upphæðin verður. Auk þess sem ég safna með þessu uppboði ætla ég að leggja 15% af laununum mínum fyrir desember mánuð í þennan málstað. Ef þið viljið leggja pening í þetta mál án þess að bjóða í hluti getiði sent mér póst. Ég legg auðvitað heiður minn að veði um að allir peningarnir munu skila sér til góðra samtaka.

Ég ætla að skipta hlutunum í þrennt. Í fyrsta hlutanum ætla ég að bjóða upp tæki eða nýja hluti. Ég ætla t.d. að selja nýlega Playstation 2 tölvu og svo framvegis. Í næsta hlutanum ætla ég að selja haug af Xbox tölvuleikjum, DVD diskum og CD diskum. Þar mun ég selja hlutina mjög ódýrt. Í þriðja hlutanum ætla ég svo að selja gamla hluti, sem einhverjum söfnurum finnast kannski sniðugir. Allt frá gömlum tölvuspilum til gamalla Liverpool treyja og Star Wars leikfanga.

Þetta byrjar allt á morgun, þá set ég inn tækin og nýju hlutina.

Ég ætla að biðja ykkur, sem eruð með blogg um að skrifa um þetta á ykkar síðum. Ég er ekki að þessu til að vekja meiri athygli á síðunni, heldur vill einungis ná inn eins mörgum lesendum og því hærri boðum í hlutina. Ég vona að þetta hljóti góðar undirtektir.

En allavegana, uppboðið hefst núna. Ég er búinn að búa til síðu undir þetta uppboð og er hana að finna hér.

Fyrsti hluti uppboðsins, tæki og nýtt dót, er kominn upp hér. Ég býst fastlega við að þetta fari mjög hægt af stað, en heimsóknir á þessa síðu eru vanalega fáar um helgar. DVD diskarnir fara upp á mánudag, Xbox leikirnir á þriðjudag og svo framvegis. Hver hluti uppboðsins mun vera uppi í fjóra daga.

686 Orð | Ummæli (25) | Flokkur: Uppboð

Uppboð: Tæki og nýjir hlutir

desember 10, 2005

(Sjá nánar um uppboðið mitt hér)

Jæja, þá er komið að fyrsta lið uppboðsins míns til styrktar fátækum í Mið-Ameríku. Í þessum hluta ætla ég að bjóða tæki og nýja hluti. Þarna eru m.a. Playstation 2 tölva, Real Madrid treyja, rauðvín, þurrkari og fleira.

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin hér að neðan. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Mundu að setja þitt rétta nafn og töluvpóstfang með. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

Uppboðinu mun ljúka á miðnætti á miðvikudaginn, 14.desember 2005.

Stærri liðir:

Playstation 2 tölva
Lægsta boð: 5.000
Þetta er Playstation 2 tölva, nýrri gerðin (þynnri). Tölvan var keypt í desember í fyrra. Með henni fylgir minniskort og einn stýripinni. Ný kostar vélin í BT 12.500. Minniskortið er nauðsynlegt og kostar 3.500 krónur. Þannig að heildarverðmætið er 16.000 krónur. Með vélinni fylgja þrír frábærir leikir: Jak II, Grand Theft Auto: San Andreas og God of War. Athugið að af þessum leikjum er aðeins Jak II hæfur börnum. Hinir eru báðir bannaðir innan 18 ára. Nota bene, ég læt fylgja með tvo stýrpinna en er bara viss um að annar virki 100%.

Ég er tilbúinn að selja tölvuna sér eða með leikjunum þremur. Vélin er í nánast fullkomnu standi.

Canon Powershot G2
Lægsta boð: 5.000
Þessi myndavél er þriggja ára gömul, en stendur þó enn fyrir sínu. Hún er 4 megapixla og býður uppá fleiri stillingar en flestar imbavélar. Sem dæmi um myndir, sem ég hef tekið með vélinni má nefna þessar myndir. Vélin hefur reynst mér gríðarlega vel. Hún inniheldur hleðslutæki og snúru til að tengja í tölvu. Skiljanlega er hún rispuð eftir mikla notkun, en það hefur þó engin áhrif á frammistöðu vélarinnar.

Mouton Cadet Réserve 1995
Lægsta boð: 3.000
Rauðvín, (sjá mynd) sem hefur legið hérna inni síðustu 5 árin að ég held. Þetta er 1,5 lítra flaska af sérstakri hátíðarútgáfu af Mouton Cadet víninu frá Baron Philippe de Rotschild. Hátíðarútgáfan var seld árið 2000. Ég fékk þetta sem fyrirtækisgjöf.

Real Madrid treyja
Lægsta boð: -50kr.
Þetta er ekta Real Madrid treyja, sem ég fékk gefins. Ég hata hins vegar Real Madrid og get því varla látið sjá mig í henni. Hún er algjörlega ónotuð og er enn með miðunum á. Á bakinu er númer 5 og nafn Zidane. Stærð er Medium. Ég held að svona treyjur kosti ekki undir 5000 krónum útí búð.

Siemens þurrkari
Lægsta boð: 5.000kr.
Þessi þurrkari hefur legið niðrí geymslu síðan ég flutti inní íbúðina mína vegna þess að ég hef einfaldlega ekki pláss fyrir þurrkara inní íbúðinni minni. Þurrkarinn er sennilega um 10 ára gamall, en ég veit ekki til annars en að hann virki fullkomlega.

Apple 17 tommu CRT skjár
Lægsta boð: 1.000 kr.
Þetta er um 5 ára gamall Apple skjár. Það þarf eflaust að dusta af honum, en hann virkaði 100% síðast þegar ég notaði hann.

494 Orð | Ummæli (32) | Flokkur: Uppboð

My hump, my lovely lady lumps

desember 9, 2005

Ég komst fyrir einhverjum dögum á þá skoðun að My Humps með Black Eyed Peas væri hryllilegasta lag allra tíma. Samblanda af því að laglínan hljómar einsog hringitónn, fáránlegasta texta í heimi og almennum leiðindum í laginu, gerði það að verkum að ég komst á þessa skoðun.

Sem er athyglisvert í ljósi þessarar færslu á MeFi þar sem fólk skrifar um það hversu hræðilegt þetta lag er. Þannig að fólk virðist almennt séð sammála mér.

Það besta við þetta allt er þó að skoða heimatilbúin vídeó við lagið. Þetta myndband er til dæmis hrein snilld.

Einsog ég sagði, þá er textinn ódauðlegur:

What u gon’ do with all that ass?
All that ass inside them jeans?
I’m a make, make, make, make you scream

og svo þetta:

They say I’m really sexy,
The boys they wanna sex me.
They always standing next to me,
Always dancing next to me,
Tryin’ a feel my hump, hump.
Lookin’ at my lump, lump.
U can look but you can’t touch it,
If u touch it I’ma start some drama,

Á hvaða lyfjum er þetta fólk eiginlega?

(Skrifað í gærkvöldi)

186 Orð | Ummæli (11) | Flokkur: Tónlist

Nýtt á Serrano - Jibbí

desember 8, 2005

Jæja, mánuði á eftir áætlun, þá erum við búin að uppfæra matseðilinn á Serrano. Staðurinn átti nýlega þriggja ára afmæli og ætluðum við að kynna nokkra nýja rétti í tilefni þess. Sú kynning tafðist þó aðeins, en í dag erum við byrjuð að selja fjóra nýja burrito-a.

Þessi burrito-ar eru ólíkir því, sem við seljum í dag, að því leiti að innihaldið er fyrirfram ákveðið. Það er, að í stað þess að kúnninn velji hráefnið í burrito-inn sinn, þá er hráefnið í þessa nýju burrito-a fyrirfram ákveðið. Það er þó auðvitað hægt að biðja um að breyta frá uppskriftinni.

En allavegana, nýju burritoarnir eru þessir:


BBQ Burrito
Kjúklingur, Hrísgrjón, Svartar Baunir, Pico de Gallo Salsa, Maís, BBQ Sósa, Muldar Nachos flögur og Sýrður Rjómi

Fajitas Burrito
Kjúklingur, Hrísgrjón, Pico de Gallo Salsa, Steikt Grænmeti, Maís, Ostur og Sýrður Rjómi.

Grískur Burrito
Hrísgrjón, Kjúklingur, Pico de Gallo Salsa, Steikt Grænmeti, Kál, Maís, Feta Ostur, Tzatziki Jógúrt Sósa

Thai Burrito
Hrísgrjón, Kjúklingur, Pico de Gallo Salsa, Steikt Grænmeti, Maís, Salthnetur, Satay Sósa.


Við höfum verið að prófa þetta að undanförnu á vinum og vandamönnum og höfum fengið gríðarlega góðar viðtökur.

En allavegana, endilega kíkið uppá Serrano í Kringlunni þegar þið klárið jólainnkaupin og prófið nýju réttina. Fyrir ykkur, sem hafið ekki enn prófað, þá hvet ég ykkur auðvitað til að drífa ykkur. Serrano býður uppá ljúffengan og mjög hollan skyndibita. :-)

229 Orð | Ummæli (8) | Flokkur: Vinna

Geturðu sent mér email um þetta?

desember 8, 2005

Ég hef komist að merkilegri niðurstöðu varðandi íslenskt viðskiptalíf:

Íslendingar geta ekki tekið á móti upplýsingum í síma!

Það er orðið gjörsamlega gagnslaust að hringja í fólk. Nær undantekningalaust þyl ég einhverja romsu í símann og eina svarið, sem ég fæ er: “Heyrðu, geturðu nokkuð sent mér þetta á email?” Þetta er orðið að algjörlega krónísku vandamáli hjá fólki. Ég held að almennt séð geti fólkið ekki haldið athyglinni út eitt stutt símtal.

Ég er orðinn fáránlega þreyttur á að biðja um einfalda hluti í síma, en fá alltaf “sendu mér póst um þetta” svarið tilbaka. Einnig virðist enginn geta lengur tekið ákvarðanir á fundum. Öllum fundum þarf að ljúka með: “heyrðu, ég sendi þér svo póst með punktunum og við tökum ákvarðanir út frá því”.

Ég fékk endanlega nóg í dag þegar ég hringdi og bað um verð á einni vöru, en var beðinn um tölvupóst og æsti mig í símann, sem gerist nú ekki oft. En þessu verður að linna.

162 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Almennt

Íslenskar stelpur

desember 6, 2005

Forsíðan á DV í dag er einfaldlega stórkostleg:

Fyrirsögn 1: Íslenskar stelpur elska kókaín og útlenska karla
Fyrirsögn 2: Íslenskar fermingarstelpur: Blogga um kynlíf og sýna á sér brjóstin.
Fyrirsögn 3: Gunnfríður í Bachelor: Í sambúð með barnaperra á Sauðárkróki.

051206.jpg

Ég spyr bara: Hvað er að íslensku kvenfólki? :-)

49 Orð | Ummæli (8) | Flokkur: Almennt

Stærfræði?

desember 5, 2005

Aðalefnið í Íslandi í Dag og fyrsta frétt á mbl.is í dag: Stelpur útá landi eru betri en strákar í stærðfræði!

HVERJUM ER EKKI FOKKING SAMA?

Er einhver að missa svefn útaf þessu? Í alvöru talað? Þurfum við að setja sérstaka nefnd á stofn? Kannski að bæta styrki til landsbyggðarinnar af því að strákar útá landi eru að spila Half-Life í stað þess að læra stærðfræði?

Er ekkert merkilegra að gerast í þessum heimi?


Ég er að hlusta á:

Dreaming - System of a Down
Perfect Situation - Weezer
Juicebox - Strokes

Þessi lög eru snilld!

96 Orð | Ummæli (7) | Flokkur: Almennt

Hólí fokking plebbismi

desember 4, 2005

Í Mogganum í gær er einsog vanalega á laugardögum kafli um ferðalög. Þar er m.a. viðtal við Gísla, miðaldra Íslending, sem fór til Istanbúl með íslenskum fararstjóra í pakkaferð í haust. Hver nákvæmlega tilgangur þess að ræða við þennan ferðalang er, átta ég mig ekki almennilega á.

Gísli var ekki ánægður með ferðina til Tyrklands og er frekar fúll yfir því að það skuli vera til öðruvísi fólk utan Íslands. Hann segir m.a.

Á hverju horni biðu menn eftir að snuða mann. Það setur óneitanlega blett á svona ferð sem auðvitað er lagt upp með að sé skemmtiferð.

Hólí krapp! Hann er semsagt fúll yfir því að götusalar í Istanbúl sýni honum ekki þá tillitsemi að haga sér einsog Íslendingar, á meðan að þessi íslenski hópur hafi verið í skemmtiferð. Þvílíkt tillitsleysi!

Hann heldur áfram:

Borgin er skítug og leiðinleg. Maturinn ekkert sérstakur.

Hvernig fær Gísli þetta út nákvæmlega? Hvað átti borgin að gera til að vera skemmtilegri? Prófaði Gísli að tala við innfædda, reyna að kynnast menningunni? Eða var hann bara í pakkaferð og ráfaði um borgina í fylgd fararstjóra?

Er AyaSofia, ein merkasta kirkja í heimi, leiðinleg? Hvað með Bláu Moskuna? Eða Topkapi höllin? Er þetta ekki nógu skemmtilegt? Hvað með allt mannlífið? Skemtanalífið? Öll menningin? Bosphorous? Hvað þarf til að gera borgina skemmtilega? Golfvöll eða strönd kannski?


Gísli heldur áfram:

Veðrið var leiðinlegt, rigning og slydda allan tímann

Ef nafnið gaf það ekki nógu vel til kynna, þá er Gísli Íslendingur. Er það ekki býsna hæpið fyrir okkur Íslendinga að gagnrýna veður í öðrum löndum?

Og áfram:

Það er einsog mönnum sé það bara heilagt þarna að ræna villutrúarmenn eins og þeim finnst við vera.

!!!

Bíddu nú aðeins hægur! Hvað hefur þetta með trúarbrögð að gera? Heldur Gísli virkilega að múslimar reyni að ræna fólk sérstaklega af því að það er kristið? Er ekki líklegra að fátækir Istanbúl-búar reyni að nýta sér fáfræði erlendra túrista, sem sýna landi þeirra og menningu afskaplega lítinn skilning?

Hvernig veit hann að Tyrkirnir í Istanbúl líti á hann sem villutrúarmann? Lenti hann einhvern tímann í samræðum við Tyrki um trúarbrögð, eða tekur hann þetta bara beint uppúr sjónvarpinu? Reyndi hann einhvern tímann að nálgast Tyrkja til að fræðast um viðhorf þeirra?


Gísli tekur tvö dæmi af því af hverju Istanbúl er svona hræðileg. Í fyrsta lagi er hann rukkaður of mikinn pening fyrir kebab á götuhorni! Í öðru lagi var farið í hliðartösku konu hans og tekið seðlaveski. That’s it! Ég endurtek, það var seðlaveski tekið úr hliðartösku! Þau hefðu alveg eins getað borið skilti, sem á stóð “rænið okkur, við erum túristar”.


Svo endar Gísli þetta á þessu:

Ég segi ekki að þetta hafi verið hrein hörmung, en þetta var ekki gaman.

Semsagt, vitlaust verð á kebab og seðlaveski úr hliðartösku eyðilagði skemmtiferð þeirra hjóna. Og fyrir það ákveða þau að hafa samband við Moggann og gefa það í skyn að Tyrkir séu þjófóttir, sem geri í því að herja á “villutrúarmenn”.

Af hverju í ósköpunum er ferðahluti Moggans að birta svona vitleysu? Veit fólk ekki að það eru þjófar í stórborgum í útlöndum? Þarf einhver að segja svona? Af hverju er í frásögn um Istanbúl ekki minnst einu orði á allt hið góða við borgina, en öllu púðri eytt að segja frá óheiðarlegum kebab sala?

Af hverju er ekki frekar talað við fólk, sem hefur farið til Istanbúl einsog alvöru ferðalangar og reynt að kynnast landinu og menningunni? Fólk, sem er víðsýnt og gerir sér grein fyrir að það sé skítur og fátækt í löndum utan Íslands?

Fyrir utan það að það er náttúrulega ekki hægt að gagnrýna borgina, þar sem merkasti íþróttaviðburður þessarar aldar fór fram :-)

610 Orð | Ummæli (11) | Flokkur: Ferðalög

Myndir frá Hondúras

desember 3, 2005

Jæja, er búinn að bæta við myndum frá Hondúras úr Mið-Ameríkuferðinni. Núna er ég því búinn að setja inn myndir frá Hondúras, El-Salvador og Mexíkó.

Myndirnar frá Hondúras og þá aðallega Roatan má finna hér.

Þetta eru aðeins örfáar myndir, þar sem ég var annaðhvort að kafa eða djamma mestallann tímann á eyjunni og tók því fáar myndir. Einbeitti mér þess í stað að njóta lífsins, enda var tíminn á Roatan algjörlega frábær.

73 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Myndablogg

Punktar á föstudagskvöldi

desember 2, 2005

Þar sem ég þarf að vinna klukkan 8 á morgun, þá sit ég einn heima á föstudagskvöldi og geri ekki neitt.

Horfði á Bachelorinn og fokking sjitt hvað þetta var leiðinlegur þáttur. Þáttastjórnendur slógu í gegn með öðru product placement-i, síðast var það Nizza en núna drykkir frá Ölgerðinni - bæði Pepsi og Rosemount. Pródúserarnir þurfa aðeins að slaka á þessu og gera þetta aðeins minna áberandi. Því miður tókst þeim ekki að skrifa Pepsi inní söguþráðinn einsog þeir gerðu svo snilldarlega með Nizza síðast.


Síðasta föstudag var ég alltof drukkinn á Vegamótum. Þegar ég vaknaði daginn eftir mundi ég þrjá hluti: 1. Ég var á Vegamótum að tala við sæta stelpu. 2. Ég var í jakkafötum. 3. Ég var að tala um vinnuna mína! Ég fékk hroll þegar ég hugsaði um þetta, enda fátt plebbalegra en að vera á jakkafötum á skemmtistað, talandi um vinnuna sína. Eina leiðin til að toppa þetta hefði verið sú að ég hefði unnið í banka og hefði verið með nafnspjaldið mitt með mér. Stelpan sagði mér daginn eftir að henni hefði fundist þetta í lagi og að sennilega hafi það ekki verið ég, sem fann uppá umræðuefninu. Það var þó allavegana ágætt. En þetta geri ég aldrei aftur.


Ég elska No Rain með Blind Melon. Ég veit að það er fáránlega þunglyndislegt, en samt get ég hlustað á það nánast sama í hvernig ástandi ég er. Efast um að ég hafi hlustað á mörg lög jafnoft.

I just want someone to say to me oh,oh, oh, oh
I’ll always be there when you wake


Mest spiluðu lögin í iTunes hjá mér í dag:

  1. One of us must know (sooner or later) - Dylan
  2. True Love Waits - Radiohead
  3. Señorita - Justin Timberlake
  4. I Want You - Dylan
  5. Last Goodbye - Buckley
  6. Empty Cans - Thee Streets
  7. Reptilia - The Strokes
  8. Cold Water - Damien Rice
  9. Dry your eyes - The Streets
  10. Hoppípolla - Sigur Rós.
  11. The Golden Age - Beck
  12. Sad eyed lady of the lowlands - Dylan
  13. Stuck inside of Mobile with the Memphis blues - Dylan
  14. Simple Twist of Fate - Dylan
  15. Hurt - J.Cash

Af þessum lögum eru tvö lög, sem ég hlusta áður en ég fer á djammið og þegar ég held partý (Señorita, Reptilia). “One of us must know” og “I want you” eru sæmilega hress. Restin eru lög, sem ég hlusta á á kvöldin hérna heima. Allt frekar sorgleg lög. Veit ekki af hverju þetta æxlast svona.


Eggert Skúlason og Hildur Helga eru ekki skemmtilegir gestir til að tala um pólitík í sjónvarpi. Ég hreinlega get ekki orðað þetta á kurteisari hátt en svo.

Annars er ég algerlega búinn að tapa áhuganum á Íslandi í Dag eftir breytingarnar. Sem er alger synd, því ég horfði á þennan þátt (eða hlustaði á hann allavegana) á hverjum einasta degi fyrir breytingar.


Ég þoli ekki Staksteina Moggans.

492 Orð | Ummæli (3) | Flokkur: Dagbók


Warning: readfile() [function.readfile]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2005/12/index.php on line 3097

Warning: readfile(http://www.eoe.is/hlid.dat) [function.readfile]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2005/12/index.php on line 3097