Warning: include() [function.include]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2006/01/index.php on line 149
Warning: include(http://www.eoe.is/tilkynning.dat) [function.include]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2006/01/index.php on line 149
Warning: include() [function.include]: Failed opening 'http://www.eoe.is/tilkynning.dat' for inclusion (include_path='.:/usr/share/php5:/usr/share/php') in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2006/01/index.php on line 149
« desember 2005 | Main | febrúar 2006 »
Móðgum múslima!
Þetta hlýtur að vera asnalegasti pistill, sem Egill Helgason hefur skrifað á Vísi.is: Birtum fleiri skopmyndir. Egill fjallar þarna um viðbrögð múslima við því að danskt blað hafi birt skopmynd af Múhameð spámanni.
Egill, sem hefur verið iðinn við að verja kristna íhaldsmenn, en bölvast útí múslimska íhaldsmenn að undanförnu, er ósáttur við viðbrögð múslima við skopmyndinni. Viðbrögðin eru að mörgu leyti öfgakennd, en þó að einhverju leyti skiljanleg, þar sem það þykir ekki til siðs í íslam að reyna að búa til myndir af Múhameð spámanni. Því er skiljanlegt að múslimar móðgist þegar að skopmynd birtist af honum. Ólíkt kristnum mönnum, sem birta kristmyndir útum allt, þá er það bannað í íslam að birta myndir af Múhameð.
Skopteikningar af Múhameð eru því asnalegar og sanna ekki neitt. Þær virðast vera birtar einungis til að móðga múslima og særa. Okkur kann að finnast það bjánalegt að þeir móðgist við slíkt, en svona er það samt. Því er tillaga Egils í lok pistilsins afskaplega skrýtin:
Það má alls ekki beygja sig fyrir þessu, heldur er eina andsvarið að birta fleiri svona myndir - ofbeldismönnunum mun vaxa í augum að þurfa að ofsækja þúsundir blaðamanna, ritstjóra og netverja. Þið gætuð til dæmis kópíerað myndirnar sem birtist með þessari grein og sett þær sem víðast.
Þarna er Egill væntanlega að gefa í skyn að ofbeldismenn séu þeir einu, sem móðgist við slíkar myndbirtingar. Það er náttúrulega tóm tjara. Fullt af góðu fólki móðgast um leið þegar að trú þeirra er vanvirt. Það kann að vera að okkur finnist þessi trú skrýtin, en það gefur okkur samt ekki leyfi til að gera lítið úr henni. Og það að virtur fjölmiðlamaður leggi til að við reynum að gera sem mest í að móðga múslima er afskaplega kjánalegt.
Ummæli (8) |
Flokkur:
Stjórnmál
Sviptur titlinum
Robbie Fowler er kominn aftur til Liverpool. Það er frétt ársins hingað til. Allavegana hvað mig varðar, en aðrir gætu þó haft annað fréttamat. Hver veit.
Er þetta ekki dálítið magnað:
Fegurðarsamkeppni Íslands hefur tekið þá ákvörðun að Ólafur Geir Jónsson, Herra Ísland 2005 verði sviptur titlinum og er það í fyrsta sinn í sögu Fegurðarsamkeppni Íslands sem slíkt er gert.
…
Ólafur Geir hefur ekki staðið undir þeim væntingum sem keppnin gerir til Herra Íslands ár hvert, en við val hans er leitast við að velja fulltrúa sem er keppninni til sóma bæði hérlendis og erlendis.
Skrýtið, eh? Hérna geturðu svo lesið um það hvernig þetta kom til. Ef að frásögn Óla er rétt, þá er þetta ansi döpur blaðamennska hjá Hér & Nú.
Ég er að fara út í fyrramálið í vinnuferð til Kölnar. Ég nenni svo innilega ekki að fara strax aftur út, þar sem ég hef ekki verið í viku á Íslandi, en ég þarf þó víst að fara. Verð í Köln fram á miðvikudag.
Ummæli (1) |
Flokkur:
Almennt
Ædol
Halli bendir á þessa snilld. Úr nýjasta American Idol er það Crystal Parizanski, sem er að slá í gegn.
Myndbandið með áheyrnarprufu hennar er einfaldlega stórkostlegt. Yndislegt!
Ummæli (7) |
Flokkur:
Sjónvarp
Prófkjör í Kópavogi
Jens vinur minn er að bjóða sig fram í 3. sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi. Ef þú býrð í Kópavogi, þá mæli ég eindregið með því að þú kjósir hann og fáir jafnvel vini og vandamenn til að gera hið sama.
Jens er nefnilega snillingur!
Hann er afburða greindur og er einn af fáum pólitíkusum, sem hefur áhuga á breiðari línum í pólitík í stað þess að standa í almennu dægurþrasi. Við erum svo oftast sammála um pólitík, sem er jákvætt. Höfum fylgt hægri og vinstri sveiflum hjá hvor öðrum í gegnum árin.
En allavegana, ef þið hafið áhuga á bæjarmálum í Kópavogi (sem ég hef reyndar ekki), þá mæli ég með að þið tékkið á síðunni hans Jensa, sem er ekki aðeins ein besta bloggsíða landsins, heldur inniheldur hún líka hugmyndir Jensa og hans stefnu í bæjarmálum.
Áfram Jens!
Ummæli (3) |
Flokkur:
Stjórnmál
Íslensk dagskrárgerð
Ef að Party 101 og Splash TV eru þættirnir, sem voru valdir úr hópi tillagna að nýjum þáttum á Sirkus, hvernig voru þá þættirnir, sem var hafnað? Væri það ekki ljómandi sjónvarpsefni að sýna þá. Þeir hljóta að ná hringnum.
Ég bind allavegana vonir við að Gillzenegger bjargi íslenskri dagskrárgerð. Hann er allavegana á tíðum fyndinn penni
Er fastur á flugvellinum í Malmö. Kom hingað og ætlaði að reyna að flýta fluginu til Stokkhólms, en það tókst ekki. Því er ég fastur í 4 tíma á flugvelli, sem býður ekki uppá neitt. Guði sé lof fyrir þráðlaust net. Og Sirkus!
Ummæli (2) |
Flokkur:
Sjónvarp
Sverige
Ég held því fram eftir þennan dag að ég viti meira um barnamat en þú!
Hitti systur mína og fjölskyldu í gær í Köben. Mikið var það næs. Eyddi deginum í spjall, lét litla frænda minn rústa mér í Playstation og slíkt. Mjög gaman. Tók svo lest yfir til Malmö og hélt að ég myndi sjá Stórabeltisbrúna, sem við fórum víst yfir. Einhvern veginn tókst mér að missa af henni. Veit ekki alveg hvernig það gerðist.
Þrátt fyrir að ég hafi lært dönsku í 8 ár, þá skil ég ekki orð í talaðri dönsku. Ég skil hins vegar fullt í sænsku. Það þykir mér magnað.
Á þessari síðu geturðu séð hin ýmsu svipbrigði Paris Hilton. Nokkuð magnað, eh?
Ummæli (5) |
Flokkur:
Dagbók
Út!
Jæja, fyrsta utanlandsferðin mín í ár er plönuð á morgun. Ætla að eyða næstu dögum í sæluríki jafnaðarmannastefnunnar, Svíþjóð.
Á að fljúga til Köben, þar sem ég ætla að hitta systur mína og fjölskyldu. Þaðan er planið að fara til Malmö á tveggja daga fund. Svo ætla ég að njóta lífsins í Stokkhólmi yfir helgina.
Jei!
Ummæli (3) |
Flokkur:
Dagbók
Framsókn á Múrnum
Góð grein á Múrnum: Hver er ábyrgðartilfinning Framsóknarflokksins?
Að þessu sögðu er vert að velta fyrir sér digurbarkalegum yfirlýsingum Hjálmars Árnasonar um DV-málið. Hjálmar, sem seint verður talinn orðheppinn stjórnmálamaður, lét þennan dóm falla á heimasíðu sinni: ,,DV fór yfir strikið og ekki einasta greip til mannorðsmorðs heldur morðs í eiginlegri merkingu.” Þessi yfirlýsing þingsflokksformanns Framsóknar er þvættingur. Ritstjórar DV eru ekki morðingjar fremur en þeir eru meðferðarfulltrúar fórnarlamba kynferðisafbrotamanna.
og
Allur þingflokkur Framsóknar virðist hafa samþykkt aðild Íslands að innrás Bandaríkjanna í Írak. Enginn þeirra hefur hrópað morð eða krafist afsagnar neins í því tilfelli, jafnvel þótt formaður þeirra hafi verið utanríkisráðherra og hafi tekið ákvörðunina á sínum tíma. Sú innrás var ólögleg, framkvæmd á upplognum forsendum og hefur kostað tugi þúsunda ef ekki hundruð þúsunda manna lífið. Er enginn morðingi eða sökudólgur í því tilfelli að mati Hjálmars Árnasonar?
Sjá greinina hér
Ummæli (5) |
Flokkur:
Stjórnmál
Tilraun dagsins
Í tilraun dagsins ákvað ég að prófa að setja iPod Nano í þvottavél og kanna hvort hann myndi lifa af einn klukkutíma í 40 gráðu heitu vatni.
Niðurstaðan: Nei, hann þolir það ekki.
Fokk, fokk ,FOOOOKKKK!
Í gærkvöldi var ég með vini mínum á Ólíver og skemmtum við okkur frábærlega. Í dágóðan tíma var stelpa að reyna við mig. Eftir nokkrar mínútur breyttist hún þó aðeins og sagði að það væri sennilega ekki sniðugt að hún væri að reyna við mig, þar sem ég væri “alltof ungur”.
Ég og vinur minn sprungum úr hlátri. Eftir smá tal komumst við að því að hún væri jafngömul og ég, það er 28. Hún hélt hins vegar að ég væri 23 ára(!)
Í framhaldinu hélt ég því fram að ég væri ekki enn kominn á þann aldur að ég yrði eitthvað sérstaklega uppveðraður af því að vera talinn yngri en ég er (sem ég er nánast alltaf). Mér finnst það oft skemmtilegt, en ég efast um að ánægjan sé jafn einlæg og hún yrði hjá 28 ára stelpu, sem myndi lenda í svipaðri aðstöðu. Viðstaddir trúðu mér ekki.
Áður en við fórum niður í bæ horfðum ég og vinur minn á nokkra þætti í fyrstu seríu af Arrested Development. Þessir þættir eru einfaldlega stórkostlegir. Og ég er ekki frá því að þeir batni tífalt við það að maður horfi á þá í félagsskap og undir áhrifum áfengis. Ég hef allavegana ekki hlegið svona mikið lengi.
Á konakt-listanum mínum í MSN eru tvær stelpur með mynd af sér með Quentin Tarantino. Þær tengjast (svo ég viti) ekki neitt. Þetta finnst mér mögnuð tilviljun. Quentin hefur greinilega farið víða í Íslandsför sinni.
Í kvöld klukkan 10 á Sýn: CHICAGO BEARS á móti carolina panthers í úrslitakeppni NFL í beinni frá Chicago. Jessss!
Ummæli (5) |
Flokkur:
Dagbók
Fjölmiðlapistill
Plís! Ó, Góður Guð! Geturðu fengið íslenska þáttastjórnendur til að hætta að bjóða Eggerti Skúlasyni í viðtalsþætti?
Og plís, plís, plíííííís látið þau hætta að taka viðtöl við lítil börn. Þau hafa ekkert merkilegt að segja í fréttum.
Ef þú ert milljarðamæringur og vilt kaupa þennan vef-fjölmiðil, eoe.is, til þess eins að leggja hann niður, þá er ég tilbúinn í viðræður. Segjum að þú sért bæði milljarðamæringur og Manchester United aðdáandi, þá væri ekki úr vegi að kaupa til dæmis Liverpool bloggið til þess eins að leggja það niður.
Ég er opinn fyrir viðræðum. Eigum við að segja 5 milljónir á hvora síðu. Helst reiðufé, en myndi sætta mig við hlutabréf í vel stæðum fyrirtækjum. Takk.
Ummæli (4) |
Flokkur:
Fjölmiðlar
Procura
Þegar þú heyrir þetta lag (Mp3 - 4mb, innlent)
Langar þig til að:
- Æla
- Dansa
?
Ég vel númer 2. En ég er líka hálf skrýtinn. Fyrir þá, sem eru forvitinir þá er lagið Procura með Chihi Peralta.
Ummæli (7) |
Flokkur:
Tónlist
Kæru fjölmiðlar
Kæru fjölmiðlar.
Ég er búinn að fá nóg.
Ég er búinn að fá nóg af viðskiptafréttum, sem hafa ekkert erindi inní aðalfréttatíma sjónvarpsstöðvanna. Mér finnst að ég ætti ekki að þurfa að minnast á þetta, en það er einfaldlega ekki svo fréttnæmt þegar að hlutabréf skipta um hendur! Það er í besta falli viðskiptafrétt og ætti því heima í sérstökum viðskipablöðum dagblaðanna, eða þá í sjálfu Viðskiptablaðinu, sem að flestir sem að málin varða, lesa.
Fyrir okkur hin, þá skiptir það hins vegar ekki nokkru einasta máli að 80 milljarðar í hlutabréfum hafi skipt um hendur á sunnudaginn. Þetta varðar mig ekki neitt og ég leyfi mér að fullyrða að fyrir utan þessa nokkru menn, sem stóðu í viðskiptunum og fólk, sem lifir og hrærist á hlutabréfamarkaði, þá skiptir þessi frétt fólk nákvæmlega engu máli.
Hvar í veröldinni þykja hlutabréfakaup svo mikið mál að þau verðskuldi á hverjum degi að vera fyrsta eða önnur frétt sjónvarsstöðva? Svona hlutir gerast á hverjum einasta degi. Karl númer 1 selur karli númer 2 hlutabréf á hverjum degi. Annar þeirra er ríkari, hinn fátækari. Húrra! Þannig gengur markaðurinn, en það skiptir okkur hin nákvæmlega engu máli.
Ef að tilgangurinn með þessum fréttum er sá að láta okkur gapa yfir þessum stóru upphæðum, þá er það bæði asnalegt og tilgangslaust. Ég gapi ekki. Það angrar mig ekkert að þessir menn eigi meiri pening en ég. Þeirra auður breytir engu fyrir mig.
Á sama hátt þá er það er engin frétt að Tom Jones hafi skemmt í einhverju nýárspartýi fyrir Íslendinga í London. Hvað varðar mig það þótt að einhverjir bankaplebbar útí London hafi ekki betri tónlistarsmekk en svo? Eigum við að hrópa úh og ah þegar við horfum á fréttirnar? Eigum við að vera öfundsjúk eða hneykslast á því að menn eyði pening í svona lélega tónlist? Hver er tilgangurinn? Eigum við kannski að vorkenna þeim, eða senda þeim geisladiska með betri tónlist?
Ég leyfi mér að fullyrða að í engu öðru landi er milliuppgjör fyrirtækja jafnoft í fréttum og hér á Íslandi. Hvaða máli skipta milliuppgjörin mig? Af hverju er ekki hægt að fjalla um þau í viðskiptablöðum líkt og fjallað er um Liverpool í íþróttablöðum? Hvað með það þótt að KBBanki hafi grætt mikið? Hverju breytir það? Hluthafar bankans og starfsmenn fylgjast væntanlega með rekstrinum, en þurfum við virkilega sjónvarpsfréttir þar sem menn gapa yfir hagnaðinum?
Þetta allt saman er að ala undir allsherjar geðveiki hér á landi, þar sem allt snýst um peninga. Enginn er maður með mönnum nema hann eigi kauprétt á hlutabréfum og vinni í banka. Menn kaupa flugfélög til að reka þau sem fjárfestingarfélög og skila pappírshagnaði á meðan að flugreksturinn er rekinn með tapi. Af því að fréttirnar hafa kennt okkur að peningurinn verður ekki til í rekstri. Hann verður til með því að kaupa og selja hlutabréf. Þeir, sem leggja sitt undir að stofna lítil fyrirtæki eru í raun bara kjánar, því menn græða ekkert á því að reka fyrirtæki, heldur einungis á því að kaupa og selja bréf í öðrum fyrirtækjum.
En það skiptir svo sem ekki öllu máli. Vandamálið er bara að ég vil fá alvöru fréttir. Fréttir, sem skipta máli. Ég vil vita hvað er að gerast útí heimi. Það er svo margt að gerast útí heimi, sem er fróðlegra og mikilvægara en milliuppgjör Landsbankans. Af hverju er okkur ekki sýnt það? Það myndi eflaust gera okkur öllum gott. Í stað þess að hafa áhyggjur af því að einhverjir græði á pappírskaupum, þá gætum við byrjað að hafa áhyggjur og áhuga á því, sem skiptir í raun máli í þessum heimi. Það væri okkur öllum hollt.
kveðja,
Einar Örn
Ummæli (20) |
Flokkur:
Sjónvarp
Atvinnuástand
athugasemd: Ég var að fara yfir færslusafnið í Movabletype og sérstaklega færslur, sem ég birti ekki af einhverjum ástæðum. Þessa færslu skrifaði ég í hálfgerðu reiðikasti þegar sem allra verst gekk að ráða á Serrano fyrir nákvæmlega tveim mánuðum, eða 9.nóvember.
Ástandið á Serrano hefur bæst mjög mikið og er í fínu ástandi núna. En pistillinn á svo sem enn ágætlega við.
Er það ekki ágætis merki um þetta fáránlega atvinnuástand hér á Íslandi að heimasíður Burger King og McDonald’s eru í raun ekkert nema ein stór starfsumsókn? Ekkert um matinn, bara “viltu plííís vinna fyrir okkur?” (nota bene, BK síðunni hefur núna verið breytt - hún var áður einsog McDonald’s síðan)
McDonald’s eru svo farnir að eyða milljónum í að birta bandarískar ímyndarauglýsingar, þar sem fólk er hvatt til að koma og vinna hjá þeim.
Í síðustu viku var hringt í mig af stéttarfélagi og ég spurður um fyrrverandi starfsmann, sem var að sækja um atvinnuleysisbætur. Ég sagði viðkomandi að ég myndi ráð fyrrverandi starfsmanninn á staðnum, hún þyrfti bara að tala við mig. Ég sagði líka að ég gæti reddað henni sirka 50 vinnum. Konan hjá VR sagði mig indælan, en samt þá gæti hún ekkert gert í þessu, því hún vildi fara á bætur.
Framsóknarflokkurinn er með hugmyndir að þremur álverum. TIL HVERS Í FOKKING ANDSKOTANUM? Ekki getur það hugsanlega verið til að slá á atvinnuleysi. Ef að Halldór Ásgrímsson heldur að það sé eitthvað atvinnuleysi á Íslandi, þá ætti hann að ráða sig sem starfsmannastjóra hjá stóru fyrirtæki og reyna að ráða í stöður. Þjóðhagsleg hagkvæmni álveranna er líka vafasöm. Eru framsóknarmenn úr öllum tengslum við íslenskan veruleika?
Ég talaði við rafvirkja, sem ég þekki vel og hann sagðist hugsanlega getað komið til mín í byrjun desember - eftir fjórar vikur! Ég hef reynt að fá pípara uppá veitingastað í þrjár vikur, en án árangurs. Það talar enginn um það, en ástandið á þessu landi er orðið hreinasti hryllingur.
Ég veit um fullt af fyrirtækjum, þar sem launakostnaður fer uppúr öllu valdi þessa dagana, vegna þess að fyrirtækin eru svo hrædd um að missa fólk. Fyrirtæki halda lélegu starfsfólki af því að þau eru hrædd um að enginn komi í staðinn. Ég þakka allavegana Guði fyrir að vera ekki svo illa staddur með mitt fyrirtæki.
Á Alþingi segir Menntamálaráðherra að vandamál leikskólanna séu lág laun. Gott og vel, ég get verið sammála því. En það sem vantar inní þessa umræðu er einfaldlega sú staðreynd að það er ekki nóg fólk á Íslandi. Ef að fólkið myndi nást inná leikskólana, þá myndi það vanta í aðrar stöður. Við þurfum að auðvelda til muna löggjöf til að fá nýtt fólk inní þetta land. Annars fer þetta allt til fjandans.
Ég leyfi mér að fullyrða að hvergi í heiminum er jafn erfitt að fá fólk í vinnu og á Íslandi. HVERGI Í HEIMINUM! Ef einhver getur bent mér á verri stað, þá væri það vel þegið.
Ég mun þá ekki opna veitingastaði í því landi.
Ummæli (10) |
Flokkur:
Vinna
Íslenskar konur
Ummæli (11) |
Flokkur:
Almennt
Mið-Ameríkuferð: Samantekt
Jæja, ég var að bæta inn myndunum frá Yucatan-Mexíkó partinum af Mið-Ameríkuferðinni minni. Þar með er öll ferðasagan og allar myndirnar komnar inná netið. Til að halda utan um þetta, þá eru hérna vísanir á alla ferðasöguna og allar myndirnar.
Ferðasaga
Mið-Ameríkuferð 1: Ódeyjandi ást mín á Tacos al Pastor
Mið-Ameríkuferð 2: Mexíkó og El Salvador
Mið-Ameríkuferð 3: Skæruliðar, eldfjöll og rútuferð frá helvíti
Mið-Ameríkuferð 4: Paradís
Mið-Ameríkuferð 5: Bananalýðveldið
Mið-Ameríkuferð 6: Garífuna
Mið-Ameríkuferð 7: Ég og Brad Pitt
Mið-Ameríkuferð 8: Tikal
Mið-Ameríkuferð 9: Caye Caulker (uppfært)
Mið-Ameríkuferð 10: Cancun
Mið-Ameríkuferð 11: Bandaríkin
Myndir
Mexíkó
El-Salvador
Hondúras
Gvatemala
Belize
Yucatan
Ummæli (0) |
Flokkur:
Ferðalög
Queer Eye
Ja hérna. Queer eye for the straight guy á Skjá Einum klukkan 21 í kvöld!
Almennilegt sjónvarp. Húrra!!
Ummæli (0) |
Flokkur:
Sjónvarp
2006
Á árinu ætla ég að…
- Læra nýtt tungumál
- Verða betri salsa dansari en ég er í dag
- Læra box
- Eyða minni tíma á netinu
- Hitta vini mína oftar en á síðasta ári
- Ferðast
Eru þetta ekki ágætis áramótaheit?
Ummæli (4) |
Flokkur:
Dagbók
Punktar í upphafi árs
Af því að ég hef ekki nægt efni í heila færslu um eitt málefni:
- Ég get ekki gert upp við mig hvort sé merkilegra: 1. Hversu hryllilega lélegt þetta Áramótaskaup var - eða 2. Að fulltaf fólki í fjölmiðlum finnist það hafa verið æði. Ég passa ekki lengur inní þetta land.
- Ég fór á Players í dag til að horfa á fótboltaleik og fékk hausverk útaf sígarettureyk. Ég get bókað tvennt þegar ég fer á Players. 1. Ég þarf að setja öll föt í þvott og 2. Ég fæ hausverk útaf tóbaksreyk.
- Ég skipti annarri af tveim jólabókunum mínum í Rokland með Hallgrími Helga. Er kominn nokkuð langt með hana. Hún er góð. Enda Hallgrímur snillingur
- Ef ég væri búinn að vera forstjóri í fyrirtæki í 30 ár og fengi skitnar 160 milljónir í starfslokasamning á meðan að arftaki minn, sem hefði unnið í 5 mánuði fengi 130 milljónir, þá yrði ég brjálaður. Ég er hins vegar ekki í þessari stöðu, þannig að þessi reiði mín skiptir litlu máli.
- Í gær horfði ég á Dodgeball og komst ekki hjá því að velta því fyrir mér af hverju í ósköpunum Ben Stiller fær borgað fyrir að leika í kvikmyndum. Horfði líka á Der Untergang, sem er góð.
- Ég hlusta alveg fáránlega mikið á þessi lög þessa dagana: Chicago - Sufjan Stevens, Things the Grandchildren should know - Eels, Geislinn í Vatninu - Hjálmar.
- Hérna geturðu reynt þig í fánum heimsins. Ég var einu sinni sérfræðingur í fánum og höfuðborgum. Ég og Gunni vinur minn kepptumst um að vita sem mest um þetta tvennt. Í teikningu hafði ég svo gaman af því að teikna upp alla heimsins fána. Landafræði var mitt uppáhaldsfag. Þegar ég hugsa aftur til þessa þá sé ég það að ferðalög hljóta að vera í blóðinu víst ég var svo fljótt með kominn með áhuga á þessu.
- Ef þú ert með PC þig vantar forrit til að halda utanum myndirnar þínar, þá mæli ég með Picasa, sem er ókeypis forrit frá Google. Ég var að setja þetta uppá tölvunni hennar mömmu áðan og þetta virkar ferlega einfalt og skemmtilegt. Ég hélt 10 mínútna tölu um það af hverju mamma ætti að standa í því að merkja allar myndirnar. Veit ekki hvort það hafi smogið í gegn. Ég er fanatískur á að merkja myndirnar mínar. Ég skýri allar myndirnar og svo set ég “tags” á allar myndir, þannig að ég get ávallt leitað að myndum af ákveðinni persónu eða stað.
- Ég er búinn að setja myndir frá Belize inná myndasíðuna. Á þeim myndum má meðal annars sjá af hverju ég reyni öllu jöfnu ekki að safna skeggi
.
Ummæli (6) |
Flokkur:
Dagbók
Warning: readfile() [function.readfile]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2006/01/index.php on line 1173
Warning: readfile(http://www.eoe.is/hlid.dat) [function.readfile]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2006/01/index.php on line 1173

