Warning: include() [function.include]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2006/05/index.php on line 149
Warning: include(http://www.eoe.is/tilkynning.dat) [function.include]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2006/05/index.php on line 149
Warning: include() [function.include]: Failed opening 'http://www.eoe.is/tilkynning.dat' for inclusion (include_path='.:/usr/share/php5:/usr/share/php') in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2006/05/index.php on line 149
« apríl 2006 | Main | júní 2006 »
Band of Horses
Ég hef það fyrir reglu að hlusta alltaf þegar Gunni vinur minn mælir með tónlist. Fyrir einhverjum vikum mældi hann með Band of Horses við mig. Hef rétt núna undanfarnar vikur getað gefið mér tíma til að hlusta á frumraun þessarar sveitar, sem heitir Everything All the Time.
Einsog mátti kannski vænta, þá heillaði hún mig ekki við fyrstu hlustanir. En núna er hún búin að rúlla 10 sinnum í gegn og ég er gjörsamlega heillaður. Þetta er án efa besta platan, sem hefur verið gefin út á þessu ári. Flaming Lips, The Strokes, David Gilmour og Streets voru vonbrigði, svo ég var að bíða eftir einhverri virkilegra góðri plötu. Og hún er komin. Eina platan, sem kemst nálægt þessari plötu á árinu 2006 er Return to the Sea með Islands.
Band of Horses, allir!!!
Besta lagið: The Funeral.
Já, og svo er DaVinci Code myndin alls ekki svo slæm. Og Red Hot Chili Peppers platan hljómar vel. Dani California er æðisleg smáskífa og ég held að þarna sé slatti af góðum lögum.
Lögin í spilun fyrir utan Band of Horses
Dani California - Red Hot Chili Peppers
Not Ready to make nice - Dixie Chicks
Song to Say Goodbye - Placebo
Chasing Cars - Snow Patrol
I will see you in far-off places - Morrissey
Never went to church - The Streets
Ummæli (7) |
Flokkur:
Tónlist
8. maðurinn
Björn Ingi í kappræðum á NFS (eða var það Kastljós).
Valið stendur milli mín og áttunda manns Sjálfstæðisflokksins
Ég spyr, er þetta ekki sami maðurinn?
Ummæli (7) |
Flokkur:
Stjórnmál
Kosningar, djamm og hettuklætt fólk
Ég verð að játa það að ég er ennþá svekktur yfir úrslitum kosninganna. Hef bara svo lítið álit á Sjálfstæðismönnum að ég efast stórlega um að þeir geri margt til að gera Reykjavík að skemmtilegri eða meira spennandi borg. Flestir, sem kusu xD búa í Grafarvoginum og eru eflaust sáttir við þá borgarmynd, sem þar er. Spurning hvort það sé einhvern tímann hægt að sætta viðhorf þeirra, sem búa í einbýli í úthverfum og okkar hinna, sem búum nær miðbænum. Kannski að við séum bara í minnihluta, sem viljum sjá þéttari og meira spennandi borg.
En kannski er ég bara of svartsýnn. Vona bara að þeir semji við VG, en ekki hina flokkana.
Fór með kærustunni á mótmælin á Austurvelli gegn virkjanastarfseminni. Skrifaði undir mótmælaskjal þar, þrátt fyrir að ég viti ekki nákvæmlega hverju það á að skila. Framsóknarflokkurinn er að þurrkast út, en samt mun sennilega enginn fatta að það gæti verið stóriðjustefnunni að kenna.
Var svo í grilli og horfði á kosningavökuna fram til 12. Fór í þetta umtalaða Kristalla partí, sem menn voru að keppast við að dissa. Þegar við komum niður í Iðu sáum við að biðröðin var löng og engin hreyfing á henni. Þegar að einhver stelpa kom í röðina fyrir aftan mig og hrópaði yfir hópinn: “hvað er málið með þessa dyraverði, fatta þeir ekki að sumir fengu kristal, en aðrir ekki”, þá ákvaðum við að þetta væri ekki beint sá staður, sem við vildum vera á. Löbbuðum upp Laugaveginn og inná nokkra staði, en alls staðar var troðið. Löbbuðum því aftur niðrí bæ þar sem biðröðin hafði alltí einu horfin og því kíktum við inn. Drukkum nokkra vodka+orkudrykki í boði Kók (takk!). Horfðum á einhver bönd á efri hæðinni, þar á meðal dr.mister & mr. handsome, sem mér fannst fínt band. Enduðum svo ásamt fleira fólki á Vegamótum.
Fyrir þetta djamm hafði ég ekki farið á skemmtistaðadjamm í margar vikur. Var reyndar í steggjapartýi í síðustu viku, en það telst varla með. Var alveg óheyrilega slappur og þunnur í gær og held að ég sé ennþá að jafna mig.
Annars vil ég lýsa frati á þessa ríkisstjórn. Á meðan að það er ennþá fólk, sem þarf að safna saman dósum á götunni á meðan aðrir djamma, þá er eitthvað mikið að í þessu velferðarkerfi okkar. Við erum að breytast í fokking Bandaríkin. Fyrirsögnin á DV um að 10 ríkustu einstaklingarnir eigi 712 milljarða (þeir gætu tekið sig saman um að gefa hverjum einasta Íslending 2,3 milljónir) en samt er hettuklætt fólk að safna saman dósum á götunni. Ömurlegt ástand. Af hverju er aldrei skrifað um þetta fólk?
Ummæli (8) |
Flokkur:
Dagbók
F & D (uppfært)
Kæru Sjálfstæðismenn,
Til hamingju með að hafa náð næst lélegasta árangrinum í Reykjavík í sögu flokksins, en ná samt að túlka það sem stórsigur. Til hamingju með að eyða hálfri sigurræðunni á RÚV í að tala niður til Samfylkingarinnar og með að oddvitinn ykkar hafi beðið sérstaklega um orðið, þegar umræðunni var lokið, til að koma einu barnalegu kommenti í viðbót að. Ef að Sjálfstæðismenn telja sig sigurvegara, þá kunna þeir ekki að taka sigri vel.
Má ég bara biðja ykkur um eitt: Plís, í Guðanna bænum ekki mynda meirihluta með Frjálslyndum. Fyrir mér megiði ráða næstu fjögur árin, en takið frekar framsókn eða vinstri græna með ykkur.
Þetta var fyrri hluti skiptanna. Á móti munum við vinna næstu Alþingiskosningar.
Annars eru fulltrúarnir svona fyrir og eftir kosningar:
Framsókn: 2 => 1
Vinstri Grænir: 2 => 2
Sjálfstæðisflokkur: 6 => 7
Frjálslyndir: 1 => 1
Samfylking: 4 => 4
Það er erfitt að sjá hver var sigurvegari í þessum kosningum. Held í raun að innst inni séu allir fúlir. En það er alveg ljóst að minn flokkur þarf alvarlega að skoða sín mál. Ég skil ekki alveg hvers vegna honum tekst ekki að höfða til kjósenda í þessum kosningum. Ég held t.d. að fylgi Frjálslynda sé ekki fengið frá Sjálfstæðismönnum, heldur frekar frá VG og Samfylkingunni. Þá er spurning hvernig hægt sé að höfða til þessa fólks.
Kannski að sigurvegari kosninganna sé helst Sturla Böðvarsson. Núna hefur hans eigin flokkur ástæðu til að svíkja kosningaloforðin og halda þessum flugvelli hérna næstu 100 árin. Það er allavegana ljóst að hann fer ekkert meðan F&D stjórna. Það er ósigur fyrir okkur, sem dreymir um að Reykjavík verði eitthvað meira en eintóm úthverfi.
Ummæli (18) |
Flokkur:
Stjórnmál
Kjósum Samfylkinguna
Ég hef skipt um skoðun varðandi þessar kosningar í borginni nokkrum sinnum. Ég er jú flokksbundinn í Samfylkingunni, en var þó á báðum áttum hvort ég vildi sjá Sjálfstæðismenn komast aftur til valda í borginni. Fannst stundum einsog ég væri kominn með nóg af R-listanum. Eða kannski var ég bara kominn með nóg af vælinu í Sjálfstæðismönnum útaf R-listanum, sem er uppspretta alls ills í heiminum samkvæmt þeim.
En þessi kosningabarátta hefur hins vegar sannfært mig algjörlega um eitt: Ég ætla að kjósa Samfylkinguna á laugardaginn. Ástæðurnar eru nokkrar:
- Reykjavíkurlistinn hefur gert Reykjavík að betri borg en hún var. Hann hefur ekki bara einbeitt sér að steinsteypu einsog nágrannasveitafélögin, heldur hefur tekið forystu um að efla Reykjavík sem menningarborg og bætt þjónustu við íbúana. Samfylkingin hefur verið kjölfestan í Reykjavíkurlistanum og hefur ekki skorast undan ábyrgð fyrir verk listans.
- Samfylkingin hefur að mínu mati bestu stefnuna varðandi skipulagsmál. Helsta áhyggjuefni Íhaldsins er að gefa öllum jarðir, svo þeir geti byggt einbýlishús. Samfylkingin vill hins vegar uppbyggingu í Vatnsmýrinni, í slippnum og á fleiri svæðum þar sem verið er að þétta byggð. Eina leiðin til að bjarga Reykjavíkursvæðinu frá því að verða eitt allsherjar skipulagsslys er að þétta byggðina í kringum miðbæinn. Helsta framlag xD til skipulagsmála er að vita ekki hvort þeir ætli að fara með flugvöllinn og að vilja byggja mislæg gatnarmót á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, sem eru glórulaus að mínu mati.
- Ég ætla ekki einu sinni að reyna að þykjast vera femínisti. En R-listinn hefur minnkað launamun kynjanna og hækkað laun þeirra lægstlaunuðu. Það eru framfaraskref, sem ólíklegt er að Sjálfstæðismenn hefðu tekið.
- Dagur B. er að mínu mati besti kosturinn sem borgarstjóri Reykajvíkur. Vilhjálmur Þ. hefur verið lengi í borgarmálum og ég fæ það alltaf á tilfinniguna að honum finnist hann eiga stöðuna skilið, þar sem hann hafi unnið svo lengi að þessum málum. Að mínu mati þurfum við ungan og kröftugan borgarstjóra, sem vill sjá uppbyggingu í miðbænum, öflugra menningarlíf og betri þjónustu við þá hópa, sem þurfa á henni að halda. Dagur er einfaldlega frambærilegastur af þeim, sem eru í framboði. Mann, sem hefur sýn og vill gera Reykjavík að skemmtilegri og spennandi borg, en ekki bara endalausu samansulli af úthverfum.
- Eina leiðin til að tryggja að Íhaldið komist ekki til valda er að kjósa Samfylkinguna. Þrátt fyrir að VG vilji eflaust helst vinna með Samfylkingunni, þá hafa þeir oft á tíðum talað ansi vel um Íhaldsmenn og virðast líta hýru augu til samstarfs með þeim. Draumur minn er að sjá vinstri stjórn með Samfylkingu sem kjölfestuna. Ef fólk kýs VG, þá á það á hættu að þeir vinni með Íhaldinu. Ef fólk kýs F eða B, þá getur það bókað að Íhaldið komist að með tilheyrandi ósköpum (fluvöllurinn áfram ef að F kemst að - og álver útí Örfirisey ef að framsókn kemst að)
- Vilhjálmur Þ er kannski jafnaðarmaður, en með honum á lista eru hins vegar fjölmargir Frjálshyggjumenn, sem hafa skoðanir sem samræmast engan veginn þeirri bleiku auglýsingaherferð, sem Íhaldið hefur rekið. Einfaldasta leiðin til að forða því að þeir ráði er að kjósa Samfylkinguna.
- Undir stjórn Íhaldsins og framsóknar hefur munur á milli ríkra og fátækra á Íslandi vaxið gríðarlega. Það er alger óþarfi að gefa Sjálfstæðismönnum völdin bæði í borginni og á landsvísu, nema að menn vilji að þessi munur aukist enn frekar. Undir stjórn R-listans hefur, einsog áður sagði, launamunur kynjanna lækkað og R-listinn hefur gert átak í að hækka laun þeirra lægslaunuðu umfram aðra.
- Samfylkingin hefur það á stefnuskrá sinni að endurbæta Lækjartorg. Fyrir mann, sem átti einu sinni fyrirtæki við þetta torg, þá hljómar það frábærlega, enda það torg til skammar.
Ég er orðinn verulega spenntur fyrir kosningunum. Draumurinn er að sjá vinstri stjórn, en hann gæti þó breyst í algjöra martröð ef að Frjálslyndir komast að (flokksbrotin rata alltaf heim í Valhöll) og myndu vinna með Íhaldinu. Það myndi þýða að Íhaldsmenn réðu öllu og að flugvöllurinn yrði áfram í Vatnsmýrinni og þétting byggðar í Reykjavík yrði þá nánast útilokuð.
Enn hef ég ekki heyrt neinn setja fram af hverju fólk ætti að kjósa Íhaldið aftur yfir sig. Til hvers að kjósa flokk, sem þykist vera Jafnaðarmannaflokkur rétt fyrir kosningar, þegar að það er hægt að kjósa sannnan jafnaðarmannaflokk, sjálfan Jafnaðarmannaflokk Íslands - Samfylkinguna. Ég hvet alla, sem búa í Reykjavík til að lesa áherslumál Samfylkingarinnar, sem komu í póstinum í gær. Vona að sem flestir sannfærist og kjósi áframhaldandi stjórn Jafnaðarmanna. Það er öllum Reykjavíkingum til hagsbóta.
xS
Ummæli (19) |
Flokkur:
Stjórnmál
Oh, þessir Sjálfstæðismenn
Á Borgarafundi á NFS, þar sem frambjóðendur Reykjavíkur komu fram núna rétt áðan sagði Vilhjálmur Þ. að honum fyndist réttlætanlegt að taka upp skólagjöld í háskólum, en ekki réttlætanlegt að taka upp stöðumælagjöld á bílastæðum fyrir utan sömu skóla.
Ég er orðlaus.
Ummæli (10) |
Flokkur:
Stjórnmál
Kaupa! Kaupa!
Þetta er efsta fréttin á Vísi þessa stundina. Efsta frétt.
Já og þetta er hugsanlega mest óspennandi fyrirsögn ársins: Dómari segir að hluti nýrrar ákæru í Baugsmáli sé hugsanlega ekki nægilega glögg. Ég sofnaði næstum því við að lesa þetta. Make it stop, please!
Ummæli (1) |
Flokkur:
Viðskipti
Útsýnið útum gluggann minn
Andrew Sullivan er með skemmtilegan þátt á síðunni sinni þar sem hann biður lesendur um að senda sér útsýnið útúm gluggann þeirra. Sjá t.d. California, Lissabon, Seattle- hérna útskýrir hann hugmyndina
Ef ég gæti tekið mynd núna, þá væri ég án efa með þunglyndislegasta útsýnið. Núna sé ég risastórt og svart vöruhús Samskipa, gáma, bílastæði og SNJÓKOMU. Ekki furða að það hafi tekið mig langan tíma að koma mér framúr í morgun.
Ummæli (2) |
Flokkur:
Almennt
Innihaldslsaus froða
Ef það er eitthvað, sem hefur komið mér á óvart í þessari kosningabaráttu í Reykjavík, þá er það algjört innihaldsleysið í kosningabaráttu Sjálfstæðismanna. Ekki nóg með að flokkurinn sé að reyna að villa á sér heimilidir sem mjúkur og mildur flokkur, sem höfði til kvenna, heldur eru flest loforðin og auglýsingarnar algjörlega innihaldslaus.
Það, sem sýnir þetta kannski best er að ungir Sjálfstæðismenn virðast fara á handahlaupum frá sínum eigin hugsjónum og hugmyndum í kosningabaráttunni. Þeir loka vefsíðunni sinni og koma svo fram með stefnumál, sem hefðu alveg eins getað komið frá Vinstri Grænum. Hérna er farið yfir ALLA stefnuskrá ungra íhaldsmanna á nokkuð góðan hátt.
Í raun skil ég ekki alveg af hverju ég ætti að kjósa Íhaldið. Á tímabili þegar prófkjörsbarátta þeirra stóð yfir og þeir birtu hugmyndir um eyjabyggð, þá var ég bara orðinn nokkuð spenntur og ætlaði að endurtaka æskuafglöp mín og kjósa Sjálfstæðismenn.
En núna skil ég ekki lengur af hverju maður ætti að kjósa þá. Jú, þeir eru með kall, sem hefur verið í borgarstjórn frá því að ég fæddist, en ég lít ekki beint á það sem kost. Og þeir ætla að byggja mislæg gatnamót hjá Kringlunni (ég keyri þau gatnamót tvisvar á hverjum degi og get staðfest það að byggja mislæg gatnamót þar væri mesta peningasóun í heimi). Já, og svo ætla þeir kannski að flytja flugvöllinn og kannski ekki, hafa engar hugmyndir um miðbæinn, ætla að útvega öllum lóðir (af því að auðvitað vilja og geta allir byggt sitt eigið einbýlishús) og ætla kannski að byggja útí eyjunum en samt ábyggilega ekki.
Restin í kosningabaráttunni er mestmegnis froða. Þeir ætla að vera góðir við börn, telja að börnin séu framtíð landsins og að þeim finnist gaman að leika sér með kubba. Svo ætla þeir að hafa leikskólana aðeins minna gjaldfrjálsa en aðrir og eitthvað meira. Já, og svo hata þeir R-listann og Samfylkinguna. Fleiru hef ég ekki náð útúr þessari baráttu þeirra.
Ummæli (7) |
Flokkur:
Stjórnmál
Eurovision kostnaður
Egill Helga bendir á þetta í pistlinum sínum og ég tók þetta saman og setti í graf (einsog sönnum hagfræðingi sæmir) og bæti við löndum, sem var auðvelt að gúgla.
Hérna er kostnaður við það að senda inn atkvæði í Evróvisjón kosningunum á laugardaginn. Smellið á myndina til að sjá stækkaða útgáfu
(geri ráð fyrir að það kosti ekki meira en 1 dk að senda SMS í Danmörku - en það kostaði 1 DK + venjulegan kostnað að kjósa þar skv. Agli)
Þetta er alveg ótrúlega sniðugt til að skoða mun á því hvernig fólk verðleggur hluti á Íslandi vs. annars staðar. Hérna eru engir tollar eða vörugjöld, sem hægt er að kenna um. Ekkert landbúnaðarkerfi, eða langar flutningsleiðir. Samanburðurinn er magnaður.
Ummæli (4) |
Flokkur:
Sjónvarp
xF
Ef ég reyni ofboðslega mikið, þá get ég verið sæmilega víðsýnn á íslenska pólitík. Ég get skilið af hverju fólk kýs Sjálfstæðisflokkinn (hringi bara í kallinn og redda lóð!) eða Vinstri Græna (umhverfismálin). Ég kýs auðvitað sjálfur Samfylkinginuna og skil því okkur krata afskaplega vel. Ef ég rembist ógeðslega mikið, þá get ég reynt að finna einhverjar skýringar á því af hverju fólk kýs exBé (ah, man ekki núna).
En ég get ekki fyir mitt litla líf skilið af hverju fólk kýs Frjálslynda flokkinn. Ef marka má síðustu Gallup könnun, þá eru Frjálslyndir með meira en 10% fylgi í borginni!!! Það þýðir að þeir verða í oddaðstöðu. Hvaða fólk er þetta eiginlega? Ég þekki framsóknarmenn, vinstri græna og sjálfstæðismenn, en ég held að ég hafi aldrei hitt neinn, sem styður Frjálslynda utan þeirra, sem eru í framboði fyrir flokkinn.
Hverjir eru þetta, og af hverju ætla þeir að kjósa Frjálslynda?
Ummæli (8) |
Flokkur:
Stjórnmál
Blessuð börnin
Ég er í þeim merka kjósendahóp “stjórnendur undir 30, sem búa einir í Vesturbænum”, sem nákvæmlega enginn stjórnmálaflokkur reynir að höfða til í þessum blessuðu kosningum. Þess vegna hef ég takmarkaðan áhuga á kosningunum, nema þá helst skipulagsmálum.
Þrátt fyrir að ég eigi ekki börn, þá trúi ég sem hagfræðingur á kosti þess að fólkið í kringum mig eigi börn. Við þurfum fleira fólk á Íslandi og það er hagkvæmt fyrir hagkerfið. Því tel ég að ríkið eigi að gera það, sem menn geta til að gera það heillandi fyrir ungt fólk að eignast börn.
Eeeeeen, erum við ekki komin útí vitleysu í þessari kosningabaráttu? Ef ég skil rétt þá, ef öll loforð verða uppfyllt, þarf ég á næsta kjörtímabili að borga eftirfarandi undir börn í Reykjavík: Leikskóla nánast frá fæðingu - allan kostnað, skólabúninga og allan matinn þeirra í skólanum.
Og það nýjasta nýtt, sem ég sá í Fréttablaðinu í dag: EXBÉ ætlar að láta mig borga 40.000 frístundakort fyrir öll börn í borginni! Þannig að ég á að fara að borga fyrir fiðlutíma hjá krökkum útí bæ. Erum við ekki aaaðeins að tapa okkur í sósíalismanum? Af hverju segir enginn neitt? Finnst öllum þetta eðlilegt? Hvað með krakka, sem hafa skrýtin áhugamál. Mér fannst til dæmis gaman að búa til módel þegar ég var lítill. Mjög gefandi og þroskandi áhugamál. Á að borga undir slík áhugamál?
Nú segi ég stopp.
Svona gerist í kosningabaráttu þar sem enginn hægri flokkur er fyrir hendi, aðeins ömurleg gerviútgáfa af gamla íhaldsflokknum, sem er að breytast í sósíalistaflokk vegna þess að hann hefur ekki lengur trú á sinni eigin stefnu. Jaðarflokkar einsog VG og Sjálfstæðisflokkurinn eru oft nauðsynlegir til að stoppa mestu vitleysuna í umræðunni.
Ég vann á Serrano í kvöld, þar sem Evróvisjónsjúkir starfsmenn höfðu biðlað til mín um frí. Frá 19.15 var Kringlan nánast tóm. Eina fólkið, sem verslaði hjá okkur var starfsfólk Kringlunnar, sem skiptist á sögum við mig um hvað rosalega væri tómt í húsinu. Jú, og nokkrir útlendingar komu líka og spurðu um þessa geðveiki.
Neil Young platan verður betri og betri. Allir saman nú:
Let’s impeach the president for lyin’
Misleading our country into war
Abusing all the power that we gave him
And shipping all our money out the door
Hvar er allt unga fólkið í tónlistinni? Af hverju þarf sextugan Kanadamann til að syngja um ástandið í heiminum einsog það er? Ó, Neil - hann er snillingur.
Let’s impeach the president for hijacking
Our religion and using it to get elected
Dividing our country into colors
And still leaving black people neglected
Jammmmmm…
Ummæli (11) |
Flokkur:
Stjórnmál
Barça Evrópumeistarar

Í fyrra var það Liverpool og í ár Barça. Ég get alveg vanist því að liðin mín vinni Evrópumeistaratitil á hverju ári.
Núna þurfa bara Holland eða Mexíkó að vinna á HM í sumar og þá er ég sáttur.
Ummæli (1) |
Flokkur:
Íþróttir
Vitlaus útgáfa
Í fréttaþættinum Kompás á sunnudaginn var umfjöllun um morfínsjúklinga.
Við eitt myndskeiðið var spilað lagið Hurt eftir Trent Reznor í útgáfu Johnny Cash. Ég veit ekki alveg hvort þetta lag var valið vegna þess að það hljómar sorglega, eða vegna vísana í sprautuneyslu í laginu.
I hurt myself today
To see if I still feel
I focus on the pain
the only thing that’s real
The needle tears a hole
the old familiar sting
try to kill it all away
but I remember everything
Allavegana, þá passaði þessi útgáfa af laginu með Cash alls ekki við tilefnið. Þegar ég fór að spá í þessu nánar áttaði ég mig á því hversu mikið merking lagsins breytist í flutningi Johnny Cash. Lagið fjallar að vissu leyti um eftirsjá og eyturlyfjaneyslan er alls ekki aðalatriðið. En sprautan er samt stór þáttur. Einhvern veginn er sterkasti kaflinn í Hurt í útgáfu Trents fyrsta versið þar sem hann talar um sprautuna og svo þegar Trent spyr sig:
what have I become?
my sweetest friend
Í Cash útgáfunni þá er þetta í mínum huga mikið breytt. Í stað þess að vera sprautufíkill á þrítugsaldri, þá gerir hinn sjötugi Cash, lagið að sínu og engu líkara en að hann hafi sjálfur samið lagið. Myndbandið gerir það líka svo sterkt, að maður getur ekki ímyndað sér annað en að Cash hafi samið það sjálfur. Lagið fjallar allt í einu um gamlan mann, sem er á að takast á við ellina og dauðann. Og allt í einu verður sterkasta línan í flutningi Cash…
everyone I know
goes away in the end
…sérstaklega í myndbandinu þegar sýnd er mynd af mömmu Cash og svo myndskeið af June Carter, sem lést stuttu eftir að myndbandið var gert.
Þegar ég hafði hlustað á Hurt með Cash, þá fannst mér hann vera að gera lagið svo miklu betra en Trent. En smám saman hef ég skipt um skoðun og lært að meta betur útgáfu Trents á laginu. Hún er ekki jafn áhrifamikil við fyrstu hlustun, en þegar ég fór að gefa Downward Spiral meiri sjens og byrjaði að hlusta á hana aftur (eftir að hafa fókusað of mikið á Closer í upphafi), þá lærði ég að meta útgáfu Trents betur.
Snilldin í lagasmíðinni hlýtur að vera sú að hægt sé að búa til tvær svona ótrúlega áhrifamiklar og mismunandi útgáfur af sama laginu.
Ummæli (3) |
Flokkur:
Tónlist
Íbúð
Ég er að leita að íbúð (reyndar ekki fyrir sjálfan mig) til leigu í þrjá mánuði í sumar. Þarf að vera 3 herbergja, í RVK og ekki mjög dýr. Ef þú veist um slíka íbúð, væri frábært ef þú gætir sent mér póst.
Ummæli (3) |
Flokkur:
Almennt
Eyþór og X-D
Ok, atburðarrás gærdagsins:
- Eyþór Arnalds keyrir fullur á staur. Hann skiptir við kærustuna sína um sæti í bílnum til að koma sér undan. Flýr svo af vettvangi. Semsagt, þarna sé ég a.m.k. fjögur brot:
- Hann keyrir fullur - Eyþór leggur líf sitt og annarra í hættu
- Keyrir á staur - hann er nógu fullur til að keyra á staur í góðum aðstæðum
- Flýr af vettvangi
- Reynir að villla fyrir lögreglu (skiptin við kærustuna) - Hann næst af löggunni og viðurkennir brotin.
- Hann gefur svo út yfirlýsingu. Í henni kemur efnislega þetta fram:
- Þetta er í fyrsta skipti, sem hann næst þegar hann keyrir fullur. (hann tekur ekki fram hvort þetta hafi verið í fyrsta skipti, sem hann keyrir fullur - bara að þetta sé í fyrsta skipti sem hann næst)
- Honum þykir þetta leitt og ætlar í meðferð.
- Hann ætlar ekki að draga sig útúr pólitík, heldur einungis að draga sig í hlé á meðan á málinu stendur. Eftir það ætlar hann væntanlega að taka sæti sitt í bæjarstjórn. - Geir Haarde gefur út yfirlýsingu þar sem hann segir eftirfarandi: „Ég held að sá manndómur sem hann sýnir í þessu máli og tekur á sig, sem hlýtur að vera honum persónulega mjög þungbært, eigi að sýna að Sjálfstæðisflokkurinn víkur sér ekki undan ábyrgð.”
Nú spyr ég: Hvað meinar Geir með þessu? Hvaða ábyrgð er Eyþór að taka? Hann tekur sér frí í nokkra mánuði! Hann segir aldrei að hann muni segja af sér embættinu þegar hann verður kosinn í það.
Enn og aftur þykjast menn geta komist upp með allt í íslenskri póltík.
Ummæli (5) |
Flokkur:
Stjórnmál
...
Sylvía Nótt er orðin þreytt. There, I said it.
Um helgina talaði ég við tvær 15 ára stelpur. Þær höfðu aldrei heyrt um Bob Dylan!
Nota bene, það var ekki bara að þær könnuðust ekki við tónlistina hans, heldur höfðu þær ekki svo mikið sem heyrt á Dylan minnst. Aldrei! Ég vil fá að vita hvað er í gangi í íslenskum skólum. Hvernig er hægt að hleypa fólki útúr skólunum án þess að það hafi heyrt um mesta tónlistarsnilling, sem var uppi á síðustu öld? Hvernig er það hægt? Er ekki tónlistarkennsla í skólum?
Kominn með nýju Neil Young plötuna, Living With War - ádeiluplata á GWBush. Lofar góðu við fyrstu hlustun. Young byrjaði að taka upp plötuna 29.mars á þessu ári. Fyrir þá, sem ekki vita - þá er Neil Young SNILLINGUR!
Hérna er heimasíða plötunnar, þar sem meðal annars er bent á skemmtilega umfjöllun um hana. Og hérna er Living With War bloggið.
Ummæli (1) |
Flokkur:
Tónlist
Næsti forseti
Ég spái því hér með, 15. maí 2006, að þetta sé næsti forseti Bandaríkjanna:
Mikið væri heimurinn nú betri ef hann hefði bara unnið árið 2000.
Ummæli (1) |
Flokkur:
Stjórnmál
Bikarmeistarar!
Ég elska LIVERPOOL!

Og Steven Gerrard er besti miðjumaður í heimi. Svo einfalt er það. Ég er enn hás eftir leikinn í dag. Mikið var þetta æðislega skemmtilegt!
Ummæli (0) |
Flokkur:
Liverpool
Parísarferð
París er óendanlega æðisleg. Þessi ferð var svo yndislega yndisleg að ég held að ferðasagan yrði alltof væmin til þess að birta hérna.
Má ég bara segja það að mér fannst æði að…
- …Vera í leigubíl á leiðinni heim af djamminu og fara bæði framhjá glerpíramídanum við Louvre og Notre Dame kirkjunni. Það fannst mér verulega flott.
- …sjá Eiffel turninn að kvöldi til
- …sjá hversu Mona Lisa er lítil
- …borða crepes
- …Liggja í sólinni með kærustunni í grasinu við Trocadero með útsýni yfir Eiffel turninn.
- …drekka rauðvín á hverjum einasta degi
- …hlusta á messu í Notre Dame, sem var áhrifameiri en allar messur sem ég hef verið viðstaddur. Jafnvel þótt ég skildi ekki orð.
- …labba í rigningunni yfir brýrnar yfir Signu
- …komast að því að Frakkar eru engir dónar
- …reyna að tala frönsku.
- …fá það á tilfinninguna að maður gæti ekki ímyndað sér stað, stund eða félagsskap sem myndi vera betri en það sem maður upplifði akkúrat á þeirri stundu
Ég er að mínu mati miklu skemmtilegri penni þegar ég er fúll útí eitthvað, þannig að ég læt frekari skrif bíða.
Set þó vonandi inn einhverjar myndir úr ferðinni á næstu dögum.
Ummæli (7) |
Flokkur:
Ferðalög
Jet Set
Soda Stereo eru svalir kallar, sem ég hélt einu sinni mikið uppá. Þeir byrjuðu sem 80’s popparar en enduðu sem nokkuð svalt rokkband um það leyti sem ég bjó sem skiptinemi í Venezuela.
Allavegana, fyrir tilviljun var ég að lesa nýjasta hefti Séð & Heyrt (sem ég fæ vegna keyptra auglýsinga) og á sama tíma akkúrat að hlusta á “Por Qué No Puedo Ser Del Jet Set?”, sem þýðir á íslensku “Af hverju get ég ekki verið hluti af þotuliðinu”. Vá, hvað þetta blað og þetta lag eiga vel saman.
Jet-set, por que no puedo ser del Jet-Set?
Jet-set, yo solo quiero ser del Jet-Set
Tengo mi agenda perfumada
Todas mis noches programadas
Voy a esos clubes reprivados
Y me alquile un convertible colorado
Con esa gente diferente
Yo me codeo .. que tipo inteligente
Tengo el bolsillo agujereado
Pero al menos tengo un Rolex
Lo he logrado
Jet-Set, porque no puedo ser del Jet-Set?
Jet-Set, yo solo quiero ser del Jet-Set
Es el sueño de mi vida
Que una mujer me espere en la colina
Labios prohibidos, vestido escotado
Yo con mi auto, con los vidrios empañados
Caviar, champagne, un solo de saxo sensual
Y esa piel, que ni ver
Quiero mas
Nene por favor, cambia de canal
Jet-Set, porque no puedo ser del Jet-Set?
Jet-Set, yo solo quiero ser del Jet-Set?
El show debe seguir, esta todo OK
Lo que para arriba es excentrico
Para abajo es ridiculez
Skilja ekki annars allir spænsku?
Jæja, ok - ég er farinn til PARÍSAR. Ji minn hvað ég er spenntur.
Ummæli (1) |
Flokkur:
Almennt
Skýrslur
Er það ekki æðislegt að ríkisstjórnin sé byrjuð að taka mark á skýrslum um íslenska hagkerfið, núna þegar þær eru orðnar jákvæðar?
New rules
Snillingur Bill Maher er með innslag í hverju þætti, sem hann kallar “new rules”. Þar leggur hann til nýjar reglur fyrir þjóðfélagsumræðuna. Ég ætla að apa þetta eftir.
Ég vil leggja til þessa meginreglu í íslenska þjóðfélagsumræðu: Fólk, sem á jeppa, má ekki kvarta yfir bensínverði. Eingöngu þeir, sem keyra um á sparneytnum bílum mega tjá sig.
…
Hvernig getur þjóð, þar sem meirihluti fólks keyrir um á jeppa, kvartað yfir bensínverði? Hlustum við á það þegar að alkohólistar kvarta yfir háu verði á brennivíni?
Önnur regla: Allir jeppaeigendur ættu að lesa þessa grein. Hún er frábær. Prentið hana út og lesið hana.
Ummæli (8) |
Flokkur:
Viðskipti
Hár, reykköfun og Seltjarnarnes
Ef ég hefði sent inn bréf til Skjás Eins fyrir tveim mánuðum með þeirri hugmynd að búa til hálftíma sjónvarpsþátt, þar sem 20 krakkar fara saman í reykköfun og í leiki uppí sveit, ætli hugmyndinni hefði verið vel tekið?
Ég sé að einhver hefur fengið þessa hugmynd og búið til sjónvarpsþátt úr því. En líka með því snilldar twist-i að hafa krakkana 20 alla keppendur í Ungrú Ísland. Einsog ég hef nú gaman af sætum stelpum (reyndar mjög gaman), þá breytir það ekki þeirri staðreynd að hugmyndin að sjónvarpsþættinum er ekki góð. Það er fínt að gera þátt um þessa keppni, en menn verða að finna eitthvað skemmtilegra fyrir stelpurnar að gera.
Ég er búinn að fatta að ég horfi ekki á venjulega sjónvarpsdagskrá lengur (fyrir utan íþróttir). Horfi frekar á heilar þáttaraðir þegar mér hentar. Í kvöld þegar ég kom loksins heim ákvað ég þó að horfa á sjónvarpið.
Ég geri fastlega ráð fyrir því að í kvöld sé stelpukvöld á Skjá Einum. Á undan þættinum um Ungfrú Ísland var þáttur af America’s Next Top Model. Það er nú meiri endemis hörmungin. Alveg eins hrifin og ég er af drasl raunveruleikasjónvarpi, þá er vælið í þessum þætti alveg nóg til að gera mig geðveikan. Get a fokking grip!
Ok, horfi ekki á fleiri þætti.
Í dag hrindgi ég í heilsugæslu Seltjarnarnes, sem er víst heilsugæslan mín þar sem ég bý í Vesturbænum. Ég spýtti næstum því kaffinu útúr mér þegar mér var sagt að ég fengi tíma útaf auma puttanum mínum á morgun! Á MORGUN! Finnst ykkur það ekki merkilegt? Ég tek tilbaka allt ljótt, sem ég hef sagt um Seltjarnarnes og Sjálfstæðismenn á Seltjarnarnesi. Æ, reyndar var það ekkert ljótt - þeir eru algjörar dúllur.
Ég fór í klippingu á föstudaginn og stytti hárið um 3-4 sentimetra. Það er svo sannarlega efni til skrifa á þessari síðu. Hafði bara einu sinni verið svona síðhærður áður. Hárið var orðið það sítt að ef ég teygði toppinn (hárið mitt krullast mjög mikið) þá gat ég snert hárið með tungunni. Ég sýndi þetta m.a. uppá Serrano, en þetta vakti takmarkaða hrifningu þrátt fyrir að mér finndist þetta vera æðislega merkilegt.
En allavegana, þessi síði toppur gerði það að verkum að ég gat verið ofboðslega hipp og kúl og haft toppinn fyrir augunum. Ég hafði talið mér trú um að það væri kúl og myndi fara mér vel. Hins vegar komst ég að því að ég hef nákvæmlega enga þolinmæði í þá greiðslu, þar sem ég var alltaf að taka toppinn úr augunum á mér, sérstaklega þegar toppurinn sveiflaðist til og stakkst í augað á mér á fullri ferð, sem mér fannst gerast frekar oft.
En núna er hárið komið niðrí þessa sídd, sem er umtalsvert þægilegra.
Já, og ef einhver hefur fleiri tillögur fyrir Parísarferðina mína, endilega komið með þær.
Ummæli (3) |
Flokkur:
Dagbók
Ferðalagahjálp
Það hefur reynst mér ágætlega að spyrja lesendur þessarar síðu ráða fyrir ferðalög. Oft veit fólk um skemmtilega staði eða hluti, sem að ferðabækur eyða ekki miklu púðri í að fjalla um.
Því spyr ég nú: Ég og kærastan mín - 5 dagar í París - hvað eigum við að gera? Ég hef aldrei komið til Parísar fyrir utan flugvöllinn og sýningarsvæði langt frá miðbænum.
Ummæli (16) |
Flokkur:
Almennt
Uppsögn
Ég er búinn að segja upp vinnunni minni.
Um síðustu áramót hafði ég áttað mig á því að ég var ekki sáttur við þá stefnu, sem líf mitt virtist vera að taka. Ég var alltaf nokkuð ánægður í vinnunni minni, en samt var það ekki nóg. Ég vissi ekki nákvæmlega hvað vantaði, en ég var viss um að ég þurfti að breyta einhverju.
Augljósasta byrjunin var að segja upp vinnunni. Því gerði ég það í kringum áramótin. Þá fékk ég hins vegar að vita að það ætti að selja fyrirtækið og því ákvað ég að doka við og verða áfram þangað til að því ferli væri lokið. Núna er það búið og ég því formlega að hætta þann 30.júní.
Ég er búinn að elska þessa vinnu síðustu 3 ár og hún hefur oft á tíðum ásamt Serrano haldið mér gangandi þegar að hlutir í einkalífinu hafa ekki gengið eins vel og ég hefði óskað. Ég hef ferðast gríðarlega mikið og þrátt fyrir að ég kvarti stundum undan álaginu, sem fylgir öllum ferðalögunum, þá hafa þau svo miklu fleiri kosti en galla. Vinnan hefur líka verið gríðarlega krefjandi og skemmtileg og ég hef kynnst fulltaf skemmtilegu fólki. En núna finnst mér ég hafa náð öllum þeim takmörkum, sem ég setti mér í upphafi og því get ég sáttur skilið við starfið.
Ég hef reynt að hugsa ekki of mikið um starfslokin, þar sem ég vil klára vinnutímann vel. En það er samt ekki hægt að horfa framhjá því að í fyrsta skipti á ævinni veit ég ekkert hvað ég á að gera.
Að vissu leyti er það óþægilegt, en að öðru leyti yndislegt. Ég hef strax fengið nokkur gríðarlega áhugaverð tilboð og eru sum lygilega góð. Sum þeirra eru á Íslandi, önnur erlendis. Í raun snýst þetta um meira en bara vinnu, því ég þarf líka að ákveða mig hvar ég ætla að vinna.
Ég hef semsagt 8 vikur þangað til að ég hætti hjá Danól. Það eru allavegana spennandi tímar framundan. Óvissan er á margan hátt skemmtileg.
Ummæli (4) |
Flokkur:
Vinna
Warning: readfile() [function.readfile]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2006/05/index.php on line 1567
Warning: readfile(http://www.eoe.is/hlid.dat) [function.readfile]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2006/05/index.php on line 1567
