Warning: include() [function.include]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2006/07/index.php on line 149
Warning: include(http://www.eoe.is/tilkynning.dat) [function.include]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2006/07/index.php on line 149
Warning: include() [function.include]: Failed opening 'http://www.eoe.is/tilkynning.dat' for inclusion (include_path='.:/usr/share/php5:/usr/share/php') in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2006/07/index.php on line 149
« júní 2006 | Main | ágúst 2006 »
Atvinna
Við á Serrano erum að leita okkur að starfsfólki í afgreiðslu í vetur. Þetta er semsagt dagvinna. Vaktaálag er sveigjanlegt og laun eru góð.
Ef þið hafið áhuga, eða vitið um einhvern, sem hefur áhuga - endilega sendið mér póst á einarorn@gmail.com - eða hafið samband uppá stað í síma 551-1754.
Smellið á auglýsinguna til að sjá stærri útgáfu
Ummæli (0) |
Flokkur:
Vinna
Álagningarskrár
Af hverju heyrist alltaf hæst í SUS þegar að álagningarskrár eru lagðar fram?
Ekki það að málefnið er gott, en það er einsog þeir fái alltaf aukinn kraft í kringum þetta eina málefni. Ekki sér maður sama eldmóð þegar kemur að hlutum sem skipta almenning actúallí einhverju máli. Til dæmis hluti einsog matvælaverð, sem er mikið í umræðunni þessa dagana.
Ummæli (3) |
Flokkur:
Stjórnmál
Ferðapælingar - Indlandsferð
Fyrir tveim árum skrifaði ég lista yfir 15 staði, sem mig langaði verulega mikið til að heimsækja. Einsog ferðapælingarnar mínar eru akkúrat núna þá gæti ég hugsanlega heimsótt þrjá þessara staða núna í haust.
Ferðapælingarnar eru aðeins að taka einhverja skýrari mynd í hausnum á mér eftir að hafa lesið í gegnum ferðabækur og heimsótt ýmsar vefsíður. Ég er búinn að fá vegabréfsáritun til Indlands og vegabréfið mitt er á leið til London þar sem ég fæ vonandi vegabréfsáritun til Nepal.
Ég hugsa að ég hafi um tvo mánuði til að ferðast og það ætti að geta orðið ágætis ferðalag. Ég er að gæla við að sjá eftirfarandi lönd: Indland, Bangladesh, Nepal og Kína. Þarna eru auðvitað tvö fjölmennustu lönd veraldar, svo ég sé auðvitað ekki nema brot af þeim löndum.
Planið er semsagt núna að fljúga til Delhi. Ýmislegt veltur á því hversu miklum tíma ég ætla að eyða í Nepal, en ef ég sleppi lengri gönguferðum, þá ætla ég að reyna að eitthvað af vestur Indlandi, þar á meðal Amritsar og þar í kring. Ef ég labba mikið í Nepal þá ætla ég hins vegar að sleppa þessum hluta.
Allavegana, frá Delhi getur maður auðvitað séð Taj Mahal. Síðan myndi ég halda í austur og fara til Varanasi og þaðan upp til Nepal. Í Nepal myndi ég strax fara upp til Khatmandu dalsins og skoða umhverfið þar. Spurningin er svo hvort ég leggi í lengri gönguferð. Í Nepal eru tvær þriggja vikna göngur, sem að heilla mig. Annars vegar er það gangan uppað grunnbúðum Mt. Everest og hins vegar er það ganga um Annapurna fjöllin. Ég þarf eiginlega að gera upp við mig hvort ég nenni í svona langar göngur.
Allavegana, frá Nepal ætla ég svo að fara í hópferð upp til Tíbet. Ég komst að því að kínverska sendiráðið hérna á Íslandi gefur ekki út vegabréfsáritanir til fólks, sem er að ferðast til Tíbet þannig að ég þarf að skoða þau mál í Khatmandu. Í Tíbet er auðvitað draumurinn að skoða Potala höllina í Lhasa, sem mig hefur lengi dreymt um að heimsækja.
Ferðin til Tíbet er hringferð, sem endar í Khatmandu. Þaðan ætla ég að skoða Royal Chitwan þjóðgarðinn í Nepal þar sem ku vera ansi vinsælt að ferðast um á fílum.
Svo myndi ég væntanlega fara aftur inní Indland. Er ekki alveg búinn að gera upp við mig hversu mikið ég geri þar, en ég er allavegana að hugsa um að enda ferðina í Bangladesh. Þar ætla ég að fara til höfuðborgarinnar Dhaka og þaðan niður einhverja ánna niður til Sundarbarns. Þaðan eflaust upp til Dhaka og svo aftur til Delhi þar sem ég myndi fljúga aftur til London.
Ummæli (14) |
Flokkur:
Ferðalög
Uppáhalds íslensku plöturnar
Af því að ég hef lítið til að skrifa um, þá ætla ég að drífa mig í að koma saman lista sem er búinn að vera lengi í hausnum á mér. Semsagt, yfir uppáhalds íslensku plöturnar mínar. Listinn ber aldur minn greinilega með sér, þar sem engin plata er meira en 15 ára gömul. Einhvern veginn hef ég aldrei komist inní gamla íslenska tónlist, hvort sem það eru gamlar Bubba plötur eða Trúbrot (fyrir utan Lifun) eða annða slíkt.
Þannig að hérna er listinn. Reglan er sú að það er bara ein plata með hverri hljómsveit. Annars hefðu Sigur Rós og Maus geta komið inn fleiri plötum.
Sigur Rós - Ágætis Byrjun Einfaldlega besta íslenska plata allra tíma. Mér finnst hinar tvær Sigur Rósar plötuarnar, sem hafa komið út eftir ÁB vera frábærar, en Ágætist Byrjun var bara svo mikil bylting fyrir mér þegar ég heyrði hana fyrst, að hún á skilið efsta sætið.
Ég hef líka séð Sigur Rós tvisvar á tónleikum - bæði skiptin í Chicago - og báðir þeir tónleikar eru meðal eftirminnilegustu tónleika ævi minnar.
Ég á líka afskaplega erfitt með að skilja fólk, sem fílar ekki Sigur Rós. Ég sýni því vanalega skilning þegar fólk, sem ég tala við, fílar ekki Elvis Costello, Maus eða Dylan. En ég á alltaf jafn erfitt með að skilja að Sigur Rós skuli ekki vera tónlist sem að allir fíli. En svona er þetta víst. Besta lag: Ágætis Byrjun- Maus - Lof Mér að falla að þínu eyra: Sko, af fyrstu þrem lögunum á plötunni eru tvö lög - sem kæmust inná lista yfir topp 20 íslensku lögin hjá mér - Poppaldin og Síðasta Ástin fyrir Pólskiptin. Einu sinni fannst mér Maus leiðinleg hljómsveit. Svo sá ég ljósið. Besta lag: Poppaldin
- Björk - Post: Besta platan með Björk. Besta lag: Hyperballad
- Mínus - Halldór Laxness: Besta rokkplata Íslandssögunnar. Punktur! Besta lag: The Long Face
- Nýdönsk - Deluxe: Þegar ég var unglingur þá dýrkaði ég aðallega tvær hljómsveitir, Jet Black Joe og Nýdönsk. Af plötum Nýdanskar þá er Deluxe einfaldlega best. Besta lag: Landslag Skýjanna
- Jet Black Joe - You Ain’t Here: Komst ansi nálægt því að fylgja JBJ á hverja tónleika, sem ég komst á þegar ég var lítill. Besta lag: You can Have it All
- XXX Rottweiler Hundar - XXX Rottweiler Hundar : Skemmtielgasta hip-hop platan, sem hefur komið út á Íslandi. Kannski ekki sú besta, en að mínu mati sú skemmtilegasta. Besta lag: XXX
- Quarashi - Jinx: Besta plata Quarashi, sem er að mínu mati frábær sveit - sérstaklega þegar þeir halda sig frá rokki. Besta lag: Mr. Jinx
- Mugison - Mugimama is this monkey Music
- Múm - Finally we are no one
Ykkur er velkomið að vera ósammála.
Ummæli (5) |
Flokkur:
Tónlist
I'm not living... I'm just killing time
Fyrir fimm árum stóð ég ásamt 20.000 manns í almenningsgarði í Chicago og horfði á Radiohead á bestu tónleikum ævi minnar. Þar heyrðu ég líka í fyrsta skiptið uppáhaldslagið mitt með sveitinni.
Ég vissi ekki fyrr en í kvöld að það væri til upptaka af þeirri stund, en internetið er magnað. Gaurinn, sem er að taka myndbandið sýnir m.a. skýjakljúfana og umhverfi Grant Park. Þessir tónleikar voru svo ótrúlega æðislegir að ég get varla lýst því.
Lagið True Love Waits hefur aldrei komið út í stúdíó útgáfu - heldur eru bara til tónleikaútgáfur af því. Thom Yorke hefur aldrei verið betri.
Fyrir áhugasama, þá er hér MP3 af laginu - tekið af I Might Be Wrong
True Love Waits - MP3 - 4,6MB - erlent niðurhal
Njótið.
Ummæli (0) |
Flokkur:
Tónlist
Vá!
Vá…
- Vá Hvað ég er orðinn brúnn!
- Vá! Ryan í OC var að verða átján. Gaurinn, sem leikur hann er ári yngri en ég.
- Vá hvað ég datt gjörsamlega úr öllu formi í þessum veikindum. Ég reyndi að hlaupa eftir Ægissíðunni áðan og var næstum örmagna eftir korters skokk.
- Vá hvað I’m the Ocean með Neil Young og Pearl Jam er gott hlaupalag.
- Vá hvað mig langar í svona dót.
- Vá hvað líf mitt er flókið og skrýtið akkúrat núna. Það er sóun að eyða fáu sólskinsdögunum á Íslandi í vesen.
- Vá hvað ég er búinn að skipta oft um skoðun á því hvert ég ætla að fara í ferðalaginu mínu. Skrifa sennilega um það um helgina.
- Vá, ég trúi því varla að ég á 10 daga eftir í vinnunni minni.
Ummæli (0) |
Flokkur:
Dagbók
Like a Hurricane
Þetta lag með Neil Young er algjörlega himneskt og ekki er flutningurinn síðri. Ég gæfi mikla peninga fyrir að sjá Young live í þvílíkum ham taka þetta lag.
Ég held að ég geti ekki orðið þreyttur á þessu lagi.
And I’m gettin’ blown away
To somewhere safer
where the feeling stays.
Neil Young er snillingur.
Ummæli (2) |
Flokkur:
Tónlist
Efnahagsleg áhrif
Samkvæmt Kristjáni Möller í Íslandi í Dag, þá eru efnahagsleg áhrif niðurskurðar uppá 1.100 milljónir í vegakerfinu álíka mikil og ef að ráðherrar myndu sleppa því að fara í bíó í eina viku.
Hvað getur maður sagt?
Ummæli (2) |
Flokkur:
Stjórnmál
Morrissey
Morrissey kemur til Íslands og spilar í Laugardalshöll 12. ágúst. Það, dömur mínar og herrar, er fokking snilld!
Og svo Sufjan í nóvember! Ef einhver getur reddað mér miðum á þá tónleika, þá væri ég verulega þakklátur.
Ummæli (2) |
Flokkur:
Tónleikar
Ferðapælingar
Þar, sem ég hef ekkert til að skrifa um þá ætla ég aðeins að fjalla um ferðaplönin mín.
Ég hef verið að hugsa þessa 2 mánaða ferð, sem ég ætla að fara í ágúst. Ég er ekki búinn að ákveða neitt og ég hef skipt um skoðun sirka 100 sinnum núna í veikindunum. Fyrsta hugmyndin var að fara til Suðaustur-Asíu, en af einhverjum ástæðum hefur spenna mín fyrir þeirri hugmynd minnkað.
Hugmyndin núna er að fara til Suður-Asíu, með fókus á Indland. Ég er að láta mér detta í hug að fljúga til Delhí eða Mumbay (þetta eru svo sannarlega ekki skemmtilegar fréttir þaðan) og ferðast um norðanvert Indland. Fara þaðan inní Nepal, upp til Kathmandu. Frá Kathmandu taka pakkaferð upp til Lhasa í Nepal og að grunnbúðum Mt. Everest (það er víst betra útsýnid Tíbet megin) og svo tilbaka til Nepal.
Frá Nepal fara svo aftur inní Indland (hugsanlega til Bútan ef það er mögulegt) og yfir til Bangladess. Þaðan svo til Calcutta og aftur heim.
Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því hvort þetta sé sniðugt plan. Veit t.a.m. alltof lítið um Indland til að geta myndað mér skoðanir um það land og hvað ég á að sjá þar. En miðað við að taka bara Norður-Indland, þá sýnist mér einsog tíminn ætti ekki að vera stórt vandamál. Ætti að geta náð nokkrum stórkostlegum hlutum einsog Lhasa, Khatmandu dalnum, Mt. Everest, Taj Mahal og fleiri stöðum.
Ummæli (15) |
Flokkur:
Ferðalög
Skortur á góðum drykkjum
Eitt, sem getur hugsanlega talist gott við veikindi er að ég losna við allt samviskubit sem tengist áti. Ef mig langar í kex með mjólk í morgunmat, popp í hádegismat og nammi í eftirmiðdagskaffi, þá fæ ég nákvæmlega ekkert samviskubit yfir því. Ég er veikur og á því að geta leyft mér slíkt.
Ég hef hins vegar komist að því að það er enginn einn drykkur í á þessu landi, sem mér finnst æðislega góður. Dags daglega drekk ég mjólk og vatn og svo sódavatn. Ég hætti fyrir nokkrum árum að drekka kók og því fæ ég mér aðeins Pepsi Max einstaka sinnum (eftir djamm aðallega).
Í þessari veikindapásu langaði mig í eitthvað ofboðslega gott að drekka og hollustan var engin fyrirstaða. Fékk mér því Coca Cola, sem eftir margra ára bindindi bragðast bara hreint ekki vel. Það sama á við um Pepsi fyrir mig og í raun Pepsi Max líka. Ég varð því eiginlega bara að gefast upp eftir smá tíma og biðja um að keypt yrði handa mér Sítrónu Kristall.
Það þykir mér magnað. Að í veikindum, þá gat ég ekki fundið neinn óhollan drykk sem mig langaði meira í en kolsýrt vatn með sítrónubragði. Það er e-ð hálf sorglegt við það.Þegar ég fór að tala um þetta við kærustuna mína, þá gat ég bara rifjað upp tvo drykki, sem (í minningunni allavegana) mig myndi langa í akkúrat núna.
- Fanta með Greip bragði. Venjulegt Fanta er einhver allra versti gosdrykkur á jörðinni. Hins vegar þegar ég var skiptinemi í Venezuela fyrir nokkrum árum þá fór ég með vini mínum í dagsferð yfir til Kólumbíu. Þar í einhverjum litlum landamærabæ settumst við inná veitingastað og sáum Fanta í gulum og fjólubláum umbúðum, sem hét “Fanta Toronja” eða Fanta Greip.
Kannski var það hitinn og uppbyggður þorsti, en okkur fannst við aldrei hafa bragðað jafn góðan drykk. Við enduðum á að drekka 4-5 dósir yfir þá nokkru klukkutíma sem við vorum í Kólumbíu og tókum svo með okkur fullt aftur til Venezuela. - Fanta með Greip bragði kemst þó ekki nálægt uppáhaldsdrykknum mínum, hinu brasilíska Guaraná. Guaraná er búið til úr samnenfdri jurt og hefur því örvandi áhrif. Það varð sennilega ekki til að minnka aðdáun mína á drykknum, en aðallega var það bragðið sem gerði mig algjörlega háðan drykknum á ferðalagi mínu um Brasilíu. Ég drakk allavegana 3-4 glös á dag í Brasilíu og þegar ég nálgaðist landamæri Paragvæ þá byrjaði ég að auka neysluna umtalsvert, því ég gerði mér ekki grein fyrir því að drykkurinn væri líka til þar.
Frá þeirri ferð hef ég aldrei séð Guaraná til sölu. Ég leitaði talsvert að drykknum í Bandaríkjunum, en fann ekki (fann hins vegar fullt af búðum sem seldu perúska viðbjóðinn Inca Cola). Það hefur sennilega gert Guaraná ennþá betra í minningunni.
Þannig að niðurstaðan úr þessum gosdrykkjapælingum hjá mér í dag var sú að mig langaði ótrúlega mikið í tvo Suður-Ameríska gosdrykki, en nákvæmlega ekkert í drykkina sem voru til útí Melabúð. Ég fékk mér því bara sítrónubragðbætt sódavatn.
Ummæli (3) |
Flokkur:
Dagbók
Oooga Chaka
Eruði ekki að grínast með þetta veður? Sól og yndislegheit. ÞEGAR. ÉG. ER VEIKUR! Ó óréttlætið í þessum heimi.
En hvað er betra þegar maður er inni en að horfa á myndbönd með David Hasselhoff.
Fyrst: Jump in My Car
og svo Hooked on a Feeling.
Bæði myndböndin eru tímalaus meistaraverk.
Ummæli (11) |
Flokkur:
Tónlist
2GB
Vó vó vó vó vó!!!
Hérna mitt í ömurlegu flensukasti með fylgjandi leiðindum fékk ég sendingu með nýjum minniskubb í tölvuna mína. Ég gat því aukið minnið úr 1GB í 2GB. Munurinn er stórkostlegur! Yndislegur! Ótrúlegur! Magnaður! Ég get kveikt á öllum forritunum í dock-inu og samt sé ég aldrei fokking djöfulsins andskotans strandboltann. Þetta er svo æðislegt að ég trúi því ekki.
Svo þarf líka ekki mikið til að gleðja mig eftir að hafa legið hérna heima í 4 daga í sjálfsvorkunn.
Og vá vá vá vá! Vissuði að Paris Hilton er búin að gefa út plötu? Mér finnst þetta alveg magnað. Hvaða útúrkókuðu geðsjúklingar eyða pening í svona vitleysu.
Magnað.
Já, og fyrir áhugamenn um bandarísk stjórnmál, þá er þetta magnað myndbrot. Það er ekki oft sem maður sér fyrirlitninguna skína jafn augljóslega úr augum þáttastjórnenda.
Ummæli (3) |
Flokkur:
Tækni
Fáar og lélegar færslur
Ég hef að undanförnu verið í talsverðum efa um innihald og framhald á þessari ágætu bloggsíðu. Þeir, sem hafa fylgst með henni í langan tíma, hljóta að hafa tekið eftir því að færslum á þessari síðu hefur fækkað og innihaldið rýrnað. Fyrir því eru nokkrar ástæður.
Ég hef haldið þessari síðu út í rúmlega 6 ár. Hún hefur fylgt mér í gegnum góða og slæma hluti í mínu einkalífi. Bæði þegar ég hef verið á föstu og lausu og í þeim tilfellum þegar ég hef verið hamingjusamur eða ekki. Það sem hefur hins vegar einkennt skrif mín er að ég hef skrifað meira þegar ég er óhamingjusamur og þegar ég er á lausu. Sumir hafa eflaust fengið þá hugmynd að ég væri alltaf á lausu og alltaf eitthvað fúll útí heiminn. Staðreyndin er hins vegar sú að ég hef ávallt minnkað skrifin þegar ég hef verið á föstu eða þegar mér hefur liðið vel, bæði vegna þess að þá leita ég minna á netið og vegna þess að mér þykir óþægilegt að skrifa um líf mitt þegar önnur manneskja er svo nátengd því.
Það er nefnilega ekkert mál að skrifa um persónulega hluti þegar þeir varða að mestu leyti mig sjálfan. Hins vegar þegar ég er á föstu, þá er önnur manneskja ávallt tengd þeim skrifum og það gerir það að verkum að ég er ekki eins tilbúinn að opna mitt einkalíf.Varðandi pólitísk og önnur almenn skrif á þessa síðu þá lendi ég sífellt oftar í því að ritskoða sjálfan mig. Aðalástæðan fyrir því er að ég á veitingastað og það er alltaf möguleiki á því að ákveðin skrif komi illa við ákveðinn hóp viðskiptavina.
Ég hef skrifað eitthvað af pistlum um íslenska pólitík eða dægurmál, en þeir eru talsvert mildari heldur en skrif mín voru áður. Ég er alltaf hræddur um að pirra einhverja eða skemma að einhverju leyti fyrir rekstrinum mínum. Þetta veldur því að ég sleppi því að gera grín að sjónvarpsþáttum á Sirkus eða framsóknarmönnum eða jeppaeigendum (ó, hvað mig langar að skrifa um samtök pallbílaeigenda, sem kvarta undan álagningu í Hvalfjarðargöngunum) því ég veit að hlutar af þessu fólki eru núverandi eða væntanlegir kúnnar á veitingastaðnum mínum. Það er því spurning hvort það borgi sig fyrir mig að hella úr skálum reiði minnar á netinu þegar það kann að hafa slæm áhrif á reksturinn.
Kannski eru þetta ranghugmyndir hjá mér. Kannski ekki. En þetta eru allavegana ástæður fyrir skorti á góðum færslum hérna að undanförnu.Mér finnst líka á stundum einsog þessi síða sé að koma í stað venjulegra samskipta við vini mína og vandamenn. Ein vinkona mín, sem býr erlendis, sagðist ekki vilja setja upp bloggsíðu þar sem að hún væri hrædd um að fá ekki tölvupósta frá vinum sínum. Ég held að margir hafi treyst á að fá fréttir af mínu lífi í gegnum þessa síðu í stað þess að hringja eða senda mér tölvupóst. Og að vissu leyti hef ég gert ráð fyrir því að það sé að gerast, svo að ég hef ósjálfrátt minnkað samskiptin. Það er ekki gott. Og því vil ég breyta.
En allavegana núna þegar ég er að hætta í 9-5 vinnunni minni, þá er ég að undirbúa langt ferðalag. Ferðasagan úr því ferðalagi ætti væntanlega að lífga uppá þessa síðu.
Ummæli (6) |
Flokkur:
Dagbók
Wallace
Þetta eru góðar fréttir!!
Ummæli (5) |
Flokkur:
Íþróttir
Warning: readfile() [function.readfile]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2006/07/index.php on line 949
Warning: readfile(http://www.eoe.is/hlid.dat) [function.readfile]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2006/07/index.php on line 949
