Warning: include() [function.include]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2006/08/index.php on line 149
Warning: include(http://www.eoe.is/tilkynning.dat) [function.include]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2006/08/index.php on line 149
Warning: include() [function.include]: Failed opening 'http://www.eoe.is/tilkynning.dat' for inclusion (include_path='.:/usr/share/php5:/usr/share/php') in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2006/08/index.php on line 149
« júlí 2006 | Main | september 2006 »
Dylan kominn í hús
Í kvöld fór ég í Skífuna á Laugavegi og keypti mér nýjustu Dylan plötuna. Þar með er það ljóst að ég mun ekki hlusta á aðra tónlist næstu vikurnar.
Þetta hef ég verið að hlusta á að undanförnu
Bruce Springsteen - We shall overcome (The Seeger Sessions) - Algjörlega æðisleg plata með Springsteen, þar sem hann tekur lög eftir Pete Seeger. Maður tárast, langar til að dansa og allt þar á milli. Klárlega ein af bestu plötum ársins
Johnny Cash - American V: A Hundred Highways - síðasta platan í American flokknum með Cash. Virkilega góð.
Lily Allen - Alright Still: Besta popp-plata ársins hingað til. Vonandi að JT platan toppi hana.
Thom Yorke - The Eraser.
En núna fá þessar plötur hvíld og Dylan fær að njóta sviðsins. Einhvers staðar las ég að þetta væri fyrsta Dylan platan lengi þar sem maður tæki fyrst eftir tónlistinni og svo textunum. Ég er ekki frá því að tónlistin sé að grípa mig strax við fyrstu hlustun. Sennilega Workingman’s Blues #2 hvað sterkast svona til að byrja með.
Ummæli (3) |
Flokkur:
Tónlist
BD
Kallinn er svalur!
Ummæli (1) |
Flokkur:
Tónlist
Flickr kortasnilld
Ég er rétt búinn að hrósa Flickr fyrir það hversu mikil snilld sú síða er þegar þeir bæta inn enn einni snilldinni, kortum.
Inní Flickr kerfið er semsagt búið að bæta inn þeim eiginleika að maður getur sett inn nákvæmlega hvar myndirnar voru teknar og svo getur maður séð þær á korti, annaðhvort á teiknuðu korti eða með gervihnattamynd. Þetta virkar auðvitað best með Bandaríkjunum, þar sem gervihnattamyndir af Bandaríkjunum eru í miklu betri gæðum en til dæmis myndirnar af Íslandi.
Ég prófaði þetta áðan og setti inn á kort allar myndirnar úr Bandaríkjaferðinni minni. Gæðin á kortunum eru svo góð að ég get sett myndirnar niður á nákvæmlega þá byggingu, þar sem þær eru teknar. Þið getið skoðað kortið hér. Nota bene, veljið endilega “hybrid” eða “satellite” í hægra horninu, þá sjáiði gervinhattamynd, sem er verulega flott.
Ummæli (9) |
Flokkur:
Myndir
Í kirkjugarðinum
Ég lesandi heimsbókmenntir Lonely Planet í Cimetiere du Pere Lachaise í París.
Ok, ég er semsagt búinn að koma því í lag að nú get ég bloggað í gegnum Flickr. Þarf reyndar að breyta íslensku stöfunum eftirá (veit einhver hvernig ég laga það?). Semsagt, ef þið smellið á myndina þá fariði inná Flickr síðuna mína.
Ummæli (6) |
Flokkur:
Myndir
Nýja Dylan platan
Nýja Dylan platan kemur út á mánudaginn. Rolling Stone gefa plötunni fullt hús, fimm stjörnur og segja:
Dylan’s thirty-first studio record and his third straight masterwork.
Ég er spenntur!
Ummæli (2) |
Flokkur:
Tónlist
Ég dýrka Flickr!
Ég hef vitað um Flickr í nokkur ár og hef verið skráður þar inni í meira en tvö ár. En þangað til í síðustu viku þá hafði ég alls ekki nýtt mér möguleikana, sem síðan býr uppá.
Á sínum tíma eyddi ég miklu púðri í að koma upp myndasíðunni minni. Hún er vissulega smart (að mínu mati), en það var eilítið basl að uppfæra hana og svo gat ég ekki valið hverjir sjá myndirnar. Sumar myndir vil ég bara geta sýnt vinum og fjölskyldu.
Þannig að ég skráði mig á Flickr, keypti mér ársaðgang (sem kostaði einhverjar 2.000 krónur - djók verð!) og núna get ég sett þangað ALLAR mínar myndir. Ég held að ég geti hlaðið upp einhver 2 gígabæt á hverjum mánuði.
Núna er ég búinn að setja inn flestar myndir síðustu tveggja ára þangað. Allt frá Bandaríkjaferðinni minni til Slóveníuferðarinnar í vor.
Ég ákvað að læsa sumum albúmum, sem bara vinir og fjölskylda geta séð. Þannig að ef þú ert vinur minn og vilt sjá allar myndirnar, þá verðurðu að skrá þig á Flickr og bæta mér við sem vini.
En allavegana, er búinn að setja haug af myndum inná Flickr síðuna mína og mun væntanlega uppfæra hana frá Suðaustur Asíu líka.
Ummæli (2) |
Flokkur:
Myndir
Myndbönd í ræktinni
Á morgnana þegar ég hleyp inní World Class er ég vanalega með iPod í eyrunum. Oft á ég erfitt með að einbeita mér og augun leita á sjónvarpstækin þar sem ekki er nú mikið úrval af sætum stelpum á réttum aldri á þeim tíma, sem ég er þarna rétt fyrir hádegið (þó var smá vonarglæta í morgun, en það er annað mál).
Allavegana, maður byrjar ósjálfrátt að horfa á sjónvarpið þar sem PoppTV er vanalega í gangi.
Til þess að gera þessi langhlaup bærilegri fyrir mig, þá legg ég til við stjórn PoppTV eftirfarandi breytingar:
Hafa í staðinn myndbönd með Pussycat Dolls á repeat allan tímann. Sérstaklega myndbönd þar sem aðalsöngkonan er nánast sú eina, sem birtist. Meira af henni, minna af hinum - segi ég! Það má t.d. nota þetta myndband.
Takk.
Ummæli (13) |
Flokkur:
Sjónvarp
Change of plans
Þegar ég byrjaði að skipuleggja fríið mitt fyrir nokkrum mánuðum var ég í góðu sambandi með stelpu, sem ég trúði að myndi endast. Þrátt fyrir að vera í sambandi var ég samt ákveðinn í að ferðast einn því að kærastan mín gat ekki komist með vegna skóla.
Þegar ég byrjaði að skipuleggja þetta allt, þá fannst mér það hljóma rosalega vel að fara til Indlands og Nepal. Fara í langar gönguferðir uppað grunnbúðum Everest, fara til múslimalanda einsog Bangladesh (enginn bjór) og fleira slíkt.
En núna þegar ég er ekki lengur í sambandi, þá breytast hlutirnir. Ég fann eftir að sambandið endaði að ég var ekkert sérstaklega spenntur fyrir ferðinni. Og þess vegna ákvað ég eitt kvöldið að breyta algerlega um stefnu. Fékk smá ráðleggingar frá stelpu sem hefur ferðast um svæðin og ákvað að breyta. Því er ég núna að fara í tveggja mánaða ferðalag um…
Suð-Austur Asíu
Þetta er auðvitað AÐAL bakpokaferðalags-staðurinn, fullur af Evrópubúum, Könum og Áströlum með Lonely Planet bækur á lofti. Og af einhverjum ástæðum, þá þykir mér það alveg æðislega heillandi þessa stundina.
Ég hugsaði til síðasta ferðalags og hvenær mér leið best þá. Ég held að það hafi verið á Roatan í Hondúras. Þar kynntist ég fulltaf skemmtilegu fólki (og kærustu reyndar líka), slappaði af í strandbæ, lærði að kafa og djammaði svo á ströndinni á kvöldin. Það var æði og ég held að það séu varla til betri staðir en eyjarnar í kringum Tæland til að upplifa eitthvað svipað.
Þannig að planið er eitthvað á þessa leið: Fljúga til Bangkok og skoða mig um þar. Fara svo til Kambódíu (Pnom Penh, strandbæir og Angkor Wat) og fikra mig svo frá Suður-Víetnam alla leið upp til Hanoi, þaðan sem ég myndi taka flug til Bangkok. Þessi partur á að taka um mánuð.
Svo er planið að eyða seinni mánuðinum á Tælandi. Skoða landið, heimsækja fullt af eyjum, kafa, djamma og skoða lífið. Ef ég hef einhvern tíma gæti ég svo kannski kíkt líka yfir til Malasíu. En ég ætla ekki að plana þetta of mikið, heldur hafa bara mjög rúman tíma. Held að tveir mánuðir fyrir 3 lönd séu ágætis tími og að ég ætti að geta séð fulltaf hlutum.
Ég er orðinn alveg hrikalega spenntur!!!
Ummæli (11) |
Flokkur:
Ferðalög
Neðansjávarmyndir
Veit einhver hvar ég get keypt svona vatnsheldan kassa utan um myndavélina, sem ég ætla að kaupa mér?

Ég get ekki keypt þetta í gegnum Amazon UK þar sem þeir telja þetta vera raftæki og senda því ekki til Íslands. Ég þarf helst að kaupa þetta á næstu tveim vikum.
Ummæli (17) |
Flokkur:
Tækni
12 kíló af hassi
Það er margt í þessum heimi, sem ég skil ekki.
Til dæmis það af hverju að Íslendingur reynir að fljúga frá Amsterdam til Sao Paolo í Brasilíu með 12 kíló af hassi í farangrinum! Af hverju reyna menn að smygla hassi með flugi? Og það til Brasilíu, sem á landamæri að Bólivíu, Kólumbíu, Venezuela, Perú og fleiri löndum þar sem framboð á þessu efni er ansi gott. Þetta er ótrúlega magnað.
Ummæli (3) |
Flokkur:
Almennt
Efsta stig þynnku
Undanfarnar tvær helgar hefur þynnkan hjá mér náð ákveðnu hámarki. Vanalega hefur þynnkan lýst sér í nokkuð slæmum hausverk, sem sæmilega auðvelt er að losna við. Í gær og síðasta sunnudag var þó toppnum náð. Þynnkan var svo slæm að ég gat ekki horft á leik með Liverpool!
Fyrir ykkur, sem þekkið mig persónulega þá ættuð þið að vita að það þarf eitthvað ansi magnað til að halda mér frá því að horfa á leik með uppáhaldsliðinu mínu. Ég skipulegg vanalega minn tíma til að þurfa ekki að missa af einum einasta leik. Bæði í gær og síðasta sunnudag stillti ég vekjaraklukkuna mína samviskusamlega rétt fyrir leik og fór fram og kveikti á sjónvarpinu. Yfir Chelsea leiknum entist ég í 60 mínútur, en í gær entist ég bara fyrri hálfleikinn. Í bæði skiptin leið mér einsog ég væri að deyja áður en ég skreið aftur uppí rúm.
Ég komst ekki útúr húsi fyrr en um 6 leytið í gær. Labbaði þá útí Vesturbæjarlaug og sat í heita pottnum í hálftíma (n.b. það vantar fleiri sætar stelpur í Vesturbæjarlaugina! Þetta er lykilatriði!) og labbaði svo niður á Hamborgarabúllu þar sem hamborgari í kvöldmat var fyrsta fasta fæðan mín þann daginn.
Tvær síðustu helgar hef ég byrjað djammið á Barnum. Er ekki alveg að fatta þann stað. Hef líka heimsótt Q-bar, Celtic Cross, Hressó, Hverfisbarinn, Sólon, Sólon aftur, 11 og Vegamót á þessum tveim djömmum. Það sýnir manni væntanlega að ég er ekki að fíla neinn einn stað neitt alltof vel.
Annars hljóta þessar fyrstu vikur eftir að samband endar að vera einhverjar verstu vikur í lífi manns. Þessar síðustu hafa allavegana verið afskaplega slæmar. Maður þarf að venjast því að búa aftur einn, að sofa einn, að hafa ekki alltaf einhvern til að tala við. Ég þarf að venjast þögninni aftur og einhvern er erfitt að finna “silver-lining” á þessu öllu saman.
Æji fokkit, þetta hlýtur að batna með dögunum eða vikunum. Svo er ég líka að fara í frí eftir stuttan tíma. Ég er reyndar búinn að breyta öllu varðandi það frí, svona í ljósi breyttra aðstæðna í mínu einkalífi. Skrifa um það á næstu dögum.
Fyrir einhverjum dögum var ég að kvarta yfir því að mig vantaði nýjan sjónvarpsþátt til að horfa á. Jæja, ég fann hvorki meira né minna en mestu snilld í amerísku sjónvarpi: Entourage, sem sýndir eru á HBO. Þátturinn fjallar um þrjá stráka, sem eru á sama aldri og ég og bróður eins þeirra. Einn af strákunum er kvikmyndastjarna í Hollywood en hinir þrír “vinna” fyrir hann.
Þetta eru svo lygilega skemmtilegir þættir að ég verð að hemja mig frá því að horfa ekki á marga í röð. Er búinn að horfa á fyrstu 10 af 33.
Ummæli (13) |
Flokkur:
Dagbók
Þróunarkenningin
Vísindablað hefur gefið út niðurstöður í könnun þar sem athugað er hvort fólk trúi á þróunarkenninguna.
Ísland er efst á listanum - en um 80% Íslendinga virðast trúa á þróunarkenninguna.

Samkvæmt þessum sama lista þá trúa minna en 40% Bandaríkjamanna á þróunarkenninguna. Magnað!
Ummæli (9) |
Flokkur:
Almennt
Castro í jogging-galla
Fidel klæðist bara Adidas
Ég man ekki eftir mörgum myndum af kallinum þar sem hann er ekki í herbúningnum. Hann virkar voðalega frískur í fánalitunum sínum.
Ummæli (5) |
Flokkur:
Stjórnmál
Fegurðardrottning, penthouse íbúð og sportbílar
Kosturinn við að fara í klippingu á margra mánaða fresti einsog ég geri er sá að ég hef alltaf nóg af lesefni, því ég get farið í gegnum slúðurblöð síðustu vikna. Í Hér & Nú fyrir einhverjum dögum birtist viðtal við íslenska stelpu. Þar segir m.a.

Ok, meikar sense. Hún heillast fyrst og fremst af einlægum og heiðarlegum strákum og segjist sjá í gegnum glamúr heiminn. Hún neitar svo í framhaldinu að tjá sig um einkalíf og strákamál í viðtalinu. Viðtalið endar svo svona:

Allt frekar saklaust. Það er tekið fram að hún hlær í enda setningarinnar, þannig að hún er væntanlega að gantast með það að sportbílar og penthouse íbúðir séu hlutir, sem henni finnst vera mikilvægir í lífinu. Fyrir þetta viðtal fær hún sæta mynd af sér á forsíðunni með þessari fyrirsögn:
Sportbíll og Penthouse er það sem gleður mig
Semsagt, blaðamenn H&N láta það líta einsog þetta sé beint kvót í hana, sem er rugl. Þetta er umorðuð setning, sem hún sagði í gríni.
Ætli megi ekki ætla að svona 30 sinnum fleiri sjái forsíðu Hér & Nú en lesi blaðið. Það þýðir að yfirgnæfandi meirihluti fólks fær það sama á tilfinninguna og ég fyrst þegar ég sá forsíðuna - það er að Tinna væri að tala um hrifningu sína á strákum, sem ættu sportbíla og penthouse íbúð. Allavegana skildu einhverjir lesendur hjá Katrínu þetta þannig. Það er ólíklegt að almenningur fái mikið álit á henni við að fá þær upplýsingar.
Það má vel vera að hún hafi samþykkt þessa fyrirsögn og að þessi lýsing smellpassi við hana. En af viðtalinu að dæma, þá virkar þetta ansi ósanngjarnt.
Ummæli (14) |
Flokkur:
Fjölmiðlar
The Office
Fyrir aðdáendur bresku Office þáttanna, þá er þetta himnasending. Gervais og Merchant gerðu fyrr á þessu ári myndbönd fyrir Microsoft, þar sem David Brent er ráðinn sem stjórnunar-ráðgjafi hjá Microsoft. Hægt er að nálgast myndböndin hér: 1 og 2
Og hvað á þetta að þýða stuttu fyrir Indlandsferð mína? Djöfulsins hryðjuverkabjánar.
Ummæli (0) |
Flokkur:
Netið
Hágæða sjónvarpsefni
Horfir einhver á The Bachelor lengur?
Þá meina ég fyrir utan MIG? Ég er búinn að sætta mig við að ég er með sérstakan veikleika fyrir drasl sjónvarpsefni. Sérstaklega drasl raunveruleikasjónvarpsefni. Allavegana, þá er þessi sería ekkert búin að vera neitt sérstaklega skemmtileg. Stelpurnar eru að eltast við 29 ára gamlan New York búa, sem mér finnst hvorki vera sérstaklega áhugaverður, myndarlegur né skemmtilegur.
Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að stelpurnar eru algjörlega að tapa sér yfir honum. Þetta styður ennfrekar þá kenningu mína að ef sett væri upp keppni þar sem að stelpur ættu að keppa um athygli meðalgreinds simpansa, þá myndu þær gera hvað sem er til að heilla hann, þó ekki væri nema eingöngu til þess að “vinna” hinar stelpurnar. Núna þegar ég er að koma útúr semi-löngu sambandi, þá fyllir það mig bjartsýni á lífið og tilveruna að sjá stelpur tapa sér yfir svona gaur.
Reglurnar í þætttinum eru breyttar þannig að núna þarf piparsveinninn ekki að klæðast jakkafötum við rósaafhendingu heldur má hann vera eins hallærislega klæddur og hann mögulega getur við öll tilefni. Einnig afhendir hann rósir á hópstefnumótum þeirri stelpu, sem mætir í flegnasta bolnum.
Í þættinum í kvöld sendi batselorinn einu einstæðu móðurina í þáttunum heim. Ég var alveg klár á því frá upphafi að hann myndi ekki velja hana útaf barninu. Hann hefur eflaust viljað halda henni í smá tíma til að líta ekki illa út, en á endanum var það ljóst að hún myndi fara. Það var eiginlega of augljóst. Það sýnir kannski muninn á Íslandi og USA hvernig samsetningin á keppendunum er, því í íslenska þættinum voru ansi margar einstæðar mæður en í þeim bandaríska þykir það fréttaefni að ein einstæð móðir sé með í keppninni. Stelpan var líka alltof óörugg með það að hún væri einstæð móðir. Talaði um lítið annað og gaf honum stöðug tækifæri á að losna.
Í annað skipti á innan við ári er í dag viðtal við mig í dagblaði á Íslandi. Líkt og í fyrra viðtalinu er myndin af mér hreinn hryllingur. Ég ætlaði að reyna að læra af reynslu fyrra viðtalsins og brosa, en ég gat það ekki. Ég reyndi og úr varð eitthvað asnalegt hálfbros. Ég held að ég sé um það bil að gefa súpermódel drauminn uppá bátinn. En ekki enn! EKKI ENN!
Vá, fyrsti vinningur í Happdrætti DAS er…. Hummer jeppi. Akkúrat það sem við þurfum meira af!
Ummæli (3) |
Flokkur:
Sjónvarp
Reykingakoss
Ummæli (5) |
Flokkur:
Netið
Kertafleyting gegn Ísrael
Jens skrifar um kertafleytinguna og minnist akkúrat á það, sem hefur gert það að verkum að ég hef ekki mætt á þann atburð í nokkur ár:
Það var hins vegar fremur pirrandi að hlusta á ræðumann gærkvöldsins blóta Ísrael í sand og ösku á meðan hún fann fjölda sögulegra réttlætinga fyrir aðgerðum Hizboullah.
Ég held að ég hafi þolað allavegana tvær kertafleytingar þar sem undirstaða aðalræðunnar var að Ísraelsríki væri orsök alls ills í heiminum og að Palestínumenn hefðu á einhvern hátt unnið sér rétt til að sprengja sjálfa sig í loft upp í strætóum í Ísrael. Eftir seinna skiptið þá gafst ég upp á því að mæta. Leið einsog ég ætti ekkert sérstakt erindi þarna víst ég er þeirra trúar að Gyðingar séu ekki uppspretta allra vandamála í Mið-Austurlöndum.
Slíkar ræður má fyrir mér halda á atburðum til stuðnings Palestínumönnum, en þeim á að halda frá atburðum þar sem hvatt er til friðar í heiminum. Það er jú enginn sérstakur skortur á and-Ísraels áróðri á Íslandi sem stendur.
Eða einsog Jens segir:
ef þú ert sannur friðarsinni þá er andstyggð þín á stríði aldrei hlutdræg. Ég hef jafn mikla andstyggð á glæpum Hizboullah og Ísrael. Morð á saklausum borgurum er alltaf morð á saklausum borgurum. Friðarsamkomur sem þessar eiga að fordæma dráp beggja stríðsaðila en ekki lýsa skilning á aðgerðum annars aðilans á meðan hinn er fordæmdur.
Skipuleggjendur kertafleytingarinnar mættu hafa þetta í huga.
For the record - mín skoðun: 1 - Hizbullah réðst á Ísrael 2 - Ísrael hefur rétt á að verja land sitt hvort sem það er fyrir hryðjuverkamönnum eða herjum annarra landa 3 - viðbrögð Ísraela eru úr öllum takti við alvarleika byrjunnar átakanna.
Ummæli (20) |
Flokkur:
Stjórnmál
Blah!
Í einhverju samblandi af fikti í Adium og MSN á PC þá tókst mér að bæta við 15 nýjum MSN kontöktum á MSN listann minn. Þetta finnst mér magnað. Ég var að reyna að breyta einhverju dóti þar sem að Adium var að gera mig geðveikan með villuskilaboðum. Mitt í þessum breytingum þá bættust allt í einu 15 nýjir aðilar við MSN listann minn. Eftir því sem mér skilst, þá er þetta fólk sem hefur bætt mér við sinn lista þegar ég var offline en síðan væntanlega ákveðið að eiga engin frekari samskipti við mig. Þetta fólk var því inní einhverjum dularfullum lista sem birtist ekki á kontakt listanum mínum. Við þessar breytingar fór þetta fólk allt inná aðal listann minn.
Þetta þýðir að ég er núna með 79 manns inná MSN listanum. Það þykir mér magnað því að ég tala reglulega við svona 10 á þeim lista. Restin er svo sambland af fólki, sem ég tala mjög saldan við, fólki sem ég talaði við einu sinni eða er hættur að tala við.
Hólí fokking sjitt hvað Stacked á Sirkus er lélegur þáttur. Hverjum datt í hug að setja Pamelu Anderson í aðalhlutverk í gamanþætti?
Liverpool er byrjað að spila aftur. Það er æði!
Ég er núna búinn að vera að vinna heiman frá mér í viku. Það er fróðleg lífsreynsla. Hingað til hefur þetta verið sambland af vinnu og afslöppun. Hef verið að sinna hlutum uppá Serrano, sem hafa legið á hakanum lengi vegna vinnunnar, sem ég var að hætta í.
Okkur vantar ennþá fólk í fullt starf í dagvinnu í vetur. Ef þú veist um einhvern, sem vantar vinnu í vetur eða langar að skipta um vinnu og vinna hjá okkur, endilega hringið í mig - sími 896-9577. Erum að borga betri laun en margir aðrir staðir. Takk takk!
Bob Dylan var 22 ára þegar hann tók upp The Freewheelin’ Bob Dylan. Hann var 21 árs þegar hann samdi “Don’t Think Twice, it’s Allright” - sem hlýtur að vera besta break-up lag allra tíma. Það er fokking magnað! Þvílíkur snillingur.
Ég kláraði að horfa á 3. seríu af the O.C. Sjitt hvað sá þáttur er orðinn leiðinlegur. Fyrsta serían var tær snilld, en þetta er orðið eintómt þunglyndi núna. Eitt kvöldið kom ég þreyttur heim og hugsaði með mér að ég hlyti að komast í gott skap við að sjá sætar stelpur í góðu veðri ræða um sín mál. En þetta er bara eintóm vandræði og leiðindi. Ég þarf að finna mér einhverja skemmtilegri þætti til að horfa á.
Ég er með hausverk. Ég þoli ekki hausverk.
Í Rockstar áðan:
Dava Navarro: How did it feel to play with Gilby?
Delana: It was definetely a dream come true
Í alvöru? Er það draumur einhvers að spila með Gilby Clarke? Ég þurfti að fletta honum upp eftir fyrsta þáttinn, því ég var búinn að gleyma nafninu. Byrjaði hann ekki í Guns ‘N Roses eftir að þeir tóku upp Use your Illusion? Sem þýðir að hann spilaði með þeim á….The Spaghetti Incident.
Í morgun fór ég í klippingu, sem tók 14 mínútur og kostaði 3.450 krónur. Það gerir 14.785 krónur. Miðað við þetta þá eru lögfræðignar með lægra tímakaup en hárgreiðslukonur. En hún klippti mig allavegana rétt. Það er fyrir öllu.
Ummæli (8) |
Flokkur:
Almennt
Ég, kjúklingur og PR
Myndir. Jei!
Ég, kjúklingur og Jens Í Brussel í apríl 2006
Leiði Jim Morrison í Pere Lachaise
Ég í rigningunni í París
Ummæli (6) |
Flokkur:
Myndir
Uppboð
Ég gleymdi alltaf að setja hérna inn bréfið, sem ég fékk frá Oxfam sem staðfestingu fyrir framlagi mínu eftir uppboðið, sem ég stóð fyrir í desember.
Framlagið endaði í 7.472 dollurum, sem var þá um 500.000 krónur en myndu í dag vera um 535.000 krónur.
Ástæðan fyrir að ég birti þetta núna er að ég fann bréfið í gríðarlegri tiltekt, sem ég hef staðið í í dag. Það er magnað hvað maður gerir þegar maður nennir ekki að hugsa um suma hluti. Ég er búinn að fylla þrjá fimm ruslapoka af drasli og svo er ég líka búinn að ákveða að vera með annað uppboð fyrir næstu jól. Er kominn með eitthvað af dóti í það og ætla líka að skoða hvort að fólk í kringum mig eigi ekki eitthvað sniðugt til að bjóða upp.
Smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu.
Peningurinn, sem safnaðist í uppboðinu fór allur til hjálparstarfs Oxfam í Mið-Ameríku - Hondúras, Níkaragva, Gvatemala og El Salvador. Vonandi að þetta nýtist vel.
Ummæli (4) |
Flokkur:
Uppboð
Borat
Ég verð að sjá þessa mynd!
Ummæli (5) |
Flokkur:
Kvikmyndir
Nýtt líf, dagur 1
Í gær hætti ég í vinnunni. Ég sagði upp í desember, en vegna ýmissa mála ákvað ég að vinna svona lengi. Í gær pakkaði ég loksins saman dótinu á skrifborðinu mínu og labbaði út eftir rúm 3 ár í fullu starfi og fjöldamörg ár í hlutastarfi. Þetta var verulega skrýtin tilfinning.
Í dag byrjaði því nýr kafli í mínu lífi og það var skemmtileg tilviljun að það skyldi gerast á besta degi sumarsins. Í fyrsta sinn í langan tíma finnst mér einsog ég viti hvað ég vil og hvert mig langar. Núna get ég því byrjað að taka þau skref, sem eiga að koma mér á þann stað. Það mun taka einhvern tíma, en núna finnst mér ég ekki lengur vera fastur og get horft jákvætt á framhaldið.
Ef að hlutir í mínu einkalífi væru ekki svona skrýtnir og asnalegir, þá gæti ég sagt að ég væri verulega hamingjusamur - en ég á ennþá eftir að ná því saman að vera hamingjusamur í vinnu og einkalífi á sama tíma. Vonandi gerist það einhvern tíma á næstunni. En það breytir ekki öllu, því mér líður vel með þessa byrjun.
Ég ætla að nýta næstu vikur í að klára ýmis mál, sem hafa setið á hakanum síðustu vikur og mánuði og svo fer ég út í frí.
En mikið var dagurinn í dag æðislegur. Ég æfði útí í ræktinni, lá svo í sólbaði á svölunum og las pappíra sem höfðu legið inná skrifstofu lengi. Ég fór svo og hitti vin minn niðrá Austurvelli þar sem við fengum okkur mat og bjór í hreint stórkostlegu veðri. Það er ekki annað hægt en að vera hamingjusamur á svona góðviðriðsdögum þegar að milljón manns eru í miðbænum, stelpurnar léttklæddar og sætar og allir í góðu skapi. Reykjavík verður 100 sinnum meira heillandi borg fyrir vikið.
Helgin var líka algjört æði, eða réttara sagt laugardagur og sunnudagur. Ég var með vinum mínum að steggja æskuvin minn, sem var æði. Eftir paintball og eitthvað fleira í bænum fórum við svo á Grundarfjörð þar sem við vorum með sumarbústað, en í bænum var hátíð sem ég var líka á í fyrra. Við duttum í það í bústaðinum og fórum svo á eitthvað bryggjuball þar sem félagsmálaráðherra var að syngja fyrir öfurölva fólk á öllum aldri. Enduðum svo á einum barnum þar sem einhver hljómsveit var að spila. Þar var fín stemning með tilheyrandi slagsmálum og látum.
Helgin kláraðist svo á Sigur Rósar tónleikunum á Klambratúni. Þeir voru auðvitað frábærir. Sigur Rós er algjörlega ótrúleg hljómsveit og eftir tónleikana er ég enn vissari í trú minni um að það sé ekki hægt að ljúka tónleikum á flottara lagi en Popplaginu. Ég hef hlustað á það nokkrum sinnum á tónleikum en þessi útgáfa hlýtur að teljast vera sú al magnaðasta.
Ótrúleg hljómsveit!
Ummæli (5) |
Flokkur:
Dagbók
Warning: readfile() [function.readfile]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2006/08/index.php on line 1410
Warning: readfile(http://www.eoe.is/hlid.dat) [function.readfile]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2006/08/index.php on line 1410

