Warning: include() [function.include]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2007/01/index.php on line 149

Warning: include(http://www.eoe.is/tilkynning.dat) [function.include]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2007/01/index.php on line 149

Warning: include() [function.include]: Failed opening 'http://www.eoe.is/tilkynning.dat' for inclusion (include_path='.:/usr/share/php5:/usr/share/php') in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2007/01/index.php on line 149

« desember 2006 | Main | febrúar 2007 »

Guðmundur og Heimdallur

janúar 31, 2007

Ég mæli með þessu (spólið svona 1:48 inní þáttinn og njótið). Þarna takast á Guðmundur Steingrímsson frá Samfylkingunni og formaður Heimdallar.

Niðurstaðan er ansi mögnuð.

25 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Stjórnmál

Serrano Hringbraut opnar

janúar 28, 2007

Jæja, okkur tókst víst að opna Serrano. Opnuðum klukkan 5 mínútur yfir 10 í morgun. Það er nokkur framför, því þegar við opnuðum Kringluna þá opnuðum við 5 tímum á eftir áætlun. Í morgun stóðst þetta hins vegar nokkurn veginn.

En það tókst líka með því að fólk var að vinna alla nóttina. Endalaust vesen með iðnaðarmenn olli því að við fengum í raun ekki staðinn útaf fyrir okkur fyrr en um 3 leytið á föstudaginn og höfðum því lítinn tíma til að innrétta staðinn, þrífa og elda mat fyrir næsta dag.

Ég var þarna allan daginn og svo var Emil og eitthvað af starfsfólkinu líka alla nóttina. Ég ákvað þó að fara að sofa um klukkan 2, en var mættur aftur á svæðið klukkan 8 og var þarna þegar við opnuðum. Ég get ekki séð annað en að þetta byrji mjög vel og það hefur verið gott að gera í allan dag. Ég er svona kominn yfir allra mesta stressið, en þori ekki ennþá að láta símann mjög langt frá mér. Hann hefur verið nánast límdur við eyrað á mér undanfarna daga.


Útlitið á staðnum er gjörbreytt frá því sem er í Kringlunni og ég er alveg fáránlega ánægður með það. Ég hannaði þetta með Vatíkaninu og hefur þetta að mínu mati heppnast ótrúlega vel. Núna þurfum við bara að fara í endurbætur á Kringlunni svo hún líti jafn vel út. Maturinn er enn sem komið er óbreyttur, en þó stendur til að prófa nýja rétti á næstunni.

En það er allavegana spennandi að vera búinn að opna og gaman að vita til þess að maður geti farið að sofa klukkan 1 á laugardagskvöldi vitandi að það sé ennþá opið á Serrano. Kringlan hefur auðvitað verið takmarkandi að því leyti að þar er lokað klukkan 7 á kvöldin og því nánast enginn kvöldmatur, en á nýja staðnum verður opið til 11 virka daga og 3 föstudaga og laugardaga, svo það er ekki lengur vandamál.

326 Orð | Ummæli (18) | Flokkur: Vinna

Tveir dagar í opnun

janúar 24, 2007


Þetta er hvorki meira né minna en fyrsta myndin, sem er tekin af mér og Emil fyrir framan Serrano stað. Við höfum rekið Serrano í 4 ár án þess að láta taka af okkur mynd saman.

En hérna er hún allavegana komin - við fyrir framan afgreiðsluna á nýjum Serrano stað á Hringbraut. Staðurinn mun opna klukkan 10 á laugardaginn.

Það er búið að vera rosalega gaman hjá mér að undanförnu við að klára mál tengdum staðnum. Í dag gerðist ansi mikið og útlitið að staðnum tók virkilega að mótast. Á morgun, fimmtudag munum við klára að stilla upp tækjum og svo er planið að taka prufu keyrslu á eldhúsinu á föstudaginn og opna á laugardaginn.

Við munum opna með 2 fyrir 1 tilboði á burrito og quesadilla bæði laugardag og sunnudag. Tilboðið gildir bara á Hringbraut og ég hvet auðvitað alla til að koma.

:-)

146 Orð | Ummæli (15) | Flokkur: Vinna

Ó Celíne

janúar 22, 2007

Ef að Angus Young væri dauður, þá myndi hann ábyggilega snúa sér við í gröfinni.

Orð fá þessu ekki lýst:

via Kottke.

22 Orð | Ummæli (11) | Flokkur: Tónlist

BEARS!!!

janúar 21, 2007

Ég bið nágranna mína velvirðingar á sífelldum hrópum á þessu sunnudagskvöldi.

En Chicago Bears eru komnir í Super Bowl!!!

nfl_u_jones_412.jpg

Þulurinn á Sýn afskrifaði Chicago og Rex bara svona 150 sinnum í útsendingunni, en hann hafði þokkalega rangt fyrir sér því Chicago keyrðu að lokum yfir New Orleans. Urlacher er fokking snillingur og þessi Chicago vörn er ótrúleg.

Liverpool sigur í gær, Man U tap í dag og svo Bears sigur í kvöld. Yndisleg helgi! Gaman gaman!

76 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Íþróttir

EJ

janúar 20, 2007

Ég er ennþá að baksa við að komast yfir þá staðreynd að fyrsta frétt í fréttatíma Stöðvar 2 áðan var um það að Elton John væri að spila í afmæli hjá forstjóra Samskipa.

HVERJUM ER EKKI SAMA?

Ég næ ekki almennilega þessum auðmannafréttum, sem stanslaust dynja á okkur. Hvað varðar okkur um það hvort að Elton John eða Duran Duran séu að spila í einkapartýjum hjá ríkum Íslendingum? Á þetta að ala á öfund hjá okkur sem var ekki boðið eða hvað? Eiga fréttir ekki að snúast um eitthvað sem okkur varðar? Af hverju eru slúðurfréttir komnar inní alvöru fréttatíma? Er ekki nóg að lesa um þetta í Séð & Heyrt?


Þessu laugardagskvöldi ætla ég að eyða í leti, sem sætir tíðindum miðað við dagskrá undanfarinna helga. Sem minnir mig á að ég þarf eftir einhverjum leiðum að redda mér VIP korti á Vegamótum. Um síðustu helgi eyddi ég næstum því klukkutíma (eða mér fannst það allavegana vera nærri klukkutími) í biðröð þar fyrir utan og var sú bið farinn að hafa veruleg áhrif á líkamshita minn, enda ég bara í þunnum leðurjakka.

Ég er búinn að stunda þennan stað í fokking 5 ár, borða þarna oft í mánuði og enda þarna alltaf þegar ég djamma.


For The Widows In Paradise, For The Fatherless In Ypsilanti með Sufjan er æðislegt lag. Já, og ég drap Flappie.

228 Orð | Ummæli (5) | Flokkur: Almennt

PC

janúar 18, 2007

Í dag fór Apple notandinn ég í verslunarferð til að kaupa ódýra PC tölvu fyrir nýja Serrano staðinn. Það var átakanleg lífsreynsla. Hvað það er sem fær fólk til að kaupa PC tölvu í stað Apple er hreinlega ofar mínum skilningi.

Í sumar eyddi ég ótal kvöldstundum í að sannfæra stelpu um að kaupa Apple og var ég sannfærður um að mér hefði tekist það. Þegar að kom að því að kaupa tölvu, þá endaði hún á að kaupa sér PC. Ég hef ekki enn fyrirgefið henni það. Eftir mánuð skrifaði hún mér í örvæntingu að tölvan sín væri strax að deyja.


Flestar tölvurnar í búðunum, sem ég heimsótti í dag, voru risastórir turnar, sem henta víst vel í tölvuleiki. Þetta voru ljót skrímsli, sem er óskiljanlegt að fólk kaupi sér þegar það hefur möguleikann á að kaupa sér svona fallegar tölvur.

Æ, en ég tilheyri víst bara 4,7% hópi sem skilur ekki hin 95,3%-in. Þetta er skrýtinn heimur.


Já, og mig langar í svona síma - og nei, þetta er ekki iPhone.

175 Orð | Ummæli (12) | Flokkur: Tækni

Kynlíf

janúar 18, 2007

Á þetta ekki ágætlega við umræðuna á Íslandi í dag:

Og fyrir þá, sem eru ekki byrjaðir að fylgjast með bandarísku útgáfunni af The Office, þá vil ég bara segja að þið eruð að missa af miklu. Þetta er svo mikil snilld að það er hreint magnað.

47 Orð | Ummæli (3) | Flokkur: Netið

Saltvötn í Bólivíu

janúar 15, 2007


Ég að labba á Uyuni saltvatninu í Bólivíu í apríl 1998.

35 Orð | Ummæli (4) | Flokkur:

RÚV?

janúar 15, 2007

Hefur einhver, sem

a) vinnur ekki fyrir fjölmiðla eða
b) er ekki á þingi

áhuga á þessu RÚV máli? Jesús hvað mér finnst þetta óspennandi. Ef að fréttir, Kastljós og Spegillinn fá að haldast á dagskrá, þá er mér nokk sama um RÚV.

43 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Fjölmiðlar

Einar Simpson

janúar 14, 2007

Ég sem Simpsons karakter (smellið á mynd til að sjá rétta stærð).

Betur gat ég ekki gert. Þú getur prófað hérna. Via.

23 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Myndir

Salsa!

janúar 13, 2007

Á meðan Emil félagi minn á Serrano var uppá fæðingardeild þar sem hann og Ella eignuðust litla stelpu (til hamingju!!!) var ég í fyrsta tímanum mínum á salsa námskeiði.

Ég er lengi búinn að ætla að fara á námskeið í salsa, en mig hefur alltaf vantað dansfélaga þangað til nú.

Ég lærði að dansa salsa og (aðallega) merengue þegar ég var skiptinemi í Venezuela. Systir mín í Venezuela kenndi mér þessa dansa á stofugólfinu í íbúðinni okkar í miðbæ Caracas. Hún var reyndar ekki mjög formleg í kennslunni, heldur fólst kennslan aðallega í því að kenna mér sveiflur og kalla á mig að hreyfa mjaðmirnar, sem er oftast aðalvandamál okkar hvítra karlmanna þegar við dönsum þessa dansa.

Ég sakna enn þann dag í dag partíanna í Venezula. Partí útí garði þar sem tónlistinn var sett á og allir dönsuðu allt kvöldið. Ég sakna líka ferðanna á klúbbana í Caracas þar sem maður dansaði allt kvöldið við venezúelskar stelpur, sem eru á eftir íslenskum stelpum fallegasti kvennahópur í heimi.


Danstíminn í gær opinberaði það nokkuð greinilega að ég er ekki jafngóður dansari og ég hélt. Ég var góður í því að fylgja eftir reyndum suður-amerískum stelpum, sem rifu mig áfram og stjórnuðu dansinum, enda fyllast þær vorkunnsemi þegar þær sjá ljóshærða stráka einsog mig, sem eiga erfitt með að hreyfa mjaðmirnar.

Núna í gær var ég með íslenskri stelpu, sem var óreynd í salsa og því var þetta miklu erfiðara fyrir mig, auk þess sem ég var ákveðnari í að læra réttu sporin og ruglaðist því miklu oftar en ég gerði á troðnu dansgólfi í Suður-Ameríku, þar sem ég spáði minna í sporunum.

En þetta kemur allt. Námskeiðið er 6 vikur og ég er viss um að við tvö eigum eftir að vera stórkostlegir dansarar þegar þetta er búið. :-)

300 Orð | Ummæli (7) | Flokkur: Dagbók

NFL hjálp!

janúar 12, 2007

Veit einhver hvar ég get séð Chicago Bears - Seattle á sunnudaginn í NFL úrslitakeppninni??? Sýn sýna ekki leikinn.

19 Orð | Ummæli (8) | Flokkur: Sjónvarp

41

janúar 10, 2007

Síðan klukkan 21 er ég búinn að senda út 41 mismunandi email. Þessi dagur byrjaði ekki vel, en hann hefur skánað verulega og núna er ég loksins að fá fullan vinnustyrk. :-)

Núna eru bara 17 dagar í að við opnum Serrano Hringbraut. Þetta verða ábyggilega skrautlegir dagar.

48 Orð | Ummæli (1) | Flokkur: Dagbók

Þunglyndi

janúar 10, 2007

Í gærkvöldi lét ég í fyrsta skipti í langan tíma fótboltaleik eyðileggja algjörlega fyrir mér kvöldið. Ég var svo dapur yfir úrslitunum að ég fór að sofa leiður og vaknaði í morgun í vondu skapi. Ég er enn að láta úrslitin hafa áhrif á mig.

Þetta er rosalegt. Mér leið í morgun einsog eitthvað stórt hefði gerst í mínu lífi og ég var svo dapur þegar ég vaknaði að ég var sannfærður um að eitthvað svakalegt hefði komið fyrir. En allt var þetta útaf fótbolta. Ef ég hefði ekki þurft að fara á fund, þá hefði ég ábyggilega farið að sofa aftur.

Úff.

103 Orð | Ummæli (5) | Flokkur: Dagbók

Ó vei, nördaskapur!

janúar 9, 2007

Ég verð að játa það á mig að ég breytist í mesta nörd í heimi í kringum MacWorld þar sem Apple tilkynnir um nýjar vörur. Klukkan 17 í dag stígur Steve Jobs á svið og segir okkur Apple aðdáendum hvað við hreinlega VERÐUM að eignast á næstu vikum.

Það er varla til sá hlutur, sem Apple framleiðir, sem ég væri ekki til í að eiga. Núna á ég tvær Apple tölvur (iMac og nýja og yndislega Macbook Pro) og tvo iPod-a (Nano og 60gb photo). Flestir búast við því að Apple muni í dag kynna nýjan Apple GSM síma (Wall Street Journal segir m.a. frá því) sem þýðir að tveggja ára Samsung síminn minn mun sennilega lenda í einhverju hræðilegu slysi á næstu dögum, sem hreinlega neyðir mig til að kaupa mér nýjan síma!

Ó, ég er spenntur!

138 Orð | Ummæli (9) | Flokkur: Tækni

Endalok (uppfært)

janúar 8, 2007

Þetta hljóta að vera endalok siðmenningar á Íslandi - (via dr G).


Uppfært (EÖE): Þetta er nú skrýtið. Þegar ég vísaði á þessa síðu í gær var þarna auglýsing fyrir ljósmyndakeppni þar sem valin yrði besta myndin af íslenskum stelpum í sleik. Þetta taldi ég merki um endalok siðmenningar á Íslandi.

En núna er búið að taka þá keppni niður. Veit einhver hvað gerðist?

65 Orð | Ummæli (9) | Flokkur: Netið

CSS

janúar 7, 2007

Getur einhver CSS sérfræðingur sagt mér af hverju það birtist rauður rammi utanum Serrano logoið hér að neðan í Firefox og hvernig ég get losnað við hann? Sem og rauð lína undir myndinni í þessari færslu? (myndirnar eru tengill yfir á stærri mynd - og þetta kemur ekki í Safari á Mac).

52 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Netið

Hvað ert þú að gera þessa dagana, Einar Örn?

janúar 7, 2007

“Hvað ert þú að gera núna, Einar Örn?”

Ég hef sennilega ekki fengið margar spurningar jafnoft að undanförnu. Þessi spurning hefur sennilega tekið við af spurningum um hvað sé í gangi í ástarmálum mínum. Staðreyndin er auðvitað sú að ég hætti í vinnunni minni sem markaðsstjóri Danól síðasta sumar.

Það þýðir að ég var í raun “bara” í einni vinnu, sem er framkvæmdastjóri Serrano. Kannski hefur fólk svona mikið álit á mér, eða kannski finnst mönnum framkvæmdastjórastaða á veitingastað vera léttvæg, en fólk er oft ekki að kaupa það að ég sé “bara” að vinna í þessari einu stöðu.

Það er nefnilega pínu skrýtið að í þessu þjóðfélagi þykir það oft merkilegra að vera í skrifstofustarfi í stað þess að vera frumkvöðull. Í Bandaríkjunum er frumkvöðullinn kóngur. Hérna er orðið athafnamaður frekar notað í neikvæðri merkingu um fólk.


En ég tók fyrir nokkrum mánuðum þá ákvörðun að helga mig Serrano, allavegana í ákveðinn tíma. Ég og Emil höfum rekið þetta sem nokkurs konar hobbí síðustu 4 ár, en vorum komnir á þá skoðun að miðað við stærð staðarins og mikla velgengni, þá gengi það ekki til frambúðar - sérstaklega ekki ef við ætluðum okkur að ná fram þeim markmiðum, sem við vildum ná fram.

Þannig að ég hætti og helgaði mig Serrano. Það hefur þýtt að mestallan nóvember og desember mánuð hef ég oft staðið sveittur í eldhúsinu á Serrano í stað þess að sitja hreyfingarlaus fyrir framan tölvu einsog áður.

En mér þykir einfaldlega gríðarlega vænt um veitingastaðinn okkar Emils og vil sjá hag hans sem bestan og því finnst mér ekkert að því að ganga þar í öll störf sem þarf að ganga í.


Og það er kannski ekki úr vegi að tilkynna það hér að við ætlum í lok janúar að opna nýjan Serrano stað: Þessi staður verður á nýrri ESSO stöð sem er verið að byggja við Hringbraut. Þessi stöð er á milli BSÍ og Hljómskálagarðsins og stefnt er að því að opna þann 26.janúar.

Þetta þýðir að aðdáendur Serrano geta fengið að borða líka á kvöldin, en við höfum fylgt opnunartíma Kringlunnar, sem þýðir að við höfum hingað til lokað klukkan 7 marga daga vikunnar.

En allavegana, ég er orðinn verulega spenntur fyrir nýja staðnum. Við höfum á síðustu vikum verið að breyta nokkrum hlutum, sem að bæta gæði og þjónustu á staðnum og munum halda áfram að bæta staðinn á næstu vikum og mánuðum með nokkrum spennandi nýjungum. Ég er sannfærður um að þetta ár verði spennandi ár fyrir staðinn okkar.

419 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Vinna

My Humps

janúar 7, 2007

Fólkinu, sem stóð fyrir flugeldasýningu í Vesturbænum til klukkan 5 í nótt verður ekki boðið í afmælið mitt.


Þetta stórkostlega myndband hér að neðan tók ég í rútuferð til Phnom Penh í Kambódíu. Í þessari ferð var bílstjórinn svo vingjarnlegur að spila fyrir okkur non-stop karókí myndband með nokkrum kambódískum slögurum.

Svo að allir gætu komist í rétta stemningu var svo hljóðið stillt í hámark.

Mér fannst ég kannst við eitt lagið og ákvað að taka upp stutt myndskeið. Rútan er á hræðilegum veg, þannig að myndatakan er ekki mjög góð. En hljóðið skiptir öllu máli.



Þetta lag er náttúrulega algjör klassík!!!

102 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Ferðalög

Aconcagua

janúar 6, 2007


Emil, Borgþór, Friðrik og ég í Suður-Ameríkuferðinni okkar í nóvember 1998. Þarna erum við í gönguferð frá Puente del Inca, sem er í Argentínu við landamæri Chile.

Í baksýn er Aconcagua, hæsta fjall Suður-Ameríku.

58 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Myndir

Fjölskyldur í ófjölskylduvænum hverfum?

janúar 6, 2007

(þetta birtist fyrr í dag á bloggi Nýkrata þar sem ég skrifa)

Það er alveg þess virði að vísa á leiðara Jóns Kalddal í Fréttablaðinu í dag, sem fjallar um einstaklega furðulega herferð borgarstjóra Reykjavíkur, sama gamla Villa, gegn spilakassasal í Mjóddinni.

Nú þarf það svo sem ekkert að koma manni á óvart að Sjálfstæðismenn vilji hafa vit fyrir þegnum þessa lands, en það sem er einkennilegra er það hvernig Vilhjálmur skiptir höfuðborginni uppí “fjölskylduvæn” svæði og önnur svæði, sem eru þá væntanlega “ófjölskylduvæn”. Jón Kaldal talar um opnun spilakassasalarins:

Meginrök borgarstjóra gegn því framtaki eru að borgaryfirvöld vilji ekki starfsemi slíkra “ógæfukassa” í fjölskylduvænum hverfum.

Af því tilefni er rétt að spyrja hvort Vilhjálmur viti ekki að nú þegar eru reknir salir með spilakössum víða um borgina, og það í hverfum sem hingað til hafa ekki talist fjandsamlegri fjölskyldum en önnur hverfi? Ef sú er raunin, þá má borgarstjóri taka hinn nýja og að því er virðist röggsama lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, Stefán Eiríksson, sér til fyrirmyndar og fá sér göngutúr um borgina sína.

Nú bý ég nálægt miðbæ Reykjavíkur, þar sem rekinn er spilasalur. Það finnst Vilhjálmi allt í lagi, þar sem mitt svæði er sennilega ekki “fjölskylduvænt” í hans huga. Það finnst mér magnað þar sem að ég er alltaf að sjá lítil börn á leikskólanum við hliðiná blokkinni minni og á æfingasvæði KR, sem er ekki langt frá mér.

Borgarstjóri segir um þetta

Ég sannreyndi að til að banna spilakassa í söluturnum þarf að grafa mjög djúpt lögfræðilega en mun hins vegar fara yfir þessi mál heildstætt með eigendum spilakassanna og reyna að ná sátt um að þeir séu ekki settir upp í fjölskylduvænum fjölskyldukjörnum

Þessi spilasalur í Mjóddinni er fullkomlega löglegur og það er einfaldlega hræsni af borgarstjóra að vilja ekki svona “óæskilega”, en fullkomlega löglega starfsemi í sínu heimahverfi bara vegna þess að hann skilgreini sitt hverfi sem “fjölskylduvænt”.

Borgarstjóri þarf líka að svara fyrir það hvernig hann skilgreini ófjölskylduvæn hverfi. Eru fjölskyldyrnar sem þar búa í minni metum hjá borgarstjóra og eiga þær fjölskyldur að sætta sig við að hvers konar starfsemi sé þar rekinn á meðan borgarstjóri haldi verndarskildi yfir þær fjölskyldur sem búi í “fjölskylduvænu” hverfunum? Það væri gaman að heyra.

368 Orð | Ummæli (5) | Flokkur: Stjórnmál

Moggabloggs heilkennið

janúar 4, 2007

Mikið er ég sammála því sem Sigurjón segir og Kristján vitnar í

Moggabloggið verður að teljast sem nýju “Teljara-Ólympíuleikarnir” á netinu. Hellingur af spöðum sem þrá athygli og ást fólksins í landinu hafa hent upp síðum hjá Mogganum og blogga nú um fréttirnar sem þar eru skrifaðar eins og þeir eigi lífið að leysa. Þeir linka á skoðanir hvors annars í von um góð eða slæm viðbrögð, skiptir þá ekki máli bara svo framarlega sem þeir fá fleiri heimsóknir. Sumir síðueigendur hafa meira að segja gengið svo langt að frame-a síðuna sína inn í Moggabloggið svo þeir geti nú fengið aðeins meiri athygli. Þetta er orðið svo vinsælt að Bill O’Reilly þótti það tímabært að koma því á hreint að hann fann upp bloggið.”

Sjáið t.d. þetta blogg, sem einhver hægrimaður heldur uppi á Moggablogginu (tek þessa síðu sem dæmi þar sem hún var efsta bloggið á mbl.is þegar ég kíkti inn). Þessi aðili vísar á fréttir á MBL.is við hverja bloggfærslu. Í flestum tilfellum hefur efni færslu hans nákvæmlega ekkert með upphaflega frétt að gera og gerir því það eitt gagn að pirra lesendur mbl.is, sem smelltu á þær í góðri trú um að færslurnar bættu einhverju við efni upphaflegrar fréttar.

Sem dæmi, þá eru þetta færslur af forsíðunni og svo þær fréttir sem hann vísar í:

Frétt: Verðmætum páfagauk stolið
Blogg: Vangaveltur um CSI og aðra lögguþætti

Frétt: Eldur kviknaði í Engey en var slökktur með hraði
Blogg: Guðmundur Steingrímsson er ömurlegur

Frétt: Leki kom að báti í Suðureyrarhöfn
Blogg: Kristrún Heimisdóttir er ömurleg

Frétt: Vakt hjá Orkuveitunni um jólin
Blogg: Hannes Hólmsteinn er skemmtilegur

Hvernig er hægt að skýra þetta með öðru en að margir MBL bloggarar séu með ólíkindum athyglissjúkir. Ég er hættur að nenna að smella á bloggvísanir út frá fréttum, vegna þess að þær enda flestar á vísunum í eitthvað bull. Frekar kýs ég að hafa RSS vísanir hjá mér á þá moggabloggara, sem ég les reglulega. (Gummi Steingríms, Árni M, Ómar Valdimars, Steingrím S, Kratabloggið, Magnús Már, Hux og Sigmar G).

Miklu nær væri fyrir mbl.is að hleypa á vísanir frá öllum vefsíðum í fréttir á mbl.is fréttir (bæði pólitískum vefritum, sem og bloggum utan mbl.is) og leyfa notendum að flagga þá sem eru að misnota þessar vísanir. Mbl.is ættu svo að taka sig til og banna þeim að vísa á fréttir, sem að misnota það ítrekað.

396 Orð | Ummæli (8) | Flokkur: Netið

Little Children

janúar 4, 2007

Það er ekki oft sem ég nenni að standa í því veseni að downloada mynd, sem er ekki komin til landsins. Oftast nær er ég ekkert sérlega spenntur yfir því að sjá nýjar bíómyndir um leið og þær koma út.

En ég gerði þó undantekningu fyrir Little Children fyrir nokkrum dögum, einfaldlega af því að hún er byggð á einni af mínum uppáhaldsbókum eftir Tom Perrotta (sjá hér). Allavegana, myndin er ekki eins góð og bókin en samt ein besta mynd sem ég hef séð á þessu ári. Einhvern veginn finnst mér bókin vera í minningunni fyndin og skemmtileg, þótt hún sé vissulega erfið og sorgleg á tímum. En bíómyndin nær einhvern veginn ekki skemmtilegu hlutunum við bókina.

En það verður þó að segjast að ef að Jackie Earle Haley fær ekki Óskarinn fyrir leik sinn í myndinni, þá er eitthvað mikið að.


Núna eru komnir 5 dagar í röð þar sem ég hef ekki farið að sofa fyrir klukkan 3, sem er magnað þar sem ég fer vanalega að sofa á miðnætti. Í kvöld held ég að það sé lítil hætta á öðru en að ég verði sofnaður fyrir miðnætti.

Merkilegt.


Þegar ég kom heim og kveikti á Kastljósi sá ég að aðalmálið í íslensku þjóðfélagi í dag er úthlutun á einhverri einbýlishúsalóð í Kópavogi.

Ég er hræðilega þreyttur.

222 Orð | Ummæli (3) | Flokkur: Kvikmyndir

Fólk, sem getur hvergi tjáð sig

janúar 3, 2007

Í kvöld í næst vinsælasta fréttaþætti á Íslandi (Ísland í dag) var viðtal við andstæðing stækkunnar álvers í Hafnarfirði um að andstæðingar stækkunnar álvers fengju engin tækifæri til að tjá andstöðu sína við stækkun álversins.

Þetta viðtal var byggt á grein í stærsta dagblaði landsins um sama mál.

My head is spinning.

52 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Stjórnmál

Pöddur í Canaima

janúar 2, 2007


Emil, ég og Friðrik ásamt leiðsögumanni í Canaima þjóðgarðinum í Venezuela í janúar 1999.

Leiðsögumaðurinn tók upp stein sem var morandi í maurum og leyfði okkur að smakka maurana.

53 Orð | Ummæli (2) | Flokkur:

Áramót

janúar 1, 2007

Þetta Áramótaskaup var fokking snilld!

Ég sat í Garðabænum með rúmlega sextugu íhaldsfólki, sem fannst skaupið ekki fyndið. Það kom mér svosem ekkert sérstaklega á óvart.


Ekki eins mikil snilld er sú staðreynd að ég drakk eitthvað heimabrugg í partýi í gær. Mér er ennþá óglatt og langar að æla. Að ég skuli ekki hafa ælt í leigubílnum í gær er lítið og fallegt kraftaverk. Djöfulsins óþverri.

Álíka ósniðugt er að setja Liverpool leik klukkan 1 á nýársdag svo ég þurfi að vakna svona snemma. Pepto bismol og Excedrin virðist lítið gagn gera akkúrat núna. Það sem maður leggur á sig til að horfa á fótbolta.

Uppfært (17:30): Mig langar enn að æla.

114 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Almennt


Warning: readfile() [function.readfile]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2007/01/index.php on line 1575

Warning: readfile(http://www.eoe.is/hlid.dat) [function.readfile]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2007/01/index.php on line 1575