Warning: include() [function.include]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2007/03/index.php on line 149

Warning: include(http://www.eoe.is/tilkynning.dat) [function.include]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2007/03/index.php on line 149

Warning: include() [function.include]: Failed opening 'http://www.eoe.is/tilkynning.dat' for inclusion (include_path='.:/usr/share/php5:/usr/share/php') in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2007/03/index.php on line 149

« febrúar 2007 | Main | apríl 2007 »

Páskar

mars 29, 2007

Jösssss, syngjandi páskastelpan frá Ölgerðinni er farin að birtast í sjónvarpinu. Ég er því officcially kominn í páskaskap.

* * *

Í dag endurheimti ég uppáhaldsúlpuna mína. Á laugardagskvöldið setti ég hana á gólfið inní horn á Vegamótum, þar sem ég var ekki alveg til í að dansa í þykkri úlpu. Þegar kom að því að endurheimta úlpuna, þá var hún farin. Ég leitaði á örvæntingarfullan hátt í nokkrar mínútur en gafst að lokum upp og hljóp heim í Vesturbæinn á peysunni.

Reykingalyktin af úlpunni núna er ólýsanleg. Ég er sannfærður um að ef úlpan hefði verið sett inní lítið herbergi með 15 keðjureykjandi simpönsum í tvær vikur, þá væri reykingalyktin ekki jafn sterk og lyktin er af úlpunni núna.

* * *

Annars var þetta ótrúlega skemmtilegur dagur í vinnunni í dag. Veit ekki hvort að veðrið hefur svona áhrif á mig.

* * *

Er þetta Baugsmál búið núna? Plíííííííís segið mér að svo sé!

157 Orð | Ummæli (7) | Flokkur: Dagbók

BD

mars 28, 2007

Í dag væri gott að búa í Stokkhólmi.

8 Orð | Ummæli (7) | Flokkur: Tónleikar

Spekingur hoppar í sjó

mars 28, 2007


Merkileg mynd, ekki satt?

Búið til með Museumr. Upprunalega myndin er hérna

13 Orð | Ummæli (2) | Flokkur:

Bækurnar á náttborðinu

mars 25, 2007



Ég þarf nauðsynlega að hætta að kaupa mér bækur þangað til að ég næ að klára eitthvað af þeim bókum, sem ég á eftir að lesa.

Smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu og lesa útskýringar við hverja bók.

40 Orð | Ummæli (5) | Flokkur: Myndir

Íslandshreyfingin?

mars 22, 2007

<Moggablogg>Heldur þetta fólk í Íslandshreyfingunni virkilega að einhverjir Sjálfstæðismenn muni kjósa þau?

Samfylkingarmaður sem féll í prófkjöri, kona sem féll í varaformannskjöri hjá Frjálslyndum og Ómar Ragnarsson! Á þetta fólk að vinna til sín fylgi frá Sjálfstæðismönnum?! Og svo er stefnuskráin nánast einsog þau hafi ljósritað stefnuskrá Samfylkingarinnar. Allavegana sé ég ekki muninn.

Geir HH og vinir eru eflaust að tapa sér af gleði yfir þessu framboði, sem mun ekkert gera nema taka fylgi af vinstriflokkunum og auka líkurnar á að þessi ríkisstjórn haldi velli<⁄Moggablogg>

Biðst velvirðingar á leiðinlegustu færslu allra tíma. Vont veður og þreyta hefur sennilega haft áhrif á mig. Núna eftir 1 bolla af Pickwick grænu tei með ginseng, þá er ég allur miklu betri. Sem er ágætt því ég á víst að vera mættur á Vegamót eftir klukkutíma.

132 Orð | Ummæli (7) | Flokkur: Stjórnmál

Grand Canyon, Guacamole og George Foreman

mars 21, 2007

Í útvarpinu hljómar nú auglýsing frá Fljótt & Gott hjá BSÍ, sem eru nágrannar okkar á Serrano Hringbrauti. Auglýsingin inniheldur meðal annars þessa línu:

“Ekkert guacamole kjaftæði”

Ég segi bara “I’m flattered!”

(Uppfært: Samkvæmt Svansson er þetta lína úr Mýrinni)

* * *

Í kvöld eldaði ég SILUNG! Mamma myndi tárast af gleði.

* * *

Í tengdum fréttum: Í síðustu viku keypti ég mér George Foreman grill. Dan vinur minn átti engin lýsingarorð til að lýsa snilli þess tækis. Hann átti aðeins tvö eldhústæki, ískáp fullan af Bud Light og frosnum kjúklingabringum og svo George Foreman grill til að hita frosnar kjúklingabringur.

* * *

Fyrir þrem árum var ég í Grand Canyon í Arizona, sem er meðal allra merkustu staða, sem ég hef komið á á ævinni. Þrem árum áður var ég ásamt fyrrverandi kærustu í Toronto þar sem við fórum upp í CN turninn, sem er hæsta frístandandi bygging í heimi. Í þeirri byggingu er glergólf, sem ég hef afrekað að standa á. Það er ein svakalegast lífsreynsla ævi minnar því að 2 sekúndur á því gólfi ullu einhverri svakalegustu lofthræðslu, sem ég hef upplifað á ævinni. CN turninn er 553 metrar hár, en glergólfið er í 342 metra hæð.

Núna er búið að byggja göngubrú útá Grand Canyon (sjá grein). Sú glerbygging er í 1219 metra hæð. Semsagt 4 sinnum hærra en CN turninn (sjá samanburð við margar háar byggingar hér).

Fólk sem hættir sér útá þessa göngubrú er hetjur.

244 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Dagbók

Ó nei!

mars 21, 2007

Ó nei!

Hvernig á ég núna að fá fréttir af líkinu hennar Önnu Nicole þrisvar á dag?

17 Orð | Ummæli (3) | Flokkur: Sjónvarp

Lost?

mars 19, 2007

Get ég fengið þennan klukkutíma, sem ég eyddi í að horf á Lost, tilbaka? Ég gæti þá eytt honum í eitthvað gagnlegra, einsog að horfa á parketið mitt.

* * *

Og ég mun aldrei nota aðra leitarvél en þessa. Þvílík gargandi snilld!

43 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Sjónvarp

Dúdúrúmmmm

mars 18, 2007

Jæja, þá getum við þakkað Vinstri Grænum fyrir það að við munum ekki geta keypt áfengi í matvörubúðum. Alveg get ég ekki skilið af hverju þetta er svona mikið mál.

* * *

Á föstudagksvöld inná Boston (sem er skemmtistaður á Laugavegi fyrir þá sem fara ekki oft á djammið) hitti ég strák sem ég kannaðist við og heilsaði. Þennan strák þekki ég einungis vegna þess að hann er á rosalega mörgum myndum á blogginu hennar Katrínar. Það þykir mér fyndið.

Annars er Boston fínn staður - kemst sennilega einna næst því að líkjast heimapartýi og hægt er að komast. Einsog partý með bar í stofunni og dálítið meira af ókunnugu fólki en vanalega. Annars afrekaði ég það að fara á djammið án þess að kíkja inná Vegamót (Apótek - Kúltúra - Boston - Kúltúra). Það er visst afrek.

Fór líka á upptöku af X-Factor (ekki spyrja mig af hverju). Ég sé að ég hef ekki misst af miklu þar sem ég er ekki áskrifandi að Stöð 2. Þetta er allavegana ekki fyrir mig. Best að segja ekki meira en það.

* * *

Í dag horfði ég á leiðinlegasta fótboltaleik ársins.

192 Orð | Ummæli (15) | Flokkur: Dagbók

Float on

mars 16, 2007

Af hverju?

Jesús Kristur Jósepsson, AF HVERJU?

7 Orð | Ummæli (1) | Flokkur: Tónlist

iRack

mars 15, 2007

0 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Netið

Ég...

mars 14, 2007
  • … hata þennan auðkennislykil. Hann hefur einstakt lag á að vera í öðru herbergi en ég þau 2-3 skipti sem ég þarf að komast inná fyrirtækjabankann á hverjum degi. Minn lykill er líka að detta í sundur, þar sem að gúmmíið er dottið af honum
  • … erað fíla nýju Arcade Fire og Modest Mouse diskana.
  • … trúi því ekki að RÚV ætli að sýna frá þessum Alþingis umræðum
  • … þoli ekki þá staðreynd að veðurfréttatímar séu á sama tíma á Stöð 2 og RÚV. Það þykir mér vera mikil grimmd, því leiðinlegra sjónvarspefni er ekki hægt að finna.
  • … er með hausverk.
107 Orð | Ummæli (8) | Flokkur: Almennt

Vaknaðir?

mars 13, 2007

Jæja, Ingvi Hrafn er vaknaður

Þið liggur við að fylgisaukning vinstri grænna sé hætt að vera fyndin og allt í einu setji að manni hroll við tilhugsun um að þetta fólk gæti komist til áhrifa í þjóðfélaginu og kallað yfir okkur kjarnorkuvetur í efnahagsmálum.

Hvenær ætli aðrir Sjálfstæðismenn hætti að gleðjast yfir fylgistapi hjá frjálslyndum jafnaðarmannaflokki og byrji að átta sig á því að næst stærsti flokkur landsins er sósíalistaflokkur, sem er eins ósammála þeim í efnahags-, varnar- og utanríkismálum einsog hægt verður að komast?

85 Orð | Ummæli (5) | Flokkur: Stjórnmál

Cardigans

mars 12, 2007

Ég fokking ELSKA þetta lag.

5 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Tónlist

Blogg?

mars 10, 2007

Þegar ég renni yfir síðustu færslur á þessari síðu þá er ekki laust við að ég skammist mín fyrir leiðindin sem ég hef verið að skrifa hérna inn að undanförnu. Af ýmsum ástæðum hafa fáar áhugaverðar færslur verið settar hingað inn. Jú, ég hef verið í útlöndum, hef verið að deita (sem dregur alltaf úr fjölda athyglsiverðra pistla) og svo var ég erlendis í einhverja daga.

En það koma einfaldlega svona tímabil á þessari síðu þar sem ég hef ekkert spennandi fram að færa. Ef ég væri Moggabloggari, þá myndi ég leysa málið með því að skrifa einnar setningu færslur um svona 10 mismunandi fréttir, eða þræta yfir klámi. En vandamálið er bara að ég hef mjög lág þolmörk þegar kemur að svona þrætum. Það er sennilega ástæðan fyrir því að stjórnmálastarf hefur aldrei heillað mig neitt alltof mikið þrátt fyrir brennandi áhuga á stjórnmálum.

Ég verð fljótt þreyttur á þessum eilífu þrætum. Þegar ég les bloggsíður og þá sérstaklega á Moggablogginu þá virðist mér fólk hafa ódrepandi áhuga á að ræða sama málefnið aftur og aftur og aftur. Til að mynda þá gaus uppí mér einhver réttmæt reiði í tengslum við þessa klámráðstefnu hysteríu, en svo missti ég allan áhuga á málefninu. Á meðan ég missti áhugann virðist fólk endalaust geta þrætt um þetta fram og tilbaka.


Einhvern veginn finnst mér líka mitt einkalíf heldur ekki vera efni í margar færslur hérna á þessari síðu. Þegar ég var kannski eitthvað niðri og skorti sjálfstraust og sjálfsálit, þá fannst mér þessi síða vera góður vettvangur til að tjá mig um hlutina og fá í gegnum hana einhvern skrýtinn stuðning sem að hjálpaði mér.

En í dag líður mér bara helvíti vel. Ég er fullur af sjálfstrausti og mér finnst vera eitthvað point í því sem ég er að gera. Í stað þess að vinna vinnuna mína fyrir hvern dag, þá finnst mér ég núna eftir að ég hætti í gömlu vinnunni, ég vera actually að vinna í áttina að einhverju sem getur gefið mér einhverja gleði eða lífsfyllingu. Ég veit ekki hvort það verður raunin, en þannig líður mér samt.


Ég verð æ oftar minntur á það að ég er sennilega fyrst og fremst þekktur utan míns vinahóps fyrir að vera bloggari. Það finnst mér afskaplega furðulegt, en æ oftar rek ég mig á það hversu víðlesin þessi síða er. Nú er það svo að ég fylgist ekki með teljaranum á síðunni, þar sem það segir mér voðalega lítið hvort að heimsóknirnar á þessa síðu sé orðnar 6 eða 700 þúsund. En í mínu lífi rekst ég oftar á það að fólk gerir sér upp ákveðnar hugmyndir um mig út frá síðunni minni.

Ég lendi nánast í hvert einasta skipti sem ég fer útað djamma í því að einhver stelpa komi uppað mér og segist lesa bloggið mitt. Mér finnst það í raun æðislegt og ég verð dálítið upp með mér við að heyra það. En það fær mann líka til að velta því fyrir sér hvers konar ímynd fólk fær af mér við lesturinn. Þegar ég hitti fólk við slíkar astæður finnst mér líka oft óþægilegt hversu upplýsingunum er misskipt. Ég veit ekkert um viðkomandi, en hann/hún hefur aðgang að hundruðum mynda af mér, veit hvert ég hef ferðast og svo framvegis. Einnig er svo hætta á því að sögurnar sem ég segi verði lítið spennandi vegna þess að viðkomandi hafi lesið þær áður á blogginu mínu.


Allt þetta hefur gert það að verkum að þetta blogg hefur smám saman orðið litlausara, umræðan verður æ minna beitt og ég þori ekki að segja fulltaf hlutum. Ég þori oft ekki að setja stjórnmálaskoðanir mínar fram á eins beittan hátt og mig langar, einfaldlega vegna þess að ég gæti skaðað fyrirtækið mitt á einhvern hátt. Og ég vil oft ekki að tjá mig um mitt einkalíf af ýmsum ástæðum.

Ein ástæðan er sú að fólk fær oft ranga ímynd af mínu lífi við blogglesturinn. Einn vinur minn spurði mig fyrir stuttu af hverju ég hefði ekki átt í neinum sanböndum við stelpur að undanförnu? Ég tjáði honum að ég hefði verið að deita nokkrar stelpur, en auðvitað finndist mér fráleitt að blogga um það. Hann hafði dregið þá ályktun af því að lesa bloggið að ég væri alltaf á lausu.

Mér finnst oft sem þessi bloggsíða sé skaðleg fyrir sambandið við vini og kunningja. Þeir telja sig fá góðar upplýsingar um mig frá síðunni og ég skemmi oft margar sögurnar mínar með því að skrifa þær fyrst inn hérna og segja þeim þær svo í eigin persónu síðar. Það er hálf asnalegt. Ég lofaði mér einhvern tímann að segja aldrei við vini mína: “Hefurðu ekki lesið bloggið mitt?” þegar þeir forvitnuðust um eitthvað í mínu lífi.


En svona er þetta bara akkúrat núna. Real Madrid - Barca er að byrja eftir hálftíma og í Vesturbænum er brjálaður bylur og ég að hlusta á Sigur Rós, sem veldur því að ég verð eitthvað melódramatískur.

Og svo fannst mér ég þurfa að skrifa hingað inn einhverjar aðeins líflegri pælingar en tónlistarmyndbönd og vangaveltur um VG og ESB.

Annars er ég bara hress. :-)

854 Orð | Ummæli (12) | Flokkur: Dagbók

Ruby Ruby Ruby Ruuuuby

mars 8, 2007

Svo ég vitni í ferðasöguna hans Kristjáns Atla, sem er á Liverpool blogginu:

Leikurinn gegn Barca var síðan ein stór klikkun. Við Einar Örn sátum saman og við, sem og aðrir á vellinum, stóðum meira og minna allan tímann. Vorum komnir inná völlinn 45-50 mínútum fyrir leik og fórum ekki út fyrr en tíu mínútum eftir leikslok … og allan tímann var sungið. Þetta gekk svo langt að í hálfleik, þegar menn fóru á klósettið og slíkt og gerðu rétt sem snöggvast hlé á Liverpool-söngvunum, var spilað í hátalarakerfinu lagið “Ruby Ruby” með Kaiser Chiefs. Völlurinn gerði sér lítið fyrir og söng hástöfum með því lagi líka. Klikkuð stemning.

Ég hef verið með tvö lög á heilanum síðustu daga. Annað er Fields of Anfield Road.

Hitt lagið er þetta:


Kaiser Chiefs - Ruby

133 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Tónlist

VG og ESB

mars 8, 2007

Af vef Samfylkingarinnar á Akureyri þar sem fjallað er um þá mögnuðu stórfrétt að VG og xD hafi komist að sameiginlegri niðurstöðu um að vera á móti ESB aðild Íslands:

Nú virðast þessir flokkar á ysta kanti íslenskra stjórnmála vera að ná saman um einangrun landsins til framtíðar. Það er alvarlegt umhugsunarefni. Tæplega þrjátíu þjóðir í Evrópu hafa nú sameinast í ESB og fleiri vilja komast inn. Það er aðeins tímaspursmál hvenær Noregur sækir um inngöngu þó svo staða þeirra sem vellauðugrar þjóðar sé allt önnur en okkar.

Það er því þessi staðreynd sem blasir við. VG og Sjálfstæðisflokkurinn hafa náð saman um einangrun landsins til framtíðar þó svo ég trúi því að það sé á ólíkum forsendum. Sjálfstæðismenn af því pólitískt ofurvald flokksins á þjóðfélagið mundi rýrna en VG bara af því eru þröngsýnn og óraunsær sócalistaflokkur með torfkofavinkil á Íslenskt samfélag.

Þetta minnir mig á spurningu, sem ég hef ennþá ekki fengið svar við: “Af hverju eru Vinstri Grænir á móti inngöngu í ESB?”

Ég skil af hverju xD eru á móti (þeim finnst (oft af furðulegum ástæðum) þetta vera sósíalistabákn) en ekki af hverju Vinstri Grænir eru á móti. Getur einhver skýrt þetta út fyrir mér?

199 Orð | Ummæli (2) | Flokkur: Stjórnmál

Aldo og ég

mars 7, 2007


Ég og snillingurinn John Aldridge með Evrópubikarinn inná pöbbnum hans Aldo í Liverpool á sunnudagskvöldið.

39 Orð | Ummæli (4) | Flokkur:

Liverpool

mars 5, 2007

Spurt er: Er Easy Internet versta netkaffihusakedja i heimi? Svar: Ja


Eg er i Liverpool og skrifa thetta a olysanlega lelega tolvu. Atta mig ekki a thvi hvernig internetkaffihusin i Kambodiu gatu verid betri en thau a Englandi.

Thad var vist einhver fotboltaleikur a laugardaginn, en einhvern veginn er hann horfinn ur minninu. A morgun er thad Barcelona-Liverpool a Anfield og eg er ordinn verulega spenntur.

67 Orð | Ummæli (1) | Flokkur: Ferðalög


Warning: readfile() [function.readfile]: URL file-access is disabled in the server configuration in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2007/03/index.php on line 1146

Warning: readfile(http://www.eoe.is/hlid.dat) [function.readfile]: failed to open stream: no suitable wrapper could be found in /data/vhosts/andri/eoe.is/gamalt/2007/03/index.php on line 1146