Skráarsafn fyrir July, 2007

Jul 29 2007

Gærdagurinn

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók

Ég var í brúðkaupi í gær, sem var skemmtilegt einsog hefð er fyrir í brúðkaupum vina minna.

Highlight kvöldsins fyrir mig voru tvö. Fyrir það fyrsta mjög metnaðarfullar tilraunir vinkvenna minna við að koma mér á sjens með einni stelpunni í boðinu. Hið seinna var svo þegar að vinur minn sýndi fyrirlitningu sína á sólgleraugunum mínum með því að henda þeim í vegg. Hann vildi að ég losaði mig við þau og fengi mér í staðinn gleraugu frá alvöru merki, en ekki gleraugu sem væri hægt að kaupa á 5 pund í Next.

Kíktum svo saman í bæinn á Vegamót / Boston / Ölstofuna. Vorum þar til klukkan 3.

Sem var frábært, því ég var farinn að sofa rétt eftir klukkan 3. Munurinn á því og að fara að sofa klukkan 6-8 einsog hefur gerst á flestum djömmum undanfarið, er gríðarlegur. Ég vildi óska þess að íslenskir skemmtistaðir færu aftur í gamla opnunartíma sinn. Þegar maður verður eldri (hóst) þá kann maður alltaf betur að meta fríin um helgar og það er svo hræðileg sóun að eyða öllum deginum í þynnku.

Mun betra væri að geta gert þetta einsog í Bretlandi. Það er að kíkja útá lífið um klukkan 7 og vera svo búinn rétt eftir miðnætti. Það myndi þýða að maður gæti náð 8 tíma svefni, en verið samt vaknaður fyrir klukkan 10 daginn eftir. Þá ætti maður allan daginn framundan til að njóta, í stað þess að allur dagurinn fari í svefn. Þetta myndi bæta skemmtanalífið í Reykjavík til muna og einnig hvetja fleira fólk til þess að kíkja út á lífið. Margir á Íslandi hætta mun fyrr að fara útá lífið en í útlöndum og ég held að ein stærsta ástæðan sé það hversu lengi fólk er að í bænum.


Ég er enn að reyna að gera það upp við mig hvort ég eigi að skella mér til útlanda um næstu helgi og ef svo er, hvort ég eigi að fara til London í n-ta skipti eða til Skotlands. Veðrið í London lítur ágætlega og svo hef ég alltaf ætlað að fara og skoða Stonehenge, sem ég gæti gert núna. Verð að ákveða þetta í dag.

4 ummæli hingað til

Jul 28 2007

Skotland?

Einar Örn skrifaði í flokkinn Ferðalög

Ok, ég fékk þá flugu í höfuðið að skella mér til Skotlands um næstu helgi (þangað hef ég aldrei komið), þar sem ég hef í raun ekkert frí tekið mér í sumar fyrir utan eina helgi í Chicago/DC sem ég bætti aftan á vinnuferð..

Ég sé að Icelandair er með flug til Glasgow.  Nú spyr ég: Ef ég hef 4 daga í Skotlandi, hvað á ég að gera?  Á ég að eyða meiri tíma í Edinborg eða Glasgow?  Er eitthvað í nágrenni þessara borga, sem ég á að skoða?

6 ummæli hingað til

Jul 28 2007

Hugarró

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók, Netið

Svona lítur MBL.is hjá flestum (smellið á mynd til að sjá stærri útgáfu):

Svona lítur það út hjá mér eftir smá breytingar. Engar geðsýrðar hreyfiauglýsingar, sem gefa manni flogaköst. Og það sem er mikilvægast: ekkert tuð frá Moggabloggurum við hverja einustu helvítis frétt.

Þökk sé þessu og þessu.


Annars er það alveg ólýsanlega æðislegt að vakna svona snemma á laugardagsmorgni, laus við alla þynnku og allt vesen. Vikan er búin að vera ótrúlega spennandi og skemmtileg, sérstaklega þegar að kemur að vinnu. Fulltaf spennandi hlutum, sem ég get vonandi greint frá fljótlega. Í morgun er búinn að eyða síðustu 3 tímunum í vinnu og því get ég slappað af án samviskubits. Ætla að fara útá svalir í sólina og lesa nýju bókina mínaþ

Svo seinna í dag er ég að fara í giftingu til góðs vinar míns. Í lok dagsins verða því aðeins tveir ógiftir strákar úr Verzló vinahópnum. Úff.

En ég er verulega spenntur fyrir brúðkaupinu. Steggjaveislan um síðustu helgi var skemmtileg og UJ útilegan sem ég fór í á eftir veislunni var líka afskaplega skrautleg og skemmtileg.

Þetta er fínt líf.

12 ummæli hingað til

Jul 25 2007

Jessica

Einar Örn skrifaði í flokkinn Netið

Ok, ég er fluttur til Los Angeles.

5 ummæli hingað til

Jul 24 2007

Þú leggur einsog hálfviti

Einar Örn skrifaði í flokkinn Netið

Þessi síða hér er mesta snilld í heimi: You Park like an asshole.com.

Fyrir mann einsog mig, sem þarf að leggja a.m.k. einu sinni á dag í Kringlunni og í miðbænum, þá er auðvelt að sjá þörfina fyrir svona síðu. Hún gengur útá það að ef þú sérð einhvern bíl, sem er lagt af hálfvita, þá geturðu prentað út miða sem vísar á síðuna og lagt hann á rúðuna á bílnum. Þegar viðkomandi hálfviti sér miðann getur hann farið á vefsíðuna og lært hvernig hann á að leggja almennilega í stæði.

Einnig er skemmtilegt myndaalbúm af því hvernig hálfvitar leggja. Af öllum hlutum í heiminum held ég að það sé ekkert sem fari meira í taugarnar á mér en þegar ég sé fólk leggja bílnum svona

(via DF)

9 ummæli hingað til

Jul 23 2007

Verðlagning Sýnar

Einar Örn skrifaði í flokkinn Fjölmiðlar

Ég þarf nauðsynlega að fara að skrifa e-ð á þessa síðu.  Hef svo sem nóg til að skrifa um.

En þangað til þá bendi ég á þessa grein og umræðu á Liverpool blogginu um verðlagningu á Sýn 2.  Okkur á blogginu tókst að koma af stað mjög góðum umræðum um þessa verðlagningu og varð það m.a. til þess að rætt var um þetta í íþróttaþætti í útvarpinu í hádeginu og einnig verður fjallað um þetta í Íslandi í Dag.

Annars er ég bara hress.

2 ummæli hingað til

Jul 17 2007

Fokking álfar maður

Einar Örn skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Í finnskum þætti um Ísland er viðtal við íslenska stelpu, sem heldur því fram að 90% af Íslendingum trúi á álfa.

Af hverju í andskotanum þarf alltaf að ljúga þessu uppá útlendinga?  Það TRÚIR ENGINN Á ÁLFA Á ÍSLANDI!  Erum við ekki nógu skrýtin í augum útlendinga án þess að við þurfum að viðhalda þessari goðsögn um það að allir trúi á álfa?


Áðan var ég í barnaafmæli þar sem við töluðum m.a. um þetta stórhættulega glæpagengi, sem hefur verið að mótmæla stóriðju á Íslandi undanfarna daga.

Fréttin um þetta mál í kvöldfréttatíma sjónvarps á laugardaginn var óborganleg.  Kynningin var eitthvað á þessa leið:

“Mótmæli umhverfisverndarsinna leystust uppí óeirðir”.

Og svo var klippt á fréttakonu, sem var akkúrat staddur í miðjum “óeirðunum”.  Við hliðiná henni voru 5 krakkar í trúðabúningum að ulla á myndavélina.  Þetta er einhver allra magnaðasta notkunin á orðinu “óeirðir”, sem ég hef séð.

6 ummæli hingað til

Jul 16 2007

Eheheeeeeh…

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók

Góða kvöldið!

  • Ég elska þetta veður!
  • Ég elska að geta gengið um á sandölum og í stuttbuxum.
  • Ég var með tvo frábæra bandaríska stráka á Couchsurfing um helgina.
  • Við fórum á djammið á laugardaginn. Byrjuðum á Vegamótum og vorum þar til 3
  • Hitti fyrrverandi fótboltaþjálfara minn.
  • Hann staðfesti sögu sem ég hef sagt nokkrum sinnum. Málið er að þegar ég var sirka 13 ára þá fór ég með Stjörnunni á knattspyrnumót í Wales. Ég var á yngra ári og spilaði með B-liðinu. Einn af andstæðingunum var Dynamo Kiev. Sá leikur var eftirminnilegur. Fyrir það fyrsta þá spilaði ég frammi og sá um að taka miðjur. Þær urðu alls 15 talsins í leiknum, þar sem við töpuðum 14-0. Dynamo Kiev strákarnir voru miklu stærri og betri en við. Nokkrum árum síðar las ég viðtal við þennan ágæta framherja. Þá komst ég að því að hann var akkúrat einn af þessum strákum, sem spiluðu á móti okkur. Væntanlega var hann framherjinn sem skoraði að mig minnir helming marka Kiev liðsins. Þannig að þrátt fyrir að ferill minn í fótbolta hafi ekki verið glæsilegur þá get ég allavegana alltaf sagt að ég hafi spilað á móti Andriy Shevchenko (þetta er staðfest á Wikipdia síðunni um Shevchenko).
  • Um 3 leytið urðum við þreyttur á Vegamótum og ákváðum að færa okkur um set. Það voru hins vegar biðraðir á öllum stöðum þannig að við ákváðum að hætta okkur niður fyrir Lækjargötu og á Hressó. Það var skrautlegt.
  • Fyrir það fyrsta þá var strákurinn, sem ég var með, laminn þegar hann reyndi að stoppa slagsmál á miðju dansgólfinu.
  • Þegar við komum út sáum við svo slagsmál númer 2.
  • Við hittum svo hinn strákinn og hann sagði að einhver Íslendingur hefði ýtt sér þegar hann var að fara í hraðbanka.
  • Ég skil ekki hvernig fólk nennir að slást á djamminu.
  • Við löbbuðum svo niðrá tjörn. Í tjörninni sá ég glytta í fjallahjól og óð því útí tjörnina og náði það. Hjólið reyndist vera í fínu lagi og ákvað ég því að hjóla aðeins um nágrennið enda veðrið stórkostlegt.
  • Um 7 leytið hittum við hóp af sósíalistum sem voru í einhvers konar picnic við tjörnina. Þar sátu þau, staupuðu Absolut og sungu Internationale-inn. Við ákváðum að setjast hjá þeim og spjalla, enda einn Íslendinganna ákafur í að ræða við Bandaríkjamennina um stjórnmál.

Jammmm…

4 ummæli hingað til

Jul 13 2007

Kæra veður

Einar Örn skrifaði í flokkinn Almennt

Kæra íslenska veður.  Ég tek til baka sumt af því versta sem ég hef sagt um þig.

Þú ert ekki mesta og viðbjóðslegasta drasl í heimi og þú ert ekki orsök alls ills á þessu landi.  Ef þú værir bara oftar einsog þú ert í dag, þá gæti ég hugsanlega tekið þig í einhvers konar sátt.

Kveðja, Einar Örn

Ein ummæli hingað til

Jul 12 2007

Lonely Planet bókahillan mín

Einar Örn skrifaði í flokkinn Ferðalög, Myndir

(Smelltu á myndina til að sjá stærri útgáfu og til að sjá útskýringar á því af hverju ég keypti viðkomandi bók.)

Ólíkt mörgum bakpokaferðalöngum þá hendi ég aldrei eða sel Lonely Planet bækurnar mínar. Ég geymi þær alltaf og safnið mitt verður því sífellt stærra.

Þetta eru orðnar 27 bækur og þótt 4 séu eiginlega svindl (þar sem ég hef ekki komið til þeirra staða og er ekki með það á dagskránni) þá hafa þær flestar tilfinningalegt gildi fyrir mig. Þær eru ákveðinn hluti af minningunum frá ferðalögunum mínum.

8 ummæli hingað til

Jul 11 2007

Rifrildi

Einar Örn skrifaði í flokkinn Netið

Á Moggablogginu getur fólk rifist í meira en tvo daga um það hvaða skilaboð táknmyndir á klósettum í Hollandi senda konum.

Og það í miðjum júlí.

* * *

Í gær sá ég Önnu.is í fyrsta skipti. Ég leit út einsog bjáni, nýkominn heim frá því að hlaupa eftir Ægissíðunni og sagði því ekki hæ. Mér finnst alltaf jafn óþægilegt að segja hæ við fólk sem ég þekki bara af því að lesa bloggið þeirra. Samt finnst mér alltaf jafn yndislega skemmtilegt þegar að fólk kemur upp að mér og segist lesa bloggið mitt. Reyndar gerist það nær án undantekninga á djamminu og ég því hálf sjúskaður, en samt æðislegt.

* * *

Úti í USA sá ég fyndnustu mynd ársins, sem heitir Knocked Up. Ég ætlaði að fara að mæla með henni fyrir alla mína vini, en sá svo að hún er ekki frumsýnd á Íslandi fyrr en 28.september. Þetta er skrýtið land. Allar leiðinlegu stórmyndirnar eru sýndar strax, en svo þarf maður að bíða eftir myndum sem maður er spenntur fyrir. Til dæmis einsog Knocked Up og Sicko. Ég sá þær báðar útí USA. Sicko er líka mjög góð.

Engin ummæli enn

Jul 10 2007

iPhone

Einar Örn skrifaði í flokkinn Tækni

Ég fór næstum því að gráta þegar ég horfði á þetta myndband.

11 ummæli hingað til

Jul 10 2007

Lesbísk gengi að taka yfir Bandaríkin, Fratellis, Emil og fleira

Einar Örn skrifaði í flokkinn Fjölmiðlar

Ó, Bill O’Reilly er snillingur

Eftir viðtalið viðurkenndi viðmælandi Bills eftirfarandi hluti:

Hann sagði í viðtalinu að í Washington DC væri 150 lesbísk gengi. Hið rétta er að í borginni eru 150 gengi og af þeim séu hugsanlega einhver lesbísk. Einnig sagði hann í viðtalinu að þessi lesbísku gengi væru orðin landlæg plága, en réttara hefði verið að segja að á landsvísu væru vaxandi áhyggjur af öllum tegundum af gengjum og að einhver þessara gengja væru lesbísk.

Fox News klikka ekki. (via Dlisted)

* * *

Þetta er rosalegur bíó trailer (via DF)

* * *

Ég var afskaplega hress (og drukkinn) á djamminu á Vegamótum á laugardaginn Þrátt fyrir að myndin af mér sé hræðileg, þá er hún samt betri en fyllerísmyndir af mér eru vanalega. Það segir meira en mörg orð. Emil vinur minn er þarna að pósa með pósu sem hann hefur sjálfur fullkomnað í gegnum árin. Pósan heitir “Að taka Emil”. Fáir ná henni jafnvel og hann.

* * *

Nú hlusta ég ekki á útvarp, þannig að ég veit ekki hvort að Flathead með The Fratellis var einhvern tímann vinsælt lag hérna á Íslandi. En eftir að ég kom frá USA er ég með það á heilanum. Mig langar alltaf til að hoppa þegar ég hlusta á það. Sem þýðir að ég hlusta helst aðeins á það inní herbergi hjá mér, svo að nágrannarnir haldi ekki að ég sé að verða geðveikur.

Þú getur hlustað á Fratellis lagið á MæSpeis prófílnum þeirra. Ef þú vilt hlusta á lagið á meðan þú horfir á mynd af mér og lest um mig, þá geturðu líka hlustað á það á MæSpeis prófílnum mínum. :-)

Ok, ekki meira kaffi.

Ein ummæli hingað til

Jul 08 2007

Ég á Facebook

Einar Örn skrifaði í flokkinn Netið

Þar sem mér fannst ég ekki sóa nægilega miklum tíma á MySpace, þá ákvað ég að búa líka til prófíl á Facebook. Hef reyndar verið með þennan prófíl nokkuð lengi en ekkert gert í honum fyrr en nú.

* * *

Annars er það af mér að frétta að ég er að deyja úr þynnku eftir djamm á Vegamótum í gær. Takk fyrir að spyrja.

  * * *

Ég elska Galapogos með Smashing Pumpkins.   Ó já!

2 ummæli hingað til

Jul 06 2007

Ástir á MæSpeis og í Séð & Heyrt

Einar Örn skrifaði í flokkinn Fjölmiðlar

Ó, það er svo rómó að skoða forsíðuna á Séð & Heyrt þessa vikuna, sem ég rakst á útí Melabúð (smellið á myndina til að fá stærri útgáfu).

MySpace ást

Tvennt er athyglisvert við þessa frétt. Fyrir það fyrsta, þá virðist vera einhver von fyrir þá þúsundir erlendra karlmanna, sem að hanga á MæSpeis síðum íslenskra stelpna (sérstaklega þeirra ljóshærðu). Fyrst þessi ástarsaga og svo núna er það sjálf Ungfrú Ísland. Ég ætti kannski að eyða enn meiri tíma á MySpace :-)

En án alls gríns, þá finnst mér seinni punkturinn við þetta mál vera hálf krípí – eða allavegana miðað við þær forsendur sem ég gef mér (sem ég veit ekki hvort eru réttar). Við greinina er slatti af myndum. Þar á meðal myndir af Jóhönnu með stjúpmömmu sinni og eftir að hún var krýnd Ungfrú Ísland. Þær myndir eru sagðar vera teknar af Birni Blöndal, en að aðrar myndir séu “úr safni”.

Þetta “úr safni” finnst mér hálf skrýtið þar sem ég get hreinlega ekki séð annað en að hinar myndirnar séu myndir teknar af MySpace síðu Jóhönnu. Þarna er stór mynd, sem ég get ekki betur séð en að sé prófíl mynd Jóhönnu þessa stundina (þau að leiðast á ströndinni). Sú mynd er klárlega tekin af netinu þar sem hún er í mjög lélegri upplausn í Séð & Heyrt. Ég verð því að efast um að Jóhanna hafi látið S&H fá myndirnar – þar sem hún á væntanlega myndirnar í hærri upplausn í sínu einkasafni.

Hinar myndirnar sem eru í greininni eru svo alveg dæmigerðar MæSpeis myndir (meira að segja ein mynd sem er tekin í spegli – gæti ekki verið meira MæSpeis!). Til að mynda er mynd af stráknum í mjög grófri upplausn. Jóhanna er með lokað á sinn prófíl, nema fyrir vini, þannig að ég get ekki sannreynt að myndirnar séu allar á MySpace síðunni hennar.

Nú má vel vera að þetta sé allt rangt hjá mér – en einsog þetta lítur út fyrir mér þá hefur einhver frá Séð & Heyrt komist inná lokaðan MæSpeis prófíl hennar Jóhönnu (sem er væntanlega ekki ýkja erfitt), lesið ferðasöguna hennar og tekið svo myndirnar hennar og búið til úr því blaðagrein.

Mér finnst þetta alveg óheyrilega krípí.

3 ummæli hingað til

Jul 06 2007

Vinsældir Liverpool bloggsins

Einar Örn skrifaði í flokkinn Netið

(Þessi færsla birtist einnig á Liverpool blogginu)

Kristján Atli kom fram í útvarpsþætti fyrir nokkru þar sem hann var spurður í gríni hvort að Liverpool bloggið væri vinsælla en bloggið hjá Ellý Ármanns. Ég held að hann hafi giskað á að svo væri án þess að hugsa eitthvað nánar útí það. Ég ákvað í framhaldinu að reyna að komast að því hvort það væri einhver bloggsíða á Íslandi vinsælli en Liverpool bloggið.

Aðeins er hægt að fá upplýsingar um vinsælustu bloggin á vísi.is og á mbl.is. Á Vísi.is eru vinsælustu bloggin þessi (og fjöldi innlita á einni viku fyrir aftan).

  1. Henry Birgir – 9.296
  2. Höskuldur Kári – 7.887
  3. Steingrímur Sævarr – 6.735

Á Blog.is hjá MBL eru vinsælustu bloggin svona – ásamt fjölda innlita í síðustu viku:

  1. Ellý Ármanns – 12.531
  2. Áslaug Ósk – 12.050
  3. Stefán Friðrik – 11.898

Samkvæmt Blogg Gáttinni er vinsælasta bloggið hjá Stefáni Friðrik – en hann er þó aðeins í þriðja sæti á mbl.is, sem þýðir væntanlega að fleiri aðilar stimpla beint inn Ellý og Áslaugu eða fara þangað af forsíðu mbl.is. Það gefur þó líka einhverja smá vísbendingu að það sé ekki líklegt að mörg blogg utan Moggabloggsins komist nálægt þeim stærstu þar í vinsældum.

Liverpool bloggið nýtur hins vegar ekki kosta ókeypis auglýsingar á forsíðu og í fréttum mbl.is einsog Mogga bloggin gera. Ef svo væri, mætti væntanlega búast við því að síðan væri enn vinsælli.

Hins vegar líta hlutirnir svona út á Liverpool blogginu varðandi heimsóknir. Í vikunni sem endaði 1.júlí (sem er síðasta vika sem við eigum upplýsingar um), þá var fjöldi innlita á Liverpool blogginu 13.905, sem er 11% fleiri innlit en hjá næstvinsælusta blogginu, sem er bloggið hennar Ellý Ármanns (sjá skjámynd frá teljari.is hérna).

Nú skal það tekið fram að ég hef ekki upplýsingar um önnur blogg utan Vísis og MBL, sem hugsanlega geta verið vinsæl, þar sem þær upplýsingar eru ekki opinberar. Hugsanlegt er að blogg einsog hjá Ármanni Jakobss og Pétri Gunnars komist nálægt þessum MBL/Vísis bloggum að vinsældum, en ég er þó ekki viss.

Semsagt, ef við tökum þetta allt saman miðað við opinberar tölur, þá líta vinsælustu blogg landsins svona út.

  1. LIVERPOOL BLOGGIÐ: 13.905
  2. Ellý Ármanns: 12.531
  3. Áslaug Ósk 12.050
  4. Stefán Friðrik 11.898
  5. Jenný Anna 9.759
  6. Henry Birgir 9.296

Semsagt, við erum langflottastir. :-)

Ástæðan fyrir þessari samantekt er líka auðvitað sú að við höfum íhugað það að setja inn einhverjar auglýsingar til að standa undir rekstri síðunnar, sem ég og Kristján höfum að mestu greitt fyrir hingað til – og einnig vegna þess að við erum að íhuga að færa hana inná nýtt lén, þannig að hún losni undan eoe.is léninu. Við erum búnir að finna eina hugmynd að léni, en allar tillögur eru vel þegnar.

Áfram Liverpool!

Engin ummæli enn

Jul 06 2007

Kjötbollur? Í alvöru talað?

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók, Ferðalög

Ég er kominn heim. Þið getið því formlega kysst þetta góða veður BLESS!

* * *

Tveir náungar sem ég þyrfti að eiga orð við. Fyrir það fyrsta: Gaurinn sem ákvað að Flugleiðir myndu servera kjötbollur úr kjötfarsi í Ameríku-fluginu! Í alvöru talað? Kjötfars er að mig minnir samblanda af bylgjupappa og innyflum úr óþekktum dýrategundum. Gat enginn hjá Icelandair fundið aaaðeins ódýrara kjöt? Var allt hvalkjöt uppselt?

Seinni gaurinn er diplómat í Brussel, sem ákvað það – að eftir að maður hefur farið í gegnum vopnaleit í USA þar sem ég þurfti meðal annars að fara úr skónum og standa inní klefa þar sem einhverjum efnum var sprautað á mig í 15 sekúndur – og eftir 5 tíma flug í þröngri flugvél, þá þyrfti maður líka að standa í biðröð eftir því að fara í aðra vopnaleit þegar maður er kominn heim til Íslands.

Svo þegar maður er nýbúinn að setja á sig beltið, þá tekur tollurinn aftur af mér allar töskurnar og leitar í þeim líka.

Velkominn til fokking Íslands.

(Annars var ferðin frábær. Skrifa meira um hana seinna).

9 ummæli hingað til

Jul 02 2007

Helgin í Chicago

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók, Ferðalög

Helgin hérna í Chicago er búin að vera frábær. Ég sit núna inná Melrose diner-num, sem er við hliðiná íbúðinni hans Dan hérna í Lake View hverfinu, og bíð eftir uppáhaldsmorgunmatnu mínum, french toast. Hverfið sem Dan býr í er akkúrat einsog ég vil hafa hverfi. Full af búðum og kaffihúsum og af lífi. Það er alltaf fulltaf fólki útá götu og inná kaffihúsunum hérna í kring. Svona á þetta að vera. Og ekki skemmir þetta yndislega veður sem hefur verið hérna í Chicago síðustu daga.

Á föstudagskvöldið kíktum við aðeins útá lífið. Borðuðum fyrst á mið-austurlenskum veitingastað með Dan, kærustu hans og vinkonu hennar og kíktum svo á einhverja 2-3 bari. Dan var eitthvað hálf slappur þannig að við entumst ekki mjög lengi.

Á laugardaginn ákváðum ég og Dan svo að kíkja uppí Wrigleyville til að kíkja á það hvort við fengjum ekki miða á Cubs leikinn þann daginn. Við áttum vissulega miða á sunnudagsleikinn líka, en ég vildi sjá eins marga leiki og ég gat þannig að ég ákvað að splæsa á miða líka á laugardaginn. Við fengjum því frábæra miða rétt fyrir aftan fyrstu höfn, þar sem við sátum í sólinni og drukkum bjór. Leikurinn fór reyndar ferlega illa, en það breytir ekki öllu.

Um kvöldið fórum við svo á heljarinnar djamm. Byrjuðum heima hjá kærustu Dan í grillpartíi þar sem nokkrir vinir okkar voru samankomnir. Svo um miðnætti fórum við á Crobar næturklúbbinn, sem mér fannst dálítið fyndið þar sem þetta er sami næturklúbburinn og við Hildur fórum nokkrum sinnum saman á þegar við bjuggum hérna í Chicago. Þótt ótrúlegt megi virðast þá eru 5 ár núna síðan ég flutti heim frá Chicago. Stundum er það hreinlega asnalegt hvað tíminn líður hratt.

En allavegana, djammið var frábært og entist ansi lengi og því var þynnkan í gær næstum því óbærileg. Við fórum þó fjögur saman á annan Cubs leik (ég, Dan, kærasta hans og bróðir hennar) á Wrigley Field. Í þetta skiptið sáum við þó glæsilegan sigur. Eftir það fórum við á hverfahátíð þar sem við borðuðum pizzur og horfðum á útitónleika. Gærkvöldinu eyddum við Dan svo heima, þar sem við létum restina af þynnkunni renna útúr kerfinu með því að spila NBA Live.

Í dag er það svo Taste of Chicago, sem er snilldarhátíð í Grant Park þar sem tugir veitingastaða setja upp bása í garðinum og bjóða uppá sína bestu rétti. Á morgun er það svo flug til Washington DC.

Skrifað í Chicago, Illinois klukkan 11.40

Ein ummæli hingað til