Skráarsafn fyrir October, 2007

Oct 31 2007

Superbad og Leopard

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók

Superbad er algjörlega frábærlega skemmtileg mynd.  Ég hef bara einu sinni hlegið jafnmikið í bíó á þessu ári og það var á Knocked Up.  Fór með vinkonu minni í gær og hló nánast allan tímann.  Við ætluðum fyrst að sjá einhverja rúmenska mynd um fóstueyðingar, en samræður okkar yfir matnum voru á þá leið að við þurftum að sjá eitthvað meira hressandi.

Allavegana, sjáið þessa mynd!  Það er skipun!

* * *

Ef einhver er að spá í því, þá er Serrano í Smáralind ekki að opna á morgun.  Við þurftum að fresta því um eina viku og MUNUM því opna næsta fimmtudag, 8.nóvember.

* * *

Ég er búinn að nota Leopard, nýja stýrikerfið frá Apple síðan um helgina og kann alveg frábærlega við það.  Það er enginn einn nýr fídus, sem hefur breytt lífi mínu en í stað þess eru milljón litlir hlutir, sem breyta ótrúlega miklu, einsog Quick Look.

Svo er póstforritið Mail.app og iCal, sem ég nota um hundrað sinnum á dag miklu betri og hraðari, sem hefur bætt geðheilsu mína umtalsvert.  Ég myndi allavegana mæla með þessari uppfærslu fyrir alla Apple notendur, mér fannst hún peninganna virði.

2 ummæli hingað til

Oct 29 2007

Staksteinar

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók

Einn aðalkosturinn við borgarstjórnarskiptin var sá að Morgunblaðið og aðrir Sjálfstæðismenn náðu aftur áttum.  Þeir hata nefnilega Samfylkinguna einsog pláguna og því var það gríðarlega óþægilegt fyrir þetta lið þegar að Samfylkingin fór í ríkisstjórn með þeirra ástkæra flokki.  Menn vissu ekki hvað þeir áttu að gera.  Áttu þeir að tala vel um Samfylkinguna eða halda skítkastinu áfram?  Maður sá beinlínis tilvistarkreppuna, sem Mogginn lenti í.

En eftir borgarstjórnarskiptin er einsog Mogginn sé frjáls úr prísundinni.  Núna geta ritstjórar Moggans glaðst og varpað innum lúguna hjá okkur á hverjum degi níð um okkur Samfylkingarfólk alveg einsog í gamla daga.   Jafnvægi er því aftur komið á í heiminum.

* * *

Annars hlýtur Staksteinapistill dagsins að hafa verið skrifaður af 10 ára krakka.  Það lætur enginn fullorðinn blaðamaður á fullum launum svona vitleysu frá sér.  Er það nokkuð?

* * *

Annars eyddi ég helginni í sumarbústað með félögum, sem var fínt.  Ég hafði ekki komið út fyrir bæinn í margar vikur, þannig að þetta var góð tilbreyting.  Komst í bústaðinn á sumardekkjunum.  Ég er staðráðinn að standa þessa snjókomu af mér án þess að skipta um dekk.

Ein ummæli hingað til

Oct 22 2007

Plús mínus

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók

Það sem fer í taugarnar á mér

  • Þegar maður borgar greiðsluseðil uppá eina komma eina milljón en þarf samt að borga seðilgjald uppá 290 krónur.
  • Húsasmiðju-Gospel lagið
  • Phil Neville
  • Að Sýn skuli bara sýna ensk lið í Meistaradeildinni.
  • Að ýta á eftir fólki (líf mitt virðist snúast um það þessa dagana)
  • Það að ég geti aldrei tengst netinu á Kaffitár í Bankastræti
  • Að dagskrárgerðarmenn Sýnar skuli ekki þekkja neinn sem heldur ekki með Manchester United
  • Að lenda óvart á skíðavél fyrir framan sjónvarp sem er að sýna Teletubbies á morgnana.

Það sem er gott:

  • Kaffibollinn minn í morgun
  • Burrito á Serrano. Eftir síðustu smávægilegu breytingar á Serrano (aðallega breytingar á pico de gallo) þá fæ ég hreinlega ekki leið á uppáhaldsburrito-inum mínum: Hrísgrjón, Kjúklingur, maís, svartar baunir, mild salsa (pico de gallo), kál, sýrður rjómi og bbq sósa.
  • Office þættirnir eru núna rúmar 40 mínútur í stað 20 mínútna áður. Ég tárast nánast af gleði þegar ég hugsa um þessa breytingu.
  • Nýji Bruce Springsteen diskurinn – hann er frábær.
  • My legendary girlfriend – eftir Mike Gayle, sem er bókin sem ég er að lesa núna.
  • Að vera á hlaupabretti í World Class fyrir framan sjónvarp sem sýnir þetta og þetta myndband. Ég er enn að bíða eftir sjónvarpsstöð, sem sýnir bara myndbönd með Nelly Furtado og Nicole Scherzinger. Sú stöð væri fullkomin. Eigendur stöðvarinnar gætu m.a.s. sparað peninga með því að hafa ekkert hljóð.

Jamm

11 ummæli hingað til

Oct 21 2007

Helgin og bækur

Einar Örn skrifaði í flokkinn Bækur, Dagbók

Ég á það til að taka bókalestur í kippum og lesa svo ekkert í margar vikur. Eftir Skotlandsferðina talaði ég víst um það að ég ætlaði að skrifa um þær bækur sem ég las þar. Það varð eitthvað lítið úr því.

En allavegana, ég las nokkrar bækur en þetta var það skemmtilegasta sem ég las í Skotlandsferðinni:

How to talk to a widower eftir Jonathan Tropper er frábær. Hún fjallar um strák á mínum aldrei, Doug Parker, sem missir eldri eiginkonu sína í flugslysi. Hann á í erfiðleikum með að hefja líf sitt á ný, sem felur það með sér að ala upp unglingsstrák, sem að eiginkona hans átti. Hann skrifar vinsæla pistla í tímarit um vandamál sín en á samt í vandræðum með að gera eitthvað annað í lífinu en að syrgja eiginkonu sína.

Smám saman neyðir þó systir hans hann til að reyna að hitta aðrar konur og hefja líf sitt á ný. Að mínu mati frábær bók, einstaklega skemmtileg. Ég lánaði vinkonu minni bókina og var ekki alveg viss um það hvort stelpa hefði jafn gaman af henni, en hún var alveg jafn ánægð með hana. Mæli með þessari bók.

Dead Famous eftir Ben Elton. Elton er klárlega einn af mínum uppáhaldshöfundum, held að ég hafi ekki enn verið óánægður með bók eftir hann.

Þessi fjallar um það þegar að morð er framið í raunveruleikasjónvarpsþættinum Big Brother. Einn af keppendunum er drepinn í beinni útsendingu og lögreglan þarf að komast að því hver framdi morðið á meðan að tökum á þættinum er haldið áfram. Gríðarlega skemmtileg “whodunnit” saga.

* * *

Í gær hélt ég matarboð þar sem þemað var bandarískir veitingastaðir. Það reynist mér alltaf frekar erfitt að halda sjö manna matarboð hérna heima sérstaklega þar sem ég byrja aldrei að plana hlutina fyrr en klukkan 4 og þá á ég vanalega eftir að elda, taka til og leggja á borð. Í gær tókst það auðvitað ekki á tíma, en einhvern veginn tókst mér samt að búa til pasta og hrísgrjónarétt, samlokur og tvær tegundir af pizzum. Ég á í dag afganga, sem gætu fætt fótboltalið.

Ég fór ekki á Airwaves þar sem að ég kann greinilega ekki að kaupa hluti á netinu. Hélt að ég hefði keypt miðann en þegar ég ætlaði að finna kvittunina og prenta hana út þá komst ég að því að því að ég hafði ekki klárað kaupin á miðunum. Þannig að helgarplanið fór í algjört fokk, en ég var búinn að plana það að fara á hátíðina með góðu fólki. Það fór víst í algert rugl. En svona er þetta.

3 ummæli hingað til

Oct 19 2007

Framsókn í stjórnarandstöðu

Einar Örn skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Valgerður Sverrisdóttir spyr:

„Það verður því fróðlegt að fylgjast með viðbrögðum sjálfstæðismanna við heimatilbúnum ágreiningsmálum og skeytasendingum Samfylkingarinnar, s.s. frestun vatnalaga, frumvarpi um skipun hæstaréttardómara, hugmyndum um stjórnarskrárbreytingar sem auðveldi þátttöku í yfirþjóðlegu samstarfi eins og innan Evrópusambandsins, o.s.frv. Hversu lengi kyngir Sjálfstæðisflokkurinn slíkum sendingum?”

Það má umorða þessa setningu svona:

“Hversu lengi sættir Sjálfstæðisflokkurinn sig við það að Samfylkin sé áfram sjálfstætt stjórnmálaafl, í stað þess að renna alveg inn í Sjálfstæðisflokkinn einsog við framsóknarmenn gerðum áður?”

Voðalega er þetta slappt.

2 ummæli hingað til

Oct 18 2007

Serrano Smáralind – 14 dagar í opnun

Einar Örn skrifaði í flokkinn Vinna

Þessi mynd var tekin í morgun inná Serrano í Smáralind. Þarna ætlum við að búa til veitingastað á tveim vikum.

Síðustu dagar og vikur hafa verið fjörugar og það lítur út fyrir að hlutirnir muni ekki róast á næstu dögum. :-)

5 ummæli hingað til

Oct 13 2007

Amy

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók

Það er vel þess virði að benda fólki á að þessi plata er meiriháttar!

 * * *

Þessi helgi er búin að vera verulega góð hingað til.  Ég er í smá átaki, sem átti að felast í því að ég færi nokkrum sinnum á djammið án þess að drekka.  Það hefur gengið misvel.  Þetta gekk eftir um síðustu helgi þegar ég var edrú og fór heim úr partíinu snemma til að horfa á Cubs skíta á sig.  Það verður þó ekki annað sagt en að vinir mínir séu duglegir í að hvetja mig til að fá mér í glas.  Í gær hitti ég svo ansi skemmtilega manneskju, sem lagði gríðarlegan metnað og vinnu í að fá mig til að fá mér í glas á Ölstofunni þar sem ég var eftir afmælispartí.  Það tókst að lokum.  En samt í svo litlu magni að ég vaknaði hress í morgun og gat nýtt daginn í eitthvað semi-gáfulegt.

Í kvöld ætla ég svo að gera aðra tilraun til þess að fara í bæinn án þess að drekka.  Svo fer ég að láta af þessari tilraun.

* * *

Auk Amy Winehouse þá hef ég verið að hlusta á nýja Springsteen diskinn, sem er afbragð.  Er ekki enn búinn að kaupa mér Radiohead diskinn, en það er á dagskrá á næstu dögum.

* * *

Í gær missti ég iPhone-inn minn í gólfið í fyrsta skiptið.  Það var hræðileg lífsreynsla.  Hræðileg, segi ég og skrifa.

6 ummæli hingað til

Oct 11 2007

RVK

Einar Örn skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Hæ hó jibbí jei! Mikið afskaplega var gleðilegt að fara inná mbl.is um 6 leytið og sjá þetta. Ég var alveg úr tengslum við fréttir í allan dag og því kom þetta dásamlega á óvart.

Villi út og Dagur inn – og það algjörlega vegna klúðurs hjá Sjálfstæðistflokknum.  Gæti ég beðið um e-ð meira?  Ætla bara rétt að vona að Frjálslyndir séu ekki með einhverjar gloríur um að uppfylla kosningaloforð sitt varðandi það að flugvöllurinn verði hér áfram.

4 ummæli hingað til

Oct 09 2007

Stjórnmálapunktar

Einar Örn skrifaði í flokkinn Almennt, Stjórnmál

Ég eyddi meirihluta helgarinnar á Landsþingi Ungra Jafnaðarmanna. Það var nokkuð skemmtilegt. Auðvitað var fínt partí á laugardeginum og svo var málefnavinnan góð. Ég sat í tveimur hópum, annars vegar um utanríkismál þar sem við ályktuðum um að við vildum ganga í ESB og fleira skemmtilegt og svo sat ég í hópi sem fjallaði um jafnrétti og kvenfrelsi. Það var einnig mjög skemmtilegt. Ályktanirnar voru góðar. Hvet alla til að lesa ályktanir beggja hópanna, þar sem þetta er guðdómlegur sannleikur.

* * *

Þetta REI mál er alveg stórkostlegt. Einsog einn félagi minn benti á þá er það alveg ótrúlega fáránlegt að ákvörðun um einkavæðingu á stóru fyrirtæki sé tekin til þess eins að friða borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

* * *

Á DV.is rakst ég á þessa frétt:

Erlendi starfsmaðurinn starfar hjá sláturhúsi Norðlenska á Húsavík, en talsverður fjöldi útlendinga starfar þar ár hvert yfir sláturtíðina. Nú í haust eru alls 55 erlendir starfsmenn hjá fyrirtækinu í tengslum við sláturtíðina, eða um tæplega 70% af því fólki sem ráðið er til starfa vegna hennar. Eru starfsmennirnir frá um fjórtán þjóðlöndum.

Þarna á svo að fara að byggja álver. Hvort ætli útlendingum fjölgi eða fækki við það?

* * *

Annars er ég bara hress.

Ég er að horfa á þennan þátt, sem ég actually keypti mér á iTunes. Um þennan þátt og Rock of Love ætla ég að skrifa lærðan pistil á þessa síðu enda orðið alltof langt síðan ég skrifaði um drasl sjónvarp á þessa síðu. Já, og hárið mitt. Ég fór í klippingu í dag og er bara nokkuð sáttur.

3 ummæli hingað til

Oct 04 2007

Springsteen, Serrano og Vista

Einar Örn skrifaði í flokkinn Tónlist, Vinna

Það er alveg ljóst hvað mun einangra iTunes, iPod og iPhone spilun hjá mér á næstunni. Enda er ágætt að fá smá hvíld frá Kanye.

Nýji diskurinn frá Kanye West er búinn að vera í ansi mikilli spilun hjá mér að undanförnu og get ég ekki annað en mælt með honum. Ég verð þó að segja að við fyrstu hlustun virkar Magic með Springsteen alveg rosalega vel á mig. Þetta er hressara rokk en á síðustu plötum, sem er gott mál.

* * *

Einsog einhverjir glöggir menn hafa sennilega rekist á í atvinnu-auglýsingum uppá síðkastið, þá erum við að fara að opna þriðja Serrano staðinn í september nóvember. Sá verður í Smáralind í því bili, þar sem áður var Wok Bar Nings. Það kom upp fyrir nokkrum mánuðum að Nings menn vildu hætta með Wok Barinn í Smáralindinni og höfðu þeir því samband við mig. Við höfðum verið að líta í kringum okkur með húsnæði á svipuðum slóðum og leist okkur því strax vel á þetta.. Samningaviðræður tóku tiltölulega stuttan tíma við Nings og svo Smáralind og í lok júlí var þetta allt orðið klárt.

Þessi staður mun að mörgu leyti marka tímamót í sögu Serrano, því þarna munum við í fyrsta skipti opna alvöru, stóran stað með okkar eigin sal. Í dag rekum við staði inná bensínstöð og á matarsvæði í verslunarmiðstöð, þar sem við höfum enga stjórn á umhverfinu sem fólkið borðar í. Í Smáralind höfum við hins vegar fullt vald yfir því hvernig staðurinn mun líta út, hvernig tónlist verður spiluð og almennt séð hvernig andrúmsloftið verður.

Við réðum því til liðs við okkur hönnuð, sem hefur teiknað upp heildarútlit staðarins, sem ég held að verði mjög smart. Við munum líka leggja áherslu á að þetta verði fjölskylduvænni staður en hinir staðirnir eru í dag. Vinna við breytingar á staðnum eru nú þegar hafnar, en hann mun verða mjög ólíkur því sem að var þegar að Nings var þarna inni. Stefnt er að opnun í byrjun nóvember.

* * *

Meðal annars vegna þessa og líka alls í kringum Síam hefur vinnan mín verið ótrúlega spennandi og skemmtileg að undanförnu. Eftir einn mánuð verðum við komin með 4 veitingastaði og ég er að gæla við þann draum að salan í desember á Serrano og Síam verði meiri en ársveltan fyrsta árið, sem við vorum með Serrano í Kringlunni. Þar sem við höldum uppá 5 ára afmæli Serrano eftir tæpan mánuð, þá eru þetta spennandi tímar.

* * *

Þegar við keyptum tölvu fyrir Síam bað ég um að fá Windows XP inná tölvuna hjá Nýherja. Eitthvað virðist það hafa klikkað hjá þeim og því kom tölvan með Windows Vista. Þvílíkur bévítans hroðbjóður sem það stýrikerfi er nú. Fyrir það fyrsta þá fokkar það upp Office pakkanum okkar og núna þarf ég að leita í 20 mínútur að tökkunum sem ég notaði áður og auk þess þá koma upp einhverjar endalausar spurningar frá stýrikerfinu hvort ég sé viss um hvort ég vilji gera þetta eða hitt.

Annars sé ég ekki annað að þetta sé bara XP með rúnuðum gluggum og leiðinlegu böggi. Ég mun seint skilja af hverju allur heimurinn er ekki búinn að skipta yfir í Apple tölvur. Ég játa það alveg að fyrir 5-6 árum var ég ekkert með neitt sérstaklega mikið sjálfstraust sem Makka aðdáandi, en í dag þyrfti að borga mér stórar fjárhæðir fyrir að vinna vinnu þar sem ég þyrfti að nota Windows vél.

Annars hefur iPhone-inn minn það bara ágætt.

18 ummæli hingað til

Oct 03 2007

Cubs í úrslitakeppninni

Einar Örn skrifaði í flokkinn Íþróttir

Þessa dagana reyni ég að hugsa sem minnst um fótbolta.  Þar sem fátt kemur í staðinn fyrir íþróttir í mínu lífi, þá verð ég því að halla mér að annarri íþrótt.

Og það vill svo skemmtilegast að í þeirri íþrótt, sem er í næstmestu uppáhaldi hjá mér, þá er mitt lið Chicago Cubs í góðum málum.  Úrlistakeppnin í bandarísku hafnaboltadeildinni byrjar nefnilega í nótt þegar að Cubs fara til Phoenix og spila við Arizona Diamondbacks.  Ef þeir vinna það einvígi (fyrsta liðið til að vinna 3 leiki) þá spila þeir til úrslita í National League deildinni, og ef þeir vinna þar (fyrsta liðið til að vinna 4 leiki) þá eru þeir komnir í World Series einvígið við sigurvegarann í American League (sem verður að öllum líkindum annaðhvort Boston Red Sox eða New York Yankees).

World Series titilinn hefur Chicago Cubs ekki unnið í 99 ár.  Það er hreint með ólíkindum.  Árið 1907 unnu Cubs síðast titilinn.  Í ár hefur liðið skánað mjög eftir því sem liðið hefur á tímabilið.  Þeir byrjuðu afleitlega, en eftir fjöldaslagsmál og annað vesen í júní þá hafa hlutirnir legið uppá við.  Aðallega vegna þess að liðið er með góðan hóp af kösturum og svo hafa þeir 3 gríðarlega sterka leikmenn (Aramis Ramirez, Derrik Lee og Alfonso Soriano), sem hafa haldið sókninni uppi ásamt yngri leikmönnum.

Í Chicago eru menn þokkalega bjartsýnir fyrir þessa úrslitakeppni.  Það að hafa ekki unnið í 99 ár gerir menn þó ansi hrædda við að spá einhverjum stórsigrum, en Jayson Stark hjá ESPN spáir Cubs sigri í pistli í dag.  Ég held að ég nái ekki að vaka í kvöld, en ég ætla að reyna að ná sem flestum leikjum í þessari rimmu

13 ummæli hingað til