Skráarsafn fyrir November, 2007

Nov 30 2007

Feisbúk

Einar Örn skrifaði í flokkinn Netið

Sigurjón segir allt sem segja þarf um Facebook forrit.

Ég gjörsamlega fatta ekki þetta Facebook dæmi. Einhverjir, sem þorðu ekki að skrá sig á MæSpeis af því að það var svo gelgjulegt, hafa skráð sig á Facebook þar sem þeim þykir það meira fullorðins.

Svo eyðir þetta fólk öllum sínum tíma í einhverjar pointless skoðanakannanir um sjálft sig og zombie forrit og hvað þetta dót heitir allt, í stað þess að tala saman einsog fólk virðist þó vera að gera á MySpace. Á Facebook er fullt af fólki að bæta manni við, án þess að segja svo neitt. MySpace hefur allavegana þann kost að fólk finnur hjá sér þörf fyrir samskipti í stað þess að setja bara inn einhver kjánaleg forrit.  Ég hef kynnst fulltaf góðu fólki í gegnum MySpace, en í gegnum Facebook hef ég eingöngu verið bitinn af uppvakningum og lært allt um það hversu líkur ég er einhverjum á vinalistanum mínum.

12 ummæli hingað til

Nov 27 2007

Djamm og fleira

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók

Tengt þessu mataræðisátaki sem ég er í, þá hef ég ekki dottið í það í all-langan tíma.  Ég komst nálægt því á laugardaginn þegar ég var að halda uppá Serrano afmæli með starfsfólki staðarins.  Drakk eitthvað, en samt ekki neitt rosa mikið.  Fórum eftir partíið saman nokkuð stór hópur í bæinn.  Vegna þess að einhverjir voru ekki orðnir tvítugir var úrvalið af mögulegum skemmtistöðum ekki það sama og er vanalega hjá mér.  Til dæmis komu engir staður ofan víglínu til greina.

Eftir að hafa farið á skrautlega hafnfirska skemmtistaði enduðum við á Hressó.  Þar lenti ég í því að meðan ég sat í rólegheitunum við borð, varð ég allt í einu miðpunktur slagsmála þar sem að gaur kom fljúgandi á borðið mitt.  Síðast þegar ég heimsótti Hressó, þegar ég var að ná í bandarískan félaga minn, þá var sá sami félagi minn laminn.  Ályktun mín af þessum atvikum er að láta þennan skemmtistað eiga sig.

* * *

Ég hef farið nokkrum sinnum að borða á Vegamót undanfarnar vikur, en ég hef ekki djammað á þeim stað í tvo mánuði.  Það hefur ekki gerst í mörg ár.

Það er líka alveg ljóst að það dregur úr manni djammviljann að vera ekki í stelpuleit á djamminu.  Síðustu skiptin sem ég hef verið á djamminu hefur hugurinn á mér alltaf verið hjá einhverri stelpu sem var ekki á staðnum.  Þrátt fyrir að ég fari ekki beint á djammið til þess að leita að stelpum, þá er það alveg ljóst að þegar áhugi manns á þeim stelpum sem eru á staðnum er lítill, þá minnkar djammáhuginn.

Ég held samt að ég sé búinn að fá djammviljann aftur.

* * *

Þeir sem umgangast mig dags daglega vita að ég á það til að lesa minnispunkta inná símann minn.  Þetta er allt partur af kerfi sem ég nota til að halda utanum allt það sem ég þarf að gera.  Stundum þegar ég hef komið fullur heim af djamminu hef ég lesið eitthvað inná símann minn, vanalega einhverja minnispunkta um það hvað lífið er yndislegt / ömurlegt eða hversu mikið æði / hörmung stelpur eru.

Þegar ég kom heim af djamminu á laugardaginn þá las ég eftirfarandi skilaboð inná símann minn:  “Muna eftir pinto bauna breytingunum”.

Ef ég þurfti einhverjar frekari sannanir um að ég ætti mér ekkert líf, þá komu þær þarna.

* * *

Ég fór með vinkonu minni í bíó á sunnudaginn á This is England.  Sú mynd er afskaplega góð.  Álíka niðurdrepandi og Veðramót, en samt góð. Í gær vann ég svo heilar 500 krónur í póker af vinum mínum.  Og í kvöld verð ég að hrósa Sýn fyrir það að sýna leik með tveimur liðum sem eru ekki frá Englandi, þannig að síðustu kvöld hafa verið góð.

7 ummæli hingað til

Nov 22 2007

SMG

Einar Örn skrifaði í flokkinn Almennt

Get ekki skrifað, er upptekinn!

4 ummæli hingað til

Nov 21 2007

Punktar

Einar Örn skrifaði í flokkinn Almennt, Netið

Punktar

  • Ég get svarið það að sumt fólk á Facebook vinalistanum mínum er í fullu starfi við að senda út tilkynningar um alls konar dót sem það er að prófa. Það passar hreinlega ekki að þetta fólk sé í annari vinnu.
  • Smá hint til mannsins sem tekur við af Steve McClaren. Ef þú vilt prófa nýjan mann í stöðu markvarðar, þá skaltu leyfa honum að spila allavegana heilan æfingaleik til að byrja með. Ekki setja hann í byrjunarliðið í mikilvægasta leik síðustu 2 ára á rennblautum heimavelli gegn besta liðinu í riðlinum. Ég hélt að þetta væri common sense, en það er það greinilega ekki fyrir 2nd choice Steve.
  • Nýi Foo Fighters diskurinn er verulega góður. Hann er búinn að halda mér í gangi í ræktinni undanfarna daga.
  • Mér sýnist þetta ár ætla að vera miklu betra en 2006 hvað varðar tónlist. Ég var að skoða listann minn yfir bestu plötur síðasta árs og af þeim lista hlusta ég bara á eina plötu enn í dag, Futuresex/Lovesounds með Justin Timberlake. Ég held að bara tvær efstu plöturnar á þeim lista, Dylan og Timberlake kæmust inná listann yfir topp 10 bestu plötur þessa árs að mínu mati.
  • Nýji Places fídusinn í Flickr er æðislegur. Þar geturðu flett upp nafni staðar og fengið myndir þaðan. Sjá t.d. Reykjavík, Roatan, Goa, Dhaka og svo framvegis. Mjög sniðugt til að skoða staði fyrir ferðalög.
  • Fyrir þá sem vilja gera lítið úr átaki Steinunnar Valdísar (t.d. allir sem hringdu inn í Reykjavík Síðdegis áðan) fyrir því að taka upp kynlaus starfsheiti, þá er þessi pistill góður.

Ein ummæli hingað til

Nov 20 2007

WHAT?

Einar Örn skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Þetta er einfaldlega of fyndið

Yay-aaaaah!

Einnig hér og hér.

Engin ummæli enn

Nov 19 2007

Tónlistarspurningar

Einar Örn skrifaði í flokkinn Tónlist

Fyrir einhverju síðan bað Björgvin Ingi mig að fylla þennan spurningarlista út fyrir Rjómann. Á endanum var þetta aldrei birt, en ég fann þetta í einhverri tiltekt á harða disknum – Gummi Jóh bendir á að þetta var víst birt hér – Birti þetta þá bara aftur núna.

* * *

Besta lag í heimi er…Gimme tha Power” – áróðurslag mexíkósku sveitarinnar Molotov um misnotkun mexíkóskra stjórnvalda á mexíkóskri alþýðu. Það að standa í tónleikasal í Chicago meðal 10.000 mexíkóa og hrópa “viva Mexico, cabrones” er skemmtilegasta tónleikaupplifun ævi minnar.

Besta plata í heimi er…Blonde on Blonde” með Dylan. Inniheldur allavegana 4 lög, sem ég myndi telja meðal 20 bestu laga allra tíma: Visions of Johanna, I want you, One of us must know og auðvitað Sad Eyed Lady of the Lowlands. Að mínu mati besta Dylan platan og því að sjálfsögðu besta plata í heimi.

Af hverju eru ekki allir að hlusta á … Neil Young, Dylan, Bowie og Elvis Costello.

Öll börn ættu að sofna við að hlusta á…Ágætis Byrjun” með Sigur Rós

Allir ættu að hlusta að minnsta kosti einu sinni á ævinni á…Dark Side of the Moon

Bestu tónleikar sem ég hef séð voru … Radiohead útitónleikar í 35 stiga hita í Grant Park í Chicago. 25.000 manns með Chicago skýjakjúfana fyrir aftan og til hliðar við sviðið og Michigan vatn hægra megin. Algjörlega frábært. Thom Yorke einn á sviðinu að syngja “You and whose army” var hápunkturinn.

Þeir tónleikar sem ég sá ekki en vildi mest hafa séð eru … Einhverjir tónleikar með Bob Dylan í kringum 1966.

Platan sem mótaði unglingsárin mín er… Hmmm… ég veit ekki. Þær plötur, sem ég hlustaði oftast á á þessum tíma eru sennilega “Weezer” með Weezer, “(What’s the story) Morning Glory” með Oasis, “Parklife” með Blur, “Pump” með Aerosmith og “Dark Side of the Moon” með Pink Floyd. Veit ekki hvort einhver hafi haft sérstaklega mótandi áhrif á mig.

Þegar ég geng í kringum tjörnina á elliárunum vil ég hlusta á … Vonandi eitthvað, sem ég hef ekki heyrt ennþá.

Ég er það sem ég er af því ég hlustaði á … David Bowie, Aerosmith, Pink Floyd, Bob Dylan.

Ég vildi að ég hefði samið… Eitthvað gott stuðlag, sem ég gæti sungið í partýjum og náð stemningunni alltaf upp.

Sá texti sem hrærir mest í hjarta mínu er…True Love Waits” með Radiohead.

Besta bömmerlag í heimi er…Last Goodbye” með Jeff Buckley.

Í eigin hugarheimi gangandi um öngstræti lífsins hlusta ég helst á…Sea Change” með Beck

Þegar ryksugutónarnir óma finnst mér að undir eigi að hljóma…I’m the Ocean” með Neil Young.

Ég var ástfangnastur unglingur þegar ég hlustaði á…I want you” með Elvis Costello.

Ég myndi helst vilja spila í bandi með (lífs eða liðnir)… “The Band” með Dylan. Ég gæti reynt að syngja bakraddir.

Vanmetnasta hljómsveit í heimi er… Eels

Ofmetnasta hljómsveit í heimi er… Eagles, Keane

Þú ættir að hlusta á… Eitthvað gott kántrí til að losna við fordómana. Til dæmis “Red Headed Stranger” með Willie Nelson.

Ef ég ætti að bæta við spurningu myndi ég bæta við (og svara henni)… Besta tónlistin í líkamsræktinni: Rocky IV platan. Óborganleg snilld. Mér líður alltaf einsog ég geti allt þegar ég hlusta á þá plötu.

11 ummæli hingað til

Nov 18 2007

Einar Örn skrifaði í flokkinn Almennt

Þetta yfirlit er nokkuð magnað.  Sérstaklega þegar bornar eru saman þjóðirnar í sætum 10, 29 og 37.

11 ummæli hingað til

Nov 18 2007

Ég gefst upp

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók

Áður hef ég á þessari síðu kvartað yfir því að ég sé tekinn í skoðun í tollinum í hvert einasta skipti sem ég geng þar í gegn. Var það svo að það skipti engu máli hvort ég kom ógreiddur í rifnum gallabuxum með bakpoka á bakinu eftir ferðalag í Mið-Ameríku, eða nýkominn af Saga Class, stífgreiddur og í jakkafötum frá London.

Nú er það svo að ég er varamaður í stjórn Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og var í Osló í vinnuferð stjórnar um helgina. Ætli það hafi verið nóg til þess að ég væri ekki lengur stoppaður í tollinum?

Nei. – Ég gefst upp.

* * *

Annars gerði ég lítið í Osló nema vinna, eyddum heillöngum tíma í heimsókn á Gardemoen og funduðum á hótelinu. Ég fór varla útúr húsi nema til þess að fara inn og útaf hótelinu og til þess að labba á einn veitingastað.

* * *

Brúðkaup aldarinnar var haldið í gær nú þegar að 93 ár eru eftir af öldinni. Það finnst mér magnað.

Og að lokum, Guði sé lof fyrir það að Atli Gíslason var gestur í Silfri Egils í innflytjendaumræðunni.  Einnig var í þeim sama þætti nokkuð fyndið að sjá Laffer dásama bandaríska efnahagskerfið á meðan að Stiglitz birtir þessa grein.

14 ummæli hingað til

Nov 14 2007

KOP.is, fávitar og lesbíur

Einar Örn skrifaði í flokkinn Netið

Nú er hætt við að ansi margir sleppi því að skrifa “eoe.is” oft á dag, því að í fyrsta skipti er Liverpool Bloggið ekki lengur undirsíða af þessu bloggi, heldur er það komið með sitt eigið lén, KOP.is.

Auðvitað var það orðið hálf hallærislegt að lénið á Liverpool blogginu væri eoe.is/liverpool, þar sem þetta er ekki mín einkasíða. Þetta var skyndilausn þegar að við Kristján stofnuðum þetta fyrir einhverjum árum, en núna er síðan orðin miklu stærri en hún var áður. Þannig að núna er umfjöllun um Liverpool endanlega lokið á eoe.is.

* * *

Og að lokum tvær SNILLDARSÍÐUR

Fyrst: Hot chicks with Douchebags. Mjög þarft framtak.  Þyrfti nauðsynlega að búa til íslenska útgáfu.

Og svo : Karlmenn, sem líta út einsog gamlar lesbíur.

18 ummæli hingað til

Nov 13 2007

Kaffi

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók

Bleh!

  • Er ég einn um að finna það skrýtið þegar að óléttar stelpur hafa mynd af bumbunni sinni sem prófíl mynd á MæSpeis? Ha?
  • Af einhverjum ástæðum finnst mér kaffi 10 sinnum betra í pappamáli en úr bolla. Ég hef ekki hugmynd um af hverju það er, en þetta væri eflaust verðugt rannsóknarverkefni. Þannig að á kaffihúsum þarf ég alltaf að biðja sérstaklega um að fá að drekka kaffi úr “götumáli” inná staðnum.
  • Síðustu daga er ég búinn að vera að hlusta á Amar es combatir með mexíkósku sveitinni Maná, sem er ein af mínum uppáhaldsljómsveitum. Þessi nýji diskur er alveg hreint ljómandi góður.
  • Ég er á mataræði og í æfingaprógrammi þessa dagana, sem mun leiða til þess að einn dag mun ég vera með líkama einsog Fitness módel. Þetta blessaða mataræði gerir það hins vegar aðverkum að ég er orðinn uppgefinn klukkan 9 á kvöldin og get ekki spilað innanhúsfótbolta án þess að niðurlægja sjálfan mig með aumingjaskap.
  • Californication eru frábærir þættir! Frábærir, segi ég og skrifa.
  • Á fimmtudaginn er ég að fara til Osló í þrjá dag. Þar verður 6 stiga frost. Mjög hressandi.

Jæja, klukkan er orðin 8, ég hef ekki orku í meira.

10 ummæli hingað til

Nov 12 2007

Serrano í Smáralind opnar

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók, Vinna

Síðustu dagar eru búnir að vera magnaðir. Framkvæmdirnar við Serrano í Smáralind voru lærdómsríkar og erfiðar, en að lokum tókst þetta og ég er gríðarlega ánægður með niðurstöðuna.

Upphaflega ætluðum við að opna staðinn 1.nóvember, því var svo breytt til 8.nóvember og að lokum sættumst ég og verktakinn á að opna á föstudaginn, 9.nóvember. Ég tók þá dagsetningu sem heilaga ritningu og auglýsti meðal annars opnunina í Fréttablaðinu. Til að bæta aðeins oná stressið ákváðum við svo að halda uppá 5 ára afmæli Serrano daginn fyrir opnunina inná staðnum í Smáralind.

Á fimmtudaginn mætti ég uppí Smáralind um morguninn og fékk nett sjokk því það var mikið verk óunnið. Um hádegið var ég orðinn frekar stressaður, því ég vissi að við þurftum að henda iðnaðarmönnunum út, tæma staðinn, halda partíið og fá svo iðnaðarmennina aftur inná staðinn til að klára verkið fyrir opnun. Ég tók því ákvörðun og fékk Emil til að halda afmælið heima hjá sér. Það gekk eftir og við áttum þar frábæra stund með vinum, ættingjum og samstarfsaðilum. Á fimmtudagskvöldið kíkti ég svo uppí Smáralind og leist þokkalega á það að ætla að opna daginn eftir.

* * *

Á föstudagsmorgunn var ég mættur eldsnemma ásamt nokkuð mörgum starfsmönnum, sem byrjuðu að undirbúa opnunina. Klukkan 9.30 var byrjað að elda mat fyrir opnunina, en ég sá þó að það var gríðarlega margt óklárað. Til dæmis voru engin borð komin í salinn, rafmagnið í salnum var ófrágengið, listaverkið ekki komið upp og svo framvegis. Við ákváðum á endanum að fresta opnuninni til kl 12, svo til 15, en um eitt leytið áttaði ég mig á því að best væri að kyngja mistökunum og fresta opnuninni fram á laugardag svo við gætum klárað hlutina almennilega.

Það var að ég held skynsamleg ákvörðun og gerði okkur kleift að klára flest málin. Ég fór heim til mín um 8 leytið á föstudagskvödinu og var algjörlega uppgefinn þegar ég lagðist uppí sófa. Klukkan 3 um nóttina fékk ég svo sms skilaboð frá verktakanum, þar sem hann sagði mér að þeir væru hættir og óskaði mér til hamingju með staðinn.

Á laugardagsmorgunn vaknaði ég svo aftur snemma og var mættur ásamt verslunarstjóranum og öðrum starfsmönnum um kl 8 uppí Smáralind. Í raun var allt tilbúið og bara smá þrif eftir, sem tókust léttilega fyrir opnun. Klukkan 11 opnaði ég svo staðinn formlega. Síðan þá hefur gengið mjög vel. Það eru enn nokkur smáatriði eftir (vantar t.d. að tengja hljómtæki), en þetta er að mestu komið.

* * *

Það hefur frá upphafi verið draumur minn að vera með Serrano í okkar eigin húsnæði, en ekki hluta af stærra konsepti (einsog hann er á Stjörnutorgi og inná N1). Núna eru við loksins komin með þann stað. Í ágúst fór ég í það verkefni að leita að hönnuði til að teikna upp nýtt útlit á Serrano og eftir nokkur viðtöl samdi ég við Leu Galgana, sem hefur nokkra reynslu af hönnun á veitingastöðum. Ég mataði hana nokkurn veginn á því hvernig við sæjum Serrano fyrir okkur. Við viljum að Serrano sé skyndibitastaður í þeim skilningi að fólk fær matinn fljótt og að hann er ódýr. En við sjáum Serrano sem hefðbundinn veitingastað í þeim skilningi að umhverfið eigi að vera í toppstandi og að þér eigi að líða einsog þú sért á þokkalega fínum veitingastað þegar þú borðar á Serrano.

Að mínu mati tókst Leu fullkomlega upp í hönnuninni. Staðurinn í Smáralind er (þó ég segi sjálfur frá) gríðarlega flottur. Litirnir, efnisvalið og allt auglýsingaefni (logo, matseðilsskilti) passa að mínu mati frábærlega saman. Afgreiðslan er mjög flott, sem og salurinn. Hægra megin í salnum er svo glæsilegt listaverk, sem að Hallmar á Vatíkaninu hannaði. Lea kom með upphaflegu hugmyndina að því hvernig formin í verkinu ættu að líta út, en við vorum alltaf í erfiðleikum með það hvað ætti að vera á verkinu. Svo komu þeir á Vatíkaninu með hugmynd, sem mér fannst skemmtileg. Í kjölfarið fann ég fullt af reference myndum á netinu, sem mér fannst passa inní þetta – ég vildi til dæmis tengja listaverkið Mexíkó og San Francisco (burrito-arnir sem við seljum eru svokallaðir San Francisco burrito-ar). Stuttu seinna kom svo önnur útgáfa af þessu frá Hallmari, sem ég var gríðarlega sáttur við og við enduðum á að notast við hana.

* * *

Þannig að núna er staðurinn okkar kominn af stað og þessi staður markar þáttaskil í okkar fyrirtæki. Í fyrsta skipti erum við með okkar eigin sal og núna erum við með hönnun á stað, sem við erum fullkomlega sáttir við og getum nýtt okkur á fleiri stöðum í framtíðinni.

24 ummæli hingað til

Nov 07 2007

Facebook fréttir

Einar Örn skrifaði í flokkinn Netið

9 ummæli hingað til

Nov 07 2007

Ókeypis burrito

Einar Örn skrifaði í flokkinn Vinna

Serrano opnar í Smáralind á föstudaginn kl 11.  200 fyrstu viðskiptavinirnir frá ókeypis burrito og gos.  Sjá hér.  Það verður fjör.

5 ummæli hingað til

Nov 04 2007

Tilviljanir

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók

Fyrir einhverjum vikum var ég að tala við vin minn um stelpur. Hann var að segja mér frá því hvernig hann saknaði þess að vera skotinn í stelpu. Hann talaði um hvernig það væri það skemmtilegasta í heimi – að þekkja einhverja stelpu, sem maður væri skotinn í og gæti elst við – og að það versta í sínum kvennamálum væri einfaldlega sú staðreynd að hann hefði enga til að eltast við þessa dagana.

Ástæðan fyrir þessum ummælum hans var sú að ég var að segja frá eltingaleik mínum við eina stelpu. Ég hafði nefnilega verið pínu skotinn í stelpu alveg síðan í júlí. Stelpu, sem ég smám saman kynntist og varð skotnari í. Í margar vikur eltist ég við hana, beið eftir henni þegar hún var erlendis, og reyndi margoft að fá hana á stefnumót með mér.

Sem tókst jú á endanum, en á endanum gekk þetta ekki upp. Það er því dálítið furðulegt að hafa núna ekki lengur neinn til að eltast við.

* * *

Málið er að öll þessi sambandsmál virðast vera svo tilviljanakennd að ég get ekki gert að því að flokka stóran hluta af þeim undir hreinræktaða heppni eða óheppni. Sum samböndin mín virðast spretta uppúr engu. Einu sinni fattaði að ég var bálskotinn í bestu vinkonu minni.  Og eitt besta sambandið mitt spratt uppúr því að stelpa, sem les þessa bloggsíðu, vildi kynna mig fyrir vinkonu sinni. Og svo hafa sambönd byrjað á því að ég hafi bókstaflega rekist á stelpur á skemmtistöðum bæjarins.

Þetta virðist allt svo tilviljanakennt að stundum finnst manni einsog það sé vel mögulegt að hlutirnir muni aldrei ganga upp. Sum kvöld finnst mér allar leiðir standa opnar, önnur kvöld engar. Og þegar ég hitti réttu stelpurnar þá virðist það svo oft vera á vitlausum tíma, í vitlausu landi eða á vitlausu tímabili í þeirra eða mínu lífi. Þetta virðist allt svo tilviljanakennt.

Og það er eflaust ástæðan fyrir því að ég eyði svo miklum tíma í að hugsa um þessi mál. Ég veit að ef ég vinn ötullega í Serrano þá mun staðurinn batna og viðskiptin aukast. Og ég veit að ef ég held áfram að borða rétt og mæta í ræktina klukkan hálf sjö á morgnana, þá mun ég koma mér í það form sem ég vil. Það er einhver lógík í þessum málum.

En með stelpur, þá er lítið sem maður getur gert, nema hugsanlega að bíða eftir því að eitthvað gerist uppúr þurru. Jú, ég get eflaust gert mig að betri manni – og ég er alltaf að reyna það. Ég get reynt að líta betur út, ég get lært meira inná sjálfan mig, ég get lært að dansa, ég get lesið til að öðlast frekari þekkingu, ég get ferðast meira til að eiga fleiri sögur til að segja, ég get endalaust hugsað um það hvernig ég get verið betri maður…

En það er samt engin trygging fyrir því að maður finni réttu stelpuna. Kannski verður þetta bara endalaust samansafn af stuttum samböndum, sem skilja lítið eftir sig. Ég get verið eins góður einstaklingur og ég get, en það verður aldrei nein trygging fyrir því að finna réttu manneskjuna. Það vantar alltaf þetta tilviljanakennda – að einhver kynni mig fyrir nýrri stelpu, að ég sjái eitthvað sem ég sé ekki í dag, eða þá að ég rekist á einhverja stelpu, hvort sem það er á dansgólfinu á Ólíver eða á gistiheimili í einhverju ókunnugu landi. Fyrir svona skipulagðan einstakling einsog mig, þá er oft erfitt að sætta sig við það hversu lífið er tilviljanakennt.

Þetta er kannski ástæða þess að það er oft fátt um svör þegar fólk spyr mig af hverju í ósköpunum að strákur einsog ég sé ekki genginn út. Þegar ég fæ næst þessa spurningu (sem verður eflaust einhvern tímann í þessari viku), þá get ég allavegana vísað á þessa færslu. :-)

13 ummæli hingað til

Nov 03 2007

Lífið

Einar Örn skrifaði í flokkinn Almennt

Oh, how true.

It’s scary. One day you’re 21, playing PS2 and getting drunk every night. Then suddenly, you’re 29, playing PS3, getting drunk every other night, and all your friends are married and/or have kids. How did things change so fast??

link.

Engin ummæli enn

Nov 01 2007

Serrano 5 ára

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók, Vinna

Fyrir 5 árum skrifaði ég þessa færslu um fyrsta daginn okkar á Serrano. Þann dag var ég að tapa mér í stresskasti og flest fór úrskeiðis, sem gat farið úrskeiðis. En núna 5 árum seinna hefur það sannast að fall er fararheill. Emil félagi minn sagði í gær að hann trúði því varla að það væru fimm ár síðan að hann vakti alla nóttina til að opna staðnn og síðan að ég gat ekki borðað matinn útaf stressi.

Ég hef áður skrifað á þessari síðu hvernig Serrano varð til í hausnum á mér fyrir einhverjum 6 árum. Hvernig að upphaflega hugmyndin kom fyrst fram fyrir heilum 9 árum hjá okkur Emil á einhverju rútuferðalagi í Suður-Ameríku. Og það hvernig hugmyndin mótaðist á háskólaárum mínum í Bandaríkjunum og hvernig maturinn varð til í eldhúsinu okkar Hildar í Chicago.

Það er alveg hreint ótrúlega skemmtileg tilviljun að í dag sé aðeins vika í það að við opnum veitingastað í Smáralind. Því að planið var alltaf að opna Serrano í Smáralind fyrir 5 árum. Þá var okkur hins vegar hafnað og í staðinn var ákveðið að bíða eftir Burger King, sem að lokum opnuðu stað þar. Kringlu- og Stoðamenn höfðu hins vegar meiri trú á okkur og því opnuðum við okkar fyrsta stað í Kringlunni þann 1.nóvember árið 2002. Núna 5 árum seinna er það því ótrúlega sætt að geta opnað í Smáralind og fá tækifæri til að sanna okkur þar.

Fyrir mig er þetta síðasta ár búið að vera alveg einstakt. Ég tók fyrir alllöngu ákvörðun um að hætta í vinnunni minni og einbeita mér að Serrano. Þrátt fyrir að staðurinn væri ekkert rosalega stór, þá sá ég möguleikanna sem að staðurinn ætti inni. Núna hefur Serrano verið mitt aðalstarf í nákvæmlega 12 mánuði og árangurinn hefur verið frábær. Veltan hefur þrefaldast frá því sem hún var fyrir ári og það segir aðeins hluta af sögunni, því að við höfum líka keypt taílenska veitingastaðinn Síam og fullt er að gerast í Serrano málum.

Í næstu viku opnum við svo þriðja Serrano staðinn í Smáralind og það er okkar plan að innan 6 mánuða verði Serrano staðirnir orðnir 5 talsins. Við erum búnir að skrifa undir samninga um húsaleigu í báðum tilfellum og munu framkvæmdir á fyrri staðnum hefjast á næstu vikum. Þetta er því ótrúlega spennandi og skemmtilegur tími í sögu þessa fyrirtækis.

* * *

Ég er búinn að kynnast ótrúlegum fjölda fólks í tengslum við þennan rekstur og ég get sagt að við höfum aldrei verið jafn vel settir með starfsfólk einsog í dag. Staðurinn hefur líka aldrei verið jafn vel rekinn og hann er í dag.

Og það magnaðasta í þessu er að við Emil höfum í gegnum þessi 5 ár haldið áfram að vera bestu vinir. Vissulega höfum við rifist um einstaka hluti í rekstrinum, en það hefur ætíð verið gleymt innan nokkurra klukkutíma. Við hefðum allavegana aldrei getað gert þetta án hvors annars. Þrátt fyrir að einkalífið hjá mér hafi kannski ekki alltaf gengið upp á síðustu árum, þá stendur það samt sem áður eftir að ég get verið stoltur af þessu mexíkóska ævintýri.

19 ummæli hingað til