Skráarsafn fyrir December, 2007

Dec 31 2007

Áramótaávarp 2007

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók

Þar sem ég gerði upp árið í jólakortum til vina minna, þá hef ég verið að hugsa um þetta ár nokkuð mikið síðustu vikur. Við áramót finnst mér alltaf ágætt að skoða aðeins mitt líf.

Ég var búinn að impra á því aðeins í stuttri tónlistarfærslu hvað ég væri mikið hamingjusamari um þessi áramót en ég var fyrir ári og tveim árum. Fyrir ári var ég í raun enn að jafna mig á nokkuð erfiðu sambandi og í raun má segja að ég hafi tekið mig saman í andlitinu í kjölfar þess að ég skrifaði áramótapistilinn fyrir ári. Það fyrsta í því var að hætta að treysta á sambönd við stelpur. Ég var orðinn þreyttur á því að eignast vini í kringum sambönd við stelpur, sem svo slitnuðu um leið og samböndin slitnuðu.

Mér fannst ég því þurfa að eignast nýja vini. Vinir mínir úr barnaskólum og Verzló hafa allir verið í samböndum í fjölmörg ár og því hlaut það að gerast að þeirra áhugamál fjarlægðust mín. Alltof lengi lét ég þetta fara í taugarnar á mér og lét pirringinn bitna á þeim, í stað þess að gera eitthvað í mínum málum. Mér fannst því við síðustu áramót að ég þyrfti að kynnast nýju fólki.

Og á þessu ári hefur það tekist. Ég lærði að dansa salsa á ný og eignaðist um leið bestu vinkonu sem ég hef átt. Og ég fór að taka virkari þátt í félagsstarfi, þar sem ég um leið eignaðist frábæran vinahóp. Fyrir þetta er ég ótrúlega þakklátur og þetta er gríðarlega stór þáttur í því af hverju mér líður vel í dag.

* * *

Árið hef líka markast afskaplega mikið af vinnu. Ég byrjaði í lok síðasta árs að vinna eingöngu sem framkvæmdastjóri Serrano. Á þeim tíma hefur gríðarlega margt gerst í rekstri staðarins. Við opnuðum í janúar nýjan stað á Hringbraut, sem hefur gengið frábærlega frá upphafi. Í nóvember opnuðum við svo glæsilegan stað í Smáralind sem byrjar líka gríðarlega vel.

Í tengslum við þetta höfum við farið í gegnum mikla vinnu til að bæta staðinn. Í Smáralindinni unnum við með hönnuði til að hanna heildarútlit staðarins, sem mun nýtast okkur í framtíðinni. Einnig hef ég lagað ýmislegt í rekstri staðarins og því hvernig staðirnir ganga í gegnum hvern dag. Auk þess höfum við svo breytt ýmsu í matnum og meira mun gerast í þeim málefnum á næstu mánuðum.

Allt hefur þetta skilað alveg frábærum niðurstöðum. Salan í Kringlunni hefur aukist áfram á árinu og hinir nýju staðir hafa verið viðbót við þann stað. Í desember vorum við til að mynda að afgreiða nærri því fjórfalt fleiri viðskiptavini en í desember í fyrra. Einnig keyptum við taílenska veitingastaðinn Síam, sem við ætlum okkur stærri hluti með á næsta ári.

* * *

En þessi mikla vinna hefur líka gert það að verkum að ég hef nánast ekkert komist til útlanda á árinu og hef í raun bara tekið mér 3 frídaga allt árið. Ég fór þó í frábæra ferð til Liverpool þar sem ég sá Liverpool spila við Man Unitd og slá Barcelona útúr Meistaradeildinni.

Emil og ég fórum svo til Stokkhólms og um verslunarmannahelgina fór ég til Skotlands.

Lengsta ferðin var svo til Bandaríkjanna. Ég og Birkir yfirkokkur á Serrano fórum til Austin þar sem við skoðuðum fjöldan allan af veitingastöðum. Ég tók mér svo smá frí þar sem ég eyddi frábærri helgi með vinum mínum í Chicago þar sem við fórum á Cubs leiki og nutum þeirrar æðislegu borgar. Svo kom ég við í Washington DC þar sem ég heimsótti Genna og Söndru, vini mína.

* * *

Og jú, ég var í einhverjum samböndum með stelpum á þessu ári. Ekkert þeirra entist þó lengur en einn mánuð. Allt mjög fínar stelpur, sem mér fannst ég á endanum ekki passa nógu vel við. Ólíkt fyrri árum sé ég þó eftir afskaplega fáu í þessum málefnum á árinu.

En mér líður semsagt afskaplega vel við þessi áramót. Nánast allt í mínu lífi er miklu betra í ár heldur en í fyrra og því get ég ekki annað en verið ánægður með árið 2007. Það eina sem skyggði á árið voru veikindi í fjölskyldunni minni, sem að vonandi eru yfirstaðin núna. Ég er líka mjög spenntur fyrir næsta ári. Ég er með gríðarlega spennandi plön í vinnunni, sem ég mun eflaust fjalla um á þessari síðu á næstunni og vonandi fæ ég líka tækifæri til að ferðast á ný. Það hefur nauðsynlega vantað góðar nýjar ferðasögur inná þessa síðu.

2008 skal vera gott ár.

Gleðilegt ár. Takk fyrir að lesa.

6 ummæli hingað til

Dec 30 2007

Smá viðbótar breytingar

Einar Örn skrifaði í flokkinn Netið

Jæja, ég held að ég sé orðinn nokkuð sáttur við útlitið núna.  Núna ætti að vera mun auðveldara að leita í gömlum færslum.  Hérna vinstra megin er kominn leitargluggi og listi yfir gamlar færslur, flokkaðar eftir mánuðum og flokkum.

Uppfærði svo eitthvað af upplýsingum um sjálfan mig og bætti inn prófílnum mínum á LinkedIn og á Couchsurfing.  Einnig lagaði ég Feisbúk linkinn, sem var í einhverju rugli.

Ein ummæli hingað til

Dec 29 2007

Nýtt útlit

Einar Örn skrifaði í flokkinn Netið

Ég held að ég geti óhræddur haldið því fram að ég er mjög íhaldssamur þegar að kemur að útliti þessarar síðu. Ég hef haldið úti bloggsíðu í yfir 7 ár, en aðeins breytt um útlitið 4-5 sinnum.

Fyrir nokkru færði ég mig frá MovableType yfir í Wordpress. Ég reyndi að kópera gamla útlitið og fylla inn Wordpress eiginleikana í það skjal. Það gekk hins vegar afleitlega og margir hlutir hafa ekki virkað.

Ég ákvað því að henda alveg gamla útlitinu, finna útlit sem ég fílaði og breyta því aðeins til að gera það að mínu. Ég fann þetta útlit, breytti litaþemanu, myndum og einhverju fleiru og er orðinn verulega sáttur við þetta nýja útlit. Til að breyta CSS skránni notaði ég þetta ótrúlega æðislega forrit.  Ég get varla lýst því hvað þetta forrit er mikil snilld.

En allavegana, endilega látið mig vita hvernig þetta lítur út og hvort að eitthvað sé í ólagi. Ég mun sennilega halda áfram að laga þetta eitthvað til, en ég held að þetta sé voðalega flott fyrir nýtt ár.

10 ummæli hingað til

Dec 28 2007

Bestu lögin og plöturnar 2007

Einar Örn skrifaði í flokkinn Topp10, Tónlist

Jæja, einsog vanalega kemur listinn minn yfir bestu plötur og lög ársins 2007.

  1. Jens Lekman – Night falls over Kortedala: Þetta er ekki auðvelt val. Kanye er stórkostlegur snillingur og nýja platan hans er aðvitað frábær. En Jens Lekman er það líka og þetta er án efa hans langbesta plata. Hann hafði lofað góðu áður, en á þessari plötu sprettur hann fram sem fullskapaður snillingur.Það eru nánast öll lögin góð, en samt þá er Your arms around me í mestu uppáhaldi hjá mér. Hverjum hefði dottið í hug að besta plata ársins kæmi frá Svía frá Gautarborg og myndi heita í höfuðið á úthverfi í þeirri borg.
  2. Kanye West – Graduation: Þriðja snilldarplatan frá Kanye West er að mínu mati sú besta í röðinni. Allt frá því að ég heyrði fyrstu smáskífuna (sem eldist ekkert sérstaklega vel, en ég var þó með hana á heilanum í margar vikur) þá var ég viss um að ég myndi elska þessa plötu. Sem ég og gerði. Bestu lögin eru (eftir að ég þreyttist á Stronger) Homecoming og The Glory
  3. Bruce Springsteen – Magic: Síðustu plötur frá Springsteen hafa allar verið góðar og ég hef smám saman komist yfir það að finnast hann hallærislegur og byrjað aftur að kunna að meta tónlistina hans. Ég hef alltaf verið hrifnari af rólegri plötum Springsteen, en á þessari plötu er hann í rokkaðri kantinum og það svínvirkar líka. Besta lag: Devil’s Arcade
  4. Radiohead – In Rainbows: Besta plata Radiohead í 10 ár.
  5. Okkervil River – Stage Names: Frábær plata frá hljómsveit sem ég hafði ekkert heyrt í.
  6. Jay-Z: American Gangster: Comebackið hjá Jay-Z er fullkomnað með þessari plötu þar sem ég fílaði ekkert sérstaklega Kingdom Come. Besta lag: Roc Boys (sem er reyndar besta lag ársins að mínu mati).
  7. LCD Soundsystem – Sound of Silver: Frábær plata sem inniheldur m.a. eitt af lögum ársins, All my friends
  8. Justice – Cross
  9. Pharoahe Monch – Desire
  10. Klaxons – Myths of the Near Future

Og þá bestu lög ársins

  1. Jay-Z – Roc Boys: Þetta lag og Stronger með Kanye voru mest grípandi lög ársins að mínu mati. Roc Boys er allt sem ég elska við Jay-Z. Þvílíkur snillingur.
  2. LCD Soundsystem – All my friends: Við fyrstu hlustun tók ég ekkert sérstaklega eftir þessu lagi en eftir að ég hafði rennt Sound of Silver nokkrum sinnum í gegn var þetta lagið sem stóð uppúr. Frábær texti og frábært lag.
  3. Okkervil River – Unless it kicks
  4. Kanye West – Stronger / Homecoming: Get ekki gert uppá milli þessara laga með Kanye
  5. Manic Street Preachers – Imperial Bodybags
  6. Bruce Springsteen – Devil’s Arcade / Radio Nowhere: Tvö bestu lögin af Springsteen plötunni
  7. Justice – D.A.N.C.E.
  8. Foo Fighters – The Pretender: Lagið sem hefur haldið mér vakandi í ræktinni undanfarna mánuði.
  9. Modest Mouse – Dashboard
  10. Silverchair – Straight Lines

Að mínu mati frábært tónlistarár.

3 ummæli hingað til

Dec 26 2007

Jólin

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók

Þetta eru búin að vera æðisleg jól.

Sit núna uppí sófa, nýbúinn að borða Weetabix þar sem mig hreinlega langaði ekki í meiri óhollustu í bili. Hef sofið lengur en 12 tíma tvo daga í röð, eytt fullt af tíma með fjölskyldunni og borðað frekar mikið.

Ég fékk fulltaf skemmtilegum gjöfum, bæði frá fjölskyldu og fyrirtækjum tengdum Serrano. Fékk m.a. matarkörfur, fullt af víni, skálar og fleira frá fyrirtækjum. Frá fjölskyldunni fékk ég svo tvær bækur, annars vegar ljósmyndabók og hins vegar bókina um Maó eftir Jung Chang. Ég er orðinn nokkuð spenntur fyrir því að lesa hana. Las í fyrra ævisögu Pol Pot og hún gerði mig spenntan fyrir að lesa um Maó.

Allavegana, aðalgjöfin var samt snjóbretti, en ég hef einmitt aldrei farið á snjóbretti. Ég var hins vegar nokkuð góður á skíðum þegar ég var yngri, en missti áhugann þegar ég var útí háskóla. Það virðast allir undir fertugt vera á snjóbrettum í brekkunum í dag, þannig að ég var orðinn verulega spenntur að prófa. Og það lítur út fyrir að ég sé strax heppinn með snjó, þannig að vonandi fæ ég að prófa brettið um helgina. Það eru allir búnir að segja mér að ég muni eyða fyrsta deginum á hausnum, þannig að ég er undirbúinn undir hið versta.  :-)

4 ummæli hingað til

Dec 23 2007

Jól

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók

Þorláksmessa og ég er búinn að redda öllu jólastússinu.  Sit fyrir framan sjónvarpið, hálf afslappaður og horfi á Barca-Real Madrid.  Eini gallinn við þetta ástand er að ég sé ekki almennilegan mun á því að horfa á Real Madrid-Barcelona á Sýn og að horfa á myndbönd á Youtube.  Gæðin eru einfaldlega of lík.

Jólastússið hjá mér er reyndar afskaplega einfalt.  Ég eyði nokkuð miklum tíma í að skrifa jólakort og svo kaupi ég jólagjafir.  Þetta árið gef ég einhvejrar 50 jólagjafir, yfirgnæfandi meirihluti þeirra er til starfsmanna Serrano, en svo eru nokkrar til fjölskyldumeðlima.  Þar sem ég þarf hvorki að skreyta né baka (takk, mamma!) þá er jólaundirbúningurinn ekki flóknari en svo.

* * *

Er búinn að kíkja í bæinn bæði í gær og í fyrrakvöld.  Á Vegamót og Ólíver á föstudaginn og svo á B5 í gær.  Það var yndislegt að vakna báða dagana án hausverks, þar sem ég var afskaplega rólegur í því að drekka. Sem var mjög ólíkt því sem var í gangi um síðustu helgi.  Þá var ég í afmæli hjá Jensa vini mínum og  í bænum á föstudagskvöld og svo var ég með partí á laugardagskvöldið, sem endaði með ansi langri viðveru á skemmtistöðum bæjarins.

* * *

Vann í afgreiðslunni á Serrano á fimmtudaginn, sem var hressandi.  Hef alltaf þurft að vinna af illri nauðsyn á Serrano síðustu 5 jól, en núna var ástandið svo gott á staðnum að ég vann bara vegna þess að ég bauðst til þess.  Það kom mér eiginlega í ágætis jólaskap að standa þarna og afgreiða burritos í nokkra klukkutíma.

Á morgun keyrum við Emil svo saman út einhverja jólapakka, svo fer ég í kirkjugarðinn með fjölskyldunni og eyði svo kvöldinu heima hjá eldri systur minn.  Þrátt fyrir að ég komist kannski ekki í jólaskap fyrr en á aðfangadag, þá elska ég samt jólin þegar þau loksins koma.

En allavegana segi ég bara Gleðileg Jól, vona að allir sem lesa þessa síðu hafi það gott um jólin.  :-)

3 ummæli hingað til

Dec 21 2007

Uppboði að ljúka

Einar Örn skrifaði í flokkinn Uppboð

Jæja, síðasta hluta uppboðsins lýkur í dag.  Ég er búinn að senda einhverjum email varðandi hlutina.  Ég ætla að hafa opið hús hjá mér milli jóla og nýárs þar sem fólk getur sótt hlutina.  Ef hins vegar einhver þarf hlutina fyrir jól, endilega sendið mér póst á einarorn@gmail.com – annars getiði sótt þetta milli jóla og nýárs.

Ein ummæli hingað til

Dec 19 2007

Punktablogg……

Einar Örn skrifaði í flokkinn Almennt

Aðeins til að brjóta upp uppboðs-gospelið: Punktablogg

  • Þetta er án efa mest pointless undirskriftarsöfnun í sögu lýðveldisins (sjá frétt). Nú verð ég að játa að ég panta mér bara venjulegt kaffi þegar ég er á Starbucks í útlöndum, þannig að ég hef aldrei skilið hversu yndislegir rjómakenndir heitir drykkir eru á staðnum. Kaffið er fínt og líkt og McDonald’s sæki ég nokkuð mikið í Starbucks í ókunnugum borgum. Þegar ég læri betur á borgirnar þá minnka þó heimsóknir mínar á slíkar alþjóðlegar keðjur.En þurfum við virkilega á þessu að halda hér? Hverju mun þetta bæta við menninguna, sem að íslensk kaffihús hafa ekki gert hingað til? Gott og vel að Starbucks komi og fólk geti keypt sér 300 kaloríu drykki. En þurfa kaffihúsin á Íslandi virkilega að vera nákvæmlega einsog öll kaffihúsin í útlöndum? Og hversu sorglegt er það að við séum með undirskriftasöfnun til þess að bandarískur kaffirisi opni kaffihús á Íslandi? Mjög, segi ég. – Ég gleymi því seint hversu æstir allir í kringum mig voru í að fá Burger King til landsins. Sú keðja átti nú aldeilis að bæta líf landans.
  • Forsíðuviðtalið á Vikunni er við þulu, sem er ósátt við starfslok sín á RÚV. Bara ef einhverjir skyldu hafa misst af því.
  • Er einhver þarna úti sem fílar M.I.A.? Ég verð forvitinn yfir því hvað hún fær fáránlega góða dóma fyrir tónlistina, en ég hef aldrei nennt að hlusta á plöturnar hennar oftar en tvisvar. Bíður mín einhver dæmalaus snilld ef ég hef aðeins meiri þolinmæði?
  • Að lokum legg ég til að stelpur fólk verði skikkað til að dagsetja MæSpeis myndir af sjálfu sér.

Takk. Áfram með uppboðið.

25 ummæli hingað til

Dec 18 2007

Uppboð 2007: Út að borða

Einar Örn skrifaði í flokkinn Uppboð

Árlega uppboðið mitt til styrktar góðgerðarmálum er komið aftur í gang. Hérna er yfirlitssíðan fyrir uppboðið og hér að neðan getur þú boðið í hluti. Hérna er svo kynningarfærslan fyrir uppboðið

* * *

Þá er það síðasti hluti uppboðsins þetta árið.

Ég ætla að bjóða upp nokkrar máltíðir á Serrano og Síam. Ég ætla að bjóða upp nokkur gjafabréf frá hvorum stað. Semsagt fyrirtækið okkar Emils leggur til gjafabréfin og allt verðmæti gjafabréfanna rennur óskipt til Oxfam.

Ég er að leggja til nokkur eintök af sama hlutnum, svo að ég mun selja þetta til þeirra 5 sem bjóða hæst (í tilfelli Síam) og þeirra 10 sem bjóða hæst í tilfelli Serrano.

* * *

Síam: Gjafabréf uppá 5.000 krónur. Þetta er útað borða á Síam, sem er taílenskur veitingastaður í Dalshrauni í Hafnarfirði. 5.000 krónur dugar fyrir mat fyrir 2 með drykkjum. Ég ætla að bjóða upp 5 slíka pakka.  Lágmarksboð er 2.000 krónur.

Serrano: Gjafabréf fyrir 2 burrito og gos eða 2 quesadilla og gos á Serrano. Ég ætla að bjóða upp 10 slíka pakka.  Verðmætið á þessum pakka er 1.858 krónur.  Lágmarksboð er 1.000 krónur

Uppboði lýkur klukkan 23.59 á föstudaginn

11 ummæli hingað til

Dec 17 2007

Uppboð 2007: Dót

Einar Örn skrifaði í flokkinn Uppboð

Árlega uppboðið mitt til styrktar góðgerðarmálum er komið aftur í gang. Hérna er yfirlitssíðan fyrir uppboðið og hér að neðan getur þú boðið í hluti. Hérna er svo kynningarfærslan fyrir uppboðið

* * *

Ég var spurður hvort ég ætlaði að bjóða upp hlut, sem seldist ekki í fyrra og ákvað því að skella þessu inn.

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst á einarorn@gmail.com og ég set inn þá upphæð.

At-At

Ég fékk At-At í gjöf frá mömmu og pabba þegar ég var lítill og man að sjaldan eða aldrei hef ég verið jafn glaður. At-At ið er í ágætu ástandi, en alls ekki fullkomnu. Það virka ekki lengur byssurnar sem einu sinni virkuðu og ég hef leikið mér mikið með það.

Þetta hefur persónulegt gildi fyrir mig og því er lágmarksboð 3000 kall.

Uppboði lýkur á föstudag, 21.des kl 23.59

12 ummæli hingað til

Dec 17 2007

Uppboð 2007: Tækjauppboð klárast í kvöld

Einar Örn skrifaði í flokkinn Uppboð

Vildi bara minna á að tækjauppboðið klárast í kvöld klukkan 23.59.

Hæstu boð hingað til eru:

JVC sjónvarp: 20.000 (Hörður)
ATV sjónvarp: 5.000 (Maja)
Samsung U600: 17.000 (skúli)
iPod: 5.500 (Þórhallur)
Samsung SGH: 1.000 (Bóndi)

Hægt er að bjóða í hlutina þangað til 23.59 hér.

Engin ummæli enn

Dec 16 2007

Uppboð 2007: Vín

Einar Örn skrifaði í flokkinn Uppboð

Árlega uppboðið mitt til styrktar góðgerðarmálum er komið aftur í gang. Hérna er yfirlitssíðan fyrir uppboðið og hér að neðan getur þú boðið í hluti. Hérna er svo kynningarfærslan fyrir uppboðið

* * *

Einsog í fyrra, þá voru þau hjá Ölgerðinni svo indæl að gefa mér tvær vínflöskur.

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst á einarorn@gmail.com og ég set inn þá upphæð.

Grand Marnier Lounge Box

Sjá mynd af flöskunni hér. Ekki til í ÁTVR, en aðrar Grand Marnier eru á yfir 4 þúsund.

Masi Amarone

Sjá mynd af flöskunni hér. Kostar í ÁTVR um 3 þúsund.

Lágmarksboð er 1.000 krónur og uppboði lýkur á fimmtudag 20.des klukkan 23.59.

12 ummæli hingað til

Dec 15 2007

Uppboð 2007: Ný Francis Francis kaffivél

Einar Örn skrifaði í flokkinn Uppboð

Árlega uppboðið mitt til styrktar góðgerðarmálum er komið aftur í gang. Hérna er yfirlitssíðan fyrir uppboðið og hér að neðan getur þú boðið í hluti. Hérna er svo kynningarfærslan fyrir uppboðið


Einsog í fyrra, þá voru þau hjá Danól svo indæl að gefa mér glænýja og flotta FrancisFrancis espresso kaffivél til að bjóða upp.

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst á einarorn@gmail.com og ég set inn þá upphæð. Hérna eru það geisladiskar og bækur, sem eru boðnar upp. Enn eru eftir til dæmis vínflöskur, gjafabréf á veitingastöðum og e-ð fleira.

Þetta er glæný og algjörlega ónotuð vél. Enn í kassanum.

Lágmarksboð er 10.000 krónur og uppboði lýkur á fimmtudag 20.des klukkan 23.59.

5 ummæli hingað til

Dec 14 2007

Uppboð 2007: Geisladiskar og bækur

Einar Örn skrifaði í flokkinn Uppboð

Árlega uppboðið mitt til styrktar góðgerðarmálum er komið aftur í gang. Hérna er yfirlitssíðan fyrir uppboðið og hér að neðan getur þú boðið í hluti. Hérna er svo kynningarfærslan fyrir uppboðið

* * *

Og þá er það þriðji hlutinn af uppboðinu mínu árið 2007 til styrktar börnum í Mið-Ameríku.

Sjá nánar um uppboðið hér

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst á einarorn@gmail.com og ég set inn þá upphæð. Hérna eru það geisladiskar og bækur, sem eru boðnar upp. Enn eru eftir til dæmis vínflöskur, kaffivél, gjafabréf á veitingastöðum og e-ð fleira.

Geisladiskar

Ég er latur, þannig að ég ákvað að setja suma diskana saman í pakka. Lágmarksboð 300 kall. Diskarnir eru í mismunandi ástandi.

  • Latino pakki (Cartel de Santa – Cartel de Santa, Caifanes – La Historia, Akwid – Proyecto Akwid, Molotov – Dance and dense denso)
  • Hip-Hop (Cypress Hill – Unreleased and revamped, Wu-Tang – Forever 2cd, Beastie Boys – Paul’s Boutique, NWA – Niggaz4Life
  • R.E.M. pakki (Up, New adventures in hi-fi, Monster
  • Random pakki 1 (Wyclef Jean – THe ecleftic, Papa Roach – Infest, Live – Throwing Copper, Ben Folds – Ben Folds Live, Better than Ezra – Friction Baby)
  • Random pakki 2 (Alice in Chains – 3 legged dog, Massive Attack – Mezzanine, John Lennon – Imagine, Roger Waters – Pros and cons of hitchiking)
  • Battles – Mirrored
  • Benni Hemm Hemm – Kajak
  • Jens Lekman – Oh, you’re so silent
  • Maná – Amar es combatir
  • Trentemöller – The last resort
  • Jose Gonzalez – Veener
  • Sigur Rós – Recycle Bin
  • Ampop – Sail to the moon
  • Sverrir Stormsker – Best af því besta

Bókapakkar

Ég seldi þessa bókapakka í fyrra, en þeir voru aldrei sóttir. Lágmarksboð 1.000 krónur

  • Stephen King pakki ( Úr álögum (Rose Madder),Umsátur (Cujo), Visnaðu (Thinner), Eldvakinn (Firestarter), Bókasafnslöggan (The Library Policeman) Flóttamaðurinn (Running Man) – vantar kápu, Háskaleikur (Gerald’s Game), Furðuflug (The Langoliers), Örlög (Dolores Claiborne), Duld (The Shining) – vantar kápu
  • Íslensk knattspyrna 1981-1993

Þessu uppboði lýkur á miðvikudagskvöld 19.des kl 23.59

33 ummæli hingað til

Dec 13 2007

Uppboð 2007: Xbox 360 leikir og DVD diskar

Einar Örn skrifaði í flokkinn Uppboð

Árlega uppboðið mitt til styrktar góðgerðarmálum er komið aftur í gang. Hérna er yfirlitssíðan fyrir uppboðið og hér að neðan getur þú boðið í hluti. Hérna er svo kynningarfærslan fyrir uppboðið

* * *

Jæja, þá er það annar hlutinn af uppboðinu mínu árið 2007 til styrktar börnum í Mið-Ameríku.

Sjá nánar um uppboðið hér

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst á einarorn@gmail.com og ég set inn þá upphæð. Núna eru það Xbox 360 leikir og DVD diskar, sem eru boðnir upp.

XBOX 360 leikir

Þessir leikir eru allir í fullkomnu ástandi. Lágmarksboð 1.000 krónur

  • Ghost Recon Advanced Warfighter 2
  • FIFA 2006 World Cup
  • Call of Duty 2
  • Splinter Cell Double Agent
  • Rainbow Six Vegas (lygilega skemmtilegur leikur!)

Auk þess eru tveir Xbox leikir (lágmarksboð 500 krónur)

  • Farcry Instincts
  • Halo 2

DVD diskar

Þessir DVD diskar eiga allir að vera í nokkurn veginn fullkomnu ástandi. Lágmarksboð 500 krónur

  • The Daily Show Indecision 2004 (3 diska safn)
  • Citizen Kane
  • Casino Royale
  • Star Wars 1 The Phantom Menace
  • Bowling for Columbine
  • Saving Private Ryan
  • Yes Minister (1.sería) (diskur smá rispaður)
  • Twin Peaks Season 1 (USA kerfi og pakki smá hnjaskaður)

Uppboðinu lýkur á þriðjudagskvöld (18.des) kl 23.59

26 ummæli hingað til

Dec 12 2007

Uppboð 2007: Tæki

Einar Örn skrifaði í flokkinn Uppboð

Árlega uppboðið mitt til styrktar góðgerðarmálum er komið aftur í gang. Hérna er yfirlitssíðan fyrir uppboðið og hér að neðan getur þú boðið í hluti. Hérna er svo kynningarfærslan fyrir uppboðið

* * *

Jæja, þá er það fyrsti hlutinn af uppboðinu mínu árið 2007 til styrktar börnum í Mið-Ameríku. Sjá nánar um uppboðið hér

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst á einarorn@gmail.com og ég set inn þá upphæð. Í þessum fyrsta hluta uppboðsins ætla ég að bjóða upp ýmis tæki.

Uppboðinu lýkur klukkan 23.59 á mánudagskvöld (17.des)

JVC Sjónvarp

Þetta er 2-3 ára gamalt 32″ JVC sjónvarp af gerðinni JVC AV-32H40SU. Sjónvarpið er í mjög góðu ástandi og fjarstýringin fylgir.  Það kostaði einhvern 90.000 kall þegar ég keypti það fyrir 2-3 árum.

Sjá mynd hér

Lágmarksboð 10.000

ATV 21 tommu sjónvarp

Þetta er sjónvarp sem hefur verið inní geysmlu hjá mér og ég held að ég hafi ekki horft á það í þrjú ár. Þótt ótrúlegt megi virðast þá nægir mér að hafa eitt sjónvarp og tvær tölvur á heimilinu. Þetta er 21 tommu sjónvarp með fjarstýringu og er í mjög góðu ástandi. Skoða mynd. Lágmarksboð: 5000 kall

Samsung U600 GSM sími

Þennan síma keypti ég í sumar. Hann er örlítið rispaður, en samt ekki mikið. Ég myndi segja að hann væri í mjög góðu ástandi. Kostaði yfir 30.000 krónur útí Svíþjóð í apríl. Hleðslutæki fylgir.

Þetta er með flottustu símum á markaðinum í dag. Eina ástæðan fyrir því að ég er að selja hann er að ég á iPhone.

Sjá mynd hér

Lágmarksboð 10.000 krónur.

iPod Nano 4gb

Þessi iPod er EKKI í neitt sérstaklega góðu ástandi. Hann er mjög mikið notaður og mjög rispaður, en hann virkar alveg og með honum fylgir USB snúra og headphones.

Sjá mynd hér

Lágmarksboð 1.000 krónur.

Samsung SGH-E730 GSM sími

Nokkra ára gamall samlokusími, sem hefur reynst mér gríðarlega vel. Er samt MJÖG mikið notaður. Ábyggilega fínn sem fyrsti sími handa krökkum. Hleðslutæki fylgir.

Sjá mynd hér

Lágmarksboð 1.000 krónur.

33 ummæli hingað til

Dec 12 2007

Uppboð 2007

Einar Örn skrifaði í flokkinn Uppboð

Jæja, það eru víst að koma jól og því væri ekki vitlaust að taka árlega uppboðspakkann minn.

Fyrir þá, sem hafa ekki lesið þessa síðu í mörg ár (og hver hefur ekki gert það?) þá hef ég fyrir síðustu tvö jól tekið til dót úr eigin safni og selt það á þessari síðu með uppboðsformi og gefið ágóðann til Oxfam góðgerðarmála í Mið-Ameríku og SuðAustur Asíu.

Ég skrifaði í fyrir tveim árum um upphaflegar ástæður fyrir því að ég ákvað að standa í þessu uppboði og þær ástæður eru auðvitað enn jafngildar í dag.

Þessi uppboð hafa þó gert að verkum að geymslurnar mínar verða alltaf tómari með hverju árinu og því er ég með afskaplega lítið til að bjóða upp þetta árið miðað við síðustu tvö ár.

Ég hélt þó uppá 30 ára afmælið mitt í sumar og þar afþakkaði ég afmælisgjafir en bað þess í stað fólk um að leggja pening inná bankareikning, sem og margir gerðu.

Ég ætla því núna að gefa þá peninga sem söfnuðust þá, sem og á peninga sem munu safnast í þessu uppboði til Oxfam. Fyrir þá, sem vilja ekkert kaupa en vilja gefa beint til Oxfam, þá getiði lagt pening inná sérstakan reikning sem er 0323-13-701310 og kennitalan 170877-3659. Ég mun svo eftir áramót koma þessu öllu til Oxfam. Munið að það sem okkur finnst vera smápeningur getur komið sér gríðarlega vel fyrir samtök einsog Oxfam í löndum Mið-Ameríku.

Fyrsti hluti uppboðsins kemur seinna í kvöld.

7 ummæli hingað til

Dec 11 2007

Hlutirnir sem barnabörnin ættu að vita

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók, Tónlist

Það eru næstum því tvö ár síðan ég skrifaði þennan áramótapistil þar sem ég var á frekar miklum bömmer og hlustaði stanslaust á Eels, sérstaklega Things the grandchildren should know.

Í dag líður mér sirka 100 sinnum betur (þetta hjálpaði auðvitað) og á slíkum stundum er alltaf hálf skrýtið að grípa í lög sem maður tengir svo leiðinlegum tímum í sínu lífi. Það getur verið ótrúlegt hversu samofin ákveðnum tímabilum í lífi manns ákveðin lög geta verið.

Ég get til dæmis varla hlustað á Last Goodbye með Buckley án þess að hugsa til allra þeirra stunda sem ég lá uppí rúmi lesandi ljóð frá fyrrverandi kærustunni minni, miður mín yfir því að við værum í sitthvorri heimsálfunni. Og ég á enn erfitt með að hlusta á Don’t think twice, it’s alright án þess að það verði til þess að upp fyrir mér rifjist hvernig mér fannst önnur stelpa hafa svikið mig.

En það var eitthvað við að að hlusta á Things the grandchildren should know í kvöld, sem fékk mig til að líða alveg einstaklega vel. Það getur nefnilega tvennt gerst þegar maður heyrir á góðum stundum í lífinu lög sem maður tengir þeim slæmu. Annaðhvort vekur það upp slæmar tilfinningar og rífur upp gömul sár. Eða þá að lögin gefa manni smá perspektíf. Þau hjálpa manni að rifja upp að hlutirnir voru einu sinni alveg ferlega ömurlegir, en að í dag séu þeir svo miklu, miklu betri.

Þess vegna verð ég glaður við að hlusta á Eels í dag. Þetta lag hjálpar mér að meta það hversu gott ég hef það núna.

6 ummæli hingað til

Dec 10 2007

Punktablogg helgarinnar

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók

Jammmm.

  • Á Vegamótum á laugardagskvöldið hitti ég stelpu, sem ég kannast við, sem var að reyna að koma mér saman við vinkonu sína. Það eina, sem hún taldi upp sem kosti (vissulega á afar stuttum tíma) var vinnan sem stelpan var í. Ég held að það hafi aldrei gerst áður að starfstitill hafi verið nefndur sem kostur við stelpu við mig.
  • Ef ég er einn heima og hef frítíma (sem gerist reyndar ekki oft þessa dagana), þá eru svona 85% líkur á því að ég sé að spila Super Mario Galaxy, sem er einmitt besti tölvuleikur sem ég hef spilað í langan, langan tíma.
  • Á Kaffibarnum var ég að bíða eftir klósetti á meðan að par var að athafna sig þar inni. Næsti gaurinn í röðinni spurði hvort ég ætlaði bara að pissa eða hvort ég ætlaði líka að fá mér línu. Ég sagðist bara þurfa að pissa. Ógeðslega glatað!
  • Síðasta lagið eftir lokun á Vegamótum var Heartbeats með Jose Gonzalez, sem ég hafði ekki hlustað á í einhvern tíma. Mikið afskaplega er það æðislegt lag.
  • Er þetta veður eitthvað grín?
  • Hérna er skemmtileg síða með allskonar topplistum ársins að mati Time.
  • Hjá Dr. Gunna var Arcade Fire með plötu ársins. Ég kemst ekki yfir það að mér finnst þessi plata með þeim vera hundleiðinleg og þó dýrkaði ég frumraun þeirra. Ég kem auðvitað með minn lista um áramótin, en þetta verður val á milli LCD, Kanye, Okkervil, Radiohead og Jensa Lekman.

Svo mörg voru þau orð.

13 ummæli hingað til

Dec 08 2007

Ferðalög, ljóskur og kossar

Einar Örn skrifaði í flokkinn Almennt

Í New York Times í dag: The 53 places to go in 2008.  Kjörin síða til að láta sig dreyma yfir leiðinlegum fótbolta í sjónvarpinu á laugardagseftirmiðdegi.

Á BBC: The Blonde Map of Europe.  Á þessu korti sést hvar er hlutfallslega mest af ljóshærðu fólki.  Ég hef svo sem ekkert verið að fela aðdáun mína á dökkhærðum stelpum hingað til, þannig að sennilga ætti ég að halda mig frá Svíþjóð norðan Stokkhólms.

Hérna er svo kort af því hversu oft þú átt að kyssa fólk á kinnarnar í Frakklandi.  (via MeFi)

6 ummæli hingað til

Eldri færslur »