Skráarsafn fyrir March, 2008

Mar 31 2008

Uppfærsla

Einar Örn skrifaði í flokkinn Uncategorized

Ég tek undir þessa hneykslunarfærslu hjá Andrési félaga mínum.  Ég trúi því ekki að þessi maður fái að taka svona ákvarðanir, sem hafa úrslitaáhrif á framtíð borgarinnar okkar.

* * *

Meistari Krugman tjáir sig um íslenskt efnahagslíf.

* * *

Ég er með ofnæmi fyrir þessum Lu kex-auglýsingum.  “Stelpur, það er komin nýr Luuu leikur!!”

* * *

Ég er búinn að uppfæra Kop.is og þessa síðu í Wordpress 2.5.  Þetta tók svona hálftíma fyrir báðar síðurnar og gekk hnökralaust.  Nýja viðmótið lítur nokkuð vel út.

Engin ummæli enn

Mar 31 2008

Á Inca Trail í Perú

Einar Örn skrifaði í flokkinn Myndir

Undanfarnar vikur er ég búinn að skanna inn gríðarlegt magn af gömlum filmum. Sem betur fer var ég dálítill ljósmyndanörd þegar ég var minni og hélt því vel uppá allar negatívurnar mínar. Það hefur komið sér vel og eftir að ég keypti skanna um jólin hef ég verið að dunda mér við að koma þessu á stafrænt form í hárri upplausn.

Núna er ég búinn að skanna um 1.700 myndir inn. Ég ætla svona öðru hvoru að henda hérna inn myndum, sem ég geymi á Flickr sem eru frá einhverjum atburðum í mínu lífi.

Fyrsta myndin kemur hér, en hún er ein af mínum uppáhalds myndum. Hún er tekin í desember 1998. Þarna er ég ásamt þremur vinum mínum, Emil, Borgþóri og Friðrik. Við erum staddir á Inca Trail í Perú. Það er göngustígur, sem er yfir Urubamba ánni í Perú og liggur uppað Machu Picchu. (smelltu hér til að fá stærri útgáfu af myndinni)

Þegar við fórum í þessa 4 daga göngu þá gat fólk enn farið þessa göngu án leiðsögumanna (núna er bara hægt að fara í hópum). Við vorum því bara 4 saman með kort og vorum einir nánast allan daginn. Við hittum einstaka sinnum gönguhópa, fulla af fólki með litlar handtöskur, sem lét gædana bera allt dótið fyrir sig. Við hins vegar vorum að burðast með 20 kílóa poka með tjaldi og mat, svo að það gerði þessa ferð enn skemmtilegri fyrir okkur.

Þessi ferð uppað Machu Picchu er klárlega einn af hápunktunum á þeim ferðalögum sem ég hef farið í um ævina.

11 ummæli hingað til

Mar 30 2008

Punktablogg á sunnudegi

Einar Örn skrifaði í flokkinn Almennt

Af því að ég get varla komið frá mér heilstæðri bloggfærslu, þá kemur punktablogg

  •  Ég er rooosalega ánægð með þá yfirlýsingu Inbibjargar Sólrúnar á flokkstjórnarfundinum í dag að skoða eigi tolla á kjúklingum og svínakjöti.  Framleiðsla á þessum vörum er auðvitað bara iðnaður og á ekki að vera vernduð einsog sauðfjárrækt.  Ég verð nú að játa að ég er pínu að hugsa um sjálfan mig þarna því fyrirtækið mitt kaupir kjúklingakjöt fyrir tugi milljóna á ári.
  • Í gærkvöldi var mér boðið í tvö partí, en vegna þreytu (þar sem ég var að djamma á föstudagskvöldinu) þá meikaði ég ekki að koma mér útúr húsi.
  • Í stað þess horfði á á Bush’s War – 5 klukkutíma af Frontline þáttum um Íraksstríðið og baráttuna innan Bush stjórnarinnar.  Frábært efni.  Það er hægt að horfa á þetta online á pbs.org og ég mæli með því fyrir alla (eða þá að fólk nái sér í þetta á torrent síðum) þar sem að Frontline er aldrei sýnt á Íslandi þótt sá þáttur sé 20 sinnum betri en t.a.m. 60 minutes.
  • Liverpool vann Everton í dag.  Það var ljómandi skemmtilegt.  Ég er orðinn nokkuð hrifinn af þessum Torres gaur, sem á það til að skora fyrir mitt lið.
  • Ég er vanalega nokkuð hrifinn af Atla Gíslasyni sem stjórnmálamanni, en það verður að segjast einsog er að umræða um efnahagsmál einsog var í Silfri Egils í dag virkar ekki hans sterkasta hlið.  Allavegana fannst mér hann ekki ýkja sannfærandi.
  • Hins vegar var viðtalið við gaurinn í Torfusamtökunum fínt.  Ég er eiginlega alveg kominn inná þá hugmynd sem hefur verið sett fram að vernda einfaldlega allan miðbæinn og gera ákveðnar kröfur á húseigendur í miðborginni.  Menn eiga að viðhalda húsunum í sinni upphaflegu mynd og ef þeir byggi nýjar byggingar, þá verði þær að vera í svipuðum stíl og eldri byggingar.  Já, og svo þarf að taka hart á þeim sem nást við þá iðju að vera að spreyja á gömul og falleg hús.

Fleira var það ekki.

Ein ummæli hingað til

Mar 29 2008

Mús

Einar Örn skrifaði í flokkinn Netið

Stelpa að horfa á músarbendil.

Engin ummæli enn

Mar 27 2008

Úff

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók

Sjitt hvað þetta er leiðinleg bloggsíða!

8 ummæli hingað til

Mar 22 2008

Breskar stelpur og Macbook Air

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók

Þetta er helvíti sniðugt.

* * *

Ég er furðu hress núna miðað við að hafa ekki farið að sofa fyrr en klukkan 6 í morgun.  Var í algjörlega frábæru innflutningspartíi í gær og fór svo niðrí bæ með skemmtilegu fólki þar sem ég var fram eftir morgni.  Frosnaði svo næstum því í hel hlaupandi heim.  Ég var í jakka, með trefil og vettlinga en mætti akkúrat á leiðinni strák í stuttermabol.  Ég á oft bágt með að skilja klæðaburð íslenskra karlmanna á djamminu.

* * *

Ég skrifaði aldrei um Liverpool ferðina sem ég fór í með vinum mínum í janúar.  Sú ferð var algjörlega frábær.  Auðvitað var leikurinn skemmtilegur og allt í kringum það, en einnig var það frábært að fara útað skemmta sér með vinahóp sem er ekki beint sá virkasti á djamminu lengur.

Þar sem ég skrifaði aldrei um ferðina þá skrifaði ég aldrei um aðdáun mína á bresku kvenfólki.  Líkt og margir íslenskir karlmenn, þá virðast breskar stelpur einmitt þola allt veður.  Við vorum þarna í janúar í reyndar nokkuð góðu janúar veðri.  En um kvöldið var nokkuð kalt og ég fór um djammið í úlpu.  Norður-ensku stelpurnar voru hins vegar allar klæddar einsog þær væru á strandbar í karabíska hafinu.  Þær voru nánast án undantekningar í pilsum og ég sá varla nokkra stelpu í jakka eða nokkurri yfirhöfn.

Ég er ofboðslega veikur fyrir pilsum og því var ég nokkuð hrifinn af stelpunum í Liverpool einsog ég hef reyndar komið inná áður.  Þessir fordómar Íslendinga gagnvart bresku kvenfólki eiga sér oft litla stoð í raunveruleikanum.

* * *

Ég fór líka á djammið á miðvikudaginn og held að þetta sé orðið ágætt í þessu páskafríi.  Á morgun er auðvitað stórleikur í enska boltanum og ég skrifaði í gær heillanga upphitun fyrir hann.  Á mánudaginn er ég svo að vonast til að komast á bretti.  Talandi um Liverpool bloggið þá minnir mig að í gær hafi strákur kysst mig á 11-unni fyrir það að vera með bloggið.  Það er án efa mest hressandi kveðja sem ég hef fengið á djamminu útaf þeirri síðu.  :-)

* * *

Hérna er pistill frá meistara Paul Krugman, sem hann skrifaði fyrir 5 árum við upphaf Íraks-stríðsins.  Hann hafði rétt fyrir sér.

* * *

Macbook Pro tölvan mín er núna orðin 18 mánaða gömul og það magnaða við hana er að hún uppfyllir enn allar mínar kröfur alla daga vikunnar.  Vanalega er ég ótrúlega spenntur að skipta um tölvu sirka tveim mánuðum eftir að ég kaupi hana, en þessi tölva hefur elst gríðarlega vel.

Ég verð þó að játa að ég verð alltaf spenntari og spenntari fyrir því að kaupa mér Macbook Air (sjá ágætis umfjöllun um mann sem skipti úr Pro yfir í Air).  Ég hef átt tvær tölvur að undanförnu.  Annars vegar mjög gamla og slappa iMac sem er heima hjá mér og hýsir alla tónlistina, myndir, myndbönd og slíkt.  Og svo er ég með Macbook Pro, sem er vinnutölvan mín og sú tölva sem ég eyði langmestum tíma fyrir framan.

Mestöll vinnan sem fer fram á þessari tölvu er netráp, vinna í Keynote, OmniFocus, Mail, Excel og Word.  Fyrir slíka vinnu er Macbook Air alveg nógu öflug tölva.  Og það sem heillar mig við hana er stærðin.  Ég er nefnilega með tölvuna á mér allan daginn í hliðartösku.  Eftir að hafa höndlað Macbook Air í nokkur skipti þá finnur maður klárlega hvað hún myndi létta manni það að bera tölvu allan daginn.  Einnig virðist hún gefa frá sér minni hita, sem mér finnst mjög mikilvægt.

Æji, ætli ég haldi þetta samt ekki út þangað til að Air fær sína fyrstu uppfærslu.  Það er erfitt að réttlæta það að skipta um tölvu þegar að núverandi tölva sinnir sínu starfi.  En mér hefur svo sem tekist að sannfæra mig um vitlausari hluti.

Ein ummæli hingað til

Mar 19 2008

Skrifstofan mín og gengismálin

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók

Nota bene, ég skrifaði þetta á undan Dylan pistlinum, en birti ekki strax. Það skýrir byrjunina.

Ja hérna. Ein vika án þess að uppfæra þessa blessuðu síðu. Það mætti halda að hræðilega margt merkilegt hefði gerst í mínu lífi. Eða þá nákvæmlega ekkert.

Ég hef allavegana fátt til að skrifa um.

Jú, ég er kominn inná skrifstofu í fyrsta skipti í sögu Serrano. Hingað til höfum við bara haft litla holu fyrir ofan staðinn okkar í Kringlunni, þar sem ég hef reynt að koma mér fyrir ásamt verslunarstjóra, rekstrarstjóra og starfsfólki Kringlunnar sem vill tala við okkur. Sú hola er sennilega um 2-3 fermetrar, með litlu skrifborði þannig að ég hef oft setið í tröppunum eða á stól með tölvuna í fanginu.

Nú eða þá að ég hef bara unnið á kaffihúsum borgarinnar. Núna erum við hins vegar komin með skrifstofu í turninum í Smáralind. Ég er svo glaður að ég tók mynd af mér á nýju skrifstofunni. Jibbí jei!

* * *

Ég verð að játa að ég er ekkert alltof hrifinn af þessum gengismálum. Ég er ekki alveg að fíla það að eignir mínar, sem eru jú metnar í krónum, skuli hafa minnkað um fjórðung á nokkrum vikum. Ef þetta væri almennilegt land, þá væri búið að sparka Seðlabankastjóra landsins úr starfi sínu. Og við værum líka gengin í ESB. En auðvitað þurfa Sjálfstæðismenn að ríghalda í “sjálfstæða peningastefnu” og “fullveldi” landsins á meðan að eignir landsmanna hrynja í verði. Sveiflurnar í þessu hagkerfi eru svo fáránlegar að það er varla hægt að tala um þessi mál ógrátandi. Ísland í ESB, núna strax!

* * *

Í morgunþættinum Zúber í gærmorgun var fólk að hringja inn sem var í vandræðum útaf þessum gengisbreytingum. Meðal annars hringdi kona, sem átti 5,5 milljón króna bíl sem hún keypti með því að taka 70% lán í erlendri mynt. Nú er ég ekki einn af þeim sem gleðst yfir óförum annarra eða hlakka yfir því að bankastarfsmenn séu með allt niðrum sig. Langt því frá. En ég get einfaldlega ekki vorkennt fólki sem tekur 70% lán í erlendri mynt meðan krónan er í lágmarki til að kaupa sér bíl uppá 5,5 milljónir. Nú ek ég á 5 ára gamalli Nissan druslu, svo ég geri mér ekki grein fyrir því hvað nýjir bílar kosta, en samkvæmt stuttu tékki á toyota síðunni, þá getur maður keypt LandCruiser fyrir þannig pening. Sumar holur grefur fólk sér einfaldlega sjálft.

Af hverju finnst mér líka alltaf fólkið sem kvartar mest yfir bensínverðinu vera fólkið, sem er á eyðslumestu bílunum (og þá undanskil ég vitanlega atvinnubílstjóra)?

* * *

Á myndinni sem ég minntist á áðan má líka sjá að ég er kominn með stutt hár eftir að hafa verið með frekar sítt að aftan og framan í langan tíma. Þessi nýja stutta klipping gerir það að verkum að hárið á mér krullast allt upp, sem er mjög hressandi. Að ég held í fyrsta skipti á ævinni, þá klippti strákur hárið á mér.

Jú, og ég fór á bretti í annað skiptið á ævinni með vinkonu minni um helgina. Ég tók einhverjum framförum frá fyrsta skiptinu, en samt ekkert rosalega miklum. Og svo borðaði ég á Austur-Indíafélaginu, sem er alveg fáránlega góður veitingastaður ef að það hefur ekki komið nógu skýrt fram áður.

8 ummæli hingað til

Mar 18 2008

Dylan kemur

Einar Örn skrifaði í flokkinn Tónlist

Já já, Dylan er víst á leiðinni til Íslands. Það er fagnarðarefni. Ég sá hann fyrir tæpum fjórum árum (linkur á ferðasögu) ásamt Willy Nelson á baseball velli í Kansas. Það voru verulega góðir tónleikar, sérstaklega þegar að Dylan og Nelson sameinuðust á sviðinu og tóku Heartland. Set listinn hjá Dylan á þeim tónleikum var svona:

  1. Maggie’s Farm
  2. Tonight I’ll Be Staying Here With You
  3. Stuck Inside Of Mobile With The Memphis Blues Again
  4. Heartland (with Willie and his sons)
  5. Tweedle Dee & Tweedle Dum
  6. Positively 4th Street
  7. Highway 61 Revisited (Elana Fremerman on violin)
  8. Tryin’ To Get To Heaven (Elana Fremerman on violin)
  9. High Water (For Charley Patton)
  10. Honest With Me
  11. Ballad Of Hollis Brown (acoustic)
  12. Summer Days (Tommy on guitar) (encore)
  13. Like A Rolling Stone
  14. All Along The Watchtower

Einsog sést, þá eru þarna ekkert alltof mörg mjög þekkt lög. Hann tekur sennilega ekki nema tvö lög sem kæmust inná topp 10 hjá mér (Watchtower og Rolling Stone) – en þarna eru samt frábær lög inná milli. En bara það að vera úti í 30 stiga hita í hjarta Bandaríkjanna að hlusta á Willie og Dylan spila Heartland hlýtur að vera einn af topp-punktunum á þeim tónleikum sem ég hef farið á um ævina.

Það er alveg ljóst að Egilshöllin mun ekki toppa baseball völl í Kansas sem staðsetningu fyrir svona tónleika, en ef við skoðum set-listann á síðustu tónleikum Dylan í Buenos Aires, þá lítur hann svona út

  1. Rainy Day Women #12 & 35 (Bob on electric guitar)
  2. Lay, Lady, Lay (Bob on electric guitar)
  3. Watching The River Flow (Bob on electric guitar)
  4. Masters Of War (Bob on keyboard)
  5. The Levee’s Gonna Break (Bob on keyboard, Donnie on electric mandolin)
  6. Spirit On The Water (Bob on keyboard and harp)
  7. Things Have Changed (Bob on keyboard)
  8. Workingman’s Blues #2 (Bob on keyboard)
  9. Just Like A Woman (Bob on keyboard and harp)
  10. Honest With Me (Bob on keyboard)
  11. When The Deal Goes Down (Bob on keyboard)
  12. Highway 61 Revisited (Bob on keyboard)
  13. Nettie Moore (Bob on keyboard, Donnie on viola)
  14. Summer Days (Bob on keyboard)
  15. Like A Rolling Stone (Bob on keyboard)
  16. Stuck Inside Of Mobile With The Memphis Blues Again (Bob on keyboard)
  17. All Along The Watchtower (Bob on keyboard)
  18. Blowin’ In The Wind (Bob on keyboard and harp, Donnie on violin)

Þarna er auðvitað munur á því að set-ið er fjórum lögum lengra.  Og þarna eru líka komin inn þrjú algjörlega æðisleg lög sem ég held mikið uppá í Just Like a woman, Masters of War og Blowin in the wind.  Auðvitað bætast líka við lög af Modern Times og mér sýnist hann vera með uppáhaldslögin mín af þeirri plötu, það er Spirit on the water og Workingman’s Blues #2.  Einnig eru komin inn góð lög einsog Rainy Day Women (sem mér finnst reyndar leiðinlegasta lagið á Blonde on Blonde, sem er besta plata allra tíma) og Things have changed.

* * *

Málið er einfaldlega að ég gæfi gríðarlega mikið fyrir að hafa verið í Royal Albert Hall árið 66 og hlustað á Bob með alla sína rödd sitja í rólegheitunum og syngja Visions of Johanna og Desolation Row.  Það hefði verið stórkostlegt.  En ég verð að sætta mig við að ég var ekki fæddur þá og mun aldrei sjá minn uppáhaldstónlistarmann á hátindi ferilsins.  Ég get hins vegar séð hann núna með þeim kostum og göllum sem því fylgja.

Það er hægt að fara á Dylan tónleika með tvenns konar hugarfari.  Annars vegar með því að búast við því að hann syngi eins vel og ‘66, spili Sad Eyed Lady og Visions of Johanna og geri allt einsog á plötunum í gamla daga.  Það er hins vegar ekki að fara að gerast.  Dylan er 66 ára gamall, röddin er skemmd og hann spilar ekki lögin sem við vildum kannski helst að hann myndi spila.  En það breytir því ekki að það að sjá þessa goðsögn, þennan mesta tónlistarmann sögunnar, er stórkostleg upplifun.  Ef fólk vill hlusta á Dylan einsog hann var þá, þá verður það að hlusta á hann af plötum.  En það er líka hægt að fara með því hugarfari að þetta sé tækifæri til að sjá þennan snilling á seinni árum ævinnar takandi mörg af bestu lögum allra tíma – kannski í breyttum útgáfum og með öðruvísi söng.

En þetta er samt Bob Dylan.

7 ummæli hingað til

Mar 10 2008

Helgin, Zapatero og hræðsluáróður

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók

Það er magnað hvað mér tekst alltaf að fokkar upp allri rútínu þegar ég fer út fyrir landsteinana. Allt mataræði, líkamsrækt, etc fer í algjör royal fokk. Ég þarf alltaf nokkra daga til að koma mér á rétta braut.

Ég átti mjög góða helgi samt. Gerði reyndar ekkert voðalega mikið eða merkilegt. Lá í leti heima á föstudagskvöldið og það stefndi allt í það að eins yrði á laugardeginum. En þá heyrði ég í einum vini mínum og við ákváðum að hittast. Þannig að ég drakk eitthvað af þessum vodka-birgðum sem ég á uppí skáp og svo kíktum við á Ölstofuna þar sem við hittum fullt af skemmtilegu fólki og þaðan fórum við á 11-una, þar sem við skemmtum okkur konunglega þar til að staðnum var lokað.

Sem gerðist eftir klukkan 6 þannig að ég eyddi mestöllum sunnudeginum sofandi. Kíkti svo um kvöldið á tónleika á Nasa þar sem að Guffi, sem er með mér í stjórn UJR, spilaði með hljómsveitinni sinni For a Minor Reflection. Kíkti svo á Thorvaldsen eftir tónleikana.

* * *

 

Ég skrifaði stutta færslu inná UJR.is, þar sem ég fjalla um farsakenndan hræðsluáróður þeirra sem voru á móti aðild Íslands að EES. Nokkrir eru farnir að nota sömu rökin í baráttu sinni gegn væntanlegri ESB aðild okkar.

* * *

Hérna er mikið magn af efni með Leoncie. Mjög hressandi!

* * *

Zapatero vann á Spáni. Það eru frábærar fréttir!

Já, og hérna er algjörlega æðislegt lag með hljómsveit með stórkostlegt nafn:  Dark end of the street með The Flying Burrito Brothers.

Engin ummæli enn

Mar 08 2008

Enjoy the Silence

Einar Örn skrifaði í flokkinn Tónlist

Þetta er flottasta auglýsing, sem ég hef séð á þessu ári:

Sá þetta á undan Juno í bíó í Stokkhólmi á fimmtudaginn. Aðalástæðan er auðvitað notkunin á laginu Enjoy the Silence með Depeche Mode, sem er eitt af mínum uppáhaldslögum. Þessi auglýsing gerði það einmitt að verkum að ég hef hlustað á þetta æðislega lag nánast stanslaust síðan ég kom heim frá Stokkhólmi.

Jæja, ég ætla að reyna að gera mig sætan og kíkja svo út. Ómögulegt að hanga inni á laugardagskvöldi.

2 ummæli hingað til

Mar 07 2008

Serrano #4 í Hafnarfirði

Einar Örn skrifaði í flokkinn Vinna

Það er nóg að gerast hjá okkur á Serrano. Salan á þessu ári hefur verið ótrúlega góð og aukningin frá því í fyrra mikil þrátt fyrir það að árið í fyrra hafi verið algjört metár.

Allavegana, í næsta mánuði ætlum við að opna fjórða Serrano staðinn og hann verður við Dalshraun í Hafnarfirði. Einsog lesendur þessarar síðu vita þá keyptum við taílenska staðinn Síam síðasta haust. Sá staður var í talsvert stærra húsnæði en var nauðsynlegt og ákváðum við því að breyta húsnæðinu talsvert. Við ákváðum að minnka Síam aðeins og að taka allt plássið við hliðiná Síam og setja þar Serrano stað.

Þessar framkvæmdir eru núna komnar á fullt. Á Síam verður áfram pláss fyrir 25 manns í sæti og svo mun sá staður leggja meiri áherslu á take-away mat. Á Serrano verður svo pláss fyrir 30 manns í sæti. Framkvæmdirnar hófust fyrir rúmum 10 dögum og við stefnum á að opna staðinn í byrjun apríl. Það verður væntanlega eitthvað minna stress í tengslum við opnunina heldur en var í kringum Smáralindina.

Hérna er mynd, sem ég tók núna áðan á leið heim af flugvellinum. Þarna á afgreiðslan að vera

Og á seinni myndinni er svo bekkur sem verður eftir einum veggnum og snýr að útganginum. Búið er að leggja parketið á vegginn, en enn á eftir að klára aðra veggi, gólf, loft og flest annað.
Sjá fleiri myndir hér.

Staðurinn verður með mjög svipuðu útliti og Smáralindin, þannig að hann verður væntanlega mjög glæsilegur. Hafnfirðingar geta því loksins keypt almennilegt burrito í bænum sínum frá og með næsta mánuði. :-)

11 ummæli hingað til

Mar 04 2008

Kvöld í Stokkhólmi

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók, Ferðalög

And through it aaaaaaaaaaaaall she offers me protection…

Þetta lag á sennilega það sem eftir er að minna mig á ákveðna stund á ákveðnum stað í Liverpool borg með vinum mínum. Mjög skondið móment, sem rifjaðist upp fyrir mér yfir kvöldmatnum þegar þetta var spilað á veitingastaðnum.

* * *

Þegar ég ferðast einn, þá geri ég oft fulltaf hlutum sem ég elska en geri samt aldrei á Íslandi. Fínt dæmi er gærkvöldið. Þá fór ég útað borða á sæmilegum veitingastað, pantaði mér steik og hálfa rauðvín og drakk flöskuna með matnum um leið og ég las nokkra kafla í frábærri bók. Þetta var æðislegt!

Heima á Íslandi geri ég aldrei svona hluti. Stundum finnst mér æðislegt að vera einn með sjálfum mér, en heima er maður af einhverjum ástæðum hræddur við að vera einn utan heimilisins. Kannski vill maður ekki líta furðulega út. En það er samt sem áður staðreynd að kvöld einsog gærkvöldið eru svo miklu skemmtilegri en sum kvöldin sem maður á heima hjá sér, liggjandi í leti fyrir framan sjónvarpið.

* * *

Var að lesa Bush Falls eftir Jonathan Tropper, sem skrifaði líka How to talk to a widower. Einsog sú bók er Bush Falls æði. Uppáhalds-samtalið mitt í bókinni er milli Joe, söguhetjunnar (34 ára) og Jared, 18 ára frænda hans. Joe byrjar:

What about the window girl?
Kate.
Kate. You think you’ll talk to her anytome soon?
I don’t know. As frustrating as it is, there’s something nice about this stage.
She doesn’t know you exist. I don’t think you can legally call that a stage.
I know. But I haven’t fucked anything up yet.
Point taken.

Jamm.

* * *

Í kvöld var ég á pöbb og horfði á bæði Arsenal og Man U komast áfram í Meistaradeildinni. Ég er með ofnæmi fyrir báðum liðum. Ég hefði frekar átt að vera heima, baðandi sjálfan mig í sýrubaði fullu af nöglum, hlustandi á Celine Dion.

Það hefði verið skemmtilegra.

Ein ummæli hingað til

Mar 02 2008

Lost og fleira

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók

Fyrir þá, sem eru einsog ég og ná sér í nýjasta Lost þáttinn nokkrum klukkutímum eftir að hann er sýndur í Bandaríkjunum, þá er hérna afar athyglisverð kenning um það hvernig að þættirnir fjalli í raun um tímaferðalög (nota bene, ef þú ert ekki kominn að nýjasta þættinum þá mun þessi síða rústa öllu fyrir þér). Síðasti þáttur um Desmond ýtir stoðum undir þessa kenningu. Ég er búinn að lesa þetta síðasta klukkutímann og þetta er skemmtilegt lesefni fyrir Lost nörda á sunnudagsmorgni. (via Fimoculous)

* * *

Af hverju er ég vakandi og hress svona snemma á sunnudegi? Jú, ég fór heim af djamminu í gær klukkan tvö sérstaklega til að hafa orku til þess að fara á skíði í dag. En svo er bara brjálað hvassviðri í Bláfjöllum og því planið fyrir daginn farið útum gluggann. En fótboltagláp er svo sem ekki slæmur kostur.

Ég var á málþingi hjá UJ í gær sem var bæði virkilega fjölmennt og mjög skemmtilegt. Ég fylgdist með umræðum um ESB mál, en einnig voru innflytjendamál rædd í annarri málstofu. Fyrirlestrarnir um ESB voru góðir og sérstaklega flutti Aðalsteinn Leifsson, lektor í HR, frábært erindi um hið stóra hlutverk ESB.

Við Íslendingar gleymum því nefnilega oft að ESB snýst hvorki um sjávarútvegsmál né okkar eigið rassgat, heldur að skapa og útbreiða pólitískan stöðugleika, sem var í raun nánast óhugsandi fyrir 60 árum. Jón Þór Sturluson og Ágúst Ólafur komu svo inná aðeins praktískari málefni í sínum erindum um evruna og lýðræði innan ESB. Þessi fundur var ekki til að minnka sannfæringu mína um að það er hreinasta glapræði fyrir okkur Íslendinga að taka ekki upp aðildarviðræður við ESB strax.

Einnig kom Aðalsteinn og spyrjendur útí sal ágætlega inná það sem ég held að sé helsta ástæða fyrir því að fólk er á móti ESB. Ég tel sjálfur að fyrir því séu nokkrar ástæður. Fyrst er það að forystumenn Sjálfstæðisflokksins hafa verið á móti aðild. Um leið og þeir skipta um skoðun, þá held ég að flokkurinn muni breytast í allsherjar ESB flokk. Ég tel nefnilega að í Sjálfstæðisflokknum sé tiltölulega lítill hópur, sem er virkilega á móti aðild og hefur sá hópur sig afskaplega mikið í frammi. Svo held ég að meginþorrinn sé fólk einsog þeir Sjálfstæðismenn sem eru í kringum mig. Fólk, sem sér voðalega lítið mæla gegn aðild, en fylgir oftast flokkslínunni vegna þess að það treystir forystumönnum flokksins. Ég tel að ef að forystumenn íhaldsins byrjuðu að tala vel um ESB, þá myndi flokkurinn fljótt breytast. Og þá munu Moggabloggararnir sem froðufella yfir landráðamönnum einsog mér vakna upp sem lítill minnihlutahópur í stórum ESB flokki.

Önnur ástæðan, sem má varla tala um, er að mínu mati þjóðremba. Við teljum okkur vera betri en önnur lönd. Við teljum (einsog ég hef heyrt marga Sjálfstæðismenn halda fram) að við sem framleiðum örsmátt brot úr prósenti af öllum gæðum heimins getum einhvern veginn náð betri viðskiptasamningum við lönd utan ESB en ESB sjálft. Við teljum okkar kerfi vera betra, að við höfum náð einhvers konar fullkomnu ástandi með EES samningnum. Við teljum að íslenskir ostar séu þeir bestu og að íslensk kjúklingabú séu á einhvern hátt betri en dönsk og að ESB aðild muni á einhvern hátt leggja allt íslenskt í rúst. Og við viljum enga Spánverja veiðandi fiskinn okkar, þrátt fyrir að við stöndum sjálf í því að ryksuga miðin útaf ströndum Afríku.

Ég upplifi mig hins vegar að stóru leyti sem Evrópubúa. Ég held að dvöl mín í Bandaríkjunum hafi gert það að verkum. Eins mikið og ég elska Bandaríkin og Bandaríkjamenn, þá tel ég einfaldlega að þær hugsanir og gildi sem ríki í Evrópu séu svo miklu nær mínum eigin. Og mig langar að vera hluti af einhverju stærra. Mér finnst frábært að vera Íslendingur og það mun aldrei breytast. En mig langar líka að vera hluti af einhverju stærra. Einsog Aðalsteinn sagði, að geta fundið til meiri samkenndar við aðra Evrópubúa. Að ég eigi smá hluta í Alpafjöllunum og ströndunum á Spáni. Við erum Evrópubúar og við ættum að mínu mati að vinna eins náið með öðrum Evrópubúum og við getum. Besta leiðin til þess er að ganga í Evrópusambandið.

* * *

Eftir þingið fór ég svo í partí á 7-9-13 þar sem fulltaf skemmtilegu fólki var samankomið. Ég og einn vinur minn færðum okkur svo yfir á Vegamót þar sem við vorum til 2 með skemmtilegu fólki er ég ákvað að koma mér heim til að vera hress fyrir skíðaferðina sem ekkert varð úr. Ég átti fullt af fróðlegum samræðum um pólitík og líka um áhrif þessarar bloggsíðu á mitt einkalíf. Það samtal verðskuldar eiginlega sjálfstæða færslu sem fer væntanlega í hóp með þeim milljón færslum sem ég hef lofað að skrifa á þessari síðu.

* * *

Á morgun er ég á leið til Stokkhólms þar sem ég verð fram á föstudag. Mér tókst því ekki að klára ferðasöguna frá Liverpool ferðinni fyrir þá ferð. Ó jæja.

2 ummæli hingað til